Lögberg - 30.07.1942, Síða 1

Lögberg - 30.07.1942, Síða 1
PHONES 86 311 Seven Lines iot C°>' a For Beiier Dry Cleaning and Laundry PHONES 86 311 Seven Lines i>ftu Cof jVVgjl? ».tv» Service and Saiisfaciion 55. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. JÚLÍ, 1942 NÚMER 31 T..- Fjölmennið á islendingadaginn á Gimli næstkomandi Mánudag! Fjallkona Islendingadagsins á Gimli Frú Gerður Sieinþórsson Hirðmeyjar Islendingadagsins á Gimli Ungfrú Maria Josephson Ungfrú Ragna Johnson Þjóðverjar taka Rostov Á mánudagskvöldið viður- kendu rússnesk hernaðarvöld, að innrásarsveitir Þjóðverja hefðu náð fullu haldi á borginni Rostov, ásamt Novocherkassk- borg, sem báðar eru í námunda við . hina auðugu olíubrunna Kákasusfjalla; hin fyrnefnda borg telur um hálfa miljón íbúa, og er miðstöð margs konar stór- iðju; nú sækja hinir þýzku her- gammar að iðnaðarborginni Stalingrad, en þangað er mælt, að Rússar hafi sent til varnar allan þann liðsafnað, er þeir áttu ráð yfir í þessum hluta landsins, og má víst telja, að þeir haldi þar uppi vörn meðan nokkur rússneskur hermaður er uppistandandi. Nú er svo komið, að því er fréttasamböndin skýra frá, að nærri lætur, að Þjóðverjar hafi á valdi sínu helming hinna rækt- uðu svæða Rússlands. Síðasti Gyðingurinn á förum Samkvæmt fregnum frá Istan- bul þann 27. þ. m., hafa þýzkir Nazistar skipað þannig fyrir, að þann 1. ágúst næstkomandi, Verði síðasti Gyðingurinn á Þýzkalandi að vera kominn til Póllands; hin sama heimild hermir, að Gyðingar hafa, dag- lega verið fluttir úr Þýzkalandi til Póllands í lélegustu naut- gripavögnum, og verið þjappað þar saman eins og síld í tunnu. Egyptaland I baráttunni um Egyptaland, hefir sameinuðu þjóðunum veitt nokkru betur en hinum þýzku innrásarherskörum; hafa sveitir möndulveldanna orðið að láta þó nokkuð undan síga á orustu- svæðum umhverfis E1 Alamein; þó eru vígaferlin, enn sem kom- ið er þess eðlis, að af þeim verður lítið ráðið um endanleg úrslit; afskapa hitar, ásamt sandroki, hafa komið í veg fyrir stórorustur, og er þar því í raun og veru um eins konar þóf að ræða, af hálfu beggja hernaðar aðilja. Brezkar og amerískar sprengjuflugvélar, hafa sveim- að yfir hafnarborginni Tobruk samfleytt í þrjá daga, og gert þar nokkurn usla meðal óvina- skipa, sem á höfninni láu. Stórkostleg loftárás á Hamburg Á aðfaranótt síðastliðins mánudags, gerðu flugsveitir sameinuðu þjóðanna magnaða loftárás á Hamburg, er orsak- aði stórvægilegt tjón; einkum var þó veitzt að þeim stöðum við höfnina, þar sem Þjóðverj- ar hafa miklar kafbátastöðvar, og margháttaða kafbátafram- leiðslu. Yfir 600 sprengjuflug- vélar tóku þátt í árás þessari af hálfu hinna sameinuðu þjóða; tuttugu og níu þeirra komu ekki til lendingarstöðva sinna, að loknum leik; í árásinni tóku þátt, að sögn, allmargir cana- diskir flugmenn. Hon. Henrick Kaufmann vœntanlegur til borgarinnar Samkvæmt upplýsingum frá hr. Gretti L. Jóhannssyni, ræðis- manni íslands og Danmerkur, er sendiherra Danmerkur í Banda- ríkjunum, Hon. Henrick