Lögberg - 27.06.1946, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. JÚNI, 1946
3
HVERT ERU RUSSAR
AÐ HALDA?
Grein sú er hér fer á eftir er
rituð af Paul Winterton, rit-
stjóra News Chronicle í Lund-
únaborg, sem var fréttaritari
þess blaðs í Moscow frá 1942 til
1945. Hann heimsótti Rússland
fyrst, árið 1928, og bjó þá á
Rússnesku heimili í Ukraine í
heilt ár til þess að kynnast fólki
og laera málið, dvaldi aftur í
Rússlandi árin 1933 og 1937 og
eiga útvarpsræður Wintertons
og Churchill mestan þáttinn í
því, að Bretar fylgdu Rússum
að málum á stríðsárunum óskift-
ir. Ástæða mín, eða ástæður
fyrir að byrta þessa grein á Is-
lenzku er sú, að mér finnst, að
staða Rússa hafi verið í svo mik-
illi þoku í hugum fólks sem eg
hefi átt tal við um þessi mál, að
full ástæða sé til þess að skýra
það mál betur ef unt er.
Hin ástæðan er sú, að eg hefi
ekki rekið mig á óháðari um-
sögn um þetta mál, en þá sem hér
birtist, né heldur af meiri skiln-
ingi um þau mál talað.—J. J. B.
Vantraust Rússa á Banda-
ríkjamönnum og Bretum er lík-
legasta skýringin á hinu mikla
ákafa, sem þeir beita nú í utan-
ríkismálum sínum.
Mikið af þessu vantrausti staf-
ar frá aðstöðu þessara þjóða til
Rússa á tímabilinu frá fyrra
stríðinu til þess síðara. Þátttaka
kapitalisku þjóðanna í uppreisn-
inni gegn byltingamönnum, eft-
ir að byltingin á Rússlandi var
um garð gengin, getur ekki þeim
úr minni liðið. Rússar geta ekki
gleymt því, að þeir voru ein-
anjgraðir bæði persónulega og
efnalega, eins og moldbúar, af
öllum þjóðum heimsins. Þeir
tóku aldrei með í reikninginn
að kenningar og hugsjónir bylt-
ingamannanna sjálfra um al-
heimsbyltingu var aðal ástæð-
an til þeirrar einangrunar. Frá
þeirra sjóanrmiði voru þeir þeir
einu sem rangindin urðu að líða.
—þeir einu sem ástæðu höfðu
til að kvarta.
Á milli stríðanna síðustu
breiddist sú sannfæring út á
Rússlandi, að kapitalisk þjóð,
eða kapitaliskar þjóðir til sam-
ans mundu, fyr eða síðar, ráð-
ast á Rússa, og þeir fóru að búa
sig undir slíka árás. Svo, þegar
þjóðverjar réðust á þá, varð hug-
mynd þeirra um árás kapitalisku
þjóðanna að vissu.
Rússar trúa ekki að hættan
sé <hjá liðin. Þrátt fyrir hina
einlægu samvinnu viðleitni
Bandaríkjamanna og Breta í
stríðinu síðasta sem jafningja
sinna í öllum greinum, trúa
Rússar þeim ekki enn. Þeir trúa
ekki að hugarfar Bandaríkja-
ríkjamanna og Breta gagnvart
sér hafi breytzt. Þeim tekst ekki
að taka til greina almennings-
álit það í Bandaríkjunum og á
Bretlandi, sem er með öllu mót-
fallið vopnaðri árás á Rússa.
Með ómerkilegum undantekn-
ingum, þá fengu Rússar ekkert
að vita um athafnir okkar í stríð-
inu. Blöðin og útvarpið fræddu
Bússa ekkert um það. Á meðan
að á stríðinu stóð vissu þeir ekk-
ert um hve víðtæk þátttaka
Bandaríkjanna var, né heldur
okkar. Þeir vissu ekkert um
flugárásirnar á England, og á-
Wrif þeirra. Þeir höfðu enga
hugmynd um liðsafnað vorn,
eða afslátt þann sem við á Bret-
landi urðum að gefa á lífsnauð-
synjum okkar, og þeir vissu lítið
nni hvað Bandaríkja og Breska
hernum varð ágengt við Rem-
agen brúna á Rhínarfljótinu,
hvernig það tókst að frelsa og
fría Parísarborg, eða að eyði-
feggja hin rammsterku vígi
Tjóðverja.
