Lögberg


Lögberg - 09.08.1945, Qupperneq 3

Lögberg - 09.08.1945, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. ÁGÚST, 1945 3 ið skrúðgrænt, en hitt nakið og blásið, og svo er enn þann dag í dag, segir sagan. Þannig kom sakleysi og göfug- lyndi hinnar saklausu í ljós. Hennar, sem heldur vildi sak- laus láta lífið, en koma upp sannri sök um brotlega systur. — Þetta eru í þjóðtrúnni laun göfuglyndis og vitnisburður sakleysisins. Fyrir nokkru kom út bókin “Fagrar heyrði eg raddirnar”. Eg ann þeirri bók meira en flest- um nýjum bókum. Þar er hver perlan annari fegurri sett fram í alþýðlegum viðlögum og ævin- týrakenndum ljóðum. Það er hið fagra kvæði um Tistram og Isold hina björtu. Þau unnast, en fá ekki að njót- ast, og Isold er öðrum gefin. Tistram særist til ólífs, í bar- daga, en heldur þó lífi. — Hann vill ekki að nein önnur græði sig en Isold hin bjarta frú. Skip er sent eftir henni og skal það tjalda fagurbláum seglum, ef hún kemur með, en ella svörtum. — Isold hin svarta situr hjá Tistram. Hún ann þeim ekki samfundum*. Þegar skipið nálgast segir hún það tjaldi dökkum seglum. Þá sprakk Tistram af trega. — Þegar Isold hin bjarta leit Tistram látinn hneig hún örend til jarðar. — “Ekki skulu þau heldur njótast dauð,” sagði þá hin svarta Isold. — Og sitt hvorum megin kirkjunnar voru þau grafin. — En þá segir svo í kvæðinu: “Runnu upp frá leiðum þeirra lundar tveir. Upp af miðri kirkjunni mættust þeir.” Þannig náðu þau saman, sem meinað var að unnast og njót- ast. En hvað snerta þessar þjóð- sögur og ævintýri sjálfstæði þjóðarinnar? Er nokkurt samband milli þjóðsagna, þjóðkvæða og t. d. sjálfstæðisbaráttunnar? Eg veit ekki hvort mér tekst að gera ykkur ljóst hvermg þetta samband er. Eg vil reyna að skýra þetta: Friðriksberg er útborg í Kaup- mannahöfn. Um áttundi hluti borgarbúa á þar heima. Árið 1923 voru 100 þúsund manns í þessu borgarhverfi. — Það sama ár voru á íslandi 100 þúsund íbúar. — Á Friðriksbergi eru nokkrar stórar verksmiðjur, margar stórar verzlanir og vöru- geymsluhús, nokkrir barnaskól- ar, mörg glæsileg og falleg íbúð- arhús, fagrir trjágarðar og stein- lagðar götur. En þeir eiga engan Matthías Jochumsson, engan Jónas Hall- grímsson, engan Hallgrím Pét- ursson og engan Jón Sigurðsson. Og þeir á Friðreksbergi eiga engan Systrastapa með trega- blandinni þjóðsögu. — Þeir eiga engin kliðmjúk þjóðkvæði, sem heilla hugann eins og fegursta sönglag. Þetta er munurinn á þjóð og mannfjölda. Á þessum mun hvílir sjálf- stæði smáþjóðanna. Hin kliðmjúku þjóðkvæði, þjóðsögurnar spaklegu, ævin- týrin fögru, saga þjóðarinnar, minningar hennar og ættstofn. Allt eru þetta sterkir þættir í því að þjóð eigi rétt á að vera sjálfstæð þjóð. Ef þjóðin glatar þessum verðmætum. Ef þjóðsag- an og ævintýrið hverfur úr lífi þjóðarinnar, þá glatast margt með. Síðan — hin fagra fjallasveit — og kvöldkyrrðin og hin fagra útsýn vlið Breiðafjörð, á líka sterkan þátt í sjálfstæði lands- ins. Steinlagðar borgargötur á Friðriksbergi, og kaffihúsalíf um síðkvöld, styrkir ekki sömu þætti í þjóðlífinu. Til þess að þjóð sé og verði frjáls og fullvalda, þurfa synir Brezka orustuskipið Barham, Queen Elizabeth og Resolutior.. Business and Professional Cards og dætur að unna landi sínu og þjóð. Ekki er hægt að flytja svo á- varp á þessum degi, að minnast ekki foringjans mikla, Jóns Sig- urðssonar. Það er af mörgum viðurkennt, bæði í ræðu og riti, að engum einum manni á þjóðin það meira að þakka, að hún fékk viðurkennt frelsi sitt og full- veldi. Jafnframt því, að dagur þessi er minningadagur um stofnun lýðveldis