Kauf- mann, væntanlegur hingað til borgarinnar, ásamt frú sinni, þann 14. ágúst næstkomandi; vegna þess hve sendiherrann á hér skamma viðdvöl að þessu sinni, gefst þess ekki kostur, að hann flytji opinbera ræðu, sem hann annars myndi gera; en í þess stað, ávarpar Mr. Kauf- mann þjóðbræður sína, og skandinavisku vini á dönsku í Picardy’s Hall áminst föstu- dagskvöld. Mr. Kaufmann er maður víð- mentur og eldlegur lýðræðis- sinni, og bjarttrúaður á framtíð dönsku þjóðarinnar, eftir að nú- verandi fargi verði létt af henni. Messa í Upham, N. Dak.: Sunnudaginn 2. ágúst— Klukkan 2 e. h. E. H. Fáfnis. ♦ + ♦ Sunnudaginn 16. ágúst er á- ætlað að séra Sigurður Ólafs- son flytji messur á íslenzku á eftirnefndum stöðum og tíma í Lundar-prestakalli: Otto kirkju kl. 11 árd. Lundar kirkju kl. 2.30 síðd. Mary Hill kl. 8.30 síðd. Fólk er beðið að muna staði og tíma. — Allir boðnir vel- komnir. Frá Islandi SEXTUG KONA SLASAST ALVARLEGA í BÍLSLYSI Sextug kona, Margrét Vigfús- dóttir á Hverfisgötu 58, slasaðist í gærdag er hún varð fyrir bíl. Mun hún hafa beinbrotnað og hlotið önnur meiðsl. Slysið varð um 2 leytið í gær- dag á Skúlagötu, hjá Kexverk- smiðjunni Frón. DR. B. J. BRANDSON, forseti íslendingadagsins á Gimli, þann 3. ágúst. Verið var að aka vörubíl, sem var með hveitifarm, aftur á bak, upp að verksmiðjudyrun- um. Margrét, sem var á gangi þarna á gangstéttinni varð þá fyrir horni vörupalls bifreiðar- innar og féll undir bílinn. Ekki munu þó afturhjólin hafa farið yfir hana, heldur aðeins snert hana og aðalmeiðslin stafa af árekstrinum við vörupallinn. Hargrét var flutt á sjúkrahús. —(Mbl. 12. júní). * * * SLYSASTOFA NAUÐSYNLEG SEGIR LANDLÆKNIR Landlæknir hefir ritað bæjar- ráði bréf, þar sem hann bendir á, að aðsókn að Landsspítalan- um með slasaða menn sé orðin svo mikil, að það trufli starf- semi spítalans, en fólk sem flutt er þangað stórslasað, fái stund- um ekki viðunanlega aðbúð vegna þrengsla í spítalanum. Hann leggur til, að hér verði komið upp slysastofu, þar sem tveir læknar og hjúkrunarkona sé altaf til taks, og þar sé rúm- góð lækningastofa, þar sem hægt sé að gera að sárum slas- aðra. Var borgarstjóra falið á fundi bæjarráðs í gær, að athuga þetta mál.—Mbl. 12. júní. * * * PÉTUR BENEDIKTSSON SENDIHERRA HJÁ NOREGSKONUNGI Ríkisstjórnin hefir skipað Pét- ur Benediktsson sendiherra við hirð Hákonar Noregskonungs og er hann fyrsti sendiherrann, sem skipaður er frá Norðurlandaríki til norsku stjórnarinnar í Lon- don. Embættistitill hans til Noregs konungs er sá sami og titill hans til Bretakonungs: “Envoy Extraordinary og Minister Plenipotentiaire.” Pétur Benediktsson sendi- herra gekk í dag á fund Hákon- ar konungs og afhenti honum embættisskilríki sín. Pétur var áður skipaður Charge d’affaires hjá norsku stjórninni í London og sendiherra íslands í Bret- landi.