Valdhafarnir á Rússlandi eru
éfram með að Rússneska þjóðin
Vúi því, að Rússar hafi unnið
stríðið að mestu leyti sjálfir, án
nokkurrar verulegrar aðstoðar
utanað frá. Og ástæðan fyrir
öllu þessu er — ótti.
Skoðuð í ljósi þessa ótta, verð-
ur stefna Rússa í utanríkis mál-
unum skiljanleg. Trúandi því,
að öryggi þjóðar þeirra sé 'i
framtíðinni hætta búin, hafa
Rússar verið og eru að byggja
og samtengja varnar eða ör-
yggisbelti á landamærum sín-
um — lengju af þjóðlöndum
sem áður voru sjálfsæð og óháð,
en nú að mestu leyti í áþján, og
er meiningin að þessi lönd taki
við fyrsta skellinum, ef um ófrið
eða áhlaup er að ræða í fram-
tíðinni, og einnig til þess að geta
fengið hrávöru frá þessum lönd-
um, sem Rússa vanhagar um, og
vinnukraft.
Þessi stefna er ekkert nýmæli
í heiminum. Hún hefir verið
daglegt brauð hjá stórveldun-
um í aldaraðir. Það er og sama
öryggis tilfinningin' sem skýrt
geíur þá þrá Bandaríkjamanna,
að tryggja sér varanlegar stöðv-
ar á nýlendum Kyrrahafsins,
vera Breskra hermanna á Grikk-
landi og í Indonesíu. En Rússar
eru ósvífnari og áburðarmeiri í
að ná takmarki sínu.
Ef að maður athugar athafnir
Rússa í austur Europu þá er ekki
hægt að segja að þeir hafi leit-
ast við að ná í sínar hendur eig-
num, föstuhn, eða lausum fólksins
þar, sem ránsfé.
Þeir hafa enga tilhneigingu til
þess, að neyða þjóðsiðum sínum
og máli upp á fólk sem ekki er
rússneskt að uppruna, eða til þess
að eyðileggja mennin'g annara
héraða eða landa. Þeir hafa á-
reiðanlega ekki tilhneigingu til
alheims yfir ráða á sama hátt og
Hitler hafði. Þegar Rússar segja,
að það sé öryggi, og öryggi aðeins
sem þeir séu eftir, þá vildi eg
mega ganga útfrá að það sé
sannleikur. Rússland er geysilega
víðáttu mikið land og auðugt og
til þess að geta notað sér þau
auðæfi sem land það geimir
þurfa þeir að hafa frið-langt frið-
artímabil. Eg er sannfærður um
að hvorki fólkið, né heldur stjórn
in á Rússlandi líta á möguleika
fyrir öðru stór stríði, öðruvísi en
með ótta og skelfing.
Það er samt ekki til neins að
loka augunum fyrir þeim sann-
leik, að þessi örggis útfærsla
Rússa lofar ekki neinu góðu um
framtíðar samkomulag þeirra
og vestrænu þjóðanna, jafn vel
þó að aðeins sé um örvggi að
ræða fyrir Rússum, og þeir noti
sumu að ferðina í viltri veröld,
eins og margar aðrar þjóðir
hafa áður við haft. Með því að
beita miskunar lausri að ferð í
þessari öryggissókn sinni, og
skeyta að engu veðurkendum
landamerkja línum, ákveðinni
þjóðernis með vitund og djúp-
setti lýðveldis þrá að minsta
kosti hjá minnihluta þeirra
þjóða sem hlut eiga að máli, eru
Rússar líklegir að grafa sér gröf
er þeir sjálfir eiga eftir aðfalla í.
Það eru viss stig sem Rússar hafa
tekið í sambandi við þessar öryg-
gis athafnir sínar. Fyrst er um að
ræða héruð sem Rússar hafa inn-
limað í sitt eigið land. Löndin
á Balkan skaganum tóku þeir
með blóðs úthellingarlausu of-
beldi árið 1940. Eg var í Sallin
höfuðborg Estóníu fyrir rúmlega
ári síðan, og átti tal við borgar-
búa og gékk úr skugga um að
allur fjöldinni af Estóníu mönn-
um óttuðust, og hötuðu Rússa.
