Lögberg - 07.06.1945, Side 1
PHONE 21374
iot^ 1
" „n, í1"'1
\>VC
iners ana
A Complete
Cleaning
Institution
PHONE 21374
I,0.«n'
A
assf
A Complete
Cleaning-
Institution
58. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 7. JÚNI, 1945
NÚMER 23
i stjórnarnefad Eimskipafélags Islands
Ásmundur P. Jóhannsson Árni G. Eggertson, K.C.
Þeim stjórnarnefndarmönnum Eimskipafélags Islands, er með
umboð fara fyrir hönd vestur-íslenzkra hluthafa, Ásmundi P
Jóhannssyni og Árna G. Eggertsyni K.C., barst símskeyti frá fram-
kvæmdarnefnd félagsins um það, að á ársfundi þess, sem haldinn
var í Reykjavík, síðastliðinn laugardag, hefði Árni verið endur-
kosinn í stjórn félagsins til tveggja ára. Ásmundur á eftir annað
ár af kjörtímabili sínu. — Fundurinn ákvað að greiða hluthöfum
4% í arð fyrir árið, sem leið.
Frá fjallatindum til fi»kimida
<llllllllllllllllllllll!lllllllllllllllllllllll!llllllllll!ll!lllllllllllllll!!lllllinilllllllllllllllllllllllll!!l!ll!lllllllllllll!llllll!lllllll!ll>IIIUIllllllllll!llllllllll!lllllllllllllllllllll!lllllllll!lll!!!l!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lll
Þakkakveðja
Herra ritstjóri:
Um leið og við hjónin kveðj-
um Winnipeg borg og þökkum
þér vináttu þína og góða við-
kynningu vildum við biðja blað
þitt að bera Vestur-lslendingum,
fjær og nær, okkar hugheilustu
þakkir og kveðjur fyrir þær á-
nægjulegu og ógleymanlegu
stundir, sem við höfum átt hér
meðal ykkar.
Dvöl okkar hér mun seint
fyrnast í hugum okkar. Gest-
risni ykkar er sannarlega frá-
bær og íslenzk. Hér höfum við
eignast marga vini og ferð okkar
hingað hefir opnað fyrir okkur
nýjan heim, íslenzkan heim.
Einkum viljum við þakka Þjóð
ræknisfélaginu fyrir þá rausn
og það traust, sem það sýnd-
okkur með því að bjóða okkur
að koma hingað.
Á skilnaðarstundinni koma
nöfn margra góðvina upp í huga
okkar. Við vildum mega taka í
hendina á þeim öllum og þakka
þeim af heilum hug. En þess er
ekki kostur að sinni.
Þökk fyrir alt. Guð blessi ís-
lenzka kynstofninn í Vesturheimi
í allri framtíð.
Þórhildur Brynjólfsdóttir
ívar Guðmundsson.
Mœtur Islendingur látinn
Síðastliðinn sunnudag lézt af
vÖldum heilablóðfalls á Almenna
sjúkrahúsinu hér í borginni, Dr.
Jóhann Sigvaldason frá Shoal
Lake, Man., 42 ára að aldri, á-
gætur læknir, og hinn mesti
mannkostamaður.
Dr. Jóhann var útskrifaður í
læknisfræði af háskóla Manitoba
fylkis; hann lætur eftir sig ekkju
°g eitt barn, auk aldurhniginn-
ar móður; er að ástmennum öll-
um þungur harmur kveðinn við
sviplegt fráfall hans.
Minningarathöfn um þenna
toæta mann fór fram hjá Bardals
a þriðjudaginn undir forustu
séra Valdimars J. Eylands, en
að því búnu var líkið sent til
jarðsetningar til Shoal Lake.
