Lögberg - 19.11.1942, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. NÓVEMBER. 1942
7
Rússneska leyni-
vopnið
Eílir Dyson Carler.
(Þýtt úr “Russia’s Secret
Weapon”)
Jónbjörn Gíslason.
(Framhald)
Þess er þarflaus að geta, að
aðferðir Jefremov, Rakitin,
Lisenko og annara vísindalega
sinnaðra bænda, eru notaðar við
allar greinar akur- og jarðyrkju.
Okkur er þarflaust að brosa að
hugmyndinni um 200 bushel af
ekru; það hveitimagn er sann-
reynd. Innan tveggja ára munu
hin víðfeðmu hveitilönd Rússa
að öllum líkindum framleiða að
minsta kosti helming þess að
meðaltali.
Hvaða áhrif mun slík afar
framleiðsla hafa á hveitimark-
aðinn? Mun verðið hrynja?
Munu hveitikaupshallirnar “Joka
búð og hætta að höndla.”
Jefremov hafði ekki þessa
hluti í huga þegar hann vann að
tilraunum sínum. Hann hefir
ekki enn beint huganum í þá
átt. Rússnesku vísindin hafa í
sannleika engan tíma til að gefa
gaum að hveitimarkaði, hveiti-
verði eða hveitiverzlun.
Hvert var þá áhugamál Jefre-
movs? Það var mjög einfalt;
hann'úskaði að draumur gamla
háskólakennarans rættist. Hann
þráði að beygja náttúruna undir
vilja sinn og yfirráð. Honum
lánaðist það betur en nokkrar
vonir stóðu til. Hann lét sólina
.ganga í lið með bændunum, á
þann máta er enginn hafði áður
talið mögulegt. Með auðskild-
um og einföldum vísindum, sem
allir skilja, réði hann sólina í
þjónustu mannanna.
Áform hans eru nú öllum ljós.
Allir bændurnir í samyrkjubú-
um hans skildu hann til hlýtar,
áður en tilraunir hans hófust.
Tilgangur hans var að rækta
meira hveiti með minna erfiði,
meiri fæðutegundir fyrir þjóð-
ina með minni þrældómi; heil-
brigðari kynslóð og meiri frí-
stundir fyrir bóndann að njóta
gleði og gæða lífsins.
Aðeins fáeins orð til skýring-
ar, hvernig bændavísindin hafa
gjörbreytt hinu daglega lífsvið-
horfi bændanna og þeirra
skylduliðs. Bækur hafa verið
ritaðar með samfélagsbúskap og
sömuleiðis gegn honum. Stjórn-
málamennirnir fræða okkur hér
á því, að slíkt geti aldrei bless-
ast í þessu landi. Hvað er það
í stefnunni og nafninu er þeir
hræðast svo mjög?
Fyrirkomulagið er ofur ein-
falt. í stað þess að hafa þús-
und bændabýli, sem naumasi.
gefa nægan arð til framfærslu
bóndans og búaliðs hans, eru
þau öll sameinuð í eitt víðáttu-
mikið fyrirmyndarbú, með vél-
um og öllum áhöldum, ekki að
öllu leyti ólíkt smábændunum
okkar þegar þeir safnast saman
og sá, þreskja eða plægja akur-
blett sjúka eða slasaða bóndans.
Munurinn er þó sá, að þessi sam-
hjálp fer fram alla daga ársins
meðal bændanna í Rússlandi;
allir aðstoða við sameiginlega
sáningu, þreskingu, plægingu
og hirðingu kvikfénaðar árið um
kring.
Samvinnubændurnir búa í ný-
tízku húsum; þeir hætta vinnu
hvern dag fyrir kvöldverðartíma,
fara á kvikmyndasýningar, í
sundlaugar, söngmenn og hljóð-
íærameistarar heimsækja sam-
vinnubúin iðulega. Einnig eru
þar sjúkrahús, lyfjabúðir, við-
gerðastöðvar, bókasöfn og barna-
stofur; alt þetta er eign búsins.
Nýgiftum hjónum er ætíð feng-
ið nýtt hús til íbúðar.
Samvinnubúskapurinn er i
stuttu máli búskapur með hags-
muni allra fyrir augum.
Vísindin hafa gert róttæka
byítingu í búnaðarháttum rúss-
neska bóndans, þau hafa jafnað
við jörðu allar merkjalínur milii
hans og borgarbúans.
