Lögberg - 02.08.1945, Blaðsíða 4

Lögberg - 02.08.1945, Blaðsíða 4
12 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. ÁGÚST 1945 f Hið óþekta Saga jrá jyrra heimsstríðinu. -f-M- Jóna var ekki viss um hve lengi að hún hafði setið kyr, því það var örðugt að greina bilið á milli dags og nætur. Madama Lelanna var vön að rísa á fætur og ganga út og koma aft- ur til baka eftir stundarkorn, með mann á bakinu, og þegar einhver, sem inni var dó, tók hún hann á bak sér og hvarf upp stigann. Stundum var mað- urinn, sem hún kom með fransk- ur, en stundum var það Þjóð- verji, því ennþá virtist standa uppihaldslaust stríð um þorpið, sem hús Lelönnu stóð í. Það var lítið sem hægt var að gjöra fyrir þessa særðu og dauð- þreyttu hermenn, sem Lelanna var að flytja inn í hús sitt, ann- að en hreinsa og binda um sár þeirra. Jóna og litli lyfjafræðingur- inn, önnuðust hjúkrunarstörfin, á meðan þau gátu staðið uppi. Enginn vissi hvenær Madame Lelanna svaf. Ef hún hefir nokkurntíma gjört það, þá hefir það hlotið að vera í skugganum á bak við eldstóna, með hend- urnar í kjöltu sér. Dubos, maður Lelönnu, hafði verið inni í húsinu þegar partur af því hrundi og var skorðaður undir bita er hélt nokkru af þakinu uppi. Hann var ómeidd- ur, en skeggið á honum var brunnið, þegar Lelanna fann hann. Madömu Lelönnu fanst að hún gengi í draumi. Hún gat ekki hrundið þeirri hugsun úr huga sér, að það væru sálir, en ekki líkamar, sem hún var að bjarga, og mennirnir sjálfir, sem hún var að líkna, gáfu efni til þeirra hugsana. Afklæddir her- búningi sínum, sem bæði var slitinn og óhreinn, voru þeir hvorki Frakkar né Þjóðverjar, vinir eða óvinir. Þjóðemismetn- aðurinn var horfinn. Þegar þeir opnuðu augun og litu hvor til annars, brostu þeir eins og þeir væru bestu vinir. Friður og ró hvíldi yfir þeim, og litla hálf- hrunda húsinu, sem þeir lágu í, þó hergnýrinn bærist við og við utan að frá, til eyrna þeirra þar sem ólgan sauð og svall. Einu sinni hafði maður, sem hlotið hefir að þekkja þetta hálf- eyðilagða hús, komið inn til þeirra, sest niður og farið að tala við þau. Jóna gat ekki mun- að eftir því, að hún hefði orðið vör við neina hrifningu eða að neinn hefði komið inn. En hún gat ekki verið viss um nema hún hefði sofnað í svip, því hún var bæði þreytt og syfjuð. Madama Lelanna sat í skugg- anum bak við stóna, með hend- urnar í kjöltu sér og tók ekki augun af nýkomna manninum. Dubos stóð við borðið og kross- lagði hendurnar á brjósti sér. Mennirnir særðu höfðu risið upp við olnboga í stráfletum sín- um og hlustuðu. Einstaka þeirra héldu höndunum um kné sér og einn þeirra fól andlitið í hönd- um sér og laut höfði. Maðurinn, sem talaði var í TIRES - TUBES - BATTERIES and AUTO ACCESSORIES Factory approved • RETREADING - VULCANIZING B. F. GOODRICH STORES 287 Sherbrook Sl. Phone 37 031 ssss: (^ilcelanders are Cordially Invited to make tKis Century- Old Institution their Banking Home. THE BANK OF NOVA SCOTIA dálítilli fjarlægð frá heimafólk- inu. Olíulampi hékk á krók í loftinu og varpaði daufri birtu á andlit komumannsins. Hann var klæddur' í verkamannaföt. 