Lögberg - 30.07.1942, Blaðsíða 3

Lögberg - 30.07.1942, Blaðsíða 3
LÖGBEHG. FIMTUDAGINN 30. JÚLÍ, 1942 3 Á víð og dreif Eflir G. J. Oleson. Eg hefi oft setið og hlustað á menn ræða um daginn og veg- inn um ýms þýðingarmikil mál, svo sem stjórnmál og trúmál, og hefir sérstaklega verið eftir- tektarvert að lesa það, sem menn skrifa á þessari skrif- finsku öld. Yfirleitt vita þessir menn, hvort sem þeir dæma i ræðu eða riti, hvernig hlutirnii eiga að vera, og hvernig hægt sé að hafa þetta eða hitt; flest alt, sem aðrir gjöra er þver- öfugt við það rétta og í öllu tilliti öðruvísi en það á að vera. Mennirnir, sem stjórna eða hafa einhver völd fara æfinlega fyr- ir ofan garð eða neðan við það sem rétt er og í flestum tilfell- um er það sem gjört er eða ekki gjört, er gjört í eigingjörnum til gangi, að dómi þessara manna. Veitt hefi eg því eftir- tekt og þótt nokkuð einkenni- legt, að menn þeir, sem harð- astir eru í dómum um aðra og sem vita hvernig alt á að gjöra rétt, eru menn, sem flest alt hefir brugðist, sem þeir hafa reynt — eru mislukkaðir menn (failures). Hefi eg því stundum verið lítillega vantrúaður á það að alt væri fullkomið ef að þeir ættu að stjórna landinu eða heiminum, sem að þeir þó játa að þeir gætu fullum hálsi. Eitt af því, sem nú er allmik- ið rætt um og hver étur eftir öðrum, eru peningamálin í heiminum og Gyðingarnir. Öll bölvun mannanna í heiminum stafar frá þessu tvennu. Veit eg vel, að peninga-fyrirkomulag- ið er mjög gallað og þarf að breytast og breytist með eðli- legri framþróun, ef gengið er að því verki af einlægum endur- bótamönnum á drengilegan hátt; af mönnum, sem vita hvað þeir eru að .tala um. lívað Gyðingana snertir þá fer því fjarri að það sé hálfur sann- leikur, sem um það mál er skrafað. Það er illkynjað “propaganda” sem stofnað er til í illum tilgangi og upprunnið er frá Þýzkalandi af hálfu Nazista Það er enginn vafi á því að sumir Gyðingar eru óhlutvandir í peningamálum en svo eru margir aðrir. Eg hefi haft kynni af mörgum Gyðingum, og fund- ið marga þeirra með beztu mönnum, og eitt er víst að verstu fantar vorrar aldar, svo sem Hitler, Mussolini, Emir Bey og Talat Bey eru ekki Gyðing- ar. Annars hefir mér þótt kát- broslegt að Heyra menn í ræðu og riti skrafa um peningamálin, í sumum tilfellum mislukkaðir menn, sem með óhlutvendni hafa alt lagt í sölurnar til þess að verða ríkir, sem alt hefir fallið í rústir hjá, því á engum hornsteini hefir verið bygt. Þeir ganga fram fyrir almenning, sem mannkynsfrelsarar og segj- ast vita bókstaflega hvernig megi ráða bót á öllum meinum mannanna, og með alt ilt á hornum sér, gagnvart Guði, mannfélaginu og stjórnarvöld- unum, vilja umturna öllu, og byggja svo alt upp eftir þeirra eigin kokkabók, sem tíminn er búinn að sanna að hefir svikið þá sjálfa svo hrapallega. Sumir þessir menn eru eins og lítil vasa-útgáfa af Sölva heitnum Helgasyni, sem Davíð skáld í Fagraskógi hefir eytt um 500 blaðsíðum á. Slíkir menn bjarga ekki heimi, til þess þarf menn, sem að hafa bygt lífs- starf sitt á bjargi, eins og til dæmis William Wilberforce eða Abraham Lincoln, menn, sem af skilningi og mannúð störfuðu í góðum tilgangi, mannkyninu til heilla og vörðu lífskröftum sínum til þess og töldu það ekki eftir, menn, sem ekki voru eins og geðvondir krakkar, sem ekki fengu alt sem þeir vildu, ólund- arfullir vegna þess að þeim fanst að þeir hefðu ekki borið það úr býtum, sem þeir þóttust eiga hjá mannfélaginu og veröldinni, og guði, ef þeir trúa þá að hann sé nokkur til. Krakki, sem heimtar alt með sjálfskyldu af foreldrum sínum án skilnings eða þakklætis, er sorglegt fyrirbrigði, en svipuð er mynd þess borgara, sem með sjálfskyldu heimtar af mannfé- laginu alt, sem hann óskar eftir án þess að vilja leggja nokkuð á sig, og finnur lítið eða ekkert til þess að hann skuldi mannfé- laginu og ríkinu og veröldinni það bezta sem í honum er. Einstaklingurinn á heimting á vernd ríkisins og ríkið á heimt- ingu á því frá einstaklingnum, að hann gjöri sína skyldu gagn- vart ríkinu — leggi það bezta sem hann á til, til lífsins í starfi og hugsun. — Það