Lögberg - 18.05.1944, Síða 5

Lögberg - 18.05.1944, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. MAÍ, 1944 * Mrs. Monika Helga Thompson Fædd 21. marz, 1857 — Dáin 28. nóv., 1943 “Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautin þunga greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upplhiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir.” (E. B.) Þrátt fyrir þyngsli þau er mörgu árin binda þeim sem há- aldraður er, mátti þó segja að hún bæri árin vel. Hún hélt sálarhæfileikum sínum frábæri- lega vel að kalla mátti, minnið staðgdtt og trútt, o*g fylgdist furðu vel með mörgu því er gerðist. Hún var kona með af- brigðum trygg og vinföst. Hún innti af hendi kyrrlátt en affara- sælt starf í þarfir heimilis síns; var kyrrlát góð og umhyggjusöm. Naut hún og frábærrar umönn- unar Aðalbjargar, er gekk henni í góðrar dóttur stað gegnum ár- in mörgu, sem hjá eru liðin. Ingibjörg valr af vönduðu og góðu fólki komin, var hún sönn og karakterstyrk og geðprúð og glaðlynd, og góðum gáfum gædd. Gott var til hennar að koma og gladdist hún að komu gesta. Átti hún rygga vini, er litu með óþrot- legri umönnun og kærleik til hennar og glöddu hana og heim- ili hennar með komum sínum og kærleika. • Útförin fór fram frá heimili hinnar látnu og Lútersku kirkj- unni þann 17. apríl, sóknarprest- ur jarðsöng. íslendingar vinna námsverðlaun Við nýafstaðin próf við Mani- toba háskólann, hlaut þetta ís- lenzka námsfólk verðlaun: Vordís Friðjinnsson, dóttir Mr. og Mrs. K. N. S. Friðfinnsson, Geysir, Man., Richardson Scho- larship in Arts, $200, Gamma Phi Beta Scholarship, $100. Thora Sigurdson, dóttir Mr. og Mrs. Sigurbjörn Sigurdson, Win- nipeg, Sellers Scholarship in Arts, $100. Hans Raymond Beck, sonur Mr. og Mrs. J. T. Beck, Winni- peg, Civil Engineering, First Year, $80. Adelstine F. Kristjánsson, son- ur Mr. og Mrs. F. Kristjánsson, Winnipeg, Law, Ffrst Year, $80. Olga Helen Anderson — Home Economics, $60. Ernest Peter Johnson — Theo- logy, University Silver Medal. Mrs. Monika Helga Thompson, ekkja Gísla Thompson landnáms manns og um langt skeið bónda að Krossi. norðan við Gimli-bæ andaðist að heimili dætra sinna Ste 8, Dawson Court, Furby St., í Winnipeg borg, þann 28. nóv. s. 1. eftir langvarandi vanheilsu. Hún var fædd þann 21. marz 1857, foreldrar hennar voru Frið- björn Pétursson og Sigurborg .íónsdóttir, bjuggu þau að Stóra- gerði í Hofs- og Miklabæjarsókn, í Skagafjarðarsýslu. Móður sína misti hún mjög ung að aldri. og var þá tekin til fósturs af Pétri Jónssyni, bónda að Hofdölum í Skagafirði, og ólst upp hjá hon- um. Frá honum fór hún til frú Helgu frænku sinnar, konu Ara- sens læknis á Flugumýri. Fékk hún þar allgóða undirstöðu ment un í handlistum og hannyrðum, eftir því sem þá tíðkaðist. Hún flutti til Canada 1887, vann hún um hríð í Winnipeg, en síðar í Nýja-lslandi. Þann 25. maí, 1891, giftist hún Gísla Thompson, voru þau gef- in saman í Winnipeg af séra Jóni Bjarnasyni. Gísli mun hafa verið húnvetningur að ætt, hafði hann komið til Canadja 1884, unnið um nokkur ár í Winnipeg en fluzt svo til Nýja-íslands; var hann prentari