Flytur ræður
Dr. Richard Beck flutti aðal-
ræðuna á lokahátíð gagnfræða-
skólans í Minot, N.-Dak., föstu-
dagskvöldið 1. júní. Er þar um að
ræða einn af stærstu skólum
ríkisins af því tagi, énda útskrif-
uðust yfir 160 nemendur þar að
þessu sinni, en talið er að eitt-
hvað 17 eða 1800 manns hafi
verið viðstatt hátíðahöldin.
Kvöldið áður var hann ræðu-
maður við skólauppsögn gagn-
fræðaskólans í McVille, N.-D.,
sem einnig var fjölsótt athöfn.
I tilefni af 17. maí, þjóðhátíðar-
degi Norðmanna, flutti Dr. Beck
einnig ræður á þrem samkomum
þeirra á ýmsum stöðum, og að
auk útvarpsræðu frá stöðinni í
Grand Forks. Fjölluðu ræður
þessar um hetjulega baráttu
Norðmanna heima fyrir og
margvíslega hlutdeild þeirra í
stríðinu.
SBBS8
Afturhaldið hremmir Ontario
Við fylkiskosningarnar, sem
fram fóru í Ontario síðastliðinn
mánudag, urðu úrslitin á þann
veg, að afturhaldsflokkurinn,
sem Col. Drew veitir forustu,
fékk 66 þingsæti, Liberalar 10,
og C.C.F. 6. Tveir Labor-Pro-
gressivar náðu kosningu, og sex
óháðir, sem mælt er að séu
Liberölum hliðhollir. Foringjar
Liberala og C.C.F. flokksins, þeir
Mr. Hepburn og Mr. Jolliffe,
töpuðu þingsætum sínum.
Ósigur C.C.F. flokksins í á-
minstum kosningum, var lang
mest áberandi; hann réð yfir 34
þingsætum á síðasta þingi, en
kemur nú út úr þessari síðustu
orrahríð með einungis hálfa tylft
háseta.
Kornung hjúkrunarkona, Miss
Elín Johnston, vann við nýafstað
in vorpróf tvenn verðlaun, ec
námu $500; þessi stúlka, er dótt-
ir frú Helgu Johnston, ekkju
Paul Johnston umboðssala.
Heimsókn Ivars ritstjóra
♦♦♦
Um það verða allir á eitt sátt-
ir, að heimsókn hr. ívars Guð-
mundssonar, fréttaritstjóra Morg
unblaðsins í Reykjavík, hingað
til borgar, hafi orðið þeim öll-
um, er á mál hans hlýddu, og
kynntust honum persónulega, á-
samt frú Þórhildi, til eftirminni-
legrar uppbyggingar og gleði.
ívar ritstjóri er maður þéttur á
velli og þéttur í lund; voru erindi
þau, er hann flutti um stefnu og
strauma í lífsviðhorfi íslenzku
þjóðarinnar, mótuð hreinskilni
og sannleiksást, og þess vegna
var líka mikið á þeim að græða;
hið ljúfmannlega viðmót þessara
ágætu gesta að heiman, gerði það
að verkum, að þeir, þó viðdvölin
væri stutt, eignuðust hér um
slóðir fjölmennan vinahóp.
Á laugardaginn var efndu út-
gáfufélög Lögbergs og Heims-
kringlu til samsætis fyrir Ivar
ritstjóra á Fort Garry hótelinu,
er var hið virðulegasta um alt.
Forsæti skipaði Dr. P. H. T.
Thorlákson; flutti hann við það
tækifæri íhyglisverða inngangs-
ræðu um íslenzk menningarmál,
og lagði sérstaka áherzlu á nauð-
synina um stofnun kennarastóls
í íslenzku og íslenzkum fræðum
við Manitobaháskólann; aðrir,
sem til máls tóku, voru Mr.
Justice H. A. Bergman, forseti
háskólaráðs, G. S. Thorvaldson
fylkisþingmaður, og ritstjórar ís-
lenzku blaðanna; tóku þeir Berg-
man dómari og ritstjóri Lögbergs
í sama streng og Dr. Thorlákson
varðandi háskólamálið.
