Lögberg - 17.10.1946, Síða 1

Lögberg - 17.10.1946, Síða 1
 PHONE 21 374 *“ b^fXi* A Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21 374 áte^ o wvw^0^ sssr" ^U V£&V°*k A Compl.,. Cleaning Inslilulion 59. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 17. OKTÓBER, 1946 NÚMER 41 GJÖRVULEG BRÚÐHJÓN Mr. og Mrs. Baldur Björnson Þann 7 septemiber s.l., voru gefin saman í hjónaband á heimili Mrs. M. Anderson, 556 Jubilee Avenue, Fort Rouge, iþau Miss Jódís Elizabeth Peterson og Mr. Baldur Björnson. Séra Valdimar J. Eylarads framkvæmdi hjónavígslu-athöfn- ina. Svaramenn voru Mrs. Magnús Johnson frá Baldur, systir brúðarinnar og Thori O. Hallson. Við hljóðfærið var frænka brúðarinnar, Miss Barbara Goodman. Brúðurin er dóttiri frú Halldóru Peterson í Baldur og manns ihennar Vilhjálms Peterson ikaupmanns, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Brúðguminn er sonur Jakobs Björnssonar í Árborg og frú Björnsson, sem fyrir nokkru er látin, og er hann útskrifaður i fluglist af flugskóla Konnie Jóhannessonar. Heimili ungu hjónanna verður í Árborg. FRIÐARÞINGIÐ í PARÍS í gær var frestað friðarþing- inu í París eftir alllangt þóf og togstreitu milli hinna ýmsu að- ilja, sem naumast er ástæða til að undrast yfir, Iþar sem svo margar og sundurleitar skoðanir voru að veriki. Uppkast að frið- arsamningu mvið ítalíu, Rúmen- íu, Ungverjaland, Búlgaríu og Finniland, var afgreitt, þrátt fyr- ir nokkura mótspyrnu af hálfu rússnesku erindrekanna. Utan- ríkisráðherra Belgíu var sáró- ánægður með friðarsamninginn við Itali, er hann taldi langt of strangan og grundvallaðan á hefndarhug. Erindrekum Banda- ríkjanna þótti og gengið helzti nærri Finnum með samningsupp- kastinu við þá. ♦ ♦ ♦ STJÓRNARSKIPTI Á ÍSLANDI. Síðastliðinn fimtudag flutti dagblaðið Winnipeg Free Press þá fregn eftir fréttastofu Reut- ers, að forsætisráðherrann, hr. Ólafur Thors, hefði ibeiðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, en að forsetinn, hr. Sveinn Björnsson, héfði jafnframt æskt þess að hann færi með völd þangað til að nýtt ráðuneyti yrði myndað. Lausnarbeiðni ráðuneytisins stafar sennilega af ágreiningnum sem reis á Alþingi vegna leigu- samnings milli Bandaríkjanna og Islands um Keflavíkur flugvöll- inn; þykir sýnt, að ráðherrar kommúnista hafi sagt sig úr stjórninni. Bein Jónasar Hallgríms- sonar flutt heim. Fyrir atbeina íslenzku ríkis- stjórnarinnar fór prófessor Matt- hías Þórðarson til Danmerkur í loik ágústmánaðar síðastliðins með það fyrir augum, að leita að legstað Jónasar skálds Hall- grímssonar í Kaupmannahöfn og flytja heim jarðneskr leifar hans; ver'kefni þetta reyndist prófessor Mattlhíasi tiltölulega auðvelt; bein Jónasar eru nú komin heim, og munu eiga að samlagast móð- urmoldinni í þjóðgrafreitnum á Þingvöllum, þar sem Einar Bene- diktsson skáld, var jarðsettur fyrstur manna. ♦ ♦ ♦ KJÖTSKORTUR í BANDARÍKJUNUM Eins og vitað er, fara fram kosningar til þjóðþingsins í Washington í næstkomandi nóv- embermánuði; er kosningaundir- búningur þegar hafinn og sóttur af miklu kappi; það flýgur fjöll- unum hærra, að kosningabarátt- an muni snúast að miklu leyti um þann alvarlega