Lögberg - 27.06.1946, Qupperneq 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN "21. JÚNÍ, 1946
--------Hogberg---------------------
G«fiö tit hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 J’argent Ave., Winnipeg, Maniitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG
>95 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The “L/ögherg” is printed and published by
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent
Avenue, .Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as Second Class Mail,
Post Office Dept., Ottawa.
PHONE 21 804
Lýðveldishátíðin á
Hnausum
Sú hefð er nú komin á, að íslending-
ar vestan hafs minnist með árlegum
hátíðahöldum í hinum ýmissu byggðar-
lögum, endurreisnar lýðveldis á íslandi,
er fram fór að Þingvelli við Öxará 17.
jújií 1944. Á flestum stöðum hafa slíkar
samkomur borið uppá afmælisdaginn,
svo sem í Wynyard, Seattle, Blaine og á
Mountain, og er það vitaskuld æskileg-
ast, að slíkt yrði sem víðast að fastbund-
inhi venju, þótt frábrigði í vissum tilfell-
um korhi eigi að sök
íslendingar í norðurbyggðum Nýja
íslands, héldu lýðveldishátíð sína að
Iðavelli við Hnausa, síðastliðinn laug-
ardag við mikla aðsókn og vaxandi
hrifningu; yfir hátíðinni hvíldi frjáls-
mannlegur eindrægnisandi, sem bar
fagurt vitni sann-íslenzkri þjóðrækni,
þar sem helspár og hrakspár áttu ekki
upp á pallborðið; gætti þar miklu frem-
ur bjartsýnnar hollustu Við lífið og fram-
tíðina, en kveifarlegs og ómannlegs
kvíða um afdrif alls og allra.
Guttormur J. Guttormsson skáld,
þessi arnfleygi “Geysir gamanyrða,”
hafði með höndum forustu hátíðarinnar,
og setti á hana með sjaldgæfri rögg og
takmarkalausri fyndni, lífrænan og eft-
irminnilegan svip; hann eyddi ekki tím-
anum, eins og svo oft hefir brunnið við
á hliðstæðum samkomum, með löngum
og dauðþreytandi kynningarræðum,
heldur gekk hann formálalítið hreint
til verks unz skemtiskrá var tæmd; eng-
um veittist svigrúm til þess að láta sér
leiðast.
Ræðuna fyrir minni íslands flutti
Ragnar H. Ragnar, söngstjóri og pían-
isti frá North Dakota; hann dvaldi all-
lengi á íslandi með ameríska setulið-
inu meðan á síðustu styrjöld stóð, ferð-
aðist vítt um land. og átti þar af leið-
andi þess góð tök, að kynnast með eig-
in augum landi og þjóð, og hinum risa-
vöxnu og margbreyttu framförum síð-
ustu ára; var ræða hans fýrir flestra
hluta sakir hin gagnmerkasta, hæfi-
lega löng fyrir útisamkomu og skarp-
lega flutt. Ragnar H. Ragnar er ómyrk-
ur í máli og ann hugástum íslenzku
þjóðerni. Kvæði, helgað íslandi, flutti
ungfrú Ása Jónsdóttir frá Ásum í Húna-
þingi, er stundað hefir nám í Bandaríkj-
unum nokkur undanfarin ár; var kvæðið
hiýlegt og blæfallegt.
Svo hafði verið til ætlast, að Col.
Einar Árnason flytti ræðu fyrir minní
Canada, en sökum ófyrirsjáanlegra
anna fékk hann eigi komið því \dð; úr
þessu bætti Dr. S. O. Thompson fylkis-
þingmaður, er mintist Canada í stuttri
ræðu, sem mótaðist af drengilegri hugs-
un og fögru málfari. Böðvar H. Jakobs-
son bóndi í Geysisbyggð, minntist Can-
ada í Ijóði; var kvæði hans fágað og
formfagurt- —
Snæbjörn S. Johnson, sveitaroddviti,
flutti drengilega hugsað ávarp og tíma-
bært, sem nú er birt hér í blaðinu.
Menntamálaráðherra fylkisstjórnar-
innar, Mr. Dryden, ávarpaði samkom-
una nokkurum orðum, er báru vott um
einlæga velvild í garð íslendinga; lét
hann svo um mælt, að saga þeirra væri
slík, að óþarft væri að hlaða á þá lofi;
að tilmælúm forseta, ávörpuðu ritstjór-
ar íslenzku vikublaðanna hinn mikla
mannfjölda nokkrum orðum.
Fjallkona hátíðarinnar, frú Vilfríður
EJyjólfson, kom tígulega fyrir sjónir og
bar ávarp sitt skörulega fram, og var
hið sama að segja um ungfrúLáru Thor-
valdson, er táknaði Canada. ’ '
Ásgeir Fjeldsted mælti fyrir minni
hermanna og tókst hið bezta.
