Lögberg - 08.08.1946, Síða 7

Lögberg - 08.08.1946, Síða 7
7 Palestínu spursmálið Það sem mesta eftirtekt vek- ur í sambandi við Palestínu sem stendur, er mismunurinn á milli efnalegrar afkomu manna þar og vandræðanna í stjórnmálun- um, en þetta eru ekki nýmæli; það hefir alltaf verið svo síðan að Gyðingar hófu byggð á ný í Palestínu. Vellíðan þessi stafaði að nokkru leyti frá stríðinu, en aðal- lega þó frá auðugum innflytj- endum, sem komu frá Þýzka- landi og Austur Evrópu. Iðnað- arstofnanir hafa verið settar á fót um alla Palestínu, sem áður voru óþektar þar um miðbik austurlanda, svo sem verkstæði til að skera og slípa demanta, tannlækninga rannsóknarstofur, vertksmiðjur til að búa til og fullkomna sjónauka, og verk- stæði til að sjóða niður allskonar dósa og könnumat. Á bak við þessi nýju iðnaðar- fyrirtæki standa 'hin elldri og stærri iðnaðarfyrirtæki, svo sem Cement verksmiðjan og olíu- hreinsunar verksmiðjan í Haifa, sameigna byggingafélagið mikla, Solel Boneh, og öskusalts verk- stæðið við dauðahafið. Á sama tíma og ofanskráð þróun héfir átt sér stað, hafa Gyðingar í sarrwinnu-sveitunum stofnað til ýmsra iðnaðar stofn- ana þar sem bæði landbúnaðar verkfæri og almennur iðnaður er framleiddur, og sýnast þær stofnanir þrífast vel. Allt þetta ætti að vera nógu þróttmikið og nógu víðtækt til þess að hinni nýtízku Palestínu sé borg- ið efnalega, á meðan að hún er að ná jafnvæginu eftir stríðið. RANNSÓKN LOKIÐ Á AKRANESBRUNANUM Sláturhúsbruninn á Akranesi er nú að jullu upplýstur, og hafa hlutaðeigendur játað á sig brot sitt. Ennfremur leiddi rannsókn málsins í Ijós, að gerð hafði verið tilraun til þess að kveikja í þrem húsum í Reykjavík á s.l. vetri. Hús þessi voru Miðstræti 5, útiskúr við Miðstræti 5, vöru- geymsluskúr við Vonarstræti 4. Fyrirhugað var að kveikja í búseigninni BaldurSgötu 12, en af því hafði ekki orðið. Samtals nam vátryggingar- upphæð á húsum og vörubirgð- um um 1200 þús. krónum. I einu húsinu, Miðstræti 5, sem er stórt timburhús, bjuggu yfir 20 manns. Kveikt var í því um nótt, þegar fóQk var í fastasvefni, og hrein- asta mildi, að ekki skyldi hljót- ast af stórslys. Að sláturhúsbrunanum á Akra- nesi stóðu þeir Árstráður Proppé, húsgagnameistari á Akranesi, Jó hannes Sæmundur Pálsson að Tumbrekku í Staðarsveit, Snorri Jónsson stórkaupmaður, Nönnu- götu 8 í Reykjavík og Sigurður Jónsson, fomsali, Þingholts- stræti 26. Ennfremur vissu þeir Þórður Halldórsson, kaupfélags deildarstjóri á Dagverðará á Snæfellsnesi, og Þorgils Hólm- freð Georgsson, bifreiðanstjóri, Hliði á Álftanesi, um brennuá- form iþetta. Ók Þorgils að kvöldi 14. maí síðastl. með Jóhannes Pálsson héðan úr bænum og upp á Akranes. Höfðu þeir benzín með sér í bílnum og kveikti Jó hannes í Sláturhúsinu um nótt- ina, eftir að hafa helt benzíni í vörurnar, sem iþar vom gevmd- ar. FRAMFARIR Þegar maður kemur til Pale- stínu eftir tíu ára burtuveru, þá er ekki annað unnt, en að veita framförimum sem orðið hafa, eftirtekt. Á þessu ber jafnvel meira hjá Arabunum, því þeir stóðu á lægra þekkingarstigi. Híbýlabreyting