—(Mbl. 16. júní). v * * * * ÍSLENDINGAR KAUPA SÆNSK-ÍSLENZKA FRYSTIHÚSIÐ Blaðið hefir fregnað, að samn- ingar hafi verið á döfinni und- anfarið um sölu á Sænsk-ís- lenzka frystirúsinu í hendur ís- lendinga. Áttum vér tal um þetta við Ólaf Proppé forstjóra S. í. F., sem hefir staðið nálægt þessum samningum, og staðfesti hann, að kaupin væru nú ákveðin. Kaupendur eru Ólafur Proppé, Kristján Einarsson, Gunnar Guðjónson og Björn Björnsson, sem nú er forstjóri fyrirtækis- ins. Er það ánægjulegt þegar er- lendar eignir koma í hendur ís- lendinga og ekki sízt þegar eign- irnar koma í þeirra hendur, er kunna skil á meðferð og starf- rækslu slíks fyrirtækis. —(Mlb. 12^ júní). Nýr íslenzkur læknir Dr. Donald Wilmar Freeman Þessi glæsilegi ungi maður útskrifaðist úr læknadeild Minnesota Háskólans í St. Paul, Minn., vorið 1941, en full lækna- réttindi fékk hann ekki fyr en nú fyrir skömmur er hann hafði lokið ársdvöl á spítala við praktiskt nám. Donald er sonur Ólafs Free- man, bankastjóra í Souris, North Dakota, og konu hans Sigríðar. Faðir Ólafs var Jón Jónsson bóndi frá Köldukinn, Jónssonar frá Þorsteinsstöðum, Jónssonar hins gamla á Höskuldsstöðum í Dalasýslu. Faðir Sigríðar var Stefán Jónsson Magnússonar “pósts” frá Hróá í Steingríms- firði. Donald fæddist 6. apríl 1917 að Upham, N.D.; er hann þann- ig aðeins tuttugu og fimm ára gamall. Tuttugu árum af þess- um tuttugu og fimm hefir hann varið til skólanáms. Á hinni löngu og erfiðu mentabraut hef- ir hann ávalt staðið framarlega og stundum fremstur. Hann út- skrifaðist frá gagnfræðaskóla Souris bæjar, vorið 1934. Hafði hann stundað nám við þann skóla aðeins tvö ár, en var samt framsögumaður bekkjar síns. Tvö næstu árin var hann við mentaskólanám í Bóttineau, N.D. og útskrifaðist þaðan með heiðri og háum einkunnum. Næst lá leiðin til ríkisháskólans í Norður Dakota í Grand Forks, þar sem hann innritaðist í undirbúningsbekk læknadeildar. Þar dvaldi hann í tvö ár. Hið venjulega læknanám stundaði hann við Háskóla Minneota rík- is, þar sem hann hlaut menta- stigið Bachelor of Science Cum Laude vorið 1939. Bachelor of Medicine stigið var honum veitt 1941, en Doctor of Medicine, nú að loknu spítalanámi í Detroit, Mich. Um sama leyti var hann kjörinn meðlimur í heiðursfélagi lækna er nefnist Alpha Omega Alpha. Einungis þeir læknar, sem hafa skarað fram úr sem námsmenn, og njóta ótakmark- aðs trausts meðal embættis- bræðra sinna, fá aðgang að fé- lagi þessu. Donald gengur nú í þjónustu Bandaríkjahersins, sem Lieuten- ant. Býst hann við að hafa að- setur fyrst um sinn í Carlisle Barracks, nálægt Harrisburg, Penn. Hinir fjölmörgu vinir þeirra Freemans hjóna munu óska þeim til hamingju með hinn gáf- aða og prúða son, og óska hon- um sjálfum einnig allrar bless- unar í list sinni og lífi. V. J. E. Sumarkvöld Eftir Richard Beck Nú lokar dagur sínum björtu brám, en breiðist næturskikkjan yfir fold, og blómin hjúfra sig að hlýrri mold; til hreiðurs leitar fugl í kyrrum trjám. Úr sumarloftsins hyljum bylgjublám með brosi gægjast stjörnuaugun skær; í þeim um eilífð himindraumur hlær, er hjarta mannsins dýpstu svalar þrám. I 1

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.