hefir gengið yfir heiminn kreppualda síðast- liðin 10 ár og margur hefir víða átt um sárt að binda. Til þeirrar kreppu eru margar ástæður: herútbúnaður stríðsþjóðanna, tollgarðar, einangrunarstefnan, peningafyrirkomulagið, aura- girnd einstaklinganna, o. fl. En eit't hefir átt stærri þátt í krepp- unni en marga grunar, en það er “morale” fólksins og ábyrgð- arleysis tilfinningin, sem virð- ist svo sterklega ráða lofum og lögum í hugum manna á und- anförnum árum, hefir verið raunalegt að heyra sóninn í fólkinu, hefir það svo eitrað út frá sér að menn hafi í tuga og þúsundatali tapað því sem næst allri trú á lífinu og öllum lífs- möguleikum. Alt hefir verið fordæmt, landið, stjórnir og Guð alheimsins, en enginn fordæmir sjálfan sig; hver og einn er í sínum hug alfullkominn og al- gjör; gamla sagan er enn að endurtaka sig, að maðurinn sér flísina í auga bróður síns, en hann sér ekki bjálkann í sínu eigin auga. Það sem er einna átakanlegast við barlóm fólks- ins er það, að það er ekki ein- skorðað við það fólk, sem nauð- uglegast er statt, heldur jafnvel frekar þeir, sem við _ bærileg lífskjör eiga að búa. Það hafa verið erfiðleikar á eða [ til þess að ná peningum þeirra. marga lund á þessari kreppu- tíð, sem nú er, um sinn að minsta kosti, liðin hjá, (og þó hefir maður fyrir margt að þakka, þegar litið er út um víð- an heim), en það bætir ekki á- standið að kveina og kvarta, heldur hitt miklu fremur að ganga að sínu hlutverki með kjark og karlmensku, og það er víst að það er ekki aðalhlutverk lífsins að safna sem mestum pen- ingum, heldur hitt að byggja líf sitt á réttri hugsun og sækja mót örðugleikum á manndóms- fullan hátt. Og það ætti og þarf hver maður að læra, að eiga góða daga og hafa sem minst fyrir lífinu er ekkert höfuðatriði, heldur hitt, að geta unnið og starfað drengilega og látið gott af sér leiða í lífinu, og því verður ekki neitað að það er heilbrygt grundvallaratriði hverjum manni “að leita fyrst guðsríkis og hans réttlætis” því þá mun alt annað veitast manni að auk, með öðrum orðum, að byggja lífsstarf sitt á hornsteini sannleikans og réttlætisins í orði og verki. Það verður enginn farsæll til æfiloka, sem ekki leggur alt það bezta sem hann á til lífsins, í hreinum anda, hann skuldar sjálfum sér það, og hann skuldar mannfélaginu það. Nú þrátt fyrir það þó eg hafi málað myndina allsvarta af “moral” fólksins yfirleitt, þá eiga ekki allir óskift mál, það eru þar eins og alstaðar heiðar- legar undantekningar; eg hefi séð fögur ljós í myrkri krepp- unnar, fátækt fólk, sem barist hefir. með djörfung og aldrei kvartað, menn sem hafa tapað aleigu sinni án þess að láta sér bregða, og einstöku menn, sem með atorku hafa risið til vegs og gengis efnalega (vegna þess að þeir áttu trú og hugrekki), eins og fuglinn Fönix úr ösku. Svona fólki er vert að veita eft- irtekt, fólki, sem stendur í straumi lífsins stöðugt og læt- ur sér ekki bregða við sár eða drauga. Það er og hefir verið leiðarljós lífsins í gegnum ald- irnar. Sumarskólinn við Rock Lake Hann var haldinn, eins og til stóð dagan 13. til 21. júlí. Ýmsir virtust kvíða því, að fyrirtækið mundi ekki heppnast í þetta sinn, vegna þess að nú var ekki hægt að hafa skólann á Gimli, þar sem hann hefir verið hald- inn að undanförnu. Virtust menn óttast vegalengdina vest- ur, einkum vegna þeirra tálm- ana, sem nú eru á bílferðum. Einnig voru menn hikandi í þessu sambandi nú fremur en áður vegna þess að hið nýja skólastæði var flestum lítt kunnugt, og eitthvað hafði heyrst um að það hefði staðið ónotað nokkur undanfarin ár. En forstöðunefnd Bandalags lút- erskrá kvenna lét ekki telja sér hughvarf, en afréð að halda á- fram enda þótt við nokkra örð- ugleika væri að etja. Helzti meðráðamaður þeirra í fram- kvæmd þessa fyrirtækis, var hinn ötuli Aprgyle prestur, séra Egill H. Fáfnis, sem einnig var forstöðumaður skólans. Liggur þetta svæði einnig vel við sveit hans, og hann hafði öllum frem- um góða aðstöðu til að kynna sér allar kringumstæður fyrir- fram. Allur undirbúningur reyndist líka góður, og yfirleitt mun óhætt að fullyrða að náms- skeiðið