• Söngflokkur blandaðra radda, und-
ir forustu Thors Fjeldsted, söng all-
mörg íslenzk lög, er vöktu almenna
hrifningu; var flokkurinn prýðilega sam-
stæður og stjórn hans styrk í rás; ein-
söngvari með flokknum var bróðir söng-
stjórans, Hermann Fjeldsted.
Framan af degi andaði nokkuð svalt
um Iðavelli af norðri; en eftir því sem
á daginn leið hlýnaði í veðri og stillti
mikið til, og undir kvöld var komin ein-
muna blíða; á Iðavelli voru allir í há-
tíðaskapi og auðsjáanlega á eitt sáttir
um það, að vernda íslenzka tungu þar
um slóðir, og aðra menningarlega fjár-
sjóði að heiman, fram í rauðan dauð-
ann, eða jafnvel lengur en það; þarna
norður við vatnið minnti alt á samstilt
átök í umbóta- og þróunarátt, en ekk-
ert á uppgjöf og hrörnun; enda væri þá
minningu landnámsmannanna og land-
námskvennanna, er grundvöll lögðu að
þessum fögru búsældarbyggðum, harla
misboðið, ef afkomedur þeirra brysti
til þess hugrekki, að stefna á brattans
fjöll.
Ávarp á lýðveldishátíðinni
á Hnausum
eftir Snæbjörn Johnson sveitaroddvita
Herra forseti og kæru vinir :
Svo margt fallegt og gott hefir verið
sagt hér í dag, að erfitt er að bæta
nokkru því við, er verða mætti til frek-
ari skemtunar og nytsemdar.
í daglegri umgengni við fólk, heyrir
maður það sagt í þessari fögru sveit og
í bæjunum líka, að heimurinn sé orðinn
svo vondur, að naumast sé líft í honum
lengur; þetta finst mér fjarstæða; heim-
urinn er eins göfugur og góður og hann
hefir áður verið; forsjónin lætur jurt-
irnar þróast af hvaða tagi sem er, kálið
og aldinin, kornið og grasið, og þá ekki
síður hin fögru tré; alt þetta vex og
þrífst' mannkyninu til afnota og bless-
unar; hið sama gildir um sjóinn og vötn-
in; þar er gnægð fiskjar, og allsstaðar
og í öllum áttum er verðmæti að finna,
sem hönd almættisins býður börnum
jarðar til notkunar.
Það er ekki forsjóninni að kenna, að
hungur og volæði ríkja í stórum hluta
veraldarinnar; þetta er okkur mönnun-
um sjálfum að kenna; við erum ábyrgð-
arfullir fyrir því, að hafa skapað þetta
vandræðaástand.
Það yrði of langt mál, ’að rekja til-
drögin að þeim vandræðum, sem heim-
urinn nú býr við; en eitt atriði sker sig
úr, sem í rauninni mun teljast mega
aðalorsökin, en það er vöntun á sterk-
um félagssamtökum alþýðunnar; vönt-
un á menntun til skilnings á því marg-
brotna og flókna stjórnarfarskerfi, sem
við búum við; úr slíkum menntunar-
skorti verður að bæta, ef heimsmálin
og heimamálin eiga að komast á réttan
kjöl.
Meðan á seinni heimsstyrjöldinni
stóð, var það kjörorð allra stétta, að
ekkert nema samvinna okkar gæti kom-
ið óvinaþjóðunum á kné, og þetta sann-
aðist í verki vegna þess að allir lögðust
á eitt um framleiðsluna á hvaða sviði,
sem var.
Enn hefir ekki lánast að semja frið
þjóða á milli, og enn horfist mannkynið
í augu við margskonar meinsemdir, sem
lækna þarf og útrýma.
Það sýnist liggja nokkumveginn í
augum uppi, að úr því að stríðið vanst
einungis með samvinnu, þá verði frið-
urinn að vinnast með samvinnu líka;
kjörorð okkar allra ætti að vera sam-
vinna á öllum sviðum til hagsbóta fyrir
alla, og til þess að koma í veg fyrir að
hörmungasaga stríðsins endurtaki sig-
Eins og eg tók fram áðan, verðum
við öll að afla okkur eins víðtækrar
stjórnarfarslegrar menntunar og kost-
ur er framast á, því með þeim hætti
einum, er þess nokkur von, að okkur
lánist að stofnsetja hið langþráða frið-
arríki á þessari jörð; að slíku marki ber
okkur að stefna, sem teljumst til hins
íslenzka kynstofns í þessu landi; eg
efast ekki um, að um þetta séu þið mér
sammála.
“Sameinaðir stöndum vér.
sundraðir föllum vér.”
