Lögberg - 13.11.1947, Síða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. NÓVEMBER, 1947
15
Eilífðareðli mannssálarinnar verður
ekki fjötrað né drepið í dróma
Á öllum öldum hefir verið
unnið á móti kirkju og kristin-
dómi, þeim meginsamtökum,
sem reynt hafa að glæða hið
guðlega eðli mannsins. — Mis-
jafnlega langt hefir verið geng-
ið í þessu niðurrifi, og oft hefir
virzt líta vel út með árangur af
þessu starfi. Þótt mikið hafi ver
ið lagt á sig í þessu efni, t. d. í
Þýzkalandi og Rússlandi, sanna
hin síðustu ár þó í báðum þess-
um löndum óumdeilanlega yf-
irskrift þessa greinarkorns.
Þjóðverjar hugðust hafa sigr-
azt á þessari veilu og vanmætti
í eðli mannanna. Þar er nú allt í
rúst.
Um nokkurt skeið, — fram á
allra síðustu ár, — hefir ræki-
lega verið unnið að því sama
með hinni rússnesku þjóð. Að
hún í hinum andlegu efnum
horfði ekki fram hjá hinum
dauðlega stjórnanda sínum.
Þrátt fyrir boð og bann í þess-
um efnum hefir enn sannazt
með hinni rússnesku þjóð, að
eilífðareðli mannsins og trú
hans á Guð verður ekki fjötrað.
Maðurinn og heimurinn í heild
getur ekki lifað heilbrigðu lífi,
í samræmi við fullkomna þróun
og þroska, án þess að hafa sam-
band við eilífðaruppsprettu
sjálfs lífsins.
Stálvilji hinnar rússnesku
þjóðar horfir nú algerlega fram
hjá Stalin, hversu góður og
gagnlegur^ sem hann kann að
vera sem stjórnandi þjóðar
sinnar. Það er mikilsvert tím-
anna tákn, og enn ein sönnun
um mátt og mikilleik þeirra
eilífu sanninda, sem aldrei
gangá úr gildi, að “maðurinn
Besta árnaðar óskir
til Lögbergs
* t Þar stendur til boða allt það nýasta og bezta, sem til húsbúnaðar heyrir. Einnig önnumst við um útfarir, og seljum það sem til þeirra hluta þénar.
PICO'S FURNITURE H0USE < • < • < < < • < < < <
CAVALIER. NORTH DAKOTA < < •
HAMINGJU ÓSKIR TIL
VIKUBLAÐSINS LÖGBERG
ASEXTUGAZTA
AFMŒLISDEGI ÞESS
Með þökk til Islendinga
fyrir góða viðkynningu og
viðskifti í liðinni tíð og óskir
vorar um framtíð og gengi
blaðsins og þeirra á komandi
árum. ,
Farmers Union
Oil Company
EDINBURG - NORTH DAKOTA
lifir ekki af brauði einu sam-
an”.
Þessi þjóð — þ. e. Rússarnir,
— sem reynt hefir verið að kúga
frá trú og kristindómi, hefir
slitið af sér öll bönd, og hefir
nú trúariðkanir um hönd, án
þess að vera lengur varnað það
á sama hátt og áður. En við,
sem lifum í þessum efnum sem
öðrum eftir geðþótta sem frjáls
ir menn, höfum á síðustu árum
verið í vaxandi mæli að loka
kirkjunum, meðan Rússar eru
að brjóta upp þá slagbranda,
sem fyrir þær voru settar.
Sennilega væri okkur hollt
og heillavænlegt í ýmsum efn-
um “að sjá hvað fara gerir”
hjá öðrum þjóðum. Við getum
sjálfsagt ekki, — og er ekki
hollt þó við gætum —, á öll-
um sviðum lifað sem óhófs-
menn og angurgapar. Svo bezt
öðlumst við virðingu voldugra
menningarþjóða, að heima fyrir
og á heimsþingum sjái staðina
að hér búi traust og trúuð
menningarþj óð.
Akranes.
Perlurnar
Það eru aðeins tvær aðferðir
til þess að finna hvort perla sé
ósvikin: að setja hana milli tann
anna eða bera hana upp við ljós
— skyggna hana. Ósviknar perl-
ur eru altaf dáltið hrjúfar en
gerviperlumar eru sléttari. Og
ósviknar perlur eru gagnsæjar
í útjöðrunum en gerviperlur al-
veg ógagnsæjar.
Fallegasta perlan, sem komið
hefir á markaðinn í síðustu
hundrað ár, náðist í Persaflóa af
indverskum kafara í október
1929. Hún var metinn á milljón
krónur. Einn maðurinn á bátn-
um varð vitskertur af að hugsa
til allra peninganna, sem hann
fengi í sinn hlut.
Eftirsóttustu perlurnar eru
svartgrænar á litinn. Þær eru
mjög sjaldgæfar. Brúnar perlur
eru ekki sérlega verðmætar og
rauðár perlur að heita má verð-
lausar. Gullnar perlur komast í
geypiverð ef liturinn er ekta.
Við ljósrauðar perlur er það
einkennilegt að þær eru flestar
óreglulegar í laginu.