að iðn, maður vel greindur og bókfróður, stofnaði hann og gaf út á Gimli um nokkra hríð tímaritið “Svöfu”; og mánaðarritið “Bergmálið”, einn, eða í félagi með öðrum, þó ekki kunni eg full skil á því að greina. Thompson’s hjónin bjuggu jafnan að Krossi, og þar andaðist Gísli, árið 1908. Eftir lát hans bjó Monika þar ásamt börnum þeirra, þar til árið 1924 að hún ásamt dætrum sínum flutti til Winnipeg; átti hún jafn- an heimili með þeim þar þaðan af, og naut frábærrar umönnun- ar þeirra, það sem eftir var æf- innar. Börn hjónanna á Krossi eru: Pétur, búsettur á Gimli, kv. Guðrúnu Johnson. Cecilia, Mrs. W. J. Reid, Winnipeg. Sólveig og Margrét, Dawson Court, Wpg. Rósa, Mrs. O. Josephson, Mel- stað í Mínerva-bygð, við Gimli, látin 1930. Fósturdóttir hinnar látnu, og henni einkar hjartfólgin er Mild- red Thompson, nú starfandi fyr- ir brezku stjórnina í Washington, D.C. Systkini Moniku eru William Byron, bóndi við Swan River, Man. og kv. Guðbjörgu Helga- son, frá Mountain, N.-DaK.; og Þóra, Mrs. Guðm. Beck, nú lát- in. Mrs. Thompson var að upp- lagi til hæglát kona og fíngerð, og var mjög vel að sér í hann- yrðum. Æfilangt hafði hún nautn af lestri góðra bóka, var hún kona einkar ljóðelsk. Börnum sínum var hún hjart- fólgin og umhyggjusöm móðir; bar hún ávalt ástúðlega umönn- un fyrir þeim er næstir henni stóðu. Böndin, sem tengdu hana, börn hennar og fósturdóttir voru djúp og traust. Létu börn henn- ar sér einkar annt um hana. Um 20 ár átti hún heimili með dætrum sínum í Winnipeg — og síðustu 10 árin mjög þrotin að heilsu, enda öldruð orðin; naut hún frábærrar umönnun- ar þeirra, svo vel er þess virði að í minnum sé haft, hjá þeim andaðist hún, sem að ofan er getið. Eiga dætur hennar fagr- ar minningar um það, að fyrir kærleiksríkan atbeina þeirra var ellin henni eins létt og auðið var að láta hana vera. Útför hennar fór fram þann 3. des. s. 1. frá Lútersku kirkj- unni á Gimli, er hún og börn hennar höfðu jafnan tilheyrt og unnað. Börn hennar ásamt Mild- red fósturdóttur hennar ásamt allmörgu fólki frá Gimli og um- hverfi voru viðstödd útförina. Sá er þetta ritar þjónaði við útförina. S. Ólafsson. Dánarfregn Mrs Ingibjörg Thordarson and- aðist að heimili sínu á Superior Ave, í Selkirk, þann 25. apríl, árdegis, eftir nærfelt mánaðar- legu. Hún var fædd 28. marz 1855, að Hnjúkum á Ysum í Húna- vatnssýslu, foreldrar hennar voru hjónin Jón Jónsson og Margrét Sveinsdóttir. Hún kom til Vesturheims árið 1887, ásamt Jónasi bróður sínum og settist að í Norður-Dakota, og dvaldi þar um þrjú ár, en flutti þá til Selkirk og átti þar heima það sem eftir var æfinnar. Árið 1892 giftist hún Matthíasi Thordarsyni, fyrverandi skip- stjóra, marghæfum siglinga- manni og einkar vel lærðum í sinni grein, ættuðum frá Aust- mannsdal í Arnarfirði, af beztu ættum kominn. Matthías hafði tveimur dætrum þeirra, Guð- björgu, sem nú er látin fyrir 2 árum og Aðalbjörgu, er aldrei skildi við fóstru sína, en þriðja dóttirin af fyrra hjónabandi Matthíasar, Súsanna María, fóstr aðist upp á Islandi. Þeim Matt- híasi og Ingibjörgu varð eins sonar auðið, er lézt í bernzku. Matthías