Lögberg - 17.10.1946, Síða 3

Lögberg - 17.10.1946, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. OKTÓBER, 1946 Íslenzk þjóðrækni Tveimur nýjum deildum hefir verið bætt við Þjóðræknisfélag- ið, nú nýlega. Kannske (þá ekki úr vegi að spyrja sjálfa sig: hversvegna að vera að útbreiða þjóðræknis- staifsemina. Einfaldasta svarið, að benda á, að ef Þjóðræknisfé- lagið á að liifa, verður það að vaxa. Það er svo bágt að standa í stað, það er ekki einungis bágt, það er ómögulegt. Það ér engin kyrstaða til því annaðhvort fer manni og félagsheildum aftur eða fram. Framförin er líf en afturförin dauði. Já, en því þarf Þjóðræknisfélagið endilega að lifa, er þess annars nokkur þörf. Þannig spyrja ýmsir og sumir þeirra svara því neitandi. Þeir fulllyrða meir að segja, að öll slík þjóðræknisstarfsemi vissra þjóð- brota, sé til óheilla fyrir Banda- ríkin og Canada. Þessi þjóðbrot eigi að renna saman í eina heild, sem allra fyrst og gleyma ætt sinni og erfðakenning. Já, en inn í hvað eiga þau a,ð renna, einkum hér í Canada? Landið er að vísu ágætt, með óvenju'lega góð framtíðar skil- yrði, en það er ennþá ungt og á sér litla sögu. Quebec á sér fransk-fcaþólska menningu, sem ex* að vísu notok- uð einhæf og gamaldags. Ontario og austurfylkin búa við innflutta enska menningu, sem virðist líka nokkuð stirðnuð, og stígur naum- ast í takt við framförina heima á Bretlandi. Nú gætu sjálfsagt þjóðbrotin í Vesturlandinu reynt að tileinka sér aðrahvora þessa menningu; eg segi, reynt, því eg er nú ekki . svo alveg viss um, að þetta yrði nema mislukkuð tilraun. Menn og þjóðir geta nefnilega ekki af- klæðst sinni þjóðmenningu svo auðveld'lega á fáum árum og kannske heldur ekki á fáum öld- um. Áður en lengra er farið væri kannske bezt að gera sér grein fyrir því, hvað menning er og skilgreina hana. Eg ætla að leyfa mér að tilfæra orðrétt umsögn eins af beztu sagnfræðingum Breta um menn- ingu og framfarir: — “Truly great advances in the progress of civilization are based on something far deeper than logic or reason. This basic quality is inherent in the very heart of mankind. It is bodied in a collection of memories and intense desire to retain these memories. The ohief means through which they are handed down from generation to genera- tion are tradition and literature. They reflect the life of all times and enshrine past glories in the heart of the present age. By Brown Landone in the Civilization and Art., Vol. IV, page 16. Þýðing:—“Vissulega er menn- ingarþroski þjóðanna grurudvall- aður á einhverju djúpstæðara en skynsemi og rökfærslu. Rótin geymist í sjálfu hjarta mann- kynsins. Það er innifalið í end- urminningunum og lönguninni að varðveita þær minningar. Aðallega eru þær verndaðar frá kyni til kyns með æfisögnum og bókmentum (þjóðanna). Þær uppljóma fortíðina og forna frægð í hjarta lifandi lýða.” Eðlilega á hin unga canadiska þjóð fáar endurminningar um glæsilega fortíð og enn sem kom- ið er hefir ihún verið altof önn- um kafin, við að nema og rækta landið, til að gefa sig mjög að bókmentum og naumast um þjóðleg fræði að ræða þótt vott- ur til hennar sé nú rétt að byrja að þróast í jarðvegi hins unga lýðveldis. Flestir líta svo á, sem annars hafa nokkuð verulega um málið hugsað, að þessi sjálfstæða þjóðmenning eigi að vera þjóðleg og spretta upp af samruna þeirra menningarverðmæta, sem hinir