Lögberg - 25.12.1947, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. DESEMBER, 1947
---------HogfcErg —-
GMlf flt hrcrn fhntudac at
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
885 Largent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utariáuskriít ritstjórana:
KDITOR LÖGBERO
195 Sargrent Ave., Winnipeg, Man
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verö $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The ''Löjrbergr" ia printed and publiahed by
Tha Columbla Preaa, Llmlted, 695 Sargent
Avenua, Winnipeg, Manitoba, Canada
Authorized as-S>cond Claas Mail.
Poat Oífice Dept., Ottawa.
PHONB 11 m
Skuggaskil
Jólahugleiðing eftir séra Sigurð Stef-
ánsson á Möðruvöllum
“Og ljósið skín í myrkrinu”.
Jóh. 1. 5.
Enn eru heilög jól. Enn verða hin
gömlu, blessuöu orð að nýjum veru-
leika: “Því að yður er í dag frelsari
fæddur”. Enn hljómar lofsöngur engl-
anna frá Betlehems-völlum út yfir heim-
inn: “Dýrð sé Guði í upphæðum og frið-
ur á jörðu með þeim mönnum, sem
hann hefir velþóknun á”. Enn er um
gervalla veröld þeirri hátíð fagnað, sem
að helgi og himneskri fegurð á sér enga
hliðstæðu.
í kirkjum borga og byggða er klukk-
unum hringt. Og “þessi klukknaköll
boða ljós og líf”. Hátíðarsvipur færist
yfir hin mörgu heimili, höll og hreysi.
“Sjá, fátæk stofa daglegs strits í
Drottins hús er breytt. Og dýrkun flutt
af barni, vífi og manni”. Úti á vetrar-
auðninni og á víðáttum hafsins eru jól
haldin. Hvarvetna er leitað, komið og
kropið að þessari óþrotlegu fagnaðar-
uppsprettu allra tíma og kynslóða. —
Ungir og aldnir eru þar í för, glaðir og
heilir, sjúkir og sárir, hamingjusamir
og harmsins börn.
“Hér er skuggaskil”, segir eitt af
skáidum vorum í lofgerðaróði til jól-
anna. Og vissulega er þar sagður mikill
sannleikur.
Með hverjum jólum rís hækkandi
dagur upp úr sorta skammdegisins og
aftur gefur sólarsýn í landi náttmyrkr-
anna. Þau ytri umskipti setjum vér tíð-
um í samband við ljóssins hátíð. En
kristin jól minna þó ekki fyrst og fremst
á það eða boðskapur þeirra.
“Hér er skuggaskil“ í sögu mann-
kynsins, í lífi þjóða og einstaklinga. Og
sú staðreynd er ekki aðeins fólgin í
dularfullum dásemdum þess, sem gerð-
ist við komu Jesú í þenna heim. Merk-
ur trúboði ritaði fyrir nokkrum árum
þessi athyglisverðu orð í einni af bók-
um sínum um Krist: “Hefði oss verið
sagt, að hann hefði fæðzt með venju-
legum hætti, og ég hefði þrátt fyrir það
séð það hjá honum, sem ég sé nú, þá
mundi ég engu síður trúa á hann sem
guðdómlega veru”.
Og undir þá játningu vildu vafalaust
margir taka. Vér eigum jól, ekki vegna
þess með hverjum hætti Jesús fæddist,
heldur blátt áfram af því, að hann var
eins og hann var, engum líkur í guð-
legri tign sjnni og elsku, engum líkur í
óendanlegri miskunnsemi sinni og al-
gerum hreinleika.
Heimurinn hefir átt marga þá, sem
drottnuðu yfir löndum og lýðum, og
létu kenna á valdi sínu. Til hafa verið
og eru guðinnblásnir sjáendur og spá-
menn, spekingar og skáld, brautryðj-
endur hárra hugsjóna og mikilla verka. 7
En aðeins einn frelsari. Margir, sem
vísuðu veginn ótrauðir leituðu sann-
leikans og bentu á hið æðsta, full-
komna líf. Aðeins einn, er sjálfur var
vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Aðeins einn, sem var mestur allra,
en þó allra þjónn. Aðeins einn, sem
hafði guðdómlegt vald til að segja þessi
orð: “Komið til mín, allir þér, sem erf-
iði og þunga eru hlaðnir, og ég mun
veita yður hvíld”. Aðeins einn, sem gaf
þetta boðorð: “Elskið óvini yðar og
biðjið fyrir þeim, sem ofsækja yður”.
