Lögberg - 06.11.1947, Blaðsíða 3
LOGBKRG. FIMTUDAGINN 6. NÓVEMBER, 1947
3
Heildarútgáfan á verkum Hagalíns
Guðmundur Gíslason Hagalín,
rithöfundur verður fimmtugur
á næsta ári. Hið fyrsta, sem eftir
hann sást á prenti, var kvæðið
Vorþrá, sem birt var í vikublað-
inu Landinu 27. apríl 1917, og
eru því liðin rúm þjátíu ár, síð-
an Hagalín kom fyrst fram á
vettvang íslenzkra bókmennta.
Fyrsta bók hans kom út árið
1921, en síðan hefir hann bætt
við 22 bindum, skáldsögum,
ævisögum og bókum, sem fjalla
um skáldskap og menningarmál,
en auk þess hefir hann skrifað
fjölda af greinum í blöð og tíma
rit, um innlenda og erlenda
menn og menntir. Oft hefir stað
ið styrr um Hagalín út af við-
horfum þeim, sem franj hafa
komið í skrifum hans um bók-
menntir og hlutverk þeirra —
og þá einkum á síðustu árum, en
hann hefir látið þessi efni i æ
meir til sín taka í skrifum símim.
Á árunum 1921—1923 skrifaði
Guðmundur Hagalín ýmsar
greinar, sem bera þess ljóst vitni,
að hann hefir furðufljótt mark-
að sér þá stefnu á sviði bók-
menntanna að íslenzkum skáld-
um beri að fylgjast með því,
sem fram fer í umheiminum, en
hafa fyrst og fremst að grund-
velli íslenzkar menningarerfðir.
Rithöfundarnir skulu gerast leið
togar þjóðarinnar í menningar-
málum “nú á þessum upplausn-
artímum, sem óhjákvæmilega
fara í hönd, þegar langþráðu
marki pólitísks sjálfstæðis er
náð og menn óvissir, hvert
halda skuli” — svo sem Hagalín
segir í júlí 1923 í grein í Ausl-
anfara, þá 24 ára gamall. Höfund
arnir verða því að finna ákveðna
leið, “ekki eins og andinn inn-
gefur þeim og ekki eins og
margar raddir hrópa handan
yfir hafið. Þeir verða að finna
leið, sem er í samræmi við þjóð-
arsálina”. Til þess eiga þeir “að
fara inn í hvert hreysi, kenna
þjóðinni með því að draga fram
kosti hennar og galla, en eink-
um með því að sýna fram á alls
staðar og í öllu, eitthvert gildi,
einhvern vísi að gróandi þroska,
heilbrigðu og náttúrlegu hugs-
analífi. Hér er nægilegt verksvið
Og einmitt hjá alþýðunni getur
að finna meiri, styrkari og hlýrri
frumsindur en nokkurn grunar.
Að þessari mannrannsókn
og mannrækt hafa skáld-
in unnið í öllum löndum og á öll-
um tímum og ættu þess vegna
að geta það enn
Þetta er í fylsta samræmi við
þau sjónarmið, sem Hagalín
heldur fram í greinum sínum
enn í dag, og ennframur er það
auðsætt við athugun á ritum
hans, að hann hefir ekki látið
sitja við orðin ein.
Guðmundur Hagalín lagði í
fyrstu all-mikla stund á ljóða-
gerð, og aðeins 19 ára gamall
orti hann kvæðið Svefneyja-
bóndinn, sem sýnir glögglega,
hvers hefði mátt af honum
vænta sem ljóðskáldi, ef hann
hefði haldið áfram að iðka ljóða
gerð. En hann vék sér rúmlega
tvítugur svo að segja eingöngu
að sagnaskáldskap. Hann hefir
skrifað um það bil 50 smásögur,
sem birst hafa á prenti, og eru
sumar þeirra með því fremsta,
sem hann hefir samið. Hinar
stærri skáldsögur hans eru átta,
en af þeim hafa hlotið almenn-
asta viðurkenningu og vinsæld-
ir, Kristrún í Hamravík, Sturla
í Vogum og Blítt lætur veröld-
in. Þá eru og ævisögurnar Virk-
ir dagar og Saga Eldeyjar-
Hjalta, mjög merkur hluti af rit-
verkum Hagalíns, og mun ekki
leika neinn vafi á, að þessi nýja
gerð Islendingasagna hefir átt
veiga mikinn þátt í því, hve
margt minninga- og ævisagna
hefir komið út á síðustu árum.
