Lögberg - 09.12.1943, Page 8
8
LÖGLERG. FIMTUDAGINN 9. DESEMBER, 1943
Ur borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
•723 Warsaw Ave.; Mrs. E S.
Feldsted, 525 Dóminion Street.
Verð $1.00. Burðargjald, 5c.
♦
Sögubækur, LjóSmæli, Tíma-
rii, Almanök og Pésar, sem gef-
ið er út hér vesían hafs, ósk-
ast keypt. Sömuleiðis "Tíund"
eftir Gunnst. Eyjólfsson, 'Út á
víðavangi" efiir St. G. Stefáns-
son, Herlæknisögurnar allar,
sex bindin.
Björnssons Book Store,
702 Sargent Ave,
Winn'peg.
♦ ♦ ♦
Mr. Jón Freysteinsson frá
Churchbridge, Sask., dvaldi í
borginni nokkra daga í vikunni,
sem leið, en hélt heimleiðis á
sunnudagskvöldið.
♦ ♦ ♦
Mr. Sigurður Guðnason frá
Kandahar, Sask., sem dvalið
hafði um hríð hér í borginni, er
nýlega farinn heim.
♦ ♦ ♦
Mr. ólafur Hallsson, kaupmað-
ur á Eriksdale, var staddur í
borginni í fyrri viku ásamt frú
sinni.
♦ ♦ ♦
Þjóðræknisdeildin Frón heldur
ársfund sinn í Goodtemplarahús-
inu á fimtudagskvöldið þann 16.
þ. m. Fer þar fram kosning em-
bættismanna fyrir næsta starfs-
ár. Auk þess verður um hönd
höfð skemtiskrá. Skorað er á fé-
lagsmenn að fjölmenna.
♦ ♦ ♦
Dánarfregn
Mrs. Ingunn Johnson, Ste. 40B
McMillan Court, lézt að heimili
sínu 30. nóvember, og var jarð-
sett frá útfararstofu Thomson’s
3. desember. Mrs. Johnson var
ekkja Páls heitins Johnson raf-
virkja hér í borginni; hún var
fædd á Gimli, og var rúmlega 64
ára er hún lézt.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja, Winnipeg
Séra Valdimar J. Eylands,
prestur
.776 Victor St.—Phone 29 017
Guðþjónustur á hverjum
sunnudegi.
Á ensku kl. 11 f. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Allir æfinlega velkomnir.
♦ ♦ ♦
Prestakall Norður nýja íslands.
Sunnudaginn 12. desember —
Geysir, messa kl. 2 e. h.
Árborg, ísl. messa kl. 8 e. h.
Fermingarbörn í Árborg mæta
á heimili Mrs. I. Fjeldsted laug-
ardaginn 11. desember, kl, 2.30
eftir hádegi.
B. A. Bjarnason.
♦ ♦ ♦
Sunnudaginn 12. des. messar
séra H. Sigmar í Garðar kl. 2
e.h. Allir velkomnir. Ekki messa
á Mountain þann dag.
♦ ♦ ♦
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 12. desember— .
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
Áætluð messa á Betel sama dag
kl. 9.30 árd.
Hjónavígslur framkvæmdar af
séra Valdimar J. Eylands
9. nóv. — Leifur Pálsson og
Thelma Ingibjörg Jónasson, bæði
til heimilis í Riverton, Man.
2. des. —. Thorleifur Thordar-
son frá Gimli og Lilja Lovísa
Ragnheiður Johnson frá Víðir,
Man.
4. des. — Thordur Richard Sig-
urdson, 594 Alverstone St. og
Inga Thorey Beatrice Isfeld, Ste.
10 Corinne Apts.
♦ ♦ ♦
Icelandic Canadian Club efnir
til dansleiks á Marlborough
hótelinu þann 10. þessa mánað-
ar, til minningar urrí fullveld-
isdag íslands 1. desember. Að-
gangur 75 cents. Dr. Eggert
Eteinþórsson flytur erindi á sam-
komu þessari í tilefni af full-
veldisdeginum.