Aðeins einn, sem bað þessarar bænar
í kvölum á krossi: “Faðir, fyrirgef þeim,
því að þeir vita ekki hvað þeir gera”.
Aðeins einn, sem steig upp af gröf sinni
til þess að sanna sigur lífsins yfir dauð-
anum, sigur hins góða yfir öllu því illa.
Og það er þetta, sem táknar hið
skýrasta skuggaskil, þetta, sem gefur
oss hátíðina í skammdeginu, ijósið,
sem ekkert myrltur er í, heilög jól
Krists.
Þau eru ekki aðeins minning hinnar
undursamlegu fæðingar hans, minning-
in um hið guðdómlega barn, sem er
reifað og liggjandi í jötu. Það er sælt
að taka á móti þeim þannig í öllum
einfaldleik. En þau eru meira. Þau eru
áþreifanlegasta yfirlýsingin, sem Guð
hefir gefið heiminum um endalausan
kærleika sinn og eilífa náð. Jólaguð-
spjallið felur í sér allan gleðiboðskap-
inn um Jesúm Krist, Guðs son, frelsara
mannanna.
Og þegar vér höldum jól, krjúpum
vér honum ekki aðeins sem heilögu
barni, er hímneskar hersveitir lof-
syngja og tilbiðja. Vér fögnum honum,
sem “konungi lífs vors og ljóss”, sem
æðsta boðbera miskunsemi og mildi,
sannleika, réttlætis og friðar á þessari
jörð. Vér fögnum honum sem einustu
von mannkynsins í sífelldri, þrotlausri
leit þess að hamingju og fullkomnara
lífi. —
Og því er ávallt skuggaskil við komu
jólanna aldrei svo dimmt umhverfis oss
eða í eigin sál vorri, að þá sjái ekki
bjarma fyrir nýjum degi.
Þess vegna eru gleðileg jól, þrátt
fyrir allt. Ekki vegna vorra verðleika.
Hvað eina, sem vér gerum, er í molum
og ófullkomið. Jafnvel jóla-kyndillinn,
sem vér tendrum í einlægustu trú hjart-
ans og af mestri þörf til að lýsa öðrum,
ber daufa birtu og hverfur út í skamm-
degið. En “Þegar Ijósið dagsins dvín,
oss drottins birta kringum skín”. Það
ljós daprast ekki. Jólanna eilífa ljós
logar enn á þessari hátíð. “Hér er
skuggaskil”.
Sorgbitnum og kvíðandi hjörtum er
fluttur sá gleðiboðskapur eins og þeim,
sem lífinu fagna og hverjum komandi
degi.
Gagnvart öllu því, sem leynt og ljóst
þjakar mannlega sál, gagnvart hörm-
ungum og eymd heimsins stendur
hann, sem einn getur hjálpað.
Treystum honum. Áköllum miskunn
hans. Biðjum hann að vaka yfir þeim,
sem vér elskum. Biðjum hann að varð-
veita og leiða hina ungu, sem eiga
bernskunnar blíðu og inndælu jól. Biðj-
um hann að koma í náð sinni til þeirra,
sem sjúkir eru og sorgmæddir, þeirra,
sem á þessum jólum þjást og líða.
Biðjum hann að gefa svo öllum þrek og
styrk til að lifa lífinu undir hans merkj-
um, í hans trú á tilgang þess, alvöru,
helgi og fegurð.
Gleðileg jól!
“Niður stjörnum stráð
engill fram hjá fer.
Drottins nægð og náð
boðin alþjóð er”.
í Jesú nafni. Amen.
Fréttabréf úr Borgarfirði hinum
meiri um sumarlok 1947
(Framih. frá síðasta blaði)
í Stajholsey býr Páll Blöndal
Jónsson, læknis Blöndal og í
Laugarholti, nýbýli, býr Björn
Blöndal, bróðir Páls, báðir eru
þeir bræður búfræðingar frá
Hvanneyri. — Hvítkrbakki: Þar
búa Guðmundur Jónsson próf.
Guðmundssonar og kona hans
Ragnheiður Magnúsdóttir prests
Andréssonar á Gilsbakka. Guð-
mundur hefir menntast bæði inn
anlands og utan. Hann er hrepp-
stjóri og sýslunefndarmaður; frá
bær að atorku og vinsældum; má
því teljast í allra fremstu röð
héraðsbúa, þeirra sem nú ráða
hér lögum og lofum.
