Lögberg - 24.10.1946, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMíTUDAGINN 24. OKTÓBER, 1946
Or borg og bygð
DÁN ARFREGN
Björn Pálsson Isfeld, sem var
búsettur Skamt fyrir norðan
Gimlilbæ, andaðist á h'eimili sínu
16. þ. m. Hann skilur eftir sig
ekkju og fjögur börn. Útförin
fór fram frá lúterSku kirkjunni
á Gimli undir stjórn sóknar-
prestsins.
♦
Ljóðmæli Jónas A.
Sigurðsson .............$4.00
BJÖRNSSON’S BOOK STORE
702 Sargent Ave., Winnipeg.
-f
Stödd ihafa verið í bænum
undanfarandi, Mrs. S. Sigurd-
son, Oak View, Man. og Mr. og
Mrs. Gísli Hallson, Vogar, Man.
-f
Mr. G. A. Williams kaupmað-
ur 'í Hecla var staddur í borginni
á þriðjudaginn.
-f
Nýlátnir eru tveir háaldraðir
menn hér í borginni, þeir Jón
Einarsson, fyrrum búsettur að
Lundar og Kristján Kristjánsson
smiður bróðir Björns heitins
Kristjánssonar, sem um eitt skeið
var fjármálaráðherra ís'lands;
hinn fymefndi var jarðsunginn
af séra Halldóri E. Johnson en sá
síðarnefndi af séra Philip M.
Péturssyni.
-f
Mr. Oharles Thorson hinn víð-
kunni listamaður, sem unnið
hefir að kvikmyndagerð í Holly-
wood og víðar í Bandaríkjunum
um mörg undanfarin ár, og nú
síðast í Ohicago, þar sem hann
hefir unnið að fræðslukvikmynd
fyrir Bandaríkjastjóm, er ný-
kominn hingað til borgar og ráð-
gerir að dvelja hér um hríð; það
var óvænt ánægjuefni að hitta
Oharlie á Sargent Avenue á
mániudagsmorguninn nákvæm-
lega eins og hann var, er fund-
um vorum síðast bar saman fyrir
tólf árum, eða rúmlega það.
-f
Þann 19. október voru glefin
saman í hjónaband af sóknar-
presti íslenzka safnaðarins ií Sel-
kirk, að prestsheimilinu þar:
Richard Moore, Gleniboro, Man.
og Grace Helgason, Árnes, Man.
Brúðguminn er af írskum ættum,
búsettur við Glenboro. Brúðurin
er dóttir Mr. og Mrs. Guðmundur
Helgason í Árnesbygð. — Við
giftinguna aðstoðuðu Miss Donna
Hope, Wpg. og Mr. Robert Lloyd
Moore, Glenboro. Ungu hjónin
setjast að í grend við Glenboro.
-f
ÁRDÍS, ársrit Bandalags lút-
erskra kvenna (XIV. hefti) er
komið út og var Lögbergi rétt að
berast eintak af ,því frá útgef-
anda og þakkar fyrir sending-
una. Ytri frágangur virðist mjög
góður eins og vanalega. Má gera
ráð fyrir að hið sama megi segja
um efni ritsins, þó ekki hafi enn
gefist tími til að athuga það.
Vegna stóraukins útgáfukostn-
aðar sér Bandalagið sér ekki fært
að selja ritið sama verði og áður
og verður það (því nú selt fyrir
50 cents eintakið. Er til sölu hjá
Mrs. Finnur Johnson, 14 Thelmo
Mansions, Winnipeg, Man. og
hjá útsölukonum víðsvegar.
-f
Gefið í minningarsjóð Bandalags
Lúterskra Kvenna.
A friend, $10.00; í minningu um
Pétur Hallgrímsson, frá Mr. og
Mrs. S. Sigurdson, 100 Lenore
St., Winnipeg, $10.00.
