Lögberg


Lögberg - 17.09.1942, Qupperneq 3

Lögberg - 17.09.1942, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. SEPTEMBER. 1942 3 ur þau voru ensk eða þýzk. Liðsforinginn rauk í fötin, skundaði til konungs, mættí honum, er hann var að ganga af skrifstofu sinni og ætlaði að ganga til hvílu. Hann sagði konungi fréttina. Hákon kon- ungur sá vitanlega samstundis. að hér var hin mesta alvara á ferðum fyrir hann og þjóð hans. En hann tók fregn þessari með mestu stillingu. Hann v\ssi þá ekki frekar en aðrir hverrar þjóðar herskipin voru, er rudd- ust inn Oslofjörð. Það var ekki fyr en liðið var fram á nótt, aö fregn barst um það til Osloar að skipin væru(þýzk, og Þjóð- verjar hefðu gert árás samtímis á Kristianssand, Stavanger, Bergen, Þrándheim og Narvik og víðar. Myrkur í konungshöllinni. Rétt eftir að fyrsta fregnin kom til hallarinnar, slokknaði rafmagnsljósið þar. Urðu menn eftir það að þreifa sig þar áfram með vasaljósum. Hver stórtíðindin komu nú eftir önnur til konungshallar- innar. Kl. 4V2 fréttist að hin þýzku herskip væru komin fram hjá kastalanum Oscars- borg, og að ríkisstjórnin færi fram á það við konung, að hann yrði ferðbúinn hvenær sem væri, til þess að hverfa úr borg- inni. Nú fór að birta af degi. í morgunskímunni flugu þýzkar flugvélar inn yfir borgina. En flugmenn skutu ekki. Konungur gekk að sírhanum og símaði að Skaugum til Ólafs krónprins, og lagði svo fyrir að hann kæmi með fjölskyldu sinni til hallarinnar. Meðal hirðmanna og þjónustu- fólks var mikill æsingur og taugatitringur alla nóttina. En konungur lét ekkert á sig fá. Hann fór aldrei úr jafnvægi og lét sér ant um að hjálpa öllum og draga úr hræðslu manna og skelfingu. Krónprinshjónin komu með börnum sínum og fylgdarliði kl. að ganga 7 um morguninn. — Martha krónprinsessa var mjög skelfd, en hafði þó góða stjórn á sér, því hún er mikilhæf kona. Broliförin. Er konungsfjölskyldan ók frá liöllinni um morguninn niður eftir Carl Johansgötu, til járn- brautarstöðvarinnar, voru lög- regluþjónar, sem þar voru, komnir með stálhjálma og borg- arbúar þeir, sem komnir voru á kreik, stóðu á götunum og lásu morgunblöðin. Fólk hafði heyrt loftárásarmerkin um nóttina, en haldið að um æfingar væri að ræða, og ekki sint því. En er flugvélarnar komu í hópum inn yfir borgina, sannfærðust menn um, að hér var alvara á ferð- inni. Er Hákon konungur kom inn í biðsal járnbrautarstöðvarinnar, barst þangað fregnin um að þýzku herskipi hefði verið sökt undan Oscarsborg-virki. Kon- ungur varð þá í vafa um, hvort hann ætti að leggja þá þegar af stað, því hann vildi ekki yfir- gefa höfuðstaðinn fyrri en í fulla hnefana. Skipið, sfem þar fréttist um að sökt hafi verið, var Blucher, þar sem alt Gestapoliðið þýzka var og öll skjöl og gögn, sem hin þýzka yfirstjórn Noregs átti að styðjast við. Þetta seinkaði innrás Þjóðverja þenna morgun og hefir sennilega gert það að verkum, að þýzki innrásarher- inn náði ekki Hákoni konungi og ríkisstjórninni á sitt' vald. En þegar konungi datt í hug að fresta brottför sinni, tóku ráðherrarnir því fjarri, og var síðan haldið af stað. Fylgdarlið konungs, er kom á stöðina, gat ekki tára bundist, er skilnaðar- stundin kom. En Hákon hélt sinni óbifanlegu geðstillingu. Konungur og ráðherrar voru í sömu lest. Er lestin kom til Lille-Ström, varð að staðnæmast þar. Stöðin er rétt hjá herflugvellinum Kjelder. En Þjóðverjar voru að varpa sprengjum á völlinn og kveikja í flugvélaskýlunum. — Farþegarnir fóru úr lestinni og leituðu sér skjóls