Lögberg - 21.09.1944, Síða 4

Lögberg - 21.09.1944, Síða 4
4 *-----------lögberg ——* GefiG út hvern fimtudag af ' THE COLUMBIA PRESS, LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utaná8kritt ritstjórans: EDITOIi LÖGBERG, 695 Sargent Ave, Winnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyriríram The '‘Lögberg’’ is printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargept Avenue Winnipeg, ManitoDa PHONE 86 327 +——--------------------------------------+ í andlegri nálægð við ísland Um klukkan hálf þrjú, var von á forseta og föruneyti hans frá Washington til La Guardia flugvallarins; tíminn leið fliótar en mig varði; og þegar eg var að hugsa um hina tignu full- trúa hins endurborna Islands, sem eg þá og þegar kæmi til fundar við, minntist eg vísu Hannesar Hafstein: “Einhver hljóður andblær titrar andardrætti líkur manns, þegar óðfús eftirvænting alla fyllir sálu hans.” Um huga minn flögruðu svipir úr sögú Is- lands, Gullöldin, Hungurvaka og Svartidauði; smánarleg erlend kúgun, hinn undrunarverði viðnámsþróttur þjóðarinnar, viðreisnar- og endursköpunartímabilið frá síðustu aldamótum, og nú síðast æfintýrið á Þingvelli, þar sem Guð vors lands og góðir menn leiddu þjóðina út úr eyðimörkinni og inn í fullveldi frjáls- borinna manna; eg fann að hátíðleg stund var í aðsigi, og eg beið hennar með óðfúsri eftir- væntingu. Við ferðafélagarnir frá Winnipeg höfðum mælt okkur mót við anddyri Hotel Savoy, klukkuna vantaði nokkrar mínútur í tvö, við stigum samstundis upp í leigubíl og ókum af stað til flugvallarins; á leiðinni naut víða góðs útsýnis yfir hina miklu og glæsilegu borg; er til flugvallarins kom, var þar fyrir múgur manns; við flugstöðina kom eg skjótt auga á stóran bíl, skreyttan stjörnufána Bandaríkjanna og krossfána íslands; hjá honum stóð hvatiegur maður, fremur lágvaxinn, en hnellinn eins og Napoleon; eg þekti hann undir eins af mynd- um; þetta var hinn víðfrægi borgarstjóri New York borgar, La Guardia, er hingað var kominn til þess að fagna forseta Islands; «við hlið hans stóð Dr. Helgi P. Briem, aðalræðismaður Islands í New York, er þar var staddur til þess að fagna forseta og föruneyti hans af hálfu ís- lenzku þjóðarinnar; í för með honum var frú hans og dóttir; meðan við biðum flugvélar- innar, var eg að litast um utan við flugstöð- ina, þar var eg kynntur yfirlögreglustjóra borg- arinnar, vöskum manni og glæsilegum, er eg átti við töluvert samtal, og þar hitti eg eftir meira en þrjátíu ár vin minn Ólaf Johnson, stórkaupmann og viðskiptaumboðsmann fyrir íslands hönd í New York; kveðjurnar voru hlýjar; mér virtist hann sama sem ekkert hafa breyzt, nema þá helzt að hann væri enn glæsi- legri en þegar eg seinast sá hann á Islandi; og nú var sú silfurvængjaða, eins og Bjarni Guð- mundsson kallaði hana, farþegaflugvélin frá Washington, í þann veginn að svífa niður á völlinn. Lögregluvörður umlukti flugstöðina ásamt borðalögðum hernaðaryfirvöldum; þó strangar gætur væru hafðar á öllu, var andrúmsloftið einkar vingjarnlegt, og okkur löndunum, sem nú voru orðnir margir, greiðlega leyfður aðgang- ur að flugvellinum um leið og sú silfurvængj- aða lenti. Forsetinn var kominn. Herra Sveinn Björns- son, forseti íslenzka lýðveldisins, steig léttilega út úr flugvélinni; þar næst kom utanríkisráð- herrann, herra Vilhjálmur Þór; þá sendiherra íslands í Washington, herra Thor Thors og frú Ágústa Thors; en næst komu á vettvang herra Pétur Eggerzt, ritari forseta, herra Bjarni Guð- mundsson, blaðafulltrúi utanríkisráðuneytisins