Lögberg - 05.09.1946, Blaðsíða 8

Lögberg - 05.09.1946, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. SEPTEMBER, 1946 Or borg og bygð Wanted September, superior type girl or Woman for general housework. Evenings and two half days a week free. Apply by writing to Miss Eva Clare, 207 Academy Road, Winnipeg. ♦ Stúkan Skuld heldur tombólu 'þann 14. október. Nánar auglýst síðar. ♦ Karlakór Reykjavíkur í Winnipeg Nú er ákveðið að Karlakór Reykjavíkur komi til Winnipeg í Nóvember mánuði næstkom- andi. Syngur kórinn hér tvisvar, á mánudagskvöld 18. og þriðju- dagskvöld 19. nóvember. Fyrst lengi leit svo út að kórinn mundi verða hér aðeins fyrra kvöldið, en allir, eða nær allir aðgöngu- miðar eru seldir fyrirfram fyrir það kvöld föstum áskrifendum Celebrity Concert Series En fyrir milligöngu stjórnarnefndar Þjóðræknisfélagsins, og tilhlut- un Mr. Fred M. Gee, sem stjórn kórsins hefir með höndum hér á slóðum, hefir það heppnast að ráða kórinn fyrir aðra samkomu á þriðjudagskvöldið. Ættu allir söngelskir íslendingar í Winni- peg og nærlendis þannig að eiga kost á því að hlusta á þessa ágætu söngmenn í Winnipeg Audito- rium, þann 19. nóvember. -f Fimtudaginn, 29. ág., voru þau Friðþjófur Edward Snidal, frá Steep Rock, Man., og Kristjana Jónína Fjeldsted, að Lundar, Man., gefin saman í hjónaband á heimili Mr. og Mrs. G. F. Good- man, á Lundar, af séra Rúnólfi Marteinssyni. Þau voru aðstoð- uð af systkinum brúðarinnar, Mrs. G. F. Goodman og Mr. Egg- ert Vigfúsi Fjeldsted. Mrs. Jóna Matthíasson frá Winnipeg lék á piano giftingarlag og undirspil við sólósöng. Miss Ingibjörg Bjarnason, einnig frá Winnipeg, söng tvo einsöngva: Heyr börn þín, Guð faðir,” og “The Lord’s Prayer.” Allstór hópur vandamanna og annara vina, frá Lundar, Steep Rock, Winnipeg, og jafnvel sunn- an frá Duluth, Minn., var þar viðstaddur. Menn nutu vel hins ágæta veizlufagnaðar. Brúð- hjónin lögðu á stað samdægurs í skemtiferð til Kenora, Ontario, og lengra austur. Heimili þeirra verður að Steep Rock, þar sem Mr. Snidal rekur verzlun. •f Séra Rúnólfur Marteinsson og frú, sem dvalið hafa 3 vikna tíma hjá dóttur sinni og tengdasyni, Mr. og Mrs. Dr. Pain í Ninette, komu til borgarinnar aftur rétt fyrir síðustu helgi. Létu þau hið bezta af veru sinni þar vestra. Veður var indælt, viðtökur á- 'gætar, ró og kyrrð ríktu þar í ríki náttúrunnar. •f Til meðlima St. Heklu l.O.G.T. Fundir hefjast aftur í stúk- unni eftir sumarfríið næsta mánudag, 9. þ. m. á venjulegum stað og tíma. -f Amelia Julius, daughter of Mrs. C. B. Julius, died at Ninette Sanitarium on Tuesday morning Sept. 3rd, after a lengthy illness (16 years in the San.). Funeral service will be held at 3.30 o’clock Friday afternoon from the First Lutheran Church. •f Kvenfélag sambandssafnaðar efnir til Silver Tea og sölu á heimatilbúnum mat í “The As- sembly Hall” hjá T. Eaton félag- inu, laugardaginn 7. sept. Á boðstólum verður, lifrapilsa, blóðmör og rúllupilsa. Vonar félagið að sem flestir noti sér þetta tækifæri að kaupa góm- sæta íslenzka rétti og drekka kaffi með kunningjum. Salan stendur frá 2.30 til 4.45 eftir há- degið. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Valdimar J. Eylands, prestur. Heimili: 776 Victor Street, Sími: 29 017. Harold J. Lupton, organisti og söngstjóri. 308 Niagara Street. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h., á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h. Söngæfingar: Yngri flokkur- inn—á fimtudögum. Eldri flokk- urinn — á föstudögum. •f Lúterska kirkjan í Selkirk — Sunnudaginn 8. september, sunnudagaskóli kl. 11. Islenzk messa kl. 7. síðdegis. Allir boðn- ir velkomnir. S. Ólafsson -f Messað að Lundar sunnudag- inn áttunda september n. k. kl. 2 e. h. H. E. Johnson. -f Gimli prestakall — Sunnudaginn 8. sept. — Messa að Árnesi, kl. 2 e. h. (S. t.). Ensk messa að Gimli, kl. 7 e. h. Allir boðnir velkomnir. Skúli Sigurgeirson. -f Lagt í Blómsveig Islenzka Landnemans — Af Mrs. Guðrúnu iohnson, 317 Carlton St., Wpg., $5.00, í minn- ingu um kæra Fósturforeldra, Lárus og Guðrúnu Björnson, landnemar á Ósi í Riverton, og eihnig minningu um foreldra, Pjetur og Friðrikku Árnason, landnemar í Árskógi í Riverton. Gefið af Stefaníu B. Magnús- son, Riverton, Man., $75.00, í minningu um ástkæran eigin- mann, Jónas Magnússon bónda á Ósi í Fljótsbygð. Einnig ástríka foreldra, Lárus Thórarinn Björn- son og Guðrúnu Stefánsdóttir, landnema í Fljótsbygð., og tengd- aforeldra, Magnús Jónasson og Guðbjörgu Marteinsdóttir, land- nemar í Fljótsbygð og Víðirbygð. Gefið af kvenfélagi “Djörfung,” Riverton, $60.00; Felix Sigmund- son, Hnausa, Man., $1.00. Gefið af Mr. og Mrs. Kristjón Finnson, Víðir, $5.00, í ástríkri minningu um föður og tengdaföður, Stein- grím Sigurdson, landnema i Víð- irbygð. Meðtekið með kæru þakklæti. G. A. Erlendson, féhirðir. -f Gefið i Minningarsjóð Bandalags Lúterskra Kvenna— Mrs. Rannveig Stefánson, Sel- kirk, $10.00, í minningu um ást- kæran son, Gísla Sigurð Stefán- son; Mrs. Kristín G. Thorgeirs- son, $10.00, í minningu um Frið- finn Kernested Jóhannson, fall- inn í hinu fyrra heimsstríði. Með innilegu þakklæti. Anna Magnússon, Box 296, Selkirk, Man. -f Ragnar lögfræðingur Ólafsson frá Reykjavík, og frú Kristín Ól- afsson, fóru alfarin frá Winnipeg flugleiðis kl. 3 s.l. sunnudag, eftir fjögra vikna dvöl, flugleiðis til Toronto, þar sem þau ætluðu sér að dvelja nokkra daga. Það- an halda þau hjón til New York, og svo heim til íslands við fyrsta tækifæri. -f Ragnar H. Ragnar og frú, frá Mountain, N. D., voru á ferð í borginni fyrir helgina. Sögðu þau allt hið bezta að frétta úr sinni bygð. The Junior Ladies Aid of the First Lutheran Church will hold their first meeting of the season on Tues., Sept. 10th, at 2.30 p.m. in the Church parlor. -f Mr. Valdi Jóhannesson frá Víð- ir P. O., Man., leit inn á skrif- stofu Lögbergs í vikunni sem leið, hress í anda og orðsnjall eins og hann á að sér. Mr. Jó- hannesson hefir rekið búskap í Víðir byggðinni um langt skeið en er nú að flytja til Árborgar, en synir hans taka við búinu. -f GIFTING. Gefin voru saman í hjónaband 1. sept. s.l., Ingvar Marinó