Lögberg - 07.06.1945, Síða 4
4
LöGBERG, FIMTUDAGINN, 7. JÚNÍ, 1945
----------------Xögbers-----------------------------------------*
Geíið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrlft ritstjórans:
EDITOR LOGBERG,
69 5 Sargent Ave., Winni'peg, Man
Editor: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and publishea by
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue
Winnipeg. Manitoba
PHONE 21 804
----------------------------------------------------------------i
IUí;!lílll!i:ii;!!liiilli:li:i:U!!, .^:iii;il;i!!i;!!:i;;;:i:i!.ii;::!i:!:ii;illli;!llllll!lllll;i!lllílllllllllll!!lllllllllllllll^^
*
Omótmæl anlegar
staðreyndir
Vegna löggjafarinnar um hámarksverð lífs-
nauðsynja, sem Liberal stjórnin hratt í fram-
kvæmd þegar við upphaf Norðurálfustyrjald-
arinnar, skapaðist slíkt jafnvægi í hinni efna-
hagslegu afkomu þjóðarinnar, að til fyrir-
myndar mun jafnan talið verða; og aðrar þjóðir
svo sem hin volduga nágrannaþjóð vor sunnan
landamæranna, sendu hingað eina sérfræðinga-
nefndina af annari til þess að kynna sér hina
nýju skipulagningu sambandsstjómar vorrar og
færa sér meginkosti hennar í nyt; þetta er stað-
reynd, sem ekki verður véfengd; og nú er svo
komið, að fyrir djarfmannlegan atbeina Liberal
stjórnarinnar, býr þjóðin við margbreyttara og
traustara félagslegt öryggi, en nokkur önnur
þjóð, að ógleymdu fólkinu á Nýja Sjálandi, sem
löngum hefir verið í vitnað; ,nú er svo meðal
annars komið, að þann 1. júlí næstkomandi,
gengur í gildi löggjöfin um framfærslustyrk
barna í þessu landi, sem um flest skarar mjög
fram úr hliðstæðri löggjöf Nýja Sjálands, að
eigi séu fleiri þjóðir tilgreindar; þetta er lang
róttækasta mannúðarlöggjöfin, og jafnframt sú
lang viturlegasta löggjöf varðandi sjálfbyrga
framtíðarþegna landsins, sem fram að þessu
hefir hrundið verið í framkvæmd, og hún á
rót sína að rekja til hins skygna forsætisráð-
herra vors, Mr. Kings, er bar frumvarpið um
þetta mikilvæga þjóðþrifamál, persónulega
fram á þingi.
Liberal stjómin hefir vissulega vakað á verði
varðandi hagsmuni þjóðarinnar, síðustu fimm
árin; hin sögufræga stríðssókn canadisku þjóð-
arinnar undir forustu Mr. Kings er jafnan verð-
ur til afreka talin, er engan veginn eina af-
rekið, sem stjórnin hefir int af hendi; hin víð-
tæka skipulagning hennar, eða nýsköpun, varð-
andi hag allra stétta jafnt, þegar að því kemur
að breyta stríðsiðju þjóðarinnar til friðariðju,
er slík, að þar komast engir aðrir flokkar í ná-
munda við, hvað þá heldur lengra; hér er ekki
um neitt loforðafálm að ræða, heldur vissu,
því það eru verkin sem tala.
Til þess að tryggja velferð hinna heimkomnu
hermanna vorra, sem verðskulda aðeins það
bezta, sem þjóðin hefir að bjóða, hefir Liberal
stjórnin hlutast til um það, að veittar væri í
fjárlögum $750.000,000 með það fyrir augum,
að afla þessum flokk þjóðfélagsins tryggrar
atvinnu, sem og til þess að aðstoða hann við
iðnað, búnað og einkafyrirtæki.
Húsagerð þjóðarinnar hefir árum saman ver-
ið næsta ábótavant; til þess að endurbæta eða
byggja ný heimili hafa verið veittar $400,000,000,
og hefir aldrei áður verið ráðist í neitt þessu
líkt.