Látum okkur sigrast á þeim illu
öflum, sem öllu vilja tortíma vegna
sjálfselsku, metorða og peninga; lát-
um í þess stað, kærleikann vísa okkur
veginn til farsældar og friðar.
KAISER - FRAZER
RILARAIR
Þegar það varð lýðum ljóst
að iðjuhöldurinn þjóðkunni, Mr.
Kaiser, hafði ráðið við sig að
bæta bíla framleiðslu við hið um-
svifamikla og víðtæka verksvið
sitt, var ekki aðeins að ræða um
aukna framleiðslu og aukna at-
vinnu, heldur líka um þá full-
rjægju á þrá og vonum þúsunda
á þúsund ofan; um bíla sem hin
fullkomnasta tækni stæði á bak
viðð hefðu ágæti hinna fullkomn-
ustu bíla sem framleiddir eru í
landinu, en væru þó við hæfi
og kaupgetu fólks upp og ofan.
Nú eru þessir bílar að koma á
markaðinn.
Nýtt verzlunarjélag.
Það er ekki nóg að búa bílana
til, það verður líka að koma
þeim á framfæri til kaupenda
um land allt. Til þess hefir Am-
eríku verið skift upp í hæfilega
stór svæði, og söluréttindin veitt
mönnum sem hæfastir þóttu á
ur víðsvegar, um sölusvæði Mr.
Einarssonar er þegar hafinn og
er söluréttinda eftirsóknin hér
ekki minni, en annarstaðar. Mr.
Einarsson hefir þegar ákveðið
sölu-umboðsmenn sína í Nýja
íslandi; eru það hinir vel þektu,
og vinsælu Árnasons bræður á
Gimli.
ROTOTILLER
Auk bifreiðanna tveggja, Kai-
ser og Frzer bifreiðanna, sem að
framan er minst á og Mr. Einars-
son hefir fengið einkasölu leyfi
á, hefir hann einnig fengið eink-
asöluleyfi á undra vinnuvél, seA
er alveg ný, og lofar miklu um
vinnusparnað, vinnuþægindi,
bættan jarðveg og auknar eftir-
tekjur. Vél þessi nefnist Roto-
tiller, sem Kaiser-Frazer félagið
býr einnig til. Er það arður, eða
plógur sem losar upp jarðveginn
allt að 9 þumlungum á dýpt,
hann slær allan gróður, strá, eða
mais stofnrætur, sem á ökrun-
um standa, og blandar og hrær-
ir saman við moldina, jafnt á
dýpt þeirri sem jarðvegurinn er
losaður á, skilur eftir rennislétt-
ann, samfeldan og sjálegan sáð-
reit. Auk hinnar miklu og víð-
tæku þýðingar sem þetta nýja
verkfæri hefir fyrir jarðyrkjuna,
sérstaklega þó garðrækt, er hún
nothæf gjörð og þénanleg til ná-
lega ótal þarfa. Með henni má
saga eldivið og borðvið, slá tún
og engi, sprauta vatni á jarð-
eplagarð, ýta snjó af götum og
gangstéttum, sá öllum tegund-
um jarðepla og hlúa kálgarða.
Vél þessari fylgja fullkomin við-
eigandi áhöld til hvers eins verks
útaf fyrir sig. Vélin sjálf er um
450 pund á þyngd, og gengur
fyrir 5 hesta afls gasolíu mótor
af nýustu tegund. Eftirspurn
eftir vél þesari 1 Bándaríkjim-
um er geysi mikil. Kaiser-Fraz-
er félagið hefir 9 flugvélar sem
á ferðinni eru nótt og dag til að
flytja hana til útsölumanna sinna
og hafa þó hvergi nærri við. Vél
þessi verður til sýnis hjá Mr,-
Einarsson, á horninu á Osborne
og River Ave., innan fárra daga,
og einnig verður 'hún til sýnis á
sýningunni í Brandon.
J.J.B.
hinum ýmsu svaeðum. Eftir-
sóknir eftir útsölu réttindum,
ekki aðeins hér í landi, heldur
víðsvegar um heim, er afar mikil
—svo mikil t. d. að voldugasta
bílasölufélagið í Skandinavisku
löndunum, Lennart Oslerman
félagið í Svíþjóð, sem í 18 ár
hefir haft einkasölu á hendi fyrir
General Motors félagið alkunna,
hefir nú hafnað þeim hlunnind-
um til þess að geta tekizt á hend-
ur einkasölu á Kaiseh-Frazer bif-
reiðunum.