mismunandi þjóðflokkar fluttu til landsins. Auðvitað tekur það nokkurn tíma, að mynda þann samruna en hin uppvaxandi menning verður því fjölbreyttari og þroskavænlegri því fleiri frjófgandi straumar sem falla frá uppsprettum fleiri þjóðmenninga um andans akurdendi þessarar ungu en bráðþroska þjóðar. Þá verður 'líka hin upprennanidi canadiska menning sérstæð og þjóðleg, með tímanum, en ekki bara bleikur og rótslitinn viðar- teinungur frá brezkum eða frönskum stofni. Ótal dæmi, úr sögu þjóðanna, sýnir að samruna menning er æfinlega heilladrýgst á hamingju vegi þeirra. Hin brezka menning sjálf er gott idæmi um það. í elztu fyrnd sögualdarinnar bygðu Keltar Bretlandseyjar og áttu sína menningu sem var að .mörgu merkileg en einhæf samt. Síðar komu innrásirnar ein af annari: Rómverja, Dana, Saxa og að lok- um hinna frönsku-mælandi Normandkr-búa. Hver og ein af þessum innrásar þjóðum juku nokkuð við hina frumstæðu Drúiða menning, og einmitt þess- vegna urðu Bretar slíkir forvígis- menn í andlegri og stjórnarfars- legri þroska-sögu Vestunlanda. Við íslendingar fluttum með okkur bæði aldna og unga þjóð- menningu. Þá þjóðmenningu viljum við leggja á borð með oikk- ur í landnáminu nýja, og það má vera merkileg blindni, sem neit- ar því að elzta lýðveldisþjóðin í Vesturlandinu geti ekkert borið á borð með sér hér í álfu. Ung þjóð getur lært mikið af hinni löngu, stríðu en sigursælu lífs og frelsisbaráttu íslenzku þjóðarinnar. Jón Sigurðsson, og enda fleiri fðrsvarsmenn íslend- inga gætu og ættu að verða öll- um heiminum til fyrirmyndar. Samvinnuhreyfingin gæti orðið ókkur til leiðbeiningar, því í henni eru hinar amerísku þjóðir næsta fákunnandi.. Hin stór- merkilega vakning, sem orðið hefir heima, bæði í andlegum og verklegum efnum, gæti og ætti að 'hvetja aðrar og stærri þjóðir til ennþá stærri afreka á sam- vinnu grundvelli. Vorar fornu bókmentir varpa ljósi á fortíðar- líf og menningu, ekki einungis Skandinava heldur og einnig íra og Breta, á líf og menningu frumfeðra a'llra hinna norrænu og vestrænu þjóða. Tæpast gæt- um við gert Canada og enda Bandaríkjunum meira gagn en með því að kynna þeim vora ætt- rænu menningu og flytja lífs- magn hennar inn í hina ame- rísku þjóðlífsstrauma. Það hefir líka sýnt sig, svo ekki verður hrakið, að þá lögðu íslendingar til mannval mest til uppbyggingar í Vesturálfu, þeg- ar unglingarnir voru upaldir við aringlæður vorrar arfateknu menningar. Hér um bil a'Ilir hinna ágætustu íslendinga í Ameríku, voru uppaldir á hinum íslenzkustu heimilum í hinum íslenzkustu sveitum á landnáms- öldinni. Þeir sköruðu þá mest fram úr öðrum í skólunuim og þeir hafa síðan skarað mest fram úr öðrum í lífinu. Þessvegna ber okur að fagna þegar nýjar deildir í Þjóðræknis- félaginu eru stofnsettar eins og nú varð á Lundar og Hayland. H. E. Johnson. Kosning í Pontiac Það kom eins og þruma úr ueiðskíru lotti að Social Credit umsækjandinn hefði unnið auka- kosninguna í Pontiac-kjördæm- inu í Quebec, 16. septertíber síð- astiiðinn. Þetta kom svo íiatt upp á fólk vegna þess að blöðin sýnast fylgja þeirri stefnu að flytja sem allra minstar fréttir um Social Credit. Liberal kandídatinn vann kosn- inguna 1945 með 7,000 atkvæða meirihluta. I þetta sinn hafði riocial Credit um 1,000 meiri- hluta, eftir síðustu fréttum. Sá sem sótti var ungur maður, að- eins 29 ára gamall, en afbragðs vel