Rússneski bóndinn er var
þjakaður af þrældómi, fáfræði,
fátækt og ístöðuleysi, er horf-
inn fyrir fult og alt, en í hans
stað er kominn hugprúður og
framgjarn bóndi eins og Jefre-
mov; bóndi, sem jafnvel hefir
auðnast að gera bandalag við
sjálfa sólina, við sköpun feg-
urra og frjálsara lífs á lands-
bygðinni.
KVENFÓLKIÐ í RÚSSLANDI
Frá því menningarsaga .mann-
kynsins hófst, hefir siðferðis-
spursmálinu í heiminum aldrei
verið fullkomlega og viðunan-
lega svarað.
Þjóðirnar hafa í þeim efnum,
gengið ýmist of langt eða of
skamt og farið út í öfgar á báða
bóga. Jafnvel enn í dag höfum
við trúarbrögð er dýrka kyn-
ferðishvötina og önnur gangstæð,
er telja hana verk djöfulsins.
Þetta viðfangsefni er eins flók-
ið og torvelt viðfangs og þjóð-
ernisspursmálið nú á þessum
tímum. Frá vísindalegu sjónar-
miði hefir þó kynferðisvanda-
málið engu meiri virkilegan
grundvöll í skapgerð mannanna
en þjóðflokkadeilan.
Það voru engin óvænt tíðindi,
þegar það var gert heyrum
kunnugt, að vísindamenn rúss-
neska lýðveldisins heðfu tekið
sér fyrir hendur að greiða úr
þremur aldagömlum og flókn-
um vandamálum þjóðfélagsins:
kynferðismálinu, siðferðismálinu
og hegningarlöggjöfinni
Frú Litvinoff, kona sendiherra
Rússa í Bandaríkjunum, lýsti
svo haglega í fáum skýrum
dráttum þeirri myndbreytingu
er úrslit þessa máls hefir haft á
þjóðlífið í heild, að eg vil hér
tilfæra ummæli hennar orðrétt.
Skömmu eftir komu hennar
til ^Washington, var hún beðin
að halda ræðu í “The Woman’s
National Democratic Club.’ Há-
degisverðir þessa félags eru há-
tízkulegir og þá sækja aðeins
konur úr yfirstéttinni. Frú
Litvinoff varpaði reglulegri
sprengikúlu inn á meðal þeirra
með ummælum sínum, er New
York Times flutti á þessa leið:
“Eg hefi veitt því athygli að all-
ar konur hér eru kyntar sem
hin ‘yndislega eiginkona’ þessa
eða hins mannsins, eg sjálf tal-
in þar með. Þessi siður tíðkast
ekki í Rússlandi; þar er ekki til
svokallað “yndislegt fólk.” Þar
eru ekki tali-n nein meðmæli
með mér að eg er kona em-
bættismanns og engum mundi
koma til að hlusta á mig tala,
aðeins fyrir þá ástæðu. Rúss-
neska konan er einstaklings
persónuleiki, er treystir á sína
eigin verðleika; hún er ekki
skuggi af stærð eða verðleikum
eiginmannsins.”
Nærri má geta hvort hinar
tignu Bandaríkjakonur — sem
eru svo stærilátar yfir sínu i-
myndaða jafnrétti — hafa ekki
kveinkað sér undan þessum
skarplega samanburði, er snerti
svo óþægilega frelsi kvenna
yfirleitt og jafnrétti þeirra við
karlmenn, en hlaut að tapa
miklu af sínu falska gildi, við
þessa snertingu frú Litvinoff.
Fréttir frá “The
Icelandic Canadian”
Á sameiginlegur fundi rit-
stjórnar- og fjármálanefndar,
sem haldinn var nýlega, var það
samþykt að stefna ritsins skyldi
birtast í ákveðnu formi.
Um það kom öllum saman
hver tilgangur og hvert mark-
mið þess ætti að vera; voru til-
lögur allra fundarmanna skráð-
ar í fimm atriðum og síðan
bornar undir álit félagsins “The
Icelandic Canadian Club.” Sam-
þykti félagið tillögurnar í einu
hljóði eins og nefndirnar gengu
frá þeim. Þær eru sem hér
segir:
1. Að stuðla til þess að alt,
sem einhvers er virði í vorum
íslenzka þjóðararfi, verði lifandi
partur af sjálfum oss sem cana-
diskum borgurum og megi
þannig stuðla til að auka gildi
þess, er vér leggjum til hinnar
canadisku þjóðmyndunar.
