Lögberg - 26.06.1947, Page 1
ÁteA
PHONE 21 374
ndjg^J&r
IJ»un ^ A Complete
l';ieaning
I' (stitution
PHONE 21 374
i V,\«"l's
A Complele
Cleaning
Institution
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 26. JÚNI, 1947
NÚMER 25
ÁVARP FORSETA
Flutt á Lýðveldishátíð að
Hnausum 21. júní 1947, af
Böðvari H. Jakobssyni.
Nefnd sú sem stjórnar þessu
hátíðarhaldi býður yður öll
velkomin á Iðavelli, til þess að
taka þátt í hinni fjórðu hátíð
sem haldin er á þessum stað, til
minningar um endurreisn hins
íslenzka lýðveldis, sem fór
fram að Þingvöllum á íslandi
þann seytjanda dag júnímán-
aðar árið nitján hundruð fjöru
hu og fjögur.
Af því að ísland er okkár
föðurland, íslenzk tunga okkar
uióðurmál, og íslenzka þjóðin
það berg, sem við erum brot af,
höldum við hátíð í Nýja Is-
landi, til þess að minnast okk-
ar kæra föðurlands á okkar
naóðurmáli, að minnast okkar
ágætu fósturjarðar Kanada,
sem er svo rík af .öllu sem til
þess þarf að líf manns sé gott
.°g fagurt, að minnast þeirra
hugrökku manna og kvenna
sem fluttu hingað vestur frá ís-
landi, og börðust hér hinni
hörðu landnáms-baráttu, til iþess
að afkomendur þeirra gætu bú-
ið við betri lífskjör, og til þess
að gleðjast sameiginlega yfir
frelsi og fullveldi hinnar ís-
lenzku þjóðar.
Hátíðarnefndin vonast eftir
að geta veeitt yður hér mikla
skemtun, því mjög hefir hún
vandað undirbúning að þessari
hátíð, hún hefir haft mikinn á-
huga á því að fá framúrskar-
andi fólk til að flytja minnin,
svo hefir hún boðið hingað
heiðursgestum sem munu á-
varpa okkur nokkrum orðum,
°g hún hefir fengið ágætan
söngflokk til þess að skemta hér
1 dag, hann er undir stjórn Jó-
hannesar Pálssonar frá Geysi,
°S systir hans, frú Lilja Martin,
leikur á hljóðfærið; þessi isyst-
hini hafa getið sér mikinn orð-
stýr fyrir hljóðfæraslátt og
henslu í þeim greinum; þá hefir
nefndinni ekki tekist það síst að
að velja Fjallkonu og Miss
Canada og hirðmeyjar þeirra,
aðra eins kvennlega fegurð og
Prýði, mun ekki auðvelt að
hnna, sem hér í dag á Iðavelli.
Áfellist kommúnista
Anthony Eden, fyrrum utan-
rákisráðherra Breta, áfeltist
þunglega rússneska kommúnista
í þingræðu og kvað afstöðu
þeirra gagnvart stjórnarfarinu í
Ungverjalandi, Búlgaríu og Rúm
eníu, óverjandi með öllu; nú
vaeri svo komið, að þessar þrjár
þjóðir hefðu ekkert að segja
Urn sín eigin innanlandsmál
vegna áróðurs frá Rússlandi;
hlÖðum væri lokað og þeir
menn teknir úr umferð, er ekki
segðu já og amen við öllu þessu
targani, eða kystu auðmjúklega
® vöndinn.
Athygli skal hér leidd að
skemtisamkomu, sem haldin
verður í Sambandskirkjunni á
augardagskvöldið þann 28. þ.
71- — Skemtiskráin er auglýst
a öðrum stað hér í blaðinu, og
er hún það ótvírætt með sér hve
VeI hefir til als undirbúnings
Vandað; má því búast við mik-
Uli aðsókn.
