Lögberg - 05.07.1945, Page 3

Lögberg - 05.07.1945, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 5. JÚLÍ, 1945 3 Xögberg OeíiS út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS. LIMITED 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Editor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 uín árið — Borgist fyriríram The “L/ögberg” is printed and published by The Columhia Press, Llmited, 69 5 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba PHONE 21 804 HALLFRÍÐUR GÍSLADÓTTIR BALDWIN Fædd 10. júní 1865. Dáin 14. febrúar 1945. Hálljríður Gísladóttir Baldwin Þann 14. febrúar 1945, lézt snögglega að heimili sínu við Campbell River, B.C., Hallfríður Gísladóttir Baldwin, eftir lang- varandi heilsubilun, Hallfríður sál. var fædd 10. júní 1865. For- eldrar hannar voru þau Gísli Tomasson sjálfseignarbóndi í Efra-Nesi í Stafholtstungum í Borgarfirði. Móðir þessa Gísla var Björg skáldkona Jónsdóttir óðalsbónda í Efra Nesi. Móðir Hallfríðar var Margrét Jóns- dóttir á Akranesi. Sá Jón var Jónsson ísaksson hins ríka, en móðir Jóns Jónssonar var Hall- fríður, merkis kona á Akranesi. Jón Isaksson fór til Kaupmanna- hafnar með mikið af peningum til að kaupp fyrir vörur, og hafði áformað að byrja verzlun á Akranesi. Á þeim tíma var ófriður á milli Dana og Englendinga, var Jón þessi einn af þeim tólf Islend- ingum, sem ráku Englendinga aftur til baka til skipa sinna, er þeir mættu Dönum á flótta und- an Englendingum í Skírdags- slagnum alkunna. Nokkru seinna hvarf Jón í Kaupmannahöfn, var það talið víst, að hann hafi verið myrtur, fyrir þá miklu peninga, sem hann hafði með sér. Foreldrar Hallfríðar sál. voru ein af þeim Islendingum, sem settust að í Ontario, og áttu þau þar heima til dauðadags. Á þeim slóðum kyntist Hallfríður Ás- geir V. Helgason, eftirlifandi manni sínum, þau giftu sig í Rosseau, Ontario, á sumardag- inn fyrsta 1886. Ásgeir stofnaði þar Pósthúsið Hekla, og var þar póstmeistari í 20 ár. Árið 1907 fluttu þau hjón til Edmonton, Alberta. Þá voru þar komnir á undan þeim þrír bræð- ur Ásgeirs og kölluðu sig Bald- um garð, sem ekki varð var við gestrisni þeirra, þau voru sam- hent í því að veita, hverjum sem að garði bar. Hallfríður sál. var alla tíð trú- rækin, og hélt fast við barnatrú sína. Það var siður á þeirra heimili að lesa húslestur alla helgidaga. Sökum lasleika hefir sá siður orðið að leggjast niður í seinni tíð. S. Guðmundson. win, og breytti þá Ásgeir nauð- ugur viljugur nafni sínu, eins og bræður hans, og hefur skrif- að sig Ásgeir V. H. Baldwin. 1 Edmonton áttu þau heima þar til 1939, að þau fluttu aftur búferlum, til Campbell River, B.C., þar sem Hallfríður sál. lézt, eins og áður er getið. Þeim varð aldrei barna auðið. Hún lætur eftir sig háaldraðan eigin- mann sinn, sem verður 95 ára næsta haust. Hún var jarðsett i C^mpbell River, og enskur prest- ur þjónaði við útförina. Hallfríður sál. var fríðleiks- kona, áður en veikindi fóru að steðja að henni. Hún var skýr kona, og las blöð og tímarit, og fylgdist með því sem var að gjör- ast í heiminum, á meðan heilsan leyfði henni það. Eg tók eftir því nokkrum sinn- um er þau áttu heima í Edmon- ton, þar sem eg oft var gestur á heimili þeirra, að oft þegar við vorum að rifja upp fyrir okkur, eitthvað, sem við höfðum lesið