Lögberg - 21.09.1944, Síða 1
I
57. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. SEPTEMBER, 1944
NÚMER
F.O. Hannes Kristinn Vídal
Mr. og Mrs. Sigvalda S. Vídal,
Hnausa, Man., hefir borist sú
frétt, að sonur þeirra hafi eigi
komið til baka eftir loftárás. —
Hann gekk fyrst í fótgönguliðið
19. apríl 1942. Innritaðist í flug-
herinn í júní sama ár, og útskrif-
aðist úr lofthernum sem Navi-
gator 2. apríl 1943, og var sæmd-
ur foringjatign. Hann fór til
Englands mánuði síðar. 1 des.
1943 var hann gerður Flying-
Officer. Systkini hans á lífi eru:
Haraldur, Grímur, Sigurður og
tvær systur, Sigurrós og Solla,
kona Sveinbjörns Johnson,
Hnausa, Man.
LÍKN ARSAMLAGIÐ
Þessa dagana stendur yfir hin
árlega fjársöfnun í sjóð Líknar-
samlags Winnipeg borgar; stofn-
un þessi hefir gefist vel, og meira
en verðskuldar einhuga stuðn-
ing allra borgarbúa; starf henn-
ar er starf hins miskunsama
Samverja.
Þó að nú megi teljast góðæri,
og minna um atvinnuleysi en oft
áður, þá eru þó ávalt* margir á
ferð, blindir, ellihrumir, munað-
arlaus börn og einstæðingar, sem
þurfa hjálpar við; alt þetta fólk,
sem þannig er ástatt með á sama
rétt til lífsins og hinir, sem bet-
ur eru staddir; margir hafa af
miklu að miðla og leggja fram
ríflégar fjárhæðir; hinir, sem úr
minna hafa að spila, leggja vita-
skuld eitthvað af mörkum líka;
í þessu efni verða allir, í nafni
mannúðarinnar að leggjast á
eitt. Höfum það hugfast að korn-
ið fyllir mælirinn!
QUEBEC STEFNUNNI
LOKIÐ
Samtalsfundinum í Qúebec
milli þeirra Roosevelt forseta og
Churchill forsætisráðherra, er nú
lokið; þó enn sé margt á huldu
um þær niðurstöður, sem þjóð-
höfðingjar þessir, ásamt sérfræð-
ingum þeirra komust að, þá er
hvarvetna staðhæft, að fylzta
eindrægni hafi ríkt á fundinum.
Þess er getið í blaðafréttum að
austan, að afstaða sameinuðu
þjóðanna til stríðsins milli Banda
ríkjanna og Japan hafi komið til
alvarlegrar íhugunar, vegna þess
einkum, hve nú sé -sýnt, að það
geti orðið langvinnara en Norður
álfustyrjöldin; þá var og vitan-
lega allmiklu af fundartímanum
varið til endurskipunar ráðstaf-
ana að loknu stríði.
Utanríkisráðherra Breta, Anth
ony Eden, sat og áminsta ráð-
stefnu, auk þess senr canadiski
forsætisráðherrann, Mr. King,
átti mörg einkasamtöl við þá
Roosevelt og Churchill.
FALLNIR í STRÍÐINU
Lieut. Russell Reykjalín og
Tommy Fraser, systkinasynir.
Lieut. Russell Reykjalín féll á
Frakklandi 13. júní. Hann var
sonur Mr. og Mrs. Egils H.
Reykjalín, sem lengi bjúggu í
Sherwood í Norður Dakota.
Hann var búinn að vera fyrir
austan haf síðan í des. 1942,
bæði í Norður Afríku, Sikiley,
Englandi og síðast á Frakklandi.
Hann var sæmdur heiðurs meda-
líu 23. maí fyrir 13 hernaðar-
flug yfir lönd óvinanna. Hann
var vel mentaður og áhugasam-
ur maður. Eftir að hann hafði
lokið námi við gagnfræðaskólann
í Sherwood stundaði hann vís-
indanám við ríkis háskólann í
Wahpeton í þrjú ár.
Hann innritaðist til hepþjón-
ustu sem sjálfboði þann 30. nóv.
