Lögberg - 19.11.1942, Side 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1S. NÓVEMBER, 1942
HUGHEILAR ÁRNAÐARKVEÐJUR
TIL ÍSLENDINGA í ARGYLEBYGÐUM!
Vér starfrækjum verzlun yðar vegna, og
leggjum á það alt hugsanlegt kapp, að hafa
ávalt á takteinum fyrsta flokks vörur við
sanngjörnu verði.
F. Frederickson & Company
GLENBORO, MANITOBA
Argylebygðin og siðbótafélagið
íslenzka bygðin í Argyle-sveit-
inn er eitt af höfuð minnis-
merkjum íslendinga vestan hafs.
Sú bygð hefir með sanni verið í
fremstu röð íslenzkra bygða
beggja megin landamær-
anna. Með landnáminu í Argyle
hefst nýtt tímabil í sögu Vestur-
íslendinga, fram að þeim tíma
mátti segja að baráttan væri
uppihaldslaust stríð fyrir tilver-
unni með litlum vonarbjarma
fyrir betri framtíð. I Nýja Is-
landi voru landarnir einangrað-
ir við erfið lífskjör, og höfðu
lítil sem engin mök við hér-
lenda menningarstrauma. Þeg-
ar til Argyle kom, komust Is-
lendingar í náin kynni við hér-
lenda menningarstrauma, sem
sérstaklega á sviði verklegrai
þekkingar gaf þeim nýtt og víð-
áttumeira útsýni yfir lífið. Sama
má og að vísu segja um íslenzku
bygðirnar í Dakota, sem bygð-
ust á líkum tíma.
Alveg á sama hátt og útflutn-
ingarnir frá Islandi vöktu þjóð-
ina heima úr alda gömlum
dróma, til lífs og starfs, eins
vakti útflutningurinn frá Nýja
íslandi til Argyle og Dakota
eldinn hulda í brjóstum ís-
lenzkra frumherja til starfs og
dáða og kveikti vonarljós í hjört-
um þeirra um bjartari framtíð,
sem þá hafði svo fagurlega
dreymt um. Og menningarlíf
andlegt og efnalegt í þessum
bygðum fylgdi í kjölfar þessara
umbrota; umbrot og athafnalíí
er nauðsynlegt hverjum ein-
stakling og hverri þjóð, án þess
stanzar blóðrásin og mennina
dagar uppi og þeir steinrenna,
“því manni miðar annaðhvorí
aftur á bak ellegar nokkuð á
leið.”
Agrylebygðin er fögur og hún
hefir verið íslendingum far-
sældarreitur, landslagið er öld-
ur og sléttlendi, skógivaxnar
hæðir og engjaflákar, lækur
rennur eftir bygðinni endilangri
að norðan, og eru engjalönd
ágæt meðfram læknum, sem í
þurkaárum sérstaklega hefir
fært björg og blessun í bú
margra. Akurlöndin eru frjósöm
og bregst uppskera aldrei, ef
hæfilegt regnfall er, og í þau
62 ár, sem bygðin hefir staðið
hefir aldrei orðið alger upp-
skerubrestur; er og mjög sjald-
an að hagl skemmi uppskeru í
bygðinni, og frost ekki síðan á
landnámstíð. Óvíða hefir fólk
lifað gæfuríkara lífi en í Argyle-
bygðinni. Eg ætla mér ekki að
skrifa um bygðina eða fólkið, en
í stuttu máli langar mig til að
minnast á þátt úr félagssögu
Argylebygðar, sem lítt er kunn-
ur, og sem er einstæður í sögu
vestur-íslenzkra bygða, og þó
máske djúpt sé tekið í árina,
einstæður í frumherjasögu Vest-
ur-Canada, og slær það nokkru
ljósi á innræti og hugsunarhátt
leiðtoganna og alls almennings
í Argylebygð á fyrstu árum
bygðarinnar. En það var stofn-
un og starfræksla “Siðabótafé-
lagsins” er stofnað var 1884. Fé-
lag þetta náði um stund mikilli
útbreiðslu og vakti mikinn á-
huga, þó það yrði ekki langlíft,
sem ekki heldur var við að bú-
ast, því þar láu hugsjónir til
grundvallar, sem voru langt á
undan sinni samtíð. Félagið var
stofnað upphaflega fyrir tilhlut-
an og meðalgöngu Skafta Ara-
sonar, sem var höfuðsmaður í
flokki leikmanna í bygðinni á
meðan hans naut við, og einn
merkilegasti maður í bænda-
stétt meðal Vestur-lslendinga,
ferðaðist hann meðal bygðar-
manna til þess að hvetja þá til
þess að skrifa undir reglur þær,
sem hann hafði samið fyrir al-
mennum umbótum í vissum
framteknum atriðum, sem lutu
að kristilegu siðferði og sparn-
aði eður sjálfsafneitun í nautn
óhófs og munaðarvöru, sem sé
(1) að blóta ekki, né syerja við
nafn Drottins að þarflausu, (2)
að neyta engra áfengra drykkja,
(3) að byrja ekki á tóbaksbrúk-
un eftir að hlutaðeigandi er orð-
inn félagslimur.
