Lögberg - 18.05.1944, Blaðsíða 8

Lögberg - 18.05.1944, Blaðsíða 8
8 Úr borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feldsted, 525 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. • Hin árlega samkoma íslenzku skóla Esjufnnar í Árborg, fer fram föstudagskvöldið þann 26. þ. m. Meðal annars á skemti- skránni, verður smáleikurinn Mjallhvít og dvergarnir sjö; stúlkna söngflokkur undir um- sjón Mrs. M. S. Sim o. fl. Þar verður einnig sýnd í fyrsta sinn Þjóðræknisfélags kvikmyndin frá íslandi. Er því með öllu þessu von hér á ágætri og uppbyggi- legri skemtun er á sama tíma, er til styrks fyrir gott málefni. Fyllið húsið og munið bæði stað og stund. S. E. B. • The Junior Ladies Aid of the First Lutheran Church will hold their final meeting of the season next Tuesday at 1.30 p. m. in the church auditorium. This will be in the form of a Luncheon and all members of the Senior Ladies Aid are cordially invited to come and enjoy asocial after- noon with their friends before the summer vacation begins. • Söngsamkoma Sameinaðir söngflokkar Fyrstu lútersku kirkju halda samkomu í kirkjunni, mánudagskvöldið 22. maí. Mjög hefir verið vandað til þessarar skemtunar. Söngfólkið hefir lagt mikla alúð við að æfa lög, sem eru í alla staði vegleg. Flokkurinn tekur til meðferðar, meðal annars, eitt mikið íslenzkt tónverk sem aldrei hefir verið sungið í Winnipeg fyr. Er það “Eilífi andi”, úr hátíðaljóði Davíðs Stefánssonar, en lagið samið af Helga Sigurði Helga- syni, sem á heima í Bellingham, Wash. Mrs. Pearl Johnson syng- ur einsöngvana í þessu lagi. Þeir, sem viðstaddir voru við guðsþjónustur í Fyrstu lútersku kirkju um páska leytið, eru ekki búnir að gleyma þeirri hrifn- ingu er þeir urðu fyrir, er yngri söngflokkurinn söng Halleluja chorus, úr Handels Messiah, og sameinaðir flokkarnir sungu Steiner’s Crucifixion, með að- stoð Kerr Wilson og Mr. Brown. Auk söngsins, verður margt annað til skemtunar á samkom- unni, og er hún auglýst á öðrum stað í blaðinu. Mánudagskvöldið 15. þ. m. fór fram gifting þeirra Gladys Stein- unnar Gillies, dóttur hinnar góð kunnu hjóna Mr. og Mrs. J. S. Gillies, 860 Banning St. og Sylvan Flohr Sommerfeld, son- ar Dr. og Mrs. F. Sommerfeld hér í borginni. Brúðguminn er nýútskrifaður í lögum frá há- skóla Manitobafylkis. Vegleg veizla var haldin að heimili for- eidra brúðarinnar að afstaðinni hjónavígslunni, sem fór fram í Fyrstu lútersku kirkju, og var framkvæmd af sóknarprestinum séra Valdimar J. Eylands. • Jóhann Magnús Bjarnason, skáld frá Elfros, Sask., liggur á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni um þessar mundir; er það einlæg ósk hinna mörgu vina hans, að honum megi auðn- ast að fá skjótan bata. • Útför Dr. Matthíasar Matth- íasson frá Randolp, Wis., fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju, s. 1. mánudag, að viðstöddu miklu fjölmenni. Séra Valdimar J. Ey- lands jarðsöng. Við útförina voru allmargir nánustu ættingjar og vinir hins látna, mæta mdnns, frá Garðar, N.