Lögberg - 19.11.1942, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. NÓVEMBER, 1942
5
Á mynd þessari sézi Bosion orusiuflugvél á sveimi yfir Dieppe í Frakklandi, meðan á
árás sameinuðu þjóðanna sióð þann 19. ágúsi síðasiliðinn.
Fellsmúla og var hjá honum
fram um tvítugt. Bar upp frá
því mesta hlýhug til þess vel-
gerðamanns síns. Svo dvaldi
hann í Reykjavík og eitt ár á
ísafirði, þar til hann fór til
Ameríku 1910. Hann staðnæmd-
ist um hríð í Winnipeg og síðar
í Vancouver, en fann fastan
samastað fyrst í Seattle
Guðjón Einarsson var vandað-
ur maður til orða og verka.
Hann var mesti iðju- og ráð-
deildarmaður í hvívetna, gaf sig
við ýmislegu starfi og hélt vel
á því, sem honum aflaðist. Mun
hann því hafa komist allvel í
'efni. Hann var kyrlátur maður
og lét lítið á sér bera. Fegurð-
arsmekk átti hann næman, hafði
yndi af tónleikum og var
mikill blómavinur. Hann vav
trúhneigður og studdi oft vel
kristilegt starf. Hans er minst
með hlýhug af þeim er honum
kyntust.
Útförin fór fram 3. okt.. Séra
K. K. Ólafson jarðsöng.
K. K. Ó.
Orson McB#*th Cain
Hann lézt að heimili sínu 594
Agnes St. 4. nóv. s.l. eftir langa
vanheilsu. Hann var fæddur í
Charleston, S.C. árið 1849. Var
þrælahald þá alment þar syðra,
og er þess getið að hinum unga
Orson hafi strax verið gefinn
þræll til persónulegrar eignar
Þrælastríðið og afleiðingar þess
umturnuðu þessari suðrænu ver-
öld, og mun Cain fjölskyldan,
sem fjöldi annara, hafa orðið
hart leikin. Að minsta kosti er
svo að sjá að hinn ungi maður
hafi snemma farið að sjá um sig
sjálfur. Ferðaðist hann víða og
lét margt til sín taka. Árið
1905 kom hann til Winnipeg og
giftist það sama ár Sigurfinnu
konu sinni, sem lifir hann ásamt
einum syni þeirra hjóna. Orson
áð nafni. Meðan heilsan leyfði
stundaði hann fasteignaverzlun
og fékkst einnig við vátrygging-
ar.
Orson Cain var mikill maður
að vallarsýn og mjög höfðing-
legur í sjón. Hamí var manna
kurteisastur í öllum háttum og
tali, og bar þannig vott um
anda æskuheimilis síns og upp-
eldi. Hann var stálminnugur,
og sagði skemtilega frá — enda
hafði hann hlotið margbreyttari
reynslu en alment gerist.
Hann virtist fjöllesinn og yfir-
leitt vel mentaður.
Hann kemur við sögu íslenzku
bygðarinnar í Winnipeg, vegna
margþáttaðra sambanda, sem
hann stóð í við íslendinga í
borginni, og ekki sízt vegna þess
að hann átti íslenzka konu, sem
hann unni mjög til hinztu
stundar, og taldi dásamlegustu
gjöf lífsins sér til handa.
Hann var jarðsunginn 6. nóv.
frá útfararstofu Mordue Bros.,
Ltd., í Winnipeg að viðstöddu
fjölmenni. Séra Valdimar J.
Eylands mælti kveðjuorðin.
Einn liðsforingjanna á ame-
ríska skipinu Leviathan átt'
kött, sem hann hafði mjög mik-
ið dálæti á. Dag nokkurn fanst
kötturinn inni í dýrasta farþega-
klefa skipsins — og var búinn
að eignast þar 5 ketlinga.
Nokkrum dögum seinna heyrð-
ist einn sjóliðanna ávarpa hina
ungu móður á eftirfarandi hátt:
“Þú ert svei mér lagleg, kisa
— eða hitt þó heldur,” sagði
hann ásakandi. “Þú ættir að
skammast þín! Við gefum þér
landgönguleyfi í mesta granda-
leysi, og hverjar eru svo afleið-
ingarnar?”