hjá þeim, frá moldarkofum til stæðilegra steinhúsa, frá rabbíta stígunum gömlu í Jaffa, til nútíðar breiðra borgarstræta, er meiri mismun- ur, en t. d. samkynja vöxtur á Tel Aviv. Pyrir tíu ámm, var mesti f jöldi á rneðal hinna eldri Araba blindur. Traohoma var algeng augnaveiki á meðal barna. Nú er sú veiki nálega horfin. Fækk- un dauðsfalla á meðal barna er ekki síður eftirtektarverð. Eftir að standa í stað í aldir, þá hefir tala Araba tvöfaldast á ámnum frá 1922 til ársins 1942. Breyting sú hin mikla sem orðin er í þeim efnum, á rót sína að rekja beint til sjúkrahúsa Gyðinganna, lækna þeirra, eða heilbrigðis ráðstafana stjórnarinnar, og skóla, sem óbeinlínis er haldið uppi af Gyðingum sem borga frá átta til tíu sinnum meiri skatt en Arabarnir. Með það fyrir augum, sem þeg- ar hefir verið framkvæmt, halda Gyðingar fram, að frekari iðn- aðarþróun í Palestínu, og víð- tækar vatnsveitur, eins og þær sem sérfræðingar og mælinga- mennirnir fxá Tennessee hafa reiknað út og sem Arabar þurfa eízt að óttast. Með þeirri auk- inni iðnaðar framleiðslu og vatni veitt yfir suður eyðimörkina sem er nálega óbygð, segja þess- ir sérfræðingar að Palestína geti vel framfleytt frá 2,000,000 til 4,000,000 manns. Þessi auknu lífstækifæri yrðu ekki mönnum veitt, með því að vísa neinum á bug, sem nú byggi í landinu, heldur með því að nota hið blundandi framleiðsluafl sem til er ónotað í landinu sjálfu. Það er sannarlega engin ástæða til þess, að Palestína, sem á Byzantina tímabilinu framfleytti 3,000,000 manna, skuli ekki geta gjört það sama nú á tímum, með fullkomnari og aukinni jarðrækt og iðnaði, eða vel það. Vörurnar voru vátryggðar fyr ir 600 þús. kr., á nafni Ástráðs Proppé. Við rannsókn á brun anum féll grunur á Ástráð. Var hann úrskurðaður í varðhald og fluttur til Reykjavíkur. Hefir hann nú, og allir hinir seku, ját- að á sig brot sín. Við rannsóknina kom enn- fremur í ljós, að sumir þessara manna höfðu gert ítrekaðar til raunir til þess að kveikja í hús- um hér í bænum í hagnaðar- skyni. M. a. kveiktu þeir Jó- hannes Pálsson og Gísli Krist- jánsson, Mjóabúð á Snæfells- nesi, í húsinu Miðsitræti 5, aðfara nótt 20. jan. síðastl. Snorri Jóns son átti húsið, og bað hann Jó hannes að kvekja í því fyrir sig. Húsið var vátryggt fyrir 250 þús. kr. Slökkviliðinu tókst fljótlega að slökkva eíldinn. Þann 4. febr. síðastl. kveikti Sigurður Jónsson í útiskúr við Miðstræti 5. Voru geymdar í honum vörur, sem hann og Jó- hannes Pálsson áttu og vá- tryggðar voru fyrir 91 þús. kr. Brann mikill hluti þeirra eða skemmdist, en slökkviliðið bjarg- aði skúrnum. Aðfaranótt 18. febr. kveikti Jó- hannes að beiðni Snorra í vöru- geymslu á bak við Vonarstræti 4. Vörubirgðir í honum voru vá- tryggðar fyrir 170 þús. kr. Slökkviliðinu tókst að ráða nið urlö'gum eldsins aður en veru- legar skemmdir hlytust af. Loks bað Snorri Jóhannes, Þórð og Sigurð að kveikja 1 hús- inu Baldursgötu 12, svo að hann gæti byggt á lóðinni. Af því varð þó ekki, enda þótt Snorri byði þeim fé fyrir. J»eir Snorri, Sigurður, Jó- hannes og