Lögberg - 28.09.1944, Side 3

Lögberg - 28.09.1944, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. SEPTEMBER, 1944 þeir tvo ókunna menn koma út úr kofa þar og halda til fjalla. Pegar þeir komu til stöðvarinn- ar fundu þeir tvo svefnpoka og grænan einkennisbúning með þýzka erninum og hakakrossin- um, tvo þýzka rýtinga og nokk- uð af matvælum. Þeir sneru síð- an sem skjótast suður á bóginn, með fréttirnar, og bjuggust eftir föngum til þess að verjast á leið- inni, þar eð þeir vissu, að þeim myndi verða veitt eftirför. Kvöld eitt, nokkrum dögum seinna, heyrði einn varðanna fóta tak nálgast stöðina. Hann skaut viðvörunarskoti, en Þjóðverjarn- ir svöruðú\með skothríð úr sjálf- virkum riflum og vélbyssum. Þegar Danirnir sáu, að þeir yrðu ofurliði bornir, yfirgáfu þeir stöðina og flýðu suður á bóginn. Seinna var annar maður úr njósnarflokknum drepinn, Dani að nafni Eli Knudsen, þegar hann nálgaðist sæluhús sem Þjóð verjar höfðu tekið. Hann heyrði ekki skipunina um að nema staðar, þar eð hann var vafinn í skinnfeldi vegna hríðarveðurs, og hélt því áfram. Þegar Þjóð- verjarnir skutu hund hans, ætl- aði Knudsen að grípa til byssu sinnar, en var særður ólífssári áð- ur en hann fékk svigrúm til þess. Daginn eftir féll Marius Jen- sen, einnig úr njósnarflokknum, í gildru, þegar hann hélt að hundar Þjóðverja væru hundar Knudsens. Nazistarnir höfðu á- kveðið að eyðileggja varðstöð á eyju þar rétt hjá, og báðu Jen- sen að fara með sig þangað, styttstu leið. Hann gat talið þýzka liðsforingjanum trú um, að ferðin yrði fljótar farin í tvennu lagi, og sendi annan hóp- inn á undan, leið, sem var miklu lengri, en fór sjálfur á eftir með þýzka foringjanum. Við fyrsta tækifæri réðist hann á þýzka for- ingjann, náði af honum byssunni og tók hann til fanga. Eftir meira en 300 mílna ferðalag kom Dan- inn síðan með fanga sinn á út- varðstöð hersins. Þegar fréttin um þennan leið- angur Nazista barst til aðalstöðva Bandaríkjahersins, var strax haf- inn undirbúningur undir að eyða honum. Flugvélar hersins réðust á svæði þau, er Þjóðverjar höfðu hernumið og fluttu vistir og skot færi til strandvarnarskipanna tveggja “Northland” og “North Star”. Sérstaklega æfðar iand- göngusveitir strandvarnarliðsins voru reiðubúnar, ef til átaka kæmi. En leiðangurinn byrjaði heldur óheillavænlega. Stuttu eftir að skipin lögðu af sfað, flæktust þau í geysilegri ísbreiðu, og nokkrir verðmætir dagar liðu, áður en þeim tókst að losa sig aftur. Það lá við, að “North Star”, sem fræg er fyrir viður- eignir sínar við hafís, bæði á friðar- og ófriðartímum, háði sína hinstu orustu við ísinn, í það sinn. En henni tókst þó að sleppa, með brotið stefni. Þegar vindstaðan breyttist og ísinn greiddist sundur, varð hitt skipið, “Northland” að snúa við og fylgja hinu laskaða systurskipi sínu til flotabækistöðva, til viðgerðar. Þegar “Northland” var að reyna að komast fram hjá ann- ari ísbreiðu, breytti skipið um stefnu, svo það fór ekki allfjarri ströndum Norður-Evrópu. Varð það þá á vegi tvíhreyfla könn- unar flugvélar þýzkrar. Flug- mennirnir komu auga á skipið og nálguðust það, til þess að gá betur að. En þegar loftvarna- sprengjur úr byssum Northlands tóku að springa óþægilega nærri flugvélinni, sneri hún við og hvarf brátt sjónum. Nokkrum dögum seinna festist Northland aftur í ísbreiðu, þannig að