Lögberg - 04.09.1947, Blaðsíða 5

Lögberg - 04.09.1947, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. SEPTEMBER, 1947 5 AHU6AHAI IWENNA Ritstjóri: Leiðrétting frá Sig. Baldvinsyni Hvernig hægt er að ná níræðisaldri “Ekki vil ég verða níræður”, mun margur hugsa, sem les þessa fyrirsögn, þá er maður orðinn einmana og lífið manni þungt á margan hátt”. Sá, sem þannig hugsar, þarf ekki að bera áhyggjur út af því að hann verði níræður, því aðal skilyrðið til þess að ná svo háum aldri er það, að vera gæddur sterkri lífs- löngun. “Eg borðaði þegar ég var svang ur og drakk þegar ég var þurr- brjósta, manni verður að langa til að lifa; það veit sá sem allt veit, að ég er ekki reiðubúinn að fara ennþá”. Þannig svaraði níræður öld- ungur, þegar hann var spurður, hverju hann þakkaði það að hafa náð svona háum aldri. Lífsgleði og lífslöngun taldi hann öllu nauðsynlegr til þess að lengja líf dagana. í nýútkomnu Ladies' Home Journal birtist grein, er skýrir frá viðtölum, er greinarhöfund ux hefir átt við margt nírætt fólk úr öllum stéttum mannfé- lagsins, ríkt og fátækt, þekkt og óþekkt, af báðum kynjum. — Hér fer á eftir útdráttur úr greininni: “Það er fjörugt fólk, þetta ní- ræða; það sem einkennir það öllu fremur er, að það vill lifa, það hefir áhuga fyrir lífinu og hæfileika til þess að njóta þess eftir því sem kringumstæður þess leyfa. “Enginn ætti að hætta að vinna”, sagði einn aldraður mað- ur, er-haldið hafði áfram at- vinnu sinni þar til hann var 88 ára gamall: Ástæðan fyrir því að konur lifa oft menn sína er sú, að þær hafa ávalt eitthvað til að sýsla við þegar hann hætt- ir atvinnu sinni og hefir ekkert til að sýsla við; er hann hætt- ur hann saman”. Fólk, sem lifir það að verða nírætt trúir á vinnuna sem and- legan og líkamlegan heilsugjafa; það telur að sú fullnæging, sem vinnan veitir sé nauðsynleg til þess að geta haft ánægju af líf- inu, og segir að langlífi sitt stafi af því að það hafi vanið sig á að vinna en sitja ekki auðum höndum. Margt miðaldra og jafn vel yngra fólk dreymir um það að koma sér þannig fyrir, að það fái sem fyrst lausn frá störfum — að það sé takmark, sem það eigi að keppa að. Það fólk myndi sennilega breyta um skoðun, ef það hlýddi á þetta níræða fólk, því það telur það vafasama bless un að hætta að vinna og setjast í helgan stein. “Það eina sem ég hefi áhyggj- ur út af er, að geta ekki unnið”, sagði gamall kennari, er látið hafði af embætti. “Eg sé fólkið í nágrenninu fara í vinnu sína, en ég get það ekki því það er að verða býsna erfitt fyrir 85 til 90 ára gamlan mann að fá at- vinnu”. Fleiri en 70 prósent af þessu fólki kvaðst hafa verið ánægð- ara meðan það stundaði stöðuga atvinnu heldur en eftir að það lét af störfum. “Vinnan gerir engum mein”, sögðu flestir og hin háa elli þess bar þessari stað hæfingu vitni, aðeins 14 prósent hafði látið af störfum áður en það varð 70 ára; 40 prósent milli 70 og 80 og 46 prósent eða nærri helmingur var enn vinnandi þeg ar það var áttrætt og eldra. Vitaskuld hefir flest hið aldr- aða fólk, er en hefir ekki látið af störfum, stytt sinn daglega vinnu tíma, það er setur embætti eða stöður, þar sem það getur ráðið INGIBJÖRG JÓNSSON sínum eigin vinnutíma. öðru máli er að gegna með þá, sem vinna fyrir launum hjá öðrum; fæstir vilja ráða í vinnu háaldr- að fólk. Meðal þeirra er komnir eru um nírætt og enn halda á- fram störfum sínum, eru lækn- ar, lögmenn, bændur og húseig endur og kaupmenn. Vinna þessa fólks