Lögberg - 23.10.1947, Síða 3

Lögberg - 23.10.1947, Síða 3
LÖGBERG, FIMTQLAGINN 23. OKTÓBER, 1947 3 Vingjarnleg rödd frá Íslandi (Frændi minn, Bjöm Þorkels- son, fyrrum bóndi í Hnefilsdal á Jökulsdal, sendi mér alveg ný- verið þessa vingjarnlegu kveðju að heiman, ásamt því erindi, sem hér fer á eftir; hann er mikill at- hafnamaður, og var, að því er eg bezt veit, fyrsti bóndinn á Jökul dal, er raflýsti bæinn sinn. Björn er nú búsettur í Hveragerði í Ölfusi; þökk sé honum fyrir þessa kærkomnu sendingu. Bjöm á einn bróður vestan hafs, Halldór Þorkelsson, sem á heima í bænum Ashern í Mani- toba. Erindið sem hér fer á eftir “Með sól og degi”, var samið fyrir héraðsmót við endurreisn lýðveldisins á íslandi árið 1944. Ritstj.). Hveragerði, Árnessýslu, 10. okt. 1947 Góði frændi: Hugurinn reikar víða. Er það ekki einhver dásamlegasti eigin- leiki mannskepnunnar að eiga þennan þögula síkvika miðil, sveimandi um alla heima og geima tilverunnar, án þess að af honum verði tollur tekinn, eða honum markaður bás af for- skriftum skömtunar- eða hegð- unarreglna? Jú, vissulega. Á þessum æ- varandi kynnisförum hugans lif- um við mest og bezt — lærum flest, minnumst alls og röðum í óskasjóð minninganna. — En hvað þá, ef hugurinn hvarflar — villist inn á óhrein svið og ömur- leg? Er þá rúm í óskasjóðnum? Já — hugurinn lærir (á að læra) að sópa, hreinsa, fága og þvo — sundurgreina og skilja — þá kemst alt með röð og reglu í óskasjóðinn. Mér varð að hvarfla huga til ykkar heiðursgesta, vestan að, í fyrra. Þótti mér innilega vænt um komu ykkar, en einkum stöðvaðist hugur minn þar, er þú varst. Tel eg þrjár ástæður liggja til þess. 1 fyrsta lagi hefi eg það fyrir satt að við séum frændur, þar sem móðurafar okkar voru bræður. (Hamingjan forði mér frá því að hætta mér út í ættfræðina). 1 öðru lagi hefi eg kynst bræðrum þínum náið og haft ærið mikið saman við þá að sælda, taldi því sjálfgefið að leyniþræðir hugans ættu kunnar slóðir að rekja til þín. í þriðja lagi er þess að geta að mér finst ætíð að eg eigi hvert bein í Vestur-íslendingum, er heim koma — eins og bræður væru eða systur, jafnvel mín eig- in börn, Hví þá það? — Jú, ég lít svo á að Islendingar, sem vest- ur fluttu, hafi int hlutverk sitt, svo vel og rausnarlega af hendi, sem landnemar og borgarar í framandi landi, hafi haldið svo rækilega uppi heiðri sínum, heiðri allrar þjóðarinnar austan og vestan hafs, að sjálfgefinn, kærkominn mælikvarði megi teljast á manngildi Islendinga, heilindi og þrek. Eg var rétt fyrir skemstu að lesa ritlinginn þinn “Hugsað heim” í annað eða þriðja sinn. Mér þykir svo vænt um þann hlýja, notalega “hug”, sem þar sveimar yfir vötnum. Og svo fór eg að hugsa og hugsa. Sendi þér þessar línur út frá þeirri hugsun, og svolítið erindi, hugs að og párað með ritblýi, fyrir þremur árum, í sambandi við héraðsmót, en það sá aldrei dags- ins ljós. En þú kynnir að vilja líta yfir þetta og gætir komist fram úr því, vænti eg að þú sjá- ir, hvernig mér finst réttast og hagkvæmast, að rökstyðja það, svo ekki verði í móti mælt, að meira enn lítið sé í íslendinga spunnið — að fornu og nýju. Með beztu óskum. Þinn einl. Björn Þorkelsson frá Hnefilsdal Með sól og degi Eftir Björn Þorkelsson Fjórðungsmót þau, sem nú eru farin að tíðkast, og félagsleg samtök með mönnum, úr sama landsfjórðungi, er fluttst hafa í framandi bæi, eða héruð, minna fyrst og fremst á þjóðrækni — á vakandi vitund um eigið mann gildi og ræktarsemi við átthaga og óðul, erfðir og háttu fóstur- slóða. Minningin treystir hinar líf- rænu sambandstaugar við heimahaga og hvetur til sjálfs- prófunar og dáða. Út frá þessu