Guð- mundson, Árborg, Man., og Pál- ína Lulu Stefánson, Gimli, Man. Brúðguminn er sonur Mr. og Mrs. S. S. Guðmundson, Árborg, og brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Valdimar Stefánson, er búa skammt fyrir norðan Gimli. Svaramenn voru Mr. og Mrs. R. Angevine, Syracuse, N. Y. Mrs. Angevine er systir brúðarinnar. Giftingin fór fram í Lútersku kirkjunni á Gimli undir stjórn séra Skúla Sigurgeirssonar. Að giftingunni afstaðinni var setin vegleg veizla á foreldra heimili brúðarinnar. Brúðurin er lærð hjúkrunarkona. Framtíðarheim- ili ungu hjónanna verður á Gimli. Undanfarandi hefir veðráttan verið hin hagstæðasta til upp- skerustarfa, samt er alluiikið af korni óþrekst enn í Manitoba og vesturlandinu. Innköllunarmenn LÖG8ERGS Amaranth, Man. ...........: B. G. Kjartanson Akra, N. Dak. ............B. S. Thorvarðson Árborg, Man ........... K. N. S. Fridfinnson Árnes, Man.................... M. Einarsson Baldur, Man................... O. Anderson Bellingham, Wash...........Árni Símonarson Blaine, Wash.............. Árni Símonarson Cavalier, N. Dak.......... B. S. Thorvarðson Cypress River, Man............. O. Anderson Churchbridge, Saisk S. S. Christopherson Edinburg, N. Dak ........... Páll B. Olafson Elfros, Sask. ..... Mrs. J. H. Goodmundson Garðar, N. Dak............. Páll B. Olafson Gerald, Sask.................... C. Paulson Geysir, Man. .......... K. N. S. Friðfinnson Gimli, Man................... O. N. Kárdal Glenboro, Man ................ O. Anderson Hallson, N. Dak............ Páll B. Olafson Hnausa, Man.............K. N. S. Fridfinnson Husavick, Man................ O. N. Kárdal Langruth, Man. John Valdimarson Leslie, Sask. Jón Ólafsson Lundar, Man.................... Dan. Lindal Mountain, N. Dak. Páll B. Olafson Point Roberts, Wash. S. J. Mýrdal Riverton, Man. ........ K. N. S. Friðfinnson Seattle, Wash. ................ J. J. Middal Selkirk, Man...............Mrs. V. Johnson Tantallon, Sask............. J. Kr. Johnson Vancouver, B.C. ..............F. O. Lyngdal Víðir, Man. K. N. S. Friðfinnson Westbourne, Man.......... Jón Valdimarson Winnipeg Beach, Man.......... O. N. Kárdal ÞEGAR ÞJER ÞURFIÐ Á PENINGUM AÐ HALDA fyrir bráðabirgða þarfir Veljið það mánaðar- borgana fyrirkomulag, sem bezt hentar. pegar pú Borgar þú fœrO til láns mánaOarlega $ 25 1 6 mánuði $ 4.25 í 12 mánuði $ 2.15 $ 50 1 6 mánuðl- $ 8.48 í 12 mánuði $ 4.30 1 18 mánuði $ 2.91 $100 í 6 mánuði $16.96 i 12 mánuði $ 8.60 í 18 mánuði $ 5.82 i 24 mánuði $ 4.43 $200 í 6 mánuði $33.92 I 12 mánuðí $17.21 I 18 mánuði $11.64 í 24 mánuði $ 8.86 MánaOarborgamimar \inni- fela bceOi afborganir og vexti. Þegar peningaþarfir kveða að, þá er einkalán á banka oft auðveldasta úrlausnin. Slík lán má endurgreiða með mán- aðar afborgunum, og upphæð lánanna er frá $25.00 og upp. Vextirnir eru ótrúlega lágir., t. d. fyrir $100.00 lán endur- borgað mánaðarlega á tólf mánuðum, setur bankinn $3.25. THE ROYAL BANK OF CANADA FRÁ FRÉTTARITARA LÖGBERGS Á ÍSLANDI (Frh. af bls. 4) Sigurgeir Sigurðsson, flutti ræðu í kirkjunni. Dómkirkjukórinn % söng, en