Lögberg - 25.12.1947, Blaðsíða 4

Lögberg - 25.12.1947, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. DESEMBER, 1947 Úr borg og bygð íslenzkir sjúklingar, se mliggja á sjúkrahúsum hér í borginni, eða aðstandendur þeirra, eru vinsamlega beðnir að síma Mrs. C. Ólafson, Ste. 1 Ruth Apts., Maryland St., Phone 30 017, ef æskt er eftir heimsókn eða ís- lenzku blöðunum. Birt að tilsluðlan Djákna- nefndar Fyrsta lút. safn. -t- Skjót linun frá gigtarstingj- um, vöðva- og taugaþjáningum, fæst með notkun “Golden HP2 Tablets”, er þúsundir sjúklinga með bakverk, stirðleika, sárindi í liðamótum, verki í fótum, handleggjum og öxlum, fá ekki nógsamlega vegsamað. — Takið “Golden HP2 Tablets”, eina töflu 3 eða 4 sinnum á dag í heit- um drykk, og fáið varanlegan bata. 40 töflur $1.25; 100 $2.50. t öllum lyfjabúðum. ♦ Áttatíu ára Áttatíu ára afmælis Sigurðar Júlíusar Johannessonar læknis verður minnst með samsæti er haldið verður laugardaginn 10. janúar næstkomandi, í Fyrstu Lútersku kirkjunni í Winnipeg og hefst kl. 8 e. h. öllum Islendingum fjær og IN A HURRY! 48 HOUR SERVICE on most DRY CLEANING AND LAUNDRY Phone 37261 Or Use Perth's Carry and Save Store Perth’s 888 SARGENT AVE. nær, er boðið til þátttöku í virð- ingarathöfn þessari, við hinn vellátna læknir, annað hvort með nærveru sinni, eða með orð sendingu. Aðgöngumiðar að samsæti þessu verða til sölu hjá herra bóksala Davíð Björnssyni á Sargent Ave., og hjá íslenzku blöðunum í Winnipeg, frá 24. des., 1947 til 5. janúar 1948, og kosta $1.00 hver. Philip M. Pétursson, 681 Banning Street. Árni G. Eggertsson, 919 Palmerston Street. Guðm. F. Jónasson, 195 Ash Street. Ólafur Pétursson, 123 Home Street. Grettir L. Johannsson, 910 Palmerston Ave. Guðm. M. Bjarnason, 254 Belvidere Street. Joh. Th. Beck, 975 Ingersoll Street. Jón J. Bíldfell, 238 Arlington Street. Forstöðunef ndin. -t- Þjáning af liðagigt? Almenn gigt? Taugaveiklun? Bakverk- ur? Þrautir í handleggjum, herða stirðleiki og fótaverkur. Takið HP2-töflur, sem veita skjótan bata við áminnstum kvillum, og lina verki í liðamótum. — Notið HP2 töflur 4 sinnum á dag með heitum drykk. — 40 töflur, $1.25; 100 töflur $2.250. — í öllum lyfjabúðum. ♦ Mr. Jón Ólafsson stáliðnaðar- verkfræðingur, er um langt skeið var í þjónustu Vulcan Iron Works fyrirtækisins hér í borginni, og víðtæka athygli H ICELAND Scandinavia Overnight Travel the modern way and fly in four-engine airships. MAKK RESERVATIONS NOW, IF PL.ANNING TO TRAVEL NEXT SUMMER We will help you arrange your trip. NO extra charge. For Domestic and Overseas Travel Contact VIKING TRAVEL SERVICE (Gunnar Paulsson, Manager) 165 Broadway, New York City PHONE: REctor 2-0211 (A (JíÍerrg (Olirietmas NEW YEAR TERM Opening Monday, January 5l!l RESERVE YOUR DESK EARLY As we expect our classes to be filled early in the New Year Term we suggest that you enroll between Christmas and the New Year. Our office will be open every business day during the holiday season from 9:00 a.m. to 5:00 p.m. DAY and EVENING CLASSES Call at our office, write, or telephone for additional information on the air-conditioned, air-cooled College of higher standards. COMMERCIAL COLLEGE Porlage Avenue at Edmonton Slreet WINNIPEG Telephone 96 434 vakti á sér fyrir vísindalegar uppgötvanir á vettvangi stál- framleiðslunnar, er nýkominn til borgarinnar vestan frá British Columbia, þar sem hann nú rekur ávaxtarækt í stórum stíl. Mr. Ólafsson ráðgerði að að dvelja um þriggja vikna tíma hér um slóðir. * Menn og konur 35, 40, 50. — Skortir starfsgleði? Finnið til elli? Taugaveiklun? Þreytu? Magnleysi? Njótið lífsins! Takið ‘Golden Wheat Germ Oil Cap- sules”, og verndið heilsu yðar. 50 Capsules $1.00. 300 $5.00. 