herra Hinrik Björnsson, sonur forsetans, ásamt frú sinni Gígju,^óttir forseta ungfrú Elísabet, Dr. Edward Thorlákson og Jakob Jónsson fylgd- armaður forseta, ásamt nokkrum tignum amer- ískum embættismönnum. Þeir Dr. Helgi P. Briem og Mr. La Guardia borgarstjóri í New York, tóku á móti forseta og buðu hann velkominn, en að því loknu kynti aðalræðismaður utanríkisráðherra fyrir borg- arstjóra; nú vanst nokkuð svigrúm til að lit- ast um og skiptast á kveðjum; mér hlýnaði um hjartaræturnar, er eg tók í hendina á forn- vini mínum, Sveini forseta Bjömssyni, þessum djúpvitra og háttprúða forustumanni íslenzku þjóðarinnar; viðmótið var hið sama og fyr, al- úðin sú sama; mér fanst eg vera kominn heim í íslehzkan fjallafaðm og um sál mína léki hress- andi andblær, sem feykt hefði í burtu hverjum LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. SEPTEMBER, 1944 einasta og einum skýflóka af söguhimni stofn- þjóðar minnar; á þessari ógleymanlegu fagnað- arstund rann eg saman við ísland í eitt; í sál minni endurómuðu ljóðlínur Steingríms: “Svo traust við ísland mig tengja bönd ei trúrri binda son við móður.” Ósegjanlegt ánægjuefni var mér það að taka í hönd hinna virðulegu höfðingshjóna Thors sendiherra og frúar hans þarna á flugvellinum og endurnýja við þau vinskapinn; eg á þeim þakkarskuld að gjalda vegna vináttu þeirra og drengskapar í minn garð; og nú veittist mér í fyrsta skipti á æfinni kostur á að heilsa utan- ríkisráðherra íslands, herra Vilhjálmi Þór, og sannfærðist eg skjótt um, að þar væri vöku- maður á ferð, “þéttur á velli og þéttur í lund.” Á flugvellinum mætti eg einnig í fyrsta sinn “kollega” mínum, herra Bjarna Guðmundssyni, blaðafulltrúa utanríkisráðuneytisins; er hann hinn elskuverðasti maður, sem vissulega á hönk upp í bakið á mér fyrir þá drengilegu aðstoð, er hann veitti mér við fréttasendingarnar til Lögbergs; þá var og engu síðut fagnaðarefni, að endurnýja vinskap við herra sejidiráðsritara Hinrik Björnsson og frú Gígju, og kynnast dótt- ur forsetans, ungfrú Elísabetu, sem er hin ynd- islegasta stúlka; einnig hitti eg þarna góðvin minn, Dr. Edward. Thorlákson sem starfar fyrir stríðsupplýsinga skrifstofu Bandaríkjastjórnar, ásamt hinum glæsilega ritara forsetans, herra Pétri Eggerz, og fylgdarmanni forseta, herra Jakob Jónssyni, sem er hinn mesti myndar- maður. Frá landfræðilegu sjónarmiði séð, er La Guardia flugvöllurinn í New York óraveg frá Islandi; í andlegum skilningi hurfu þó fjar- lægðirnar þenna áminsta sunnudag; fögnuður- inn og Vináttuböndin höfðu, að mér fanst, þurkað þær út að fullu og öllu. Landnámi íslenzkrar tungu eru engin takmörk sett; í mannfélagsiðunni þarna á La Guardia flugvellinum svona langt að heiman, barst óm- ur ástkæra, ylhýra málsins frá munni til munns, frá hjarta til hjarta; málsins, sem svo er vængj- að og víðfeðmt, að það á, eins og Einar Bene- diktsson sagði, orð yfir alt, sem er hugsað á jörðu. — Þegar hér var komið sögu tóku fylkingar að riðlast, því móttöku athöfninni var lokið; for- seti Islands ók af stað í stóra flaggskreytta bílnum við hlið hins hörundsdökka og saman- rekna borgarstjóra þeirra New York búa, eitt- hvað út í hina miklu töfraborg, þar sem sxýja- kljúfarnir beina ögrandi háturnum til himins; eitthvað átta risavaxnir lögreglumenn á bif- hjólum, fylgdu borgarstjóra bílnum úr hlaði, allir með stjörnufánann og krossfánann framan á farartækjum sínum, en fánum skrýddar bif- reiðar sigldu í kjölfar þeirra; augnabliki sem þessu gleymir enginn viðstaddur