Lögberg - 30.04.1942, Blaðsíða 4

Lögberg - 30.04.1942, Blaðsíða 4
* t l LÖGBERG, FIMTUDAGJNN 30. APRÍL, 1942 ------------HösötrS------------------------ GefiB út hvern fimtudag af TH-E COJLiUMBIA PltESS, IdMITEK 6Wö Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ricstjírans: EDITOR LÖGBERG, 69 5 Sargent Ave., Winnipeg. Man. Editor: EINAR P. JÖNSSON VerC $3.00 um árið — Itorgist fyrirfrana The ‘'Dögberg'’ ís printea -nd pub.ished by The Columbla Press, Uimited, 695 Sargent Avenue, Wlnnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Svar þjóðarinnar Kjósendur þessa lands, leystu sambands- stjórn við atkvæðagreiðsluna á mánudaginn frá öllum fyrri skuldbindingumí er að því lutu, að beita eigi herskyldu utan canadiskrar land- helgi; hið jákvæða svar, að undanteknu Quebecfylkinu einu, var það skýlaust, að um vilja kjósenda verður eigi vilst; þeim var það ljóst, að stjórnin, með hliðsjón af breyttu við- horfi á sviði stríðssóknarinnar, yrði að hafa frjálsar og óbundnar hendur, til þess að geta komið fullu bolmagni við; þeim var það ljóst, hvern skilning einvaldsherrarnir í Norður- álfunni og Japan hefði í það lagt, ef svo illa hefði tekist til, að neikvæða hliðin hefði gengið sigrandi af hólmi; þetta er þeim mun auð- særra, sem vitað er hve ant Nazistar létu sér um það, að blekkja Quebec, að því blöð skýrðu frá. En nú ætti þeir, þrátt fyrir útkomuna í Quebec, að geta nokkurnveginn slysalítið, les- ið letrið á veggnum, að því er Canada áhrærir; þeir ætti nú að sannfærast um það, að hin canadiska þjóð finnur hvorki til hiks eða efa; að hún er staðráðin í því að berjast til þrautar, og skiljast eigi fyr við mál, en bundinn hefir verið endi á þann djöfladans, er Hitler hratt af stokkum 1939, en ítalir seinna, og nú síðast Japanir, gersamlega brjáluðust af; hjá því getur ekki farið, að svar canadisku þjóðarinnar á mánudaginn, blási stríðssókn sameinuðu þjóð- anna byr í segl, og er það vel, því á þeim vett- vangi er fylztu hjartastyrkingar þörf, jafnvel þó eitthvað sé bjartara upp á síðkastið, en áður var. Eftir að heyrinkunnugt varð um úrslit at- kvæðagreiðslunnar á mánudagskveldið, gaf King forsætisráðherra út svonefnda yfirlýs- ingu; “Að því er úrslit hafa leitt í ljós, er það sýnt, að átta fylki af níu, hafa greitt jákvætt svar við þeim tilmælum stjórnarinnar, er greidd voru atkvæði um; á þessu stigi málsins, verður ekki með fullkominni vissu sagt um það, hver hlutföll sé á milli jákvæðra og nei- kvæðra atkvæða, þó víst sé að jákvæða hliðin hafi borið sigur úr býtum; en um það verður ekki efast, að úrslitin sé næsta mikilvæg; hér er um að ræða alþjóðaryfirlýsingu um alþjóðar- mál, og í slíku ljósi verða úrslitin að skoðast. 1 öllum fylkjum féllu atkvæði með og móti tilmælum stjórnarinnar; atkvæðagreiðslan fór fram samkvæmt hinum ströngustu lýðræðis- reglum, og hér sem fyr, eins og í þeim löndum öðrum, er lýðræðis njóta, verður það meiri- hlutinn, sem ræður. Stjórnin fór fram á það við kjósendur, að mega hafa óbundnar hendur til þess að mæta því breytta viðhorfi, sem vegna stríðsins óhjá- kvæmilega skapast frá degi til dags; hún hefir eftir þetta óbundnar hendur, og þingið hefir líka óbundnar