Lögberg - 18.01.1945, Side 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 18. JANÚAR, 1945
5
ÁHIGAMÁL
IXVCNNA.
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
“Family Allowances Act”
Fjölskyldu styrkur var lög-
leiddur í Canada í ágúst s. 1.
Þjóðfélagið í heild sinni tekur
þannig á sig, nokkuð af þeirri
byrði, sem fram að þessu hefur
hvílt eingöngu á foreldrunum, í
sambandi við uppeldiskostnað
barnanna.
Byrjað verður að greiða mánað
arlegan styrk 1. júlí 1945, til
allra foreldra sem eiga börn inn-
an 16 ára að aldri.
Hinn mánaðarlegi styrkur er,
sem hér segir:
$5.00 fyrir börn innan 6 ára að
aldri.
$6.00 fyrir börn á aldrinum 6
til 10 ára.
$7.00 fyrir börn á aldrinum 10
til 13 ára.
$8.00 fyrir börn á aldrinum 13
til 16 ára.
Styrkurinn er lækkaður um
$1.00 á mánuði fyrir fimta barn-
ið, $2.00 fyrir sjötta og sjöunda
barnið og $3.00 fyrir áttunda og
öll fleiri börn.
Það sem hefur verið dregið frá
fyrir börn í Income War Tax
Act, verður jafnað, til þess að
afstýra tvöföldum hlunnindum.
Fjölskyldu styrkurinn er að
Vísu ekki hár, enda er ætlað að
hann sé aðeins viðbót við það
sem heimilisfaðirinn getur afl-
að. En þótt styrkurinn sé ekki
mikill, getur hann orðið að veru-
legu liði á barnmörgu heimilun-
um, þar sem hans er mest þörf.
Hann er mikið framfaraspor að
því leyti að með þessu er kann-
ast við þann sannleika að þjóð-
félaginu í heild sinni beri að
bera nokkuð af þeim kostnaði,
sem því er sa^ifara að ala upp
framtíðar borgara landsins.
Samkvæmt skýrslum sem birt-
ar voru síðastliðið ár, sér 17%
af því fólki, sem vinnur fyrir
kaupi, um uppeldiskostnað 84%
canadiskra barna.
Tilgangurinn með þessari nýju
löggjöf er vitaskuld sá, að reyna
að tryggja það að fátæk, barn-
mörg heimili geti veitt börnun-
um nægilega fæðu og sæmilegan
fatnað.
í síðasta blaði var lítillega
vikið að hinum erfiðu kringum-
stæðum barnmargra mæðra, sem
ekki geta fengið nokkra aðstoð
við heimilisstöffin og verða því
að ganga fram af sér við vinn-
una. Þessi styrkur gæti ef til
vill orðið til þess að þær gætu
veitt sér einihver þau tæki, sem
þeim hefur verið um megn að
kaupa áður — tæki, sem létta
undir með þeim og gera hús-
verkin auðunnari og matar-
geymslu öruggari, svo sem þvotta
vélar, strauvélar, kæliskápa o. s.
frv. Það er einmitt á hinum barn
mörgu heimilum, sem þörfin er
mest fyrir þessi tæki.
Til þess að afstýra því að
nokkur dráttur verði á greiðslu
þessa styrks, ættu foreldrar að
sja um að fæðing hvers barns
sé þegar skrásett hjá Vitai
Statistics deildinni, og séu þau
i nokkrum vafa um skrásetningu
barnanna, ættu þau að skrifa
Dept. of Helth and Public Wel
fare, Vital Statistics í sínu fylki
°g láta fylgja nafn, fæðingar-
dag og fæðingarstað hvers barns,
úsamt nöfnum foreldra.
Ef foreldrar athuga þetta
strax, munu greiðslur ekki drag-
ast eftir að þessi lög ganga í
gifdi 1. júlí 1945.
Þættir um mataræði
Miðdegisverður skólabarna.