sjónarmiði, þess- ari hugsun, minnist ég hinnar látlausu, einföldu spurningar Krists: Hvern segið þér mig vera? Hvern segið þér Islend- ipginji veora — ísfenzku þjóð- ina? Er það okkur metnaður eða vansi að spyrja? Hvernig er saga þjóðarinnar og samvizka, að þessu leyti. Er það ómaks- ins vert að halda fjórðungsmót til virðingar átthaga — rækt og þjóðrækni, og trúarstyrkingar á manndóm og frama, vöxt og viðgang? Af ávöxtunum skuluð þér þekkjast”. Forfeður vorir yfir- gáfu átthaga sína og óðul, til að setjast að í framandi, óbygðu landi. Hina fyrstu prófraun sína, að nema landið og byggja og leggja efni til, og grundvöll- inn að hinum óviðjafnanlegu bókmenntum, leystu forfeður vorir með þeim ágætum, að aldrei mun fyrnast. Enda bauð landið fram sinn gjöfula, ó- ósnortna faðm, og sól frelsis og sjálfstæðis skein í skæru heiði. Þegar á landnámsöld var það Ijóst, að hér voru meira en miðl ungsmenn á ferð. Þeir höfðu flutt inn veilulausan kjarna og skíra gull, í áræði, dugnaði, höfðingslund og frelsisrækt. En — þar sem við ekkert er að stríða, en engan sigur að fá. Og vissulega kom langvinnt og þrálátt stríð. Fyrst hinar illvígu róstur Sturlungaaldar, sem end- uðu með formyrkvun þeirrar sólar, sem best hafði vermt og nært hinn unga, þróttmikla stofn — og svo öðru hvoru fram eftir öldum, ísar og harðæri, eld- gos, drepsóttir og verzlunará- nauð. Þetta var langvinn og af- ar hörð prófraun. En út úr þreng ingunum kom íslendingurinn að vísu með lamað þrek í bili, en ókalinn á hjarta. Honum hafði tekist að varðveita hinn arf- borna kjarna, halda gullinu hreinu. Það er ekki nóg að segja þetta. Þetta verður að rök- styðja. Það vill nú svo vel til, að þetta er auðvelt að gera, svo að ekki verður um deilt. Enda velt ur von okkar og trú að mestu leyti á svarinu. íslendingar sóttu enn fram og stofnuðu til nýs landnáms á Vesturheimi, á síðari hluta nítjándu aldar. Þetta nýja land- nám má skoða sem einskonar opinbert, alþjóðlegt próf á manngildi Islendingsins, hjarta og sál. Það sýnir að þrátt fyrir undangengnar þrengingar, hef- ir hann geymt og ávaxtað sitt pund í kyrþey. Hann hafði ekki glatað hinum arfborna mann- dómskjarna, og gat því fram- vísað hreinu, skíru gulli. Þessi prófraun er enginn hé- gómi, því í hinu nýja landnámi var við að etja fleiri þjóðir, af traustum stofni, er þegar höfðu farið eld um landið, og hyllt sinn arinn. íslendingurinn stóðst prófið með ágætum. Hefir unnið sér, með fullri sæmd, sæti í fremstu röðum, jafnvel há-sætið, ef rétti lega er miðað við fjölda og að- stæður. Þetta er hið mikla, glæsilega próf um það, hver ís- lendingurinn er, þegar hann fær svigrúm og sjálfsæði til að neyta sinna meðfæddu, arf- bornu dáða. — Hjartað ókalið af ísum, ósvið- ið af eldum, ólamað af kúgun. — íslendingurinn hefir alla stund sótt fram með sól og degi — undir sól og dag. — Frá átt- högunum í öndverðu, vestur til Islands, og svo áfram, þegar á landnámsöld, vestur til Græn- lands og Ameríku. Og svo að síðustu hið fræga landnám síð- ustu alda — á sömu heillabraut. Af því landnámi höfum við þeg ar margt lært, og mun þó meira síðar. — Það á að vera okkur hvatn- ing til dugs og dáða. Það á að kenna okkur að leita að og finna verðmæti, er leynast með okk- ur sjálfum, er heima sátum, af því að við höfðum ekki tæki- færi til að nota hið glögga gests augu, eins og sá er út sótti. Islendingar, er vestur fluttu, hurfu margir frá köldum arni, með hálfköldum kveðjum. Samt reyndist hjartað heitt og traust, er hin nýju verkefni í nýju um- hverfi, kölluðu til dáða. Sækjum áfram undir sól og dag, ekki til landsnáms í fram- andi álfum, heldur til aukins skilnings, og