Lögberg - 05.09.1946, Blaðsíða 5

Lögberg - 05.09.1946, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER, 1946 5 ÁHUGAMÁL UVENNA Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON RAYON SOKKAR OG MEÐFERÐ ÞEIRRA Nú er svo erfitt að fa sokka og þeir eru líka svo dýrir að ná- kvæma aðgæslu ætti að viðhaía við kaup þeirra, þvott og aðra meðferð. Vertu viss um að kaupa rétta stærð. Ef sokkarnir eru of litlir er stóra táin komin út úr þeim áður en þig varir. Ef þeir eru of stuttir, strengja sokkahöndin of mikið á þeim, þráður slitnar og þá er óðara komið lykkjufall í sokkinn. Bezt er að kaupa tvö pör eða fleiri í einu í sama lit, ef þau fást. Ef lykkjufall kemur í.einn sokk- inn, þá getur iþú notað hinn með hinu parinu. Vertu varkár þegar þú ferð í sokkana. Sverfðu negl- urnar á tánum og gættu að því að hafa annaðhvort hanska á höndunum eða taka hringina af fingrum þér og sverfa fingur- neglurnar þannig að engin hætta sé á því að þræðir í sokkunum festist og slitni. Þvottur. Flestir kvennasokkar eru nú búnir til úr rayon eða að ein- hverju leyti úr því efni. Það ætti því fyrst og fremst að hafa það í huga að þegar rayon er blautt eru þræðirnir miklu veikari en þegar það er þurt; rayon sokkar þola því ekki marga þvotta nema því aðeins að mjög varlega sé með þá farið. Sokkarnir ættu þó að vera þvegnir daglega til þess að ná úr þeim svita og óhrein- indum; sviti veikir rayon efnið og ef hann er ékki þveginn úr sokkunum daglega, þá endast þeir illa. Það er líka ráðlegt að þvo nýja sokka áður en farið er í þá; þræðirnir verða þá teyjan- legri og ekki eins'hiikil hætta á því að þeir slitni. Hér fara á eftir reglurnar um þvott reyon sokka: 1. Þvoðu sokkana í volgu vatni og vertu fljót að því. Láttu þá aldrei liggja í bleyti og nudd- aðu þá aldrei. 2. Hafðu nóga sápu í vatn- inu og kreistu sápuvatnið í gegn um sokkana. 3. Ef að leir eða skósvertu blettir eru í sokkunum, skal bera þurt sápu duft á blettina, kreista þá verlega en forðast að nudda þá. 4. Kreistu mesta sápuvatnið úr sokkunum og skolaðu þá vel úr volgu vatni, að minsta kosti tvisvar. 5. Kreistu úr þeim mesta vatnið og vefðu þá inn í hand- klæði. 6. Taktu þá strax úr hand- klæðinu og teygðu þá varlega þannig að þeir nái lögun sinni. 7. Hengdu þá upp á tánum, þannig að klemman komi yfir sólana en ekki ofan á ristina. Hina næfur þunnu nylon og ray- on sokka ætti ekki að hengja upp, því þá getur teygst of mik- ið á hinum veiku þráðum; breiddu þurt handklæði á borð og láttu sokkana þorna á því. 8. Varastu að þurka sokkana í miklum sólanhita eða nálægt hitaleiðslum. Þurkaðu þá inni og láttu þá þorna í 24 til 48 klukkustundir áður en þú ferð í þá aftur. Þetta eru þvotta reglur sokka framleiðslu félaganna. Þau gera alskonar tilraunir með sokkana, sem þau framleiða og vita hvað þeir syngja. Farðu vel með sokkana þína; þeir eru dýrir og endingin fer eft- ir því hve vel þú hugsar um þá. TIL MINNIS Áhaldakassi. Hann er nauðsynlegur á hverju heimili. Kassi með hamar nagl- bít, nöglum, skrúfum, borum, krókum og metramáli, líka sand- pappír, lími, penslum o. fl. Hver einasta húsmóðir þarf að nota þessi áhöld og hafa þau þar, sem grípa má til þeirra hvenær sem er, og óþarft er að sækja fag- mann til smávirka, sem hver og einn getur