hendur, til þess að taka sér- hverjar þær ákvarðanir, er að beztu yfirsýn beggja aðilja þykja líklegastar til áhrifa í hverja'þá átt, sem ætla má, að canadisku þjóð- inni verði fyrir beztu. Þó að stjórninni sé það mikið ánægjuefni hvernig atkvæðagreiðslan féll, þá vill hún hvorki að úrslitin verði skoðuð sem trausts- yfirlýsing á ráðuneyti það, sem um þessar mundir fer með völd, né heldur megi skoða þau sem sigur fyrir nokkurn stjórnmálaflokk; fram á það var hvorki farið, að kjósendur greiddi atkvæði með eða móti stjórninni, því ekkert slíkt lá fyrir; atkvæðagreiðsluna ber að skoða sem aðferð, er stjórnin, eftir nána íhug- un valdi, til þess að grenslast eftir vilja kjós- enda í sambandi við vissa og ákveðna spurn- ingu, er fyrir þá yrði lögð, án tillits til flokks- legrar afstöðu jafnt utan þings sem innan; nú hefir þessari spurningu verið svarað á þann hátt, að um vilja kjósenda verður eigi efast.” Foringi C.C.F. flokksins, M. J. Coldwell, lét birta eftirgreinda yfirlýsingu, er sýnt þótti um úrslit atkvæðagreiðslunnar; “Þjóðin í heild, hefir gefið þjóðþinginu á- kveðrrár bendingar um það, að fylgja fram stríðssókninni af öllum mætti; atkvæðagreiðsl- an í dag styrkir samherja vora, og gefur jafn- framt óvinum vorum það til vitundar, að cana- diska þjóðin sé staðráðin í að berjast til sigurs í yfirstandandi styrjöld; þetta felur í sér það, að teknar verði þegar vandlega íhugaðar á- kvarðanir um það, hvar og hvernig átökum vorum verði beitt á sem allra áhrifamestan hátt; þetta verður þingið að láta til sín taka umsvifalaust. Og næst, með fullkominn fórn- jöfnuð fyrir augum, ber oss að beita öllum þeim orkulindum, sem vér eigum yfir að ráða til fullnaðarátaka í þeim stórfenglega hrikaleik, sem framundan bíður. C.C.F. flokkurinn leggur fúslega fram krafta sína til útrýmingar þeim ofbeldisöflum, sem við er að etja, og vill vinna af öllu afli, að stofnun skipulags, sem tryggir félagslegt' og efnahagslegt réttlæti; af þessari ástæðu, er það nauðsynlegt, að kveðja til þjónustu allan iðnað og alla auðlegð þjóðarinnar; hlutverk vort, kjörinna fulltrúa fólksins, er það, að flýta fyrir fullnaðarsigri, og tryggja ævarandi frið.” Eftirminnilega fögur kveldátund Þó lokasamkoma Laugardagsskólans í Win- nipeg hefði mátt vera, og átt að vera betur sótt en raun varð á, þá blandast engum þeim, er samkomuna sótti hugur um það, hve sá bragur, sem yfir henni hvíldi, var hátíðlegur, og samboðinn í öllu því göfuga menningarhlut- verki, er skólinn hefir með höndum, fram- tíðarvernd vorrar óviðjafnanlegu tungu; virðing fyrir skólanum fer árlega vaxandi, og sann- gildi hans kemur jafnt og þétt skýrar í ljós; enda stendur að honum alvörufólk, sem í eng- um efnum á skylt við dægurflugur; að um á- bærilegar framfarir í þekkingu hins íslenzka máls sé að ræða hjá þeim börnum og unglingum, er skólann sækja, verður ekki vilst, það sannaði hinn tæri málblær barnanna, og túlkan þeirra í framsögn, leik og söng; skemtiskráin var auðug áð litbrigðum, hlutverk prýðilega valin, og vel af hendi leyst; þá var og tillag þeirra fullorðnu, er í samkomunni tóku þátt, hið vandaðasta að efni og frágangi, og gagnmótað hollri örfun til foreldra