Lögberg - 18.05.1944, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. MAf, 1944
3
framsetningu svo sem hann bezt
gat, og hann náði meiri og meiri
þroska í þessum efnum. Eg þori
að fullyrða, að þótt honum hefði
orðið langs lífs auðið, þá hefði
hann sífellt sótt á brattann, þok-
ast hærra og hærra, gæddur ó-
metanlegri seiglu og þjálfun
vilja, heillaður djúpri fegurðar-
þrá, aðdáun og þakklátssemi.
Og engan mann vissi eg gleðj-
ast innilegar yfir fögru kvæði,
snjöllum setningum eða heill-
andi persónum, sem voru verk
íslenzkra nútímaskálda. Hvert
listaverk orðsins manna hér á
íslandi var í augum Jóns verð-
ugt og dýrmætt djásn' í kórónu
hinnar tignu drottningar, ís-
lenzkrar menningar, kynborins
erfingja þess hásætis í við-hafn-.
arsal norræns anda, sem for-
móðir hennar skipaði fyrr á öld-
um.
Af þeim málum. sem vana-
léga eru kölluð opinber mál,
hafði Jón engin afskipti út á
við, en hann fylgdist samt ná-'
kvæmlega með gangi og afdrif-
um allra hinna meiri háttar
þjóðmála — og einnig því, sem
fram fór erlendis. Hann vildi
rétt lítilmagnans og þeirra, sem
bágt áttú, var íhaldssamur á
gömul verðmæti, og tók þeim
nýjungum fagnandi, sem hon-
um virtust horfa til hins betra.
Honum sveið ákaflega, þá er
hann sá, að beitt var blekking-
um, ósannindum og rógi á vett-
vangi opinberra mála, og á-
byrgðarleysi, tómlæti og pex
um persónulega smámuni voru
honum ával'lt þyrnir í augum.
Varð hann gripinn heitri vand-
lætingu og sárri beizkju, þá er
hann vék að slíku. Eins og skáld
skapur íhans sýnir glögglega,
fannst honum ekkert hörmu-
legra en mannvíg og styrjaldir,
og það var nú síður en svo, að
hann leiddist út á þær götur,
að telja það helztu björgina, að
á kæmist einræði í einhverri
mynd. Nei, hann taldi einmitt,
að hernaðarböl veraldar stafaði
fyrst og fremst af því, að lýð-
ræðið væri enn ekki orðið það,
sem það ætti að verða stafaði af
því, að
“hugstola mannfjöldans vitund
og vild
er villt um og stjórnað af fám.”
Og það var sannfæring hans
að styrja'ldlir yrðu plága ver-
aldar, unz svo væri komið
þroska almennings, að engan
yrði hægt að fá til að vinna að
framleiðslu vopna — og eng-
inn léti siga sér í stríð, hugði,
að það yrðu að lokum ver-ka-
men-nirnir, sem þarna segðu
hingað og ekki lengrá.
Hin hversdagslegu skyldu-
störf sín rækti Jón með gerhygli,
natni og grandvarleik, svo að
varla munu þeir, sem hafa slík
störf að höfuð-viðfangs- og
hugðarefni, gera þar betur, enda
kunni hann flestum fremur að
meta mikilvægi hvers þess
manns, er rækir skyldur sínar
af alúð og sýnir framtak og dáð
á sínu sérstaka sviði, hvert sem
það svo er.