máli farinn. Social Credit sinnar í Qubec nafa verið að búa sig undir kosn- ingar í sjö síðastiiðin ár, og ur- slitin voru ekki undraverð hjá þeim, sem voru þess meðvitandi. Réal Caouette sótti um síðustu kosningu í Quebec (1945) og fékk 6,000 atkvæði, en nú bætti hann við sig yfir 4,000 atkvæðum, — nóg til að bera sigur úr býtum. Biöðin yfirleitt gera sér mikið far um að skýra þetta svo það líti ekki of illa út fyrir gömlu flokkana. Sumir halda því fram að það hafi verið maðurinn en ekki stefnan, sem vann kosning- una. Aðrir segja að það hafi ver- ið “protest vote”. En þessir 10,- 000 kjósendur höfðu þó tækifæri til að greiða atkvæði með C.C.F. eða kommúnis.tum, en gjörðu það ekki. C.C.F. fékk aðeins yfir 1700 atkvæði og kommúnistar eitthvað yfir 400. Sannleikurinn er að kjósendur í Quebec hafa gert sér far um að kynna sér Social Credit stefn- una, og það getur ávo farið að þessfr 10,000 kjósendur greiði aldrei aftur atkvæði með gömlu flokkunum. Þar að auki er mjög líklegt að fleiri sæti í Quebec fard með tímanum á sömu leið — og ekki einungis í Quebec, held- ur í ölllum hinum fylkjunum. Salóme Halldórson. Fred Landis þingmaður í full- trúadeild Banidaríkjaþings, þótti snemma mikill ræðumaður. Eitt sinn var hann beðinn um að af- hjúpa minnismerki yfir Abra- ham Lincoln og hóf ræðu sína við það tækifæri með þessum orðum: “Abraham Lincoln — þessi dul- arfulli geimur stjarna og dimmra skýja”. Setningþessi vakti miikla hrifningu áheyrenda. Er Landis hafði lokið ræðu sinni, endurtók einn kunntngja hans setninguna og spurði hvað hún ætti eiginlega að þýða. Ladis svariaði: “Sannast að segja veit eg það ekki, en það bregst ekki, að hún veki hrifn- ingu.” Auk Bandaríkjanna, hafa níu 'lönd gefið út frímerki til minn- ingar um Franklin D. Roosevelt. Pappírs hnífur 1946 gerð pví nær allar pantanir, sem oss berast að morgni eru á leið til viðskiptavina sama daginn. HRAÐI er kjörorð EATON’S póstpantana. Jafn- vel tíminn til þess að opna póstinn hetir verið styttur með sjálfvhkum bréfaopnara. Aðferðir sem þessi flýta af- greiðslu og spara yður jafn- framt pejninga. ^T. EATON WINNIPEG CANADA EATONS ORÐSENDING TIL KAUPENDA LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU A ISLANDI: Munið að senda mér áskriftargjöld að blöðunum fyrir júnílok. Athugið, að blöðin kosta nú kr. 25.00 árangur- inn. Æskilegast er að gjaldið sé sent i pðstávisun. BJÖRN QUÐMUNDSSON, Reynimel 52, Reykjavtlc. Hugsað (ram! Látitu hreinsa öll fötin, sem þú þarft að láta heins í haust — NÚNA . . . Ágætisverk Hagnýttu þér tækifærið til spamaðar með 'því að vitja fata þinna í búðina sem næst þér er. Búðir okkar eru nú opnar frá kl. 8 f. h. til kl. 7 e. h. Perth’s 888 SARGENT AVE. Verzlunarmennlun! Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf- ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks, krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól- arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn- um og konum fer mjög vaxandi. Það getur orðið ungu fólki til verulegra hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn- lega eða bréflega, varðandi námskeið við helztu verzlunarskóla borgarinnar. THE COLUMBIA PRESS LTD. COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG Business and Professional Cards OCTOBER SPECIAL ! ! All photos taken on approval with no obligation — 4 Poses To Choose