kjötskort, sem þjóðin á við að búa um þess- ar mundir, og er nú svo komið, að allir kenna öllum um alt; þó er svo að sjá af blaðafregnum, að Demokratar muni bíða mestan hnekki af völdum þess ástands, sem nú ríkir, og að slíkt muni bitna allmjög á Truman forseta, sem forustumanni Demokrata flobksins. Og nú berast fregnir um það, New York, risaborgin austur við hafið, sé svo að segja kjötlaus. GRYNT Á SKULDUM Walter A. Tucker, sambands- þingpiaður fyrir Rosthern kjör- dæmið í Saskatchewan, sem flutt hefir nokkurar ræður til stuðn- ings við Mr. Wood frarabjóðanda Liberal flokksins í Portage la Prairie kjördæmi, ’lét þess getið í einni ræðunni, að telja mætti víst að sambandsstjórn strikaði út all vænnlegan hluta af þeim skuldum Sléttufylkjanna, sem stöfuðu frá kreppuárunum, og mikill fjöldi fólks vegna atvinnu- léysis þurfti á aðstoð þess opin- bera að halda. Upphæðir þær, sem sambands- stjórn lánaði Sléttufylkjunum vegna atvinnuleysis, skiptust þannig: Manitoba—$24,734,452; Saskatéhewan, $80,451,852; Al- berta, $25,887,500. ♦ ♦ ♦ Farið fram á hækkuð v Flutningsgjöld Jámbrautarfélögin í Canada hafa farið fram á það við járn- brautarmála nefndina í Ottawa, að fá flutningsgjöld hækkuð um 30 af hundraði; undanskilin hækkuninni eiga að vera kol og coke; hverjar undirtektir járn- brautarmálanéfndarinnar verða, er vitanlega á huldu, þó litlar líkur séu á, að 'hún gangi greið- lega að þeirri geisihækkun, sem hér um ræðir; en um hitt varða naumast skiptar skoðanir, að fólkið í vesturlandinu mótmæli þessari fyrirhuguðu hæk’kun, og er þess að vænta, að vestan þing- mennirnir taki eindregið í sama streng. Margir líta svo á sem nú sé miklu fremur ástæða til að lækka flutningsgjöld mað jórnbraut- um landsins, en hækka þau. ♦ ♦ * EKKI MYRKUR í MÁLI Sumner Welles, fyrrum að- stoðar utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hefir nýlega samið bók, sem heitir “Where are we Head- ing,” og er þar þunglega veitzt að núverandi utanríkisráðherra, Mr. Byrnes, og Truman forseta, fyrir það, hvað þeir séu reikulir í ráði varðandi meðferð utanríkismál- anna; ber Mr. Welles þeim á brýn andlegt ístöðuleysi og telur þá standa á öndinni vegna óttans við Rússa og vita svo hvorki til hægri né vinstri. + ♦ ♦ STRÍÐSÓTTI ÁSTÆÐULAUS Mr. M. J. Coldwell, foringi C.C.F. flokksins flútti í fyrri vilku ræðu í Erppire klúbbnum í Winnipeg, þar sem hann lýsti yfir þeirri yfirveguðu skoðun sinni, að ótti við nýtt heimsstríð væri á þessu stigi öldungis á- stæðulaus; hann kvaðst ekki geta hugsað sér stríð við Rússland, enda væri innbyrðisástandið þar s'líkt, að þjóðina skorti með öllu bolmagn til árásarhemaðar; enda litlar líkur á að hún hefði slíkt í huga. Mr. Coldwell kvaðst dauftrú- aður á það, að takast myndi að útiloka atomorkuna frá hernaði með lögum, því þegar í óefni væri komið og Iþjóð horfði fram á ósigur, gripi hún jafnan til hvers konar örþrifaráða, er hendi væri næst. NÝR SAMNINGUR Landbúnaðarráðherra sam- bandsstjórnarinnar, James G. Gardinar, hefir kunngert, að samningur hafi verið undirskrif- aður milli brezkra og Canadiskra stjórnarvalda, um það, að Bretar kaupi í Canada alt það nauta- kjöt er flytja