Lögberg - 01.08.1946, Síða 6
14
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. ÁGÚST, 1946
ÞA og NU -
GREIN SÚ, sem hér fer á
eftir, er þýdd úr Lundúna-
blaðinu “Daily Telegraph.”.
Höfundur hennar er Mal-
colm Muggeridge. Er hér
gerður skemtilegur saman-
burður á ástandinu í heims-
málunum nú og eftir fyrri
heimsstyrjöldina 1914—1918,
einkum eins og ásigkomu-
1919 og 1946
lagið var í maímánuði vorið
1919.
Það getur verið hughxeyst-
andi að blaða í gömlum dagblöð-
um. Þau minna mann á gömul
vandamál, sem langflest hafa
fengið einhverja lausn á endan-
um. Það er eins og Carlyle sagði,
að hið liðna getur verið þægi-
legt vegna þess að frá því stafar
engin hætta lengur. Ef horft er
aftur til ársins 1919 virðast
vandamálin þá vera á ýmsan
hátt svipuð því sem þau eru nú.
Á sínum tíma ollu þau mikilli
bölsýni og hugarangri. Eini mun-
urinn þá og nú er sá, að fyrri
vandamálin hafa öll verið til
lykta leidd, en vandamál nútím-
ans er enn óséð fyrir, hverjar
afleiðingar geta haft.
Lesenduir “Daily Telegraph”
vorið 1919 fengu tuttugu síðna
blað fyrir 2 pens í stað sex síðna
nú fyrir 1% pens. Stríðstak-
markanir á pappír til prentunar
höfðu þá þegar verið afnumdar.
Þeir fylgdust þá, ýmist með vOn
eða efagirni, með friðarfundin-
um í Versölum. Þýzku fulltrú-
arnir höfðu þegar fengið með-
mælabréf sín, en enginn var í
vafa um það, að friðarsamning-.
arnir myndu vera komnir í kring
áður en til undirskriftar kæmi af
Þjóðverja hálfu.
Deila reist út af Itöl-um, eink-
um vegna hafnarinnar Fiume,
sem Wilson forseti vildi setja
undir alþjóðastjórn. ítalski for-
sætisráðherrann Orlando vildi
engan veginn fallast á þá kröfu.
1 Róm rí'kti “andi sárra von-
brigða,” enda þótt Poincaré gerði
alt sem hann gæti til þess að
telja kjark í fólkið með því að
segja, “að Italía og Frakkland,
sem staðið hafi fast saman í
styrjöldinni, myndu standa sarn-
an áfram á friðartímum.”
Belgía var óánægð með hlut-
skifti sitt við friðarborðið, og
Robert Cecil lávarður hafði þá
þegar komið fram með tillögu
sína um að leyfa Þýzkalandi að
ganga í Þjóðabandalagið, sem þá
var nýstofnað.
-f
Að Versölum slepptum var
gjörvöll Evrópa mjög ókyrr.
Mjög fátt var vitað með vissu
um það, sem fram fór í Rúss-
landi. Sagt var, að sovétherir
væru flúnir frá Kiev, pg að Lit-
háar, sem börðust á 400 kíló-
metra langri víglínu, væru að
nálgast Vilna. í Ungverjalandi
sat Bela Kun enn að völdum en
franskar hersveitir voru á leið-
inni til þess að hertaka Buda-
pest. Sagt var, að bændu/
“tækju á móti þeim sem frelsur-
um. Dagar sovétstjómarinnar í
Ungverjalandi voru taldir.”
Hótað var pólskri innrás á
Þýzkaland í Efri-Slesíu, og frá
Genf barst undarlegt skeyti um
það, að “Þjóðverjar væru að
endurskipuleggja her sinn í óða
önn.” Kommúnistastjórnin í Bæ-
heimi var þegar á fallanda fæti.
Þýzkar stjórnarhersveitir höfðu
umkringt Munchen og “rauðir
varðliðar gáfust upp í hópum.”
Ástandið í Póllandi virtist
harla ískyggilegt, þrátt fyrir það
álit, sem Paderewski forseti
naut. “Stjómmáladeilur voru
harðvítugar milli allra hinna
mörgu flokka, og átökin urðu
hálfu verri sökum þeirra of-
sðkna, sem Gyðingar urðu fyrir.”
í París voru verkföll átakan-
leg, og þar voru skærur og víg
á götum úti. Verið var að stofna
franskan landráðadómstól.
Ýmis álíka fréttaskeyti um illt
ástand bárust hvaðanæfa úr ver-
öldinni þessa vordaga árið 1919.
Og jafnvel í London “komu
tugir þúsunda, sem allar báru
rauða svipinn á sér,” saman til
fundar í Hyde Park og voru á-
varpaðir af George Lansbury.
Indland og Egyptaland höfðu
verið vettvangur mikilla átaka.
Stjómin í Egyptalandi hafði ný
lega sagt af sér, og Allenby lá-
varður og yfirhershöfðingi hafði
fengið mikil völd í hendur.
Indlandi hafði “Mr. Gandhi
hvatt fylgismenn sína til hug-
rekkis og þrautseigju og að
stilla sig um allar nei-*kvæðar
framkæmdir.”
Á sviði heimspólitíkurinnar
gnæfði Wilson forseti hæst allra.