sprengja þurfti göng fyrir það í ísinn, með hálfpunda sprengjum. Loks komst North- land út í auðan sjó en gufupíp- ur og ljóstæki var bilað. Nú nálguðust Bandaríkjaher- sveitir herbúðir Nazistanna. Sam kvæmt áætlun komu sprengju- flugvélar og gerðu loftárás á herbúðirnar og gjöreyddu þeim. Skeyti voru send frá flugvélun- um þess efnis, að enginn lífs- vottur væri á eyjunni eða í hinni gjöreyddu dönsku stöð, 30 mílum sunrnar. Skipið braust síðar í gegnum ísbreiðurnar og komst upp að ströndinni. Á stöðinni var enginn lífsvottur. Þegar land göngusveitirnar gengu á land, komust þær að raun um, að flugvélar hersins höfðu ekki svikist um að gera það sem þeim var ætlað. Ekkert.hús var uppi- standandi. Björgunarbelti og brot úr björgunarbát voru fros- in í ísnum. Allstaðar. mátti sjá sprengjugýgi, sem frosið hafði yfir, þannig að umhverfið alt líktist mest landslagi í tunglinu. Sprengjuhrúgur sáust á víð og dreif. Einnig sáust 20 mm. sprengjubrot, sem sýndu að Þjóð verjarnir höfðu þó leitast við að verja bækistöð sína. Það sem flugvélarnar ekki Æfiminning Sigurður Jóhannson Sú sorgarfregn barst þeim hjónunum, Mr. og Mrs. Ingó'lf- ur E. Johannson í Riverton, Man., að sonur þeirra Sigurður hefði gerðu, höfðu þýz'ku nazistarnir fallið yfir Frakklandi þann 23. gert. Öll hús eyjarinnar höfðu ágúst s. 1. verið brend. Fyrst í stað rugl- aði sú staðreynd landgönguliðið, að þótt flest tæki bækistöðvar- innar hefði verið eyðilögð var annað efni óhreyft. Eftir vand- lega leit fundu þeir óskemda einkennisbúninga og annan klæðnað og mikið af matvöru, þar á meðal danskt smjör. Og einnig sáu þeir, að þótt vélar og önnur tæki virtust ónýt, við fyrstu sýn, myndi góður raffræð- ingur geta komið þeim í lag, á skömmum tíma. Þjóðverjarnir höfðu augsýnilega ætlast til þess, að könnunarflugvélar eða fá- menn landgöngusveit álitu bæki stöðina gjöreydda, og yfirgæfu hana þess vegna án frekan at- hugunar. Um kvöldið fór landgönguliðið um borð í Northland, en C. C. von Paulsen, kapteinn, kaus að dvelja í ströndinni yfir nóttina, ásamlf tveim mönnum öðrum, til þess að halda áfram lfeitinni. Leitarskilyrði voru ágæt, þar eð nú var bjart allan sólarhringinn. En strandvarnarliðsmennirnir þrír vissu lítið um það, að þessa nótt komust þeir í hann krapp- an. Seinni hluta næsta dags, varð einum strandvarnarliðsmann- anna heldur hverft við, þegar hann heyrði fornfálegan gramo- fón garga þýíkan söng. Þegar hann athugaði þetta nánar, fann hann þýzkan liðsforingja- lækni að nafni Dr. Rudolph Sennse — þar sem hann sat hreyfingarlaus á kletti, með grammofón í fanginu og hand- sprengju í hendinni. Þegar hann hafði gefist ,upp, sagði Dr. Sennse þeim, að hann hefði mist hunda sína og sleða nið ur í jökulsprungu og þegar hann hefði komist til herbúða sinna, hefði það eins verið til þess að finna amerísku tjöldin á ströndinni. Reiður mjög hefði hann síðan leitað að vopni til þess að greiða með síðasta högg- ið fyrir föðurlandið, en aðeins fundið eina handsprengju. Hann fékk aldrei tækifæri til þess að nota hana, þar eð von Paulsen og félagar komu aldrei nógu nærri honum. Áður en herflokkurinn yfirgaf bækistöðina fékk hann frekari sannanir fyrir því, að einhverjir hinna þýzku innrásarmanna væru enn á lífi. Meðfram strönd- inni fundu þeir gúmmíbát og stálkassa með handsprengjum í. Á pappaspjald