Lögberg - 05.12.1946, Síða 6

Lögberg - 05.12.1946, Síða 6
G LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. DESEMBER, 1946 h Margrét Werner Hann hafði reynt að taka sitt hlut- verk í þrísöngnum, en hafði enga ró til þess. Honum leiddist þessa stundina að hlusta á músík — hugur hans var hjá Lilian, hann þráði að vera hjá henni. Beatrice lk ekki vel á píanóið að þessu sinni, það var eins og hún vissi ekki hvað hún væri að gera. Það var og auðséð, að Markham jarl vildi helzt fá að vera einn hjá Beatrice. “Hvert ætlarðu að fara,” spurði Beatrice Mr. Dare, þegar hann lagði frá sér nótnabókina á hljóðfærið. “Eg ætla að leita mér að góðum sígar”, svaraði hann. Hann fór út úr stofunni og fór upp til herbergis síns, þar var kassi með sígörum í, hann tók einn og gekk svo út í garðinn til að njóta svala nætur- loftsins. Var það bara tilviljun, að hann gekk eftir þeirri götunni, sem lá ofan að trjálundinum? Alt í einu heyrði hann mannamál; hann sá í gégnum kjarrið, mann og unga konu, sem hafði yfir sér stórt sjal. “Ein af þjónustustúlkunum og kær- asti hennar,” hugsaði hann; “lávarðin- um mundi ekki líka það, en það kemur mér ekkert við.” Honum fanst málrómur mannsins mjög sérkennilegur — það var svo mikil tign og sönn ástríða í rómnum. Hann undraðist hver það gæti verið. Hann sá ungu stúlkuna taka sem snöggvast í hendina á honum, er þau skildu. Hann varð alveg utan við sig af undrun, er sjalið féll af herðum hennar, og hann sá og þekti Lilian. Þegar Lilian kom aftur inn í sam- kvæmissalinn var klukkan hálf tíu. Það vp,r verið að spila þar á spil, en Beatrice og jarlinn voru við píanóið, en Mr. Dare var ekki inni. Lilian gekk til Beatrice og spurði jarlinn hvort hún gæti fengjð að tala einslega við systur sína, í svo sem fimm mínútur. “Já, tíu mínútur, ef þú vilt,” svaraði jarlinn, “en ekki lengur”; systurnar fóru svo inn í hliðarherbergi. “Fljótt nú, Lilian,” sagði Beatrice! “Hefurðu séð hann? Hvað segir hann?” “Já, eg mætti honum,” svaraði hún; “það er ekki núna tími til að segja þér alt, sem hann sagði. Hann sendi þér fá- einar línur,” og Lilian rétti henni bréf- ið. Svo greip hún um báðar hendur syst- ur sinnar. “Lofaðu mér, kæra systir mín, að segja þér áður en þú lest bréfið, að eg reyndi að milda hug hans og hjarta, og eg held að ef þú sérð hann og talar við hann og biður hann að leysa þig frá þínu hugsunarlausa loforði, að þá muni hann gera það.” Það glaðnaði yfir Beatrict við að heyra þetta. - “Ó, Lilian,” hrópaði hún upp,” er það mögulegt, getur það verið satt! “Narraðu mig ekki með fölskum von- um; lif mitt hangir á veikum þræði milli vonar og ótta.” “Hann er ekki grimmlundaður,” sagði Lilian, “og eg vorkenni honum. Ef þú talar við hann, er eg viss um, að hann muni leysa þig af loforði þínu. Lestu nú það, sem hann skrifaði.” Beatrice opnaði nú bréfið, sem var ekki nema tvær línur. “Beatrice, þú verður að segja mér, með þínum eigin vörum, að þú elskir mig ekki. Þú verður að segja mér sjálf, að allar þær ánægjulegu vo'nir sem þú gafst mér, voru bara fals og lýgi. Eg fer ekki frá Elmwood án þess að sjá þig. Á fimtudagskvöldið kl. 10 verð eg á sama stað sem nú — mættu mér þar, og segðu mér, ef þú vilt vera laus við mig.” “Eg skal sigra!” hrópaði hún upp. Lilian, haltu í hendurnar á mér, þær skjálfa af gleði. Sjáðu, eg get ekki hald- ið á pappírsblaði. Hann fyrirgefur mér, og eg missi ekki kærastan minn — ást- ina mína, sem er allur heimurinn til mín. Hvað mikið þakklæti eg skulda þér! í dag er þriðjudagur; hvernig á eg að geta lifað þangað til á fimtudags- kvöld? Mér finst eins og ólýsanlega þungri byrði hafi verið létt af mér. Eg verð kona Markhams jarls, og það ert þú sem hefir frelsað mig, Lilian.” “Beatrice, sagði faðir hennar, er systurnar komu