Lögberg - 01.08.1946, Síða 2
10
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST, 1946
UNNUR B. BJARKLIND
(Hulda)
Unnur Benediktsdóttir Bjark-
lind (Hulda) var fædd á Auðn-
um í Laxárdal í Suður-Þingeyj-
arsýslu 6. ágúst 1881. Foreldrar
hennar voru Benedikt Jónsson
og Guðný Halldórsdótir. Var
Benedikt þjóðkunnur maður.
Fram til tvítugs dvaldi hún í
heimahögum og naut ástríkis og
umönnunar hinna ágætu for-
eldra, er skildu hæfileika hennar
og sáu að hún þráði meiri fróð-
leik og víðari útsýn en henni
veittist í heimahúsum. Var hún
því sett til mennta í Reykjavík
og svo sigldi hún síðar til Dan-
merkur og aflaði sér menntunar
þar.
Fyrstu kvæðin, sem birtast éft-
ir hana koma út í “Framsókn”
1903, blaði Jarðþrúðar Jónsdótt-
ur, og veja strax eftirtekt. En
1904—1905 birtast einnig kvæði
eftir hana í “Ingólfi” Var þeim
kvæðum veitt mikil athygli af
mönnum sem teljast máttu dóm-
bærir á skáldskap. Þeir rituðu
þá báðir um ljóð hennar Einar
Benediktsson og Þorsteinn Erl-
ingsson. Hún skrifar þá eins og
ætíð síðar undir dulnefninu
Hulda. Alþjóð veit ekki hver
hún er fyrr en Þorsteinn Erlings-
son kveður upp úr með það í
“Þjóðviljanum” 1905 í grein um
ljóð hennar, sem hann nefnir
“Huldupistil.” Vakti grein Þor-
stein feikna athygli.
v
Einar Benediktsson yrkir til
hennar kvæði, sem prentað er í
Vér ÁRNUM ÍSLEND-
ING.UM TIL HAMINGJU
Á ÞJÓÐHÁTÍÐ ÞEIRRA
ÞANN 5. ÁGÚST 194 6,
AÐ GIMLI.
Weston's
Bread and Cake
[Canada] Ltd.
HOUSEHOLDERS
ATTENTI0N
We have most of the popular brands of
coal in stock at presnt, but we cannot
guarantee that we will have them for
the whole season.
We would advise that you order your
fuel at once, giving us as long a time as
possible for delivery. This will enable
us to serve you better.
MCf URDY CUPPLY f
V/BUILDERS' O SUPPLIES
PHONE 23 811 - 23 812
0. LTD.
and COAL
1034 Arlington Street
WINNIPEG
ljóðabók hans, “Hræinir.” Þar
segir Einar:
“Dalasvanninn með sjálfunna
menning,
sólguðnum drekkurðu bragaskál,
með átrúnað fastan í ungri sál
á afls og kœrleiks og fegurðar
þrenning.”
Þorsteinn Erlingsson skrifar af
djúpum skilningi um ljóð hennar
og lofar þau. En einkum verður
honum tíðrætt um þulur
“Huldu.” Hann segir:
“Það eru yndisómarnir úr þul-
um okkar og þjóðkveðskap, þeir
sem allra sætast hafa bergmálað
í innstu og viðkvæmustu hjarta-
strengjum okkar allra, sem höf-
um elskað þá, og þó man eg
hvergi eftir að hafa heyrt þá svo
hreina sem hér og lausa við alla
truflandi aukahljóma úr ósam-
ræmi daglegs lífs.”
Þessi tvö höfuðskáld þjóðar-
innar leggja þá strax jákvæðan
dóm á verk hennar — byrjunar-
verk að vísu. En enginn, sem
þekkir skáldferil henilar, mun
telja að henni hafi hrakað. Þvert
á móti vex hún sem skáld. við
hverja nýja ljóðabók, er hún læt-
ur frá sér fara. Eftir hana hafa
komið fimm ljóðabækur og veit
eg ekki betur en sú sjötta sé í
prentun. Auk þess hefir hún
skrifað mikið í óbundnu máli.
