Lögberg - 28.09.1944, Page 2

Lögberg - 28.09.1944, Page 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. SEPTEMBER, 1944 Kolbeinn Högnason frá Kollafirði: Lýðveldisljóð Íslendinga 17. júní 1944 i. Gakk, íslands þjóð, í huga hrærð í helgidóms þíns lund og drag, er þráð þú frelsið færð, af fótum skó um stund. Nú höfði lút, en lyftu sál og lofa drottinn þinn, sem ganga lét til giftu mál og gaf því sigurinn. Á bak við áþján, eymd og smæð -loks óskafylling bjó. Hvert hjarta, tunga, taug og æð nú tigni Guð í ró. Öll þjóð á lífs síns stærstu stund nú strengi heit um dáð og biðji hann með barnsins lund sitt blessa frelsið þráð. II. Nú loksins — loksins ljómar þessi dagur, sem lengi og mikið fólkið hefir þráð. Nú skín á tinda frelsisröðull fagur, af fullum hug að marki sótt — og náð. Þótt hafi ei staðið blóði sleginn slagur og slungin engin verið búin ráð, þá er nú réttur þjáðrar þjóðar hagur, hið þráða frelsi sótt í trausti og dáð. Vér blessum menn, er lengi þetta þráðu, — sem þorðu slíkt, þótt gætu ei annað neitt.. Vér blessum þá, sem þessu fyrir spáðu, þó þeirra máli yrði ei tilheyrn veitt. Vér blessum þá, er þunga stríðið háðu — er þoldu pústra, smán og spottið eitt. Vér blessum þá, er þessu marki náðu — er þetta mál til sigurs gátu leitt. III. Sundurlyndi sálna og handa sorgum olli, er varð að borga þjóð með löngu, þungu stríði, þjáð og smáð — og orðin að háði. Sundurlyndi sálna og handa settu hana úr allri réttu, drógu hana og véltu af vegi valdið undir harða, kalda. Hvað var, sem olli helzt þeim voða? Höfðingjar, sem erlendis vöfðu valdamenn um fingur — og felldu frelsi lands, — en gáfu því helsi. Yfirstéttir okkar hafa átt þá sök, er þjóð var lökust: Valdið erlent æðra töldu órum rétti í málinu stóra. Yfirmenn! Hér yður er gefin ærin sök, ef rétt ei væri. Þér eigið verðir þjóðar að vera, þekkja rétt — og síður að blekkjast. Ber ei yður einkum að vera ungu frelsi á leiðinni þungu vitar þeir, sem vökulir geta varið land — og þjóð frá strandi? IV. Það ætti naumast illa við, er örlög slík skal móta, að horfa um þjóðlífs helztu svið og hugsa ráð til bóta, að sjá þann feng, sem falinn er í frónskri mennt og seiglu, því þróun okkar þekkja ber, er þjððin fer úr deiglu. — Hér ríkir margt, sem rýma á, ef rísa á þjóðarmenning, og heimsku marga er hægt að sjá í hálfra siða kenning. Ef byggja vill í framtíð Frón um frelsið öruggt vígi, má þjóð ei blinda sannleikssjón með siðafægðri lýgi. Hér greina þarf frá röngu rétt, að ráði siðir lögum, fá æðra mat á yfirstétt og álþýðunnar högum. Hér rísi alda réttar sterk er röngum málstað hafni og stöðvi okkar ólánsverk í apaspilsins nafni. Flest meinin koma að ofan enn í okkar sundurgreining. Hvort vantar hér ei mest þá menn, sem mynda þjóðareining? Hvort sigldi ei hver hér stjórn í strand með sterkan gjóst í fangi, ef ósæmd dragi ei ýmsa í land á eiturlyfja prangi? Hér fremur vantar fórn en auð og fremur vilja gæði, því oft er þjóð í ýmsri nauð, þótt einstaklingar græði. Hér enginn byggi auðsins hring með okurkarla striti, hann alltaf verði afleiðing af iðju, göfgi, viti. Hér vantar trú og tiginn sið, er takmörk þjóðar hefji og henni stefni á hærri svið, er hálfleik allan skefji. Þótt trú af samtíð sé ei hælt og sjáist stefnur tvennar, mun þjóð ei lengi sigursælt neitt siðgæði — án hennar. Ef ætti kraftamagn mitt mál, eg mundi á heilladegi nú þrýsta trú í þjóðarsál, sem þrautir hræddust eigi, sem stóra bæri stefnu í sér, er styrkti ræktarbandið, það trú á guðiegt athvarf er og unga, frjálsa landið. V. Fjallkonan fögur er enn með feiknaþrunginn útsæ í kringum, víðsýnin voldug og há, vöggu hins frjálsborna manns. Henni skín frelsið um fjöllin, sem framsækni barnanna vekur, fyllir með fegurð hvern lit, fögnuðinn magnar hjá þjóð. Vaknað er fólkið til fórna og fagnar að mega nú vinna loksins 1 landinu frjálst, leiða til sigurs þess mál. Vaknið nú vitrustu menn til verka á frelsisins degi. Afneitið allir í dag ofríki hagsmuna-valds. Sýnið, að íslenzkur aðall sé eining og manndómur fórna, ekki nein músanna mið, mótuð af ágirnd og