Stofnfundur félagsins var
haldinn í húsi Kristjáns Jóns-
sonar frá Héðjnshöfða 23. marz-
mánaðar 1884. Var Kristján
Jónsson fundarstjóri, en Björr.
Jónsson frá Ási í Kelduhverfi
var skrifari fundarins. Á fund-
inum voru 4 menn kosnir í
sjtórnarnefnd, Skafti Arason
formaður, Björn Jónsson vara-
formaður Kristján Jónsson og
Jón Ólafsson á Brú.
I félagið rituðu sig á þessum
fundi 96 menn og konur, og
sýnir það greinilega félagsáhuga
manna á þeirri tíð. Lagabálkur
í 14 liðum var saminn og sam-
þyktur á þessum fundi. Á næsta
fundi félagsins viku seinna var
Jón Ólafsson á Brú kosinn
skrifari félagsins, og hélt hann
því embætti meðan félagið var
við lýði. Sem ritari var hann
einn með færustu íslendingum
á sinni tíð. Heilbrigð kristileg
hugsjón og viðleitni lá til grund-
vallar þessari félagsmyndun,
lýsa fundargerningar félagsins,
sem eru mjög greinilegir, þeim
brennandi áhuga leiðtoganna
fyrir siðferðilegum endurbótum
í lífi frumbyggjanna. Félagið
starfaði með miklu fjöri á ann-
að ár, en leið þá undir lok sök-
um þess að reglugerð félagsins
þótti nokkuð ströng og þótti
skerða einstaklingsfrelsið, en
þrátt fyrir það kom þessi hreyf-
ing miklu róti á hugi manna, og
opnaði fyrir þeim, sem hlut átti
að máli, nýtt útsýni og vakti
mann til meðvitundar alvarlega
um hófsemi og siðgæði í hinni
réttu mynd og mótaði hugi
margra siðferðislega, og eitt er
víst, að Islendingar í Argyle-
bygðinni standa engum að baki
með háttprýði, snyrtimensku,
reglusemi og alment siðgæði. í
þessu tilliti munu þeir halda
sínum hlut og vel það, hvar sem
er meðal manna. Á móti of-
drykkju hafa íslendingar í
Argyle staðið og hefir vínverzl-
un ekki náð sér niðri þar sem
áhrif þeirra hafa náð til, og hefir
það verið bygðinni mikil bless-.
un.
I almennum málum sveitar-
innar hafa íslendingar tekið
mikinn þátt, hafa jafnan setið í
sveitarráði tveir Islendingar.
Oddviti sveitarráðsins var Krist-
ján Jónsson, un> 10 ára bil, og
var hann með áhrifamestu
mönnum, sem það embætti hefir
skipað. Margir hafa komið til
Argyle og margir farié þaðan
aftur. Börn bygðarinnar eru
nú dreyfð út um þetta mikla
meginland víðsvegar, og gegna
margvíslegum trúnaðarstöðum
með sæmd og hafa aukið hróður
bygðarinnar með prúðmannlegri
framkomu og hæfileikum og
trúmensku í sínu starfi.
Hátt gnæfir við himin mynd
Hon. Thos. H. Jackson er var um
margra ára bil höfuðsmaður
Liberal flokksins í Manitoba og
dómsmálaráðherra um hríð;
hann átti yfir að ráða miklu
andlegu atgervi, eldfjöri og á-
Vér afgreiðum lyfjaávísanir fyrir menn og skepnur
Verðið er gott — vörurnar betri
Ánægðir viðskiftavinir er kjörorð vort
WILLARD WITHERSPOON
GLENBORO, MANITOBA
Karlmannafainaðir - Kvenfantaðir
Nýjar maivörur og ávexiir
Takmark vort er að veita ánægjulega afgreiðslu
Leo Johnson
GLENBORO, MAN.