Það var Eugenía drottning
Napoleons II., sem kom svörtu
perlunum í verð. Hún safnaði
sér úrvals svörtum perlum í
hálsfesti. Perlan í lásnum á þess
ari festi var seld í London fyrir
21.000 krónur.
í einni ostru hafa fundist 150
perlur.
Ein einkennilegasta perlan,
sem nokkurn tíma hefir fundist,
var hvít öðrumegin og svört
hinumegin. Vísindamenn hafa
ekki getað gefið neina skýringu
á þessu fyrirbæri.
Það var tíska hjá rómversk-
um konum að nota ostruskeljar
sem farðadósir. En í þessum
skeljum varð að vera perla og
helst sem fallegust, áföst við
skelina.
Perluveiðarar á Kyrrahafs-
eyjum geta kafað í meira en 35
metra dýpi. Þar er þrýstingur-
inn fimmfalt meiri en á þurru
landi. Perluveiðararnir geta ver
ið í kafi allt að þrjár mínútur.
Sú var tíðin að Bretlandseyj-
ar voru frægar fyrir perluskelj-
ar, og var þetta ein ástæðan til
þess að Julius Cæsar réðst inn (
England. Ein perlan í brezku
konungskórónunni fannst í
kræklingaskel við England.
Columbus kynntist ýmsum
perluveiðurum af Indíánakyni
þegar hann kom í eyjarnar í
Mexicoflóa. Indiánarnir notuðu
perlurnar í hálsfestar og höfðu
þá skoðun ó uppruna þeirra, að
þær væru daggardropar, sem
lent hefðu í skeljum. Sama þjóð
trúin var og í Evrópu.
Þegar Maria af Medici, kona
Hinriks IV. Frakkakonungs, hélt
syni sínum undir skírn árið
1601, var hún í kjól, sem var
settur 23.000 perlum.
Kleópatra Egyptadrottning
hefir drukkið einn dýrasta drykk
inn, sem nokkurn tíma hefir
komið í nokkurn maga. Hún
skopaðist, að hinum dýru veisl-
um, sem Antonius hélt henni til
heiðurs og sagðist skyldu halda
veislu fyrir hann, sem væri þús
undfalt dýrari. Veislan var hald
in og Antoniusi þótti skítur til
koma, því að maturinn var ofur
óbrotinn. En undir veislulokin
tók Kleópatra eina dýrustu
perluna, sem hún var með, leysti
hana upp í ediki og sötraði svo
í botn.
Kolkrabbar og hákarlar eru
hættulegaáttr perluveiðurimum
og svo sandskelin svonefnda,
sem verður svo stór og hún veg
ur stundum fast að því smálest.
Ef kafara verður stigið á svona
skel er úti um hann. Skelin held
ur honum eins og dýrabogi.
í austurlöndum voru perlur
oft notaðar til að greiða hernað-
arskaðabætur. í Kína voru
skattar greiddir með perlum
tvö þúsund árum f. Kr. Persar
töldu perlur meira virði en
gull.
Sir Thomas Gresham, enskur
auðkýfingur, sem uppi var á
tímum Elísabetar Englands-
drottningar, lét mala eina af
dýrustu perlum sínum, sem var
virt á 300.000 krónur, og át svo
sallann. Þannig vildi hann vekja
athygli á hve ríkur hann væri,
en sýndi um leið hvílíkt flón
hann var.
Frumstæðar þjóðir líkja
tunglinu oft við perlu. Á sum-
um tungumálum heitir tunglið
“perla himinsins”. í “Inferno”
Dantes er tunglið kallað “hin
eih'fa perla”. Enda var það einu
sinni trú manna, að undir viss-
um kringumstæðum gætu perl-
urnar lýst á nóttunni.
Móðirin: — kemur inn í
barnaherbergið: Hvaða læti eru
þetta í þér, Ella, sér er nú hver
ólmandinn og hávaðinn. Sérðu
ekki hvað Valdi bróðir þinn sit-
ur rólegur og drýpur ekki af hon-
um?
Ella: Hann á líka að gera það í
leiknum, mamma.
Móðirin: Hverskonar leikur er
það, þar sem stúlkurnar eiga að
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Pefler D. Curry & (o. Lld.
CURRY BUILDING
-Phone 98 431 Winnipeg. Manitoba
hrópa og ólmast, en drengirnir
að sitja steinþegjandi?
Ella: Við leikum pabba og
mömmu. Eg er þú, en Valdi er
pabbi, og þess vegna á hann bara
að steinþegja.
Hamingjuóskir til
LÖGBERGS
á sextíu ára afmælinu
1 888 - 1 948
Dr. K. J. Austman
209 Medical Arts Bldg. Winnipeg. Manitoba
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
Sherbrook F'lorists
618 PORTAGE AVENUE
Phone 36 809
Congratulations to
LÖGBERG
on its sixtieth anniversary
1888 - 1948
BROWN'S BREAD LTD.
SELKIRK MANITOBA
BEZTU ÁRNAÐAR
ÓSKIR VORAR
TIL LÖGBERCS
I TILEFNI
AF SEXTÍU ÁRA
AFMÆLI ÞESS.
\
N. C. ADAMS
Eigandi
MRRSHALL
WELLS
STDRES
CAVALIER
NORTH DAKOTA
I