Lögberg - 25.12.1947, Blaðsíða 1

Lögberg - 25.12.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21 374 I'ttUlldíoV S'Í°S''Í1‘ A Complele Cleaning Insliiulion PHONE 21374 ?r“, titsvvie VciettTveTS *^'ndeT«TS So^Gt ljttU fÖ'B' A Compleie Cleaning Insiiiuiion 60 ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN 25. DESEMBER, 1947 NÚMER 52 V iðskiptasamningar Forsætisráðherrann, Mr. King, lýsti yfir því, skömmu fyrir þingfrestun, að nýr viðskipta- samningur milli Bretlands og Canada hefði verið undirskrifað- ur; hveitisamningurinn verður framlengdur í næstkomandi tvö ár, en nýr samningur gerður um flesk, nautakjöt, egg og ali- fugla; mun verðhækkun sú er canadiskir bændur fá fyrir á- minstar framleiðslu, nema að jafnaði 10 af hundraði. — Þegar þing kemur saman á ný í síðari hluta janúar mánaðar, mun landbúnaðarráðherrann, Mr. Gardiner, skýra málavöxtu nokkru nánar. Tvö 'Knot-skip fást til síldarflutninga Treg síldveiði á Hvalfirði s. sólarhring 1. Fer fram á 1 7 biljón dollara Truman forseti hefir farið fram á 17 biljón dollara fjár- veitingu við þjóðþingið í Was- hington til þess að standa straum af hirini svonefndu Marshall- viðreisnarstarfsemi á vettvangi þeirra Norðurálfu þjóða, sem verst eru á vegi staddar í efna- hagslegum skilningi; telja mun mega víst, að áminst krafa Mr. Trumans sæti snarpri and- spyrnu í þinginu, og engan veg- inn heldur örugt um framgang hennar, því áhrifamönnum í báðum stjórnmálaflokkunum þykir í stórt ráðist og efast um að Bandaríkin megi við slíkum feikna fjárútlátum; þess vegna verður sennilega reynt að þræða hinn gullna meðalveg. — En til bráðabrigða hefir þingið veitt 590 miljónir dollara til stuðnings við Frakkland, Austur ríki og Kína. Club News Sterkar líkur eru á, að tvö Knot-skip fáist til síldarflutn- inga norður. Það eru skipin True Knot og Salmon Knot. Eins og áður hefir verið skýrt frá, hefir Eimskipafélag íslands verið að leita hófanna um að fá tvö eða þrjú skip til síldar- flutninga. í morgun fengust þær upplýsingar hjá félaginu, að líkur séu miklar á, að skipin fáist til flutninganna. True Knot átti að fara frá Patreks- firði áleiðis til Siglufjarðar í morgun, en hitt skipið, Salmon Knot er í New York, en er vænt- anlegt hingað um áramótin. — Verður skipið þá væntanlega tekið til síldarflutninga. Tregari veiði Veiði var tregari í Hvalfixði undanfarinn sólarhring og veld- ur því hvorttveggja, óhagstætt veður og að síldin stendur mjög djúpt. Þessir bátar komu síðast inn með síld: Edda með 1000 mál, Sidon 950, Freyja RE 850, Ágúst Þórarinsson 1000, Vonin II, 970, Fylkir 450. — Haldið er áfram að flytja síld á Framvöll- inn og hafa nú verið flutt þang- að 35 þúsund mál. 10 þús. mál brædd á Paireksfirði Verksmiðjan Grótt á Patreks- firði hefir nú; brætt um 10 þús. mál síldar og 9 bátar biða þar löndunar með um 6 þúsund mál. Búizt er við, að tveir bátanna fari til Bíldudals og mun það vera fyrsta síldin, sem þangað kemur í haust. Fluiningarnir norður Norska skipið Banan kom að norðan í morgun og mun byrja að taka síld í dag. Verið er að ferma Súðina og Selfoss. Fjall- foss lagði af stað norður í gær með fullfermi. 1 Hvalfirði hafa samtals veiðzt tæp 400 þús. mál og á Isaf jarðar djúpi 28 þús. mál. Til Siglufjarðar eru komin 165 þús. mál, á leiðinni þangað með True Knot eru 35 þús. mál og í ö ð r u m skipum 30 þús. mál. í flutningaskipum, sem stödd eru í Rvík, eru 10 þús. mál, í veiði- skipum í Rvík 30 þús. mál, og 40 þús. mál í þró. Til annarra síldar- verksmiðja en á Siglufirði hafa 85 þús. mál farið. Þá hafa 25 þús. mál síldar verið fryst. Vísir, 12. des. Afmæli forsœtisráðherrans Þann 17. þ. m., átti King for- sætisráðherra 73 ára afmæli, og vann þá um daginn eins og