Um söluleyfið í Manitoba og
vestur partinum af Ontario, sem
er austur takmörk Thunder Bay
héraðsins, og þar fyrir vestan;
sóttu yfir 700 manns, margir
þeirra voru á.meðal fremstu og
bezt þektu bíísÖlúmanna Mani-
tobafylkis, með offjár á bak við
sig. En þeir hrepptu ekki hnoss-
ið, heldur var það íslendingur-
inn Ingimundur Einarsson —
Mvmdi Einarsson, eins og hann
er vanalega kallaður, og er það
og mikið þrekvirki, þegar allar
aðstæður eru teknar til greina, að
það verðskuldar ekki aðeins að
því sé á lofti haldið, heldur á
það líka skilið að vera í annála
sett.
Mr. Einarsson hefir nú mynd-
að félag — M. Einarsson Motor
Limited, með $100,000.00 höfuð-
stól. Er Einarsson sjálfur for-
seti félagsins, en sonur háns Dan-
íel J. Einarson er vara forseti.
Mr. Einarsson er þegar byrj-
aður að reisa verzlunar, geymslu
og sýningar stöð við River Ave.
Er það mikið vandað og veglegt
hús, sem verður sönn götu prýði
þegar því verður lokið, sem verð-
ur samkvæmt samningum um
haéstu mánaðarmót því bifreið-
arnar nýju, Kaiser-Frazer bif-
reiðarnar, eru væntanlegar hing-
að til Winnipeg um, eða nálægt
næstu jnánaðamótum. Randver
Sigurðsson byggingameistari hef-
ir alla ábyrgð og umsjón með
byggingunni. Sölu undirbúning-
veltir honum ekki við, en mylur
hann og hrærir á sama tíma og
SPARIÐ/
PERTH'S
Geymsluklefar loöföt
yðar og klæðis-
yfirhafnir
PHONE 37 261
Eftir trygðum
ökumanni
PERTH’S
888 SARGENT AVE.
HJÚKRUNARKVENNANEMAR OG
AÐSTOÐAR-
HJÚKRUNAR-
KONUR
ÓSKAST
Stúlkur 17 ára og eldri fá nú ágætt tækifæri til hjúkrunar-
mentunar. Tækifæri bjóðast þegar í Brandon, Portage la
Prairie og við geðveikraspítalann í Selkirk. NÝLEG KAUP-
HÆKKUN HEFIR GERT SLÍKAR STÖÐUR EFTIRSÓKNAR-
VERÐARI. í viðbót við kaupið, fá stúlkurnar ókeypis fæði,
herbergi, þvott og einkennisbúning. Átta klukkustunda vinna
á dag, sex vinnudagar. Þriggja vikna frí með kaupi á ári. Úrvals
aðbúð og líkamsæfingatæki í nýtízku hjúkrunarkvenna
heimilum.
HJÚKRUNARKVENNANEMAR
Stúlkur, sem hafa XI. bekkjar próf geta stundað 4 ára nám í
Brandon eða Winnipeg, til að fá prófskírteini í meðferð sál-
sýkis-sjúklinga og almennri hjúkrun, eða það sem kallað er
R.N., skrásett hjúkrunarkona. Kaup (í Brandon) $30 á mán-
uði, auk fæðis, herbergis, þvotta og einkennisbúnings. Stúlkur
með X. bekkjar próf eða hærri menntun, geta stundað 3. áxa
nám í Portage eða Selkirk til þess að fá prófskírteini í með-
ferð sálsýkissjúklinga, og öðlast þá skilyrði til þess að'fá fasta
stöðu við sjúkrahús. Kauphækkun meðan á námi stendur frá
$35 til $50 á mánuði, auk fæðis, herbergis, þvotta og einkennis-
búnings. Meðan á námi stendur geta stúlkur dvalið fjóra
mánuði í Almennu sjúkrahúsi með sömu launakjörum til þess
að fá skrásetningu til einkahjúkrunar.
AÐSTOÐARHJÚKRUNARKONUR
Aðstoðarhjúkrunarkonur starfa við öll þessi sjúkrahús, og er
starf þeirra svipað starfi námsmeyja. í Portage og Brandon
má velja úr hópi aðstoð*ar hjúkrunarkvenna stúlkur til hjúkr-
unarnáms, er veitir fult prófskírteini. Fyrsta árs kaup $40 á
mánuði, annars árs kaup $45 á mánuði og þriðja árs kaup $50
á mánuði. g , | t
Vegna jrekari upplýsinga spyrjist jyrir hjó yjir-
hjúkrunarkonum í Brandon, Portage la Prairie og ' 1
Geðveikroqpítalanum í Selkirk, eða hjá
MANITOBA CIVIL SERV|CE COMMISSION
223 LEGISLATIVE BUILDING, WINNIPEG :r;> í i)
hí ; t ■ ■■ k : royjJd' ;.1 rd--:--? ■■‘:'
ssíi
.lOt’rflt \t. a’.