verðugs mats, á eigin fósturfold — moldinni heima. Þar er vissulega óunn- in álfa, sem bíður eftir dáðrík- um landnemum. Sækjum undir sól og dag til aukinnar menningar og frama — höldum okkur við braut heillastjörnunnar sem fer með sól og degi. Þegar ég hugsa um lífsferil þjóðarinnar, baráttu hennar og sigra — hvað hún er í dag, og hvernig hún hefir varðveitt sín helgustu verðmæti — þegar ég hugsa um þá dásamlegu vernd sem yfir henni hefir hvílt í yfirstandandi styrjaldarógnum — þá get ég ekki varist því, að láta mér til hugar koma, að einnig við Islendingar mættum teljast með þeim mönnum, er Björnson segir um: Þar sem góðir menn fara, þar eru guðs vegir. Miklar framkvæmdir á Ísafirði Hafnargerð, ný vatnsveiia, stækkun aflsstöðvarinnar, vegagerð o. fl. Á ísafirði hefir verið mikið um verklegar framkvæmdir, og enn eru aðrar á döfinni, sem ýmist er byrjað á, eða eru í undirbúningi. H e f i r Sigurður Halldórsson, ristjóri á Isafirði, skýrt Vísi í höíuðairiðum f r á framkvæmd- um þessum. Byggingar. Stærstu byggingaframkvæmd- ir á ísafirði um þessar mundir eru verkstæðisbygging, sem Vél- smiðjan Þór er að láta byggja, 1100 fermetra að flatarmáli. ísafjaraðarkaupstaður h e f i r m i k 1 a íbúðarhússbyggingu í smíðum. 1 henni verða 12 þriggja herbergja í b ú ð i r með stórum stofum. Búið er að steypa kjallar- ann og neðri hæðina, og er í þann veginn verið að byrja á efri hæð- inni. Ennfremur er töluvert um íbúðarhúsabyggingar h j á eins- taklingum. Hafnarframkvæmdir Unnið er að byggingu hafnar- bakka, sem verður 220 m e t r a langur. Allri undirhleðslu er þeg- ar lokið, en eftir að reka niður járnin í bakkann. Gert er ráð fyrir að því verði lokið í haust. Ný vatnsþró í undirbúningi er bygging nýr rar vatnsþróar, sem tekur 1200 tonn. Verður hún byggð í svo- kallaðri Stórurð, sem er í hlíðin- ni fyrir ofan kaupstaðinn. Enn- fremur verður lögð ný vatnsveita niður í bæinn, þar sem sú gamla e r e k k i lengur fullnægjandi. Hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að fá efni í vatnsleiðsluna erlendis, og er sumt af því kom- ið. Er nú byrjað að grafa fyrir pípunum. Stækkun rafvirkjunarinnar Rafmagnsskortur hefir verið á ísafirði undanfarin ár og nauð- syn borið til þess að stækka afl- stöðina v i ð Nónhornsvatn. Nú er ráðgert að hefjast handa í haust og byrja á stækkun stíflunnar. Vegagerðir I allt sumar hefir verið unnið af fullum krafti að Bolunga- víkurveginum og miðar vega- gerðinni ört áfram. Má gera ráð fyrir, að með sama eða svipuðu áframhaldi, komist vegurinn alla leið næsta sumar. Vega- gerð þessi er óvenju miklum erfiðleikum bundin, því að veg- urinn liggur hátt uppi í fjalls- hlíðinni og hefir orðið að sprengja hann þar inn í kletta og björg: Þá er og unnið að veginum milli Súðavíkur og ísafjarðar, og er í þann veginn verið að byrja á sprengingum gegnum svokallaðan Álftafjarðarhamar, en þar er gert ráð fyrir að jarð- göng liggi gegnum hamarinn. — Gera má ráð fyrir að vegarsam- band komist á milli Súðavikur og ísafjarðar á næsta sumri, ef sprengingar þessar tefja ekki um of fyrir framkvæmdum. Ísfirðingar hafa nýlega feng- ið stórvirk vegavinnutæki, til viðbótar þeim, sem fyrir vOru, svo sem vegahefil, ýtu og ámokstursvél. Von er á fleiri slíkum tækjum á næstunni. Með framangreindum vega- íramkvæmdum kemst ísafjarðar kaupstaður í vegasamband við nærliggjandi þorp, og er að þessu stórmikil samgöngubót, því að til þessa hafa allar samgöngur milli þessara staða farið fram á sjó. — Úigerð Allir bátar eru nú komnir af síldveiðum, og er afli misjafn, eins og gerist og gengur, en al- mennt er hann þó lítill. Aðeins einn bátur frá ísafirði, eign