er ekki eins stöðug og reglubundin og áður; margir hafa snúið sér að nýjum störfum. “Varastu að sitja auðum hönd um — þótt’þú fáir lausn frá störfum, máttu ekki ímynda þér að lífið sé á enda; fyndu þér ný áhugamál”. Þetta var ráð- legging aldraðs lögmanns og hann framfylgir sínum eigin ráð leggingum. Hann lítur inn á skrifstofu sína daglega; hann æfir sig á píanó og guitar dag- lega og tekur þátt í æfingum söngfélagsins! “Það sem verst fer með gam- alt fólk”, sagði einn níræður öld ungur, er það, að það er altaf að hugsa um að það sé orðið gam- alt; það hefir engan áhuga fyrir því sem er að gerast í kringum það. Slíkur hugsunarháttur eld- ir fólk bæði andlega og líkam- lega. Það er um að gera fyrir aldrað fólk að fylgjast með því, sem er að gerast í heiminum. — Það getur að minnsta kosti greitt atkvæði, þótt það geti ekkert annað gert. Eg greiddi atkvæði í fyrra og þeir urðu að útvega mér stól til að sitja á!” Allir hinir Iífsglöðu, níræðu öldungar höfðu sérlega mikinn áhuga fyrir því, sem var að ger- ast í heimsmálunum og félags- lífinu. 1 einu orði sagt, því fleiri áhugamál, því meiri lífsgleði. Þeir sem óánægðir voru og lífssaddir, veittu litla athygli því, sem var að gerast og lifðu eins og í veröld út af fyrir sig. Þegar hinir glaðsinna, gömlu menn voru spurðir, hvað þeir gerðu, sögðu þeir: “Eg hlusta á útvarpið, les blaðið, gef hæsnun- um, masa við kunningja mína, og skipti mér af því, sem aðrir gera.-----Eg les all-mikið reyki all-mikið, jagast í dóttur minni að gera hitt og þetta.------Eg saga minn eigin eldivið, yrki minn eigin garð; heimsæki kunn ingja mina á hverjum degi. Eg get ekki lesið vegna sjóndepru, en ég hlusta á útvarpið og fylg- ist þannig með því, sem er að gerast.-----Þetta er nú fyrsti veturinn, sem ég hefi verið iðjulaus; gamalt fólk þarfnast líkamsæfinga til að halda heilsu. En ég geri ýmsa snúninga kring um húsið, og hefi minn eigin garð. Eg nýt ekki útvarpsins vegna heyrnardeyfðar en les blaðið á hverjum degi og heim- sæki kunningjana”. Eftirtektarverð er áherzlan, sem þetta fólk leggur á, að vera með öðru fólki og persónuleg framtakssemi þess. Mismunur- inn milli þeirra ánægðu og óá- nægíju er ekki einungis fjöl- breyttari starfsemi, heldur af- staða þeirra gagnvart lífinu”. — Þetta níræða fólk er í flestum tilfellum bjartsýnt raunsæis- fólk eða raunsætt bjartsýnis- fólk. Fæst af þessu fólki er í þeim kringumstæðum, sem taldar eru nauðsynlegar til að geta verið hamingjusamur. — Ánægjulegt fjölskyldulíf, fullnægjandi vinna, góð heilsa, áhyggjuleysi. En það hefir lært að sætta sig við sínar kringumstæður, líkam legt vanmætti, efnalega örðug- Sumum skriffinnum er illa við að leiðrétt sé mishermi í ritum þeirra, þó undarlegt sé, en samt finst mér óþolandi að tímarit sem bundin eru í bækur til fróð leiks og skemtunar, flytji mikið fimbulfamb, án þess að -það sé leiðrétt. Sérstaklega ef það er ritstjóranna eigið skrif. Eg var að lesa “Brautina”, Ársrit Sambands Kirkjufélags- ins, og beitti athygli minni að sögu Unítara-hreyfingarinnar, sem hófst hér á landi meðal Is- lendinga um 1880 með forgöngu Björns Péturssonar, og fulltingi Jóns Ólafssonar. Þar stendur skrifað: “Björn hafði fengið góða mentun, var langt kominn í Latínuskólanum á Bessastöðum, þegar hann vék' þaðan sökum óeirða, er hófust þar gegn Agli Sveinbjörnssyni skólameistara, árið 1850”. — Mér þótti þetta skoplegt skrum, þar eð ég vissi að Bessastaðaskóla var lokað 1846, og settur niður í