Lögberg - 14.03.1946, Blaðsíða 1

Lögberg - 14.03.1946, Blaðsíða 1
PBUlNK 21374 f'U’' Sto' ,r<tO* s ,4 V"“'te t?^al Complete Cleaning Institution 59. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 14. MARZ, 1946 NÚMER 11 GLÆSILEG BRUÐHJON By Courtesy of Harold White Btudios. Mr. og Mrs. Hjalti Tómasson Þann 23. febrúar síðastliðinn, voru gefin saman í hjónaband af séra Philip M. Péturssyni, í Sambandskirkjunnd hér í borg, þau Mr. Hjalti Tómasson flugmaður frá Reykjavík og Miss Margrét Thorvaldson; er brúðurin dóttir þeirra Mr. og Mrs. Marino Thor- valdson, 902 Banning Street; við giftingarathöfnina söng frú Lilja Thorvaldson yndislegan einsöng, en Gunnar Erlendsson var við hljóðfærið. Svaramaður brúðgumans var Mr. Kjartan Þór- arinsson úr Reykjavík, en brúðarinnar, Bernice systir hennar, en aðrar systur hennar voru brúðmeyjar. Að aflokinni hjónavígslu var setin fjölmenn og einkar ánægju- leg veizla að heimili foreldra brúðarinnar. Mr. Hjalti Tómasson stundaði nám við flugskóla Konnie Jó- hannessonar, en lauk fullnaðarprófi í fluglist við frægan flugskóla í borginni Tulsa í Oklahomaríkinu; er Hjalti hið mesta glæsimenni og drengur góður; brúðurin er glæsileg og gáfuð kona, er vann við bankastörf nokkur undanfarin ár; þau Hjalti og frú hans leggja af stað til íslands, eins fljótt og farkostur gefst. — Lögberg •árnar þessum ungu og mannvænlegu hjónum giftusamlegrar framtíðar. Framkvæmdarnefnd heldur fund Síðastliðinn þriðjudag hélt framkvæmdarnefnd lúterska kirkjufélagsins fund hér í borg- inni. Forseti félagsins, Dr. Har- aldúr Sigmar, prestur íslenzka safnaðarins í Vancouver, kom hingað á mánudaginn, til þess að stýra áminstum fundi; voru allir meðlimir framkvæmdarnefndar- innar á fundinum. Dr. Sigmar brá sér suður til Mountain í dag. Dr. Sigmar mun ferðast eitt- hvað um meðal sinna fyrri safn- aða þar syðra og flytja guðsþjón- ustur á ýmsum stöðum. Tuttugu menn og fjórir bát- ar fórust í ofviðrinu aðfara- nótt 9. febrúar. Fjöldi báta lenti í hrakningum. Mikið veiðarfæratjón I ofviðrinu, sem hófst aðfara- nótt sl. laugardags fórust fjórir fiskibátar og með þeim 18 manns og auk þess tók tvo menn út af fimmta bátnum, svo samtals hafa 20 sjómenn, flestir ungir, eða allt frá 16 ára, hnigið í hina votu gröf í ofviðri þessu. Bátarnir, sem fórust eru Magni frá Norðfirði, Aldan frá Seyðis- firði, Max frá Bolungavík og Geir frá Keflavík. Fjöldi annara báta lentu í meiri eða minni hrakningum áður en þeir náðu landi. Aðfaranótt sl. laugardags skall á ofsaveður, en kvöldið áður hafði veðurútlit verið gott og því flestir bátar á sjó. Fjöldi báta lenti í hrakning- um og varð fyrir miklu veiðar- færatapi, eins og Þjóðviljinn hefur að nokkru sagt frá áður. Þrjá þeirra aðstoðaði vb. Freyja hjeðan úr bænum, en hún gegnir nú björgunarstörfum hér í fló- anum. Magni frá Norðfirði. Af bátunum fjórum sem fór- ust er það vitað um einn þeirra, Magna frá Nirðfirði, að honum hvolfdi út af Sandgerði. Af fimm mönnum sem voru á bátn- um gat vb. Barði frá Húsavík bjargað einum þeirra, Ríkharði Magnússyni vélst. frá Neskaup- stað. Magni, NK 68 var 19 smálestir