Þórðiur eru enn í gæzluvarðhaldi, og er rannsókn í málum þeirra haldið áfram. —(Vísir 6. júní). Gull brúðkaup Eftirfarandi erindi var skrifað með þeirri hugmynd að fylla upp í eyður þær er verða kynnu í hinu fjölmenna samsæti er hald- ið var að Lundar, Man., 14. júlí s. 1., en það voru engar eyður, heldur áframhaldandi söguleg sannindi, meðan dagur entist, svo nú vilja hlutaðeigendur biðja ritstjóra Lögbergs að gjöra svo vel og birta þessar línur, við fyrsta tækifæri, því sjaldan eru of miklar sagnir um það sem vel er unnið. — Það er óvanalegt að gæfan leiði farsællega hlið við hlið, brúður og brúðguma í 50 ár; gefi þeim heilsu, krafta, dug og djörf- ung til að sigra örðugleikana á framsóknarbrautinni, og uppala, styðja og styrkja, til velferðar, 16 börn. Það eru vanalega ein- hverjar undantekningar, ein- hver mistök, en hér hafa unnið saman sterkur og góður vilji, og hæfileikar beggja, svo hér sjá- um við þessi heiðurs hjón, Mr. og Mrs- John Líndal, og þeirra stóra og fagra barnahóp, og þeirra afkomendur, svo að við höfum sannarlega ástæðu til þess að samgleðjast, virða og þakka þeirra stóra sigur, á sama tíma og að við óskum eftir áfram- haldandi sigurvinningum. Ekki hafa þau aðeins byggt upp og blómgað sitt eigið heimili og sína eigin fjölskyldu, heldur líka tekið mikinn og góðan þátt í vel- ferðarmálum bygðarinnar, um langan tíma, og í því sambandi leyfi eg mér að minnast þátttöku Mr. Líndals í sveitarmálum. Það var 7. janúar 1913 sem Mr. Líndal tók til starfa á fyrsta fundi Coldwell sveitar, þá sem meðráðamaður, eða councillor fyrir 3. kjördeild og Lundarbæ, og þeirri stöðu hélt hann með heiðri og sóma í 17 ár. Hann vann því að sveitarmálum með þess- um oddvitum: W. H. Fielding í næstum 2 ár; Thomas Monkman hálfan dag, eða hálfan fund; Riohard Seaman, eitt ár; John Sigfússon, fimm ár; Paul Reyk dal, átta ár, og Sigurði Sigurðs- syni eitt ár. Vinnan með fyrsta oddvita sveitarinnar var þess eðlis, að það útheimti kunnugleika og dómgreind, svo ekki væri farið of langt í framsóknar og umbóta átt, því lántaka í stórum stíl “under the Good Roads Act” var stefna Fieldings, og fylgdi Mr. Popplewell með miklum áhuga líkri stefnu; er lítið efa mál, að ef að Mr. Líndal, Mr. Breckman og Mr. Freemann hefðu ekki í tíma tekið um stjómarvölinn, þá hefði Coldwellsveit, eins og margar aðrar, sokkið í skulda- hafið. Var Mr. Líndal með þeim fyrstu að sjá og skilja að strjál- bygð og landkostir hér gáfu látið loforð fyrir borgun á margföld- um rentu rentum og stórum höf- uðstól. Bæði Fielding og Popple- well meintu vel, en þá skorti næga þekkingu á öllum kring- umstæðum. Þann stutta tíma sem Mr- Monkman skipaði oddvita stöðu, þurfti spekt og stillingu, fyrst til að hlusta á svo sem hálfstíma stóryrði fjúka á milli Rothwell Plopplewell. Þann tíma sem þeir stóðu með reidda hnefa og létu stóryrðn fjú'ka. Popplewell hafði verið uppástungu maður að því að nokkrir plankar væru keyptir úr verzlun Mr. Breck- mans, og af því að hann var í sveitarráðinu, álitu óvinveittir náungar tækifærið gefið til að hefja