í daglegri framkomu sinni
átti Jón fáa sína jafningja. Konu
og börnum var -hann svo ástrík-
ur og nærgætinn, að slíkt er
ekki á' annarra færi en þeirra,
sem eru prúðir menn og hlýir
að eðli og hafa lagt sérstaka
rækt við að aga skap sitt, gera
sér far um að skilja aðra, til-
finningar þeirra og skoðanir,
og hafa það ávalt í huga, að lít-
ið atvik eða ógætilegt orð get-
ur haft langæari og alvarlegri
afleiðingar en sumt hvað, sem
meira gæti virzt og þyngra á
metum. Gagnvart hverjum
þeim, sem hafði revnzt honum
vel, fyrr eða síðar, var hann
sérstæður að ræktarsemi í orði
og verki, en vék góðu að hverj-
um manni og vildi hvers og
eins vandræði leysa, og lítt
fékkst hann um það, þó að ein-
hverju misjöfnu væri vikið að
honum sjálfum, hló við, ef á
það var minnzt og stóð jafnrétt-
ur eftir. En væri vinum hans
eða þeim, er hann mat mikils af
verku-m þeirra, hallmælt eða
þeim gert rangt til, og væri ó-
mannlega vikið að góðu mál-
efni, vatzt hann við hart og all-
óvægilega, og var honum jafnt
í bundnu máli sem óbundnu létt
um vopnaburð. En ekki flíkaði
hann þeim stökum sínum, þar
sem oddi var snúið að einstök-
um mönnum, og eg tel vafa-
samt, hvort hann hefir nokkra
beirra fa-rt í letur. Aldrei voru
þó slíkar vísur Jóns Magnús-
sonar klúrar eða mengaðar
rætni eða getsökum, enda er i
fátt mér minnisstæðara frá
samverustundum okkar, heldur 1
en sú undrun, gremja, hryggð i
og meðaumkun, sem -hann varð
gagntekinn af, þá er hann fyrir
nokkrum árum hafði lesið ný-
útkomna Ijóðabók, þar sem öðr-
um þræði eru hin fegurstu
smákvæði, listræn, hjartnæm
og sérstæð — en að hinum níð-
kvæði, flest langlokur miklar,
þar sem uppistaðan er gróusög-
ur, en ívafið beizkja, rætni, ill-
kvitni og öfund. Eg tók bókina
’fletti -henni og las síðan smá-
kvæði, þar sem við sjáum höf-
undinn standa sem máttarvana
og vegarvilltan einstæðing og
útlaga framandi á jörðinni. Að
loknum lestrinum leit Jón á mig
og mælti:
—- Guð hjálpi þeim, sem
svona eiga bágt, því að hver
getur það annar?
— Ekki hjálpar þarna lær-
dómur, ekki metorð, ekki pen-
ingar, sagði eg, — nei, ekki í
þessum efnum.
Svo varð þögn. Jón stóð á
fætuf og gekk um gólf, en var
venjulega allra manna róleg-
astur. Nú hægði hann á sér, og
eg heyrði, að hann var farinn
að raula með sínu sérkennilega
hljóðfalli og lestrarlagi þetta
erindi úr kvæði Matthíasar um
Hróarskeldudómkirkj u:
“Nú er hálfs-þum-lungs smáblóm
ið himninum nær
báðum háturnum þínum við ský;
nú er hjartaslag barnsins
ei hæðunum fjær
en þeir hásöngvar kór þínum í.”
Jón Magnússon var mikill
alvörumaður, en þó var hann
manna glaðastur í umgengni,
þegar því var að skipta, kím-
inn og gamansamur og hafði
yndi af að skilmast í orði við
vini sína, en gætti þess jafnan
vandlega, að -höggva ekki þar,
sem hlífa skyldi. Enginn, sem
átti hann að vini mun gleyma
þeirri birtu, er stafaði úr augum
hans á stundum gleðinnar. Hann
var manna bezt eygur, og þá er
| hreyfing komst á hug hans,
urðu þau ýmist dulskyggð eða
svo skær, að heita mátti, að þau
ijómuðu, oftast af hýru og
hlýju, en stundum svo sem hið
fægða stál. Þá var það, að þau
hrukku honum af vörum, þau
erindin, sem voru “hvöss sem
byssustingur” — og flest munu
vera týnd.
Og nú er hann horfinn, ein-
mitt þá er honum og þeim, sem
þekktu hann bezt, mun hafa
virzt, að hann hefði lokið að
mestu undirbúningi undir hið
raunverulega -lífsstarf sitt, hina
algeru þjónustu við það í til-
verunni, sem hann unni heit-
ast og dáði mest.
Konan hans og börnin, — þau
hafa mikið mist- En sú er bót-
in næst og nærtækust, að það,
sem flestum verður varanlegust
eignin, minningarnar, þarf ekki
þarna um að bæia.