Börn borða einn þriðja af
þeirri fæðu sem þau þarfnast dag
fega um miðjan daginn. Athug-
FráiVancouver, B.C.
ið nestið sem börnin fara með í
skólann. Er í því of mikið af
sterkjuríkum mat og sætindum
og of lítið af hinum fæðuefn-
unum? Til þess að vera viss um
að næringarþörf barnanna sé
fullnægt, sjáið um að í nestis-
kassanum sé einhver tegund af
mat úr öllum þessum þrem flokk
um:
I. Kjöt, jiskur, egg eða ostur.
Þessi matur er settur milli
smurðra brauðsneiða eða mat-
reiddur á annan hátt og látinn í
krukkur og hitaður upp, í skólan-
um. Brún brauð eða Vitamin B
brauð (Canada approved). *
II. Ávextir og grænmeti.
(helst eitt af hvoru).
A. Ávextir, nýjir eða niður-
soðnir í glerkrukkum. Salad.
B. Grænmeti, hrátt, skorið nið
ur eða matreitt og sett í mjólk-
ursósu (cream sauce) og hitað
upp, í skólanum.
III. Mjólk.
Mjólk, sem drykkur eða í súpur
eða í eftirmat. Mjólkur súpur og
mjólkur drykki er hægt að hita
upp, í skólanum. Til tilbreyting-
ar mætti hafa mjólkur pudding
eða custard.
Aldarafmæli
Enginn leikari eða leikkona
hefir nokkru sinni vakið aðra
eins hrifningu né neitt svipaðar
deilur víðs vegar um hinn mennt
aða heim eins og Sarah Bern-
hardt, franska leikkonan heims-
fræga, sem átti aldarafmæli í
síðasta mánuði. Eitt'hvað af þessu
mun mega rekja til þess, að
margar þjóðir áttu ítök í henni,
þar sem hún var Frakki, Júði
og Hollendingur að ætterni, ann-
að til þess, að hún varð fræg 1
París a. m. k. áður en hún vann
fyrstu sigra sína á leiksviði. Þeim
árangri náði hún m. a. með ýms-
um sérkennilegum tilburðum,
svo sem að láta taka mynd af
sér í líkkistunni eða með því að
safna að sér alls konar sérkenni-
legum kvikindum, og hafa þau
heima hjá sér sem eftirlætisgripi.
En lykillinn að frægð hennar og
snilli er að finna í töfrandi rödd
hennar og framsögu og tígulegri
og heillandi hreyfingu og fram-
komu á leiksviðinu, og þó ef til
vill helzt j iðni og staðfestu.
Þessum árangri varð ekki náð
fyrirhafnarlaust. Þungamiðjan í
list hennar var iðni. Þótt hún
yrði leikstjarna í einu vetfangi,
þá má ekki skilja það svo, að
þeim árangri næði hún fyrir-
hafnarlítið. Á bak við það lá 12
ára þrotlaust starf og barátta í
tveimur höfuðleikhúsum París-
arborgar, Comédie Francaise og
Odéon. Hún hófst fyrst til vegsu'
heimi leiklistarinnar fyrir leik
sinn í “Zaire” eftir Voltaire, en
enn liðu fimm ár áður en hún
næði tindi frægðar sinnar og
snilldar. Það má því segja, að á
bak við sigra hennar lægi 17 ára
þrotlaus barátta og uppbygging,
unz fullkomnuninni varð náð.
Hinn heillandi og töfrandi
leikur hennar, sem virtist svo
eðlilegur og fyrirhafnarlaus, var
raunverulega ávöxtur óskaplegr-
ar fyrirhafnar. Hver hreyfing,
hvert orð og látbragð var vand-
lega mælt og vegið, æft og fágað,
unz misfellulaust var og meitlað
svo í meðferð hennar, að hún gat
vakið slík atriði til lífs aftur og
aftur með margra ára millibili og
mótað þau í huga þeirra, sem
sáu eins og fagra mynd. Jafnvel
hin dásamlega framsagnarlist
hennar, sem gerði henni mögu-
legt að halda áhorfendum sem
12. janúar 1945.