From — SPECIAL PRICES Phone or Write for Appoinimenl (JN I VCKSAL STUDICS 292 KENNEDY ST. (Jusi Norih of Poriage) — Phone 95 653 WEDDING AND BABY PHOTOS — OUR SPECIALTY DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Talslmi 95 826 HeimiUs 53 893 DR. K. J. AUSTMANN SérfrœOingur < augna, eyma, nef og kverka sjúkdóm.um. 704 McARTHUR BUILDING Cor. Portage & Maln Stofutimi: 2.00 tll 5.00 e. h. nema á laugardögum. DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur ( augno-, eyma, nef og hálssjúkdómum. 416 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 93 851 Heimasími 42 154 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. íslenzkur lyfsali Fólk getur pantaö meöul og annaÖ meö póstl. Fljót afgrreiösla. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkkistur og annEist um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. ' Skrifstofu talsiml 27 324 Heimills talsími 26 444 Phone 97 291 Eve. 26 002 J. DAVIDSON Real Estate, Financial and Insurance ARGUE BROS. LIMITED Lombard Bldg., Winnipeg Phone 31 400 Electrlcal Appllances and Radio Service Furniture and Repalrs Morrison Electric 674 SARGENT AVE. DPINCC/Í MESSENG ER SERVICE Við flytjum kistur og töskur, húsgögn úr smeerri Ibúðum, og húsmuni af öllu tæi. 58 ALBERT ST. — WINNIPEG Simi 25 888 C. A. Johnson, Mgr. TELEPHONE 94 358 H. J. PALMASON and Company Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDING Wlnnlpeg, Canada Phone 49 469 Radio Servlce Speciaiists ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON. Prop. The most up-to-d&te Sound Equlpment System. 130 OSBORNE ST„ WINNIPEG G. F. Jonasson, Pres. & Man, Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SÍMI 95 227 Wholesals Distributors of FRE8H AND FROZEN FISH Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.stj. Verzla I helldsölu með nýjan og froslnn fisk. 303 OWENA STREET Skrlfat.rtml 25 355 Heima 66 4(3 Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) Talsimi 30 877 Vlðtalstími 3—5 eftlr hádegl DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 Office Phone Rea Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 116 MEDICAL ARTS BLDO. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlæknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 96 952 WINNIPEG DR. J. A. HILLSMAN Surgeon 308 MEDICAL ARTS BLDG Phone 97 329 Dr. Charles R. Oke Tannlatknir For Appointments Phone 94 908 Offlce Hours 9—( 404 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING 283 PORTAGE AVE. Winnipeg, Man. SARGENT TAXI PHONE 34 555 For Quick Reliable Service J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG. Fasteignasalar. Ledgja hús. Út- vega penlngalán og eldsábyrgð. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. PHONE 97 538 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LögfrceOingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BO. Portage og Garry St. Siml 98 291 GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Netting 60 VICTORIA ST„ WINNIPEO Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDBOH Tour patronage will be appreclated CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distrlbutors of Fr<»h and Frozen Flsh. 311 CHAMBERS STREBT Offlce Ph. 26 328 Ree. Ph. 73 917 H H A G B 0 R G FUEL CO. H • Dial 21 331 (C.F.L. ii3J1 No. 11) 21 331

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.