útvarpshljómsveitin að- stoðaði. Öll lögin, er í kirkjunni vóru flutt, voru eftir Sigvalda. Þórarinn Guðmundsson fiðlu- leikari, lék einleik, en Kristján Kristjánsson söngvari, söng ein- söng. Tónlistarmenn báru kistuna inn í kirkju, en lsöknar út. Inn í kirkjugarðinn báru nokkrir vin- ir tónskáldsins kistuna. Séra Eiríkur Magnússon talaði við gröfina og Lúðrasveit Reykja- víkur lék í kirkjugarðinum. Var öll athöfnin hin virðulegasta. Tónljgtarfélagið í Reykjavík ann- aðist útförina. Mikill mannfjöldi fylgdi hinu vinsæla tónskáldi til grafar. 13. Jóhannes R. Snorrason, flugmaður frá Reykjavík, er ný- lega farinn til Canada, til þess að sækja þriðja Catalina-flugbát- inn, er hann hefir fest kaup á, fyrir Flugfélag Íslands. 14. Islendingar heiðraðir. Ný- lega hafa 8 íslendingar verið sæmdir danska heiðursmerkinu, “Kong Ohristian den X’s Friheds- medalie,” sem er veitt útlend- ingum og Dönum erlendis, er unnu málefnum Danmerkur mik- ið gagn á hernámsárunum. Þeir íslendingar. sem þessi heiður hefir verið sýndur, eru: Próf. Sigurður Nordal, Henrik Sv. Björnsson, deildarstjóri; Bjarni Guðmundsson, blaðafull- trúi; Gunnlaugur E. Briem, full- trúi; Torfi Jóhannsson, fulltrúi; Eyjólfur Jóhannsson, forstjóri; Haraldur Árnason, kaupmaður og Brynjólfur Jóhannesson, bankafulltrúi. Danski sendiherrann hér, Brun, afhenti þessi heiðursmerki með hátíðlegri athöfn í danska sendi- ráðinu, en þau eru veitt íslend- ingunum fyrir þátttöku þeirra í hinum miklu gjafasendingum héðan til bágstaddra manna í Danmörku. 15. Verðlœkkun á fiski. Sam- kvæmt tilkynningu er samninga- nefnd utanríkisviðskipta barst 1. ágúst, frá sendiráði Islands í London, lækkar verð á hausuð- um þorski og upsa, frá og með 10. ágúst að télja. Samkvæmt til- kynningu ráðsins lækkar verðið á hausuðum þorski úr 6 sh. og 5 p., í 5 sh. og 3 p. Upsi lækkar úr 4 sh. og 4 p. í 3 sh. og 9 pence. Verðið er miðað við “stone,” eða 6.35 kló. Óbreitt er verð á öðrum fiski. Verðlækkunin er 17% á þorski og 13% á upsa. TILVALIBÍ BÓKAKAUP ! Nýjar og notaðar skóláoækur til sölu fyrir alla bekki (frá 1—12) við afar sanngjörnu verði. Einnig eru til sölu flestar nýjar bækur um frjálslynd efni; þær bækur fást einnig til útláns fyrir sanngjama þóknun. THE BETTER OEE 548 ELLICE AVENUE, WINNIPEG INGIBJÖRG SHEFLEY, (Milli Fuilby og Langside) eigandi. i . , - -- HLÓMLEIKAR Karlak ór Reykjavíkur CITY AUDITORIUM CAVALIER, N. DAK. Laugardaginn 16. nóvember 1946 Klukkan 8.30 e. h. Aðgöngumiðar $2.50 og skattur að auki 50c Miðar nú til sölu hjá KRISTJÁN KRISTJÁNSON Garðar, N. Dak. Verzlunarmennlun! i Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf- ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól- arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn- um og konum fer mjög vaxandi. Það getur orðið ungu fólki til verulegra hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn- lega eða bréflega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. Snúið yður til Floru Benson. THE COLUMBIA PRESS LTD. COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.