1 skáldritum og ævisögum eft-
ir Guðmund Hagalín er mikinn
fróðleik að finna um líf og menn
ingu þjóðarinnar á seinustu
þremur aldarfjórðungum — og
þá fyrst og fremst þeirra manna
er sjóinn sóttu. — Eru margar
lýsingar Hagalíns á sjósókn og
sæförum hinar gleggstu og áhrifa
ríkustu. Honum lætur og mæta-
vel að láta koma fram í sögum
sínum áhrif náttúruaflanna og
lífsbaráttunnar á mótun mann-
legrar skapgerðar, í ritum hans
er fjöldi af skýrum, og lifandi
New “Marvelaire”
Canadian General Electric
AIR CONDITIONER
The latest word for circulating fresh, washed air in
home or office. It features NEW IMPROVED THERMO-
STAT control—operates on high, medium or low. Made
of metal in grained walnut effect finish. Has top grill to
circulate air, and two sets of 3 each filter cloths. Operat-
ing cost—less than a 40-watt bulb. Overall size—11Y2 by
20 inches and 17 inches deep. iSí A A C
Priced, each á í)
Electrical Section, Seventh Floor, Donald
*T. EATON C°u
LIMITED
persónum, og eru sumar þeirra
þegar komnar í þann tiltölulega
litla hóp sögupersóna úr bók-
menntum íslendinga frá síðari
tímum, sem um er talað eins og
menn, er raunverulega hafi lif-
að. Hagalín hefir líka í bókum
sínum náð svo langt í þeirri
grein listar að sérgreina mál per
sóna sinna, að til fárra verður
þar jafnað. Þá er kímni hans
fágætt fyrirbrigði í íslenzkum
bókmenntum, og bregður hún
oft þannig skini yfir viðhorf
manna við vandamálum lífsins,
að því er gaumur gefinn og það
skilið, sem ella mundi verða
lesandanum torrætt — eða fara
fram hjá honum. Stíll Hagalíns
er fjölbreyttur og þó ávallt auð-
kennilegur og er fróðlegt áð at-
huga þær breytingar sem á hon-
um hafa orðið frá því, er höfund-
urinn skrifar fyrstu sögur sínar
og greinar og til þess dags og öll
þau tilbrigði, sem þar koma fram
— eftir kröfum efnisins.
Vitað er að flest rit Guðmund-
ar Hagalíns eru uppseld — og
hafa sum þeirra verið ófáanleg
um nokkurt skeið. Hefir löngum
verið lagt fast að bóksölum og
fornsölum um öflun þeirra, og
hefir oft borið á góma, að nauð-
syn bæri til nýrrar útgáfu. Og
nú hefir verið hafist handa um
þetta mál.
Nýtt bókmenntafélag hefir
verið stofnað hér í Reykjavík
og nefnist Kaldbakur. Tilgang-
ur þess er fyrst um sinn að gefa
út vandaða útgáfu af helstu
vetkum Guðmundar Gíslasonar'
Hagalíns og með svo hóflegu
verði, að hún geti orðið almenn-
ingseign. Fyrirkomulag hennar
verður með þeim hætti, að safn-
að verður áskrifendum, áður en
útgáfan hefst, og upplag bók
anna miðað við fjölda áskrif-
enda. — Verður hver bók seld
við kostnaðarverði, en engin
álagning vegna vanseldra ein-
taka. Öll eintök verða tölusett
og fyrsta eintak allra bókanna
áletrað af höfundi. Bæ'kurnar
verða eingöngu seldar í vönd-
uðu skinnbandi.