Herra ritstjóri:
Þótt ekki sé um nein stórtíð-
indi héðan að ræða, þá er samt
ýmislegt hér að gjörast sem les-
endum Lögbergs máske þykir
fréttnæmt, því margir fyrir aust-
an fjöllin, eiga hér ættfólk vim
og kunningja, svo þeim þykir
gaman af að heyra um sumt af
því sem hér er að gjörast. í þeim
tilgangi eru þessar línur ritað-
ar.
Nokkru fyrir jólin kólnaði tíð-
in, svo þokan varð að hopa af
hólmi, og dálítið frost var um
nætur, urðu þá margir til að spá
því að nú hefðum við hvít jól,
en sá spádómur reyndist ómerk-
ur, því hér voru græn jól, eins
Og oftast á sér stað, og er eg
vel ánægður með það, fyrir mig.
Nú er mikið minni þoka en var
fyrir jólin, og eru líkur til þess
að það verði nú minna um hana
það sem eftir er af vgtrinum.
I Victoria og á suðurparti Van-
couver eyjunnar kom dálítil föl
fyrir jólin, svo þeir þar, segjast
hafa haldið upp á hvít jól.
í bæjarkosningunum, sem fóru
hér fram 11. des., voru flestir
endurkosnir í bæjarstjórnina.
Allir C.C.F. frambjóðendurnir
töpuðu, nema einhverjir af þeim
komust að í skólastjórn, og í
Park commission. Hefði ekki
forsjónin hagað því ’svo til að
það var ein sú mesta þoka hér
kosningadaginn, sem komið hef-
ur þetta haust, svo þúsundir af
verkafólki komst ekki á kjör-
staðina til að greiða atkvæði sín,
er mjög líklegt að útkoman hefði
orðið alt önnur en var. Það er
regla hér að verkafólk vinnur
eins ogaðra daga á kosninga-
daginn, en fer strax úr vinn-
unni kl. 5 e. h. til kjörstaðanna
til að greiða atkvæði sín, og
hefir það lukkast vel áður. 1
þetta sinn er fólkið kom frá
vinnunni var svo þykk þoka að
það hefði mátt moka henni með
skóflu, og öll umferð ómöguleg.
Margir reyndu að fá leigubíla
til að taka sig á kjörstaðina, en
þeir neituðu áð fara út. Svo þarna
strönduðu mörg þúsund atkvæði
verkafólks, sem að öllum líkind-
um hafa flest verið hlyntir C.C.F.
Það er á meðal verkalýðsins, sem
þeir hafa mest atkvæðamagn.
C.C.F. frambjóðendurnir voru
allir í hóp, lítið á eftir þeim sem
kosnir voru. Þeir mega vera vel
ánægðir með útkomuna í þetta
sinn, því þeir bættu víð sig
miklu atkvæðamagni, meira en
þeir hafa áður haft. Þeir ætla
ekki heldur að gefast upp. 1
næstu kosningum munu þeir ná
takmarki sínu.
Þann 29. nóv., hélt kvenfélag
íslenzka lúterska safnaðarins
“Silver Tea”, og sölu á ýmsum
hannyrðum og öðrum munum,
í samkomusal Dönsku kirkjunn-
ar. Var þar komið saman á þriðja
hundrað manns. Mrs. I. C. Ham-
bly forseti kvenfélagsins stýrði
samkvæminu. í nefndinní sem
tók á móti gestunum og bauð þa
velkomna voru: Mrs. Ivan C.
Hambly, forseti, Mrs. John
Sigurðsson og Mrs. Dr. P. B.
Guttormsson.
Konurnar, sem stóðu fyrir söl-
unni voru:
Mrs. G. F. Sanders, Silver Tea.
Mrs. J. Johnston, Hannyrðum.
Mrs. I. Skordal, Home cooking.