á íslandi, þá er hann afmælisdagur okkar mesta þjóðskörungs. Á liðnum árum hefir oft og mörgum sinnum nafn Jóns Sig- urðssonar verið nefnt, en þó mun eitthvað rétt í því, sem Vilhjálmur Þ. Gíslason segir í inngangsorðum að bókinni Jón Sigurðsson í ræðu og riti. Hann segir, að miklum hluta Is- lendinga sé ævi Jóns og störf lítt kunn. Nafn hans er nefnt sem þjóðhetja, menn henda á lofti einstakar setningar og orð- tök úr ræðum hans og bréfum, og láta svo þar við sitja. En sannleikurinn er sá, að persón- an Jón Sigurðsson, er svo merki leg, að hver einasti íslendingur, sem á þess kost, ættu að kynna sér hana', eftir því sem aðstaða er til, af einkabréfum hans og ritgerðum um landsmál. Það vita allir, að sem stjórn- málamaður var Jón Sigurðsson óvenjulega sterkur, en vináttu- sambönd hans við menn voru þó, ef til vill enn sterkari. Einkabréf hans skipta tugum og hundruðum árlega, og eng- um vina sinna gleymdi hann, og tryggðin og vinfestan er jöfn, þótt vinur hans snúist gegn honum í landsmálabaráttunni. Bréf Jóns Sigurðssonar eru gull- náma, og lýsa honum miklu bet- ur en nokkur orð fá gert. Ætíð er hann boðinn og búinn að leggja vinum sínum lið, og lítil- fjörleg erindi þeirra rekur hann fyrir þá í Kaupmannahöfn, þótt jafnan sé hann önnum kafinn. Hjis hans stendur öllum Islend- ingum opið einu sinni í viku hverri. Þaf er etið og drukkið, sagðar fréttir frá íslandi og framfaramál Íslands rædd af á- huga yfir borðum, sem hlaðin eru íslenzkum réttum. Einkabréfin og hin glæsilegu kvöldboð forsetans hafa ef til vill átt sterkasta þáttinn í því, að hann var svo ástsæll’ foringi. Persónan var óvenjulega sterk. Enginn gat gleymt honum, sem einu sinni hafði séð hann. Hann skildi allra manna bezt rökin, sem til þess lágu, að ís- lendingum bæri að vera frjáls og fullvalda þjóð. Hann skildi allra manna bezt muninr, á mannfjölda og þjóð, Hann skildi hvert gildi saga þjóðarinnar hafði í sjálfstæð- isbaráttunni — þjóðsögurnar, ævintýrin og þjóðkvæðin. Hann kunni að meta stofn þjóðarinnar og eggjaði íslend- inga lögeggjan, að gerast ekki ættlerar og dusilmenni. Hann skildi það allra manna bezt, að fjárhagslegt sjálfstæði er skilyrði fyrir því, að þjóð sé frjáls og fullvalda, og hóf bar- áttu fyrir verzlunar- og fjár- hagsmálum íslands. Hann skyldi það, að frelsi fylgja bönd og skyldur, og ávít- aði skólapiltana, sem fluttu honum kvæði um þingtímann 1875, en þar var þessi setning: “Þú hetja prúð, sem aldrei þekkir bönd.” Hann sýndi þeim fram á, að frelsi án banda, án takmörkunar, væri ekki frelsi heldur agaleysi og óstjórn. Jón Sigurðsson skildi það allra manna bezt, að þjóðleg verðmæti er sterkasti gjaldeyr- irinn, þegar lítil þjóð er metin. Þar duga fjármunir skammt. Hann vann því að því allt sitt líf að kynna sér sögu íslands, ■ þjóðkvæði. — þjóðsögur og ævintýri. Og þótt hann væri framfaramaður og berðist oft fyrir nýmælum, vildi hann byggja alla framför á þjóðlegum grunni. sjálfstæði hennar í andlegum og verklegum efnum í stórri hættu. Á þessu liðna lýðveldisári hafa allir verið bjartsýnir. Hafi ein- hver rætt um að fara gætilega, hefir rödd hans naumast heyrzt. Aukinn efnahagur og aukin lífsþægindi hafa lyft hugum manna á flug. Áætlað er að flytja inn hrað- virkar vélar og skip — og ekki síður hugsjónir og kenningar. Einn vill allt sækja í austur. Annar vill allt sækja í vestur. Hinir þriðju vilja halda sig að hinum norræna stofni. Læra af frændum vorum og nágrönnum. Um þetta er rætt og ritað. En eitt má ekki gleymast. Allt, sem innflutt er, þarf að tengjast við íslenzkar rætur, ef við viljum heita