Dr. Ófeigur J. Ófeigsson
FULLTRÚI ÍSLANDS
Samkvæmt tilkvnningu frá
utanríkismálaráðuneyti íslands,
hefir íslenzka ríkisstjórnin fal-
ið Dr. Ófeigi J. Ófeigssyni, sem
undanfarið hefir dvalið hér um
slóðir, að mæta fyrir landsins
hönd' á hinu 5. Alþjóðalækna-
þingi, sem haldið verður í Wal-
dorf-Astoríahótelinu fyrri hluta
næstkomandi júlímánaðar; er
það mikil og makleg sæmd, sem
Dr. Ófeigi fellur í skaut með
þessari ráðstöfun íslenzku ríkis-
stjórnarinnar.
BEVIN í PARÍS
Utanríkisráðherra Breta, Ern-
est Bevin, er kominn til Parísar
til þess'að ráðgast við frönsk
stjórnarvöld um fjárhagslega
viðreisn Norðurálfuþjóðanna á
þeim grundvelli, sem Marshall,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna vill að verði gert, þ. e. a. s.
með Amerísku lánsfé Bretar og
Frakkar hafa gert Rússum að-
vart um þessa fyrirhuguðu við-
reisnarstarfsemi og æskt þess að
þeir yrði þátttakendur í henni.
ELLISTYRKSMÁLIN
Heilbrigðismálaráðherrann í
Ottawa, Paul Martin, hefir bor-
ið fram frumvarp í sambands-
þingi varðandi breytingar á elli-
styrkslöggjöfinni, þar sem gert
er ráð fyrir, að kleift muni
verða að greiða styrkþegum
eitthvað meira en 30.00 dollara
á mánuði; þetta telja stjórnar-
andstæðingar óviðunandi, og
bera stjórninni það á brýn, að
hún hafi farið undan í flæm-
ingi með hliðsjón af lausn þessa
viðkvæma máls. Mr. Martin
varði gerðir stjórnarinnar, og
kvað sig einkum furða á afstöðu
Mr. Brackens, er annað veifið
ásakaði stjórnina fyrir eyðslu,
en brygði henni hina stundina
um of mikla varfærni í fjármál-
um.
Snjólaug Sigurdson
Recital
Icelandic Canadian club er
mikil ánægja a því að tilkynna
almenningi að Miss Snjólaug
Sigurdson hefir boðið félaginu
að halda hljómleika snemma í
september n.k. til arðs fyrir
námskeiðssjóð félagsins.
Það er göfugmannlega hugsað
af Snjólaugu að vilja þannig
styrkja önnur ungmenni til
mentunar og frama. Og ekki
síst er -þetta boð hennar virð-
ingarvert er tekið er til greina
að hún er sjálf einmitt um þess-
ar mundir að brjótast áfram af
eigin rammleik eftir hinni tor-
sóttu leið listarinnar.
Það verður tilhlökkun fyrir
fólk að eiga von á því að hlýða
á þessa ungu listakonu áður en
hún leggur leið sína aftur til
New York í haust.
Amæliskveðja Þjóðræknis-
félagsins til dr. Richard
Beck
Dr. phil. Richard Beck pró-
fessor, University of North
Dakota, Grand Forks, N.D.
Vér undirritaðir, meðlimir
stjórnarnefndar Þjóðræknisfé-
lags Islendinga í Vesturheimi,
vlijum með skjali þessu, hver
um sig, og allir sameiginlega,
fyrir hönd félags "vors, óska
þér innilega til hamingju og
blessunar á þessum fimmtugasta
afmælisdegi þínum
Oss er það ljóst að þú hefir
um margra ára skeið léyst af
hendi gott og giftudrjúgt starf
fyrir félag vort, sem meðlimur
stjórnarnefndar þess og forseti.
Þú hefir ótrauður beitt hinu
óvenjulega starfsþreki þínu,
miklu hæfileikum og lærdómi
til eflingar menningararfi vor-
um, og aukið frama þjóðar vorr
ar báðu megin hafsins. Þú hefir
einnig verið boðberi góðvildar
og aukins skilnings miUi vor
Vestmanna og ættbræðra vorra
á íslandi. Alt þetta metum vér
og þökkum.