íslendingur, nei, enginn! Við fóstbræður kræktum nú í leigubíl og *ókum sem leið liggur til Savoy Plaza; við mælt- um fátt á leiðinni, en að eg hygg, hugsuðum því fleira. — — Nokkru eftir að eg kom inn í íbúð mína á 14. hæð, hringdi dyrabjallan, og innan nokkurra sekúndna vindur sér inn úr dyrunum ungur maður spriklandi af fjöri; þetta var Dr. Helgi P. Briem, aðalræðismaður Islands í New York, er bauð mig formlega velkominn sem gest ís- lenzku ríkisstjórnarinnar, og kvað sér hafa þótt fyrir, að hann vegna annríkis, ’nefði ekki átt tök á að mæta mér persónulega á járnbrautar- stöðinni kvöldið áður. Dr. Helgi er sonur hins •gagnmerka manns Páls Briem, er síðastur var amtmaður Norður og Austur amtsins áður en ömtin og embættin, sem þeim voru samfara voru lögð niður. Móðir Dr. Helga, ef eg man rétt, var Álfhildur, dóttir Helga Hálfdánarsonar lektors við prestaskóla íslands; standa því að honum styrkir stofnar í bæði kyn. Dr. Helgi er kvæntur enskri konu, sem mikið sópar að. “Tíminn líður, trúðu mér, taktu maður vara á þér.” Það veitti vissulega ekki af því, að taka vara á sér og hafa hraðan við, því nú var mjög tekið að líða á dag, en um kvöldið skyldi setin veizla íslenzku ríkisstjórnarinnar á Waldorf Astoria hótelinu undir forustu Dr. Helga Briem, og var svo fyrir mælt, að gestir allir frá Islandi Canada og Bandaríkjunum yrðu til veizlunnar komnir eigi síðar en klukkan 7. Þetta var eina “formal” eða viðhafnarveizlan í ferð okkar, og þangað urðu allir að koma í veizluklæðum, hvort heldur þeir yrðu að skreyta sig með lánuðum fjöðrum eða ekki. Eg var rétt í þann veginn að koma mér í tilætlaðar stellingar, er síminn í íbúð minni hringdi; þetta var Grettir ræðismað- ur, sem hafði orðið, og bað mig blessaðan að korúa í snatri til fundar við sig upp á 19. hæð, en þar hafði hann bækistöð sína; er þangað kom tjáði ræðismaðurinn mér, að hann væri í standandi vandræðum, því hann hefði gleymt að taka með sér harðan viðeigandi kraga; eg þaut af stað eins og kólfi væri skotið upp á “Central”, en svo nefndi eg bú- stað þeirra séra Valdimars, Hann esar Péturssonar, Dr. Becks og Stefáns ritstjóra, og skýrði frá í hyert óefni væri komið fyrir Gretti ræðismanni. Guðmundur dómari Grímsson, sem ávalt er boðinn og búinn til aðstoðar við alt og alla, sagðist halda að hann ætti viðeigandi kraga niðri í íbúð sinni; en þá sprettur séra Valdimar úr sæti og segir eitt- hvað á þessa leið: “Ætli að svír- inn á okkur Gretti sé ekki eitt- hvað svipaður að ummáli, hérna er kragi, sem eg hefi aflögu.” Með þessu var vandamálið leyst; ræðismaðurinn fór með prests- kraga, ekki messukraga, í veizl- una. — Þeir séra Valdimar, Hannes Pétursson og Grettir ræðismað- ur, höfðu verið í New York á fjórða dag, er við Stefán rit- stjóri komum þangað; höfðu þeir vitaskuld farið víða og kynnst mörgu, sem við hinir ekki áttum kost á að færa okk- ur í nyt vegna tímaskorts; eg er ekki forvitinn maður að eðlis- fari og spurðist þar af leiðandi lítt fyrir um athafnir ferðafélaga minna; en einhvern veginn komst eg á snoðir um, að þeir kirkjuhöfðingjarnir, Valdimar og Hannes, hefðu með skjótum at- burðum týnst eitt kvöldið; síðar korost eg að því, að þeir hefðu í einingu andans og bandi frið- arins, farið saman á bíó. Frh. Bókmenntir Sojjanías Thorkelsson: F erðahugleiðingar. Tvö bindi. Columbia Press Ltd. Winnipeg, 1944. Meðan Islendingar vestan hafs semja og gefa út bækur, sem al- menningur kaupir og les, er síður en svo að vér séum á grafar- bakkanum í þjóðræknislegum skilningi, heldur vitnar