innt af hendi. Það er enginn vandi að reka nagla eða líma saman blöð. Bœkur. plestum þykir mjög vænt um bækur sínar og handleika þær sem dýrmæta hluti, sem þær líka eru, meira að segja gæla við þær eins og 'börn. Það er því ekki undarlegt þó að menn séu tregir til að lána bækurnar sínar og að þeir krefjist þess að þeim sé skil- að jafnóðum aftur. En þeir sem fá bækur að láni eru oft einkenni- lega hirðulausir um að skila bók- unum, henda þeim einhversstað- ar og segja jafnvel. Eg man ékk- ert hver á hana. Munið að skila þeim bókum, sem þér fáið að láni hjá vinum yðar. ■f -f -f Hvers virði er karlmönnum hjónabandið? 1 veizlu sem haldin var fyrir skömmu, spurði frægur skáld- sagnahöfundur mig, hvorum eg teldi, að hinir tíðu hjónaskiln- aðir í Ameráku væru fremur að kenna: eiginkonum eða eigin- mönnum. Eg sagði að athuganir síðustu tólf ára hefðu fært mér heim sanninn um, að sökin væri yfirleitt eiginmannanna. “Ef karlmaður verði helmingnum af þeirri umhyggju, sem hann ber fyrir atvinnurekstri sínum, í það, að hugsa um, hvernig ástatt væri um hjúskaparlíf hans, er eg sann- færð um, að hjónaskilnuðum mundi fækka að miklum mun,” mælti eg. — Rithöundurinn varð hugsi og svaraði: “Þetta hefur mér nú aldrei dottið í hug, en hver veit, nema þér hafið öld- ungis rétt fyrir yður.” Hvort sem eg hef á réttu eða röngu að standa, færa öll þau mörgu bréf, er eg fæ frá körlum og konum, sem eru sáróánægt í hjónábandi sínu, mér heim sann- inn um, að þegar karlmaður kvænist, heldur hann blátt áfram að hjónaband hans sé í éitt skipti fyrir öll tryggt og öruggt. Mjög sjaldan lætur hann sér til hugar koma, að hann þurfi að gefa því nokkrar gætur, stuðla að farsæld þess og reyna að lagfæra það, ef eitthvað ætlar að ganga úr skorð- um. Þannig verður hann þó að haga sér í verzlunarrekstri sínum. Ef salan minkar, ráðfærir hann sig fyrst við meðeiganda sinn. Þeir reyna síðan í félagi að komast að raun um, hvað þessu valdi. Ef keppinautar þeirra eru í þann veginn að sýna þeim yfirgang, taka þeir sjálfir að vanda vöru sína og allan undirbúning henn- ar meira en áður tíðkaðist. Treysti þeir sér hins ,vegar ekki til að ráða bót á vandkvæðun- um af eigin rammleik, kveðja þeir sérfræðinga sér til aðstoðar og fara síðan að ráðum þeirra: En þó að nýjabrums-ánægja hjónabandsins taki hins vegar að dofna og staða eiginkonunnar á heimilinu verði smám saman eins og hverrar annarar vinnu- konu, lætur eiginmaðurinn eins og ekkert hafi í skorizt, ef hann fær nógan og góðan mat; hann ímyndar sér blátt áfram, að þann- ig sé ölum hjónaböndum háttað. Hvers vegna er konan þín orð- in að réttri og sléttri húsmóður? Af hverju tala hún ekki orðið um neitt annað en börnin, hús- verkin, fyrirkomulagið á vöru- skömmtuninni og hvað nágrann- arnir séu nú að sýsla? Hvað er eiginlega orðið af hinni kátu og glæsilegu stúlku, sem þú kvænt- ist? Þú getur fundið þá stúlku, ef þú vilt það sjálfur viðhafa. Hringdu til hennar á morgun af skrifstofunni. Segðu henni, að hún skuli fá einhvern til þess að líta eftir ibörnunum og koma síð- an sjálf til móts við þig út í bæ og borða með þér miðdegisverð. Gerðu þér nú einu sinni veruleg- an dagamun með henni, bjóddu henni inn í skemmtilegt veitinga- hús, pantaðu þar uppáhaldsrétt- ina hennar, og farið