Reykjavík undir stjórn þess mæta manns, Sveinbjarnar Egilssonar. Hann tók hart á drykkjuskap skólapilta sem rétt var, sem þá snerust illa við, og gerðu uppreisn, með Arnljót Ólafsson í brjósti fylk- ingar, og hrópuðu rector niður. — pereatið — Sveinbjörn fékk þó fulla viðurkenningu árið eft- ir, og hélt áfram skólastjórn, en létst skömmu seinna, 1852. Eg fór að leita í skólaskýrslum íslands, en þar fanst ekki nafn Björns Péturssonar. En í þing- skýrslum íslands fann ég feril hans: Fæddur 1826, las einn vet- ur, 1848 í Latínuskóla Reykjavík ur, en lauk ekki prófi. Björn var þingmaður Sunn- mýlinga í 8 ár, 1859—’67. Var bóndi á Islandi 26 ár, fór til Ameríku 1877 og hneigðist brátt að trú Unitara — Eingyðis- manna. — Þessa leiðréttingu vona ég brautingjar taki upp í næsta Ársriti Brautar, sem ég gef í góðum tilgangi, svo íslend- ingar á Fróni sjái að við hér er- um ekki allir áttaviltir í Sögu Islands á næstliðinni öld. Þessi Egill Sveinbjörnsson sem H. J. nefnir, var eigi til í skóla- stjórn íslands. Við dauða Sveinbj. Egilsson- ar, var Jóni Sigurðssyni forseta, boðið rektorsembættið, en sem meinti afskiptaleysi af stjórn- málum íslands, en Jón hafnaði slíku, en var lífið og sálin í frelsisbaráttu íslands, sem end- aði með fullum sigri 100 árum leika og einstæðingsskap, sem mörgum yngri manneskjum myndi þykja ræna lífið allri á- nægju. Bezta sönnnunin fyrir þessari bjartsýnis-afstöðu aldraða fólks- ins er, að 64 prósent kvaðst vera mjög ánægt með lífið, en aðeins 46 prósent af fullorðna fólkinu í heild sinni gat sagt það sama. Sennilega er flest þetta fólk heilsugott, annars hefði það ekki náð þessum aldri; en þó þjáist það af ýmsu, sem yngra fólkið myndi telja mikinn heilsu brest. Helmingur þess hefir slæma sjón og helmingur þess þjást af heyrnardeyfð; einn fimmti hluti er líkamlega lam- aður og það þjáist af hjnum og öðrum kvillum. Þegar það talar um að heilsan sé góð, á það við, að hún sé góð þegar litið sé á, hve gamalt það sé. “Eg er láns- samur, ég ætlast ekki til að geta verið eins fjörmikill eins og ég var fyrir 40 árum”. Hið lífsglaða níræða fólk sætt- 'ir sig við kringumstæður sínar. Það nýtur lífsins eftir því sem kringumstæðumar leyfa því; það trúir á vinnuna sem heilsu- gjafa; það fylgist með því sem er að gerast, eftir mætti. Það er bjartsýnt, raunsætt og rólynt. Hvað mataræði snertir kom þeim flestum saman um að var- ast skyldi ofát en borða flest sem að munni kæmi. eftir að Jón Sigurðsson hóf frels isstríðið. Bjarna Jónssyni var svo veitt rektorsembættið 1852, sem hann hélt nær 17 ár. Hann var grófur drykkjumaður, svo sumir efast um, hvort skólinn hafði meira gott en illt af honum — Jón Þorkelsson. — Hann þvældi sam an dönsku máli og íslenzku eins og Kr. Jónsson gerir honum upp orðin. “Nú dugar ei meir minn cogníaks kútur Kvennfólks dálætið það slær klik, bakdyrum fer öndin út úr, af Interessi for gamel Skik”. Eftir “pereatið” var Arnljótur einn rekinn úr skóla fyrir eitt ár. Hann blandaði sér snemma inn í stjórnmál íslands og var oftast á öndverðum meið við stefnu Jóns Sigurðssonar og læt- ur eftir sig lélegan orðstýr í íslenzkri pólitík. Björn Pétursson var ágætur maður, og efalaust fengið góða alþýðumenntun. Hann var vel ættborinn, Pétursson Jónssonar á Krossi í Landeyjum og Anna móðir hans í beinan karllegg komin frá Finnboga Maríulausa sem var 25 ár lögmaður, 1484— 1508 og frjálslyndur í trúmál- um. Hann var mjög kynsæll í Þingeyjarsýslu, og afkomendur