Tilkynning til hluthafa
Gegn framvísun stofna frá hlutatbréfum í H.f. Eim-
skipafélag Islands fá hluthafar afhentar nýjar arðmiða-
arkir.
Hluthafar í Canada og U.S.A. eru beðnir að afhenda
stofna sína umboðsmanni vorum í Winnipeg, hr. Árna
G. Eggertssyni, K.C., 209 Bank of Nova Scotia Building,
Winnipeg, Manitoba, sem mun annast útvegun nýrra
arðmiðaarka frá aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Myndarleg Jólagjöf
Ennþá eru til óseld hér vestra nokkur eintök af 25 ára
minningarriti h.f. Eimskipafélags íslands, í mjög vand-
aðri útgáfu og prýðilegu bandi, niðursett ofan í einn
dollar. Pantanir sendist til:
A. P. Jóhannsson, 910 Palmerston Ave„
Winnipeg, Man.
Lögberg verður
kærkomin jólagjöf
Nú fer óðum að líða að jólum, og
hugsa þá margir til þess að velja
vinum sínum jólagjafir. Frá þjóð-
ræk iis sjónarmiði getur enginn val-
ið kærkomnari ejöf en LOGBERG.
Jólablaðið er nú þegar í undirbún-
ingi. Sendið $3.00 fvrir næsta ár-
gang til:
COLUMBIA PRESS, LIMITED
TORONTO and SARGENT, WINNIPEG
Hið eldra Kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar, heldur fund í
samkomusal kirkjunnar á fimtu-
dagirín þarín 9. þ. m., kl. 2.30 e. h.
♦ ♦ ♦
KÆRKOMNASTA
JÓLAGJÖFIN
Margir hafa beðið með ó-
þreyju eftir útkomu 2. bindis
af Sögu íslendinga í Vestur-
heimi eftir Þorsiein Þ. Þor-
steisson; nú er þessi mikla
og vandaða bók, 347 blað-
síður að stærð í vönduðu
bandi, nýkomin á bókamark-
aðinní og fæst keypt hjá
J. J. Swanson, 308 Avenue
Building, eða Columbia Press
Ltd., 695 Sargent Ave., Win-
nipeg. Bókin kostar $4.00 í
bandi, auk 15 cenia burðar-
gjalds.
Þeíta er bók, sem verð-
skuldar það að komast inn á
hvert einasta og eitt íslenzkt
heimili í þessari álfu.
♦ ♦ ♦
Gjafir til Betel í nóvember 1943:
Mr. Guðm. Elíasson, Gimli, í
minnirígu um konuna sína, $5.00;
Mr. Ágúst Vopni, Swan River,
Man., $5.00; Mrs. K. Finnsson,
Víðir, Man., Men’s Clothing;
Vinkona, Selkirk, Man., $5.00; Mr.
S. O. Bjerring, 2 Rubber Stamps;
Mr. & Mrs. H. Jonasson, Baldur,
Man. (omitted from list sent by
Baldursbrá Ladies’ Aid) $1.00;
Miss Guðrún Johnson, 760 Some
Street, Winnipeg, a $50.00 Victory
Bond as a Christmas present;
Melankton Ladies Aid Upham,
N. D. in memory of Sveinn
Sveinbjörnsson, $5.00.
Nefndin þakkar fyrir þessar
gjafir.
J. J. Swanson, féh.
308 Avenue Bldg.
, Winnipeg.
♦ ♦ ♦
Saga íslendinga í Vesturheimi
II. bindi, Þ.Þ.Þ. — $4.00
Mikið úrval af íslenzkum
jólakortum.
BJÖRNSSON'S BOOK STORE
702 Sargení Ave.
Winnipeg, Man.