þið síðan saman í leikhús eða bíó. Reyndu að fá hana til að gleyma því rétt sem snöggvast, að hún sé móðir heillar fjölskyldu. Leyfðu henni að verða aftur ung stúlka. Og byrjaðu að bjóða kunningj- um þínum heim til miðdegisverð- ar. Gerðu konuna þína aftur þátttakanda í lífi og fjöri. Þá munt þú sanna, að hún hefur ekki greymt þeirri list, að vera góð húsfreyja. Allt og sumt, sem hana vanhagar um, er trygging fyrir því, að þú dáist að henni, sannfæringin um, að hún hafi ekki misst piltinn, sem hún gift- ist. Sami meyjarroðinn mun aft- I ur koma fram í kinnar hennar, og þú munt heyra á ný hláturinn, sem þér þótti svo yndislegur. Enga eiginkonu langar til að verða ekkert annað en rétt og slétt húsmóðir. En hún getur ekki eingöngu af eigin rammleik varðveitt æskufjör sitt. Ætli deyfð hennar gagnvart manni sínum geti ekki stafað af því, að hann hafi verið þumbaralegur við hana? Ef eiginkona er fýlu- leg á svipinn, verður það alltaf freistandi fyrir mann hennar að líta tvisvar framan í fyrstu, lag- legu stúlkuna, sem verður á vegi hans. Hann meinar að sjálf- sögðu ekkert með slíku, en gerir það bara, af því að honum leið- ist. Sízt af öllu mundi honum detta í hug, að hann yrði fyrir sjónblekkingum heima hjá sér, en ef hann renndi ástaraugum til konu sinnar, mætti svo fara, að hann yrði forviða. Þetta hefur auðvitað sín áhrif á hvort tveggja hjónanna. Mörg eiginkonan, sem séð hefur ást- arglampa í augum annars manns, mundi aldrei endurgjalda augna- tillit hans, ef hún héldi, að eigin- maður sinn elskaði sig enn, Ef hann er hins vegar sífellt önnum kafinn við störf sín, ef hann álít- ur hana einungis bústýru og barn ffóstru hjá sér, er henni sannar- lega ekki láandi, þó að hýrt augn- aráð annars manns komi henni lítið eitt til. Hana langar til að varðveita æsku sína og yndis- þokka, og ekkert ráð er örugg- ara til að viðhalda hvoru tveggja en aðdáun einhvers karlmanns. Ef konan þín er 1 þessum ham, þá er sannarlega eitthvað bogið við hjónaband ykkar — og þú ert læknirinn, sem getur kippt öllu í lag. Eftir þeim bréfum að dæma, sem mér berast, eru erfiðleikar í sambandi við tengdafólk þriðja veigamesta ástæðan fyrir hjóna- skilnuðum. Venjulega er það móðir eiginmannsins, sem aðal háskinn stafar af. Vera má, að það sé af því, að móðir virðist telja sig eiga meiri ítök í syni en dóttur. Hún gérir sér ljóst, að sá dagur muni renna upp, er hann kvænist. Hún vonar líka, að hann geri það og að kónan hans verði af því tagi, að hún geti sjálf látið sér þykja vænt um hana. En þegar sá dagur rennur upp, að hann flyzt að heiman, finnur mörg móðirin sárt til þess, að hún skuli þurfa Talið er að milli sex og sjö hundruð íslendingar hafi safnast á hinni undurfögru grasflöt kringum Friðarbogann í Blaine, Wash., á suniludaginn 28. júlí, en þá var haldinn þjóðminningardagur þeirra landa vorra, sem dvelja ,í nyrðri bygðum Kyrra- hafstrandarinnar, alt frá Bellingham, Wash., til Vancouver, B.C. Margir voru þar einnig staddir úr f jarlægri héruðum. Á myndirttii að ofan eru þeir menn; sem veittu þessum mannfagnaði forstöðu, ásamt ræðumanni dagsins, séra Valdimar J. Eylands. Nöfnin eru sem hér greinir, frá vinstri til hægri: Jakoib Westford, Bellingham; (V. J. E.); Andrew Danielson, forseti dagsins; séra