Framfærslustyrkur barna hefir hvað ofan í
annað verið gerður að umtalsefni hér í blað-
inu, en sá styrkur miðar einkum að því, að
létta byrði fátækra foreldra í þessu landi; gert
er ráð fyrir að framfærslustyrkur þessi nemi
$250,000,000. Sú upphæð greiðir þjóðinni vafa-
laust ríkulega vexti í andlegum og líkamlegum
þroska samtíðar- og framtiðar þegnanna.
Atvinna innanlands og vöruútflutningur hald-
ast jafnan í hendur. Liberalstjórnin hefir beitt
sér fyrir um það, að tryggja hinum aðþrengdu
Norðurálfuþjóðum margskonar vörur, og verða
þær með því óhjákvæmilega gagnlegir við-
skiptavinir canadisku þjóðarinnar í framtíð-
inni.
Að því er ráða má af hagskýrslum, vinnur
einn maður af hverjum þremur hér í landi á
bújörð. Liberalstjórnin hefir hlutast til um það,
að bændur ættu handhægan aðgang að lánum,
svo þeir gætu keypt nauðsynjar sínar fyrir
peninga.
Engum stjórnmálaflokki er það ljósara, hvað
þá heldur jafnljóst og Liberal flokknum, hve
óaðskiljanleg velmegun þjóðarinnar yfirleitt er
frá velgengni eða sæmilegri afkomu bænda og
fiskimanna, og þess vegna var það, að stjórnin
setti fastákveðið lágmarksverð á framleiðslu-
vörur þeirra. Það hlýtur að vera hverjum heil-
skygnum manni skiljanlegt, hve óhjákvæmi-
legt það var þjóðin yrði að greiða þunga
skatta meðan á hinum risafengnu átökum við
þýzka herveldið stóð; alla slíka skatta guldu
þjóðfélagsþegnarnir með glöðu geði, enda var
þeim frá upphafi ljóst fyrir hverju var barist,
og hve mikið í húfi var, þar sem stefnur skipt-
ust um myrkur hinnar illræmdustu áþjánar,
eða ævarandi “þegnrétt í ljóssins ríki”.
Eigi hafði fyr yfir lokið í Norðurálfustyrj-
öldinni, en Liberal stjórnin tilkynnti yfirveg-
aða lækkun skatta, og slökun á ýmissum þeim
hömlum, er tiltækilegast þótti, að rutt yrði
þegar úr» vegi, og þessari stefnu heldur stjórnin
áfram frá degi til dags, frá ári til árs, verði hún
endurkosin á mánudaginn kemur, sem ástæðu-
laust er að efa, því enn er síður en svo að þjóð
vor sé öllum heillum horfin.
Liberal flokkurinn bregst aldrei trausti kjós-
enda; hann lofar því einu, sem hann er fær um
að efna. Verður það sama sagt um hina flokk-
ana?
Canadiska þjóðin á djúpvitran mannkosta
mann að foringja þar sem Mr. King er; hún
sigrar með honum, en aldrei undir neinum
kringumstæðum með Bracken.
iilllllllUllllllilHllililllillillIllllllllllltililillllllllllllllilllllililllllllllilllllllllllllillillllllillilllllilllllllllillllllillllllilllilllilllllillllllitíllílllllllllllllllilllll
íhyglisverð afstaða
BflMIIHIIHHIUHIIIUIIIDHUIIIHniHHIHIIIHIIIHIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllillillllllllllliiiiliiillll'lllliillllllllllllllillltlllllllllllillllllllli'lll'l l:'i'iil»'l
Dr. D. L. Johnson, fylkisþingmaður fyrir
Brandon kjördæmið, sá, er C.C.F. höfðingjarnir
gerðu flokksrækan vegna þess eins, að því er
bezt verður vitað, að hann samvizku sinnar
vegna, vildi ógjarna gerast viljalaus klíkuþræll,
gerði yfirlýsingu þann 31. maí síðastliðinn, varð-
andi hina pólitísku afstöðu sína til sambands-
kosninganna, sem nú fara í hönd, og hvers vegna
hann sjái sér ekki fært, að styðja til kosninga
einn einasta frambjóðanda C.C.F. flokksins að
þessu sinni; yfirlýsing þessi er hvorttveggja í
senn drengileg og lærdómsrík, og hlýtur að
verða alvarlega hugsandi kjósendum ærið íhug -
unarefni; með þetta fyrir augum, er hún hér
birt í íslenzkri þýðingu:
“Af sömu ástæðu og við Berry Richards bár-
um fram í yfirlýsingu okkar þann 1. marz 1945,
er mér ekki unt, að undirskrifa hina opinberu
stefnuskrá C.C.F. flokksins, né heldur styðja til
kosninga nokkurn þann frambjóðanda, er mið-
stjórn áminsts flokks mælir með; samstilling
framsóknaraflanna í Canada, varðandi almenna
atvinnu, framhald núverandi viðskiptaveltu,
gildandi grunnkaup og verð búnaðarafurða, er
engu síður aðkallandi nú, en hún var í marz-
mánuði síðastliðnum; vegna þess að C.C.F.