FYRRVM STRÍÐSFLUGMAÐUR
— FLUGSÉRFRÆÐINGUR
Hann hrindir
verkinu í
framkvæmd
Okkar verk NÚ er að beiia
allri orku í þágu stríðs-
sóknarinnar.
Konnie Jóhannesson tók þátt í síðasta stríði . . . maður,
sem gerskilur mikilvægi og viðfangsefni styrksins í
loftinu . . . maður, sem rutt hefir sér glæsilega braut
í eigin viðskiftalífi, og mun einnig hafa víðtæk áhrif á
viðskiftalíf þjóðarinnar.
Hann telst til flokksins, sem beitti sér fyrir þátttöku
Canada 1 núverandi stríði; flokksins, sem ber ábyrgð á
stríðssókn Canada.
Hann er enginn hikandi draumóramaður; lífsskoðanir
hans eru heilbrigðar . . . hann er HAGSÝNN, FRAM-
SÆKINN, REYNDUR.
Verði hann kosinn tekur hann sæti á þingi með þeim
mönnum, sem vaka yfir athöfnum þjóðarinnar í bar-
áttunni fyrir fullnaðarsigri . . . ekki með þeim, sem
notað hafa hvert tækifæri til niðurrifs gagnrýni, og
hafa skoðað baráttu Canada eins og pólitískt hagsmuna-
tækifæri.
Við aukakosninguna í Winnipeg North Centre þann 30.
nóvember . . . greiðið atkvæði með frambjóðanda
Liberal flokksins.
KONNIE
JOHANNESSON
Published by authority of the
Konnie Johannsson Election Committee
Minningarorð
Frú Solveig Stone
Það getur sjaldnast um héraðsbrest, þó aldurhnigin
kona falli í val; en þeim, sem næst standa, skilst þá skýrar
en nokkru sinni fyr, hve fjúk hinna fölnuðu blaða er
dramatískt; hve söknuðurinn er heitur og tær, og það
engu síður fyrir þá skuld þó vitað sé, hve hvíld er jafnan
kærkomin langþreyttum vegfaranda.
Frú Solveig Stone var í heim þenna borin á Gufu-
skálum undir Jökli, þann 6. dag febrúarmánaðar, árið
1848. Foreldrar hennar voru þau Bjarni Bjarnason og
Margrét Oddsdóttir. Solveig var ekki gömul, er hún fyrst
komst í kynni við sorgina; hún var aðeins sjö ára, er
móður hennar misti við; hún varð úti á fjallvegaför; tíu
ára að aldri, misti Solveig föður sinn; hann druknaði; kom
hún þá til móðurbróður síns, og dvaldi þar við mikið ást-
ríki nokkuð á annað ár, en þá misti hún hann einnig, og
fór þá til vandalausra; fluttist meðal annars vestur í Dala-
sýslu, og átti þar dvöl fram yfir fermingaraldur; freklega
tvítug fluttist Solveig til Hraunhrepps í Mýrasýslu, en
réðist því næst í vist hjá Þorsteini Brandssyni og Ingveldi
konu hans í Hraundal, og giftist þar Jóni syni þeirra
hjóna, tóku ungu hjónin þar við búsforráðum, en fluttu
þaðan eftir átta ár að Hlíð í Kolbeinsstaðahrepp. Mislinga-
vorið svonefnda, 1882, fluttu þau Jón og Solveig á ný að
Hraundal, og áttu þar heima fram á árið 1886, er þau
kvöddu Island og komu \il Canada.
Meginhluta dvalar sinnar í þessu landi, átti Solveig
og fjölskylda hennar búsetu í Winnipeg, að undantekinni
skammri dvöl í Breiðuvíkursveit í grend við Hnausa.
Árið 1895 misti Solveig Jón mann sinn, tæplega sex-
tugan að aldri eftir ástríka samverutíð.