Hátíðleg
guðsþjónustuathöfn
Við morgun guðsþjónustuna,
sem fram fór í Fyrstu lútersku
kirkju síðaþtl. sunnudag, sem
var afar fjölmenn og hátíðeg, var
afhjúpuð skrá með nöfnum
þeirra hermanna, sem til safnað-
arins teljast, eða eru tengdir hon-
um á einhvern hátt; á skránni
stóðu 297 nöfn sveina og meyja,
er innritast höfðu í herinn úr
söfnuðinum, eða stóðu í tengsl-
um við hann; afhjúpunina fram-
kvæmdi fylkisstjórin, Hon. R. F.
McWilliams, er fór fögrum orð-
um um íslenzku þjóðina, afkom-
endur hennar hér, og þá einlægu
frelsisást, er jafnan hefði auðkent
þjóðstofn vorn.
Forseti safnaðarins, Mr. G. F.
Jónasson, las Upp nöfn þeirra
safnaðarmeðlima, er fallið höfðu,
týnst, eða verið teknir til fanga.
Prédikun sóknarprests, séra
Valdimars J. Eylands, er hann
nefndi ‘“Patience —^Hope”, var
djúphugsuð, fagurlega samin og
skörulega flutt, og brendi sig inn
í vitund hinna mörgu kirkju-
gesta. Um söng allan tókst hið
prýðilegasta til; við hljóðfærið
voru Miss Snjólaug Sgurðson í
fjarveru frú Bjargar Isfeld, sem
fjarverandi var vegna lasleika.
G. L. Jóhannson ræðismaður, sem
í athöfn þessari átti að taka þátt,
var einnig fjarverandi fyrir las-
leika sakir.
Hljómsveit, allfjölmenn, frá
10. hernaðarumdæmi, lék nokk-
ur lög við þessa eftirminnilegu
guðsþjónustuathöfn, og jók það
eigi alllítið á hátíðabrigðin.
J. G. Thorgeirsson, fyrrum mat-
vörukaupmaður hér í borginni,
lézt að heimili þeirra Dr. og Mrs.
B. H. Olson, á miðvikudagskvöld-
ið, rúmlega áttræður að aljri;
hann var fæddur á Akureyri. Út-
förin fer fram frá Fyrstu lút-
ersku kirkju á laugardaginn
kemur, kl. 4 e. h.
Grein um íslenzka
tónlist í amerísku blaði
1 septemberblaði “The Ethude”
sem er eitt markverðasta hljóm-
jistar-mánaðarrit í Bandaríkjun-
um, og lesið er af öllum þeim,
sem leggja stund á klassiska tón-
list, birtist 300 orða grein, er
nefnist “íslenzk tónlist.” Höf.
greinarinnar er Harold Butcher,
sem fylgst hefir með íslenzkri
tónlist í fjölda mörg ár.
Höfundurinn og kona hans,
Elisabeth, heimsóttu ísland árið
1935.
Með greininni fylgja myndir
af Reykjavík. Dómkirkjunni og
ennfremur af Maríu Markan,
söngkonu.
Butcher segir frá viðtali við
Pál Isólfsson, þar sem sagt er frá
þjóðlögum, sem íslendingar hafa
sungið alt frá 9. öld.
í greininni segir, “í Ameríku
er auðvitað vitnað til íslenzku
söngkonunnar Maríu Markan,
sem núna dvelur í New York,
þegar rætt er um sönglist á ís-
landi. — Söngkonan starfar við
Metropolitan Operuna og hefir
með hinni ágætu og kraítmiklu
rödd sinni orðið okkur gleðileg
kynning.”
Butcher segir, að aðalliður í
hljómlist þeirra, sem útvarpað er
daglega frá Reykjavík, séu lög
af plötum. Greinin lofar mjög
útvarpshljómlistina og segir:
“Það er heppilegt, að Islending-
ar skuli hafa mann, sem er hvort-
tveggja í senn, hljómlistarmaður
og tónskáld, fyrir forstöðumann
tónlistardeildar sinnar.”