Með innilegu þakklæti,
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
-f
Gefið í Blómsveigasjóð kven-
félagsins “Björk”, Lundar, $5.00,
frá Mrs. Ólafíu ísberg, Lundar,
í ástkærri minningu um látinn
eiginmann, Guðmund Isberg.
Með þakklæti og samúð,
* Mrs. G. Einarsoon,
skrifari.
Hjálmar Þorsteinsson
sextugur
Hjálmar Þorsteinnsson bóndi
og skáld, sem mörgum er að góðu
kunnur fyrir sínar góðu fer-
skeytlur, er sextugur í dag.
Við, sem höfum þekt Hjálmar
40 árin síðustu og jafnvél lengur,
getum vel efast um þennan ald-
ur hans, — og hann væri 70 ára,
því að svo langt er síðan hann
kom fyrst fram á sjónarsviðið,
sem fullþroska maður og snjall
hagyrðingur, en svo stansar þetta
við það, að í útliti er Hjálmar
unglegur, svo ungur í arida og
frár á fæti, að við hinir yngri
megum fátt um aldursmun tala,
— og er því bezt að efast ekkert
um aldurinn, og rengja hvorki
Hjálmar né okkar góða prest.
Það er ekki meining mín, sem
þessar línur rita að skrifa 'hér
langt mál um Hjálmar, en hans
vil eg þó minnast í nökkru, er
verður þó ekki í neinum eftir-
mælis stíl.
Fyrir rúmum 40 árum, er
Hjálmar var á Mosfelli í Austur-
Húnavatnssýslu, hjá fósturfor-
eldrum sínum var mikið talað
um nafn hans, því að þá var hann
slyngur glímumaður og að byrja
sem smellinn hagyrðingur.
Eg minnist ekki að hafa kynst
manni, sem var jafn vel gefinn
andlega og 'líkamlega.
Glímumaður yvar hann, sem
áður er sagt, ágætur og glímdi
svo drengilega og vel að af bar.
Aldrei hefi eg séð glímumann
sýna eins mikinn drengskap 1
glímu og Hjálmar, og fór stund-
um svo, að í harðri keppni milli
sveita, eða héraða, þótti okkur,
sem stóðum hans megin, sem
hann sýndi of mikinn drengskap,
en sem ætíð varð ekki nema
augnablik, því að dnengskapinn
hans Hjálmars varð að meta.
Svo varð Hjálmar bóndi á
Mánaskál. Þar kynti hann sig
sem mætan mann, röskan til
verka og liðtækan að góðum
málum.
Er mér mjög vel minnisstætt
mitt fyrsta verk utan heimilis
máns um 1910, að Hjálmar, Haf-
steinn á Gunnsteinsstöðum, Jó-
hann Fr. Kristjánsson húsameist-
ari og eg vorum kosnir af Ung-
mennasambandi Austur-Húna-
vatnssýslu til að sjá um bygg-
ingu sundlaugarinnar að Reykj-
um á Reykjarbraut, hvað Hjálm-
ari var það starf hjartfólgið og
gekk vel fram í því.
Á þeim árum og síðar vann
hann talsvert starf meðal Ung-
mennafélaganna, bæði í Austur-
Húnavatnssýslu og hér syðra.
Árið 1916 flytur Hjálmar, með
konu og börn, langan veg norðan
frá Mánaskál í Húnavatnssýslu
að HOfi á Kjalarnesi og kaupir
þá jörð ásamt Jörfa, og á Hofi
hefir hann búið, og nú síðustu
árin á Jörfa, sem hann hefir
byggt upp að öllu.
Þessi rúm 30 ár, sem Hjálmar
og Anna kona hans, hafa dvalist
hér syðra, hafa þau kynnst vel,
og eiga nú fjölda vina og kunn-
ingja, sem 'hugsa til afmælis-
barnsins í dag.
Öll þessi ár hefir Hjálmar unn-
ið mikið og oft haft við erfið-
leika að etja sem hann nú er
hann lítur farinn veg, má gleðj-
ast yfir að hafa yfirunnið.