sakamál á móti þeim. Var það mál sókt og varið í fimm mánuði, en þá gaf Court of Kings Bench fullnaðar úrskurð, og fní- kendi bæði Popplewell og Breck- mann, og dæmdi gjörðir sveitar- innar réttmætar, því þessir fáu plankar hefðu hvergi fengist með minna verði; enginn fjár- dráttur og ekkert lagabrot hefði átt sér stað. Á meðan að þessi málaferli entust, voru lögmenn að gefa skipanir' sínar, annaðhvort um nýjar kosningar, eða þá aftur- köllun á þeirri skipun, en hinir þrír meðráðendur, sem ekki gáf- ust upp á ársfundinum, héldu fimm lögákveðna fundi, og kusu í hvert sinn Mr. Líndal fyrir fundarstjóra; þar til Mr. Field- ing kom aftur í oddvita stöðuna, 1. júní 1914, og hélt henni til enda ársins. Árið 1915, sem Mr. Seaman var oddviti, var ekki rasað að neinu, og hver gat haldið óáreittur sinni skoðun, einnig þau fimm ár sem Mr. Sigfússon gegndi oddvita störfum, var far- ið gætlega, og hvert umræðu- efni krufið til mergjar, svo oft voru fjölmennir og langir fund- ir, næstu 8 árin, eða til ársloka 1928 var Mr. Reykdal oddviti; stjórnaði hann vel fundum, og var fljótur að gefa sinn úrskurð; sömuleiðis árið 1929, þegar Sig- urdson var oddviti, gekk flest sinn vanagang, friður og góð sam- vinna var á öllum sveitarfund- um yfirleitt, nema þeim fyrsta 1914. Samt var allur þessi tími, 17 ár, einn stór bardagi við marg- háttaða örðugleika, þó stærsta og bitrasta neyðin væri sem af leiðing af hinu fyrra stóra stríði, er óhætt að segja, að það þurfti dug, djörfung og ráðdeild, til þess að stýra vel í gegnum það brim og þá boða sem risu áfram haldandi í mörg ár, eftir þann voðalega hiMarleik, og í sam- bandi við stjórn og meðferð vel- ferðarmála sveitarinnar, var Mr. Líndal oft með þeim fyrstu að fá réttan skilning á því hvernig forðast mætti boða og blindsker, mörg önnur vandamál 'hefur Mr- Líndal orðið að glíma við, á sinni löngu leið, vanalega verður þá hlutfikifti konunnar að taka að sér alla heimilisstjórn, í fjær- veru bóndans, svo hún á líka heiður og þakkir skilið. Þau geta litið til baka, yfir farinn veg, með sigurbros á vör, og gleymt flest- um erfiðleikum liðna tímans. Megi hin himinborna hamingju dís halda áfram að vera ykkar verndari, jafnvel þó að kveld skuggarnir lengist og líði að ör- laga kveldi, og þá biðjum við, að aptangeislar friðar bogans vísi ykkur leið til hinstu hvíldar, og yfir djúpið, til áframhald- andi nýrra starfa. A. M. tröppum hússins, þegar að gang- andi mann bar þar að sem spurði bóndann: “Veiztu hver er að tala þarna inni?” “Þingmaðurinn okkar,” svarar bóndinn. “Um hvað er hann að tala?” spurði komumaður. “Hann hefir ekki sagt frá því ennþá,” svaraði bóndinn. MiiiiimiiiimniHiinmamHM llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll. Kosningafundur stóð yfir í bænum og var fundarhúsið al- skipað, en bóndi einn grannvax- inn og krangalegur stóð úti á MINNING LANDNÁMSMANNS Jóhannesar (Jóa) Jóhannssonar Stefánson Fæddur að Kroppi í Eyjafirði 1869 Dáinn að Wynyard, Sask., 1943 Það hníga í valinn hetjur landnámsaldár er höfðu lífsins afarkostum mætt. Þó aldrei