Lögberg - 23.04.1942, Page 1
55. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. APRÍL. 1942 NÚMER 17
Þióðeinir iffin í Canad a krefst iákvæðs svars við atkvæðagr eiðsluna á máni ídaginn
FRETTIR
Á laugardaginn var iheimsóttu
amerískar orustuflugvélar í
fyrsta skiftið í núverandi stríði,
höfuöborg Japana, Tokyo, og
sendu Japönum ineð því nokkr-
ar sprengj'ukveðjur; ihve miklum
skemdum árás þessi olli, er enn
eigi vitað, þó talið sé víst, að
þær hafi orðið allverulegar.
•
Forsætisráðherrann í Ástralíu.
John Curtin, hefir opinberlega
tilkynt, að ástralski tundurspill-
irinn Vampire, hafi verið
sprengdur til agna í Bengalflóa
i árás af hálfu Japana. Svo að
segja í sömu andránni, söktu
Ameríkumenn japönsku beiti-
skipi skamt undan eynni Cebu.
•
Frá Rússlandi hefir fátt eitt
borist af markverðum tíðindum
þessa siðustu daga; snarpar or-
ustur hafa þó verið háðar í
grend við Leningrad, og eins á
miðvígstöðvunum í námunda við
Smolensk, án þess að til raun-
verulegra úrslita halfi komið, þó
Rússum hafi vegnað nokkru bet-
ur en Þjóðverjum; en nú er
staðhæft, að hersveitir Rússa
hafi á ýinsum stöðum víglínunn-
ar, unnið sigra mikla yfir Finn-
um.
•
í Libyu má segja, að all
hjakki í sama farinu, þó líklegt
]>yki, að innan skamms dragi þar
til stórvægilegra vígaferlia, sakir
batnandi veðurfars og umferð-
ar; siðasta hálfan mánuð hefir
verið svo inikið sandrok í eyði-
inörkum Libyu, að lítt kleift
hefir reynst að komast um; þó
hefir nokkuð verið um loftárás-
ir á_stöðvum þessum af hálfu
beggja hernaðaraðilja.
•
(Frá Vígstöðvunum í Burma,
hafa iliðsveitir sameinuðu þjóð-
anna enn verið knúðar til þess
að hörfa undan innrásarfylking-
um Japana, er svo að segja dag-
iega hafa fengið aukinn liðsstyrk
að heiman, og eins frá Singapore
og Austur Indlandseyjum; er það
einkum loftfloti Japana, sem á
svæðuin þessum hefir yfirhönd-
ina fram að þessu.
•
Brezkir árásarflokkar gerðu á
þriðjudaginn tveggja stunda
snarpa atrennu að ýmsum míkil-
vægum varnarlínum í hluta hins
óhernumda Frakklands, og gerðu
þar margvislegan usla; kom
heimsókn þessi innbyggjum mjög
á óvart, og varð þessvegna lítið
um viðnám; sá hluti Frakklands,
er Laval nú ræður yfir, nýtur
ekki frelsis nema þá að nafni
tiil, þvi Þjóðverjar ráða þar öllu,
að því er varnir áhrærir.
•
Ekki batnaði í búi á Frakk-
landi þegar Laval kom til sög-
unnar á ný; hafði valdataka
hans í för með sér rán og grip-
deildir, auk þess sem gerðar voru
tilraunir til þess að sprengjá upp
járnbrautarlestir, er fluttu þýzka
herinenn frá einum stað til ann-
urs; var ein slik lest sprengd i
loft upp, og fórst þar margl
manna. Þýzk hernaðarvöld hafa
látið taka af lífi 80 manns á
Frakklandi þessa síðustu daga,
er sakaðir voru um, að hafa ver-
ið valdir að æsingum gegn Hitler
og öðrum foringjum Nazista.
•
Sir Stafford Cripps tjáist enn
eigi úrkula vonar um það, að
takast megi að koma Indlands-
málunum í viðunanlegt horf.
Hlýtur
hetðursvtðurkenningu
Séra Vnldimar J. Eylands, R.I).
Á glæsilegri árslokahátíð
United Coliege, sem fram fór í
St. Stephens-Broadway kirkjunni
á fimtudagskveldið þann 16.