1 öll- um lyfjabúðum. ■r Mr. T. M. Sigurgeirsson frá Hecla var staddur í borginni á mánudaginn. Góðir gestir frá íslandi í Los Angeles um þessar mundir eru ungfrú Svanhildur Sigurgeirs- dóttir, biskups Sigurðssonar sem áður hefir verið getið, og frú Ragnheiður Guðmundsdóttir Viglundsson læknir, en hún er dóttir Guðm. Kristjánssonar kennara og Skipstjóra og frú Geirlaugar Stefánsdóttir, en frú Ragnheiður hugsar sér að dvelja hér um lengri tíma við fram- haldsnám í augnlækningum, en hún er kona Magnúsar Viglunds sonar, stórkaupmanns í Reykja- vík. S. B. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Ensk messa kl. 11 f. h. — Is- lenzk messa kl. 7e. h. — Börn, sem ætla að sækja sunnudaga- skólann, eru beðin að mæta í kirkjunni kl. 12,15. — Ávarp og söngur. Séra Eiríkur Brynjólfsson. Gimli prestakall — Jólamessuh: 25. des.: Ensk messa kl. 7 e. h. og íslenzk messa kl. 8.15 e. h., að Gimli. — Sunnudaginn, 28. des.: Messa og jólatréssamkoma kl. 2 e. h., að Mikley. — Allir boðn- ir velkomnir. Skúli Sigurgeirsson. Mr. Pétur Thorsteinsson frá Wynyard, Sask., var staddur í borginni í fyrri viku; sagði hann góða líðan fólks vestur þar, en snjóþyngsli með meira móti. Fréttabréf úr Borgarfirði hinum meiri um sumarlok 1 947 Stefán skáld Vagnsson á Hjalta- stöðum í Skagafirði, þegar hann sá sjálfan forustumann í hrossa- rækt koma á mótorhjóli á hestasýningu: “Talað er ekki um tölt né skeið, og tilþrif gæðinganna. Hann á mótormeri reið, milli sýninganna”. Það þykja fleiri en Stefáni Vagnssyni ekki góð skifti að sjá menn á mótorhjóli í stað þess að sitja á glæsilegum gæðing. — Reiðhestanotkun á fjölfömum sveitavegum er að verða lítt möguleg, þar sem bílar eru á flugferð fram og aftur. Prestar húsvitja á bílum og læknar komast naumast lengur á hest- bak. Nú eru það aðeins fjalla- ferðir sem knýja menn til þess að temja hesta. Þessar þjóðlegu og bráðskemmtilegu íþróttir, að sitja fallega á glæstum gæðing og stýra fleygi undir fullum segl um, eru nú að ganga úr gildi, en bílar komnir í þess stað. Árni Pálsson, verkfræðingur var nú í kvöld að tilkynna það í útvarpsfréttum að virkjun Andakílsárfossa mætti nú telj- ast lokið og rafstöðin væri tekin til starfa. Er unnið að því, eftir föngum að raflýsa Akranes, Borgarnes og Hvanneyri. Fleiri staðir koma síðar til greina þðtt ýmsum kunni að þykja biðin löng. Taldi verkfræðingurinn engann efa á því að með tíð og tíma gætu allar sveitir þessa héraðs notið góðs af þessari afl- stöð, sem unnt væri að auka svo, að hún gæti líka tekið á sig fjar- lægari byggðir. Það er unga kyn- slóðin sem á í vændum notin af þessu stærsta mannvirki, sem unnið hefir verið í Borgarfirði. Árni Pálsson var yfirsmiður að Hvítárbrúnni, hjá Ferjukoti, sem er ein af fallegustu brúm hér á landi. Hann er sonarsonur Ein- ars Guðmundssonar á Hraunum í Fljótum, en Einar smíðaði brú yfir Hvítá hjá Barnafossi 1892. Var það fyrsta brúin, sem byggð j var í Borgarfirði. Nú má heita svo að brýr séu hér yfir alla smá-læki, hvað þá hinar stærri ár. Barnafoss-brúin þótti þrek- virki á sínum tíma, ekki síst fyrir það, að hún var byggð af tillagi fárra bænda, án land- sjóðshjálpar. Þá var hér enginn svonefndur ríkissjóður til. Barnafossbrúin stendur, lítið endurbætt frá því hún kom frá fyrstu hendi, er hún þó orðin 56 ára gömul, hið mesta þarfaþing öllum sauðfjáreigendum sunnan Hvítár, sem eiga afrétt á Arnar- vatnsheiði. — Mér datt Barna- fossbrúin í hug í sambandi við Árna Pálsson, því afi hans byggði hana og þótti það afrek á þeim tímum, lítið mun yngri kynslóðinni finnast um slíkt í sambandi við Hvítárbrúna hjá Ferjukoti, sem lofar meistarann og nú hverur hún fyrir mann- virkjunum miklu við Andakíls- árfossa. En að öllum þessum mannvirkjum hafa þeir unnið sem komnir eru af gamla og góða kynstofninum frá Hraun- um í Fljótum. Um ektamál æskulýðsins er nokkuð á annan veg en áður var. Fram yfir lok 19. aldar mátti heita svo að allar stúlkur yndu í sveitinni til fullorðinsára, ann- aðhvort sem heimasætur í föð- urgarði, eða sem vinnukonur, ef ekki vildi betra