að stærð, eigandi Bergur Eiríks- son o. fl. Þeir sem fórusts Sigurður Samúelsson skip- stjóri, Neskaustað, 33 ára, kvænt- ur, lætur eftir sig 2 börn. Halldór Sigurðsson, Nes kaup- stað, 16 ára. Steingrímur Jónsson, Nes- kaupstað, 22 ára, ókvæntur. Erlingur Þorgrímsson, frá Sel- nesi Breiðdalsvík, 23 ára, ó- kvæntur. Aldan frá Seyðisfirði. Aldan frá Seyðisfirði, NF 202 var 27 smálestir, eigandi Þórar- inn Björnsson o. fl., Seyðisfirði. —Aldan ver gerð út frá Hafn- arfirði. Þeir sem fórust: Hrólfur Sigurðsson skipstjóri, Húsavík, fæddur 1.—2. ’22. Jón Sigmundsson 2. vélstjóri, frá HelgafeHi á Svalbarðsströnd f. 3,—11. ’27. ’ Ársæll Þórarinsson 1. vél- stjóri, Seyðisfirði, f. 1.—1. ’27. (Hann var sonur Þórarins Björnssonar eiganda bátsins). Guðmundur Magnússon há- seti, Seyðisfirði, f. 5.—1. ’27. Jóhann Dagbjartsson háseti, frá Seyðisfirði. Jóhann Dagbjartsson var ráð- inn landmaður við bátinn en fór á sjó í stað Hákonar Sigurðs- sonar sem var eftir á landi. Max frá Bolungavík. Max frá Bolungavík, IS 8, var 8 smálestir. Eigandi Þorbjörn Magnússon og Einar Guðfinns- son. Fimm vélbátar, auk eftir- litsbátsins leituðu að Max á sunnudaginn en án árangurs. Þeir sem fórusts Þorbjörn Magnússon skip- stjóri, Bolungavík, 34 ára, kvænt- ur, átti eitt barn. Matthías Hagalínsson vélstjóri frá Grunnavík, 27 ára, ókvænt- ur en aðalfyrirvinna aldraðra foreldra. Gunnar Magnússon háseti, Bolungavík, 55 ára, átti konu og uppkomin börn. Jón Örnólf Jónsson háseti, 19 ára, til heimilis' hjá foreldrum sínum, Bolungavík. Geir frá Keflavík Geir frá Keflavík, GK 198, var 23 smál. Eigandi var Guðmund- ur Kr. Guðmundsson skipstjóri, aflakongur Keflvíkinga. Þeir sem fórust: Guðmundur Kr. Guðmundsson skipstjóri, Keflavík, 49 ára, kvæntur, átti 2 syni uppkomna og unga fósturdóttur. Páll Sigurðsson vélstjóri Kefl- avík, 30 ára, kvæntur, átti 2 börn. Kristinn Ragnarsson háseti, Sandi, 21 árs, kvæntur en barn- laus. Ólafur Guðmundsson háseti, Keflavík, 20 ára. ókvæntur. Maríus Þorsteinsson háseti, frá Isafifði, 39 ára, ókvæntur. Þeir sem fórust af Hákoni Eyj- ólfssynis Hákon Eyólfsson frá Garði, GK 212, missti út tvo menn: Guðmund Aðalsteinsson frá Húsavík, 29 ára, kvæntur, átti 1 barn. Valgeir Hannesson, Bakka, Ölfusi, 25 ára, kvæntur, átti 2 börn.B —Þjóðv. 12. febr. SAN FRANCISCO BAY AREA SERVICE PERSONNEL (lcelandic) By Parentage— Lt. Pearl Oddstad Farkas Lt. Andres F. Oddstad Lt. Laurn Kristopherson M/Sgt. Ted Kristopherson Sgt. Siggi Kristopherson S/gt. Henry Kristopherson Cpl. Alvin Kristopherson Cpl. Donald Stoneson Lt. Octavius Thorlaksson Lt. Erik Thorlaksson Maj. Jon Sigurdsson (M.D.) Lt. Albert S. Johnson Pfc. John Johnson MM 2/c Marvin Johnson S/Sgt. Leslie Goodridge Pfc. Bjorn Halldorson S 1/c Edw. M. Halldorson Lt. Tom Thorpe MM Gunnar Benonys Maj. James Stephenson Maj. George Stephenson Cpl. Stanley Benson Lt. Doftur Bjarnason S/Sgt. B. M. Hermann By Marriage— Capt. M. M. Farkas (M.D.) Lt. Cmdr. J. W. Fricke (M.D.) Sgt./Maj. D. E. Stephenson Lt. Cmd. R. T. Soper Lt. H. D. Shirley Lt. C. E. Thompson Lt. Frank Davis Cpl. R. Henderson MM Chas. Kauzer MM