og barna í sambandi við menningarlega nytsemi íslenzku kenslunn- ar; þeir, sem að skólanum standa, verðskulda einhuga þökk þeirra allra, er í einlægni láta sér ant um viðhald “ástkæra ylhýra málsins,” og einhverju raunverulegu vilja fyrir málstað þess fórna. Einhver óeðlilegur sljófleiki hefir grafið um sig í sálum þeirra manna og kvenna, er eigi telja það ómaksins vert, að hlusta á raddir æskunnar; raddir þróunarinnar, raddir þess ríkis, sem koma á, og það því fremur, sem þessar raddir eiga íslenzkan hljómgrunn aö baki; að daufheyrast við slíkum röddum, kem- ur einhverjum óvægilega síðar í koll, því hver sá, er glatar virðingu fyrir uppruna og and- iegum menningarerfðum feðra sinna og mæðra, verður veginn og léttvægur fundinn; það er traustið á slíkum verðmætum, og lífrænni þróun þeirra, er skapar holla og heilsteypta menn; menn, sem vita hvað þeir vilja, og hafa áræði til þess að halda því fram. — “Ef æskan vill rétta þér örfandi hönd, þá ertu á framtíðarvegi.” Alt það, sem fagurt er í eðli mannanna, er eilífs eðlis; hitt fúnandi og feigt; fegursti eðlisþáttur íslendinga, er íslenzk tunga, og þessvegna hlýtur hún að eiga fyrir höndum albjarta eilífð. “Kenn þeim unga þann veg, sem hann á að ganga, og þegar hann eldist, mun hann eigi af honum víkja.” Kennið börnum yðar íslenzkuna; það verð- ur þeim til víðtækrar blessunar, auk þess sem þakklátsemi þeirra í yðar garð verður, þegar fram í sækir, margfalt víðfeðmari, en ella myndi verið hafa! Vandamál íslendingasögurnar eru eigi aðeins sígild- ar perlur í vorum eigin bókmentum, heldur og jafnframt á vettvangi heimsbókmentanna yfir höfuð; það liggur því í augum uppi, hve mikils það er um vert, að eigi sé hrapað að því, að snúa þeim, eða sérstæðum köflum þeirra á erlend tungumál; að á því sviði verði ekki alt tekið gott og gilt, og það engu síður fyrir þá sök, að slíkar tilraunir komi frá íslendingum sjálfum, eða þeim, er í þann og þann svipinn kunna að telja sér nokkurn vegsauka í því, að vera af íslenzku bérgi brotnir. Hlutfallslega það sama gildir um vor beztu kvæði; í nokkr- um tilfellum hefir lánast að ganga frá þeim þannig í erlendum búningi, að vel sé. og er slíkt þakkarvert; en á hinn bóginn verður því ekki neitað, að ljóð vor hafa þráfaldléga í enskum þýðingum tapað svo sál og sérkenn- um, að jafnvel þaulkunnugum gæti auðveldlega hafa orðið það á, að spyrja þau að heiti. Vér íslendingar megum ekki við því, að bókmentir vorar sé afskræmdar í þýðingum á erlend tungumál; það eru bókmentirnar, öllu öðru fremur, sem gert hafa garð vorn frægan, og við blómin í þeim garði, ber oss að leggja alla hugsanlega rækt. Minningar ömmu (Saga lesin upp á hjónadansleik, sem konur héldu bændum sín- um til heiðurs, í samkomuhús- inu á Hólmavaði í Aðaldal, veturinn 1934—35). “Mér birtir fyrir augum, þeg- ar eg hugsa um alla þá ágætu karlmenn, sem eg hefi þekt um dagana,” sagði Ásdís Arnardóttir við sonardóttur sína, Sólveigu Sveinsdóttur, 18 ára ungmey, sem sat andspænis henni. Sólveig leit hálf vandræðalega til ömmu sinnar. Hún var rétt búin að skýra henni frá því, að það hefði dæmst á sig að mæla fyrir minni karla á næsta mál- fundi i félagi ungra kvenna, og