og vera sjálfstæð þjóð. Við verðum að eiga þrek og menningu til að velja og hafna, en ekki að gleypa nýmælin eins og þorskur gleypir beitu. Eg vil taka dæmi af tveimur trjáreitum til að skýra mál mitt. Vorið 1912 fékk húsfreyjan í Stafafelli í Lóni nokkrar þroska- miklar birkiplöntur frá Hall- ormsstað. Hún gróðursetti þær framan við nýreist íbúðarhús móti suðri og sól. Jarðvegurinn var mildinn og djúpur — gaml- ar bæjarrústir. Nú eftir 22 ár er þarna glæsilegur trjágarður. Stofnfögur birkitré eru þarna jafnhá reisulegu íbúðarhúsinu og breiða út krónur sínar. Sumarið 1907 heimsótti kon- ungur Dana Island. I minningu um komu hans voru gróðursett mörg hundruð barrtré eða barr- trjáplöntur af útlendum stofni í leirblöndnum lyngmóum við Rauðavatn, skammt frá Reykja- vík. — I fyrstu leit svo út, sem plönturnar ætluðu að þrífast, en svo kom kýtingur í þær allar, — sumar dóu, en aðrar lifðu sultarlífi. — Nú eftir 37 ár eru tréin lágvaxin og þroskalítil. Þau hafa ekki náð fullum þroska í íslenzkum jarðvegi. Þau eru að- flutt og sett niður af handahófi í laklegan jarðveg, sem þau geta ekki þrifist í. Eg veit ekki hvort þessi dæmi um misjafna trjáreiti hafa skýrt mál mitt. En það, sem eg vil vekja athygli á, er fyrst og fremst þetta: Sjálfstæð þjóð hlýtur alltaf að líta á sína eigin menningu sem undirstöðu, og við þjóðlegan stofn á að tengja allt, sem innflutt er. Ef það gleymist, verður útkoman lík trjáreitunum við Rauðavatn. Sjálfstæð þjóð má ekki gleypa við nýmælum eins og óviti við lostætum bita, — heldur meta að velja og hafna, annars er Eg mun nú fara að ljúka máli mínu, en að lokum vil eg rifja upp skyldur vorar við hið unga lýðveldi og bera upp tvær spurn- ingar: 1. Hvað þarf að vernda? 2. Hvað þarf að efla? Við þurfum að vernda móður- málið og auka fegurð þess. Við Durfum að vernda sögu þjóðar- innar — þjóðsögurnar — ævin- týrin og þjóðkvæðin kliðmjúku. Við þurfum að efla menntun ■ vísindi — listir. Verklega menningu, — vélavinnuræktun, skipastól, — verksmiðjur. Allt þetta ber okkur að gera, ef við erum þeirri hugsjón trú, að ísland verði frjálst og full- valda lýðveldi — um aldaraðir. Tilvera og barátta hinnar ís- lenzku þjóðar, er líkust ævintýri eða stórfelldri þjóðsögu. Ef við gætum þess ekki að halda rétt á málunum, þá getur sa'ga þjóð- arinnar orðið aðeins þjóðsaga eða ævintýri. Látum það aldrei henda okkur. íslenzka þjóðin á möguleika til að verða fyrir- mynd annarra smáþjóða. Hún á menningu, forna og nýja, sem hægt er að byggja á. Auðlindir landsins bíða þess að þær séu nýttar. Hin fengsælustu fiski- mið geyma enn gull framtíðar- innar. Fegurð landsins er sú sama og á dögum feðra vorra — og fegurð og gróður þess á eftir að aukast. Eg vil ljúka þessum hugleið- ingum með ljóðlínum úr hátíða- kvæði Huldu: Hver á sér fegra föðurland með fjöll og dal og bláan sand, með norðurljósa bjarmaband og björk og lind í hlíð? Með friðsæl býli, ljós og ljóð, og langt frá heimsins vígaslóð. Geym drottinn, okkar dýra land, er duna jarðarstríð.” Tíminn, 6 júlí. — Hefir yður aldrei skjátlast í meðferð á sjúklingum yðar? spurði forvitinn blaðamaður frægan skurðlækni. — Aðeins einu sinni, svaraði læknirinn. — Var það alvarlegt? — Ekki svo mjög. Eg lét ná- unga borga 100 krónur fyrir upp- skurð, en komst að því seinna, að hann hafði 500 krónur á sér. * * — Elsku Gísli, læknirinn sagði, að eg þyrfti að skifta um lofts- lag. — Alt í lagi, sagði eiginmað- urinn glaðlega, veðurfræðingur- inn segir að það verði rigning á morgun. * * Ræðumaðurinn var að tala um efni úr Gamla Testamentinu og dvaldist mjög við