G. S. Thorvaldson afhenti
ívari ritstjóra með vel völdum
orðum fagra og skrautbundna
bók frá viðstöddum vinum til
minja um komuna; erindi það
er heiðursgesturinn flutti í
þessu skemtilega samsæti, var
þrungið af margháttuðum fróð-
leik; í lok þess þakkaði hann með
fogrum hlýyrðum, gestrisni þá,
er þau hjón hafðu hvarvetna
mætt af hálfu íslendinga vestan
hafs.
Á sama tíma og á sama hótel-
inu, hafði konsúlsfrú Lalah Jó-
hannson, virðulegt boð fyrir frú
Þórhildi, ásamt nokkrum íslenzk
um konum úr borginni.
Þau Ivar ritstjóri og frú heim-
sóttu Gimli á sunnudaginn, en
flugu suðuir til Bandiaríkja á
þriðjudaginn.
0r borg og bygð
Sunnudaginn 13. maí s. 1. kl.
3 e. h. voru gefin saman í hjóna-
band í Paulist Fathers kaþólsku
kirkjunni í Westwood, Calif.,
Jóhannes Newton vérkfræðing-
ur og Marie Claire Edgerton.
Þau, sem aðstoðuðu við gift-
inguna voru Carlos Cruz frá
Puerto Rico og systir brúðarinn-
ar. Eftir hjónavígsluna fór fram
veizla á hinu prýðilega heimili
foreldra brúðarinnar, Mr. og Mrs.
Harry M. Edgerton, sem hingað
kom fyrir ári síðan frá Fremont,
Ohio.
Eftir tíu daga brúðkaupsferð
um Suður-Californiu hverfur
Jóhannes aftur til herbúða sinna
í Fort Lewis, Washington. Jó-
hannes Newton er ættaður frá
Silfrastöðum í Skagafirði. Var
faðir hans frá Ástralíu, en móðir
hans Guðrún Jóhannsdóttir frá
Lýtingsstöðum í Skagafirði. Jó-
hannes er útskrifaður verkfræð-
ingur frá John Hopkins háskól-
anum í Baltimore, Maryland.
•
Þann 31. maí síðastliðinn kom
frá Skotlandi, eftir tveggja ára
þjónustu í stórskotaliðinu cana-
diska, Einar Friðrik Guttorms-
son, sonur þeirra Mr. og Mrs.
Einar Guttormson, sem búsett
eru í Poplar Park bygðinni hér
í fylkinu; þessi ungi maður særð-
ist nokkuð í orustu, en er nú á
það góðum batavegi, að víst þyk-
ir að hann nái fullri heilsu; er
það ættingjum hans og vinum
mikið gleðiefni.
•
Lýöveldishátíð að Mountain
Þjóðræknisdeildin “Báran” að
Mountain, N.-Dakota, efnir til
hátíðar í tilefni af Lýðveldisdegi
íslands, mánudaginn 18. júní kl.
8,30 í samkomuhúsi bæjarins.
Vönduð og fjölbreytt skemtiskrá
hefir verið undirbúin.
Aðalræðumaður verður séra
B. T. Sigurðsson. Einnig flytur
Dr. Haraldur Sigmar ávarp.
Blandaður kór syngur íslenzk
lög á milli ræðanna og fleira
verður þar á boðstólum af góð-
um söng.
Kvenfélag Víkursafnaðar ann-
ast um veitingar að lokinni
skemtiskrá. Byggðarmenn eiga
hér því von á góðri skemtun.
Magnús Pétursson prentari og
bóksali, lézt að heimili sínu 313
Horace Ave., síðastliðinn þriðju-
dagsmorgun, 76 ára að aldri;
hann hafði átt við heilsubilun að
stríða um all-langt skeið. Magnús
var greindarmaður og fróður um
margt. Útför hans fer fram frá
Sambandskirkjunni hér í borg
kl. 2 e. h., á föstudaginn kem-
ur undir umsjón Bardals. Séra
Philip M. Pétursson jarðsyngur.