aftur inn í salinn og gengu fram hjá spilaborðinu, “við erum búin með spilið; viltu syngja fvrir okk- ur?” Hún hafði aldrei sungið eins fagurt og nú, hún var svo sæl og hamingjusöm, og hún hafði aldrei verið eins fögur og nú. Hún söng eitthvað, sem líktist sig- ursöng — það var enginn vottur harms né kvíða í rómnum. Jarlinn beygði sig ofan að henni alveg frá sér numinn af aðdáun. “Þú syngur, eins og þú sért fyllilega innblásin, Beatrice,” sagði hann fullur hrifningar og aðdáunar. “Eg var að hugsa um þig,” svaraði hún, og hann sá það á hennar draum- sæla útliti, að hún meinti það sem hún sagði. Lafði Edith kallaði á jarlinn til að gefa álit sitt á einhverju viðvíkjandi spilinu, sem hún var að spila, og Bea- trice, sem eins og ósjálfrátt snerti nót- urnar á hljóðfærinu var að ákveða sig til þess, sem hún ætlaði að gera. Hún ætlaði að mæta Hankins. Hún gat ekki komist hjá því, og hún varð að mæta lionum með öllum þeim þrótti og áræði sem henni væri mögulegt. Hann var, eins og Lilian hafði sagt, ekki grimm- lundaður, og hann elskaði hana. Hún ætlaði að biðja hann að gefa sér eftir sitt barnalega og ógrundaða loforð. Hún ætlaði að grátbæna hann þannig, að hann gæti ekki neitað sér um það. Hver hafði nokkurntíma neit- að henni um það sem hún bað um? Gat hún ekki hrært hjarta hans til með- aumkunar með sér? Hann mundi verða reiður í fyrstu, kanske ofsareiður, en hún mundi þó að síðustu geta talað svo um fyrir ronum, að hann gæfi henni eftir loforðið. Hún sat kyr við hljóðfær- ið og spilaði mörg draumsæl lög, og á meðan birtist öll myndin af ástaræfin- týri hennar við Hankins fyrir hugarsýn hennar. Hún vissi hve kyrt var þar við skóginn, hve dimm nóttin mundi vera. Hún gat ímyndað sér hans brúnleita andlit, eftir svo langa veru í hitabeltinu. Við þessar hugsanir fanst henni að hún bæri nú betri hug til hans. Hún óskaði honum alls góðs. Hann gat gifst fríðri stúlku af sinni stétt, og orðið hamingjusamur og sæll með henni, og ef hann vildi gera það, skyldi hún vera honum einlægur vinur. Enginn vissi neitt um leyndarmál hennar, því Lilian segði aldrei neinum frá því, og hún sá sig sem hina sælu og hamingju- sömu konu jarlsins. Það sem hún hugs- aði sér var svo sælt og ánægjulegt, að það var alls ekki að undra þó sigur- hljómur væri í rödd hennar. Þeir, sem hlustuðu það kvöld á söng hennar, gleymdu því aldrei. 37 Kafli. Lewis Dare stóð agndofa og hreif- ingarlaus í sömu sporum í nokkrar mín- útur. Hann varð bæði hræddur og hissa við, að sjá Lilian sína úti um þetta leyti að kvöldi til með ókunnugum manni. Honum gat ekki hafa missýnst. Ef hann var ekki ruglaður á sönsum, þá var þetta Lilian Cuming, sem hann fyrst ímyndaði sér að væri ein af þjónustu- stúlkunum í húsinu; sem væri úti að mæta kærastanum sínum. Það var Lilian, sem hann áleit svo heiðarlega og saklausa; hún hafði stolist út úr húsi föður síns í næturmyrkrinu til að mæta einhverjum, sem hún þorði ekki að láta sjá sig með í dagsbirtunni. Þó hans kærasti vinur hefði svarið það fyrir honum, hefði hann ekki einu sinni viljað hlusta á það; en hann gat ekki efast um það, sem hann sá með sínum eigin augum. Það var ómótmæl- anlegur sannleikur, að það var höfuð og andlit Lilian sem hann sá. Hann henti burtu sígarnum, sem hann var að reykja og gnísti tönnum af reiði. Allar tilfinningar hans komust í hamslausa æsingu; það voru þá allar stúlkur svona óáreiðanlegar! Það var engin ærleg taug í þeim; og svona var allur heimurinn! Hann hélt að í henni hefði hánn fundið fullkomna undan- tekningu frá því almenna; hann hafði verið svo viss um sakleysi hennar, ein- lægni og trúverðugheit, að þar á væri engin blettur. Frá því fyrst að hann kyntist henni, var hann farinn að temja sér hreinna og betra líferni, í einu orði