Megi þér endast aldur og and-
legt þrek, enn um marga ára-
tugi, til að halda hátt á lofti
merki Islands og íslenzkrar
menningar.
Ávarp þetta, dagsett í Winni-
peg, 9. júní, var fagurlega skraut
ritað og undirskrifað af öllum
stjórnarnefndarmönnum.
Hófdrykkja og
áfengisreikningur
Ritstjórnargrein í Free Press.
„Þegar fólkið í Canada sam-
þykti það með atkvæðagreiðslu,
hvert eftir annað, eftir fyrra
stríðið, að fela stjórnunum umsjá
áfengissölunnar, var því haldið
fram að það yrði til þess að
minna yrði drukkið. Síðustu
skýrslur um áfengisnautn í Cana
da sýna það að afleiðingarnar
hafa orðið: ofdrykkja í stað hóf-
drykkju.
Árið 1946 eyddi Canadiska
þjóðin 400.000.000 — fjögur
hundruð miljónum dollara —
fyrir áfengi. samkvæmt þeim
skýrslum. Þetta er svo að segja
jafn mikið og öll útgjöld Sam-
bandsstjórnarinnar fyrir síðasta
stríð.
Það eru 33.00 dollarar fyrir
hvern mann, hverja konu og
hvert barn í Canada. Eftir því
að dæma eyðir hver einasta
fjölskylda í landinu 130.00 doll-
urum á ári fyrir áfengi, eða hér
um bil 11.00 dollurum á mánuði.
Fyrir þessa upphæð mætti
kaupa býsna mikið af öðrum
drykk — mjólk Og það er
stöðug ráðgáta fyrir margar
húsmæður, hvernig þær eiga að
haga svo fjárhag sínum, að geta
keypt nóg af þeim drykk.
Frá fjárhagslegu sjónarmiði
er það næsta alvarlegt að þjóðin
skuli eyða nálægt hálfri billjón
dollara fyrir áfengi, en hitt er
þj ennþá alvarlegra: að það sýn-
ir aukinn áfengisþorsta, aukna
áfengiseitrun, aukna tölu drukk
inna bílstjóra, og alt það annað
ilt, sem fylgir áfengisnautninni.
Þessar nýju skýrslur eru í
hæsta máta alvarlegar. Eftir
heilan aldarfjórðung hefir þessi
hófsemdar tilraun tekist þannig
að hér er sannarlega um enga
hófsemd að ræða“.
Sig. Júl. Jóhannesson
þýddi.
GÓÐIR GESTIR AF
FRÓNI
Gestakoma heiman af Fróni
má nú svo að segja teljast til
daglegra viðburða; er slíkt okk-
ur Vestmönnum eigi aðeins
mikið fagnaðarefni, heldur styrk
ir það einnig bræðraböndin
milli stofnþjóðarinnar og af-
kvista hennar vestan Atlants-
ála.