1940.
Áður en hann gekk í herþjón-
ustuna var hann í félagi með
Halldóri bróður sínum í bíla-
verzlun í Leal. Hann lætur eftir
sig móðir, sem nú er ekkja og
tvo bræður og tvær systur.
Tommi Fraser, sonur Tom
Frasers í Portland, Oregon, sem
er dáinn fyrir nokkrum árum.
Hann var í canadiska hertnum,
y
og féll á ítalíu 23. maí.
Þau systkini Mrs. Reykjalín og
Mr. Fraser, voru börn Mr. Frey-
steins Jónssonar og konu hans
Kristínar Eyjólfsdóttur, er lengi
bjuggu í Þingvallabygð í Sask.
REYKVÍKINGAFÉLAGIÐ
FÆR MYNDASAFN
GEORGS ÓLAFSSONAR
AÐ GJÖF
Reykvíkingafélaginu hefir bor-
ist vegleg gjöf og verðmæt, þar
sem er Reykjavíkurmyndasafn
Georgs heitins Ólafssonar banka
stjóra. Hefir ekkja Georgs, frú
Augusta Ólafsson, fært stjórn
Reykvíkingafélagsins mynda-
safnið nú fyrir skömmu.
Þetta myndasafn er mikið og
einstætt í sinni röð. Hefir það
ekki verið flokkað ennþá, en í
því eru ljósmyndir frá öllum
helstu atburðum, sem gerst hafa
hér í Reykjavík síðustu 80—100
ár. Myndir af einstökum húsum
og bæjarhlutum að fornu og
nýju. Lagði Georg bankastjóri
mikla vinnu og alúð við söfnun
myndanna, enda var hann manna
fróðastur um alt er að Reykja-
víkurbæ og sögu hans laut.
Reykvíkingafélagið vantar til-
finnanlega húsnæði fyrir þetta
safn og aðra safngripi frá Reykja
vík, sem félagið hefir í hyggju að
koma sér upp. Hefir mikið verið
rætt um það innan félagsins, að
komið yrði upp húsi fyrir félagið,
eða húsnæðj í sambandi við bygg
ingu hjá öðrum.
Innan Reykvíkingafélagsins
ríkti mikill áhugi fyrir að fá
myndasafn Georgs bankastjóra
keypt, ef það væri, falt, en nú
hefir frú Augusta Ólafsson sýnt
félaginu þá einstöku rausn, að
gefa félaginu þetta merkilega
safn. Á hún og börn hennar
miklar þakkir skyldar fyrir hug-
ulsemina í garð Reykvíkinga-
félagsins.
Mbl. 20. iúlí.
ÁTTATIU OG FJÖGRA ÁRA
Síðastliðinn laugardag átti
Finnbogi Hjálmarsson, sem
fjölda Vestur-Islendinga er löngu
að góðu kunnur, vegna ágætra
ritgerða, sem birst hafa í Lög-
HNIGINN í VAL
Jón Goodman
Þann 10. yfirstandandi mánað-
ar, lézt í Glenboro, bændaöldung
urinn Jón Goodman á sjöunda
ári hins tíunda tugar; hann
fluttist til Canada 1874 og dvaldi
um hríð í Kinmount byggðinni
í Ontario; ári síðar fluttist Jón
til Manitoba og nam land í grend
við Winnipeg Beach; en brátt
fór hann þaðan og tók heimilis-
rétt þar sem nú heitir Grundar-
bygð í Argyle, og gerðist þar
verulegur fyrirmyndarbóndi; ár-
ið 1881 kvongaðist Jón og gekk
að eiga ungfrú Guðrúnu Eiríks-
dóttur, sem látin er fyrir 10 ár-
um. Jón lætur eftir sig son, Mr.
Th. Goodman ít Glenboro. og
tvær dætur, Mrs. Th. Wagstaffe
að Shand Creek, Sask., og Mrs.