slíkt miklu fremur um andlega dag- renning, og er þá vel. Þessar Ferðahugleiðingar Sóff- aniusar Thorkelssonar, sem gefn- ar eru út í tveimur stórum bind- um, verða naumast af sanngirni skilgreindar í ritdómsformi, nema því aðeins að nokkur greinargerð á höfundi, aðstöðu í lífsbaráttunni og lífsviðhorfi, verði samferða. Höfundur þessara bráðskemti- legu og fræðandi bóka, er Svarf- dælingur að ætt; um tvítugs- aldur flyzt hann vestur um haf, þrunginn af starfsorku og stað- ráðinn í að ryðja sér braut, hvað svo sem það kosti; hann leitar fyrir sér á mörgum sviðum, geng ur að hvaða verki, sem honum býðst, og blæs ekki í kaun þó stundum sé við ramman reip að draga; hann rekur um hríð matvöruverzlun og sagar síðan árum saman brenni fram á rauða nótt; vinnubrögð hans voru slík, ákafinn slíkur. að maður- inn þótti naumast einhamur; loks finnur hann púðrið, stofnar mikla verksmiðju^og rekur kassa gerð í stórum stíl, uppgötvar nýja tegund tróðs, sem gengur undir nafninu Wood Wool, þar sem notaður er hvers konar úr- gangur frá kassagerðinni, kemst í stórefni, og er þá fyrir nokkru kominn af léttasta skeiði; með svipaðar aðstæður við hendi, setjast margir í helgan stein, líta sigurglaðir yfir starf liðinna ævi- daga, og segja, ef ekki upphátt, þá með sjálfum sér: Sjá, það var harla gott! Engin hugmynd er Sóffaníasi Thorkelssyni fjær skapi, en helga steinshugmyndin; starfið er hon- um alt í öllu; eftir að hann hefir falið sonum sínum á hendur for- stjórn verksmiðju fyrirtækis síns, fer hann til íslands og dvel- ur þar lengi, vitjar átthaganna, sem hann öllum öðrum stöðum fremur ann, ferðast víða um land, og viðar að sér efni í tvær stórar hækur; hann fellur í stafi yfir þeim risavöxnu framförum, sem íslenzka þjóðin hafði tekið frá þeim tíma', er hann fór af landi og leitaði í vesturveg; alt þetta vakti í sálu hans óumræði- legan fögnuð, svo ríkan fögnuð, að hann fann sig knúðan til að lýsa honum að einhverju leyti í bókarformi; þetta hefir hon- um lánast vel, og það jafnvel svo að undrun sætir, er tekið er til- lit til þess, að hann kom ekki einu sinni inn fyrir barnaskóla- dyr á ævinni; hann hefir mikið numið af lífinu og sjálfum sér, býr yfir ríkri ‘athugunargáfu, og honum lætur vel að segja frá. Soffanías Thorkelsson hefir les- ið mikið um dagana; enda sem- ur enginn nýtar bækur, er eigi fylgist að minsta kosti með straumum og stefnum samtíðar sinnar og kynnir sér þær bók- mentir, sem þá eru að skapast. I Ferðahugleiðingum sínum bregður Soffanías upp skýrum myndum úr atvinnulífi líslenzku þjóðarinnar eins og nú hagar til á sviði sjávarútvegs, iðnaðar og landbúnaðar; lýsingar hans og ályktanir styðjast auðsjáanlega við hagskýrslur, og eru þess vegna í megin atriðum ábyggi- legar; hlýtur slíkt að falla í frjóva jörð hjá íslendingum vestra, sem jafnan eru sólgnir í sannfróðleik um hagi stofnþjóð- ar sinnar. Vera má að ýmsum þyki Soff- anías næsta berorður um eitt og annað, sem honum þótti ábóta- vant heima; en ef bersögli og skýr {jómgreind haldast í hend- ur, eins og í þessu tilfelli á sér stað, er um beinan ávinning að ræða. Fjöldi fagurra mynda prýða þessar skemmtilegu Ferðahug- leiðingar Soffaníasar Thorkels- sonar, og eykur slíkt mjög á gildi bókanna. Frágangur bóka þessara er um alt hinn vandaðasti, og því auðsætt af öllu, að ekkert hefir verið til sparað, er gera mætti útgáfuna sem veglegasta. Borið saman við bækur frá ís- landi, eru áminstar Ferðahug- leiðingar sérlega ódýrar, þar sem bæði bindin í úrvals bandi kosta aðeins sjö