-Dak., þar á meðal faðir hans, Mr. John Matthíasson, og börn hans; svo og Mr. og Mrs. J. K. Ólafson. • Mrs. Karl Vopni frá Árborg, lézt á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni síðastliðinn laugar- dag, hin mætasta kona, er hvar- vetna kom fram til góðs; auk manns síns, læur húnt eftir sig 7 mannvænleg börn. Útför þess- arar merku konu fór fram frá heimili systur hennar og tengda- bróður, þeirra Mr. og Mrs. B, J. Lifman í Árborg, á þriðjudag- inn. Séra Sigurður Ólafsson jarð- söng. • Sumarheimilið á Hnausum óskar eftir umsóknum fýrir matreiðslustarfið fyrir allan starfstímann í sumar, frá 7. júlí til ágúst mánaðar loka. Umsókn- ir um starfið sendist sem fyrst til Mrs. S. E. Björnson, Árborg, Man. • Á laugardaginn þann 6. maí, voru gefin saman í hjónaband að Macgregor, Man., þau Flt.-Sgt. Lárus Melsted, sonur hinna góð- kunnu hjóna Mr. og Mrs. S W. Melsted hér í borginni og Miss Edith Eileen Jeffries, dóttir Mr. og Mrs. W. J. Jeffries, sem bú- sett eru í nánd við Macgregor; að afstaðinni hjónavígslu, fór fram fjólmenn og vegleg veizla á heimili foreldra brúðarinnar. KARLMANNA FRAKKAR fyrir hvaða veður sem er Hér er um að ræða frakka, sem jafnt þola maí-mánaðar skúri, sem haustsins steypi- regn ... Þeir eru óumflýjan- legir í bleytu, og mjög fallegir í viðbót. Veljið annaðhvort frakka af hernaðar-Cravenette gerð úr margprófaðri baðmull og með leðurhnöppum og öðrum ný- tízku útbúnaði, eða þá þá swagger tegundina tvíþykku, sem engar hellidembur vinna á. Stærðið 36 til 44 af hvorri Men's Cloihing Seciion, The Hargrave Shops íor Men, Main Floor tegund. $16.95 •^T. EATON C?-™ LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. MAÍ, 1944 .... "‘"T'i -------- Messuboð Fyrsia lúierska kirkja, Winnipeg Séra Valdimar J. Eylands, prestur 776 Victor St.—Phone 29 017 Guðþjónustur á hverjum sunnudegi. Á énsku kl. 11 f. h. Sunnudagaskóli kl. 12.15. Á íslenzku kl. 7 e. h. Allir æfinlega velkomnir. • Presiakall Norður Nýja íslands 21. maí—Geysir, messa kl. 2 e. h. 28. maí—Árborg, íslenzk messa og ársfundur kl. 2 e. h. Hnausa, messa og safnaðar- fundur kl. 8 e. h. Allir velkomnir. B. A. Bjarnason. • Lúierska kirkjan í Selkirk: Sunnudaginn 21. maí. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Ensk messa kl. 7 síðd. Allir velkomnir. Sama dag, áætluð messa á Betel kl. 9,30 árd. S. Ólafsson. • íslenzk guðsþjónusta í Van- couver, kl. 3 e. h. á hvítasunnu- dag, 28. maí, í dönsku kirkjunni á E. 19th Ave og Burns St. R. Marleinsson. • Sunnudaginn 21. maí messar séra H. Sigmar í Péturskirkju á ensku kl. 11 f. h., offur í starfs- sjóð kirkjufélagsins. í Eyford kl. 2 og í Gard.ar kl. 4. Báðar þær messur á íslenzku. Á Mountain kl. 8 að kveldi. Háskólahátíð. • Séra Eyjólfur J. Melan messar í Sambandskirkjunni í Winnipeg, næstkomandi sunnudagskvöld, 21. þ. m. í fjarveru prestsins þar. Mr. G. F. Jónasson, eigandi og forstjóri Keystone Fisheries Ltd., fór suður til Washington, D.C., síðastliðinn mánudag í erindum fiskframleiðslunnar í Manitoba. Eins og vitað er, setti Banda- ríkjastjórn nýlega hámarksverð á fisk úr Sléttufylkjunum, sem er miklu lægra en í fyrra, og þrengir þar af leiðandi all mjög að kosti fiskimanna; var það tilætlun Mr. Jónassonar, að reyna að koma á málamiðlun við víkjandi fiskverði og markaðs- skilyrðum. Þing Bandalags Lúterskra kvenna 8. og 9. júlí Tuttugasta ársþing Bandalags Lúterskra kvenna, verður haldið dagana 8. og 9. júlí að Langruth, Man. Ahugamál Bandalagsins er að eignast hentugan stað og byggja tilhlýðilegar byggingar fyrir