2. Að útvega málgagn til þess
að ná sambandi við afkomend-
ur íslendinga, sem giftast ann-
ara þjóða fólki, og þeim fjölgar
árlega. Með því málgagni vilj-
um vér leitast við að útbreiða
þekkingu á vorum íslenzka
þjóðararfi og vekja virðingu
fyrir honum hjá þessum afkom-
endum.
3. Að gefa út rit, sem til þess
mætti verða að þeir, sem ís-
lenzkir eru annaðhvort að
nokkru eða öllu leyti, geti kynst
sem bezt og þannig tengst sterk-
ari böndum; en þau styrktu
bönd mættu aftur verða til þess
að efla sameiginleg canadisk
tengsli í víðari merkingu.
4. Að vekja meiri áhuga með
því að kynna lesendum vorum
þáttöku íslenzkra Canada-manna
í myndun hins fullkomnasta
þjóðlífs.
5. Að sýna canadisku þjóðinni
— og sérstaklega fólki af öðrum
þjóðflokkum, hvernig vér skilj-
um viðhorf vort og afstöðu vora
sem canadiskir borgarar, og
hjálpa þannig til þess að skapa
sameiginlegan grundvöll allrai
heildarinnar.
•
Bréf frá forsælsiráðherranum
Skrifstofa stjórnarformannsins
í Ottawa 29. október, 1942.
W. J. Lindal, dómari,
755 Wolseley Ave., Winnipeg.
Kæri Lindal,
Eg þakka þér fyrir það að
senda mér fyrsta eintakið af
The Icelandic Canadian” með
bréfi þínu.
Það gladdi mig sérstaklega
hversu líkur var andinn í rit-
stjórnargrein frú Salverson og
þinni eigin grein, því sem eg
sagði um canadisku þjóðina í
Montreal í sambandi við Sigur-
lánið.
Þér þætti ef til vill einkenni-
legt hversu líkt þetta er hvað
öðru og sendi eg þér þess vegna
eintak af ræðunni.
Eg bið þig að gera svo vel að
flytja meðnefndarfólki þínu í
ritstjórnarnefnd “The Icelandic
Canadian” mína beztu kveðju
og heillaóskir með þetta nýja
fyrirtæki, í því skyni að efla
borgaralega starfsemi í Canada.
Með beztu óskum,
þinn einlægur,
W. L. Mackenzie King.
•
Bréf frá Kirkconnell prófessor
til ritstjórans, frú Salverson:
Eg er þakklátur fyrir fyrsta
eintakið af “The Icelandic Cana-
dian”. Mér skilst að þér hafi
heppnast 'að ákveða algerlega
heilbrigða stefnu — það er að
leggja grundvöllinn að ákveð-
inni canadiskri framtíð, en á
sama tíma að halda við þekk-
ingunni á fortíð þjóðar yðar.
Fyrsta ritstjórnargrein yðar
ætti að verða hvatning fyrir þá,
sem tilheyra “The Icelandic
Canadian Club.”
Með beztu kveðju frá Mrs.
Kirkconnell.
Þinn einlægur
Watson Kirkconnell.
Wartime Prices and
Trade Board
Ross C. Trimble, formaður
landbúnaðarvéla nefndarinnar
fyrir Manitoba og norðvestur-
hluta Ontario, lætur þess getið
að skortur á hrávöru hafi gert
stjórninni það óhjákvæmilegt
ao takmarka sölu á landbúnaðar-
vélum. Alt fáanlegt efni verðmr
að fara í hernaðarútbúnað.
Bændur eru því beðnir að
reyna að komast af með þann
útbúnað er þeir nú hafa, og
kaupa ekki nýjar vélar ef mögu-
lega er hægt að fá viðgerð á
þeim gömlu. Nágrannar gætu
líka kannske lánað hver öðrum.
og notað vélar til skiftis, án þess
að nokkur hindrun yrði á fram-
leiðslu.
Nýjar vélar fást ekki keyptar
nema útbúnaður sé orðinn svo
slitinn að hann sé ekki lengur
nothæfur til frekari framleiðslu,
og, bætir Mr. Trimble við, þá
verður að sækja um sérstakt
leyfi.
Umsækjandi fer til vélaverzl-
unar og undirritar umsóknar-
eyðublað, sem kaupmaðurinn
Borgið Lögberg!
fyllir út, og sendir með nauð-
synlegum upplýsingum til verk-
smiðjueigendanna. Þaðan fer
beiðnin til formanns úthlutunar-
deildar landbúnaðarvéla, sem
veitir leyfið ef hann álítur að
nauðsyn sé brýn.