þessa mánaðar, var séra Valdi-
inar J. Eylands, prestur Fyrsta
túterska safnaðar, sæmdur
Bacihelor of Divinity gráðu l'yrir
ihina gagnmerku og fræðimann-
legu bók ,sina. “Lutherans in
Canada,” er Lögberg fyrir nokkru
vék að; er séra Valdimar manna
maklegastur þeirrar sæmdar, er
honum með þessu hefir fallið i
skaut; hann er maður djúpvitur
og vandvirkur með ágætum; víst
má telja, að þess verði eigi langt
að bíða unz séra Valdimar hljóti
doktorsgráðuna í guðfræði.
Kennimönnum bannað
málfrelsi
í þeim löndum, þar sem Hitler-
isminn hefir náð sér niðri, hefir
mannfrelsið verið kistulagt; bik-
ar ihinnar ægilegustu áþjánar
hefir þar þegar verið yfirfyltur;
það er ekki einasta að öllu fé-
inæti hafi verið ruplað og rænt,
og mergurinn soginn úr fólki,
heldur er og svo um hnúta bú-
ið, að málfrelsinu hafa verið
stungin svefnþorn; frá Noregi
hafa þær ömurlegu fregnir ný-
lega borist, að norskir biskupar
hafi verið syiftir málfrelsi, og
mörgum þeirra varpað í þræla-
kvíar; svipaðri meðferð hafa
einnig margir norskir prestar
sætt, er flytja vildu í kirkjum
sínum fagnaðarerindi kristninn-
ar; það er á orði haft, hve þessir
norsku kennikenn sé viljasterkir,
og staðráðnir í því, að láta frem-
ur lífið, en kyssa á vönd þeirra
tortímingarafla, sem nú leika
lausum hala í Noregi.
Stórfengleg fjárveiting
Sambandsstjórn hefir nýlega
lagt fyrir þing frumvarp til laga.
er fer fram á $80,000,000 fjár-
veitingu í því augnamiði, að
gera hermönnum kleift, er komn-
ir eru til baka úr herþjónustu,
eða koma síðar, að hefja land-
búskap. Frumvarpi þessu hefir
verið vísað til 2. umræðu; er
stjórninni kappsmál, að fá það
alfgreitt áður en núverandi þingi
slítur.
FISKAR BREYTA LIT
Það er alkunna, að suinir fisk-
ar breyta um lit eftir umhverfi
sínu, og munu margir hafa veitt
þessu athygli, Ameríslcur fiski-
Ifræðingur, próf. F. B. Summer
hefir gert tilraun í þessa átt með
því að setja fiska í vatn undir
litað gler, og eftir skamman
tíma höfðu þeir öðlast sama lit
og glerið, sem var grænt.
Greiðið jákvætt atkvæði-—
Canadafólk má ekki láta það bregðaát að
neyta atkvæðis síns og greiða það játandi
I>etta ávarp er samið af nefnd þeirri. er gengst fyrir þvi
að játandi ntkvæði sé greitt í Manitobn; formaður nefndnr-
innar er Sidncy E. Smith forseti Manitba háskólans.
1. STRÍÐ ÞESSA LANDS:
Canadamenn eru að berjast fyrir lífi sínu og tilveru
þjóðar sinnar. Hvar sem hermenn, sjóliðsmenn og
flugmenn eru að berjast fyrir frelsi, eru þeir í stríði
fyrir hönd Canada. Þetta er stríð frjálsra manna og
Canadamenn verða að leggja fram alt, sem í þeirra
valdi stendur. Greiðið jákvætt atkvæði
2. STRÍÐ VESTUR-CANADA:
Vestur-Canada er hið síðasta mikla vesturland og
Hitler hugsar sér að ná yfiráðum yfir því. Frum-
byggjar þess eru enskir og frakkneskir, en við þá
hafa bæzt innflytjendur frá öðrum þjóðum. Vér
höfum leitað frelsis og fundið það hér. Vér ætlum
oss ekki að þola sömu örlög og Danir, Hollendingar,
Norðmenn, Belgíumenn, Frakkar, Grikkir, Pólverjar,
Júgóslavíumenn eða Czecho-Slóvakar. Vér ætlum oss
að kynda frelsiseldana í landi voru:
Greiðið jákvætt atkvæði
3. ÞETTA ER STRÍÐ ALÞÝÐUNNAR:
Alþýðan á Bretlandi hefir gert þetta stríð að sínu
eigin stríði. Brezkir menn og konur hafa heldur viljað
láta lífið en lifa sem Hitlers þrælar. Er ekki álþýðan
í Canada eins hugrökk og tápmikil eins og alþýðan á
Bretfandi? Greiðið jákvælt atkvæði
4. VEITIÐ STJÓRNINNI FULLKOMIÐ VALD:
Þess er óskað að þér leysið stjórnina og þingið frá
öllum hindrandi loforðum. Það að greiða JÁTANDI
ATKVÆÐI þýðir ekkert annað en að leyfa stjórninni
að reka stríðsmálin af fullum krafti og nota bæði
mannafla og auðæfi á þann hátt, sem mest og bezt
má að liði koma. Greiðið jákvætt atkvæði
5. ÞETTA ER FRELSISSTRÍÐ:
I þúsund ár hafa forfeður vorir bæði hér í landi og
annarsstaðar unnið, barist og strítt fyrir því frelsi,
sem þeim var meira virði en lífið sjálft: málfrelsi,
trúfrelsi, samkvæmisfrelsi, og um fram alt frelsi til*
þess að lifa samkvæmt þeim lögum og reglum, er þeim
fundust sér hagkvæmust, sem frjálsum mönnum.