í greininni er minst á Hótel
Borg: “þar sem íslendingar og
Bandaríkjamenn skemta sér með
því að hlusta á danslög. Þeir eiga
margt sameiginlegt með því unga
fólki hér í Bandaríkjunum, sem
klifrar upp háar tröppur, til þess
að komast upp á svalir í New
York Carnegie salnum, til þess
að hlusta á hljómleika, þar sem
leikin eru verk eftir Bach, Beet-
hoven og Brahms, en eru samt
reiðubúin að taka þátt í dansleik,
þar sem leikin eru nýjustu dans-
lögin.
í niðurlagi greinarinnar er sagt
frá íslenzkum karlakórum, sym-
fóníuhljómsveitinni í Reykjavík
og ást íslendinga á tónlist.
—Mbl. 22. sept.
JÓLAGJÖF
sem enginn má án vera
Margir hafa beðið með óþreyju eftir útkomu 2. bindis
af sögu íslendinga í Vesturheimi eftir Þorstein Þ. Þor-
steinsson; nú er þessi mikla og vandaða bók, 347 blaðsíður
sð stærð, nýkomin á markað, barmafull af fróðleik spjald-
anna á milli. Bókin er hlutfallslega afar ódýr; kostar
aðeins $4.00 í vönduðu bandi, að viðbættu 15 centa
burðargjaldi.
Pantanir sendist J. J. Swanson, 308 Avenue Bldg.,
eða Columbia Press. Ltd., Winnipeg. í
The Swan Manufacturing Co.
Manuíacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
Winnipeg.
Halldór Methusalems Swan
Propietor and General Manager
281 James Street Phone 22 641
Hitt og þetta
Jón verzlunareigandi gekk ó-
rólegur um gólf í skrifstofu sinni.
Hann var í mjög vondu skapi,
því hann hafði afhent nokkuð af
vörum til manns nokkurs, en
kaupandinn hafði ekkert greitt
ennþá. %
Alt í einu segir Jón við skrif-
stofumanninn:
“Viltu skrifa fyrir mig skuld-
heimtubréf til mannsins — þú
veizt — sem fékk vörurnar, en
hefir ekkert borgað fyrir þær
ennþá. Nú skal eg lesá fyrir og
þú skrifar:
“Hr. Pétur Pálsson!
Hver bað um tvo klæðastranga
í marz? Þér- Hver tók á móti
þeim í apríl? Þér- Hver borgaði
þá ekki í maí? Þér! Hver lofaði
að borga þá í júní? Þér! Hver
borgaði þá ekki í júní? Þér! Hvor
okkar er óþokki?
Virðingarfylzt,
Jón Jónsson.
Vinkonan (við ungu frúna):
Jæja Gerða mín, hvernig líður
þér í hjónabandinu?
Gerða: Illa — eins og stendur.
Maðurinn minn er í voðalega
vondu skapi. Hann fann hrúgu
af ástarbréfum niðri í snyrtiborð-
inu mínu í morgun, sem eg hafði
alveg gleymt að brenna.
Vinkonan: Hvernig í ósköpun-
um stendur á því, að þú ert svona
óvarkár — Gerða mín? Voru
bréfin mörg?
Gerða: Nei — þau voru aðeins
átta.
Vinkonan: Nú — ekki nema
átta, það er ekki svo mikið.
Gerða: Jú, því þau voru frá
átta mönnum.
Ágúst: Þér hafið bjargað lífi
mínu, hvernig get eg launað yður
fyrir það?
Magnús: Með því að giftast
tengdamóður minni og flytjast
rneð hana ^l Ástralíu.
•
“Það er alveg voðalegt hvern-
ig hann Jósafat, skólabróðir minn
ætlar að fara út úr lífinu,” sagði
Jóakim við vin sinn, sem hann
hitti á götu, “fyrst eyðir hann
þrem fjórðu hlutum úr æfi sinni
í að læra ýms tungumál og svo
giftist hann konu, sem bannar
honum að tala.”