Þeim Joni og Solveigu varð 11 barna auðið; fjögur
dóu í æsku, en ein dóttir, Solveig Marin-Einarson, lézt
árið 1914, liðlega 28 ára gömul. Á lífi eru: Snjólaug
Hannesson, Þorleifur, búsettur í höfuðborg Islands, Ing-
veldur, ekkja Jóns Henry við Petersfield, Margrét, ógift,
er aldrei sleit samvistum við móður sína meðan báðar
lifðu, Bjarnþór, fyrrum sveitaroddviti í Bifröst, og Þor-
steinn, forstjóri við bíladeild T. Eaton verzlunarfélagsins
í þessari borg; eru þau öll mjög rómuð sakir framtaks og
mannkosta. —
Frú Solveig var ástrík kona, er varpaði geislum vítt
um veg samferðamanna sinna; skapgerð hennar var traust,
og vinfesta óbrigðul; hún naut frábærrar ástúðar af hálfu
barna sinna, og barnabörn hennar báru til hennar kær-
leiksþel í ríkum mæli.
Á heimili Þorsteins sonar síns, og konu hans Mar-
grétar, dvaldi Solveig heitin ásamt Margréti dóttur sinni
síðan 1917, og naut þar hinnar aðdáanlegustu umönn-
unar; mun slíkt jafnan til fyrirmyndar talið; var Margrét
tengdadóttir Solveigar henni í einu og öllu sem ástrík
dóttir, auðug af mildilegri umhyggju; mælti Solveig svo
fyrir, að við útför sína yrði Margréti tengdadóttur sinni
færðar sérstakar þakkir fyrir þann kristilega kærleika, er
hún á öllum tímum, og undir öllum kringumstæðum hefði
auðsýnt henni.
Frú Solveig Stone lifði langa æfi og nytsama æfi;
hún var drengur góður, eins og sagt var um Berþóru forð-
um, og því verður jafnan bjart um minningu hennar.
Fögur æfi er aldrei of löng.
Frú Solveig Stone lifði langa og nytsama æfi;
tengdadóttur, þann 1. ágúst síðastliðinn, og var kvödd
kveðjunni hinstu í Fyrstu lútersku kirkju 4. s. m., af
presti safnaðarins, séra Valdimar J. Eylands. Mikill
mannfjöldi fylgdi hinni háöldruðu merkiskonu til grafar.
E. P. J.
Litlu bræðurnir voru komnir í
rúmið. Sá yngri hafði ávarpað
þann eldri nokkrum sinnum —
en fékk ekkert svar.
“Heyrðu, Billi,” kallaði sá
yngri. “Hvað er að þér, hvers
vegna svararðu mér ekki?”
Öskureiður leit Billi upp og
sagði: “Haltu kjafti, og skamm-
astu þín! Eg er að fara með
bænirnar mínar.”
LET'S KEEP SILEHT!
A sign hanging on the wall of Naval Headquarters says:
“O Lord give me strength to keep my big
mouth shut until I know what I am talking
about.”
THE ENEMY HAS EARS
This space donated by
2)'ieiot'iyd
M.D. 71
Til íslendinga í Fyrstu Kjördeild!
Fylkið yður- um C.C.F. flokkinn, umbótaflokkinn, sem
fylgir sömu stefnu og verkamannaráðuneytið á
New Zealand.
KJÓSIÐ FRAMBJÓÐANDA FÓLKSINS
í 1. KJÖRDEILD
Merkið kjörseðilinn þannig, að No. 1 verði við nafn:
STINSON, Lloyd C.
FYRIR BÆJARRÁÐ
PETO, Mrs. M. M.
FYRIR SKÓLARÁÐ
Islenzkir kjósendur í 2. kjördeild
Kjósið í bæjarráð
ERNEST
HALLONQUIST
Hann er fæddur í deildinni
Á heima í deildinni
Rekur viðskifti í deildinni.
KJÓSIÐ UNGAN
FRAMTAKSMANN
Kosningar 27. nov.
Merkið kjörseðilinn þannig
HALLONQUIST, Ermest 11
COULTER
FYRIR
BORGARSTJÓRA
Löng og mikilvæg þjónusta bæj-
arráðsmanns Garnet Coulter’s í
þágu almennings, er trygging yðar
fyrir því, að hann sé hæfur fyrir
borgarstjóra.
Garnet Coulter er ,
BEZTA VAL WINNIPEGBÚA
Committee Rooms:
Aðal kosningaskrifstofa, Graham & Main
Símar 97 825-6-7
Fyrir 2. kjördeild, 216 Mclnlyre Block — Sími 97 193