Hafa alls komið út eftir hana 19
bækur. Hún er mjög fjölhæf,
því eftir hana liggja ljóð, þulur,
ævintýri og fjöldi smásagna —
og svo Dalafólk, stórt verk í
tveim bindum, sem fjallar um
íslenzkt sveitalíf. Hún mun einn-
ig hafa fengist eitthvað við leik-
ritagerð. Var einu sinni að minsta
kosti leikið í útvarpið smáleik-
rit eftir hana. Að mínum dómi
mun sumt, sem hún hefir ritað
í óbundnu máli eiga sér langt líf,
eins og til dæmis hin gullfallegu
aévintýri hennar, sem ofin eru úr
íslenzkum efnivið, og svo marg-
ar smásögurnar.
Það sem einkennir öll verk
hennar er vandað mál, ljóðrænn
stíll og um fram allt þetta, sem
skáldið Einar Benediktsson segir
í þessum ljóðlínum, sem hann
yrkir til hennar:
“Þú gleðst eins og hjartað sjálft
þér segir,
og syngur með náttúrubamsins
rödd. a
Þú villt að þig leiði listanna vegir
til Ijóssins áttar — til þess ertu
kvödd.”
Þessi orð skáldsins urðu að á-
hrínsorðum. Það voru vegir list-
arinnar, sem leiddu hana til
hinztu stundar. Hún hélt stöðugt
í áttina til ljóssins. Hún söng
alltaf með rödd náttúrubarnsins,
og því náði hún langt. Því auðn-
aðist henni að láta eftir sig hrein-
ar perlur á bókmenntasviðinu.
Það er vert að athuga, að tvö
vinsælustu og beztu ljóðskáldin
okkar, þeir Einar Benediktsson
og Þorsteinn Erlingsson, skipa
skáldkonunni strax sess meðal
okkar beztu ljóðskálda. Hún er
viðurkennd af alþjóð . Hverri
nýrri bók, sem frá henni kemur,
er tekið með miklum fögnuði. —
En við mat á verkum skálda og
rithöfunda síðari ára kemur ann-
að í ljós, þar eru henni úthlutuð
lá viðurkenningarlaun.
En samt sem áður leyfi eg mér
nú að taka mark á þeim Einari
Ben. og Þorsteini Erlingssyni, og
álykta, að henni hafi borið sess
meðal okkar beztu skálda og að
henni hafi þá líka borið viður-
kenning sem slíkri.
-f
Unnur giftist eftirlifandi
manni sínum, Sigurði Bjarklind,
20. des. 1905. Fluttu þau þá til
Húsavíkur og voru búsett þar í
30 ár. Tók Unnur við bústjórn á
umfangsmiklu heimili; var heim-
ili þeirra hjóna alltaf fullt af
gestum og gangandi. Kom þá í
ljós hæfileiki hennar sem hús-
móðir, móðir og eiginkona.
Sigurður, maður hennar, var
kaupfélagsstjóri. Staða hans út-
heimti hann óskiptan. Hafði
Unnur því öll störf á hendi, er að
heimilinu lutu, og alla umsjá.
Svo ríkt var náttúrubarnið í
henni, að henni fannst ólíft á
mölinni; varð það til þess að þau
fóru að rækta þarna land. Rækt-
uðu þau eina dagsláttu á ári og
skiluðu 30 dagsláttum af rækt-
uðu landi, er þau fluttust frá
Húsavík.
Þau eignuðust 4 börn, eru 3
þeirra á lífi. Þegar börnin fædd-
ust, var það hennar ráð að hafa
húsdýr, kýr, kindur og hesta, svo
að börnin lifðu við lík skilyrði
og þau höfðu sjálf lifað við. Hún
átti nægan skilning til að setja
sig inn í hugarheim bamanna.
Og hún var ástrík móðir.
Hún var ákaflega stjórnsöm og
umhyggjusöm húsmóðir. Henni
var í blóð borin þessi gamla,
hreinræktaða heimilistryggð,
sem sér og finnur hvað hverjum
bezt hentar og hvað heimilið
þarfnast.
Öll börnin hafa dvalið heima
til þessa dags. Öll eru þau upp-
komin og hafa sitt starf út á við.
En öll hafa þau kosið að vera
heima.
Unnur var ákaflega mikil
starfskona og sívinnandi. í leg-
unni gekk hún frá “Úrvali ís-
lenzkra fornkvæða,” sem nær til
miðaldanna. Hún var líka byrj-
uð á vísnaskýringunum.
í vetur gekk hún frá úrvali úr
kvæðasafni sínu. Vissi eg til.að
útgáfa sú var ákveðin fyrir
löngu. Hún var aðeins að bíða
eftir að kvæðabókin kæmi út.