Eigum vér að vinna, stríða og berjast fyrir þessu
frelsi? Greiðið jákvætt atkvæði
6. EF?:
Ef vér bíðum ósigur, er úti um alt frelsi vort. Það
væri illa farið vegna sjálfra vor. En hvað getum vér
sagt um börn vor og barnabörn í því sambandi? Börn
vor eiga heimting á því að vaxa upp við frelsi eins
og vér sjálf höfum gert. Getum vér látið það koma
fyrir að vér bregðumst þeim?
Greiðið jákvæit atkvæði
8. HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ GREIÐ JÁKVÆTT
ATKVÆÐI:
(a) Fyrir Bandamenn þýðir það, að vér stöndum í
fylkingunni með þeim á móti sameiginlegum óvini
vorum. AÐ GREIÐA JÁKVÆTT ATKVÆÐI þýðir að
lönd þeirra verði frelsuð; að land vort haldi áfram að
verða frjálst. Greiðið jákvætt atkvæði
(b) Fyrir hermenn vora þýðir það að vér ætlum oss
að styrkja þá af alefli. Greiðið jákvætt atkvæði
9. HVAÐ NEIKVÆTT ATKVÆÐI ÞÝÐIR:
(a) Fyrir Bandamenn vora þýðir NEIKVÆTT AT-
KVÆÐI það, að Canada taki vetlingatökum á stríðs-
málunum á sama tíma sem Bandamenn vorir berjast
af alefli. Greiðið jákvætt atkvæði
(b) Fyrir hermenn vor þýðir það svik.
Greiðið jákvætt atkvæði
10. JÖFN FÓRNFÆRSLA, EINING, SIGUR:
Að greiða jákvætt atkvæði þýðir það að byrði stríðs-
ins fellur jafnara á allra herðar. Það er lýðræðisleg-
asta aðferðin til þess að heyja fullkomið stríð. Það er
sigurvænlegasta leiðin til þess að yfirvinna óvini vora.
Greiðið jákvætt atkvæði
11. Neikvætt atkvæði þýðir þjóðarsundrung.
Greiðið jákvætt atkvæði
Jákvætt atkvæði þýðir þjóðareining.
Greiðið jákvætt atkvæði
Neikvætt atkvæði leiðir til ósigurs. Greiðið jákvætt
atkvæði til sigurs og þjóðheilla.
Greiðið jákvætt atkvæði!
YFIRLÝSING
"Með hliðsjón af því hve nú horfir alvarlega við á vett-
vangi stríðssóknarinnar, og hve mikilvægt það er að
canadiska stjórnin hafi óbundnar hendur, leyfir stjórn-
arnefnd Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi sér
að mæla með því við íslenzka kjósendur í þessu landi,
t að þeir leysi með jákvæðu atkvæði sínu stjórnina undan
J gefnum skuldbindingum frá 1940, er að einhverju leyii
| kunna að standa í vegi fyrir sigursælli sókn stríðs-
' málanna."
—STJÓRNARNEFNDIN.
Norsk-amerískur
fyrirlesari á ferðalagi
Dr. Frank Nelson, norsk-ame-
rískur fyrirlesari, sem var á leið
til ýmissa staða í Saskatchewan,
leit inn á skrifstofu Lögbergs á
laugardaginn. Maður þessi, sem
nú er stöðugt á fyrirlestraferð-
um um Bandarikin og Canada i
þjónustu norsku sendiherraskril-
stofunnar í Washington, kann
frá mörgu að segja.