megi út næstu tvö árin; er áætlað að slíkt kjötmagn nemi 240 miljónum punda; samn- ingur þessi er sagður að vera einkar hagstæður fyrir Canad- isku þjóðina. ♦ ♦ ♦ Sextán ára fangelsi. Júgóslavneski erkibiskupinn Alojzye Steþhinac, sem sakaður var um samstarf við Nazista og andspyrnu gegn Tito hershöfð- ingja og núverandi forsætisráð- herra í Júgóslavíu, hefir verið dæmdur til sextán ára fangélsis- vistar; hafði mál hans staðið lengi yfir fyrir dómstólunum, og virtist það nokkurnveginn al- mennt álit, að hann vrði dæmdur til dauða; en nú er sagt, að áhrif frá páfa hafi ráðið úrslitum. ♦ ♦ ♦ Uppskerubrestur Alvarlegur uppskerubrestur varð víðsvegar á Bretlandi í haust vegna þráláts steypiregns, er svo var magnað, að einstætt er talið í sögu brezku eyjanna. ♦ ♦ ♦ AFTAKAN í NUERNBERG- Síðastliðinn þriðjudag fór fram aftaka Nazistaforingja tíu, sem fundnir höfðu verið sekir um ó- teljandi viðbjóðslega glæpi í síð- ustu heimsstyrjöld og í raun og veru friá upphafi þess óheilla- tímabils, er Hitler komst til valda á Þýzkalandi; elllefta stríðsglæpa- manninn, Hermann Goering, þurfti ekki að hengja; hann hafði tékið inn eitur og látið þannig líf sitt, tveim klukkustundum áður en aftakan skyldi fara fram; hvernig hann kornst yfir eitrið þrátt fyrir hina ströngu gæzlu, þykir svo mikið furðuefni, að þriggja manna rannsóknarnefnd hefir verið sett í málið. ♦ ♦ ♦ Karlakór Reykjavíkur. Með þessu blaði Lögbergs er send tilkynning um söngsam- komur Karlakórs Reykjavíkur í Winnipeg, dagana 18. og 19. nóv- ember n. k., ásamt söngskránni. Mynd af samkomu salnum og verð á hinum ýmsu pörtum hans. Þetta er sérstaklega gjört til þess að gefa fólki í byggðum ís- lendinga í Manitoba og annar- staðar 'kost á að panta bréflega sæti í salnum, sem rúmar meira en fimm þúsund manns, á þeim stöðum er það kýs sér, og er það gjört til þoss að fólk utan Winni- peg hafi sama valrétt á sætum í salnurn og þeir sem í Winnipeg búa. Sala aðgöngu miðanna til almennings hefst 25. okt. n.'k. og verða þau seld á skrifstofu Celeb- rity félagsins, sem er í búð Winni- peg Piano Co., 383 Portage Av- enue. Engir aðgöngu miðar verða seldir fyr en 25. þ. m. Bréja pöntunum utan Winni- peg aðeins veitt móttaka. 1 sambandi við þessa aðgöngu- miða sölu er aðallega að ræða uim 19. nóvember. Flytur guðsþjónustu Séra S. O. Thorláksson, frá Berkeley, Cal., flytur prédikanir í Fyrstu lútersku kirkju á sunnu- daginn kemur, 20. okt. bæði við ensku messuna kl. 11, og síðdegis guðsþjónustuna kl. 7. Séra Octavius er á heimleið frá Cleve- land, Ohio, þar sem 'hann sat þing United Lutheran Church in America. DR. BECK AÐ VERKI , Tímaritið “Nordmanns-F or- bundet”, málgagn allsherjar fé- lags Norðmanna víðsvegar um lönd, sem gefið er út í Osló, flyt- ur í ágúst-hefti þessa árs einkar lofsamlega frásögn um starf dr. Richard Beck í þágu Noregs á stríðsárunum, og farast þannig orð: “Dr. R. Beck, prófessor í Norð- urlandamálum og bókmentum við ríkisháskólann í N. Dakota, innti á stríðsárunum af hendi margþætt starf í þágu Noregs, með margvíslegum nefndarstörf- um, með ræðum sínum og fyrir- lestrum um Noreg, og með grein- um um norsk efni í blöðum