Undanfarinn vikutíma hafa
þessir gestir heimsótt oss frá Is-
landi:
Árni Bjarnason, blaðamaður
og bókaútgefandi frá Akureyri,
er heimsótti okkur í fyrra, og
sýnt hefir í verki mikinn áhuga
fyrir menningarmálum Vestur-
íslendinga. Jón Helgason blaða-
maður, sem um allmörg ár hefir
verið starfsmaður við Tímann í
Reykjavík; hann er ættaður af
Akranesi, gáfumaður og ágæt-
lega ritfær. Hannes Þórarinsson
læknir úr Reykjavík, sonur
Þórarins heitins Kristjánssönar
hafnarstjóra og Ástu, dóttur
Hannesar Hafstein. Stefán Ól-
afsson læknir, Í>orsteinssonar í
Reykjavík; báðir þessir efnilegu
læknar stunda framhaldsnám
við Mayo-stofnunina að Roc-
hester, Minn. — Margrét Ind-
riðadóttir, ritstjóri við kvenna-
síðu Morgunblaðsins í Reykja-
vík; hún er fædd á Akureyri;
faðir hennar er frá Skógargerði
í Fellum, en móðir hennar ættuð
af Seyðisfirði; hún hefir dvalið
því nær árlangt við blaða-
menskunám við háskólann í
Minnesota. Síðast, en ekki síst,
ber að nefna séra Eirík Brynj-
ólfsson. prest á Útskálum, sem
kominn er hingað til ársdvalar
og þjónar Fyrsta lúterska söfn-
uði meðan séra Valdimar J. Ey-
lands dvelur á íslandi; er séra
Eiríkur hingað kominn ásamt
frú sinni, Guðrúnu Guðmunds-
dóttur, ungum syni þeirra, og
tengdasystur, Hjördísi; það hef-
ir verið öllum óblandið ánægju-
efni, að kynnast þessu ágæta og
frjálsmannlega fólki að heiman.
ÞAKKARORÐ
Litlu áður en ég fór til Winni
peg í haust sem leið, vegna veik-
inda Einars sonar míns, voru
margir vinir mínir í Víðir, Fram
nes og Árborg, fljótir að rétta
mér hjálparhönd, bæði með
vinnu á heimili okkar og eins
með peningagjöfum; alt þetta
létti mikið undir með okkur á
þungbærum reynslutímum, og
veíðskúldar ógleymanlegar
þakkir; þá ber okkur einnig að
þakka börnum í Víðibygð, er
efndu til skemtisamkomu um
jólaleytið til arðs fyrir hinn
sjúka son okkar; öllum vinum,
fjær og nær, flytjum við okkar
hjartfólgnustu þakkir fyrir
margvíslega hjálp og ástúð í
garð drengsins okkar og okkar
sjálfra.
Winnipeg, 23. júní 1947.
Mr. og Mrs. Hallur Johnson
frá Víðir.
Tala atvinnuleysingja
Að því er hagstofunni í Ott-
awa segir frá nam tala atvinnu-
leysingja í Canada við lok apríl
mánaðar, s. 1., 35,859 til móts við
43,675 í marz. 1 strandfylkjun-
um ber langmest á atvinnuleys-
inu, en minst í Saskatchewan.
Gefið til Sunrise Lutheran
Camp.
Mr. og Mrs. Lawrence Thom-
son, Winnipeg, $2.00. Mr. og
Mrs. B. J. Lifman, Árborg, 3.00.
I kærri minningu um kæran
vin okkar og frænda, Jónas Jón-
asson, dáin á Gimli í maí 1947.
Stefanía Lifman, Árborg, 3.00, í
kærri minningu um ljósu mína
Mrs. Sesselju Guðmundsson, dá-
in í Árborg í maí 1947. A Friend
1.00. Kvennfélag Björk, Lund-
ar 15.00. Kvennfélag Baldurs-
brá, Baldur, 20.00.
Meðtekið með innilegu þakk-
læti.
Clara Finnsson
505 Beverley St.
Mrs. og Mr. George Jóhannes-
son og sonur James, frá Edmon-
ton, Alta, komu til bæjarins 16.
júní. Þau komu flugleiðis með
C.P.R.-flugfari, og stjórnaði Mr.
Jóhannesson því.
Hann er flugkapteinn hjá
C.B.K.-félaginu. Verður hann
hér eystra um mánaðartíma, og
mun fljúga fyrir félagið með
fólk norður til The Pas.
Hjónin dvelja hjá móður Mr.
Jóhannessons, Mrs. Guðlaugu
‘Jóhannesson, 739 Alverston St.
Winnipeg. v
Gefið í minningarsjóð Banda-
lags Lúterskra kvenna: — Mrs.
Rachel Maxon $25.00, í minningu
um ástkæran son, Gunnlaug
Marino Maxon. Mrs. Gunnar
Johnson, 10.00.