hún gæti ekki sagt neitt gott um þá, sér /yndust allir karlinenn vera eins, drembnir oflátungar. Jú, pabbi var að vísu ágætis- maður. en hann væri bara und- antekning frá því almenna. Fleira hafði hún sagt þessu líkt, aðeins dálítið öfgakendara. — Amma hennar hafði horft á hana rólega, lofað henni að masa út, en þegar hún hélt að litla stúlk- an sin væri búin að segja alt, sem hún vildi og þyrfti að segja, varð henni þetta að orði, um leið og hún lagði prjónana stilli- Jega i kjöltu sér: “Mér birtir fyrir augum, þegar eg hugsa um alla þá ágætu karlmenn, sem eg hefi kynst á lífsleiðinni.” -— Það var því engin furða, þó Sól- veig litla yrði hálfskömmustuleg, þegar amma hennar tók þetta svona alvarlega, en hún áttaði sig fljótlega, gekk til hennar, tók báðum höndum um hvítlokkaða, fallega höfuðið, kysti ömmu sína blíðlega á ennið og sagði bros- andi: “Það er víst engin til- viljuní elsiku amma mín, að eg leitaði fyrst til þín með þetta vandamál mitt, heldur mikið fremur vegna þess, að þú hefir æfinlega hjálpað mér, þegar mér hefir legið mest á, síðan eg man fyrst eftir mér. Segðu mér nú eitthvað fallegt um karlmennina þina, góða amma mín, eg vil svo gjarnan vita eitthvað mikið gott um þá. Og það sem þú segir er æfinlega sannleikur, ekkert nema sannleikur.” Gamla konan brosti innilega til sólargeislans síns, greip prjón- ana sína á ný og mælti: “Allar ungar stúlkur bera leynda þrá í brjósti að heyra eitthvað mikið gott sagt um karlmennina, ann- aðhvort þor þeirra og dug eða drenglyndi þeirra og gáfur, og þetta er mjög eðlilegt- Öll þeirra framtíðarhamingja veltur á því, að lífsförunauturinn, sem þær dreymir um, og sem þær að síð- ustu velja sér, hafi sem mest af þessum karlmannlegu dygðum til að bera. — Fyrsti karlmaður- inn, sem konan elskar er, að öllu sjálfráðu, faðir hennar, og um það hefir þú sjálf vitnað, barnið mitt. —- Ást og umhyggja föður mins til ökkar barnanna væri efni i heila bók, en eg var orðin eldri en þú, þegar eg gerði mér Ijósa grein fyrir fórnarlund hans og kærleika. Sjálfur gekk hann, svo að segja, alls á mis, til þess að geta veitt okkur þá mentun, sem við urðum aðnjótandi, og sem í þá daga þótti næstum ó- þarfa dekur — jafnvel hlægi- leg heimska. Alþýðufólk hefði ekki með slíkt að gera. — Hvað eg man það vel enn þann dag i dag, þegar það rann fyrst upp fyrir mér, hve óendanlega mikið pabbi hlyti að elska okkur börn- in sin. — Þú heldur nú líklega vina mín litla, að hann hafi gef- ið mér einhverja stórgjöf. Nei, ónei, i þá daga hafði hann ekki efni á slíku* Það var eitt yndislegt vor- kvöld, eg var á heimleið, hafði verið á Laugalandsskóla allan veturinn. Eg átti aðeins eftir spölkorn heim til mín. Leið mín lá meðfram ánni, sem renn- ur fyrir neðan gamla bæinn minn. Alt í einu kem eg auga á tvo menn, sem eru að draga ifyrir silung í ánni. Annar mað- urinn var á pramma fram á miðri á, en hinn hélt í togið og óð upp í mitti í vorköldu vatn- inu- Það var faðir minn. — Aldrei gleymi eg þeirri ástúð og blíðu, sem ljómaði á andliti hans, ’þegar hann heilsaði mér, og aldrei gleymi eg, hve eg fann sárt til þess að geta ekki laun- að honum alt hans strit og fyrir- höfn mín vegna. En upp