endranær myrkranna á milli, var í býtið á skrifstofu sinni, stýrði ráðherrafundi um tíu leytið, en tók svo til óspiltra málanna við þingstörfin. — Mr. King nýtur enn ágætrar heilsu og lætur hvergi bilbug á sér finna þótt hlaðinn sé marg- þættum störfum hvem einasta og einn dag; hann hefir verið forustumaður Liberalflokksins síðan 1919 og senn gegnt for- sætisráðherraembætti í tuttugu ár og sett með því met í stjórn- málasögu brezku samveldanna. Aðspurður að því af blaða- manni á afmælisdaginn, hvort hann hefði nokkra yfirlýsingu til canadisku þjóðarinnar, svar- aði Mr. King því játandi með svofeldum orðum: “Við þurfum að gera alt, sem í valdi okkar stendur til þess að skapa góðvilja þjóða á meðal, en berjast jafnframt gegn óvild og hatri hvar, sem því verður við komið”. The Icelandic Canadian Club held a meeting, Monday, Dec. 8th, in the Federated Church Parlors, Banning St. Mr. Axel Vopnfjord, president, conducted a short business meeting whére Mrs. Flora Benson gave a report on suggested topics for next season’s lecture series. Some of these topics were: Icelandic Pioneers in Markland, N. S., Kinmount, Ont., Wiáconsin, Utah, Brazil, etc.; also current events connected with coun- trymen of our nationality in Iceland and elswhere. The best speakers obtainable will present these topics and we may expect an interesting cultural program. It was announced that a number of copies of “Iceland’s Thousand Years” were still available. Mr. Vopnfjord extended an invitation to those who wished to join the club, especially young people who desired to learn about Icelandic culture as pre- sented at our meetings, through the medium of the English language. The result of this invitation was that, before the evening was over, ten persons had joined. The club is most happy to bid these new members heartily welcome. The program for the evening had a treat in store for the large crowd assembled, an interview with Miss Betty White about +-------------------------------- her trip to London and about the Royal Wedding. Betty captivated the audience with her charm and poise as she fluently answered Mrs. Daniel- son’s efficient questioning. She gave us a delightful word- picture of what she saw and máde us wish we had been there too. Betty is to be congratulated upon the success of her radio interviews and her press reports. The next item was in charge of Mrs. Louise Gudmunds who presented short biographies of three Icelandic composers, some of whose music was then sung by Mrs. Elma Gislason. The numbers sung were: “Litla stúlkan mín”, by Hjörtur Lár- usson, “The Lord is my Shep- herd”, by Margret J. Halldórs- son, “His Mother’s His Sweet- heart”, and “Gleðileg jól”, by Gunnsteinn Eyjólfsson. Mrs^ Gudmunds, who is now collect ing such original music, plans to present other composers in the same way at future meetings Dancing and refreshments brought to a < close a very pleasant evening. Lilja M. Guilormsson, Secratary. Frá Vancouver, British Columbia Mr. G. S. Guðmundsson frá Wynyard, Sask., kom til borgar innar fyrri part vikunnar, sem leið, sunnan frá Minneapolis og úr heimsókn til ættmenna sinna í íslenzku bygðarlögunum í North Dakota. Kosinn prestur í Grindavík Kosningu í Staðarprestakalli í Grindavík lauk þannig, að síra Jón Árni Sigurðsson að Stað á Reykjanesi vestra var kjörinn. Hlaut hann 156 atkvæði. Aðr- ir umsækjendur voru Emil Björnsson cand. theol., er hlaut 117 atkv. og síra Þorsteinn Björnsson prestur á Þingeyri, er hlaut 8 atkvæði. Á kjörskrá voru 332. Þar af neyttu 282 kosn ingaréttar síns, en eitt atkvæði var ógilt. Vísi, 12. des. Eg óska og vona Eg óska að öllum líði vel í vetur og vona að allir hafi nægan yl og allt sem gjört