voru skrifuð skilaboð á þýzku, sem greini- lega höfðu verið ætluð Dr. Sennse. Þar stóð: “Þú veist, hvert við höfum farið.” Þar var einnig nákvæmt kort, sem á voru merktir þeir staðir, þar sem mat- ur og skotfæri hafði verið fal- ið á. Daginn eftir var síðan unnið að því að grafa birgðir þessar upp, en það voru radíóloftskeytatæki, handsprengjur, riflar, skotfæri, niðursoðinn matur og hlýr fatn- aður. Flugvélar frá Northland kannaði svæðið mjög vandlega, Sigurður Jóhannson var fædd- ur 28. jan. 1921 í Árborg, Man. Hann fluttist til Riverton ásamt foreldrum sínum fyrir fimtán ár- um síðan, þar , gekk hann á barnaskóla og háskóla og lauk þar námi úr ellefta bekk. Hann gerðist sjálfboðaliði í canadiska hernum fyrir tæpum tveimur árum síðan, fór yfir til Evrópu í fyrra, fór með innrásar- hernum til Frakklands og féll 23. ágúst. Hann var Corporal í liðsveit sinni. Aldur þessa unga manns varð ekki langur og saga hans ekki löng. Eins og þúsundir annara ungra manna hverfur hann af sjónarsviði þessa lífs á unglings- aldri. En þótt æfisagan sé stutt þá er hún engu að síður merki- leg. Hann tók þátt í, og féll í þeirri baráttu, sem ætíð hefir verið háð af beztu mönnum kyn- slóðanna. Baráttunni fyrir hug- sjón frelsis og réttlætis á þess- ari jörð, svo að aðrir mættu lifa frjálsir við kúgun og ofbeldi, harðstjórn og illvilja. Kunningjar og vinir Sigurðar Johannsonar munu minnast hans og sakna. Hann var góður ung- lingur, vingjarnlegur í framkomu og glaðlyndur, vel skynsamur og gott mannsefni. En sárastur harm ur er kveðinn að systkinum hans og foreldrum. Hann var foreldr- um sínum góður sonur. Er það eitt til marks um ræktarsemi hans, hve oft hann skrifaði mömmu sinni, til að láta hana vita hvernig sér liði og gengi, og létti þannig áhyggjur hennar, sem eðlilega voru þungar, í því- líkri hættu, sem hún vissi hann staddan. Alt sem hún og faðir hans eiga eftir er minningin um ást- kæra drenginn, sem þau höfðu tengt svo margar vonir við. Þær vonir eru dánar með honum, en minningin lifir og sú huggun, að þótt sagan hans væri stutt var hún göfug. E. J. Melan. svo að Þjóðverjar hafa falið sig vel, ef þeir hafa verið á lífi. Allan tímann, sem herliðið dvaldi í bækistöðinni, voru þýzk- ar flugvélar á sveimi þar fyrir ofan. En þær gerðu enga árás, voru sennilega ekki nógu margar. Ameríkumennirnir dvöldu í bækistöðinni þar til matarþirgðir skipsins voru þrotnar, en héldu þá heim á leið. Bæði Northland og North Star festust í ísnum á leiðinni, en tókst þó loks að ná örugglega í höfn. Heyrðist þá einn her- mannanna varpa öndinni fegin samlega og segja: “Jæja, þá er það búið”. En eina athugasemd skipshafnarinnar var “E-mo-gah” — sem á grænlensku þýðir “kannske”. Lesb. Mbl. Minni kvenna Flutt á samkomu 'veturinn 1943 af Árna Björnssyni, kennara á Reistará, í Eyjafirði. Merkur heimspekingur hefic látið svo um mælt, að rithöfund- ar spilli öllu því, sem þeir rita um. Væri nú þetta svo um rithöf- undana, mundi ekki vera fjarri lagi að álykta þannig, að þeir, sem takast á hendur, að tala um eitt eða annað, og oft án þess að kryfja það til mergjar að nokkru ráði, myndu fremur spilla en bæta. Það vakti mér því enga þæg- indatilfinningu, þegar þessi um- mæli hins mikla spekings rifj- uðust upp fyrir mér, er eg fór að hugsa um, hvað eg skyldi segja hér í kvöld um kvenfólkið, sem