Sími 11 — Fljói afgreiðsla
C. JOHNSON & SONS
umboðsmenn fyrir
John Deer Plow Co. Lid. - Cockshutt Plow Co, Líd.
Norih Slar Oil Co. Ltd. - Ogilvie Flour Mills Co. Lid.
BALDUR, MANITOBA
huga, fágætum mannkostum og
háttprýði.
Þá var Dr. B. B. Jónsson eitt
af börnum bygðarinnar, um
langt skeið forseti lúterska
kirkjufélagsins og prestur í
Minneota og Winnipeg, höfðingi
í félagslífi Islendinga, lærdóms-
maður og mælskur vel. Frú
Jakobína Johnson, skáldkonan
þjóðkunna, dóttir Sigurbjörns
Jóhannssonar skálds frá Fóta-
skinni, er var í frumherjahópi
Argylebygðar; æsku sína lifði
hún hér, með lifandi ljóðlist
hefir hún kveðið sól og sumar
inn í hjörtu þjóðar sinnar, með
list sinni, fegurðarsmekk og
háttprýði hefir hún aukið á
hróður sinnar heimabygðar. Dr.
Jón Stefánsson, læknirinn góði
og drengilegi, fræðimaðurinn og
höfðinginn, einn hugljúfasti
maðurinn, sem mótaðist í um-
hverfi Argylebygðar. Kári
Frederickson, sonur Friðjóns
Friðrikssonar, er lengi bjó í
Glenboro, sérstæður sem spak-
mehni og leiðtogi í leikmanna-
hóp Vestur-lslendinga. Kári
hefir starfað í þjónustu sam-
bandsstjórnarinnar lengst æf-
inn, og hefir nú um mörg ár
verið forstjóri Canada bankans í
Toronto of nýtur trausts og
virðingar á hæstu stöðum. Hann
er prúðmenni og drengur ágæt-
INNILEGAR HAMINGJUÓSKIR TIL ÍSLENDINGA
í ARGYLEBYGÐUNUM!
“Sitjið við þann eldinn, sem bezt brennur”
•
Finnið oss ávalt fyrst að máli í sambandi við
vörukaup yðar.
Jónas Anderson
General Merchant
CYPRESS RIVER, MANITOBA
Sími 6 Cypress River, Man.
Morcombe Drug Store
Lyfjaávísanir — hinar og þessar vörur — skepnumeðö!
Blóm — Skrautmunir
JOSEPH MORCOMBE
Lyfefnafræðingur
ur.
Marga fleiri mætti nefna, sem
með hæfileikum og háttprýði
hafa orðið mannfélagi sínu til
sæmdar út á við, bæði menn
og konur, sem hafa gengið sólar-
megin á braut lífsins, lífsglöð og
þakklát í anda, þegjandi vottur
þeirrar andlegu gróðrarmoldar,
sem þau uxu upp í.
íslenzka bygðin í Argyle hef-
ir staðið nú í rúm 60 ár, hún
á eftir að standa í margar aldir
og há margvíslega baráttu. Vér
óskum þess að ljóssækin hug-
Shore Hotel
Alúðarkveðjur til íslenzkra vina og viðskiftavina!
S. SENNETT, Manager
CYPRESS RIVER, MANITOBA
Sveitarstjór'nin í Argyle
héraði
Minnist í dag með þakklátum huga íslenzku frumherjanna,
manna og kvenna, er fyrst lögðu hönd á plóg, erjuðu
jörðina, og gerðu hana sér undirgefna; þessir atorkusömu
frumherjar lögðu á þessum slóðum trausta undirstöðu að
framtíðar velmegun, og afkomendur þeirra, sem nú bera
hita og þunga dagsins, hafa jafnframt lagt fram glæsilegt
menningartillag þessum fögru og farsælu bygðarlögum til 1
samtíðar- og framlíðarheilla.
Með endurteknum árnaðaróskum
Virðingarfylzt,
WALTER E. CLARK, oddviti
/
Sveitarráðsmenn:
Alex Graham, John A. Mabon, Chas. A. Hamilton,
Wm. Young, G. M. Sveinson, B. S. Johnson
R. Carl Atkins, skrifari