er gangi miklu betur en gengið hefir margoft hingað til. í betri heimi, lýðir lifa megi þar lán og friður krýnir sérhvern dag er kærleiksverkum fjölgar dag frá degi og drottnar kristið alheims bræðralag. V. J. Guttormsson. Landburður af síld í einkafrétt til Lögbergs er þess getið, að svo mikill land- burður af síld hafi verið á ís- landi frá því í öndverðum nóvember mánuði og fram yfir miðjan desember, að til eins dæma megi teljast; hefir mok- afli verið á Reykjavíkurhöfn og í nærliggjandi vogum og fjörð- um; skip hafa verið tekin á leigu til síldarflutninga að bræðslu- stöðvum norðanlands; aflast höfðu um 500.000 mál, og sagt að verðmagnið nemi um 5 miljónum dollara. Glugga-þvottur Eflir Isabella Bryans Longfellow Við þvoum bæði, og þerrum glugga í dag, en það er verk, sem heimtar sérstakt lag: Hann stendur úti í stiga gagnvart mér, ég stend á syllu inni — og hugrökk er. Við horfumst á, í gegn um rúðugler, við gætum þess hvar móðublettur er: Hann bendir mér — og blíða í augum skín, á blett, sem ekki náði dulan mín. En hláturblíð ég honum bendi rétt, ef hinum megin sé ég nokkurn blett. Og þannig vinnur mundin hans og mín, unz milli okkar tárhreint glerið skín. Hvort skyldi ég hafa skilning mínum beitt? Eg skyndilega í heimspeking er breytt, og hugsa þannig: “Þetta er vegurinn að þekkja vel og skilja ástvin sinn”. Já, þetta er leiðin, þar sem tvent er eitt — og þar sem tíminn getur engu breytt — það hefir sama ljós í lífi og sál og lært hvort annars hjarta- og augnamál. Það er svo oft að skyggir lítið ský, og skipbrot lífsins getur leitt af því. Að bæði skilji og sjái sína hlið í sönnu ljósi — það er lífsins mið. Við þvoum bæði og þerrum glugga í dag, og það er verk, sem heimtar sérstakt lag, en að því vinnur mundin hans og mín unz milli okkar tárhreint glerið skín. Sig. Júl. Jóhannesson, þýddi. 11. des., 1947. Nóttina milli 6. og 7. desember snjóaði hér svo það varð grátt í rót, en það var alt horfið næsta dag. Aldrei hefir verið meira frost en svo að það hefir sést héla á jörð suma morgnana. — Þetta á nú aðeins við hér á ströndinni, því það er ekki farið langt austur í fjöllin, þar sem er nóg frost og fannir. Á ársfundi Islenzka Lúterska safnaðarins sem var haldinn ný- lega, voru þessir kosnir embætt- ismenn fyrir næsta ár. H. M. Sumarliðason, forseti; Stefán Sölfason ritari; B. Thorlacius féhirðir. — Fulltrúar L. H. Thorlakson, S. Gillis, S. J. Sigmar og Hermann Sigurðson. Conrad A. Anderson frá Crystal City, Manitoba er al- fluttur hingað vestur, og býst við að setjast að hér í Van- couver. Hann er sonur þeirra Mr. og Mrs. G. Anderson sem hafa verið hér búsett um nokkur undanfarin ár. Mr. og Mrs. A. Sædal frá Winnipeg, Man., eru flutt hing- að vestur til Vancouver. — Þau áttu heima í Winnipeg um margra ára skeið. Bæjarstjómarkosningar, sem fram fóru þann 10. þessa mán- aðar fóru eins og áður var spáð, að flestir í bæjarstjórnina voru endurkosnir. Ein kona sem sótti um embætti undir merkjum C. C. F., náði kosningu í bæjar- stjórnina. Magnús Elíasson, sem sótti um kosningu undir merkj- um C. C. F., féll í valinn, eins og flestir af hans sessunautum. Eins og ég hefi getið um áður, hefir verið mikið um fjaðrafok í herbúðum Liberala. Þar hefir staðið yfir innbyrðis stríð, innan vébanda þeirra sjálfra. — Als- herjar fundur var haldinn þann áttunda og níunda desember, til að kjósa nýjan leiðtoga fyrir flokkinn í stað Premier John Hart, sem hefir sagt af sér. Voru hér aðeins tveir sem keptu um kosningu: Dómsmálaráðherra sem nú er, Mr. Gordon Wismer og Byron Ingimar Johnson þing- maður fyrir New Westminester, B. C., báðir stálslegnir Liberalar. Hlaut Mr. Johnson kosningu með aðeins átta atkvæðum yfir mótstöðumann sinn, og