Ýms störf hefir Hjálmar unn-
ið hér í sveit, svo sem í stjórn
Búnaðarfélagsins sóknarnefnd,
Lestrarfélagi sveitarinnar og
safnaðarfulltrúi og altaf verið
hinn duglegasti starfsmaður, til-
lögugóður og samvinnuþýður.
Vér sveitungar Hjálmars send-
um honum beztu ámaðaróskir á
sextugasta afmælisdaginn hans
og þökkum honum samstarfið til
þessa, sem hefir ætíð verið hið
bezta og óskum honum allrar
gæfu í framtíðinni og hans fólki.
Lifðu heill!
Ó. B.
—Mbl. 5. sept.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niagara Street.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h.,
á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h.
Söngæfingar: Yngri flokkur-
inn—á fimtudögum. Eldri flokk-
urinn — á föstudögum.
-f
0 T V A R P
Árdegis guðsþjónustunni
frá Fyrstu lút. kirkju,
Winnipeg, verður útvarp-
að á sunnudaginn kemur,
þann 27. okt. Mrs. Pearl
Johnson syngur ein-
söngva, og yngri söng-
flokkurinn verður sömu-
leiðis til aðstoðar.
-f
Lúterska kirkjan í Selkirk
Sunnudaginn 28. október:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
Islenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
-f
Árborg-Riverton prestakall
27. okt.—Víðir, messa kl. 2 e. h.
3. nóv. Geysir, messa og árs-
fundur kl. 2 e. h.; Riverton, ensk
messa og ársfundur kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
-f
Gimli prestakall
Sunnudaginn 27. október:
Messa í Árnes, 'kl. 2 e. h.; ensk
messa á Gimli kl. 7 e. h.
Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirsson.
-f
Messað að Steep Rock sunnu-
daginn þann 27. okt. n. k., kl.
2 e. h.
H. E. Johnson.
NÝJAR - GÓÐAR
ÓDÝRAR BÆKUR
Notið tækifærið og pantið þess-
ar bækur. Þær eru seldar fyrir
hálfvirði. Ekki víst að það tæki-
færi komi aftur bráðlega.
SÉRSTÖK KOSTAKAUP
Á eg að segja þér sögu,
Br. Sveinsson ..........$ 3.50
Blóðhefnd (Nýjar Sherlock
Holmes sögur) .......... 2.50
Minningar frá Möðruvöll-
um, margar myndir ...... 7.00
íslenzk annálabrot,
Gísli Oddsson........... 2.25
Þjóðsögur Ó. Daviðssonar,
I. Bindi, í bandi..... 6.75
II. Bindi ............. 6.75
III. Bindi ............. 6.75
Sandur, Guðm. Daníelsson 3.00
Eldur, Guðm. Daníelsson. .. 3.00
Landið handan landsins,
Guðm. Daníelsson........ 4.50
Frá liðnum árum,
Elinborg Lárusdóttir.... 3.25
Strandakirkja,
Elinborg Lárusdóttir.... 5.00
Hvíta höllin,
Elinfoorg Lárusdóttir... 2.75
Úr dagbók miðilsins,
Elinborg Lárusdóttir.... 3.25
Símon í Norðurhlíð,
Elinborg Lárusdóttir.... 4.50
Hornstrendingabók ......... 6.00
í ljósaskiftum (sagnir)
F. H. Berg.............. 1.75
Saga Möðrudals
á Efra-Fjalli........... 2.00
Allt í lagi í Reýkjavák
(saga) ................. 3.25
Fróða, (leikrit) .......... 2.60
Vopn guðanna (leikrit)
Davíð Stefánsson ....... 3.00
Gullna hliðið (leikrit)
Davíð Stefánsson ...(... 2.50
Stafsetningarorðabók,
F. Gunnarsson........... 2.00
Undur veraldar ........... 10.50
Æfisaga Bjarna Pálssonar 4.50
Lýðveldislhátíðin, 1944 . 20.50
Björnsson’s Book Store
702 SARGENT AVENUE
Winnipeg, Canada
ÍSFIRZK RIT
(Frh. af hls. 5)
eru þessar meitluðu ljóðlínur:
“Hver fornsögukjarni, hvert
kyngiful'lt ljóð,
skal 'kalla fram metnað í sál
hvers íslendings, sannandi að
Fjallkonan fróð
á fegurst og djúpúðgást mál.