Mrs. Norman Ogg, White elep-
hant sale.
dáleiddum, hvort heldur sem
hún hvíslaði sem hin örvæntandi
Phédre í ódauðlegu leikriti
Racine eða geystist um raddsvið-
ið í ofsa og hita Fédoru í sam-
nefndu leikriti Sardou, var það
árangur eljusamra æfinga og
snilld sinni hélt hún aðeins með
því að stunda radd- og fram-
sagnaræfingar stranglega allt
fram til þess er hún lét af leik
skömmu fyrir andlát sitt, 1923.
(Listener og Spectator).
Það var nokkuð nýstárlegt við
þessa samkomu, að karlmenn
skeinktu kaffi í bollana, og gengu
um beina. Ekki veit eg hvort aö
kvenfélagið hefur herskyldað þá
til að taka þetta verk að sér, eða
hvort þeir voru sjálfboðaliðar,
en þeim fórst það mæta vei. Eg
tók til þess við einn gráskegg,
sem sat við hliðina á mér, hvað
þeim færist þetta vel, en hann
þóttist ekkert hriíinn af því,
sagði að þeir hafi haft æfingu
áður, að bera konunum sínum
morgunkaffið í rúmið.
Seinast kom skemtiskráin, og
var mest af því söngur, og sein-
ast var samsöngur, mest af því
sem sungið var, voru gamal-
xunnug log, svo songstjormn Mr.
H. L. Thoriáksson skoraði á alla
að syngja með, og að þeir sem
ekki gætu sungið, gætu samt
raulað með. svo það uröu nokkuð
margir, sem- rauiuðu og var eg
einn í þeirra hóp. I þetta sinn sat
öldruð jómfrú við hiiðina á mér,
og hún íor að finna að því viO
mig hvað sumir væru hjáróma.
Mér fanst með sjálfum mér, það
væri ekki mjög langt frá iagt,
það sem hún var að segja, en eg
viidi samt ekki kannast við það,
svo eg sagði henni mjög kurt-
eislega, að þetta væri bara mis-
skilningur hjá henni, og að eng-
inn skiiningur væri eins vili-
andi eins og missknningur, við
gömlu mennirnir værum að
raula bassa. Eg komst af með
þetta, svo það komu engar frek-
ari athugasemdir úr þeirri átt.
Það er óhætt að hjóða okkur
meiri samsöng, sem ailir geta
tekið þátt í, því verður ætíð vel
tekið. Þótt ekkert væri annaö
auglýst á skemtiskránni, þá
mundi það verða vel sótt. Var
þessi samkoma sérstaklega
skemtileg. Fjárhagslega var
þessi samkoma happasæl fyrir
kvenfélagið, þær tóku inn yfir
$200.00.
Nokkrum dögum fyrir jólin,
hafði félagið Isafold jólatréssam-
komu og dans, var það heldur
vel sótt.
Þann 16. des. hélt yngra kven-
félagið “Ljómalind” spilasam-
komu og dans og veitingar á
Gravely Hall. Var það auglýst
á boðsbréfinu sem þær sendu út,
að allur ágóði af þessari sam-
komu gengi í sjóð sem þær hafa
stofnað, til að styrkja hið fyrir-
hugaða gamalmenna heimili hér
í Vancouver. Var þessi sam-
koma vel sótt. Þetta sýnir lofs-
verðan áhuga og dómgreind hjá
ungu stúlkunum að styðja þetta
þarfasta og nauðsynlegasta vel-
ferðarmál, sem á dagskrá er hjá
okkur íslendingum hér á vestur
ströndinni.
Jólaguðsþjónusta var haldin a
aðfangadaginn 24. des., í dönsku
kirkjunni, fór sú athöfn fram
bæði á ensku og íslenzku. Var
þar mikil aðsókn svo kirkjan
var troðfull. Á eftir messu var
öllum boðið ofan í samkomusal
kirkjunnar, þar sem var haf
jólatré fyrir börnin. Hafði Mrs.
H. Sumarliðason undanfarið ver
ið að æfa hóp af börnum og
unglingum fyrir jólatréssamkom
una. Fór það alt fram vel og
myndarlega. Ágætlega sýndu
börnin á leiksviðinu og skýrðu
jólasöguna um fæðingu Krists.