verði vonir allar taldar, né vitran hver, er hafði starfið glætt. Ehi margur deyr þar manndómseldur sterkur, og miklast lengi stórfelt dagsverk hans, með víkingshug er ruddi myrkar merkur, og mannheim bygði á slóðum eyðilands. Frá íslands strönd við ísum klæddan hjara, til 'óbygðs lands, þú fluttist lítið barn. og lífssvið þitt var þrekraun þeirra kjara, er þora að etja kapps við nakið hjarn. Þú ungur varst, er út þú hlaust að hætta til ókunnra, í nýjung strjálbygðs lands; En þú komst hreinn af stofni stæltra ætta, og stóðst þá jaun með prýði orkumanns. Eg sé þig fara “einn með hundi ög hesti,” um hásléttanna vegaleysi rótt. Þar drottins rödd var ein er glöðum gesti á gisting benti, er dimma tók að nótt, en víðáttan með dularfaðminn djúpan um drauma þína hélt sinn trygga vörð. með yfir höfði himinn stjörnu gljúpan, og hallast rótt í skaut á móður jörð. Og aftur sé eg þig til landnáms leita um langa vegu, strjáls og óbygðs lands, og eyðimörk í blómleg sáðlönd breyta, með burðadug og elju frumherjans, Þar áður fyrrum voru villirunnar, hið vilta gras í djúpum bylgjum lá, rís sveitin blómvæn, bygðir gróðrarkunnar, með bjargráð lýðs er glæsta framtíð á. Þú lifðir til að leita, og að kanna, en leið svo illa í múgalýðsins þrengd, þó stundum væri strjált um næstu granna, var stundarferð ei mæld í vegalengd, en sæist gestur heim að kofa halda þar heimamaður kærann góðvin leit, því oft þó væri fáu til að tjalda, var traust og hlýtt með þeirri landnámssveit. Ei sleitst þú trygð við gamla landið góða, er gaf þær erfðir sem til dauðans barst. Þó bærist víða, meðal margra þjóða, í málsvörn þess æ heill og sannur varst, og feðra þinna tungu tignarhögu þú trúðir á, í mannraun æfislits, og fanst þar jafnan landnám ljóðs og sögu, er lýsti hásal mannlegs hugarvits. Þú aldrei varst við okurveltu bundinn, því enginn þráður fanst þar sálarveUl, en lands og þjóðraun þoldi djarfa lundin, og það, að mæta hverjum degi heill. Þitt orðtak veit eg vinur margur þekki, á vegamótum lífs er stóðstu hjá. “Sko, hér er höndin, heila hönd eða ekki.” hvert handsal skyldi komið innan frá. Er kvöldsins blika breiðir sig um löndin, og boðar nú sé komið sólarlag, þá er það gott, er holla drottins höndin, á heimleið kallar, eftir strangan dag. Og þér mun rótt í lífsins þroskalundum, er launa að verðleik starf hins fulla dags, við goðasumbl, á góðra vina fundum, að Glæsivöllum endaðs ferðalags. T. T. KALMANN. Minnist 1 fyrra lofuðum við ölluTn þeim sem orðið hafa að ■bíða eftir að fá talsíma hieim til sín eða á skrifstofur sánar, að eftir þörfum þeirra yrði litið undir eins og um liðkaðist með efni, áihöld og menn. Aðstæðurnar eru enn örðugar sökum skorts á síma- staurum, vírum og öðru, sem til sáma-innsetningar þarf, er enn af mjög svo skornum skamti, svo við höfium aðeins getað fullnægt fáum af beiðnum þeim sem fyrir lágu. I Loforð okkar stendur enn! Undir eiins og fram úr rætist með efnisskort- inn þá verður beiðni yðar um talsíima fullnægt. BETEL í erfðaskrám yðar 8*46

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.