•
Á þriðjudaginn þann 5. þ. m.,
voru gefin saman í hjónaband
hér í borginni þau Skúli Albert
Sigfússon frá Lundar, og Anna
Helga Thordarson frá Gimli.
Séra V. J. Eylands gifti.
Brúðguminn er sonur Skúla
Sigfússonar þingmanns St.
George kjördæmis, og frú Sigfús-
son.
Lögberg árnar ungu hjónunum
framtíðarheilla.
•
Mr. Einar Guttormsson frá
Poplar Park var staddur í borg-
inni á þriðjudaginn.
•
Pilot Officer Magnús Thor-
steinsson, sonur Mrs. Thorsteins-
son, Ste. 8 Acadia Apts., kom
heim heill á húfi eftir langa
stríðsþjónustu, síðastliðinn laug-
ardag.
L.A.C. Eyjólfur Gunnarsson
frá Churchbridge, Sask., er ný-
kominn heim eftir tveggja ára
herþjónustu í Norðurálfunni.
•
“Við hafið eg sat”.
Maður kemst ekki að blöðun-
um fyrir pólitísku fugladriti. En
það þvæst af við fyrstu rigningu
eftir þann ellefta þ. m., þá verður
Bangsi frjáls að senda þakklæti
yfir fjöllin, fyrir alla gestrisn-
ina á Kyrrahafsströndinni, sem
yngdi mig um tíu ár. Guð launi
ykkur öllum landar mínir fyrir
öll gæðin og fyrirhöfn, sem eg
gleymi aldrei.
Flaug eg yfir fjöllin há,
og firði vestur frá.
Fjórar fann eg dætur,
og fjölda aðra sá.
Blómin blöstu við sól,
báru af öllu þar.
Bangsi var í bezta skapi
og bar fram sögurnar.
Bangsi.
Ágœtt ráðherraefni
Ralph Maybank
íslendingum í Mið-Winnipeg kjördæminu hinu syðra, ber til
þess skylda, að fylkja sér um Ralph Maybank næstkomandi mánu-
dag; hann er kappsamur áhugamaður um landsmál, og hefir getið
sér hinn ágætasta orðstír á þingi; miklar líkur eru á að hann taki
sæti í King-stjórninni að afstöðnum kosningum.
Vordœgur
Fögur ljóma ljós og vor,
landsins blómafriður.
Vetrardróma djúpu spor
drjúpa í hjómi niður.
Heilsar mönnum vorið vænt
vetrarhrönnum eyðir,
undan fönnum grasið grænt,
gróðrarönnin leiðir. »
Sólin bræðir svellahlað
svo með glæðum fínum,
vetur mæðinn verður að
varpa klæðum sínum.
Al-líf fangar orku og þor,
alt vill ganga betur,
þegar angar inndælt vor
eftir langan vetur.
Áður glapið, afturheimt
íss í hrap er sótti,
endurskapað, endurdreymt,
er oss tapað þótti.
Leggur ró um lönd og sjó,
lífs með fróun blíða
blómin gróa glöð og frjó,
grund og móa skrýða.
Út um hól, sem áður kól
inn við hólaþilin,
lítil fjóla finnur skjól
frjógva og sólarylinn.
Veðurblíðu blessuð tíð,
bætir kvíða og trega,
skreytir fríða skógarhlíð
skaparinn prýðilega.
Sumargestir sunnan frá
syngja mestir óðinn,
kvaka þrestir kvistum á,
kveða bestu ljóðin.
Ástaköllin óma snjöll
út um völlinn gróna,
jarðarhöllin ymur öll
undir föllum tóna.
Hugann laðar hýrt til sín
hreinn og glaður dagur.
sólskinshlaðin sveitin mín
sælustaður fagur.
Frá þér geyminn sólarson,
sælu streymir gengi
yfir heiminn, vor og von,
vinadreymin lengi.
T. T. Kalman.