Hver bernskúhlý minning um
fjarrænan frið,
er fyllir þinn vorheiða geim,
er líftaug, sem bindur oss brjóst-
in þín við,
Iþótt benumst vér langt út í
heim.”
í árgangi þessa árs, sem er
nökkuru stærri en hinn fyrsti,
er efnið sem hér segir: “17. júní”
(formálsorð); “Héraðsskólinn að
Núpi”; “Tónskáld á Vestfjörð-
um”; “Þér ska'l, Drottinn, þakkir
gjalda,” lýðveldishátíðarkvæði
eftir Guðmund Helgason, bónda
að Eyri í Skötufirði; “Vormenn
íslands,” lag eftir Jónans Tómas-
son; “Hátíð gamla fólksins”;
“Lífsgleði njóttu”; “Húsmæðra-
skólinn á Isafirði”; “Unglinga-
skólinn 40 ára og Gagnfræða-
skólinn 15 ára”; og “Fyrsta í-
þróttasambandið.” Eru allar
þessar greinar eftir ritstjórann.
Eins og efnisyfirlitið ber með
sér, flytur ritið að þessu sinni
a'll marghóttaðan og þakkarverð-
an fróðleik um menntastofnanir
á Vestfjörðum, svo sem um hér-
aðsskólann að Núpi, elsta starf-
andi héraðskólann á íslandi og
hina ágætustu stofnun, sem nú
stendur á fertugu. En með lýs-
ingum þessum á skólum í þeim
hluta landsins, sem og með frá-
sögninni um Íþróttasamband
Vestfjarða, eru raktir megin-
þættir í menningarlífi Vestfirð-
inga, sem ibæði er verðugt að
draga athygli að og ánægjulegt
að fræðast um.
Merkilegan menningarfrömuð
eiga Isfirðingar, og Vestfirðingar
allir, þar sem er Jón tónskáld
Tómasson, en hann átti 65 ára
afmæli 13. apríl s.l. Munu marg-
ir taka undir þá ósk, að hans
megi enn lengi við njóta.
Greinar ritstjórans “17. júní”
AUDITORIUM
Winnipeg
November 18 & 19
Fred M. Gee Presenls
Karlakor
Reykjavikur
MALE CHOHUS DIRECT
FROM
REYKJAVIK. ICELAND
36 SINGERS
SOLOISTS:
Stefan Islandi, Tenor
Gudmundar Jonsson,
Baritone
DIRECTOR:
Sigurdur Thordarson
•
SEATS (For November 19th)
$2.60, $1.95, $1.30, 90c—Now on Sale
at Celebrity Conccrt Scries Ltd.,
383 Portage Avenue
Note: Only Seats Available for
November 18th are on Main
Floor, Rear, at 90c.
MAIL ORDERS: Send Money-Order
and Stamped, Self-Addresscd En-
velope for Return of Tickets to:
Celebrity Concert Series Ltd.,
383 Portage Avenue
og “Lífsgleði njóttu” eru báðar
hugðnæmar og vel ritaðar. I
fyrri greininni er þessi mark-
vissa málsgrein, sem getur talað
til manna hvar sem er:
“Orðin eru til alls fyrst. Þeirra
verksvið er að eggja og hvetja.
Máttur orðsins er mikill, en
mestur og dásamlegastur verður
hann í samtökum og samstarfi
fól'ksins til þess að leggja sífelt
nýjan skerf ti'l foyggingar bjart-
ari, betri og varanlegrar fram-
tíðar.”