eg hafði verið beðinn að minnast. Hjá mér vöknuðu spurningar um, hvort eg mundi nú spilla fyrir sjálfum mér eða öðrum gagnvart kvenfólkinu, eða hvort eg mundi spilla því sjálfu bók- staflega talað. — Hvort eg mundi e. t. v. skapa eitthvert ástand, sem máske væri ennþá athuga- verðara en það sem fyrir er. — Og í huganum heimskaði eg sjálfan mig fyrir, að hafa nokkru sinni látið mér til hugar koma að tala um konur, því eg fann að það var allt annað en að tala við þær. — Og hvernig átti eg svo að tala um konurnar. Átti eg að tala um nútímakonuna, eins og henni er stundum lýst: mál- aða og klipta, lausklædda og léttfætta, trítlandi og támjúka, ástleitna og til alls búna, eink- um þess, sem karllegt er, án þess þó að það sé ætíð karlmannlegt. — Eða átti eg að tala um mið- aldakonuna: fátæka og frost- bólgna, raunamædda og rétt- lausa, bogna og beygða, andlega og líkamlega? — Eða var ekki réttast að tala um fornkonurnar, eins og sögurnar lýsa þeim — þeim helstu — stórbrotnum og sterkum, djörfum og drenglynd- um, hugprúðum og hraustum í hættum og mannraunum. En var þetta ekki — þegar betur var að gáð, sama persón- an? Var ekki insti kjarninn sá sami, þótt trú og venjur aldanna hefðu breytt hinu ytra? — Skyldi litla stúlkan á söguöld ekki hafa átt svipaðar þrár til þess að lifa og njóta eins og litla stúlkan í dag? Átti hún ekki löngun til þess að vera frjáls við leiki og störf. Heillaðist ekki hugur henn- ar af fegurð og gleði þá, eins og nú? Kom hún ekki hrifin af unaði síns takmarðaða skilnings og barnslegu drauma, léttstíg eins og sólargeisli á straumgára og þráði að vefja sig að fangi föður og móður, eða fóstru, sæl á sál og líkama af bernskunnar himnesku dýrð? — Hafði hún ekki þörf fyrir hluttekningu og alúð, þegar litla hjartað titraði af sorg og tárin hrundu þung og þétt, alveg eins og litla stúlkan okkar í dag? Og hvað á eg að segja um æskumeyjuna? Er hún ekki á öll um öldum lík? Átti hún ekki á sögu- og miðöldum sömu þrár og sömu drauma eins og nútíma stúlkan unga? — Hún var þá' að vísu bundin ýmiskonar erfða- venjum, sem á margan hátt tak mörkuðu frelsi hennar og fóru svo oft í bága við það, sem hug- ur hennar stóð til. En hin insta þrá hennar til lífsins hefur áreið- anlega verið svipuð þá eins og þrá ungu stúlkunnar í dag. Sál hennar dreymdi þá og dreymir enn um alt það fegursta, sem að nokkru leyti vitsmunir hennar, en þó einkum tilfinningar henn- ar, sjá hilla undir í litskrúða heillandi fjarlægðar. Og þessar sýnir og þessir draumar spegla sál hennar í bliki blárra hvarma og brosi um rjóða vör. — Þeir voru eins og geislaþræðir, sem lágu frá hjartanu út í umhverfið, lýstu. það og yljuðu, en í brennidepli allra þessara geisla stóð ein vera, goðborin og glæsileg, jafnvel þótt hún væri tötrum búin, og^hún ein átti allar leiðir að hjarta hinnar ungu meyjar. — Og þessi vera var og er enn í dag karl- maðurinn. — Skyldu ekki sorgir og vonbrigði, svik og óhamingja verka eitthvað líkt á konuhjart- að á hvaða öld sem það slær? — Nei, unga stúlkan er ekki stórum öðruvísi nú en hún hefir verið á öllum öldum, að öðru leyti en því, að nú er hún frjáls, en ekki hnept í fjötra, sem mein- ar henni að lifa eins og hugur og hjarta þráir. En frelsið leggur- henni, eins og öllum öðrum, skyldur á herðar, sem ekki verða sniðgengnar nema til þess, að afleiðingarnar