undir járn- brautarbrú einni, eða annarstað- ar þar sem helzt var afdrep fyr- ri sprengjubrotum. Árásin stóð í hálftíma. — Síðan hélt lestin áfram. Komið var að Hamar um hádegi. Þar var haldinn fyrsti fundur í ríkisráði, eftir brottförina frá Oslo. Flótti starfsliðs "Norsk T elegr ambyr a." Þ» hverfum við frá sögumanni mínum í) lífverði konungs, segir Sigmund Friid blaðafulltrúi, og snúum okkur að mínum vegum. Við vorum í Oslo til kl. 2V2 e. h. Þá heyrði eg, að Þjóðverjar væru búnir að taka völdin á lögreglustöðinni, útvarpsstöð- inni, símastöðinni og þýzkt her- lið væri á leiðinni frá Fornebu fiugvelli tli borgarinnar. Þótti mér þá réttast að hverfa á brott og þangað sem ríkisstjórnin væri, og freista að halda uppi sæmilegri fréttastarfsemi þaðan. Við vorum 15 í alt, sem sem náðum í langferðavagn og lögð- um af stað með pjönkur okkar. Við fengum að vita, að Þjóð- verjar hefðu þegar lokað um- ferð á öllum aðalvegum er liggja frá borginni. Við lögðum þvi lykkju á leið okkar, héldum suð- ur í Austfold, og beygðum síðan eftir krókaleiðum norður eftir og komum til Hamar um kvöld- ið. Þar ætluðum við að setja upp fréttastöð til bráðabirgða. — Sneri eg mér til stærsta dag- blaðsins þar. I sama bili og eg kom inn á ritstjórnarskrifstof- una heyrði eg í útvarpinu, að Vidkun Quisling heldur þar ræðu, þar sem hann tilkynnir öllum landslýð, að hann hafi myndað stjórn og hann beini því til allra embættis- og starfs- manna ríkisins, er horfið hefðu frá Oslo, að koma tafarlaust til baka og taka upp störf sín, ef þeir vildu halda stöðum sínum. Siórþingið á fundi. Rétt á eftir kom fregn um það, að þrír stórir þýzkir her- mannavagnar væru á leið til Hamar, og ættu hinir þýzku hermenn að taka konung, ráð- herra og þingmenn höndum. Var því ákvðeið að halda skyldi ferðinni áfram sem skjótast til Elverum. Með aukalest og bíl- um fór nú konungur, ríkisstjórn, þingmenn og alt þeirra fylgdar- lið til Elverum. Þangað komum við kl. 10 um kvöldið. Þar kom Stórþingið saman á fund í lýð- háskólanum. Á þeim fundi fekk ríkisstjórnin það umboð er hún hefir unnið eftir síðan. Meðan fundurinn stóð í Elve- rum bárust fregnir um að enn væru Þjóðverjar komnir lengra áleiðis, framhjá Hamar, og svo nálægt Elverum, að skotdun- urnar heyrðust frá bardaganum, er nú stóð yfir. Hópur Norð- manna, eg kalla það “hóp,” því um æft skipulagt lið var ekki að ræða, hafði tekið sér fyrir hendur að varna því, að þýzkir hermenn hefðu hendur í hári konungs og ríkisstjórnar. Þetta ■•.•oru nýliðar í hernum, menn úi hernum o. fl. Margir þeirra höfðu aldrei snert á skotvopni áður. En með snarræði þeirra og hugprýði tókst þeim að bjarga yfirvöldum landsins. Foringi þýzka liðsins var flug- málasérfræðingur í þýzku sendi- sveitinni í Oslo, maður, er þótt- ist vera vinur Noregs og norskra stjórnarvalda. Hann féll í þess- um bardaga. Kröfum Þjóðverja ekki sinl. Þegar fundi Stórþingsins var lokið, var búist við að menn gætu lagt sig til hvíldar. En þá kom orðsending um, að við yrð- um að halda áfram. Hákon kon- ungur og ráðherrarnir ásamt allri fylgd þeirra, áttu nú að fara til smábæjar eins í Trysil, til Nybergsund, sem er eina 13 km. frá landamærum Svíþjóðar. Nú var farið þangað og gist þar um nóttina. Sendiherra Þjóðverja í Oslo hafði borið fram þá ósk, að mega hafa tal af Hákoni kon- ungi að morgni þess 10. apríl. Sneri konungur því til baka fra Nybergsund morguninn eftir til að mæta Brauer í Elverum á tilteknum tíma. Þjóðverjinn kom ekki til fundar við konung fyrri