hafi hepnast vel, og unglingarnir nutu útiverunnar og námsins hið bezta. Umhverfið við Rock Lake er fagurt. Vatnið liggur á há- sléttu, sem kvað vera nálægt 800 fet yfir sjávarmál, og bygg- ingar skólans standa á háum bakka norðanvert við vatnið. Loftið var svalt og hressandi; friðsælt á landi og fiskisæld í vatninu. Mikill fjöldi sumar- gesta var þarna staddur um helgina, og ef gengið var niður að vatninu mátti heyra hvininn í ótal fiskistöngum, er menn köstuðu færum sínum 1 spegil- slétt vatnið. Vafalaust hafa margar' frægar fiskisögur átt upphaf sit’t þar þann dag, en ekki virtust menn þó sérstak- lega fengsælir. Öðru hvoru vippaði pikkurinn sér upp úr vatninu, eins og til að ögra hin- um ásælnu föngurum, en oftar mun hann hafa valið sér frjálsa og glaða lífið, fremur en að bíta í krókaref þann, sem fyrir hann var kastað. A laugardagskvöld- ið sáum við þó nokkra sumar- gesti ganga borginmannlega til tjalda sinna með allvæna kippu fiska af ýmsum tegundum. Var mér einngi sagt frá því að drengir okkar, sem námskeiðið sóttu, hefðu einn morgun risið óvenju snemma úr rekkjum og farið til veiða. Árangurinn af þeirri veiðiför varð sá, að allur skólalýður hafði fisk til dag- verðar þann dag, og allir urðu (Framh. á. bls. 7) Business and Professional Cards PRATT & EGGERTSON Barristers' Solicitors, Etc ARNI tíGGERTSON, K.C., L,L.B. (Member Manitoba Bar) R. J. PRATT, LL.B. WYNYARD, SASK. Canada ________________!_______ Snowfield & Snowfield Lögfrœðingar LANGDON, N. DAKOTA J. M. SNOWFIELD ELLIS G. SNOWFIELD Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPG. • Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgS, o. s. frv. Phone 26 821 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. lslenzkur lyfsali Fólk getur pantaS meðul og annaíS meC pósti. Fljót afgreiðsla. Peningar til útláns Sölusamningar keyptir. BújarSir til sölu. INTERNATIONAL LOAN COMPANY 304 TRUST & LOAN BLDG. Winnipeg DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. * Phone 21 834—Office tímar 3-4.30 • Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba Legsleinar sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari Skrifið eftir verðskrd GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. DR. A. BLONDAL Physician & Surgeon 602 MEDICAL ARTS BLDG. Slmi 22 296 Heimili: 108 Chataway Simi 61 023 Arthur R. Birt, M.D. 605 MEDICAL ARTS BLDG. Winnipeg Lækningastofu-slmi 23 703 Heimilisslmi 46 341 Sérfrœðingur í öllu, er að húðsjúkdómum lýtur Viötalstlmi: 12-1 og 2.30 U1 6 e. h. H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögfrœðingur • Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 Phones 95 052 og 39 043 No. 1 Call 2 DR. M. C. FLATEN Tannlœknir EDINBURG, M. DAKOTA F. S. SNOWFIELD Lögfrœðingur CAVALIER, N. DAKOTA. ------------------------;- SELKIRK LUMBER Company Verzla með Húsavið og allar tegundir af byggingarefni Kostnaöaráætlanir veittar ókeypis Sími 254 P.o. Box 362 SELKIRK, MAN. Thorvaldson & Eggertson Lögfræðingar 300 NANTON BLDG. Talslmi 97 024 DR. A. V. JOHNSON Dentist • 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 27 702 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG • pægilegur og rólegur bústaður i miðbiki borgarinnar Herbergi $2.00 og þar yfir; með baöklefa $3.00 og þar yfir Ágætar máltlöir 40c—60c Free Parking for Ouests DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlæknar • 406 TORONTO GEN. TRCSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEO A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvaröa og legsteina. Skrifstofu talslmi 86 607 Heimilis talslmi 501 562 DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur 1 eyrna, augna, nef og hálssjúkdómum 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viötalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofuslini 22 251 Heimilisstmi 401 991 Dr. S. J. Johannesson 215 RUBY STREET (Béint suöur af Bannlng) Talslmi 30 877 • Viðtalstími 3—5 e. h. Office Phone Res. Phone 87 293 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 109 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.