Legan varð löng. En hvorki
mér né öðrum, sem sáu hana,
datt víst í hug, að svo skammt
væri eftir. Það er nú eyðilegt
heima meðal ástvina hennar. En
það er úrbót, að hver stund, hver
einasti dagur, sem hún lifði, varð
að dýrmætri minningu, sem
hvorki mölur né ryð fær grand-
að.
Eg átti því láni að fagna að
kynnast henni. Nú finnst mér
þessar samverustundir hafa ver-
ið alltof fáar. Þessar stundir
munu verða mér ógleymanlegar,
því að þar kynntist eg göfugri
konu og miklu skáldi.
í dag er þjóðarsorg. í dag er
einu góðskáldinu færra meðal
okkar. í dag er dalasvanninn
borinn til hinnztu hvíldar. Sú
ljóðadís er hætt að óma, sem lét
sönginn fara sem leiftur gegnum
þokumyrkur sálnanna og snart
innztu strengi hjartans, sú sem
óf fegursta glitvefinn úr þjóð-
sögum okkar og æfintýrum.
Friður sé með þér.
Elínborg Lárusdóttir.
—(Alþbl. 17. aprál.).
PHONE 96 712
216 NOTRE DAME AVE.
Með beztu óskum til íslendinga á þjóðhátíð þeirra
á Gimli 1946, frá
OXFORD
HOTEL
IN THE CENTER OF WINNIPEG
Moderate Rates - Free Parking - Parlor
JOSEPH STEPNUK, Pres. S. M. HENDRICKS, Mgr.
ÁRNAÐARÓSKIR TIL ÍSLENDINGA
í tilefni af íslendingadeginum á Gimli 5. ágúst 1946
FORT GARRY TIRE
& SERVICE LTD.
Brakes Relined and Adjusied - Wheel Alignmeni
Baitery Service - Tire Repairs - Reireading Services
Tracior Tires Reireaded
FIRESTONE—Passenger, Truck and Tracior Tires
FORT GARRY TIRE & SERVICE LTD.
208-212 Fori Sireei Winnipeg, Man.
PHONE 92 503 - 92 504
A
t
W
Ll\
til íslendinga í tilefni af íslendingadeginum
á Gimli þann 5 ágúst 1946
Vér höfum einn hinn allra fullkomnasta
útbúnað til þess að veita móttöku öllum
tegundum korns um uppskerutímann.
Ábyggileg og skjót afgreiðsla.
PARRISH & HEIMBECKER
L I M I T E D
661 GRAIN EXCHANGE BUILDING, WINNIPEG
SIMÍ 92 247
islenzkir Byggingameistarar Velja
TEN/TEST í allar sínar byggingar
Þessi Insulaiing Board skara fram úr að gæðum . . .
Seld og noiuð um allan heim —
Fyrir nýjar byggingar, svo og til aðgerða eða endur-
nýjunar fullnæglr TEN/TEST svo mörgum kröfum,
að til stórra hagsmuna verður. Notagildi þess og verð
er ávalt eins og vera ber. Og vegna þess að það kemur
f stað annara efna, er ávalt um aukasparnað að ræða.
TEN/TEST hefir margfaldan tilgang sem insulating
board. pað veitir vörn fyrir of hita eða kulda, og það
kemur f stað annara efna, er ávalt um aukasparnað
að ræða.
í sumarheimilum eða borgarbýlum, skrifstofum, fjöl-
mennisíbúðtim, útvarpsstöðvum, samkomusölum og
hótelum, tryggir TEN /TEST Iffsþægindi, útilokun
hávaða, og fylgir yfirleitt fyrirmælum ströngustu
byggingarlistar.
Útbreiðsla og notkun um allan heim gegnum viður-
kenda viðskiftamiðla, er trygging yðar fyrir Skjótri,
persónulegri afgreiðslu. R^ðgist við næsta TEN/TEST
umboðsmann, eða skrifið oíjs eftir upplýsingum.
HLÝJAR
SKREYTIR
ENDURNÝJAR
TEN-TEST
LÆKKAR
KOSTNAÐ
VIÐ HITUM
Insulaling Wall Board
INTERNATiONAL FIBRE BOARD LIMITED, OTTAWA
WESTERN DISTRIBUTORS; ARMSTRONG DISTRIBUTORS LTD. “