en síðdegis. Utanríkisráðherrann Halvdan Koht hafði orðið eftir í Elverum til þess að vera viðstaddur sam- tal þeirra Hákonar konungs og sendiherrans þýzka. Er sendiherrann kom seint og siðar meir til fundar við kon- ung, neitaði hann því, að ráð- herrann yrði viðstaddur er hann ræddi við konung. Kom sendi- herrann nú fram með aðrar og ennþá meiri kröfur en hann hafði borið fram við utanríkis- málaráðherrann aðfaranótt þess 9., eða um morguninn kl. 4—5, fimm klukkustundum eftir að árás Þjóðverja byrjaði. En er sendiherrann komst að raun um, að Hákon konungur lét ekki undan kröfum hans í neinu, fékk utanríkisráðherrann að vera viðstaddur samtalið. Ein af kröfum Þjóðverjans var sú, að konungur viðurkendi stjórn Vidkun Quislings, sem löglega stjórn norsku þjóðar- innar. Konungur tók þessu víðs fjarri, þar eð hann fullyrti, að hann myndi aldrei viðurkenna neina aðra stjórn í Noregi, en þá, sem hefði traust þjóðarinnar að baki sér. En hann svaraði sendiherra Þjóðverja með þeim fyrirvara. að endanlegt svar fengju þeir ekki fyrri en hann hefði ráð- fært sig við ráðherrana. Svarið fékk Þjóðverjinn svo í símtali seinna um daginn, þess efnis, að norska þjóðin myndi berjast gegn hinum þýzka inn- rásarher unz yfir lyki. Samtímis, sem þetta var gef- ið, gaf ríkisstjórnin út ávarp til þjóðarinnar. Eftir fund Hákonar konungs við þýzka sendiherrann Brauer, höfðu Þjóðverjar hugboð um hvar konungur hafðist við. Á þriðjudaginn, sama dag, sem konungsfjölskyldan, ráðherrar og fylgdarlið kom til Nyberg- sund höfðu þar verið gefin loftvarnarmerki, án þess, að til árása kæmi. —(Lesbók). ________________ * Rússneska leyni- vopnið Eftir Dyson Carier. (Þýtt úr “Russia’s Secrfet , Weapon”) Jónbjörn Gíslason. (Framhald) FRAMÞRÓUN. Eins og áður er getið var hið fyrsta verk stjórnarinnar að auka vísindastarfsemi í landinu, og það í svo stórum stíl að ó- mögulegt virtist til fram- kvæmda; frá því fyrsta hefir stjórnin haldið þeirri stefnu hik- laus og markviss. Hvað sem segja má um afstöðu breytingar hennar til peningamála, trúar- bragða og jarðyrkju, þá hefir stefna. þeirra í vísindamálefn- um aldrei skeikað frá settu marki. Stefna Rússa í þessu máli sætti allhörðum árásum fram- andi sérfræðinga, en sú andstaða var aldrei fyllilega samhljóða; fyrir því eru eftirtaldar ástæður: Eftir síðasta ófrið urðu vís- indamenn víðsvegar um heim, ó- samþykkir um sín eigin málefni og hvernig á þeim skyldi haldið. Hin gamla hugmynd í þeim efn- um var sú, að vísindin ættu á sama hátt og listir og hljóm- fræði, að iðkast af velvild til málefnisins aðeins, en sú skoðun var þá á fallanda fæti. Iðn- stöðvarnar gleyptu alt úrval hinna yngri vísindamanna, en þeir sáu sér til sorgar, að mörg- um af þeirra beztu uppfunding- um var oft og tíðum stungið undir stól. Bráðlega kom fram sú krafa að stjórnir ýmsra landa tækju á arma sína alla slíka starfsemi og rannsóknir; uppá- stungan mætti harðvítugum andmælum flestra vísindamanna og auðfélaga og var því að lok- um feld. Þar sem rannsóknarráð á rík- isins kostnað var sett á stofn i þessum efnum, varð reyndin sú að það varð aðeins til ágóða og hagsmuna fyrir einstaklings iðn- rekstur, og var jafnan haldið hæfilega í kyrþey með ónógum fjárframlögum og áhugaleysi; stefnan varð sú að allur ágóði slíkrar starfsemi skyldi renna inn til auðfélaganna, en ef svo atvikaðist að merkar rannsóknir gæfu grun um lækkaðan ágóða- hlut iðjuhöldanna, var uppgötv- unin tafarlaust sett í bann. Hið lakasta dæmi í þessum efnum var nýlega