Ungur maður, sem var mjög til-
gerðarlegur og gefinn fyrir að
láta taka af sér myndir í öllum
mögulegum “stellingum” og hvar
sem hann var staddur, var ný-
kominn heim úr löngu ferðalagi
til útlanda.
Mðeal þeirra mynda, sem tekn-
ar höfðu verið af honum í ferða-
laginu var ein, þar sem hann var
vel upp stiltur og hélt í beizlis-
taum á asna, sem með honum var
á myndinni. N
Einhverju sinni, þegar einn
vinur hans kom í heimsókn til
hans, sýndi hann honum þessa
mynd af sér og asnanum og
spurði:
“Finst þér þetta ekki ágæt
mynd af mér?”
“Jú, vissulega,” svaraði vinur
hans, “en segðu mér annars, hver
er þessi, sem heldur í tauminn?”
Dag nokkurn tók roskinn mað-
ur eftir því, að smástrákur lagði
stórt og fallegt epli á útidyra-
tröppurnar á húsi hans. Þegar
drengurinn hafði lagt eplið þarna
varlega frá sér, gekk hann spöl-
korn burt, en gætti þess þó að
missa ekki sjónar af eplinu.
Maðurinn gekk þá út til drengs-
ins og sagði við hann:
“Heyrðu, væni minn, það er
ekki rétt af þér að láta eplið
Jparna, því með því geturðu freist-
rað annara drengja, sem eiga leið
hér um og þeir þá orðið til þess
að stela því.”
“Já — en það er einmitt það,
sæm eg vil,”'svaraði drengurinn.
“Nú — það er skrítið — hvers
vegna?”
“Jú, sjáið þér til — eg hefi
nefnilega holað eplið að innan
og fylt það af sinnepi.”
Ferðadagbók ungrar stúlku.
24. júlí: Er um borð í gufu-
skipinu Montagne. Vont veður og
leiðinlegt fólk er mér samskipa.
25. júlí: Skipstjórinn er altaf
að reyna að flörta við mig.
26. júlí: Skipstjórinn er altaf
að verða ástúðlegri við mig, en
eg vísa honum altaf á bug.
27. júlí: 1 dag sagði skipstjór-
inn við mig, að hann elskaði mig
og ef hann fengi ekki að kyssa
mig, myndi hann láta sprengja
skipið í loft upp og þá færust 300
manns með því.
28. júlí: í dag er eg svo .ham-
ingjusöm, því nú hefi eg bjargað
lífum 300 manna.
•
Dag nokkurn kom Karl litli
mjög niðurdreginn í skólann og
sagði:
“Kennari — systir mín er búin
að fá mislinga.”
“Hvað segirðu? Er systir þín
með mislingana?” hrópaði kenn-
arinn, strangur á svip. ‘Hvernig
dettur þér í hug að koma í skól-
ann, þegar systir þín er með
mislinga? Farðu strax heim, svo
þú smitir ekki hina skólakrakk-
ana og komdu ekki aftur, fyr en
systir þín er orðin frísk.
Karl fór leikar sinnar um leið
og hann tautaði:
“Mér fanst eg ekki hafa neina
ástæðu til að segja honum, að
systir mín býr á Akureyri.
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRÁM YÐAR
HOIISEHOLDERS ATTENTION
Certain brands of coal have been in short supply
for some time and it may not be always possible
to give you the kind you prefer, but we expect
to be able to continue to suppiy you with fuel
that will keep your home a place of comfort.
Due to the difficult situation in both fuel and
labor, we ask you to anticipate your require-
ments as much in advance as possible. This
will enable us to serve you better.
TVfCpURDY CUPPLY pO. Ltd.
-LYJL \_J BUILDERS’ O SUPPLIES and COAL
PHONE 23 811 — 23 812
1034 ARLINGTON ST.