andaðist 2. nóv. 1919. Tveir bræður Ingibjargar eru á lífi. Kristófer bóndi á Köldu- kinn á Ásum í Húnavatnssýslu, og Jón, búsettur í Blaine, Wash. Meðal látinna systkina Ingibjarg- ar var Einar Johnson í Selkirk, látinn 16 marz 1919, er lifir mörg um í ljúfu minni, býr Sigurbjörg ekkja hans hér ásamt börnum sínum. Ingibjörg var í hópi vors elzta fólks hér, og mátti aldur- hár teljast. S. Ólafsson. Dánarfregn Út' há- -»S5!555555SS5S5SS$S55$55$5$55555S555S5$5535«S55«55!55$S5S55SS3«S5$$$S$55SSS«S« ur Sigurbjörn Bjarnason, vistmað á Gamalmennahælinu Betel, á Gimli, andaðist þar þann 29. apríl, s. 1., eftir stutta legu. Hann var fæddur að Hryggjum í Göngu skörðum í Skagafjarðarsýslu 21. sept. Iý61, voru foreldrar hans Bjarni Guðmundsson og Sigur- laug Gísladóttir. Tveggja ára gamall varð hann að fara frá foreldrum sínum til vandalausra. Mun hann hafa átt óblíð bernskuár. Sex ára að aldri var hann tekinn til fósturs af hjónunum Jónasi Jóhannessyni og Ingibjörgu Jóhannesdóttur konu hans, er þá bjuggu í Ás- hildarholti í Skagafirði. Hjá þeim ólst hann upp til 16 ára aldurs og fór þá í vinnumennsku. Minnt ist hann jafnan hjónanna í Ás- hildarholti með einlægri virðingu og þakklæti, og sagði að þau hefðu látið hið sama yfir sig ganga, sem sín eigin börn, og taldi þau hafa gengið sér í for- eldra stað. Tuttugu og tveggja ára að aldri hélt hann til Akureyrar og hóf að nema trésmíði, vann hann að smíðavinnu á ýmsum stöðum unz hann fór til Vesturheims ár- ið 1883. Mun hann brátt hafa sest að á Gimli og eignaðist Grímsstaði sunnanvert við Gimli bæ. Bjó hann þar jafnan ein- búa búskap, þar til að hann kom til Betel sem vistmaður, 30. apríl 1940. Einn bróðir hans, Guðmund- ur að nafni kom til Ameríku. Hann giftist Ingibjörgu dóttir Jónasar á Grænumýri, sunnan- vert við Gimli. Dóttir þeirra, Mrs. Sigurðsson býr í Riverton, Man. Guðmundur druknaði í Winnipeg-vatni fyrir mörgum ár um síðan. Ekkja hans Ingibjörg Bjarnason er til heimilis að 702 Home St., Winnipeg. Tvær syst- ur hins látna voru á íslandi, Jóhanna og Björg. Sigurbjörn var bókhneigður maður og las margt sér til ánægju, vandaður maður og trú- hneigður, en batt bagga sína nokkuð öðrum handbrögðum en samferðamenn hans. Ef til vill átti einbúa líf hans sinn þátt í því að gera hann sérstæðan um sumt, — og kalsár æskunnar eru oft seingróin. Útför hans fór fram frá Betel, þann 24. apríl, undir umsjón Bardals, Winnipeg. Undirritaður hafði kveðju athöfn og jós moldu. inn S. Ólafsson. % Q Æ %tr V íslenzkt námsfólk, sem skrifast hefir við Manitoba skólann á þessu skólaári er: Haraldur Victor Vídal; Bache- lor of Arts, Diploma in Educa- tion. Eggert Thomas Feldsted; Doctor of Medicine. Violet Gladys Elaine Feldsted; Bachelor of Science in Home Economics. Helga Norma Sigurdson; Bachelor of Science in Home Economics. Bernhart Gordon Ingimund- son; Electrical Engineering. William Gregory Halldorson; Diploma in Dairying. William Lawrence Pálsson; Diploma in Agriculture. Bryan Herman Arason; Certifi- cate in Agriculture. Lillian Guðný Jónsson, Certifi- cate in Nursing Education. “Silver Tea” og sala á heima- tilbúnum