hans sýslumenn og svo prestar alt niður til Tryggva Þórhalls- sonar Bjarnasonar biskups. Heill sértu Halldór! Tveir merkir fornleifafundir Fyrir skömmu er hafin rann- sókn á tveim fornum grafreit- um hér á landi. Er annar þeirra suður á Garðskaga og talinn frá söguöld, hinn á Skarðsströnd, og er álitið að hann muni vera frá því á miðöldum. Grafreiturinn á Garðskaga er talinn eitt hið merkilegasta viðfangsefni í mann fræði rannsóknum hér á landi. Yngri grafreiturinn var mönn um áður ókunnur, og fanst hann fyrir tilviljun eina. Bóndinn að Krossi á Skarðsströnd var að slétta út túnhól, skammt frá bæjarhúsunum og kom þar þá niður að beinagrind. Hann lét þjóðminjavörð þegar vita um fund þennan, og var Kristján Eldjárn magister sendur til að framkvæma þar rannsóknir. — Komst hann að raun um, að hér mundi um grafreit frá miðöld- um að ræða. Einnig fann hann tóftaleifar, sem hann taldi sýna, að þarna hefði einhverntíma bænahús staðið. Sannar það og álit hans, að í máldaga Skarðs- kirkju frá því árið 1327, segir: “og með söng að Krossi”, og mun þar átt við tíðasöng að bæn húsi þar. Bænahús voru víðs- vegar í kirkjusóknum um og eftir miðja 14. öld, voru grafreit ir við sum þeirra, eða að minsta kosti um nokkurt skeið. Og ekki er svo ýkja langt síðan, að ein- hverjar menjar sáust um þau, er lengst stóðu, og einum bæn-hús- grafreit mun vera enn viðhald- ið; síðustu árin hefir hann verið notaður sem ættargrafreitur. Um grafirnar eða dysjarnar suður á Garðskaga er það að segja, að þær eru áður fundnar og þá nokkuð rannsakaðar. Þær eru við sjó niðri í Hafbjarnar- staðalandi; er getið um þær rannsóknir í Skýrslu Forngripa- safns Islands, II. árg. 1867—’70 og skýrt frá munum, er séra Sigurður P. Sívertsen, þá prest- ur að Útskálum, hefir sent safn- inu þaðan og eru 7 dysjar nefnd ar í skýrslunni. Samkvæmt þjóð sögnum var áður haldið, að þar 80 íslenzkir skátar fara í dag á skátamót á Frakklandi Skálaljaldborg með íbúafjölda á við Reykjavík rís upp nálægt París Á næstu þremur dögum rís upp mikil skátatjaldborg í Mos- son á Frakklandi skammt frá París. Verður tjaldborgin á stærð við Reykjavík, og íbúar hennar um 43 þúsund skátar frá 42 þjóðum. Þarna verður Jam- boree-mótið háð að þessu sinni og sækja það 80 íslenzkir skátar frá 15 skátafélögum víðsvegar um landið, og er þetta stærs.ti skátahópur, sem farið hefir héð- an á alþjóðaskátamót. Alþjóðaskátamótið í Mosson hefst 6. þessa mánaðar og stend ur yfir til 21. Þetta er fyrsta alþjóða skátamótið, sem háð er eftir styrjöldina, en mótin eru annars haldin á fjögurra ára j fresti. íslenzkir skátar hafa þrisv ar sinnum áður tekið þátt í Jamboree, í Englandi árið 1927; f Ungverjalandi 1931 og í Hol- landi 1932. Það mót sóttu 32 ís- lenzkir skátar. Fararstjóri íslenzku skátanna verður Páll Gíslason stud. med., en um sýninga íslandsdeildar- innar á mótinu sór Helgi S. Jónsson frá Keflavík. Alþýðu- blaðið hitti hann að máli í gær og spurði hann frétta um þetta fyrirhugaða mót. Sagði hann, að eftir að mót- væru þeir dysjaðir, Kristján skrifari og “nokkrir hans fylgj- ar” en fundnu munirnir þóttu sanna að dysjamar væru miklu eldri, eða frá söguöld. Sjór brýt ur þarna land og munu dysja- stæðin hafa eyðst síðan um 1860, en fyrir skömmu var því veitt athygli, að bein stóðu út úr rofbakkanum, og var þá rann sókn hafin þarna. Framkvæmdu þeir Kristján Eldjárn magister og Jón Steffensen prófessor rannsóknina. Fundu þeir þarna tvær grafir, sem ekki hefir áður verið við hróflað, og leikur eng- inn vafi á, að þær séu frá sögu- öld. Ekki fundu þeir gripi þarna, svo nokkru næmi, en fundur þessi hefir samt mjög mikla þýðingu á mannfræðilegu sviði, þar eð jarðvegur er þarna salti og klaki blandinn og beinin hafa því varðveitzt furðu vel.’ Alþbl., 2. ágúst. inu í Mosson lyki, væru íslenzku skátarnir boðnir til Parísar af frönsku skátunum en þar á eft- ir til London í boði brezkra skáta, og hefir þeim verið boðið að dvelja þar í 8—10 daga. Á alþjóða skótamótinu í Mos- son verður sérstakur leikvangur fyrir hverja þjóð, og ennfrem- ur hefir hver þjóð sitt sýningar- svæði. í sambandi við mótið verða ýmsar ráðstefnur hinna einstöku deilda í skátahreyfing- unni og að lokum fer fram kosn- ing yfirstjórnar skátahreyfing- arinnar. íslenzku skátarnir munu reyna að koma þarna upp myndarlegri landkynningarsýningu í mynd- um. Verður lögð áhersla á að sýna landið sem ferðamanna- land, enn fremur verður sýning- ardeild fyrir sögu og bókmennt- ir þjóðarinnar, atvinnuhætti og framleiðslu, æskulýðsmál og í- þróttir og um þátttöku íslands í alþjóðamálum og framlag þjóð- arinnar til sameinuðu þjóðanna og alþjóða hjálparstarfsemi. Loks verður sýnd litkvikmynd meðal annars af Reykjavík og fleiri stöðum. Þá munu íslenzku skátarnir hafa sérstaka verzlun þarna og selja meðal annars nýrunnið Hekluhraun, íslenzka skinna- vöru og hluti búna til úr skinn- um og fleira. í lok alþjóða skátamótsins munu Norðurlandaskátarnir halda sameiginlega ráðstefnu undir forsæti Folke Bernadotte. íslenzku skátarnir leggja af stað á alþjóðamótið í dag og fara loftleiðis til París með “Heklu”, Skymasterflugvél Loftleiða. — Verða þeir að fara í tveim hóp- um og fer sá fyrri klukkan 6 í kvöld, en sá síðari á þriðjudag- inn. Undanfarna þrjá daga hafa all ir skátarnir, sem fara á mótið, dvalið á skátaheimilinu hér í Reykjavík og æft vikivaka, kór- söng og glímu, sem þeir munu sýna á alþjóða leikvanginum. Alþbl., 3. ágúst. Forseladóttir í húsnæðis- vandræðum. Margaret, dóttir Trumans for- seta, hefir mikinn áhuga á því að gerast óperusöngkona. Hún hafði í því sambandi ráðgert að flytja til New York, en verður að hætta við það, í bráð, að minsta kosti, vegna þess að hún gat enga íbúð fengið þar. FOOD IS URGENTLY NEEDED IN BRITAIN The British people are struggling through a very critical period in their economy under circumstances which have reduced their rations, both of food and clothing, to a point considerably lower than at any time during the war. This grim report of life in Britain in the Summer of 1947 is one of many heard and read about in the past few weeks. I During a six-weeks’ stay, a Canadian who was living on standard rations in Britain, reported that he received only a small ration of meat once a week. COMPARE THIS RATION TO OURS . . . QUITE A DIFFERENCE, ISN'T IT? The Rotary Club of Winnipeg is campaigning for Food Parcels for Britain. This food, so desperately needed, has been selected for its vitamin content to help balance Britain’s diet. We cannot emphasize too greatly the urgency for these food parcels. GIVE YOUR DOLLARS TO THIS WORTHY CAUSE. Let’s do our share to help Britain, who did more than her share, to save our Canadian way of living. Send your contributions to the office of the Rotary Club of Winnipeg, 154 Royal Alexandra Hotel, Winnipeg, Manitoba. Tliis space contributed by The Drewrys Limited BPX—1

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.