Þeir vildu ekki vera hluti í Sov-
íett sambandinu. Þeir sögðu mér
frá að fjöldi af Estóníu mönnum
hefðu nauðugir verið fluttir inn
á meginland Rússlands — aðferð
sem Rússar réttlættu með því
að segja að þeir gætu ekki átt á
hættu að láta pólitiska and stæð-
inga afskifta lausa .við landa
mæri sín.
Rússar hafa einnig lagt undir
sig part af Karelín sem áður var
eign Finna, stóra spildu sem til
heyrði Rúmaníu fyrir stríðið, og
hérum- bil helminginn af Pól
landi. Það eru án efa ástæður
og sumar þeirra góðar fyrir því,
að Rússar hafa slegið eign sinni
á þessar lendur, en sá fyrirsláttur
þeirra að fólkið sjálft í þessum
löndum vildi gjörast Soviet-isker
þegnar er ekkert nema fyrir slát-
tur. Annað sporið sem stigið var
í þessu öryggis máli var miklu
fjær stígnara. Alla leið með fram
vestur og suðvestur jaðri Soviet
sambandsins, er röð af smárík-
jum sem lúta ákvæðis valdi frá
Moscow í öllum meiri háttar
málunu.
Tvær að ferðir hafa Rússar
notað í sambandi við þessa miklu
land aukninga. Herinn, annað
hvort sem setu, eða varð lið, eða
þá full huga frelsisins, og stjórn
málaleg samtök — Kommúnista
félagskap sem dreifði mönnum
sínum út um þessi lönd með því
augnamið að koma þeim mön-
num inni ábyrgðar stöður þegar
sem verst stóð á í löndum
þeim sem fella átti, og leiða svo
fólkið til Sovíetiska ljóssins 1
Moskva með því að hneppa fjölda
manna í fangelsi og ofsalegum á-
róðri. Með þessum aðferðum hafa
þessir kommúnistisku sendi-
menn getað myndað stjórnir í
ýmsum löndum sem hafa verið
vinveittar stjórninni í Moscow
og skipulagt stefnur og athafn-
ir í fullu samræmi við fyrirkomu-
lag og stefnur Soviet-sambands-
ins. Á Póllandi er stjórnin í
höndum Kommúnista og hefir
maður að nafni Berút þar for-
ustu, og hafði Moscow áður und-
irbúið hann undir þá stöðu.
Fylkingar Rauða hersins eru
enn í Póllandi og margir Rúss-
neskir herforingjar eru í her
íPólverja og í lögreglu liðinu
Pólska. Allmikið af Pólitískum
mótstöðumönnum á Póllandi
hafa verið sendir í útlegð til
Rússlands, eða settir í fangelsi.
Fréttir allar eru “censoraðar” af
Rússum og mál og prentfrelsi
blaðanna á Póllandi takmarkað.
Þróttmiklar deildir Rauða hers
ins eru enn í Ungverjalandi og
eru Ungverjar nýbúnir að gjöra
verzlunarsamning við Rússa sem
gefur Rússum stórkostleg hlunn-
indi og einkaréttindi á Ung-
verjalandi. Rússar hafa ekki
enþá þrengt bráðabirgðarstjórn
uppá Ungverja, en hinni póli-
tísku lokasennu er heldur ekki
lokið þar.
Júgo-Slavía hefir alveg sam-
ið sig að vilja Rússa. Tito, eins
og Berút á Póllandi, er Komm-
únisti, sem var þjálfaður í Mos-
cow, þar sem að hann hét Jóseph
Broz og vann þar um tíma við
stofnun sem heitir “The Foreign
Language Publishing House.”
Hann hefir komið á einræðis-
stjórn í Júgóslavíu og fylgir
fast fram fyrirmyndum Rússa í
öllum meiriháttar málum.
Búlgaría hefir verið rænd svo
að segja öllu sínu sjálfstæði.
Sama er að segja um Rúmaníu.
Rússar komu þar á Kené fyrir
rúmu ári síðan stjórn sem þeim
þótti óráðþæg og neyddu með
valdi forsætisráðherra, sem þeir
sjálfir völdu, uppá þjóðina og
hefir hann haldið þeirri stöðu
sinni með fulltingi Rússa síðan.
Hin síðasta yfirlýsing Rússa um
að þeir hafi ákveðið að lina á
böndum ófrelsisins í Rúmaníu
breytir ekki þeim óhagganlega
sannleika, að Rúmanía er algjör-
lega á valdi Rússa.