frá því fanst mér eg skilja til fulls alla hans föðurlegu ástúð, sem hélst jöfn og óslitin til æfiloka. — Móðurástin er æfinlega dá- söm, en mér hefir oft fundist að föðurástin sé engu ógöfugri. Og faðir barnanna minna sann- aði mér það á ýmsa lund. Minn ingrnar, sem eg á því viðvíkj- andi, eru mér margar hverjar svo helgar, að eg get tæplega greiní þér frá þeim, Ijúfa min. Samt held eg verði að sgeja þér frá nokkrum, sem gætu ef til vill orðið til þess að leiðrétta þá hugmynd þína, að karlmenn eigi ekki til djúpar ög hreinar til- finningar. — Það var um það leyti, sem von var á honum pabba þínum í heiminn, lambið mitt. Maðurinn minn þurfti endilega að bregða sér að heim- an, en meðan hann er í burtu hleypur þessi ógnar forátta í hana Gljúfurá, sem fellur fyrir neðan túnið i Hlíð, við bjuggum þar í nokkur ár. — Þegar afi þinn kemur að ánni um kvöldið, er hún ófær, bæði mönnum og skepnum. — Hann vissi að þessa nótt var lítil vera að berjast við að komast í heiminn á kotbæn- um hans, en svo vissi hann ekki meir, fyr en daginn eftir, að hann loks komst með naumind- um yfir ána. Alla þá nótt hafði hann gengið fram og aftur á ár- bakkanum. — Þegar hann kraup við rúmið mitt og grúfði sig ofan að litla syninum og kysti mig með tár í augum, þá fanst mér, að hann mundi hafa átt miklu erfiðari nótt en eg. —■ Heldur þú nú, barnið mitt, að tárin í augum afa þíns hafi komið frá drembnu og köldu hjarta? Eða heldurðu að það séu ekki fleiri en hann, sem viðurkenna að þeir öfundi næstum móðurina af því að næra hvitvoðunginn við brjóstið Og þú mátt trúa því, að það eru ifleiri en maðurinn minn .sæli, sem ganga um gólf með börnin á nóttunni, þegar þau eru veik eða óvær, svo móðirin geti sofið. En það lá Jíka við að eg öfundaði hann afa þinn, þegar börnin vildu æfinlega læra að lesa hjá honum, en aldrei hjá mér.” Ásdís Arnardóttir hafði talað af nokkrum hita upp á siðkastið. Nú þagnaði hún. — Sólveig hafði setið þögul og horft með aðdáun á ömmu sína. Eftir litla stund ræskir hún sig lítið eitt og brá fyrir glettni í rómnum: “Segðu mér, amma mín, varð ykkur afa aldrei sundurorða. Ekkert ei eins leiðinlegt eins og að hlusta á hjónadeilur.” “Jú, góða mín, altof oft sýnd- ist sitt hvoru, og hélt })á hvort okkar fyrir sig fast við sína meiningu, því máttu trúa. — Það er hverju orði sannara, að það er ömurlegt að hlusta á hjónadeilur, ekki sízt fyrir ung- linga eins og þig, en það er at því að þú hlustar á sennuna, en ekki á sættina, vina mín. “Hjóna- senna er eins og maímjöll,” hefir einhver vitringur sagt, og það er hverju orði sannara.” — Sólveig hló lítið eitt, en segir síðan: “Elsku amma mín, geturðu ekki sagt mér eitthvað af honum pabba mínum, þegar hann var lítill?” — “Hvort eg get, jú, eg held nú það,” og nýjum ljóma brá fyrir í augunum. “Yndis- legra barn hefi eg aldrei þekt, nema þá þig, geislinn minn. Svör hans og spifrningar, þegar hann var lítill, líða mér síðast úr minni. það er eg viss um. — Eg átti stundum erfitt, þegar eg var að hjálpa eldri börnunum að klæða sig á morgnana, en varð jafnframt að sinna yngsta barn- inu Einu sinni man eg, að eg sagði til þess að gera mig og börnin rólegri: “Við skulusn