í blöðunum, en hálfvegis gleymt því, þá kom hún með þessa grein, hún hafði klippt hana úr blað- inu, og geymt sér til minnis, þetta Jcom þó nokkrum sinnum fyrir. Sýnir þetta bezt, hvað hún las með eftirtekt og skilningi, það sem hún las. Hún var sér- staklega vel að sér í ýmsum hannyrðum og hafði gott lag á því að búa til “munstur”, sem hún brúkaði svo sjálf. Á iðnaðarsýningum, sem ár- lega voru haldnar í Edmonton, hafði hún iðulega eitthvað til sýnis, og vakti margt af því sér- staka eftirtekt, árið 1937 hafði hún þar ^Afghan Rug”, sem þótti með afbrygðum vej gjörð, og fékk hún fyrstu verðiaun fyr- ir það. Hafði dómnefndin sagt, að þessi “Rug” ætti að vera á safni þar sem aðeins sérstaklega góðir munir væru sýndir. I mörg ár fékk hún fyrstu og önn- ur verðlaun fyrir það, sem hún hafði þar til sýnis, var hún víst eina íslenzka konan þar, sem tók nokkurn þátt í því. Eg gat um þátttöku hennar í iðnaðarsýning um á þeim tíma í fréttagreinum mínum “frá Edmonton”. Hallfríður sál. var gefin fyrir söng, þó hún fengi aldrei neina tilsögn í þeim fræðum. Henni var tamt að læra lög, sem hún heyrði sungin einu sinni eða tvisvar og æfði sig að spila þau á harmón- iku. Það voru víst fáir, sem vissu um þessa hæfileika hennar, hún vildi aldrei hafa neitt af því um hönd, nema þegar aðeins nán- ustu kunningjar hennar voru viðstaddir. Heimili þeirra hjóna stóð ætíð opið fyrir gestum, og þar held eg að enginn landi hafi gengið Tónlistarfélagið: ” » “Friður á jörðu óratóríó eftir Björgvin Guðmundsson Þetta mikla óratóríuverk Björgvins Guðmundssonar hefir verið flutt þessa dagana 1 Frí- kirkjunni á vegum Tónlistarfél- agsins. Það er samið við hinn alkunna ljóðabálk Guðmundar Guðmundssonar og er að vöxt- um mesta tónverk, sem íslenzk- ur maður hefir hingað til sam- ið, og ennfremur fyrsta verk sinnar tegundar, sem prentað hefir verið, sem eg bezt veit. Hér er því um tónlistarsöguleg- an viðburð að ræða í þrennum skilningi. Höfundurinn hefir sérstöðu meðal íslenzkra tónskálda að því leyti, að hann hefir tekið ást- fóstri við óratoríuformið. Hann er hið eiginlega óratóríutónskáld þjóðarinnar. Eðlisgáfa hans vís- aði honum snemma þessa leið og liggja eftir hann nokkur verk á þessu sviði og ennfremur kantötur, en þær eru að formi til náskyldar þeim. Hér er um að ræða stórform tónlistarinnar. Stíll hans, eins og hann kemur fram í “Friður á jörðu”, er byggður á arfleifð hinna gömlu meistara, þar sem þungamiðjan liggur í hinum stóru kórköflum, bæði hvað ytra form og anda verksins snertir. Þessir kórar eru ýmist byggðir í fúgustíl eða eru í ljóðrænum sálmalagastíl. Hefir hann kórstílinn algerlega á valdi sínu og nær miklum áhrif- um, þegar honum tekst upp. Verkið samanstendur af kórum og ljóðsöngvum og virðist mér höfundurinn vera sterkastur á svellinu í kórunum. Hér verður efni verksins ekki rakið, því að það er alkunnugt, en hvað músikhliðina snertir, þá skal drepið á það í stórum dráttum. Grunntónn verksins er hug- myndin um Paradís (1. þáttur), missta Paradís (2. og 3. þáttur) og endurheimta Paradís (4. þátt- ur). Þetta ræður blænum eða litnum á þáttunum. 