Sex skrifstofur, er hafa þessi
mál með höndum, eru nú í Vest-
ur-Canada. í Winnipeg, eins og
áður hefir verið tekið fram, er
Ross C. Trimble yfirmaður. í
Saskatoon, fyrir norðurhluta
Sasktchewan er R. Potter yfir-
maður. í Regina fyrir suður-
hluta Saskatchewan er C. W.
Martin yfirmaður. 1 Edmonton
fyrir norðurhluta Alberta, er W.
C. Trimble yfirmaður. í Cal-
gary fyrir suðursluta Alberta, er
C. W. Trickey yfirmaður, en í
Vancouver, fyrir British Colum-
bia, er W. R. Dowrey, yfirmaður.
SPURNINGAR OG SVÖR
Spurt—Eg las í blaðinu að
smjör ætti að stíga í verði um
eitt cent pundið annan nóvem-
ber. Tvær verzlanir í bænum
þar sem eg bý, höfðu selt á 35c,
sá þriðja á 36c. Nú selja allar
þrjár á 37c pundið. Eru ekki
báðar fyrri búðirnar sekar um
lágabrot?
Svar—-Hverjum kaupmanni
var leyft að bæta einu centi við
sitt reglulega hámarksverð. Það
er mögulegt að tvær fyrri búð-
Lrnar hafi verið að selja smjör
fyrir lægra • en vanalegt verð.
Ef þú vilt tilkynna næstu skrif-
stofu Wartime Prices and Trade
Board, þá verður þetta mál
rannsakað.
Spurt—Á að nota skömtunar-
seðlana strax, daginn sem þeir
ganga í gildi, ðea má brúka þá
hvenær sem er?
Svar—Seðlana má nota jafn-
óðum og þeir ganga í gildi, eða
hvenær sem er eftir þann tíma.
Spurt—Eg hefi leigt út tvö
herbergi á heimili mínu, sem
smá íbúð. Er nauðsynlegt að
tlikynna leigunefndinni?
Svar—Já. Fólk er beðið að
tilkynna nefndinni ef breytt er
um leiguliða eða nýir leigjendur
flytja inn. Biðjið um eyðublað
(form R.C.-40) á næstu skrifstofu
nefndarinnar.
Spurt — Fæst peningalán á
banka eða hjá lánsfélagi til þess
að festa kaup í húsgögnum, sem
við ætlum að greiða með mánað-
ar afborgunum?
Svar—Nei. Það er brot á
lánslögunum fyrir banka eða
lánsfélög að lána peninga 1 þess-
um tilgangi.
Spurt—Hvenær fæst skömtun-
arbók handa ungbarni?
Svar—Strax og barnið er fætt.
Tilkynnið næstu skömtunar-
skrifstofu, gefið nauðsynlegar
upplýsingar, sýnið fæðingarskír-
teini eða aðrar sannanir. Auð-
vitað fær barnið ekki annað en
sykurskamtinn.
Spurt—Er leyfilegt að kaupa
standlampa, eða hefir alt þess-
háttar verið bannað?
Svar—Það má kaupa slíkan
lampa. Fyrir skömmu var fólki
tilkynt að rafurmagnsáhöld
fengjust ekki keypt nema með
skriflegri sönnun um að þau
væru keypt í stað annara tækja
sem ekki væru lengur nothæf
og ekki væri hægt að láta gera
við. Standlampar eru undan-
þegnir þessari reglugerð.
Spurningum á íslenzku svarað
á íslenzkur af Mrs. Albert
Wathne, 700 Banning St., Win-
nipeg.
AllMÍj’fcí
* ~TÍM£/
Don't let your bin get down
to the last few shovelsful
before re-ordering.
DEEP
SEAM
FROM THE BIEIMFAIT
C0A1
ENFAIT DISTRICT V
J/crcrh. GREEN7Áade7rtaAA
WOMEN-Serve with the C.W.A.C.
You are wanied — Age limiis 18 to 45
Full information can be obtained from your
recruiting representative
Canadian Women's Army Corps
Needs You
Get Into the Active Army
Canada's Army Is On The March
Gei in Line — Every Fii Man Needed
Age limiis 18 io 45
War Veierans up io 55 needed for
VETERANS GUARD (Active)
Local Recruiiing Represenialive