Eg hef ekki áður séð það eins
vel gjört. Á Mrs. Sumarliðason
og konurnar sem hafa unnið að
þessu með henni, bæði heiður og
þakklæti skilið fyrir vel unnið
verk. Frítt kaffi og rausnarleg-
ar veitingar, sem kvenfélagið
veitti, voru á eftir.
Þann 7. janúar hélt Lestrar
félagið Ingólfur ársfund sinn.
Embættismenn félagsins fyrir
næsta ár, voru allir endurkosnir
Þeir eru: Halldór Friðleifsson
forseti, Sam Samson, vara-for-
seti, S. Guðmundsson, skrifari
H. J. Halldórsson, vara-skrifari
og Mrs. Anna Harway, féhirðir
Ársskýrsla forsetans sýndi að
félagið er í uppgangi nú í seinni
tíð. félagsmönnum er að fjölga
og fjárhagur félagsins allur
góðu lagi.
Meðlimatala er nú 43, og í
sjóði á félagið um $100.00.
7 manna program nefnd var
kosin fyrir þetta ár, sem á að
sjá um það að hafa til skemti-
skrá fyrir hvern fund, þegar
fundarstörfum er lokið.
Líka hefir félagið auglýst að
þeir hafi spilasamkomu og veit-
ingar á Gravely Hall 1720 Grav-
ely, þann 31. jan. kl. 7,30 e. h.
Verðlaun í peningum verða gef-
in þeim sem vinningana hafa.
Inngangur 50 cent. Allir boðnir
velkomnir.
Þann 9. þ. m. gerðu verka-
menn hjá B. C. Electric, verkfall,
svo alt hjá þeim situr fast. Eing-
ir strætisvagnar ganga síðan, og
segja verkamenn að enginn bót
fáist á því, fyr en þeir fái kröfur
sínar uppfyltar. 18 skólum hefir
verið lokað, og um mörg þúsund
ungmenni verða að sitja heima,
því þau hafa engin tæki til að
komast til skólanna, sem oft eru
í fjarlægð frá heimilunum. Fund
um og samkomum hefur verið
frestað á meðan verkfallið stend
ur yfir. Þetta verkfall nær yfir
Vancouver, New Westminester
og Victoria. Skeyti í hundraða-
tali hafa verið s^nd héðan til
Ottawa, sem krefjast þess að
stjórnin taki í taumana og skakki
leikinn. En enginn árangur‘hef-
ir það haft en sem komið er.
S. Guðmundsson.
JOHANNES HELGASON
Hinn 16. des. s. 1. andaðist að
heimili sínu í Riverton, Man.,
Jóhannes Helgason. Hann var
fæddur 10. okt. árið 1870. Foreldr
ar hans voru Helgi Illugason og
Ástríður Einarsdóttir. Hann
fluttist til Canada ásamt for-
eldrum sínum og systkinum árið
1887, og átti heima 1 Winnipeg
fram til ársins 1898. Þá fór hann
í gullsleit til Yukon, og dvaldist
síðan um eitt ár í Victoria. Árið
1902 kvæntist hann Jónínu Jó-
hannesdóttur. Þau eignuðust
fimm börn, sem eru öll á lífi,
og eru: Ásta, gift Gísla Gísla-
syni, búsett í Riverton, Helgi og
Jóhannes, báðir kvæntir og búa
í Chicago, Elinóra og Guðrún,
báðar til heimilis í Winnipeg.
Árið 1911 misti Jóhannes konu
sína, og kvæntist í annað sinn
árið 1912, eftirlifandi ekkju sinni
Guðríði Sæmundsdóttir. Þau
eignuðust sex börn. Eitt þeirra
dó í æsku, hin eru: Jónína, gift
L. M. Page í Riverton, Sæmund-
ina, hjúkrunarkona í Winnipeg,
Rebekka, gift Orval Hay í cana-
diska flughernum, Svafa, í cana-
diska flughernum og Valdimar,
heima hjá móður sinni, 14 ára
gamall.