sagt, að laga líf sitt og hugsunarhátt samkvæmt hennar lífi og hugsunar- hætti. En nú var það alt fals og smjaður. Það er ekki til sannleikur í heiminum, hugsaði hann. Þessi unga stúlka, sem hann hafði haldið vera þá fegurstu og saklausustu allra stúlkna, sýndi sig nú að vera hið slægasta hræsniskvendi. Smábrellur móður hans. voru ekkert í samanburði við óeinlægni og hræsni Lilian. Og hann, sem hafði elskað hana svo heitt! Þegar hann horf ði í hennar hreinu qg sakleysislegu augu, var hann sann- færður um, að þar væri ei annað að finna, en ást og staðfestu. Þetta indæla andlit, sem hafði roðnað og brosað til hans, sem leit svo barnslega út. að allir hlutu að ímynda sér hið besta um hana. En hvað var nú? Hve langt var síðan hann hafði hald- ið hennar nettu og mjúku höndum í höndum sér og ekki þorað að gerast svo frekur að kyssa hana, ekki einu sinni eftir að hún hafði lofast til að verða konan hans. Hversu herfilega að hann var narraður og táldreginn! Hvað hún hefir haft gaman af og hlegið að heimsku hans og einfeldni! Hver var maðurinn? Það hlaut að vera einhver, sem hún hafði þekt frá fyrri tíð. Það var enginn af þeim mönn- um, sem hafði umgengni við Cuming lávarð, sem hefði læðst þar í kring, eins og þjófur á nóttu. Því fór hann ekki á eftir honum og sló hann í rot? Því lét hann hann sleppa úr höndum sér? Hann krepti sína sterku hnefa; það var gott fyrir Alfred Hankins, að lenda ekki í hans sterku hendur? Smátt og smátt rann honum reiðin, og hann varð hel- tekinn hinni svörtustu örvæntingu. Hann gaf frá sér veikt hljóð og stundi við. Hann hafði mist stúlkuna, sem hann unni hugástum. Þetta goð, sem hann hafði tilbeðið var nú falliö um koll. Óhreinlyndi og svik höfðu nú sett ljótan blett á þessa fögru mynd. Eins lengi og sorg og reiði háðu stríð í brjósti hans, vildi hann ekki fara inn í húsið; hann ætlaði að vera úti, þangað til að hann væri orðinn rólegri. Eftir dálitla stund fór hann inn í samkvæmissalinn, og að því undan- teknu, að hans fríða andlit var náfölt, og óvanalegur hörku- og reiði-glampi var í augum hans, var Lewis Dare ekki mikið öðruvísi en hann átti að sér að vera. Lilian stóð þar og laut yfir stóra teikningabók, sem hún hafði lofað að sýna honum; hennar gullnu lokkar féllu ofan á bókina. Hún leit upp, þegar hann kom inn; hún var róleg og alarleg í and- liti; það var ofurlítill roði í kinnum henn- ar, og hún brosti er hún talaði til hans. “Hér eru teikningarnar,” sagði hún; “viltu sjá þær?” Hann mundi að hann hafði beðið hana um að sýna sér þær; en hún hafði færst undan því þá. Hann settist á stól hjá henni. Bókin lá á borði í ofurlitlum krók út úr salnum. Þau voru alveg út af fyrir sig þar. Hún tók tening og sýndi honum. Hann leit ekki á hann og veitti því enga eftirtékt, er hún sagði. “Lilian,” sagði hann alt í einu, “ef þú værir spurð, hver væri hin versta synd, sem kona gæti gert sig seka í, hverju mundir þú svara?” “Þetta er undarleg spuming,” sagði hún. “Eg veit bara, að allar syndir eru vondar,” svaraði hún. “Eg skal þá segja þér það,” sagði hann í bitrum róm, “það er fals og tál- drægni — samvizkulaus svik!” Hún leit upp, alveg hissa á reiðinni í málróm hans; þau þögðu svo ofurlitla stund. “Eg get ekki skoðað þessar teikn- ingar,” sagði hann, “farðu burt með þær. Lilian Cuming, líttu upp, horfðu framan í mig. Hvað er langt síðan eg bað. þig að verða konan mín?” Hún horfði rólega á hann, en við þessa spurningu roðnaðiliún í andlitinu. “Það er ekki langt síðan,” svaraði hún — “bara fáeinir dagar.” “Þú sagðir mér, að þú elskaðir mig.” “Já, eg sagði það,” svaraði hún. “Segðu mér nú aftur: Hefirðu nokk- urntíma elskað eða þótt eins vænt um nokkurn annan mann, eins og þú segir að þér þyki um mig?” “Aldrei,” svaraði hún rólega. “Þú verður að