Og þegar eg hugsa nú til við-
skilnaðar þessa hollvinar míns,
dettur mér í hug orð, sem hann
viðhafði um annað sfeáld, er
vígði skáldskap sinn lífinu:
“Hóf hann gegnum helskýin
þungu
hjartað móti sumrinu unga.”
GuSm. Gíslason Hagalín,
Alþbl. 4. marz.
Athyglisverð vísnasamkeppni
Eins og vitað er, efndi þjóð-
ræknisdeildin “Esja” í Árborg til
vísnasamkeppni í Nýja íslandi,
um íslenzka tungu; mæltist þetta
þegar vel fyrir, og vakti almenn-
an áhuga; eigi aðeins meðal
skáldmæringa í -hinum fögru
frum-byggðum Nýja íslands, held
ur og víða annars staðar, því
enn er rímþrautin víða dáð, og
þá ekki sízt, er fjalla skal í
ljóði um vorn merkasta menning
ararf, tunguna sjálfa; hefir
“Esjan” með nýbreytni þessari
unnið hið þarfasta verk, er vel
mætti verða öðrum byggðum
hvöt til hliðstæðra átaka.
Tvö skáld Nýja íslands skip-
uðu dómnefnd, og fer dómsorð
þeirra hér á eftir, ásamt þeim
kvæðu-m, er áminst vísnasam-
keppni leiddi fram í dagsljósið.
Ritstj.
NiðurstaSa dómnefndar
Eftir að hafa farið yfir öll
þessi kvæði, kemur okkur undir-
rituðum ásamt um, að þegar á
alt er litið, sé nr. 2 bezt kvæð-
anna að efni og frágangi, næst
því komi nr. 3, og þá nr. 8.
En svi lítum svo á, að önnur
vísan í nr. 8, muni bera af öll-
um vísunum að skáldskapargildi
Einnig er það skoðun okkar, að
fyrsta vísan í nr. 3 og önnur vísan
í nr. 2 séu prýðisvel kveðnar
vísur, sem algerlega mundu ná
tilgangi sínum' sem sérstakar
vísur.
Riverton,
E- J. Melan,
G. J. Guttormson.
Nr. 1.
Til íslenzkrar tungu.
Málið ríka mér er kærst,
Málið vits og þunga;
Huga míns er hlutdeild stærst
hjartnæm íslenzk tunga.
Þú sem túlkar tilfinning
trega, vona, glæði;
yrði smátt um Islending
með arfleifð þá í veði.
Það er andlegt þrotabú
þér að beita á klaka,
Skulum játa eg og þú
jafnan hjá þér vaka.
Valdi Jóhannesson.
Nr. 2.
Vísur.
Gegnum alla alda röst,
Yfir stormsins þunga,
Tónsterk og stuðla föst,
stendur íslenzk tunga.
Þó að bálið brenni menn,
Biturt stálið syngi,
Færir sálum unun enn,
Egi-ls mál á þingi.
Þröngt er varla um þjóðar sál,
Þýðir allan drunga,
Ljóða snjalla móður mál,
Máttug fjalla tunga.
G- O. Einarson.
Nr. 3.
íslenzk tunga.
íslenzk tunga, auðugt mál,
Andans þrungin draumum,
Veitir ungum inn í sál
Orku þungum straumum.
Lífs í önnum, langa braut
Lýsti, sönn og fögur,
Kendi mönnum þol í þraut,
þeirra könnum sögur.
Ei því gleyma íslands menn,
Arfinn geyma dýra,
Birta heimi öllum enn,
Orð með hreiminn skíra.
Böðvar H. Jakobson.
Nr. 4.
íslenzk tunga.
*
Ef þú talar tungur tvær
Talaðu hreinar báðar þær,
Aldrei tungu okkar mátt
Afbaka á nokkurn hátt.
íslenzkt mál af öllum lært,
Ætti að verða bráðum,
Verður ei til fiska fært,
Hvað felst í slíkum ráðum.
íslenzk tunga á töframátt,
Tign og snild í ljóði,
Hennar hróður hefjist hátt,
Af hal og hverju fljóði.
Þórarinn Gíslason.
Nr. 5.
íslenzk tunga.
Eins og bresti hamra höll,
Hristist foldar bunga,
Eins og duni fossa föll,
Feilur íslenzk tunga.