Þá þegar var samt farið að kvis-
ast um það, að hann ætti ekki
jafn miklu fylgi að fagna heima
fyrir og jafnan áður. Samstarfs-
maður hans, Mr. Daniels flota-
málaráðherra, yar á ferðalagi á
London, þar sem hann var við-
staddur hátíðahöld tileinkuð sjó-
hernum, sem haldin voru í minn-
ingu um endalok þeirrar styrj-
aldar, sem þekkt myndi í sög-
unni sem styrjöldin, er bundið
hafi enda á allar styrjaldir, og
gera ætti óþarfa tilveru herja og
flota í framtíðinni,”
1 Englandi kom Austen Cham-
berlain fram með fyrsta eftir-
stríðsfrumvarp sitt varðandi
fjárlögin. Það hljóðaði upp á
1,434,910,000 sterlingspund — á
móti 5,400,000,0000 sterlings-
punda-frumvarpi Mr. Daltons
nú. Bjór og áfengir drykkir
hækkuðu í verði, enda þótt
whisky-flaskan hafi þá ekki kost-
að nema 10 shillinga, og 6 pens,
og þótti flestum nóg.
Á þessum tímum fóru glæp-
ir mjög í vöxt, — sömuleiðis
hjónaskilnaðir. Húsnæðisvand-
ræði voru gífurleg, og skipaði
stjórnin dr. Addison (sem nú er
viscount) sem húsnæðismála-
ráðunaut. Nefnd var sett á lagg-
irnar til að skipuleggja kola-
framleiðsluna, og var formaður
hennar Mr. Justice Sankey. Hún
átti einnig að athuga framtíðar-
möguleika fyrir iðnaðinn í land-
inu og möguleika fyrir aukinni
þjóðnýtingu hans. Fjórir full-
trúar úr fulltrúadeildinni voru
útnefndir til þess að “athuga
framkvæmd á lagagreinum varð-
andi lausnir frá embættum, og
hvernig fyrir það yrði komist, að
þeim lagaákvæðum væri mis-
beitt.”
Mr. Lloyd George forsætisráð-
herra sagði, að “vandamálið
varðandi atvinnuleysið væri eitt-
hvert hið erfiðasta viðureignar
og mest lægi á að leysa það a!:
öllum vandamáltmum, sem fyrir
lægju”. Hann lofaði “ákvæðum
um lágmargsvinnutíma og lög-
um um breytingar á kaupi,” þar
sem fólki væri tryggð fjörutíu
og átta stunda vinnuvika.
Það voru tímar loforða og
vonar. Sigurinn í maí 1919 sýnd-
ist bera merki um það, “að Lon-
don vildi fagna honum sem best,
og að hann myndi endast öldina
út, — og áhrifa hans jafnan
gæta.” — Alþbl. 18. apr.
íslenzk þýðing á skáldsögu
Capeks, Salamöndrustríðið
Skáldsaga tékkneska rithöf-
undarins, Karels Capeks, Sala-
möndrustríðið, er nýkomin út, í
íslenzkri þýðingu Jóhannesar
skálds úr Kötlum, á vegum Máls
og menningar.
Salamöndrustríðið nemur nær
þrjú hundruð blaðsíðum, og
skiftist sagan í þrjár bækur, er
bera heitin: Andrias Scheuch-
zeri, Mót hátíndum menningar-
innar og Salamöndrustríðið.
Þýðandinn skrifar stuttan eftir-
mála að bókinni um höfund
hennar.
Karel Capek fæddist árið 1890,
en lézt árið 1938 um líkt leyti og
Tékkóslóvakía var lögð undir
járnhæl nazismans. Hann hefur
verið talinn öndvegishöfundur
tékkneskra millistríðs bókmenn-
ta og var glæsilegur málsvari
frelsisstefnunnar, sem hinir tveir
frægu forustumenn þjóðar hans
Masaryk og Benes, túlkuðu á
stjórnmálasviðinu.
Þetta er fyrsta bók Capeks
sem kemur út í íslenzkri þýð-
ingu. Hins vegar var eitt leik-
rita hans, Gervimenn, sýpt hér í
Reykjavík fyrir nokkrum árum.
Congratulations . . .
Management and Staff of the Oldest Livestock
Commission Firm at the Union Stockyards
BURNS BROS. LTD.
Hugheilar árnaðaróskir til tslendinga á þjóðminningardegi
þeirra á Gimli, 5. ágúst 1946
frá
SELKIRK METAL PR0DUCTS
LIMITED
187 SUTHERLAND AVE., WINNIPEG, MAN.
Sími 54 358
KELLY SVEINSSON, forstjóri
Nokkar smásögur eftir Capek
hafa verið þýddar á íslenzku.
Smalamöndrustríðið kom fyrst
út árið 1936. Skáldsaga þessi hef-
ur verið þýdd á fjölmörg tungu-
mál og vakið mikla athygli.
(Alþbl. 18. aprl.)
Hvert ert þú eiginlega að fara
í þesum mikla flýti? spurði frú
Jones.
Eg ætla að skreppa heim til
Johns. Hann var að enda við að
hringja til mín og biðja mig um
að lána sér tappatogara og eg
ætla að fara með hann sjálfur,
svaraði herra Jones.
Nú getur þú ekki sent dreng-
inn með hann?
Kona góð, sagði herra Jones
ávítandi, þessi spurning sannar
enn betur en margt annað, hvers
vegna kvenfólk getur ekki stjórn-
að hersveitum, tekið skjótar
ákvarðanir, þegar milljóna við-
skipti eru í húfi. Þegar rétta
augnablikið rennur upp, vita þær
aldrei hvað þær eiga að gera.
Með Beztu Heillaóskum á íslendingadaginn frá
JOE BALCAEN
PLUMB^NG, HEATING AND SHEET METAL WORK
FARM IMPLEMENTS
SÍMI 212
Manitoba Avenue Selkirk, Manitoba
Lakeside
CTradinq Co.
Qimli, TTlauitoba
Vegna sérstakra ástæðna, er verzlun
okkar á Gimli nú þegar til sölu. Vænt-
anlegir kaupendur snúi sér til okkar
undirritaðra viðvíkjandi skilmálum.
*JU. ^JUoaAoAAo+i
f}. 'JUosiAa'Uott