Ef litið er í suður frá Soviet-
iska sambandinu, þá sér maður
sömu aðferðirnar og sömu stefn-
una. Rússar gátu ekki fengið
vilja sínum framgengt við stjórn-
ina í Persíu; tóku þeir þá það til
bragðs að æsa Azerbaidjanbúa
til sambandsslita við Persa, og
sendu svo her sinn til þess hér-
aðs, sem gerði Persum ókleyft
að bæla uppreisn þá niður. Þau
mál eru nú í höndum öryggis-
ráðsins, en hvernig sem þeirra
endalok verða hjá Rússum og
ráðinu, þá má ganga út frá því
sem alveg vísu, að áhrif Rússa
halda áfram að breiðast út í
Persíu, þar til að mestur hluti
þess lands er kominn undir yfir-
ráð Rússa, og það er heldur eng-
inn efi á, að Rússar geta látið
þau auknu áhrif líta svo út sem
þau séu í fullu samræmi við ósk
og vilja Persa. Það er ekki ólík-
legt að Rússar krefjist þess, að
stjórn, vinveitt sér, verði stofn-
sett á Tyrklandi. Þess hefir enn
ekki verið krafist opinberlega,
en hin vanalega áróðurssókn er
þegar hafin, um ítök í löndum
Tyrkja, og herstöðvar á landi
þeirra þar sem Rússar geti ráðið
yfir Dardanelles sundinu.
Rússar virðast varkárir í sam-
bandi við öryggisstefnu sína þeg-
ar til austurlanda kemur. Þeir
hafa gjört, að því er virðist,
írjálslegan samning við Kína,
þar sem þeir lofast til að styðja
að friði og eining Kínverja og
viðurkenna miðstjórnarvald Chi-
angs. Rússar vilja forðast frið-
arrof við Bandaríkin. En þrátt
fyrir það, skyldu menn ekki
gdeyma: Kommúnistinn í Yenan,
Mao Isc Lung var áður í skóla
í Moscow, og að flokkur Komm-
únista er í Kína, reiðubúinn eins
og annarstaðar að taka við þeg-
ar tími þykir hentugur. Valda-
keppnin í Kína og í Mansjúríu,
er aðeins að byrja, og það er
ekki minsta vafa bundið að Rúss-
ar gjöra sér miklar framtíðar
vonir á báðum þeim sviðum.
Auk landa þeirra sem Rússar
hafa lagt undir sig, og þeirra
sem þeir ráða yfir. eru miklu
fleiri lönd sem þeir vonast eftir
að auka vald sitt í. Kommúnista
flokkarnir eru vakandi og vinn-
andi á Frakklandi og í ítalíu. Á
parti þeim sem Rússar ráða yfir
á Þýzkalandi, er Kommúnistum
ekki aðeins leyft að sameina og
þroska félag sitt, heldur eru þeim
kendar kúnstirnar af Rússum
sjálfum, með það fyrir augum,
ef til vill, að geta þegar tíminn
kemur tekið að sér umsjón og
yfirráð í landinu öllu.
Allar þessar athafnir Rússa
eru atriði í skipulögðu plani.
Þau bera öll vitni um hið ófyrir-
leitnasta stríð um völd, sem
sögur fara af, og er sóknin þar
öll frá hendi Rússa.
Á meðan að á stríðinu síðasta
stóð, virtist dálítil von um að
Rússland og samherjar þeirra
mundu geta fylgst að að stríð-
inu loknu, til þess að tryggja
varanlegan frið í heiminum.
Rússar höfnuðu því tækifæri,
deyddu þá von, og frá þeirri að-
stöðu Rússa stafa flest okkar
vandræða mál nú.
Tvö atriði þarf að benda á í
sambandi við þessa öryggis-
stefnu Rússa. Það er ekki ó-
mögulegt, að fólkið í löndum
þeim sem Rússar hafa náð valdi
yfir, hagnist sjálft á yfirráðum
þeirra, fyr eða síðar. í mörgum
þeim löndum var bylting óum-
flýjanleg, og engin ástæða til að
gráta þó nokkrir þversum menn
og afturhalds seggir hyrfu úr
sögunni. Stjórnirnar í þessum
löndum eru að gjöra róttækar og
víðtækar breytingar í sambandi
við fjármálaltegt og félagslegt
fyrirkomulag fólksins, en eg held
að það viðhorf, eða þær breyting-
ar, hafi ekki hin minstu áhrif á
Rússa, eða stjórn þeirra, nema
að því leyti sem þeir geta notað
sér þá aðstöðu til þess að ná sér
betur niðri með hina þjóðlegu
stefnu sína.