Laung og flókin lífsins töfl,
Leitir andans hvetur,
Náttúrunnar ógn og öfl,
Alt hún túlkað getur.
Það kann vera þráttefni,
Þar um margur veldur,
En allra mála öndvegi,
íslenzk tunga heldur.
Ágúst Einarson.
Nr. 6.
íslenzkan.
Andans snilli ástarhót
íslenzk tunga kennir-
Hennar tár er regn í rót
rósa er sólin brennir.
Tungu kjarnans listaljóð
lífsins hjarni eyðir.
Frá þeim arni ylur stóð
um æfi farnar leiðir.
Orðsins list og andans þrá
eru heilsubrunnar,
hjartaslög, sem heyra má
í hjali náttúrunnar.
S. E. Björnson.
Nr 7.
Islenzk tunga.
íslenzk tunga er öllum best
önnur mál þó tali.
Eykur skilning, orða flest,
ekkert betra í vali.
íslenzk tunga er leiðarljós
lífs á vegi köldum.
Öflugt hefur eignast hrós
áfram beint því höldum.
íslenzk tunga aldrei deyr
annað margt þó farist.
Hún skal eflast meir og meir
til mikils er þá barist.
B. G Anderson.
Nr. 8.
íslenzk tunga.
Flytur óm af ægis-gný,
íslenzk tunga snjalla;
Hvell og bitur, hugljúf, hlý,
Hrein sem lindir fjalla.
Var hún aldrei ofurseld
Illra norna völdum.
Varði þjóðarandans eld
Oft í glæðum földum.
Ljúflings hjal og unaðs-óð
Altaf falan lætur,
Meðan dali dreyma ljóð,
Döggin svala grætur.
Gunnar Sæmundson.
Nr. 9.
íslenzk tunga.
íslenzkan er auðugt mál,
ótæmandi forði,
þar er gul-1 og þar er stál,
þar er list í orði.
Hér við skulum halda vörð,
heimi það er gróði,
um alt frá himni ofan á jörð,
eigum nöfn í sjóði.
Engin skömm er okkur hér,
íslenzkt nafn að bera,
það er sannur sómi þér
sonur þess að vera.
B. J. HornfjörS.
Minningarathöfn
Sunnudagskvöldið ,7. maí, var
haldin minningar athöfn í kirkju
Víkursafnaðar að Mountain N.
D., í minningu um Gamaliel
Theodore Árnason, sem féll í
stríðinu.
Var mikið fjölmenni viðstatt,
og kirkjan fagurlega prýdd, og
á viðeigandi hátt fyrir slíka at-1
höfn, af félagi hermanna hér,
— American Legion Post —
Kirkjukórinn söng sálma, og
séra H. Sigmar fluiti stuttar
ræður á íslenzku og ensku. Mörg
samúðarskeyti höfðu foreldrum
og systkinum hins lát-na verið
send, og ýmsar minnin-gargjafir
gefnar. Voru samúðarskeyti
þessi lesin af presti safnaðarins
og sagt frá minningargjöfunum.
Gamaliel Theodore Arnason,
(ávalt nefndur Liel) fæddist á
Mountain 2. apríl 1922. Foreldr-
ar hans eru, Sigurður A. og Guð-
rún Arnason, sem um langt
skeið hafa átt heima á Mountain.
Systkini hins látna eru 7. Mrs.
Starky í Devil’s Lake, Mrs. G.
Björnson á Mountai-n, Sylvia í
Seattle, Wash.,Jacob og Jón í
Bandaríkjahernum, og Luella og
Laurence heima. Við athöfnina
voru 5 systkinanna, en þau fjar-
verandi, Sylvia og Jacob, sem
ekki áttu þess kost að koma.
Liel fermdist í Víkursöfnuði
á Mountain, 10. maí 1936. Hann
útskrifaðist úr miðskóla bæjar-
ins hér, vorið 1940. Hann gekk
í sjóher Bandaríkjanna 1. okt.
1943. í febrúarmánuði 1943 var
foreldrum hans tilkynnt að hann
hefði tapast í skipskaða á Atlants
hafi, og 8. febrúar 1944 var hann
talinn að hafa fallið í þjónustu
lands síns og þjóðar.