Hann var sendikennari í ensku
við háskólann í Osló og varð
starfsmaður við amerísku sendi-
herrasveitina þar, er Þjóðverjar
réðust inn á Noreg. Vörpuðu
þeir honum i fangelsi og sai
hann þar mánuðum saman þang-
áð til hann komst burt úr landi
þar í júlí í fyrra.
Hann kvað fréttir þær, sem
norsku stjórninni í London bqpr-
ust með ýmsum hætti úr Noregi,
ábyggilegar. Sýna þær, að frels-
isandi Norðmanna lætur eigi
hugast.
Dr. Nelson kvað sér það mikið
ánægjuefni, ef hann ætti ein-
hverntíma kost á því að láta fs-
lendinga til sín heyra.
FYRIRBRIGÐI
Nýlega hafa verið gerðar ná-
kvæmar mælingar á Eiffelturn-
inum í París. Þær leiða það i
ljós, að sólskinið ihefir meiri á-
hrif á turninn en stormur. Þeim
piegin, sem sólin skín á turn-
inn, hitnar málmurinn og þenst
út. Þetta verður því til þess aö
turninn svignar frá sól. Morgun-
sólin er lang-öfilugusit, enda flyt-
ur hún turntoppinn um 15 cm.
til vesturs. Um hádegið færist
hann 10 cm. til norðurs og á
kvöldin um 7% cm. til austurs.
KREFST JÁKVÆÐS SVARS
Allir helztu leiðtogar stjórn-
málaflokkanna í Quebec hafa
krafist þess, að kjósendur þess
fylkis greiði jákvætt svar við
atkvæðagreiðsluna á mánudag-
inn.
REYNDU
jafnan, er þú átt við örðugl við-
fangsefni, að deila því niður í
smærri viðfangsefni. Glímdu svo
við hvert þeirra út af fyrir sig
og hugsaðu ekki um nema það,
sem þú ert að fást við í þann og
þann svipinn. Slikt er eitt af
meginatriðum í þeirri tegunil
vísinda, sem nefna mætti: List-
ina að lifa.
♦
GRÆNN LITUR
er talinn óhollur augunum. Ef
menn horfa lengi á grænan lit,
er talið, að þeir “sjái grænt” all-
löngu eftir að þeir höfðu græna
Jítinn fyrir framan sig. Ame-
ríkumenn hafa því sumsstaðar
tekið græna áklæðið af billiard-
borðunum og sett öðru vísi litt
áklæði í staðinn.
Sigrar í samkepni
Birgir Halldórsson
Þessi ungi og raddfágaði
tenórsöngvari, Birgir Halldórs-
son, ihlaut á mánudagskvöldið
var, hæztu einkunn í hljómlist-
arsamkepni Manitobafylkis,
þeirra, er í óperusöngvara flokkn-
um keptu; hlutverk hans var E
Luvevan le Stelle i óperu Puc-
cini’s La Tosca. Það er ekki ein-
asta, að Birgir hafi óvenju tæra
tenórrödd, heldur býr hann jafn-
framt yfir undurnæmum tjáning-
arhæfileikum; og þegar þetta
tvent fer saman, má góðs árang-
urs vænta.
Glæður
Eftir Jörgen frá Húsum.
Sat við eldinn, fleytti flotið,
föl á svip, en gullna hárið
hrundi um hvarma hæruskotið
hjartað mæddi tregasárið.
Augun, sem að eitt sinn skýldu
æskugleði, fjöri og þori,
á, eldsins föla fölskva hvíldu.
Fagra mundi’ hún drauma á vori.
Mundi sveit í sumarklæðum,
sveipta vorsins bláu móðu.
Blóðið svall í ungum æðum.
úti tvö þau fangin stóðu.
Sveinninn ungi, guminn glæsti,
gengið hafði mentaveginn,
vinnukonu-hugans hæsti,
hennar sálar drauma-megin.
Léttur á fæti, ljúfur í svörum.
Ljóma varp af glæstum hvarmi.
Blíðmál hans sem blær á vöruin
bættu trega, eyddu harmi.
Þráði hann yfir hafið halda,
hljóta frægð og vizku snjalla,
aftur leita landsins kalda,
ljá henni sína blíðu alla.
Enn hún situr, sér í elda:
Sveinninn hennar kemur bráðuin
með trygðahringa handa báðum.
í huganum mun ei framar kvelda.
Feigðar sýn i fölskvans glóðum.
—'Flotið sýður niður í eldinn.—
Það hentar ei hjá öskuhlóðum
ástardrauma að rekja á kveldin.
—(Samtiðin).