verði böl, and- leg og líkamleg ánauð. — En hverjir kunna að þræða þann gullna meðalveg, sem liggur milli frelsis og ánauðar? Verður ekki of mörgum fótaskortur á þeirri mjóu skör, þegar hillingar daumblárra undraíanda blasa við á aðra hlið, en hamrar hins ís- kalda veruleika á hina? Og nú kemur ein spurning enn. Hvernig var og hvernig er hin fullþroska kona? Eiginkon- an og móðirin. Er hún eitthvað öðruvísi í dag en áður fyr? Eru ekki þeir eiginleikar, sem mestu ráða um áhrif hennar og fram- komu, þe'ir sömu og áður? Br^nna ekki eldar móðurást- arinnar enn í 'dag jafnskært og hlýtt í sál hennar og fyr? Birtist ekki guðseðli hennar þar enn Frh. á bls. 7. Phone 49 469 Radio Service Specialists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG MANITOBA FISHERIES WINNIPEG, MAN. T. Bercovttch, framkv.st). Verzla I heUdsölu meö nýjan og írosinn fisk. 3ð3 OWENA ST. Skrifstofusími 25 355 Heimasími 55 463 Blóm slundvíslega afgreidd THt ROSERY StofnaB 1905 427 Portage Ave. Winnipeg. LTD. G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. S. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Wholesale Distributors FRESH AND FROZEN of FISH EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. % íslenzkur lyfsali Pólk getur pantaS méöul annaö meö pösti. Fljöt afgreiösla. og J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENtJE BLDG., WPG. • Fasteignasalar. Leigja hös. Ot- vega penlngalán og eldsábyrgö. bifreiðaábyrgö, o. s. frv. Phone 26 821 TELEPHONE 96 010 H. J. PALMASON & CO. Chartered Avcountants 1103 McARTHUR BUILDING WINNIPEG, CANADA Legsleinar sem skara framúr Orvals blágrýti og Manitoba marmarl SkrifiO eftir verOskrd GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. DR. A. BLONDAL Physician & Surgeon 802 MEDICAL ARTS BLDG. Slmi 22 296 Heimilí: 108 Chataway Slmi 61 028 Frá vini 'CS >tiulios -Ctdo »d PhotoouwhicOujamiatumTh Cmada *>HONE 96 647 CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. Page, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St. Office Phone 86 661. Res Phone 73 917. Office Phone 88 033 Res. Phone 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 166 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment ANDREWS, ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON LögfræOingar 209 Bank of Nova Scotia Bld*. Portage og Garry St. Sími 98 291 DR. A. V. JOHNSON Dentist 606 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 202 398 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar • 406 TORONTO GEN. TRCST8 BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith 8t. PHONE 26 545 WINNÍFÖÖ A. S. BARDAL (48 SHERBROOK ST. Selur Ukkistur og annast um flt- farir. Allur útbflnaöur sá bestl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvaröa og legstelna. Skrifstoíu talslml 86 607 Heimilis talslmi 26 444 DR. ROBERT BLACK Sérfræöingur I Augna, Eyrna, nef og hálssjúkdómum 416 Medieal Arts Building, Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 22 251 Heimasími 42 154 Dr. S. J. Johann®sson 215 RUBY STREET (Betnt suöur af Banning) Talslml 30 877 Viötalstlmi 3—5 e. h. GUNDRY & PYMORE LTD. Brltish Quality — Fish Netttag 60 VICTORIA STREET Phone 98 211 Winnipeg Manager, T. R. TBORVALDBOM Your patronage will be appreciated

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.