Bud Costello Capt. Robt. Hopson WO George C. Hunter. The Committee would appreciate additional names. Please tele- phon Ashberry 0150 or write to S. O. Thorlaksson, 258 Stanford Avenue, Berkeley 8, California. Til borgarinnar komu á mánu- daginn sunnan frá Mountain, þeir séra Egill H. Fáfnis, Mr. Freeman Einarsson og Mr. Victor Stur- laugsson; í för með þeim var Mr. J. J. Thorvardson, er dvalið hafði vikutíma í Cavalier. .................................... llllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllll||llllllllllllllll!lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllli™^ TIL INGÓLFS LÆKNIS GÍSLASONAR, 1946 * Eg stari, hugsa, hljóður saman ber: — í huga mínum á eg mynd af þér. Þú ungur varst er fundumst fyrsta sinn og fríður sýnum, eins og nafni þinn. Með fjör í auga, frelsisroða á kinn og fölskvalaus var allur svipur þinn; en skólaþjóðin, skemtin, gáskafull, hún skírði þig, og nefndi kvennagull. Það óvænt gleði var að hittast hér, og hjartanlega vildi eg fagna þér. En ekki’ er kyn þó hrímguð séu hár : — Við höfum ekki sézt í fimmtíu ár. Um það í fyrri daga dreymdi mig að drottinn mundi fara vel með þig, og leiða þig við hlið sér fram á haust. — Hann hefir líka gjört það svikalaust : Þó aðrir viltust eða frysu í hel, þér. áttir sýndi’ hann bæði lengi og vel.— En hann var ekki einn um starfa þann : Þau unnu saman, konan þín og hann. Að gyðja lífsins teygi togann sinn og treini lengi kertisstúfinn þinn; að alt í framtíð vinni þér í vil á vegferð þinni, eins og hingað til, eg óska þess—Og bið að heilsa heim, og heiti’ á þig að skila kveðjum þeim : að heilsa öllu; klökkur kveð eg þig, og — Kystu gömlu “Baulu’’ fyrir mig. —Sig. Júl. Jóhannesson. By Courtesy of Harold White Studios. Mynd þessi var tekin í hermannaveizlu Jóns Sigurðssonar félagsins og Icelandic Canadian Club á Royal Alexandra hóteli þann 18. febr. s.l. Á myndinni sjást Mrs. J. B. Skaptason, Coulter borgarstjóri og fylkisstjóri og frú hans. By Courtesy of Harold White Studios. Hér sézt hópur í hermannasamsœtinu þann 18. febr. s.l. PÉTUR HOFFMAN HALLGRÍMSÖN fæddur í Riverton 7. apríl, 1920— dáinn í Hollandi 20. október, 1945. Um heimili mitt var hljótt það kveld, er helfregnin til mín barst; eg hugsaði um öll okkar æfintýr og alt, er þú sjálfur varst. Eg fann í þér íslenzkan afbragðsmann er aldrei úr leiknum skarst. Eg man þig fríðan og frækinn svein með fullhugans tign um brá; með hugsjónaeld hins unga manns og áformin styrk og há, úr landfestum skjótt þú leystir gnoð og lagðir á djúpin blá. Við töluðum oft um áþján lýðs og ógnandi stríðsins bál; en eðli þínu lá ávalt næst hið eilífa kærleiksmál. Og alt, sem var smátt og ómannlegt var útlægt úr þinni sál. Eg þekkti ekki oft á æfi fyr jafn einlægan vin sem þig; og það var sama hvort leið mín lá um lund eða þyrnistig, þú komst með brosið í bæinn inn til blessunar fyrir mig. Nú vakir þú fjarri fósturjörð og ferðast um æðri svið; og göfuga minning geymir æ þitt gráthnýpna sifjalið, er skilur að sálræn eining alls sé einungis stundarbið. Einar P. Jónsson.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.