flokkurinn heldur enn dauðahaldi í einangrun-
arstefnu sína, og telur kreppu að loknu stríði
óumflýjanlega, eða jafnvel nauðsynlega, er við-
horf flokksins til framtíðarinnar hvorki fugl né
fiskur, heldur blátt áfram neikvætt.
Það liggur einnig í augum uppi, hve enn sé
þess brýn nauðsyn á vettvangi heimsmálanna
að loknu stríði, að brynjast í einingu gegn end-
urvakningu Fasismans.
Þótt eg sé sammála Mr. Coldwell varðandi
afstöðu hans gagnvart Argentínumálinu á ör-
yggisstefnunni í San Francisco, þá get eg ekki
annað en fordæmt rauðu grýluna, sem C.C.F.
menn gera svo mikið veður úr. Eg sætti mig
heldur ekki við nýlega yfirlýsingu Mr. Coldwells
um það, að Molotov hefði orðið “athlægi San
Francisco stefnunnar”, finst mér sem þetta ben
svo að skilja, að C.C.F.-menn séu dauftrúaðir,
ef ekki beinlínis óvinveittir, samvinnu stór-
veldanna í framtíðinni.
Eins og nú hagar til á sviði stjórnmálanna í
þessu landi, er nauðsynin mesta fólgin í því,
að koma afturhaldsöflunum fyrir kattarnef,
jafnframt því sem það er lífsnauðsyn á vett-
vangi heimsmálanna, að viðhalda fylztu einingu
meðal sameinuðu þjóðanna, til þess að fyrir-
byggja þriðja heimsstríðið.
Þessar kosningar snúast ekki um sosíalisma; í
vissum kjördæmum, þar sem líkur eru á, að
afturhaldsmenn njóti verulegs fylgis, verða
vinstri öflin að vinna gegn þeim sem einn mað-
ur, sem ein sál; en í öðrum kjördæmum, þar
sem C.C.F. flokkurinn stendur bezt að vígi, er
kjósendum jafn skylt, að fylkja sér um fram-
bjóðendur hans; af þessum ástæðum veitir
Berry Richards frambjóðanda þess flokks, Mr.
Moore, að málum í Churchill kjördæmi; en
slíkur stuðningur breytir að engu til um yfirveg
aða og yfirlýsta skoðun okkar á þeim yfirsjón-
um, sem miðstjórn flokksins hefir látið við-
gangast, og gerir þann dag í dag.
Að lokum vil eg leggja áherzlu á það við
kjósendur, að þeir styðji þá menn eina til kosn-
inga, er líklegastir þyki til þess að sigrast á
afturhaldsöflunum heima fyrir, og skuldbundn-
ir séu jafnt til þess að helga óskipta krafta sína
heimsfriðnum til öryggis.
Fólkið í Canada æskir hvorki eftir kreppu ne
verðskuldar hana, eftir að friður er kominn á;
það þarfnast félagslegs öryggis og tryggrar at-
vinnu; þetta hvorttveggja er hægt að veita því,
og þetta er það mál málanna, sem ganga verður
fyrir öllu öðru.”
Hörmulegt slys
Enn hefur borizt svipleg sorg-
arfregn. Enn er höggið skarð í
hina traustu sjómannastétt Is-
lands. Enn hefir Ægir krafið oss
dýrrar fórnar.
Línuveiðarinn Fjölnir frá Dýra
firði fórst við árekstur á póst-
flutningaskipið Larides Growe
fyrir fám dögum.
Á skipinu voru 10 menn. Af
þeim björguðust fimm, en fimm
er saknað, og eru þeir þessir:
Gísli A. Gíslason frá Isafirði.