vera góð, elskurnar litlu, Guð hjálpar þeim, sem hjálpar sér sjálfur.” Pabbi þinn var þá þriggja ára og var einmitt á leið- inni til mín til þess að biðja mig að hneppa axlaböndunum sinum. Um leið og hann leggur hendur um háls mér, segir hann blítt og barnalega: “Já, mamma er minn Guð.” Þú hefðir átt að sjá yndislega andlitið hans þá og fögru augun, sem skinu eins og stjörnur á hJeiðum vetrarhimni. Oft kom hann til mín þar sem eg var við verkin mín, kysti mig á augun, ennið og hendurnar og sagði: “Mamma er engillinn minn.” — Margir drengir vaxa upp úr því að vera “mömmu- drengir,” þegar þeir eru full- orðnir. En jafnvel nú, eftir að hann á sjálfur fullorðin börn, bíður hann þess með lotningu, að eg signi hann í hvert skifti, sem hann fer eitthvað fengra til. Máske Guð hafi leitt hann úr margri hættunni, sem hann hef- ir lent i, einmitt vegna þess, að hann forsmáði ekki signandi hönd móður sinnar. Eg veit það ekki, góða mín, en eg trúi því. — Já, bllessuð stúlkan mín, mér birtir fyrir augum, þegar eg hugsa um marga góða feður, bræður, syni og eiginmenn, sem eg hefi þekt, bæði af eigin reynd og af afspurn. Lof mitt um drenglyndi þeirra, dáð og kur- teisi væri efni í nokkrar sögur. Ástúðin vefji þá örrnum, eldri og yngri.” Sólveig litla, fagra og blíð- lynda ungmeyjan, gekk til gömlu konunnar, tók báðar hendur hennar í sínar, kysti þær og sagði mteð tár i augum: “Hjart- ans þökk, elsku amma mín, þú hefir opnað mér nýjan heim. sem eg horfi til með fögnuði, en hræðist ekki framar.” Hildur Baldvinsdóttir■ Klömbrum i Aðaldal, S.-Þingeyjarsýslu. Æfintýri (Þýtt). Þorpið lá á afskektum stað. Fyrir norðan það var fjallaklasi. Fyrir sunnan það voru vötn og sikógar. í þorpinu bjuggu bæði ríkir menn og fátæklingar. Ríka fólkið yfirgaf þorpið sitt á hverju sumri, til þess að ferðst til fram- andi landa og sjá fegurð og tign náttúrunnar. Þegar það kom aftur heim til þorpsins, hélt það margar veizlur. í veizlu- og gildaskálum sagði fólkið frá öllu því fagra, sem fyrir augu þess hafði borið. Það lýsti hinni tignarlegu ró fjallanna, fossum, er féllu fram af hengiflugum og stráðu úða sínum yfir nágrenn- ið, vötnunum tæru og heiðu, sem gáruðust, þegar blíður andvarinn strauk yfirborð þeirra. Fátæka fólkið sat heima, það hafði hvorki tíma né fé til að iferðast til annara landa, en þó fýsti það jafnmikið í fegurðina og rika fólkið. — Heima sá ekk- ert nema leiðinleg fjöll, leiðinleg vötn, leiðinlega skóga. — En einu sinni gerðist merkur viðburður í sögu þoi'psins — Þángað kom málari, er kvaðst hafa undra fagurt inélverk að sýna. — Hann tók sal á leigu á efstu hæð í stærsta gistihúsi þorpsins. Þorpsbúar stóðu á öndinni af eftirvæntingu. í þrjá daga fékk enginn að koma inn til málarans, en brak og bar- smíðar heyrðust frá honuin næt- ur og daga. — Að lokum fékk fólkið að koma en aðteins á kvöldin, hann sagði, að stóra málverkið sitt nyti sin ekki nema í ljósaskiftunum. Allir, sem vetlingi gátu valdið, komu til að sjá listaverkið. — Og allir urðu undrandi. Yndis- lega fögur fjöll, skrúðgrænar brekkur, grasigrónar hlíðar, vötn, fossar og skijgar blöstu við aug- um manna.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.