Með útgáfu þessa ársrits síns
og þeim anda, sem svífur þar
yfir vötnum, sýnir Arngrímur
Fr. Bjarnason, að hann vill eiga
sína hlutdeild í slíkri framtíðar-
byggingu á Vestfjörðum og
jafnframt þjóðinni allri til heilla.
Hið sama hefir hann sýnt með
margþættri þátttöku sinni í
menningarmálum heimabæjar
síns og landshluta áratugum
saman. Hann er orðinn sextugur
(f. 2. okt. 1886). Vinir hans víðs-
vegar óska þess , að 'hann megi
en um mörg ár halda áfram að
leggja góðum málum lið með rit-
störfum sínum og annari starf-
semi.
ORÐSENDING
TIL KAUPENDA LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU A ISLANDI:
MunlB aB Benda mér ftskrlftargjöld a8 blöBunum fyrlr
júnllok. AthugiO, a8 blöSin kosta nú kr. 25.00 áransur-
inn. Æskilegast er a8 gjaldiö sé sent I pöstAvlsun.
BJÖRN OUÐMUNDSBON,
Reynimel 52, Reykjavlk.
Tombolu og Dans
heldur stúkan “Skuld”
MÁNUDAGSKVELDIÐ 28. b. m.
í GOODTEMPLARAHÚSINU
Öllu því fé, sem inn kemur verður varið til þess að
gleðja veika og bágstadda.
Þar sem þetta er eina samkoman, sem stúkan heldur
ó árinu, er þess vinsamlega vænst, að hún verði að-
njótandi foins sama góðvilja, sem svo eindregið hefir
komið í Ijós á liðnum árum.
Ágæt hljómsveit spilar fyrir dansinum.
Aðgangur og einn dráttur 25 cents — Byrjar kl. 8
TILKYNNING
Bloomquist’s Beauty Craft tilkynnir hér með að Miss Edna
McNamara, sem áður var hjá Nels Todd, sé gengin I þjónustu
þessarar snyrtistofu, og mun fagna þvl, að gamlir vinir og
viðskiftavlinir hitti hana J>ar.
Fagurt hár verðskuldar góða hirðingu
pví ekki að hringja upp Bloomquist’s Beauty Craft,
95 904 varðandi hársnyrting fyrir haustið.
Hin drlfígu vildarkjör í haust byrja 16. október
OPIÐ ALLA MIÐVIKUDAGA
Bloomquist’s Beauty Craft
SÍMI 95 904 900 BOYD BLDG.
Ma*u£aha fein&i
MOURNING DOVE—Eastern Mourning Dove—
Zenaidura macroura Caroliansis
Distinctions—The Mourning Dove is distinguished by its
fawn coloration and long, pointed tail. The breast is light
purplish pink, the head is pale fawn colour, the back is
olive-fawn and there is in all but the most immature
plumages a small black spot on the side of the neck below
the ear. Four middle tail feathers are dark to the tip.
Nesiing — A loose nest of sticks in brushy thickets,
occasionally on the ground. Nests alone and not in com-
munities.
Distribution—North America, from southern Canada to
Panama and the West Indies.
The Mourning Dove is of solitary habits and rarely goes
in flocks of any size. It nests entirely alone. This may be
a large factor in its continued existence. In many sections
the Dove is regarded as a game-bird, but such status is
not recognized by law anywhere in Canada.
Its long-drawn mournful note of “Oh-woe-woe-woe” is
well known and has given the name to the species.
Economic Status—Though feeding largely upon acorns,
beechnuts, and other soft-shelled tree-fruit, it eats grain
readily and a considerable amount of insect food and
weed-seed. Most of the grain it takes is waste. Seed
properly planted and covered is absolutely safe from it
for it never scratches. No serious unpreventable harm
can be proved against it and the good it does is positive.
This space contributed by
THE DREWRYS LIMITED
MD 175