Samskonar fyrirkomulag og á
útg. Kaldbaks hefir nokkuð tíðk-
ast hér undanfarið, og má þar
fyrst og fremst nefna útgáfu
“Landnámu” á verkum Gunn-
ars Gunnarssonar, en af þeirri
útgáfu eru fyrstu bækurnar nú
þegar með öllu ófáanlegar.
Gert er ráð fyrir, að bækurn-
ar verði að minnsta kosti 10
bindi, 300—400 blaðsíður hvert
og komi eitt bindi á ári, hið
fýrsta næsta vor. Hverju bindi
mun fylgja sérstakur formáli
höfundar um efni þeirra og
sköpun verkanna. — í fyrsta
bindinu verða 15 nýjar smásög-
ur. —
Bókaútgáfan Helgafell, sem
eins og kunnugt er, annast af-
greiðsly fyrir félagið Land-
námu, hefir tekið að sér áf-
greiðslu á bókum “Kaldbaks”.
í útgáfuráði Kaldbaks eru
eftirtaldir menn:
Alexander Jóhannesson, -dr.
phil., Þorsteinn Þorsteinsson,
sýslumaður, Steingrímur Þor-
steinsson, prófessor, Birgir Kjar
an, hagfræðingur, Ragnar Jóns-
son, forstjóri, Vilhj. S. Vilhjálms
son, rithöfundur, Andrés Krist-
jánsson, ritstjóri, Kristján Eld-
járn, fornfræðingur, Ingimar
Jónsson, skólastjóri, Helgi Sæ-
mundsson, blaðamaður, Sigurð-
ur Bjarnason, alþingismaður
Jón Helgason blaðamaður, Bjarni
Vilhjálmsson, cand. mag., Þor-
steinn Jósepsson, blaðamaður,
Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri
Mbl. 6. sept.
MERKISKONA LÁTIN
Guðríður Agnes Gunnlaugson
lézt á almenna spítalanum í
Brandon, Man., 5. september,
1947 og var jarðsungin þann 8.
september að Brandon. Guðríð-
ur Agnes var fædd í Húnavatns
sýslu 21. janúar 1860 og voru for
eldrar hennar Jóhanna Zoega af
frægu Zoega-ættinni og Jóhann
Sigurðsson. Til fósturs var
Agnes tekin af þeim hjónunum
Þuríði og Gísla Sveinssyni á
Húnstöðum, og var hun hjá þeim
til fullorðins ára. í ljósmóður-
störfum útskrifaðist hún heima
á Islandi; og gegndi því starfi til
hárrar elli, og lukkaðist henni æ-
tíð prýðisvel.
Hún giftist heima á íslandi
Gunnlaugi Gunnlaugssyni og
fluttist þau til Canada árið
1887 og settust að í Brandon,
Man. En árið 1904 misti Agnes
mann sinn frá 9 börnum, en síðan
hafa 3 af þeim dáið, Stephan,
23 ára, Harold, 11 ára og annar
Harold, 3ja ára, en sex börn, sem
á lífi eru, eru þessi: Mrs. S.
Bjarnason og Mrs. Rosy Dodds,
báðar í Brandon — og Mrs. Isa-
bel McKay, California, Oscar,
Fort William, Ont., Agnar, North
Battleford, Sask., Fred, Port-
Moody B. C. Tvö systkini á
Agnes á lífi í þessu landi: Mrs.
Sigurjónu Bergman og Joseph
S. Jóhannson, bæði að Garðar,
N.-Dak. Hálfsystur mun hún
eiga heima í Reykjavík, en ég því
miður veit ekki nöfn þeirra.