Guðmundur Ágústsson, Sæbóli
Aðalvík.
Pálmi Jóhannesson, Miðkrika,
Hvolhreppi.
Pétur Sigurðsson, Hvammi,
Dýrafirði.
Magnús Jóhannessón, Ásgarðs
nesi, Þingeyri.
Allir voru þessir menn á góð-
um aldri og hinir mestu efnis-
menn.
Fjöldi vina og ættingja saknar
þessara vösku drengja, og er það
að vonum. Þjóðin öll saknar
mætra sona.
Þau eru orðin mörg heimilin
í þessu landi, sem um sárt eiga
að binda eftir hin þungu og stóru
áföll þessara síðustu ára. Og
angsamlega þyngst hefir sjó-
mannastéttin orðið úti.
Hún hefir líka verið þar að
verki, sem hættan er mest. Ó-
trauðir og djarfir hafa hinir ís-
lenzku sjómenn lagt lífið í hættu
til þess að draga björg í þjóð-
arbúið.
Þess vegna verður líka bjart
um minningu þeirra, sem falla.
Þeir hafa gert skyldu sína til hins
ýtrasta. Og í því er holl harma-
bót fyrir ástvinina sem sakna
þeirra.
Guð blessi hina látnu bræður
vora, sem nú hafa litið bjarma
hins eilífa dags.
Guð blessi ástvini þeirra og
gefi þeim huggun og líkn.
Sigurgeir Sigurðsson.
Kirkjublaðið.
Herra ritstjóri:
Hérmeð bið eg þig að gjöra
svo vel að birta í blaði þínu eftir-
farandi leiðréttingu við grein er
eg las í blaðinu 17. maí s. 1., eftir
Mr. Finnboga Hjálmarsson. Hann
segir að Guðrún í Garði við Mý-
vatn, hafi verið móðir Þuríðar
skáldkonu. Nei, Guðrún sú var
móðir Árna föður Þuríðar skáld
konu í Garði við Mývatn. Móðir
Þuríðar eða Þuru skáldkonu, sem
hún er tíðast kölluð, var Guð-
björg Stefánsdóttir Gamalíels-
sonar skálds í Haganesi við Mý-
vatn. Eg rita þetta vegna þess
að mér er kunnari ætt Þuru en
Mr. Hjálmarsson af skiljanleg-
um ástæðum, því ofannefnd
Þuríður er systurdóttir mín.
Vinsamlegast,
Thor Stephanson,
Winnipegosis, Man.
Látið þér bankan hafa
umsjón með peninga-
sendingum yðar
Þegar þér þurfið að senda peninga til ein-
hverra staða í Canada eða til útlanda, þá er
skynsamlegast að fara til bankans.
PENINGA ÁVÍSANIR
Notið Royal Bank peningaávísanir til þess
að senda upphæðir upp að $100.00. Peninga-
ávísanir er hægt að kaupa í sérhverju útibúi
Royal bankans; þau eru vön að senda peninga
til hvaða staðar sem er í Canada, Bandaríkjun-
um og Bretlandi (subject to Government War-
time Regulation).
VIXLAR
Notið víxla til þess að senda stærri upphæð-
ir. Það er hægt að fá þá greiðlega í sérhverju
útibúi Royal Bank of Canada.
MEÐ LOFTSKEYTI EÐA SÆSÍMA
Ef að hraði er mikilvægur, þá mun bankinn
undirbúa það, að peningar yðar sendist með
loftskeyti eða sæsíma.
THE
ROYAL BANK
OF CANADA
ÁFRAM CANADA
Vegna —
SAMEINAÐS CANADA
AUKINNA VIÐSKIPTA
HEILBRIGÐRA FJÁRMÁLA
TRAUSTRAR STJÓRNAR
ÆFÐRAR MÁLAFORUSTU
HÆFRA FULLTRÚA Á FRIÐARÞINGI
Greiðið
- »
LIBERAL ATKVÆÐI
Ralph Maybank
Liberal Candidate
Winnipeg South Centre
4- 4-
■f -f
Vér verðum að vinna friðinn
“Það getur ekkert komið
í stað sannaðra hœfileika
og reynslu”
Merkið seðilinn þannig 11. júní:
Publiced by the Ralph Maybank Election Committee