dollara. Dr. Guðmundur Finnbogason ln memoriam Hann er horfinn af þessum heimi. Sviplegt var fráfall hans. Mörgum finnst erfitt að hugsa sér dr. Guðmund Finnbogason dáinn. Það er von. Hann var maður lífsins, en ekki dauðans. Lífið ólgaði í æðum hans og svall í brjósti hans. Æfistarf hans, rödd hans og mál, þetta var allt tignun og tilbeiðsla til lífsins. Hann sá lífið alls staðar. Lítil staka ólgaði af lífi, þegar hann flutti hana. Lífið sindraði úr auga hans. Það var sólskin í brosi hans. Ævistarf hans var stórt og merkilegt. Það er ekki hægt að rekja það í þessu litla blaði. Þess gerist engin þörf. Hvort- tveggja lifir, ævistarfið og mað- urinn sjálfur í minningu ís- lenzku þjóðarinnar. Hvorugt verður gleyhat. Með lífi sínu bjó hann sér stað, þar sem bezt synir hennar skipa sæti í heimi minninganna. Hæfileikar hans og atgjörfi voru eins og bezt getur orðið. Fræðimennska vit og málsnilld fylgdust að, hug- sjónir vöktu í sál hans. Hann var skáldandi, þótt eigi væri hann ljóðskáld. Eg sakna dr. Guðmundar sárt. Hann var góður vinur. Hann sendi Kirkjublaðinu ritgerðir, mjög vel ritaðar og viturlegar, eins og honum var lagið. Hann hefði gert svo í framtíð, ef hann hefði lifað. Fáir Islendingar munu hafa þekkt íslenzk ljóð betur en hann. Hann dáðist sem kunnugt er, mjög að ljóðum Matthíasar. Hann fór yfir ljóð- mæli hans öll með mér í fyrra vetur með það fyrir augum að velja úr þeim í nýju sálmabók- ina. Þær samstarfsstundir voru unaðslegar. Sál Guðmundar Finnbogason- ar var fastar tengd við hinn heiminn en flestir munu hafa vitað. Hann var trúaður, krist- inn maður. Eg hitti hann ekki alls fyrir löngu á götu. Við töluðum allt af dálitla stund saman, er við hittumst. I þetta sinn var um ræðuefnið dauðinn. Áður en við skildum, sagði hann við mig: “Á eg að segja þér, hvernig eg hugsa mér dauð- ann og ósksfrpér að hann verði? Eg óska mér, að eg fái að ber- ast inn í eilífðarheiminn á geisl- um þeim, er eg sé fegursta á himninum í roða sólarinnar við sólarlag og sólaruppkomu.” Eg flýtti mér heim og skrifaði þessi orð hans niður. Mér fannst eitthvað svo fagurt í þeim. Næst, er hann kom heim til mín, las eg þau fyrir hann og spurði, hvort þau væru ekki rétt eftir honum höfð. Hann undraðist, að eg skyldi hafa far- ið að skrifa þau niður, en sagði, að þau væru hárrétt. Undanfarið hafa verið ein- hverjir 'fegurstu og björtustu dagar, sem menn muna eftir í þessu landi. Sólin hefir hellt ríkulega geislaflóði sínu yfir láð og lög.------ “að eg fái að berast inn í eilífðarheiminn á geislum þeim, sem eg sé fegursta á himnin- um ” Óskir hans hafa rætzt. — Guðmundur Finnbogason var maður lífsins. Hann heldur för- inni áfram, meir að hugsa og starfa Guðs um geim. Við söknum hans samt, er hann hverfur oss sýn — og mest þeir, er næstir honum standa, Iflfl flfl ■ fl flfl '"flfl'fl'fl :fl!fl :fl"flfl flfl ::fl:fl '"■":■ W!'fl<:!l Samkeppni nútímans krefst sérmentunar Æskulýður þessa lands, engu síður en annara þjóða, krefst sérmenntunar, eigi hann að geta staðist próf hinnar ströngu samkeppni á vettvangi viðskiptalífsins, og af þessari ástæðu, er verzlunarskólamenntun í raun- inni óumflýjanleg. Vér höfum nú til sölu nokkur námskeið við fullkomn- ustu verzlunarskóla Vesturlandsins, sem væntanlegir nemendur ættu að færa sér sem allra fyrst í'nyt; þeir, sem slíkt hafa í hyggju, ættu að snúa sér tafarlaust til skrifstofu LÖGBERGS 695 Sargent Avenue, Winnipeg og leita þar nauðsynlegra upplýsinga; það borgar sig!

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.