1 forleikn- um birtist friðarhugsjónin m^ð fögrum hljómum. Er friður og birta yfir þættinum, þar til milli spilið boðar að eitthvað uggvæn- legt sé í aðsígi, en þar er friðar- stefið með mollhljómum. I öðr- um og þriðja þætti hefir syrt að, og er þar m. a. lýst vargöld og hörmungum hennar. Fjórði þátt- ur hefst svo með friðarkórnum, en forspilið að honum hefst á friðarhljómunum í upphafi verksins, og héfir þátturinn sama lit og fyrsti þátturinn. Þessi kór er eitthvað það bezta, sem frá hendi höfundar hefir komið og rís verkið hæst í honum og loka- kórnum. Með þessari stuttu lýsingu hefi eg reynt að sýna fram á, að það er heild í byggingu verks- ins, hvað músikhliðina snertir. Annars er það um höfundinn að segja, að gáfu hans er þannig varið, að hann horfir aftur fyrir sig, en ekki fram fyrir sig sem 'tónskáld. Hann byggir verk sitt á hinni klassísku arfleifð og kem- ur manni hvergi á óvart með djörfum og nýjum hljómasam- böndum. Hann gengur ruddan veg og hefir það tungutak, sem alþýða manna mun strax geta skilið, enda hefi eg orðið þess var, að þessu verki hans hefir verið vel tekið af öllum þorra man'na, er á það hafa hlustað. Höfundurinn lét þess getið fyr- ir skömmu í viðtali við blaða- mann, að verkið væri í góðs manns höndum, hvað uppfærsl- una snertir. Þetta er hverju orði sannara. Það er ekkert áhlaupa- verk að æfa slíkt stórverk á skömmum tíma og skila því sóma samlega. Þetta hefir söngstjóran- um, dr. von Urbantschitsch, tek- izt, eins og vænta mátti af hon- um. Kórkaflarnir voru vel flutt- an einkennir söng undir hans stjórn. Karlakórsþættirnir voru einkar vel fluttir og vil eg vekja athygli karlakóranna okkar á þeim, sérstaklega á laginu: Ym ur þungt í skógunum í Indía- löndum”. Það var Samkór Tón- listarfélagsins, sem flutti verkið en þar er valinn maður í hverju rúmi. Hljómsveit Reykjavíkur annaðist, ásamt orgelinu, undir- leikinn, og fórst það vel úr hendi. Einsöngvararnir við uppfærslu þessa verks voru Ólafía Jóns- dóttir, Ingibjörg Steingrímsdótt ir, Björg Guðnadóttir, Pétur Jóns son óperusöngvari og Ólafur Magnússon. Erlendis er það sér grein söngvara, að syngja ljóð söngva í óratóríuverkum og eins og kunnugt er, þá er Pétur okk- ar sterkari á öðru sviði en þessu. Síðan Davína Sigurðsson fór af landi burt, vantar okkur góða óratóríu söngkonu. Ekki ætla eg samt að fara að skamma sópran- söngkonurnar fyrir sönginn, því að þær gerðu það, sem þær gátu, en því ber ekki að leyna, að heldur fannst mér eins og mynd uðust “lægðir” í flutningnum þegar þær tóku við. Altsöngkon- an hefir fallega rödd og gerði sínu hlutverki allgóð skil. Ólafur Magnússon hefir það sameigin- legt frú Davínu Sigurðsson, að hann er góður óratóríusöngmað- ur. Páll Isólfsson lék á orgelið for spilið og annaðist undirleik á það og enn fremur lék hann milli þátta. “Tilbrigði um sálma- lagið Dýrð sé guði í hæstum hæðum” eftir Björgvin Guð- mundsson og leysti hlutverk sitt af hendi með snilld. Björn Ólafs- son og Dr. Erelstein léku á fiðlu og celló, en þeir eru báðir okk- ar fremstu strengjaleikarar hvor á sínu sviði. Þegar tónar lokakórsins dóu út, afhenti söngstjórinn höfund inum söngsprotann og stýrði Business and Professional Cards ec/cL't* . . . en núverandi símalínur fullnægja AÐ- EINS með samvinnu af yðar hálfu. Talið ekki lengur 'í síma en nauðsyn krefur. Munið, að tæki vor eru geisilega notuð, auk viðurkendr- ar manneklu. Enn er þurð á efnum. Fylgið ná- kvæmlega reglum vorum við símanotkun, og vér