sumarnámsskeið í kristileg- um fræðum (Leadership Camp). Fyrir fimm árum var byrjað á þessu starfi og pláss leigt fyrir viku til tíu daga. í fyrra, vegna stríðserfiðleika fanst nefndinni rétt að sleppa námskeiðinu. Urðu nokkrir fyrir vonbrygðum, svo að afráðið var að reyna að útvega pláss fyrir tíma í sumar. Náms- skeiðs nefndin vann trúlega að því að gjöra sitt bezta en árang- urslaust, hvergi var hægt að leigja “camp” fyrr en þá seint í ágúst og fanst nefndinni að það væri mjög svo óhentugur tími. Verður því ekkert nám- skeið í ár. Framkvæmdar nefndin óskar ;amt að áhugi minki ekki og að hvert félag reyni á einhvern hátt að afla fjár, svo að sjóður- inn, sem nú er nokkur hundruð 1 dollarar, stækki og verði að góð- í um notum, þegar stríðs erfið- j leikarnir minka og hægara verð- | ur að ná í efni og launa vinnu- kraft. Lena Thorleifson, forseti. • Jón Sigurðson félagið heldur Spring tea and sale of home cooking, í neðri sal Fyrstu lút. kirkju, laugardaginn 27. maí, eft- ir hádegi og einnig að kvöldinu. Verður nánar auglýst í næsta blaði. Munið eftir deginum. Most Suits - Coats Dresses “Cellotone” Cleaned 7íc CASH AND CARRY For Driver Phone 37 261 Perth’s Cleaners-Launderers-Furriers 888 SARGENT AVE. CHOIR CONCERT FIRST LUTHERAN CHURCH Under direction of B. VIOLET ISFELD MONDAY, MAY 22, 1944 — 8.30 P.M. Assisting Artists: Pearl Johnson, Soprano Alma Walberg, Violinist Salina Jonasson, Reader Accompanists: Eleanor Gibson, Pearl Halldorson, Mary Gottschall O CANADA 1. Choral— (a) Holy Art Thou Handel (b) Praise Ye The Father Gounod 2. Reading — Selected Saline Jonasson 3. Choral— (a) Látum sönginn glaðan gjalla S. Einarsson (b) Þótt þú langförull legðir S. K. Hall 4. Violin — Sonata in D (3 & 4 movements) Handel Alma Walberg 5. Choral— Going Home Dvorak 6. Songs— (a) The Princess Grieg (b) Margaruite’s Cradle Song Grieg (c) June Roger Quilter Pearl Johnson 7. Reading—Selected— Saline Jonasson 8. Choral — Eilfi andi Sig. Helgason 9. Violin — Chardas Monti Alma Walberg 10. Double Quartette— Greeting to Spring Johann Strauss 11. Choral— (a) Dear Land of Home Sibelius (b) The Bells of St. Marys Adams 12. Choral— (a) Land of Hope and Glory Elgar (b) Ó Guð vors lands Sveinbjörnsson GOD SAVE THE KING Utvarp frá Fyrstu Lútersku Kirkju Sunnudaginn 28. maí, kl. 11 f. h. Fermingarguðsþjónustu verður útvarpað á Hvítasunnudaginn kl. 11 f. h. frá Fyrstu lútersku kirkju. 22 ungmenni verða fermd. Sérstakur hátíðasöngur fer fram undir stjórn Mrs. E. Isfeld. Guðsþjónustan fer fram á ensku. Vísa 13. maí 1944. Leikur alt í lyndi enn, lífs þó fölni glóðir. Af því Guð og allir menn, eru mér svo góðir. F. Hjálmarsson. Wartime Prices and Trade Board Spurningar og svör. Spurt. Við fréttum í gegnum útvarpið að það ætti að minnka smjörskamtinn. Hvað verður skamturinn þá, og hvenær ganga seðlarnir í gildi? Svar. Sem stendur er skamt- urinn hálft pund á mann á viku, og tveir seðlar fyrir hálft pund hver, ganga í gildi á hálfssmán- aðar fresti. Skamturinn verður minkaður þannig að seðlarnir, sem áttu að ganga í gildi fyrsta júní öðlast ekki gildi fyr en þann áttunda. Þetta þýðir að smjörið, sem fæst með seðlum 62 og 63, 18. maí, verður að end- ast þrjár vikur í staðinn fyrir tvær. Smjörframleiðslan er 12.4% lægri en í