'Jónu fanst, að hún hefði séð hann áður, en hún þekkti hann ekki, enda mætti hún svo mörg- um, að það var naumast að bú- ast við, að hún myndi eftir þeim öllum. En það voru augu að- komu mannsins, sem vöktu sér- staklega eftirtekt hennar, og fylgdu henni lengi. Ekki vissi Jóna á hvaða máli hann talaði, en það var enginn þar inni, sem ekki skildi hvert orð er hann sagði. “Hugsið yður Guð, sem vold- ugan konung,” sagði aðkomu maðurinn, “Drottinn, sem skipi fyrir um alt og ráði öllu og sem- á svipstundu gæti breytt rás viðburðanna að vild ef honum svo sýndist, og svo sjáið þér miskunarlausa grimdina og rang- lætið alt í kringum yður og þér segið við sjálfa yður. Hann horf- ir upp á þetta ranglæti, þessar hörmungar, og líður það, og þær, en gæti þó komið í veg fyrir þau ofbeldisverk mannanna, ef hann vildi, og hjörtu yðar fyllast gremju, og hver getur láð yður það? En eg spyr, mundi nokkur sá faðir, sem elskar börn sín geta horft á þau líða ranglæti og þrengingar, ef hann með því að rétta út hendina, eða mæla eitt máttarorð, gæti varðveitt þau frá óhamingju og breytt sorg þeirra í gleði? Hvaða faðir mundi gefa horft upp á börn sín vinna hvort öðru mein— berjast á banaspjótum og látið þau afskiptalaus? Er nokkur sá faðir til, sem af ásettu ráði leggur lálmanir fyrir börn sín, til þess að hrinda þeim út í glötun og ógæfu? Ef öll slík ógæfa væri Guði að kenna. Hvers vegna gjörði hann þá hið illa sVo máttþrung- ið, en mennina veika? Nei, það sem að er, er ekki Guði að kenna, heldur mönnunum — skilnings og viljaleysi mann- anna. Athugið, Guð verður að ná til mannanna, ef hann á að geta haft áhrif á þá, en þó að vegir hans séu margir, og órannsakan- legir, þá er það aðeins einn veg- ur, sem til þeirra liggur, og það er í gegnum hug þeirra og hjarta. Ef Guð kemst ekki eftir þeim vegi, þá getur hann ekki til þeirra náð, en hann er altaf að knýja á hjörtu mannanna, reyna að ná til þeirra, en hjörtun eru lokuð fyrir honum, svo full sín- girni, að þar er ekkert rúm fyrir hann. Guð þráir að mennirnir séu miskunsamir, réttlátir og með- aumkunarsamir. Þeir svara: Ef eg er miskunsamur, þá fer hvert hagnaðartækifæri á fætur öðru fram hjá mér. Ef eg er réttlát- ur, þá lækka tekjur mínar og einhver annar nýtur ágóðans, sem eg hefði getað haft sjálf- ur, og ef eg er meðaumkunar- samur, þá tapa eg peningum á hverjum degi. Það er engin sú mannpersóna til, sem ekki veit í hjarta sínu að slíkur hugsunarháttur er rangur. Sjálfselska gjörir engan mann farsælann. Hver er sælli en sá, sem lifir þjónustusömu lífi? Hvort er ánægjulegra, að sitja einn til borðs, eða neyta máltíðar með vinum sínum? Hvor er virðingarverðari yðar á meðal, sá gjafmildi eða sá, sem engu tímir að miðla? Sá, sem safnar auði fyrir sjálfan sig, eða sá, sem safnar honum fyrir með- bræður sína? Hver er hinn sanni hermað- ur, sá sem gengur á móti hætt- unni, án þess að hlífa sjálfum sér, eða hugsa um eldraunirnar, sem hann þarf að yfirstíga? Eg segi yður, að hreysti sú og sjálfsafneitun, sem slíkur her- maður sýnir er léttvæg í saman- burði við kærleika hans til félaga sinna og fósturlands. Hinn sanni hermaður fyrir- verður sig aldrei fyrir kærleik- ann, heldur er reiðubúinn til að gefa líf sitt fyrir vini sína. Ef nokkur yðar dyrfist að lítils virða hann fyrir þá afstöðu sína, þá segi eg yður, að hún er kóróna hans og heiður. Guð er kærleikur, og þér snú- ið baki við honum. Hatrið knýr á dyr hjarta