mat verður haldið seinnipart dags og að kvöldinu, miðvikudaginn þann 31. maí, á heimili Mrs. V. J. Eylands að 776 Victor St., undir umsjón Mrs. A. H. Gray, forstöðukonu camp- nefndar Banadalags lúterskra kvenna, til arðs fyrir camp- byggingarsjóðinn. Camp-nefnd- ina aðstoða þeir meðlimir stjórn- arnefndar, sem heima eiga hér í bænum, ásamt báðum kvenfé- lögum og trúboðsfélagi Fyrsta lúterska safnaðar. Til fróðleiks og skemtunar verða sýnd mál- verk, uppdrættir og nokkrir hlutir búnir til úr tré, eftir nokkra Islendinga hér í bænum, sem stund leggja á tréskurð. Leiðréliing. í sambandi við dánarfregn Haraldar Maríusar Anderson, komi leiðrétting á þessa leið: Haraldur Maríus Anderson, son- ur Guðmundar (Árnasonar) Anderson og konu hans Guðrún- ar Thordardóttur. Skekkja þessi var í handriti. Móðurdómurinn Eg sé þig oft í sölum skýja — í sólarljóma dagsins nýja, í fegurð lífs, er fyrnist eigi — í fegurð þess, sem er og var Eg sé þig æ í sólarbárum; — eg sé þig í barnsins raunatárum. Og þó að fjölgi æfiárum, og alt sé breytt frá því sem var. Þó afstöðurnar ávalt breytist og alt sé breytt, sem forðum var. Þú æ mér gefur sama svar! Eg sé þig ljóma í lagaröldum — í litum-prýddu báruföldum; í sólar töfrageisla gliti, er gyllir himin, jörð og mar. Eg sé þig í morgunsvala köldum, í sumar-aftans skýjatjöldum, í mæru ljóss af mánans völdum er munar-draumum gefa svar. 1 draumafegurð hugar-heima, er harmi og tárum veita svar. Og þú gefur ávalt þetta svar! Eg sé þig blika í silfur-lindum, á sólarbjörtum jökul tindum, og svífa hratt á vorsins vindum, hvar viðkvæmt titrar ljóssins ar. Eg sé þig í ótal munar-myndum, en margoft því vér frá oss hrindum; eða vér störum augum blindum á eðlisdýrð, sem fegurst var. Já, á þá dýrð, sem heimur hylur, er huganum gæfi skýrast svar. En þú mér veitir þetta svar! Eg sé þína mynd í fögru fljóði, sem falin er í skáldsins óði, og stundum dylst í dánu ljóði — í dánarminnum hér og þar. Eg sé þá mynd í harmsins hljóði, í hugar-angurs táraflóði, í fáráðlingsins fómarblóði, er fornra drauga birtu svar. Sú glegst er mynd í fljóðsins fegurð, er frelsis-þránni gefur svar. Og þú mér gefur þetta svar! Eg sé þá ást í augum þínum — í augunum bláu og hreinu þínum, er móðurdómsins myndir skýra, hvar manndóms skapast eðlisfar Sem guðdóms blys í ljóða línum hvers listagildi oft vér týnum, en þálegs tíma þyrnum krýnum í þoku eigin blekkingar; því skrípamyndir skapanorna á skökku máli veita svar. En innanbrjósts þú átt þér svar! Og því er kærust móðurmoldin — en minninganna skuld er goldin í útlendingsins tregatárum, er týndra bama hjörtu skar. Þá titra veikir taugaþræðir og tregaþrungnu hjarta blæðir, er sorgabarnið heiminn hæðir, þá heimalandið glatað var. En móðurástin munar gljúpa í minningunum finnur svar. Og þú átt, móðir þetta svar! S. B. Benediclsson. Our Prinfmg Service i8 persoual in chararte ^ tottoate to contactwe ter class Pr'f’^aucing tos Pnde 'Lí fnctive clien take Pllu" * aistinctive Teie.fOive8nBdtoPPoHunity 0t serving yo«- ^he «ol«mbia i3rcðí’ aVenue. winnipec 695 SARCENT

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.