Allbert Kristjánsson, Blaine; Elías Elíasson, Vancouver, og Stefán Eymundsson, Vancouver. Fremri röð: Jóhann Straumfjörð, Blaine; Leo Sigurdson, Vancouver; H. Sigurður Helgason, tónskáld, Blaine; Bjarni Kolbeins, Vancouver; Einar Haralds, Vancouver; Björn Ásmundsson, Bellingham; og Hálfdán Thorláksson, ræðismaður íslands í Vancouver. að veita annarri konu hlutdeild í syni sínum. Maður, sem er ávaldi tveggja þeirra kvenna, sem honum þyk- ir vænzt um, á ekki sjö dagana sæla. Honum er það ljóst, að hann á sér nægilegt hjartarúm fyrir þær báðar — en gera þær sér það ljóst? í fyrsta skipti, sem kastast tekur í kekki með tengda- móður og tengdadóttur, vill hann helzt draga sig 1 hlé og láta þær útkljá deiluna sín á milli, sem auðvitað færir hvorugri þau málalok, að við sé hlítandi. Eig- inmaður, sem stendur í slíkum sporum, getur stuðlað mjög að því að varðvefta heimilisfriðinn. Honum er ílófa lagið, að fullvissa konu sína um, að hann skilji gerla tilfinningar hennar og hafi fyllstu samúð með henni. Jafn- vel þótt honum kunni að sýnast svo, sem móðir hans hafi ávallt á réttu að standa, getur hann reynt að setja sig í spor konu sinnar og hjálpa henni til að sigrast á örðugleikunum með jafnaðargeði. En ef hann rýkur á dyr með þessum orðum: “Get- urðu ékki verið almennileg við hana mömmu,” er öllum aðiljum háski búinn. Fyrst mun kona hans og því næst móðir hans krefja hann drengskapar og holl- ustu. Hann getur verið þeim báð- um hollur, ef hann vill, og auð- sýnt báðum samúð, en látið “rétt” hvorrar um sig liggja milli hluta. Hins vegar má hann als ekki skjóta sér undan örðugleik- unum og telja þá sér með öllu óviðkomandi. Þeir koma honum sannarlega við og krefjast allrar þeirrar þolinmæði, sem hann á sér. Mjög vitur eiginkona finnur sjálf lausn á þessu vandamáli, en sú lausn finst fyrr, ef konan finn- ur, að hún nýtur í því efni sam- úðar manns síns. 1 atvinnulífi sínu velur mað- urinn sér félaga er á sér bæði verkhæfni og reynzlu til jafns við hann sjálfan. Þetta gerir hann til þess, að fyrirtæki þeirra megi farnast sem bezt. En ekki er þó kona hans síður samstarfs- maður hans. Hún verðskuldar sannarlega engu síður heilhuga trúnað hans en atvinnufélagi hans. Hún á rétt á að fylgjast með því, hve miklar tekjur hans eru og hvernig þeim s'kuli varið á skynsamlegan hátt. Hvernig getur eiginmaður vænst þess, að kona hans fari viturlega með fjármuni, ef hann skamtar henni altaf peninga til heimilisþarfa með þessum orð- um: “Eyddu nú ekki öllu þessu!!’ Hagsýn kona er hverjum eigin- manni mikil blessun, og ef hann ræðir fjárhagsmál sín við hana sem jafningja sinn, mun hún gera sér það að metnaðarmáli, að fara skynsamlega með tekjur hans og verja þeim miklu vitur- legar heldur en ef hann með- höndlaði hana í þeim efnum eins og hún væri tíu ára gamalt barn, en tryði henni þó fyrir að ann- ast fjármál heimilisins. Flestar konur skjóta við og við undan smáfjárhæð, til þess að geta keypt fyrir hana óvænta gjöf til þess að gleðja með eiginmenn sína, En ef þeir fleygja aitaf í þær afskömtuðum peningum, rétt eins og þær væru sendisvein- ar, og segja þeim um leið, hvað þær eigi að kaupa fyrir þá, móðg- ast þær að sjálfsögðu og geta af þeirri orsök tímunum saman alið í brjósti sér óánægju, sem menn þeirra