greiðum fyrir yður af öllum mætti. Þökk' FIRÐSÍMAGJ ÖLD ERU LÆGRI FRA 6 E. H. TIL 4,30 F. H. DR. ROBERT BLACK Sérfrseöingur I Augna, Eyrna, nef og hálssjúkdómum 416 Medicai ArtS Building, Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 93 851 Heimasimi 42 154 DR. A. BLONDAL Phy»UHan & Surgeon 602 MEDICAL ARTS BLDQ. Simi 93 996 HeimiH: 108 Chataway Sími 61 023 DR. A. V. JOHNSON Dentitt 606 SOMERSET BLDG. Thelephone 97 932 Home Telephone 202 398 Frá vini EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D tslenekur lyfsaU Tðlk getur pantaQ meCul ok annaS meO pðstl. Fljðt atgreiOsla. A. S. BARDAL 848 SHERBROOIC ST. Selur Ukklstur og annast um ðt- farir. Aliur útbönaOur sfi be»U. Ennfremur selur hann allakonar mlnnlsvarOa og legstelna. Skrlfstofu talsimi 27 324 Helmilis talslmi 26 444 HALDOR HALDORSON bvoplnoameistari 23 Music and Art Building Broadway and Hargrave Winnipeg, Canada , Phone 93 055 TELEPHONE 96 010 H. J. PALMASON &t CO. Chartered Accountantt 1101 McARTHUR BUILDÍNG WINNIPEG, CANADA Phone 49 46» Radlo Servlce Specialists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG Argue Brothers Ltd. Real Estate — Financial — and Insurance Lombard Building, Wlnnipeg J. DAVIDSON, Rep. Phone 97 291 INSURE your property wlth HOME SECURITIES LTD. 468 MAIN ST. Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Phones Bus. 23 377 Res 39 433 G. F. Jonasson, Pres. A Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Slmi 95 227 Wholetale Dlétributort of FRE8H AND FROZEN FIBR MANITOBA FISHERIES WINNIPEG, MAN. T. Rercovttch, fram.kv.tti. Verzla t heildsölu meC nýjan og froslnn flsk. 808 OWENA ST. Skrifstofusimi 26 355 Hoimasími 65 463 Dr. S. J. Johann«ss*n 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) Talsimi 80 877 VlStalaUml 3—i e. h. Dr. E. JOHNSON 304 Eveline St. Selkirk Office hrs. 2.30—6 P.M. Phone office 26. Res. 880 Office Phone Res. Phona 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p m. and by appolntment DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlæknar • 406 TORONTO GEN. TRC8T8 BUILDING Cor Portage Ave. og Smith 9t PHONE 96 952 WINNIPEG )iudlos 7 fkstcocajchic Oufco •ÍmUotrs Oame- PHONE 96 647 Legsteinar sem skara framúr Úrvals blftgrýtl og Manitoba marmarl Bkrifið eftir verðtkrd GILLIS QUARRIES. LTD. 1400 Spruce St. Sími 28 893 Wlnnipeg, Man. J. J. SWANSON S. CO. LIMITED 808 AVENUE BLDG.. WPG. e Fastelgnasalar. Leigja hús. Út- vega penlngalán og elds&byrgB. bifrelöaftbyrgB, o. s. frv. Phone 97 638 ANDREWS. ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON LOpfrceOinpar 209 Bank of Nova Scotla Bldg. Portage og Garry St. Simi 98 291 Blóm siundvíslega afgreidd THE ROSERY LTD. Stofnaö 1906 4 27 Portage Ave. Síml 97 466 Wlnnipeg. GIJNDRY & PYMQRE LTD. Brlttoh Quality — Flsh Nettlng 60 VICTORIA STREET Fhone 98 211 Wlxmipeg Manaper, T. R. TEORTALDBOH Tour patronage wlll be tppreciated CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. I B. Pape, Manapinp Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. 311 Chambers St Office Phone 26 328 Res Phone 73 917. — LOANS — At Rates Authorized by Small Loans Act, 1939. PEOPLES FTNANCE CORP. LTD. Licensed Lend.rs Established 1929 408 Ttme. Bldg. Phone 21 489

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.