Samvinnufélags ísfirðinga, fer á reknetaveiðar. Heyskapur i Heyskapur hefir verið með betra móti í nágrenni ísafjarðar í sumar, þrátt fyrir mikla ó- þurrka. Heyspretta var líka með allra bezta móti, og það sem hjálpað hefir ýmsum bændum þar vestra, eru súgþurrkunarvél ar, sem komnar eru á nokkra bæi, þar á meðal á bæði bæjarbú ísfirðinga. Vísir, 13. september. Flóð í Ölfusi Úrkoman, sem fylgdi illviðr- inu, sem gekk yfir landið eftir miðja vikuna, olli m. a. miklu tjóni í ölfusi. Ölfusá tók mjög að vaxa í fyrradag, þar sem allir lækir urðu að beljandi vatnsföllum og hélt áin áfram að vraxa í gær. Þá var hún þegar búin að flæða yf- ir bakka sína og taka um 1000 hesta af heyi, sem var tiltölu- lega ný slegið og bændur höfðu gert sér góðar vonir um að bjarga í hús lítt eða ekki skemmdu. Vísir, 13. september. Business and Professional Cards H. J. STEFANSSON Life, Accident and Health lnsurance Representing THE GREAT-WEST LIFE ASSURANCE COMPANY Winnipeg, Man. Phone 96)144 DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Office hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 DR. A. V. JOHNSON Dentlst 606 SOMERSET BUILDINQ Teiephone 97 932 Home Telephone 202 398 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 7 VINBORG APTS. 594 Agnes St. ViBtalstlmi 3—5 eftir hádegl Talsrtmi 95 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN SérfrœSingur i augna, eyrna, nef og kverka sjúkdómum. 215 Medical Arts Bldg. Stofutimi: 2.00 til 5.00 e. h. DR. ROBERT BLACK BérfrœOingur i augna, eyma, nef og hdlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofusími 93 851 Heimasími 403 794 EYOLFSON'S DRUG PARK RIVER, N. DAK. islemkur lyfsaU Fölk getur pantaS meSul og annaS meS pösti. Fljót afgreiSsla. A. S/BARDAL 848 SHERBROOK STREET Selur llkkistur og annast um öt- farir. Allur ötbönaSur s& besti. Ennfremur selur hann allskonar minnlsvarSa og legstelna. Slcrlfstofu talsiml 37 324 HelmiUs talslmi 26444 Geo. R. Waldren, M. D. Physician and Burgeon CavaUer, N. D. Office Phone 95. House 108. PKINCE// MESSENGER SERVICE ViS flytjum kistur og töskur, hösgögn ör smærri tbúSum, og húsmuni af öllu tæi. 58 ALBERT ST. — WINNIPEG Simi 25 888 C. A. Johnson, Mgr. TELEPHONE 94 358 H. J. PALMASON and Company Cliartered Aecountants 1101 McARTHUR BUILDING Winnipeg, Canada Phone 49 469 Radio Service SpeciaUsts ELECTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 DSBORNE ST., WINNIPEG G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.st). Verzla I heildaölu meö nýjan og frosinn flsk. 303 OWENA STREET Skrlfst.simi 25 355 Heima 65 462 Hhagborg U FUEL CO. n Dial 21 331 21 331 Oíflce Phone Res Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 526 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannlæknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 96 952 WINNIPEG Dr. Charles R. Oke TannUeknir For Appointments Phone 94 908 Offlce Hours 9—8 404 TORONTO GEN. TRU8T8 BUILDING 283 PORTAGE AVE. Winnlpeg, Man. SARGENT TAXI PHONE 34 655 For Quick Reliable Servioe J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPO. Fasteignasalar. Lelgja hö*. Ct- vega peningal&n og elds&byrgö bifreiöa&byrgC, o. ■. frv. PHONE 97 538 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœöingar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Simi 98 291 GUNDRY PYMORE Limited British Qualíty Fish Nettlng 60 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDBON Tour patronage will be appreciated C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Managing Direetor Wholesale Distributors of Frjeh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.