til. Ullariðnað- urinn var þá í heiðri hafður og hverri konu lífsnauðsyn að geta breytt ull í föt og mjólk í mat. Ullarvinnan lék í höndum lag- .hentra kvenna sem æfðu hann frá barndómi og varð bæði til gagns og unaðar. Það var því sungið fyrir munn nokkra sveitakvenna á þeirri tíð: “Úr þeli þráð að spinna, mér þykir næsta inndæl vinna”. — Meðan svo stóðu sakir að æskan undi í sveitunum, þurftu piltarnir sjaldan að skálma langt á biðils- buxunum, þegar þeir töldu sig menn það mikla, að geta annast bú og börn. Þegar alt fór að ósk- PRJÓNAKONUR ÓSKAST! Viljum fá prjónakonur til þess að prjóna vetl- inga af íslenzkri gerð. Við leggjum til bandið. Frekari upplýsingar fást hjá KARASICK’S LIMITED 275 McDERMOT AVE " WINNIPEG um, var prestur beðinn að lýsa til ektaskapar og að því loknu boðið til veglegrar brúðkaups- veizlu. Þessu er nú lokið hér um sveitir. Engin heimasæta iðar nú af kæti við rokkinn sinn. Flestir piltar þurfa nú að leita lengra en áður var í kvonbænum. — Bændadæturnar eru fyrr en varir, með öllu horfnar úr sveit- inni og flakka eitthvað út í veður og vind. Helst eru þær að finna í Reykjavík, ekki sem vinnukonur; það orð þekkist ekki lengur, hvorki við sjó eða í sveitum. Á skrifstofum, veitinga húsum og sölubúðum, una ungu stúlkurnar sér bezt. Sveitastúlk- ur verða bæði liprar og lærðar í Reykjavík, en ástasælan reyn- ist þeim mörgum stopul og skammvinn, ekki síður nú en en fyrr á tímum. Flestum dug- andi sveitapiltum heppnast enn þá að klófesta konuefni. Er þá nokkuð sitt á hvað, hvort prestar eða lögmenn gefa hjónin saman, Minnist BETEL í erfðaskrám yðar en þessum giftingum fylgir nú ekki veizlufagnaður í sinni gömlu mynd, sem sló þó ekki litlum ljóma á svo virðulega at- höfn. — Hjónaskilnaðir eru ekki fágætir nú á dögum, samt er ekki orð á þeim gerandi, hér um Borgarfjörð. En ýmsir sveigja það til fyrir konum sínum að flytja af búgörðum sínum til Reykjavíkur, eins fyrir það þótt víða sé þröngt fyrir dyrum. En á síðustu áratugum hefir Reykja vík getað boðið fólkinu upp á flest hugsanleg þægindi, svo að nærri hefir legið að steiktar gæsir flýgi þar í munn manna. Ritstjórum íslenzku blaðanna vestan hafs sendi ég þakkir og bróðurkveðjur. Og í einu orði kveð ég bæði konur og karla vestan hafs, sem ég hefi nokkur kynni af og segi upp á gamlan íslenzkan sveitasið. — Verið þið öll blessuð og sæl. Ykkar með vinsemd. Kristleifur Þorsteinsson. The Swan Manufacfuring Compony Manu/acturar* o/ SWAN WEATHEK STMP Halldor Methusalems Swan Eigandi 281 James St. Phone 22 641 UNEMPLOYMENT INSURANCE COVERAGE EXTENDED (Authority, P.C. 4854, dated December 3rd, 1947) ON AND AFTER January lst, 1948, every employee in insurable employment paid by the month whose annual remuneration does not exceed $3,120.00 will be insured under the Unemployment Insurance Act. AT PRESENT those paid by the month whose annual renumeration is $2,400.00 or less are insured under the Act. THE CHANGE will not affect the coverage of all hourly, daily and piece rated employees and those paid on a mileage basis, who will continue to be insured regardless of earnings. WEEKLY RATED emplqyees whose earn- ings are expected to be $3,120.00 or less per year will continue to be insured under the Act. UNEMPLOYMENT INSURANCE COMMISSION J. G. Bisson, Chiej Commissioner R. J. Tallon, C. A. L. Murchison, Commissioner Commissioner 1948 is going to be a tough year for the People of Britain. They are a brave People and face the new year un- daunted and with a deter- mination to overcome their economic crisis. We can do a lot to help Britain by sending vitally needed food. Parcels are standard in size — $3.00 and $5.00 Send Your Contributions NOW To The ROTARY CLUB OF WINNIPEG 154 Royal Alexandra Hoiel Winnipeg, Manitoba • This Space Courtesy of: ( The Drewrys Limited BPX—8

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.