verður hann foringi Liberalaflokksins eftirleiðis í British Columbia. Eins og lög gera ráð fyrir, þá verður Mr. Johnson næsti Premier, og er búist við að hann verði settur inn í embættið fyrir jólin. Þa ðer talið víst að Premier Hart segi af sér í næstu viku, og þá verður kallað á hinn nýja Premier að mynda nýtt stjómarráð. Mr. Johnson er fæddur í Victoria, og er 57 ára gamall, og það var á afmælisdaginn hans sem hann var kjörinn fyrir þetta virðulega embætti. Eins og kunnugt er hér um slóðir, er hann islenzkur í báðar ættir. — Hann er giftur konu af skozkum ættum, bráðgáfuð og myndarleg Þau eiga einn son Byron jr., sem nú stundar nám við “the University of British Columbia”. Við landarnir erum dálítið upp með okkur af því að hafa hér hinn fyrsta íslenzka for- sætisráðherra í Canada. Strax og úrslitin voru gjörð kunn, að Mr. Johnson væri kjörinn fyrir leiðtoga flokksins, þá stóð Mr. Wismer upp og ósk- aði honum til hamingju, . og sagðist hann mundi veita honum óskift fylgi sitt, og óskaði að all- ir Liberalar vildu gjöra eins, undir því væri framtíð flokksins komin, að þeir vinni saman eins og einn maður. Var þessari til- lögu tekið með dynjandi lófa- klappi af öllum þingheimi. Það er vandasamt verk að taka við embætti af Premier Hart. Því það er almennt viðurkennt að hann hafi verið hinn atkvæða- mesti Premier sem hafi verið í Canada. Það er engin efi á því að hinn nýkjörni Premier skilur það og hefir gjört sér grein fyr- ir því. — Á ársfundi íslenzka Lúterska kvenfélagsins, sem haldinn var á íslenzka gamalmenna-heimil- inu þann 11. desember, voru þessar konur kosnar í embætti fyrir nwsta ár. Mrs. Jón Sigurðson, forseti; Mrs. B. Goodman, ritari; Mrs. N. Ogg, Corresponding Sec.; Miss Helga Johnson, féhirðir. Mrs. S. J. Sigmar var kosinn “General Convenor, for Court Whist”, sem haldin verður á gamalmenna-heimilinu þann 18. jan., 1948. Allan ágóða af þess- ari samkomu ætla konurnar að láta ganga til gamalmenna-heim- ilisins. Því er æskilegt að þessi samkoma verði vel sótt Mrs. Gunnar J. Guðmundson var kosin til að sjá um veitingar í fundarsal dönsku kirkjunnar á annan í jólum eftir messu. íslendingadagsnefndin hefir kallað til fundar 19. des. kl. 8. E. M. I. Hillcrest fundarsalnum, 28th., og Main. Tilefni fundar- ins er að ræða um íslendinga- dagshald hér næsta sumar. Það er æskilegt að þessi fundur verði vel sóttur, og fólk láti í ljós vilja sinn, því máli viðvíkj- andi. S. Guðmundsson. 45 ár frá fyrsta botnlangauppskurði á islandi Annan september s. 1. voru liðin 45 ár frá því, að maður var skorinn upp við botnlangabólgu í fyrsta skipti hér á landi. Var það Guðmundur heitinn Hannesson, þáverandi héraðs- læknir á Akureyri, sem fram- kvæmdi þessa aðgerð. Er skýrt frá þessu í mjög fróðlegri grein eftir Matthías Einarsson yfirlæknir í skýrslu um St. Jósep spítala — Landa- kotsspítala — í Reykjavík árið 1946. — Fyrsti sjúklingurinn, sem skorinn var upp við botnlanga- bólgu hér á landi, var Ingólfur Gíslason, þáverandi héraðslækn- ir á Breiðumýri. Var Ingólfur allmikið veikur og var hann fluttur á kviktrjám til Akureyr- ar og skorinn þar upp. Matthías Einarsson var váð- staddur þessa aðgerð, svæfði sjúklinginn. Hann var og við- staddur þá næstu, sem fram fór 6. nóvember árið eftir hér í Reykjavík. Hana framkvæmdi Guðm. próf. Magnússon og að- stoðaði Matthías þá við sjálfa aðgerðina. Matthías Einarsson yfirlæknir mun hafa gert fleiri botnlanga- aðgerðir en nokkur annar lækn- ir á íslandi. Er frá því sagt í greinargerð hans, að hann hafi til ársins 1946 gert botnlanga- uppskurði á samtals 2508 sjúk- lingum. Af þessum fjölda létust 28 eða 1.1 af hundraði. Vísir, 12. des. t

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.