og tímaritum.” Getur ritið þess síðan, að dr. Beck hafi verið ritari nefndar þeirrar í Grand Forks county, sem vann að fjársöfnun Norð- mönnum til styrktar (Norwegian American Relief), og telur síðan upp fjölmargar aðrar nefndir varðandi Noreg og heimsóknir norskra forystumanna, sem hann hafi átt sæti í, oftast sem for- maður eða ritari. Þannig var hann ritari undirbúningsnefndar að komu Ólafs ríkiserfingja og Mörfchu krónprinsessu til Grand Forks 1941 og formaður nefndar þeirrar, sem undirbjó þar heim- sókn Morgenstierne sendiherra Norðmanna í Washington. Ennfremur segir í greininni: “Á stríðsárunum flutti dr. Beck mi'lli 50 og 100 ræður og fyrir- lestra um norsk efni, norskar bókmentir og menningu, en sér í lagi um frelsisbaráttu Norð- manna bæði heimafyrir og ann- arsstaðar og um skerf Noregs til stríðssóknar Sameinuðu þjóð- anna. Voru ræður þessar flutt- ar á norsku og ensku á samkom- um víðsvegar og mörgum þeirra víðvarpað. Hann ritaði einnig á stríðsárunum margar greinar um Noreg og málstað Noregs í ame- rísk, norsik-amerísk og íslenzk blöð og tímarit. Eina af greinum þessum tók Harold Hagen þjóð- þingmaður upp í ræðu í þjóð- þingi Bandaríkjanna og var hún prentuð í þingtíðindum þess (“Congressional Record”).” Loks er þess getið, að dr. Beck hafi einnig skrifað ritdóma í amerísk blöð og tímarit um margar 'hinar merkustu bækur um Noreg og frelsisbaráttu Norð- manna, sem út komu á stríðsár- unum. LEITAR ENDURKOSNINGAR Garnet Coulter Mikill sægur kjósenda hefir skorað á núverandi borgarstjóra í Winnipæg, Garnet Coulter, að bjóða sig fpam á ný við bæjar- stjórnarkosningarnar, sem haldn- ar verða í næstkomandi nóvem- ber mánuði, og hefir hann nú orðið við þeim áskorunum. Mr. Coulter hefir reynzt stöðu sinni ágætlega vaxinn, og sýnist því í rauninni flest mæla með því, að hann yrði kosinn gagnsóknar- laust. Enn er hvergi nærri að fullu vitað um framboð til bæj- arstjórnar og skólaráðs í hinnum ýmsu kjördæmum borgarinnar. EINAR PÁLL JÓNSSON Esjan heilsar — árin mörgu eru gleymd og sérhver raun. Einari Páli og Ingibjörgu enginn kysi fegri laun. Stafar sól á sundin bláu signir Vík og Kollafjörð, þar sem œskuleiðir lágu, Létt skal stíga á fósturjörð. Norður, yfir hcestu heiðar, hauður lyftir glaðri brá. Nú eru allar götur greiðar, gróður efstu fjöllum á. Þeysa skal með þrjá til reiðar, þjóð og land að skoða og sjá; vísa glöggt til vaðs og leiðar vonir, minni og bernskuþrá. Ámi G. Eylands. 15.-8. 1946. Símkveðja til dr. Sigurðar Nordals. (Send i tilefni af sextugsafmæli hans 14. sept. 1946). Heiður þér sextugum, Sigurður snjall, sóknglaði landnemi bókmennta- heima. Þökk fyrir víðsýn af vizkunnar fjalli, vestrænu frændurnir eigi þér gleyma. Richard Beck. ATVIKAVÍSUR SÓLSKIN SBLETTIR Oft eg misti takið taums, tæp er gisting víðast; samt við listir l'ífs og glaums, lifi’ eg fyrst og síðast. Á PICNIC Þó að Art’s sé óþjál drós, er það vart að meini: Eðlis bjart hans brennur ljós, bezt í hjartans leyni! Smb. Mt. 5: 27-32. KYRSTÖÐUR Vanans standa fipuð flón, fölsk eru handa-verkin. Látum andann öðlast sjón, yfir landamerkin. Pálmi.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.