Bar hin mikla aðsókn að minn
h'garathöfninni, ásamt með
mörgu öðru, vott um vinsemd í
garð hins fallna unga manns,
og um innilega samúð og vin-
semdarhug til foreldra hans,
systkina og annara náinna ást-
menna.
Business and Professional Cards
Phone 49 469
Radio Service Specialists
ELECTRONIC LABS. THORKFXSON & GILLIES SívlMos X&L, /atyejf PheioQcunluc OiyantjatwiVi Canada
Proprietors •224 Notre Dame-
The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG PNONE ^ 96 647
MANITOBA FISHERIES WINNIPEU, MAN. CANADIAN FISH
T. Bercovitch, framkv.stj. PRODUCERS, LTD.
Verzla í hejldsölu með nýjan og J. H. Pape, Manapinp Director
frosinn fisk. Wholesale Distributors of
303 OWENA ST. Fresh and Frozen Fish.
Skrifstofusími 25 355 311 Chambers St. Offi^e Phone 86 651.
Heimasími 55 463 Res Phone 73 917.
Blóm stundvíslega afgreidd Oífice Phone Res. Phone 88 033 72 409
" ROSERY m. Dr. L. A. Sigurdson
StofnaB 1906 166 MEDICAL ARTS BLDG.
427 Portage Ave. Office Hours: 4 p.m.—6 p m.
Wlnnipeg. and by appointment
O. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. S. M. Barkman, Sec. ANDREWS, ANDREWS THORVALDSON AND
Keystone Fisheries EGGERTSON
Limited LögfrœOingar
404 Scott Block 209 Bank of Nova Scotia Bldg
Wholesale Distributors of Portage og Garry St.
FRESH AND FROZEN FISH Sími 98 291
EYOLFSON’S DRUG DR. A. V. JOHNSON
PARK RIVER, N.D. Dentist
tslenzkur lyfsali •
F61k getur pantaC meSuI og annað me6 pðsti. 606 SOMERSET BLDG.
Telephone 88 124
Fyðt afgreiSsla. Home Telephone 202 398
J. J. SWANSON & CO. DRS. H. R. and H. W.
LIMITED TWEED
308 AVENUE BLDG., WPO. Tannlœknar •
•
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- 406 TORONTO GEN. TRCSTS
vega peningalán og eldsábyrgS. BUILDING
bifreiSaábyrgS, o. s. frv. Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone 26 821 PHONE 26 546 WINNIPEO
DR. B. J. BRANDSON A. S. BARDAL
308 Medical Arts Bldg 848 SHERBROOK ST.
Cor. Graham og Kennedy Sts. Selur llkkistur og annast um tSt-
Phone 21 834—Office ttmar S-4.30 farir. Allur fltbúnaCur sá bezti.
• Ennfremur selur hann allskonar
Heimili: 214 WAVERLEY ST. mlnnisvarfla og legsteina
Phone 403 288 Skrifstofu talsfml 86 607
Winnipeg, Manitoba Heimilís talsími 501 562
Legsteinar DR. ROBERT BLACK
sem skara framúr Úrvals blá-grýti og Manitoba marmari SérfræBingur I eyrna, augna, nef » og hálssjúkdömum
416 Medical Arts Bldg.
SkrifiO eftir veröskrá Cor. Graham & Kennedy
GILLIS QUARRIES, LTD. ViBtalstlmi — 11 til 1 og 2 tll 5
1400 SPRUCE ST. Skrifstofusfmi 22 251
Winnipeg, Man. Heimllissf mi 401 991
DR. A. BLONDAL Dr. S. J. Johannesson
Physician & Surgeon 215 RUBY STREET (Beint suCur af Banning)
602 MEDICAL arts bldq Talsfmi 30 877
Slmi 22 296 0
Heimili: 108 Chataway
Sfmi 61 023 ViBtalstfmi 3—6 e. h.
GUNDRY & PYMORE LTD.
British Quality — Fish Netting
Frá vini 60 VICTORIA STREET
Phone 98 211
Wlnnlpeg
Manager, T. R. THORVALDSON
Your patronage will be
appreciated