afhjúpað í Bandaríkjunum, þegar stjórnin upplýsti að vissir iðjuhöldar hefðu ekki hikað við að halda til baka vissri tegund af fram- leiðslu, sem gáfu þeim ekki nægilegan arð í eigin vasa og settu þannig varnir landsins í hættu; þjóðin varð höggdofa við þessar upplýsingar. Sérfræð- ingar þekkja vel slík tilfelli sem þessi; á síðustu tuttugu og fimm árum hafa ýmsar nýtilegar upp- fundingar gengið kaupum og sölum og að síðustu verið teknar og stungið undir stól. Meðan á þessu stóð voru hin nýju rússnesku vísindi á upp- siglingu. Þrátt fyrir örbyrgð og þjáningar Soviet Rússlands eftir byltinguna, var miljónum dollara varið til þeirra rann- sókna. Hér er ágrip þeirra á- ætlana er vöktu hæðnishlátra og harða dóma umheimsins. Til að byrja með var vísinda- háskóla landsins breytt úr sér- i'élagi nokkurra gamalmenna, í máttuga og virka stofnun með 180 miljón manna að baki sér. í öðru lagi var aðeins vísinda- lega sinnuðum mönnum veitt aðganga og öllum goldið kaup meðan nám stóð yfir. í þriðja lagi urðu námsmenn að vinna part úr hverju ári í verksmiðj- um eða samvinnubúum. í fjórða lagi var efnarannsóknarstofum komið fyrir í hverri verksmiðju og vinnustöð. í fimta laði urðu öll úrlausnarefni að koma frá iðnstöðvunum, landbúnaðinum. eða áætlunarnefnd ríkisins. Það er ekki svo auðvelt fyrir okkur hér að ímynda okkur virðingaverða vísindamenn taka starf í kolanámum eða á hveiti-' ökrum eða vísindalegar ráðgát- ur bornar fram af skrifstofu- mönnum, lítt mentuðum bænd- um og verkamönnum, en svo ei það þar. „Vísindamenn nágrannaríkjanna urðu hamslausir yfir öllum þess um athöfnum Rússa, en æðið rann bráðlega af þeim og þeir urðu fullir undrunar. Þegar alls er gætt voru fyrir- ætlanir Lenins í þessum efnum ekki svo mjög róttækar, hann ásetti sér aðeins að taka þessa starfsgrein þjóðarinnar úr hönd- um örfárra einstaklinga og gera hana nothæfa og skiljanlega miljónum manna, til sköpunar nýrri og betri veraldar. Hversu margir vita hver inn- leiddi slíkar sameigna og sam- starfs hugmyndir? Það gerði meðal annara hinn heimsfræg’ byggingameistari Kristófer Wren fyrir 300 árum síðan. Hann var einn af stofnendum hins kon- unglega vísindafélags, hins stærsta í heimi af þeirri tegund. Wren sagði: “Gæfusöm og góð stjórn eflir listir og vísindi til að létta vesaldóm og erfiði þessa fallvalta lífs, svo auður og als- nægtir skiftist meðal allra eftir verðleikum.” Þessi var horn- steinn og kjörorð félagsins er stofnað var á seytjándu öld. En á tuttugustu öldinni gátu vís- indamennirnir ekki áttað sig á hvað Rússar ætluðust fyrir. Nú að lokum, þegar hinar frábærlega fögru kirkjur, er Wren bygði í Lundúnum hafa verið eyðilagðar hver af annari af villimönnum Nazista, takast vísindamenn Breta og Rússa í hendur yfir brunarústunum og mætast á sameiginlegum og bróðurlegum grundvelli. KOLANÁMURNAR Kringum árið 1900 byrjaði Lenin að brjóta heilan um á hvern hátt vísindin væru lík- leg til að myndbreyta heiminum á sem skemstum tíma. Honum duldist ekki að undirstöðuatriði slíkra framtíðar áætlana væru hiti og afl. Ef aflið yrði fram- leitt í nægilega ríkum mæli, og því skift og dreift sem víðast og haganlegast, þá að lokum yrði maðuKÍnn þess umkominn að kallast herra náttúrunnar, er léti hana hlýða boði sínu og banni. Athygli Lenins snerist að framleiðslu og sköpun afls í stór- um stíl. Hann ritaði mikið um þetta mál og kom að lokum með fágæta og undraverða uppá- stungu. Þessi hugmynd var að sönnu ekki ný, hana áttu i fyrstu tveir merkir efnafræðing- ar, Rússinn