Aðrir nánir ættingjar Jó-
hannesar eru tvö systkini hans.
Mrs. Ingiríður Isaacs og Þórður
Helgason, bæði búsett vestur við
haf.
Jóhannes heitinn fluttist til
Nýja-Islands er hann kvæntist
hið fyrra skifti, og settist að á
landi, er heitir Reynivellir. Þar
bjó hann þangað til hann fluttist
til Riverton fyrir ári síðan, þar
sem hann keypti hús, og ætlaði
að dvelja framvegis. En heilsa
hans var á förum. Hið síðasta
ár var hann oft mjög þjáður og
lá rúmfastur hina síðustu mán-
uði, oft mjög þungt haldinn. I
þessum veikindum naut hann
hjúkrunar konu sinnar og dótt-
ur, sem er hjúkrunarkona, og
margir vinir og kunningjar heim
sóttu hann. Öllum var það ljóst,
að hann var að hverfa burt til
hins nýja landnáms hinu megin
við hafið. Eins og áður er sagt
lézt hann 16. des., og var jarð-
aður frá Sambandskirkjunni í
Riverton 21. s. m., að viðstöddum
fjölda vina og vandamanna.
Eftir langa viðkynningu og
samleið sakna margir Jóhannes-
ar Helgasonar. Hann naut al-
mennrar virðingar þeirra, sem
þektu hann. Hann var fram úr
skarandi dugnaðar og iðjumað-
ur, sem gegnum erfiða tíma og
margt óáran hefir barist hinni
þungu baráttu, og sigrast í bar-
áttúnni. Þau hjónin hafa komið
upp stórum hóp barna og ment-
að þau eftir bestu föngum. Á
heimili þeirra ríkti friður og
samvinna og gestrisni. Jóhannes
helgaði heimili og ástvinum sín-
um alt sitt líf og alt sitt starf.
Hann var fram úr skarandi reglu
maður og prúðmenni í fram-
komu, hvar sem hann kom fram.
því ríkir í huga ástvina hans sár
söknuður og hlýjar minningar
um hinn trúa og góða heimilis-
föður, sem hefir gengið til hvíld-
ar eftir langan og erfiðan dag.
“Það er alveg stórmerkilegt”,
sagði ensk aðalskona eitt sinn
við stéttarbróður sinn, “hvað
slúðrið fær byr undir báða
vængi. Getið þér trúað öðru
eins: Það er búið að bera það
út um alt, að eg hafi eignast
tvíbura”. .
“Frú, eg hefi það fyrir reglu
að trúa aldrei nema helmingn-
um af því, sem eg heyri,” svar-
aði aðalsmaðurinn.
•
Elsta egyptska landakortið,
sem fundist hefir, er frá því
árið 1370 f. Kr. — Það er teikn
að á sefpappír og er af gullnám-
unum við fjallið Bechem.
|B1
R:B" B"ll
lil’HlHlHll
IIBIIIIHIÍII
■IIMll
Samkeppni nútímans
krefst sérmentunar
Æskulýður þessa lands, engu síður en annara þjóða,
krefst sérmenntunar, eigi hann að geta staðist próf
hinnar ströngu samkeppni á vettvangi viðskiptalíísins,
og af þessari ástæðu, er verzlunarskólamenntun í raun-
inni óumflýjanleg.
Vér höfum nú til sölu nokkur námskeið við fullkomn-
ustu verzlunarskóla Vesturlandsins, sem væntanlegir
nemendur ættu að færa sér sem allra fyrst í nyt; þeir,
sem slíkt hafa í hyggju, ættu að snúa sér tafarlaust til
skrifstofu LÖGBERGS
695 Sargent Avenue, Winnipeg
og leita þar nauðsynlegra upplýsinga; það borgar sig!
I ■ií'mm
II'IIHIIIII
imiaiiiiiMiiiii
mmmm
■<ii ■imi.j
MiPK
Hli'I