í öðru lagi, útbreiðslu Rúss-
neska valdsins, út fyrir landa-
mæri sín, hefir fylgt einræðis
fyrirkomulag, en eyðilegging á
því litla frelsi sem fólkið í lönd-
um þeim sem vald það nær nú yf-
ir, áður naut. Þeir sem lúta Rúss-
neska valdinu, verða líka að lúta
Rússneska einræðinu, takmörk-
un prentfrelsisins, sætta sig við
að pólitískum mótstöðumönnum
sé varpað í fangelsi, eða sendir
í fangavinnu til að afplána synd
(Frh. á bls. 8)
Business and Professional Cards
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
DR. A. BLONDAL
Physician and Surgeon
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Sími 93 996
Heimili: 108 CHATAWAY
Sími 61 023
Talsimi 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur i augna, eyrna, nef
og kverka sjúkdómum.
704 McARTHUR BUILDING
Cor. Portage & Main
Stofutimi 4.30 — 6.30
Laugardögum 2 — 4
Dr. S. J. Jóhannesson
215 RUBY STREET
(Beint suöur af Banningr)
Talslmi 30 877
Viötalstími 3—5 eftir hádegi
DR. ROBERT BLACK
SérfræOingur i augna, eyma,
nef og hdlssjúkdómum.
416 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 93 851
Hetanastmi 42 154
EYOLFSON’S DRUG
PARIC RIVER, N. DAK.
íslenzkur lyfsali
Fólk getur pantaö meðul og
annaö með pósti.
Fljót afgreiðsla.
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office hra. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Office Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
116 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appointment
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbflnaöur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina.
Skrifstofu talslmá 27 324
Heimilis talslmi 26 444
Phone 31 400
Electrical Appliances and
* Radlo Service
Furniture and Repairs
Morrison Electric
674 SARGENT AVE.
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlceknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Coí*. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
DR. J. A. HILLSMAN
, Surgeon
308 MEDICAL ARTS BLDG
Phone 97 329
ÞRINCEJT Dr. Charles R. Oke
MESSENQER SERVICE Tannlceknir
Viö flytjum kistur og töskur, For Appointments Phone 94 908
húsgögn úr 3mœrri Ibúðum, Office Hours 9—6
og húsmuni af öllu tæi. 404 TORONTO GEN. TRUSTS
58 ALBERT ST. — WINNIPEG BUILDING
Slml 25 888 283 PORTAGE AVE.
C. A. Johnson, Mgr. Winnipeg, Man.
TELEPHONE 94 358 1
H. J. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
Winnipeg, Canada
Phone 49 469 J. J. SWANSON & CO.
Radlo Service Speciallsts LIMITED
ELECTRONIC LABS. 308 AVENUE BLDG WPG.
H. THORKELSON, Prop. Fasteignasalar. Leigja hfls. Ot-
The most up-to-date Sound vega peningalán og eldsábyrgö.
Equipment System. bifreiðaábyrgð, o. s. frv.
130 OSBORNE ST„ WINNIPEG PHONE 97 538
•
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Andrews, Andrews,
Keystone Fisheries Thorvaldson and
Limited Eggertson
404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227 LögfrœOingar
Wholesale Distributors of . 209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
FRE8H AND FROZEN FISH Portage og Garry St.
Slmi 98 291
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovifch, framkv.stf.
Verzla I helldsölu meö nýjan og
frosinn flsk.
303 OWENA STREET
Skrifst.sími 25 355 Heima 55 462
II HAGBORG U n fuel co. n GUNDRY PYMORE Limited British QuaUty Fish Netting
• 60 VICTORIA ST., WINNIPEG
Dlal 21 331 21 331 Phone 98 211
Manager T. R. THORVALD80N Your patronage will be appreciated
Argue Brothers Ltd. C A N A D 1 A N FISH PRODUCERS, LTD.
Real Estate, Financial, Insurance
J. H. PAOE, Managing Direotor
LOMBARD BLDG., WINNIPEG Wholosale Distributors of Freah
J. Davidson, Representative and Frozen Flsh.
Phone 97 291 311 CHAMBERS STREDT
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917