Mandeleev og Bret- inn Ramsy; þeir álitu að hætta bæri að grafa kol úr jörðu og bentu á hve hlægilegt það væri að höggva þau ef til vill mílu fyrir neðan yfirborð jarðar, lyfta þeim upp úr námunni, flytja þau síðan land eða sjó- veg, og brenna þau að síðustu til gasframleiðslu, til iðnaðar og heimilisþarfa; það væri blátt á- fram hlægilegt að nota kol sem eldsneyti, sögðu þeir. Þeir bentu á hvað lítið hlut- fall af kolum, brendum niðri í sjálfri námunni, mundu hita af- skaplegt kolamagn alt umhverf- is sig og framleiða þannig kola- gas (ljóskveikjuloft) í geysilega ríkum mæli; þetta gas væri til- tölulega auðvelt að flytja gegn- um pípur hvert sem nauðsyn bæri til, án járnbrautarvagna og skipa. Kolin í jörðinni yrðu aldrei hreyfð, þau lægju kyr á sínum upprunalega stað. (Framhald) Leiðrétting: 1 síðasta kafla “Rússneska leynivopnið” stendur í öðrum dálki neðan til: öreiga og vinnu- laus; á að vera: öreiga og vina- laus. Business and Prc ifessional Cards Dr. P. H. T. Thorlakson Thorvaldson & 205 Medical Arts Bldg. Eggertson Cor. Graham og Kennedy Sts. Lögfræöingar Phone 22 866 ö 30 0 NANTON BLDG. Res. 114 GRENFELL BLVD. Talsfmi 97 024 Phone 62 200 J. J. SWANSON & CO. DR. A. V. JOHNSON LIMITED Dentist 308 AVENUE BLDG, WPG. • Pasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsúbyrgð. bifreiSaábyrgð, o. s. frv. 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Phone 26 821 Home Telephone 27 702' EYOLFSON’S DRUG ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST. WINNIPEG PARK RIVER, N.D. • íslenzkur lyfsali pægilegur og rólegur bústaöur i miöbiki borgarinnar Fólk getur pantað meðul og Herbergi $2.00 og þar yfir; með annað með pósti. baðklefa $3.00 og þar yfir Ágætar máltíðir 40c—60c Fljót afgreiðsla. Frce Parking for Ouests Peningar til útláns DRS. H. R. and H. W. TWEED Sölusamningar keyptir. Bújarðir til sölu. Tannlæknar INTERNATIONAL LOAN 406 TORONTO GEN. TRCSTS COMPANY BUILDING 304 TRUST & LOAN BLDG. Cor. Portage Ave. og Smith St. Winnipeg PHONE 26 545 WINNIPEO DR. B. J. BRANDSON A. S. BARDAL 216-220 Medicai Arts Bldg. 848 SHERBROOK ST. Cor. Graham og Kennedy Sts. Selur líkkistur og annast um út- Phone 21 834—Office tfmar 3-4.30 farir. Allur útbúnaður sá bezti. • Ennfremur selur hann allskonar Heimili: 214 WAVERLEY ST. minnisvarða og legsteina. Phone 403 288 Skrifstofu talsfmi 86 607 Winnipeg, Manitoba Heimilis talsfmi 501 562 Legsteinar DR. ROBERT BLACK sem skara framúr Úrvals blágrýti og Manitoba marmari Sérfræðingur f eyrna, augna, nef og hálssjúkdómum 216-220 Medical Arts Bldg. Skrifiö eftir veröskrá Cor. Graham & Kennedv GILLIS QUARRIES, LTD. Viðtalstími — 11 til 1 og 2 tll 5 1400 SPRUCE ST. Skrifstofusfmi 22 261 Winnipeg, Man. Heimilissfmi 401 991 DR. A. BLONDAL Dr. S. J. Johannesson Physician & Surgeon 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) 602 MEDICAL ARTS BLDG. Talsfmi 30 877 Simi 22 296 Heimili: 108 Chataway Sfmi 61 023 Viðtalstfml 3—5 e. h. • Office Phone Res. Phone Arthur R. Birt, M.D. 605 MEDICAL ARTS BLDG. 87 293 72 409 Winnipeg Dr. L. A. Sigurdson Lækningastofu-slmi 23 703 Heimilissfmi 46 341 109 MEDICAL ARTS BLDG. Sérfrœöingur i öilu, er aö húösjúkdómum lýtur Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. Viðtalstími: 12-1 og 2.30 U1 6 e. h. and by appointment H. A. BERGMAN, K.C. islenzkur lögfrœffingur • Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 165Í Phones 95 052 og 39 043 I c & %& V

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.