smærri spá- mennina. Þótti áheyrendum nóg um málalengingar ræðumanns. Að síðustu gerði hann smávegis hlé á máli sínu, en sagði síðan: — Nú, og hvar eigum við svo að setja Habbakuk? Aftur í áheyrendasalnum reis maður upp og sagði: — Hann getur fengið mitt sæti. DR. A. BLON.DAL Pht/aioian & Burgcon «01 MEDICAL ARTS BLDO. Slmi 93 996 Heimili: 108 Chataway Slmi 61 02» Dr. S. J. Johannesaon 216 RUBT STREBT (Beint suður af Hannlnfr) Tal*tmi 80 877 ViGtalstlml 8—i •. h. DR. A. V. JOHNSON Dentict »•« BOMBRBET BLDQ. Thelephone 97 932 Home Telephone 202 9M Dr. E. JOHNSON »0« Evellne St. Selklrk Offlce hre. 2.80—6 P.M. Phone offlce 26. Res. 130 Frá vim Ofíice Phone 94 762 Res. Phone 72 40» Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDQ. Offlce Houre: 4 p.m.—« p.i and by appointment DR. ROBERT BLACK SérfreeOlngur 1 Augna, Eyrna, nef og hálssjúkdðmum 416 Medical Arts Buildlng, Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 93 851 Helmaslmi 42 154 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlceknar • 40« TORONTO GEN TROBTB BtHLDINQ Ca*. Portage Ave. og Soiith Bi PHONE 96 9 52 WINNIPEG EYOLFSON'S DRUG PARK RIVER, N.D. talemkur lyfsali Eðik gretur pantaO meOul og annaO meO pöstl. Fljðt afgrreiOsla Þhone 96 647 A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Beiur Ukklstur og annast um út- farir. Ailur ðtbúnaéur sfl beatt. Ennfremur selur hann allekonar minntsvarfla og legstelno. Skrlfstofu talslmi 27 324 Heimllls talnlmi 26 444 Legstelnar sem skara framúr Orvals blflgrS'ti og Manitoba marmarl SkriflO eftir verOakrá GILLIS QUARRIES, LTD. 1400 Spruce St. Slml Í8 8»3 Winnlpeg, Man. HALDOR HALDORSON hvoainoameiatari 23 Music and AÁ Bullding Broadway and Hargrave Winnipeg, Canada Phone 9 3 055 J. J. SWANSON A CO. LTMTTED 108 AVENUE BLDO, WPO e Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega peningalfln og eidsflbyrg*. bifteiOaAbyrgO, o. s. frv. Phone 97 538 INSURE your property wlth HOME SECURITIES LTD. 468 MAIN ST. Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Phones Bus. 23 377 Res. 39 433 ANDREWS, ANDREWi THORVALDSON AMD EGGERTSON LOolræOlnoar 109 Bank of Nova Scotla Portage og G&rry lt Slml 98 291 TELEPHONE »6 010 H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountanta 1101 McARTHUR BUILDING WINNIPEG, CANADA Blóm siundvíslega afgreldd THt RQSERY u». StofnaO 1905 427 Portage Ave. Slml »7 46» Wlnnlpeg. Phonc 49 4«» Radlo Servlce Speclallats ELEGTRONIG LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equlpment System. 110 OSBORNE 8T., WINNIPEQ GUNDRY PYMORE LTD. Brltieh Quallty — Flsh Netttog «0 VICTORIA BTRKHT _ Phone 98 211 Vlnnlpeg Uanaoer, T. R. THORTALiDBOJf Tour patronage wlll be ippreclated O. F. Jona»son, Pres. & M&n. Dtr. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Slml 95 217 Whaleaale Diatributors af TRBBET A.ND FROZBN FIBH CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J, H. Fage, Manapino Direotar Wholesale Dlstrlbutors of Fresh and Frozen Flsh. 911 Chaxnbers 8t. Office Phone 26 328 Res Phone 78 »1T. MANITOBA FISHERIES WINNIPEQ, MAN. T. Beroovitch, framkv.ati. Verria I hMldsölu mefl nýjan og froslnn flsk. 303 OWENA ST. Bkrtfatofuslml 15 351 Hetmaslmi 65 463 — LOANS — At Rates Authorized by Small Loans Act, 1939. PEOPLES FTNANCE OORP. LTD. Licensed Lend.rs Established 1929 408 Time Bidg. /hone 21 480 Argue Brothers Ltd. Real Estate — Financial — and Insurance Lombard Building, Wlnnlpeg J. DAVIDSON, Rep. Phone 97 291 H hagborg; FUEL CO. H • Dial 21 331 (C.F.L. No. 11) 21 331

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.