K. ísfeld í Glenboro.
Útför þessa merka landnema
fór fram þann 13. þ. m. frá heim-
ili hans og Grundarkirkju. Séra
E. H. Fáfnis jarðsöng.
MANNLAUSU
FLUGVÉLARNAR
í þrjár undanfarnar nætur
hafa hinar mannlausu sprengju-
flugvélar Nazista, gert ítrekað*
ar árásir á London og Suður-
England, og veitt almenningi á
þessum stöðum allþungar búsifj-
ar, þrátt fyrir rösklegar loftvarn-
ir af Bireta hálfu; þessar morð-
flugur Þjóðverja eru því engan
veginn úr sögunni, enn sem kom-
ið er.
FRÁ
AUSTURVÍGSTÖÐVUNUM
Að því er nýjustu fregnir
herma, má ætla, að nú standi
yfir lokahríðin um Varsjá; rúss-
neskar hersveitir eru á tveimur
stöðum komnar inn í borgina og
láta kné fylgja kviði. Þjóðverj-
ar hafa sent til borgarinnar nýj-
an liðsauka og miklar fylkingar
skriðdreka. Rússar heilsuðu upp
á skriðdreka þessa með slíku
sprengjuregni, að á einum degi
voru um tuttugu þeirra gerðir
óvígfærir.
INNRÁS Á HOLLAND
í lok fyrri viku sendu samein-
uðu þjóðirnar allmikinn afla fall
hlífarliðs inn á Holland, og nú
hafa þær einnig komið þar á
land skriðdrekum og miklu fót-
gönguliði; standa nú yfir í land-
inu snarpar orustur, sem auð-
sjáanlega ganga herjum samein-
uðu þjóðanna mjög í vil.
bergi frá ári til árs, 84 ára af-
mæli. hann er enn glaður og
gunnreifur og nýtur beztu heilsu.
minni hans er óbrigðult, og hann
lítur enn daglega inn á skrif-
stofu Lögbergs fóthvatur og með
æskubros á vör. Svona eiga
sýslumenn að vera. Finnbogi er
f^eddur í Breiðuvík á Tjörnesi,
en á kyn sitt að rekja til Flat-
eyjardals og Köldukinnar. Lög-
berg flytur honum innilegar
hamingjuóskir í tilefni af afmæl-
isdeginum.
RÓSTUR 1 DANMÖRKU
Nazistar hafa leyst upp dönsku
lögregluna, er táldi í' alt um 12
þúsund menn, og standa þýzkir
Gestapo- eða leynilögreglumenn
nótt sem nýtan dag vörð um bú-
stað Kristjáns konungs á Amelíu
borg. Danska stjórnin, eða að
minsta kosti meiri hluti henn-
ar, hefir mótmælt stranglega
upplausn lögreglunnar, þó Nazist
ar vitanlega hafi skelt skolla-
eyrunum við slíkum mótmælum;
undanfarna daga hefir komið til
blóðsúthellinga milli Nazista og
danskra föðurlandsvina, auk þess
sem verkföll í dönskum verk-
smiðjum fara daglega í vöxt.'
KOMNIR INN I RIGA
Nú eru Rússar komnir inn í
Riga, höfuðborgina í Latvíu, og
standa þar yfir illvígir strætis-
bardagar nótt sem nýtan dag;
talið er víst, að borgin falli inn-
an eins eða tveggja daga. Rúss-
ar hafa náð fullu haldi á öllum
varnarvirkjum Þjóðverja við
Riga flóann.
FRÁ ÍTALÍU
OG FRAKKLANDI
Sameinuðu herjunum miðar
vel áfram í ítalíu þrátt fyrir
magnaða andspyrnu af hálfu
Þjóðverja; en undanfarna da£&
hefir sóknin gengið treglega á
Frakklandi, sakir óhagstæðs
veðurfars.
KOMNIR INN í ÞÝZKALAND
Hersveitir frá Canada og
Bandaríkjunum eru nú komnar
um fjörutíu mílur inn í Þýzka-
land, og hafa rofið hin svo-
nefndu Sigfried varnarvirki á
sex_ eða sjö stöðum.