yð- ar, og þér opnið það fyrir því. Hvers vegna óttist þér áhrií kærleikans á líf yðar, sem allt gott er þó frá sprottið7 Hatrið felur í sér frækorn dauðans, kærleikurinn frækorn lífsins. Hví kjósa menn dauðann, frek- ar en lífið? Guð biður, og bíður eftir sam- verkamönnum.” Einn af sjúklingunum svaraði' “Við erum fátækir og umkomu- lausir menn. Hvað geta slíkir sem við gjört?” “Þér eruð hermaður og spyrj- ið þannig,” svaraði aðkomu mað- urinn. “Hverjum dettur í hug að segja þegar um herskyldu er að ræða. Eg er til einskis nýt- ur, eg er aðeins fátæklingur, sem enginn metur eða veitir eftirtekt. Hver myndi sækjast eftir þjónustu minni. Guð þarf á öllum að halda í sína þjónustu. Það er enginn, sem ekki á að vera þátttakandi í sigri hans. Voru ekki þeir, sem vöktu heim- inn af dvala og kendu með meiri krafti en kent hefir verið fyr, eða síðar, lítið mentaðir menn, lítið upplýstir menn og fátækl- ingar? Þeir kendu með lífi sínu. Vísið síngirninni á dyr, en leyf ið Guði að koma inn, þá verðið þið eitt með honum. Það er eng- inn svo lítilmótlegur að hann geti ekki verið musteri Guðs og enginn svo voldugur, að hann sé musteri því meiri.” Ræðumaðurinn þagnaði. Það varð einhver hreifing í herberg- inu svo Jóna tók augun af hon- um. Þegar hún leit aftur við, var hann horfinn. Saga þessi endursögð. J. J. B. Ef þú eða eg getum, áður en lýkur, gefið mannkyninu einn bók eða 'línu eða hugsun, sem megnar að gera það hæfara til að njóta lífsins í dálítið ríkara mæli en ella eða þola andstreymi PERMANGNTS FÁHEYRÐ KOSTABOÐ 1 HÁRSNYRTINGU Hln nýja “ALERT” WAVE $2-5° Innifelur hárþvott og greiðslu Sími 97 703 EINSTAKT TILBOÐ RJÓMAOLÍU WAVE $^.50 Fullkomin $5 virði OpiO til kvelds laugardaga MISS M. HELGASON Nu-Fashion StafO NU-FASHION Professional Operators — 327 Portage — Gegnt Eaton’s þess betur en áður, höfum við ekki til einskis lifað. Jan Hay. Menn álíta, að það sé eðlilegt, sem náttúran ætlast til, að við gerum. Rom Landau. Bestu hamingjuóskir með íslendingadaginn á Gimli 1945 * McDonald-Dure Lumber Co. Limited 812 WALL ST. WINNIPEG, MAN. PHONE 37 056 “One peace or a carload” IMPERIAL BANK OF CANADA GIMLI BRANCH Open Tuesdays, Wednesdays, Fridays and Saturdays RIVERTON (Sub-Branch) Open Mondays and Thursdays 'KMS? R. L. WASSON, Mgr. Bestu ámaðaróskir frá Bros. Bedding & Upholstering Verkstæðinu Við erum sérfræðingar í að yfirdekkja legubekki og endur- nýja undir- og yfirsængur. — Nýjir húsmunir og nýjar undir og yfirsængur búnar til samkvæmt ákvæðum eigenda Fljót afgreiðsla. Ábyggilegt verk. Sanngjamt verð. PHONE 53 388 921 Main Slreeí Winnipeg. Man. UNITED STORÉS LIMITED Eg óska íslendingum til blessunar með íslendingadaginn á Gimli 6. ágúst 1945 tJla/uilJLusi lijG/waáan kaupmaður Við sjáustum á Gimli PHONE 28 GIMLI, MAN. pilBIIIIBIMIIIiaillBIMIillBIIIIHniMllliBHIIMIBMBIMIIIBIIBIIIBMinMIHfBIMIIMPUHlliniM * Compliments o/ . . . ■ i CANADIAN WESTERN ! i BOX COMPANY, LTD. « ■ ’ ; MARION ST. & DAWSON ROAD ■ PHONE 201 185 ■ • ' I ■ ■ Manufacturers oí Wooden Boxes, also Wood-Tex Insulaíion H | i Removes Your Weather Problems ! - i LOUIS HATSKIN ■ IWBIIIIBIIIIHNItBIIIIBIIIIHIIIIBIIIIHIIIiailiailllHIIIIHimBllliailllHIIIIHHIIBHIIBIIIIHIIIIBIIIIHIIIia

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.