heift. Sameinist sjálfir þið fyrst, þá sameinast þjóðin að bragði. Vekið upp menningarmál, miðuð við þroskaða heild. Strengið nú háleitust heit að hefja á þessari stundu fórnanna víðsýnu verk, vakin af samtaka ást. Blekking hrapi, að borgir skapi bezt upp þjóð. Hættum glapi hress í móð. í bæjum tgpast táp — og apast, tærist þjóðarblóð. Deyja dáð — og ljóð. ♦ Landið kalli ykkur alla út í stríð, upp til fjalla og inn um hlíð. Stóruvalla vinir snjallir vakni á heillatíð, vinni löndin víð. VII. Fáni íslands frjálsu vona fjallalandsins dætra, sona, frelsistáknið fríða! Tak hvern sannleik, hugsjón heiða hlýtt und vængi þína breiða, styrktu þjóð að stríða. Gnæf í blátt heiðið hátt, ^heill oss flyt og mátt. Beindu þjóð til hafs og heiða hreinn — í ljóssins átt. Aldrei skal hann blóði blettast, borinn fyrir málið, réttast. Vernd hann, Drottinn, vígum. Mætti hann göfga hvatir hinna, hans til verndar megum finna, unz að öllu við hnígum: Glæðá trú, göfga lýð, græða hrjóstur víð. Honum skulum verkin vinna vökul alla tíð. Fá og smá þótt fánann berum, fyrirmynd þeim stærri verum, hvergi af hólmi flýja. Vörnin Egils eins við tuginn örvi jafnan landans huginn heila dáð að drýgja. Himinvöld hefji öld, hreinsi þjóðarskjöld, blessi fánann, frónska duginn fram á tímans kvöld. VIII. Við elskum þig, móðir! Þann eið vinnum nú, er örlög þig leysa úr dróma, að vinna þér samhent og vera þér trú og verða þér jafnan til sóma, að Guði næst heilögum heiðruð sért þú í hlýindum bæna og dóma. — Þar breyting sé unnin til blessunar sú, er bregði á sæmd þína ljóma. Dásemd er Þingvalla í dag dýrðlegri en nokkurri sinni. Framtíð og fortíðin glæst faðmast á heilagri stund. Fagra landið frelsisbandið fái hnýtt, þess sé vanda af virðing hlýtt. Sterkir andar stórra sanda styrmt við haf og vítt, hefji hlutverk nýtt. Hrindið drunga, höfgum þunga, hvessið brá. Frelsið unga ekki þrá. Magni þrungin móðurtungan manndóm kalli á, töfri takmörk há. Leiti áttar leyndar máttur, löngun heit. Frelsi og sátt þann fríkki reit. Fjallið hátt og hafið blátt þar hjálpi til í leit, dáð að drýgja í sveit. Meiri en endur undir rendur eggjan gól. Grund og strendur gyllir sól. Frjálsar hendur færi út lendur, fegri ættarból, nyrst við norðurpól. Við elskum þig móðir! Það ekkert skal gert, er orsaki, að sundrungin dafni. Það allt, sem fær talist til árangurs vert, skal unnið til lofs þínu nafni, og'granda því öllu, sem gæti eitthvað skert þitt gildi — og ást þinni hafni, svo árið þér verði til ávinnings hvert og öryggi frelsið í stafni. Við elskum þig, móðir! Þinn heiður, þinn hag af heilindum barnanna góðum. Allt fálm okkar menningar fært verði í lag með fórnandi dyggðunum hljóðum. Að hefjist hér þjóðlíf með heilsteyptum brag við hendur til átaka bjóðum, svo fáir þú séð allrar framtíðar dag sem frjálsust og göfgust með þjóðum. Við elskum þig, móðir! Hver draumur, hver dáð skal dómur um rækt okkar vera, að öll okkar viðleitni verði því háð þinn veg fram til sigurs að bera. Er dagsverki er lokið og lausnum er náð, . þá leyfðu okkur það eitt að gera: að frjóvga í mold þinni falin þati sáð, sem framtíð má ávexti af skera. Tíminn, 17. júní. mánuði — gefið kafbátum og flugvélum veðurfregnir — áður en hún var eyðilögð af Banda- ríkjahernum. Þeir, sem fyrstir urðu varir við innrásarmennina voru þrír menn úr “Greenland Sledge Patrol”, sem er grein úr Banda- ríkjahernum, er samanstendur af frjálsum dönskum borgurum, sem stöðugt eru á verði gegn óboðnum gestum inn í hið kalda og fámenna Grænland. Danirnir voru á verði meðfram austurströnd Grænlands. Þegar þeir nálguðust útvarðarstöðina á venjulegri gæsluferð sinni, sáu Þýzk “innrás’ í Grænland og hernaðaraðgerðir Bandaríkjahers Hraumur Nazista um innrás á vestur hvel jarðar, rættist vorið 1943 — en var að engu gerður litlu síðar, fyrir tilverknað sprengjuflugvéla Bandaríkja- hers og strandvarnarliðssveita. Innrás Þjóðverja var í því fólg- in, að þeir komu fyrir veðurstöð á óbygðri strönd Grænlands. Á- litið er, að hún hafi starfað í tvo

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.