Leiðrétling við gjafalista í
síðasta blaði:
Mrs. B. J. Brandson $25.00, í
mniningu um Ás Thomson
Leut. Thomas Leonard Brand-
son. — Mr. og Mrs. W. P. Thor-
steinson $2.00, í minningu um
Sigurð Freeman. — Með inni-
legu þakklæti.
Anna Magnússon
Box 296 Selkijrk, Man.
♦ ♦
Þann 18. þ. m. létst að heimili
sínu, 431 Scarboro Ave, í Cal-
gary, Mrs. Guðrún Grey, kona
Marvey L. Grey, dóttri A. C.
Johnson, fyrrum ræðismanns og
ekkju hans Elizabetar Johnson;
Auk manns síns lætur hún eftir
sig tvö börn, pilt og stúlku; —
einnig fjögur systkini; meðal
þeirra er A. V. Johnson tann-
læknir í Winnipeg.
-f -f -f -f -f -f
Á víð og dreif
Til prófessors Richards Becks
9. júní 1947
Eg kom í húsið — hafði orðið seinn
að heyra það, sem fundarstjórinn sagði.
Eg úti’ í horni settist — sat þar einn
hjá sjálfum mér — ég hugsaði og þagði.
Eg yfir hópinn horfði, sem var smár,
og hérna-fæddir sjálfsagt nauða fáir;
því þeir, sem annars áttu nokkurt hár,
af elli voru flestir hélugráir.
Eg heyrði að lögðu ýmsir orð í belg;
það auðheyrt var að málin, sem þeir ræddu,
í sálum þeirra voru híminhelg:
í heitum straumi orð af vörum flæddu.
Eg heyrði fljótt hvað fundarefnið var:
hér fylkja skyldi sterku varnarliði
í stríð á móti öllu allstaðar,
sem ekki rækir vora fornu siði.
Hér tungan okkar skyldi um eilíf ár
í allri sinni dýrð og fegurð ríkja,
og hver, sem heimi flytur feigðar spár
sé friðlaus, eins og þeir, sem landið svíkja.
Eg úti í horni sat — ég sat þar einn
hjá sjálfum mér — ég hugsaði og þagði,
og hreifðist ekki heldur en fastur steinn —
ég hlustaði á alt, sem tolkið sagði.
Eg man þá tíð: það var mín tröllatrú
að tungan okkar gæti velli haldið: —
það breytist alt — það er mín skoðun nú
að enginn geti bæði slept og haldið.
Þær vonir lengi lýstu huga minn
að „Landinn“ þyldi engar fangatreyjur.
En þúsund sinnum þess ég dæmi finn
að þetta séu bara dauðateygjuf.
En margur veikur lifir langa tíð
og lifnar stundum fremur öllum vonum,
með störfum sínum auðgar land og lýð.
ef læknir finst, sem reyni’ að bjarga honurn.
Og þér er ljúft að reyna, Richard Beck: —
sé ráðum þínum fylgt og eftirdæmi,
þá mætti styrkja margan veikan hlekk
og móta fleiri,4sem að liði kæmi.
Eg fáa vissi hyggja á hærra flug
né hátt í lofti vængi betur þanda.
Eg aldrei þekti starf með heilli hug
né hendur lengra fram úr ermum standa.
Ef björgun tekst, þeim lækni líkist þú,
sem lifir eins og hirðir veikra sauða,
með hnífnum sínum byggir jafnvel brú
á breiða sundið milli lífs og dauða.
Þú hefir lært þá list, sem fæstum er
í lífsins skóla kend né unt að finna:
Að skapa veg og virðing sjálfum þér
með vinarhug til allra bræðra þinna.
En fyrirgef — þess getur hugsun mín:
í glóðarkeri heima eldur brenni,
sem vel og stöðugt stundi konan þín:
svo störf þín megi að nokkru þakka henni.
Sig. Júl. Jóhannesson.