uppgötva ekki fyr en seint og síðar meir, hvernig til er komin. Hamingjusömustu heimilin eru þau, þar sem faðirinn tekur jafn- mikinn þátt í uppeldi barna sinna og móðirin. Það er ekki nóg að segja við börnin: “Eg hefi engan tíma! Farðu til hennar mömmu þinnar!” Þetta eru þó synir þín- ir og dætur, ekki síður en kon- unnar þinnar, og þegar börnin stækka, verður þú hreykinn af þeim. En til þess hefir þú lítinn rétt, eiginmaður góður, ef þú hefur aldrei skift þér af þeim, meðan þau voru lítil, aldrei gert þeim skiljanlegt, að pabbi var fé- lagi þeirra, sem hafði tíma til að hlusta á hugamál þeirra, þegar hann kom heim á kvöldin, í stað þess að grúfa sig ofan í frétta- blöðin. Börnin þörfnuðust föð- ur, sem skildi, hve mikilvæg .á- hugamál þau áttu sér og ræddi við þau um það, sem gagntók hugi þeirra. Sérhvert barn þarfn- ast feðra sinna, svo að þeir verði eigi einungis “mammudrengir.” Þeir þarfnast karlmannlegra fyrirmynda. Það er ekki rétt af karlmanni að kvænast stúlku, demba henni síðan inn á heimili, eiga með henni eitt eða tvö börn, til þess að öruggt sé um, að hún hafi ávalt eitthvað til að vastra við allan liðlangan daginn, og líta svo þannig á, að eiginmanns- hlutverki sínu sé þar með lokið. Það er um hjúkspa eins og allan annan félagsskap, hann blessast hvorki né fer út um þúfur af sjálfu sér. Hvort tveggja krefst atbeina hlutaðeigandi hjóna. Og svo að lokum þetta: Hjóna- 'bandið er fyrirtæki eiginmanns- ins. Ef honum er það jafn hjart- fólgið og hann lætur í veðri vaka, mun hann rækja það af sams konar áhuga og fórnfýsi, sem hann helgar starfi sínu. Menn geta skipt um störf og starfsfé- laga, ef þörf krefur, en að slíta samvistum við konu sína er eitt- hvert það dapurlegasta tiltæki, sem hugsast getur. Það er sann- kallað neyðarúrræði. —(Samtíðin.). “THE STANDARD” Blaðið Montreal Standard, 7. september, flytur grein um ís- lendinga, og bygð þeirra í Nýja Íslandi, ásamt fjölda mynda af íslendingadeginum, af húsum, verkfærum og mönnum. Dálít- illrar ónákvæmni kennir í grein þessari, en yfirleitt er hún vin- gjarnleg. GRIKKIR HALDA TRYGÐ VIÐ KONUNG SINN Þjóðaratkvæði greiddu Grikkix um það á laugardaginn var, hvort að þeir í framtíðinni skuli hafa lýðveldis eða konungsstjórn, og urðu konungssinnar miklu fjöl- mennari. Segja blöðin að um miðnætti á sunnudaginn hafi at- kvæðin staðið þannig: Með kon- ungsstjórn 509,577; með lýð- stjórnar fyrirkomulagi, 240,522 atkvæði. Kosningin var nokkuð róstusöm, 18 menn voru drepnir kosningadaginn, en alls gegnum kosningahríðina voru 40 menn drepnir. Þessi kosningaúrslit á Grikk- landi meina að George II Grikkja konungur sem í útlegð hefir ver- ið á Bretlandi síðan 1943, að Þjóðverjar óðu inn á Grikkland, fer aftur heim í ríki sitt. Útvarp Rússa sagði á sunnu- dagskveldið að kosningarnar á Grikklandi hefðu farið fram undir konunglegu og fasista of- beldi með útlent hervald í land- inu. Bretar hafa eftirlits her- menn á Grikklandi. Til Aþenu kom og fyrir kosningarnar flug- vélaflutnigsskipið Franklin D. Roosevelt og 123 flugvélar voru á sveimi yfir höfuðborg Grikkja kosningadaginn, og var það gjört, segja sjóflota leiðtogar Banda- ríkjanna, samkvæmt ósk stjórn- arinnar á Grikklandi.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.