afsaka spurningu mína — var nokkur sem bað þín, eða sóttist eftir þér, áður en við kyntumst?” “Nei, langt frá því,” svaraði hún, alveg hissa á þessum spurningum. “Á eg einn ást þína, traust og til- trú? Hefurðu aldrei táldregið mig? Hefurðu verið einlæg og hreinskilin við mig?” “Þú gleymir þér, Lewis,” sagði hún með göfugri, en mildri sjálfstilfinningu; “þú þarft ekki að tala þannig við mig.” “Svaraðu mér.” sagði hann. “Eg er örvinglaður og ráðviltur maður. Hef- urðu dregið mig á tálar?” “Aldrei,” svaraði hún, “hvorki í hugsunum, orðum né gjörðum.” “Guð minn góður!” sagði hann í sorgarróm, “að nokkur skuli geta verið svo fríð og fölsk!” Lilian leit alveg undrandi á hann. “Lilian,” sagði hann. “Eg hefi elsk- að þig sem fyrirmynd alls, sem er hreint, saklaust og göfugt í fari nokkurrar konu; í dag elskaði eg alt, sem var heilagt og gott. Guð fyrirgefi þér, að hafa svo hastarlega drepið trú mína og traust á þér.” “Eg skil þig ekki,” svaraði hún ró- lega; “því talarðu svona til mín?” “Eg skal tala ljósara,” sagði hann —” svo ljóst að þú getir ekki misskilið mig. Eg kærastinn þinn, maðurinn, sem þú elskar og treystir, spyr þig, Lilian Cuming, hver var það, sem þú varst með í kvöld, hérna hjá blómagarðinum?” Hann sá að spurningin hitti hana sem slag. Varir hennar hvítnuðu, og móða féll yfir hennar björtu og fögru augu; hún reyndi að svara, en orðin dóu á vör- um hennar hálfsögð. “Neitar þú, að þú hafir verið þar?” spurði hann. “Eg sá þig og hann. Neit- ar þú því nú?” “Nei,” sagði hún. “Hver var hann?” spurði hann harkalega, og hann horfði svo æðislega á hana, að hún varð hrædd. “Segðu mér hver hann var. Eg skal elta hann til enda veraldarinnar. Segðu mér það!” “Eg get það ekki, Lewis!” hvíslaði hún — “eg get það ekki. Hafðu með- aumkun með mér, og láttu mig eina um leyndarmálið.” “Þú þarft ekki að vera hrædd,” sagði hann. “Eg skal ekki segja föður þínum frá því. Látum hann sjálfan finna út hver þú ert, eins og eg hefi gert. Eg get bölvað sjálfum mér fyrir þá trú og traust, sem eg hefi haft á þér. Hver er hann?” “Eg get ekki sagt þér það,” stamaði hún, og neri saman höndunum í ráða- leysi. “Ó, Lewis, treystu mér, vertu ekki reiður við mig.” “Þú getur ekki búist við,” sagði hann, og fann til meðaumkunar með henni, “að eg þegði um þetta, er eg sá með mínu meigin augum. Ef þú getur gert skýringu á því, þá gerðu það. Ef þessi maður er einhver, sem þú þekkir frá fyrri tíð, sem hefir sóst eftir þér, segðu mér þá frá því. Eg get kanske með tíð og tíma gleymt þessu, ef þú ert hreinskilin og einlæg við mig nú. Ef það er eitthvað, sem getur afsakað það, sem þú hefir gert, segðu mér það núna undir eins.” “Eg get það ekki,” sagði hún og hallaði sínu sorgmwdda höfði frá hon- um. “Eg býst við því,” sagði hann bit- urt. “Þú getur ekki og vilt ekki; þú veist, býst eg við, á milli hvers þú hefir aðvelja?” “Hún leit á hann þögulum bænar- augum, en hún sagði ekkert. “Segðu mér nú hverjum þá ætlaðir að mæta, þegar þú stalst út úr húsinu — hvaða erindi þú hafðir við hann? Vertu hreinskilin við mig, og ef það er einhver bjánaskapur frá unglingsárum þínum, þá get eg líklega fyrirgefið þér það. Ef þú vilt ekki segja mér alt um þetta, þá fer eg burt héðan og skal aldrei sjá þig framar.” Hún hélt höndunum fyrir andlit- inu, og hann heyrði veikt og aumkunar- legt kjökur. “Viltu segja mér það?” spurði hann enn aftur — og hann gleymdi aldrei þeirri dauðans angist, sem var uppmáluð á andliti hennar er hún leit á hann. “Eg get það ekki,” svaraði hún; hún gat ekki sagt meira, og hún var hrædd um að hún dytti af stólnum. Er þetta þitt síðasta orð; þú neitar að segja mér það sem eg sem kærast- inn þinn hefi fullan rétt til að fá að vita?”

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.