Agnes var fríð kona, mjög smá
vexti, og fram úr öllu hófi brjóst
góð, hún hefði getað gefið bitan
frá munninum á sér til hvers er
hún héldi að væri þurfandi. —
Léttlynd var hún og glöð sem
henni veitti líka ekki af, því erf-
iðleikarnir voru oft miklir þar
sem hún stóð uppi ekkja með
mörg börn, sem hún þurfti að
vinna fyrir, en hún var sterktrú-
uð og það tók hana í gegnum
Agnes Gunnlaugsson
alla erfiðleika lífsins. Mestan
tímann í þessu landi dvaldi
Agnes í Brandon, fyrir utan fá-
ein ár í Winnipeg, Man. og Garð
ar, N. D., síðustu sex árin. bjó
Agnes hjá Rosy dóttur sinni í
Brandon og naut góðrar umönn-
unar þar, því hún hafði oft við
heilsuleysi að stríða, því hún var
útslitin en sálarfjör hafði hún
fram í það seinasta.
Þessi mæta og háaldraða kona
lætur eftir sig margt vina og
vandamanna, ecblessa minningu
hennar og þakka henni nytsamt
og vel unnið ævistarf.
Hvíl þú í friði, Agnes mín góð.
Sigrún Magnússon.
Frúin: “Eg sé að það er köngu-
lóarvefur þarna í horninu, Et-
hel. Hverjum er það að kenna?”
Ethel: “Köngulónni, frú mín”.
Mjög feitur maður bað læknir
að gefa sér ráð við því, að hann
svæfi alltaf með opin munninn.
“Herra minn”, svaraði læknir-
inn. “Þessi kvilli er ólæknandi.
Skinn yðar er orðið svo knappt,
að í hvert skipti, sem þér lokið
augunum opnast munnurinn”.
Business and Professional Cards
H. J. STEFANSSON
Life, Accident and Health
Insurance
Representing
THE GREAT-WEST JLIFE
ASSURANCE COMl'ANY
Winnipeg, Man
Phone 96)144
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Talsfmi 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœöingur i augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
215 Medical Arts Bldg.
Stofutími: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Sérfrcedxngur l siupna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofusími 93 851
Heimasími 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fólk getur pantað meðul og
annað með pósti.
Fljót afgrreiðsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur líkkistur og: annast um út-
farir. Allur útbúnaSur sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talslmi 27 324
Heimilis talstmi 26 444
!
Geo. R. Waldren, M. D.
Physician and Suroeon
Cavaller, N. D.
Office Phone 95. House 108.
ppncc//
MESSENQER SERVICE
ViS flytjum kistur og töskur,
húsgögn úr smœrri ibúSum,
og húsmuni af öllu tœl.
58 ALBERT ST. — WINNIPEG
Simi 25 888
C. A. Johnson, Mgr.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
1101 McARTHUR BUILDING
Winnipeg, Canada
. Phone 49 469
Radio Service Specialists
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELSON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment Systenj.
130 OSBORNE ST„ WINNIPEG
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SIMI 95 227
Wholeadle Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.stj.
Verzla i helldsölu meC nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA STREET
Skrifst Hfmi 25 355 líelma 55 462
H
HAGBO RG
FUEL CO.
H
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APTS.
594 Agnes St.
ViStalstimi 3—5 eftir hádegi
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office hrs. 2.30—6 p.m
Phones: Office 26 — Res 230
Otfiee Phone
94 762
Res Phone
72 409
Dr. L. A. Sigurdson
526 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hotirs: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
TannUeknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952
WINNIPEG
Dr. Charles R. Oke
TannUeknir
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVE.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 555
For Quick Reliable Service
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Fasteignasalar. Leigja húa. Ct-
vega peningalán og elds&byrgS.
bifreiSaábyrgS, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfræOinoar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Simi 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
60 VICTORIA ST„ WINNIPEQ
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDBON
Four patronage wlll be appreciated
CANADIAN FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAGE, Managing Director
Wholesale Distributors of Frjsh
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
Dlal 21 331
11)
21331