fyrra, og það er verið að reyna að safna forða til næsta vetrar. Spurt. Safnaðarkonurnar í kirkjunni okkar senda oft matar- körfur til fátækra í bygðinni. Okkur langar til að senda te, sykur og jam, en vitum ekki hvort við megum senda skamt- aðar vörur. borga vanalega 10 cent. Svar. Jú. 13 cent er óvanalega hátt verð. Þar er þú hefir sent allar nauðsynlegar upplýsingar verður þetta rannsakað frekar. Spurt. Viltu gera svo vel og segja mér hve mikið af niður- soðinni mjólk fæst með hverjum G seðli? Svar. Hver G seðill er fyrir 96 mældar únzur. Þessi mjólk er vanalega seld í 16 únzu dósum. Það fást sex slíkar dósir með hverjum seðli. Spurt. Fyrir nokkru var pen- inga buddunni minni stolið með skömtunarbókinni minni. Henni var skilað aftur af lögreglunni, ásamt bókinni, en það var þá búið að nífa alla seðlana úr henni. Hvernig get eg gengið aftur seðla? Svar. Það verður að fara með bókina til Local Ration Board. Þar fást eyðublöð sem nauðsyn- legt er að fylla út og eiðfesta. Þér verður svo send ný bók með eins mörgum seðlum eins og þú áttir í bókinni sem tapaðist. Spurt. Hefir W. P. T. B. heim- ild til að senda menn inn á heim- ili, til þess að rannsaka húsa- kynni? Svar. Þessir menn koma alls ekki inn á heimili nema þeir séu beðnir um það, annaðhvort af leigjendum eða húsráðend- um. Spurningum á íslenzku svarað á íslenzku af Mrs. Albert Wathne, 700 Banning St. Wpg. Svar. Auðvitað megið þið senda skamtaðar vörur með, ef þið viljið, en þið verðið að kaupa þær sjálfar og afhenda seðla fyr- ir það sem þið kaupið. Spurt. Fæst aldina safi án seðla? Svar. Já. Aldinasafi í dósum er ekki skamtaður, og fæst því The Swati Manufacturing Co. Manufacturers of SWAN WEATHER-STRIP Winnipeg. Halldór Methusalems Swan Eigandi 281 James Street Phone 22 641 án seðla. Spurt. Er ekki 13 cent of hátt MINNIST BETEL verð fytrir eldspítu kassa. Eg í ERFÐASKRAM YÐAR Innköllunarmenn LÖGBERGS Amaranth, Man. B. G. Kjartanson Akra, N. Dak. B. S. Thorvarðson Árborg, Man K. N. S. Fridfinnson Árnes, Man M. Einarsson Baldur, Man. O. Anderson Bantry, N. Dak. Einar J. Breiðfjörð Bellingham, Wash. Árni Símonarson Blaine, Wash. Árni Símonarson Cavalier, N. Dak. B. S. Thorvarðson Cypress River, Man. O. Anderson Dafoe, Sask S. S. Anderson Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson Elfros, Sask. Mrs. J. H. Goodman Garðar, N. Dak. Páll B. Olafson Gerald, Sask C. Paulson Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson Gimli, Man O. N. Kárdal Glenboro, Man O. Anderson Hallson, N. Dak. Páll B. Olafson Hnausa, Man ... K. N. S. Fridfinnson Husavick, Man. O. N. Kárdal Ivanhoe, Minn. Miss P. Bárdal Langruth, Man John Valdimarson Leslie, Sask. Jón ólafsson Kandahar, Sask. S. S. Anderson Lundar, Man. Dan. Lindal Minneota, Minn. Miss P. Bárdal Mountain, N. Dak. Páll B. Olafson Mozart, Sask S. S. Anderson Otto, Man. Dan. Lindal Point Roberts, Wash. S. J. Mýrdal Reykjavík, Man Árni Paulson Riverton, Man. K. N. S. Friðíinnson Seattle, Wash. J. J. Middal Selkirk, Man. S. W. Nordal Tantallon, Sask. J. Kr. Johnson Upham, N. Dak. Einar J. Breiðfjörð Víðir, Man K. N. S. Friðfinnson Westbourne, Man. Jón Valdimarson Winnipeg Beach, Man O. N. Kárdal Wynyard, Sask. S. S. Anderson

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.