HRAKFARIR JAPANA
Samkvæmt fregnum frá Wash-
ington, hafa amerískir kafbátar
með tilstyrk flugvéla, sökt á
einni viku 29 Japönskum skip-
um af ýmsum stærðum; á öll
um vígstöðvum fara Japanir dag
lega eigi aðeins halloka heldur
sæta hinum verstu hrakförum.
KÖLN FALLIN
Fregnir á miðvikudagsmorgun
inn herma, að sameinuðu þjóð-
irnar, eða réttara sagt hersveitir
þeirra, hafi nú náð fullu haldi
á borginni Köln. Áttu canada-
menn mikinn þátt í tiltölulega
skjótu falli borgarinnar.
Private Thorunn Ella Norten
Kona sú, sem mynd þessi er af, er al-íslenzk; hún starfar
í þjónustu ameríska flughersins, og dvelur um þessar
mundir í Rapid City, South Dakota., þar sem hún hefir
yfirumsjón með hverskonar Radio-tækjum. Thorunn Ella
er sérfræðingur í sinni grein og lærði hana í verksmiðju
Dr. Hjartar Thordarsonar í Chicago; í frístundum sínum
gefur hún sig að teikningum og ljóðagerð; hún er fædd
í Winnipeg, og þangað fluttust foreldrar hennar fyrst, er
þau komu af íslandi; frænka. hennar Gladys Oddson er
í canadiska kvenhernum.
Systkini Thorunnar Ellu Norten, eru Oddur H. Oddson,
byggingameistari í Chicago, Mrs. Thorarinn Thorkelson í
sömu borg, og Mrs. N. Niven 1125 Spruce St., Winnipeg.
ÍSLENDINGAR SEMJA UM
FISKIBÁTAKAUP
í SVIÞJÓÐ
Sendifulltrúi íslands í Svíþjóð,
Vilhjálmur Finsen- dvaldi ný-
lega tvo daga í Gautaborg, m. a.
til þess að gera samninga um
kaup á 45 fiskibátum, sem pant-
aðir hafa verið hjá -msum skipa-
smíða9töðvum á Bohus-strönd-
inni, og munu kosta 9—10 milj.
króna.
Mbl. 29. júlí.
KOMINN AÐ
FÓTUM FRAM
Gen. Pershing, hinn víðfrægi
herforingi Bandaríkjanna, sá er
veitti forustu ameríska hernum
í Frakklandi í fyrri heimsstyrj-
öldinni, liggur um þessar mund-
ir svo aðframkominn á sjúkra-
húsi, áð honum er ekki hugað
lif. Þessi frægi herforingi er 84
ára að aldri.
LEITAR ENDURKOSNINGAR
Garnet Coulter
Nú hefir það verið bundið fast-
mælum, að núverandi borgar-
stjóri í Winnipeg, Garnet Coult-
er, bjóði sig fram til borgarstjóra
á ný í Winnipeg við kosningar,
sem fram fara í næstkomandi
nóvember mánuði. Líklegt þyk-
ir að C.G.F. flokkurinn útnefni
einnig borgarstjóraefni, og er þá
nokkurn veginn víst talið, að
John Queen, fyrverandi borgar-
stjóri verði fyrir valinu.
Hjartans land
Vonaland! Þín ver og grundir
verndi frelsið lögum undir.
Um þitt lán við fjall og fjöru
fólkið standi heiðursvörð.
Vertu okkur allar stundir
óskaland og hjartans jörð.
Allir himnar opnir standi
yfir þessu frjálsa landi.
Beri fossar, mold og mið
menntalíf og vinnufrið.
Nýrrar jarðar ástarandi
eigi þar sitt hjálparlið.
Allt sé þitt, sem börn þín biðja,
bros og þróttur, nám og iðja,
allt, sem hönd og andi ljá,
yfirbragð og hjartans þrá.
Þeir, sem hlaða, þeir, sem ryðja,
þínu merki standi hjá.
Hjartans land í sögu og sýnum
sértu jafnan börnum þínum,
tengt við þeirra heill og hag,
hugðarefni og vinnudag.
öruggt standi í akri sínum
íslenzkt mál og hjartalag.
Tíminn, 17. júní. Guðmundur Ingi Kristjánsson.