Mun ég nú ekki koma víðar við
í Andakílshreppi. Samt er vert
að geta þess, að prestur til Bæjar-
og Hvanneyrarsóknar er séra
Guðmundur Sveinsson, kominn
frá Jóni Einarssyni, föðurbróður
Einars skáld Kvaran. Virðist séra
Guðmundur hafa sótt skáldgáfu
í þá átt. Hann býr í Staðarhóli
hjá Hvanneyri. Þess má líka
geta að kennari við Hvanneyrar
skóla er Haukur Brynjólfsson,
alþingismanns Jörundssonar í
Skálholti. í hinum fríða og skógi
vaxna Skorradal, er sumar
jarðir að leggjast í eyði ög aðrar
eru að verða eign Reykvíkinga,
sem njóta þar sumarsælu í
skrauthýsum, sem þeir hafa
byggt sér þar. Hér verður ekki
getið annarra bænda í Skorra-
dal en Guðmundar Stefánssonar
á Fitjum og Höskuldar í Vatns-
horni, en ráð sveitarinnar mun
að mestu í höndum þeirra, sem
báðir hafa menntast á alþýðu-
skólum. Á Grund býr Guðrún
Davíðsdóttir frá Arnbjargarlæk,
ekkja eftir Pétur Bjarnason,
sem lézt í blóma lífsins fyrir fá-
um árum. Virðist þessi unga
ekkja hafa óvenju mikinn kraft
til þess að sjá um að veg og prýði
þessarar jarðar fari ekki for-
görðum.
Við lítum þá aðeins inn í
Lundarreykjadalinn og kom-
um þá fyrst við hjá Klemens
Jónssyni í Máfa-Hlíð. Hann er
annar elzti bóndi þar í sveit,
kominn yfir sjötugt. Vilhjálmur
Hannesson Sigmundssonar á
Grímsstöðum, er hinn sá elzti,
kominn nokkuð á áttræðisaldur.
Hann býr í Tungufelli. Elsta
kona sveitarinnar er Steinunn
Sigurðardóttir, Vigfússonar í
Efsta-bæ. Steinunn er ekkja
eftir Björn Jóhannesson á Hóli
og býr hún þar enn með Jóhann-
esi syni sínum. Hún er komin
nokkuð yfir áttrætt. — Á Skarði
býr Árný Árnadóttir, Hjálms-
sonar frá Norðtungu. Hún er
ekkja eftir Þorstein hreppstjóra
Tómasson bónda á Skarði. Þar
er^landsímastöð og flestir bæir
sveitarinnar í símasambandi við
hana. — Skálpastaðir: Þar búa
Þorsteinn Guðmundsson Auðuns
sonar á Varmalæk og kona hans
Þórunn, vestfirzk. Þorsteinn er
hreppstjóri Grunddæla. — Hann
er búfræðingur frá Hvanneyri.
— Arnþúrshóll: Þar búa Magnús
Sigurðsson frá Vilmundarstöð-
um og kona hans Jórunn Guð-
mundsdóttir, hagyrðingur, vest-
firzk. — Lundur, prestsetrið
gamla er nú í höndum Reykvík-
ing, Herlúff Claesen rekur þar
búskap. — Gullberastaðir: Þar
búa Þorsteinn Kristleifsson fra
Stóra-Kroppi og kona hans,
Kristín Vigfúsdóttir, Pétursson-
ar frá Grund í Skorradal. Þor-
steinn er hreppsnefndaroddviti
og sýslunefndarmaður sveitarinn
ar. Hann var á Hjarðarholtsskóla
i Laxárdal. Oddstaðirs Þar búa
Sigurður Bjarnason, Sigurðsson-
ar á Hömrum og kona hans Vig-
dís Hannesdóttir frá Deildar-
tungu. Á Oddstöðum búa líka
Kristján Davíðsson Björnssonar
frá Þverfelli og kona hans Ást-
ríður Sigurðardóttir frá Odd-
stöðum, sem er ljósmóðir hrepps-
ins og nærsveitanna. Kristján
á Oddstöðum er í þriðja ættlið
frá Sveinbirni Arasyni sem bjó
á Oddstöðum um og fyrir miðja
19. öld, föður Arnar hreppstjóra
á Oddstöðum, sem nú er afkom
endur Vestanhafs, og var sveitar
höfðingi á sinni tíð.
Eg læt þá hér með lokið upptaln-
ingu á því fólki sem býr nú í
Lundarreykjadal. Samt má geta
þess að á Englandi búa tvö syst-
kini, sem heita Halldór og Guð-
rún, eru þau börn Magnúsar
Einarssonar, Árnasonar í Brennu,
eiga þau sytkini margt ættfólk í
Ameríku.
Eg hefi svo lítið að segja af
þeirri kynslóð sem nú byggir
Mýrasýslu að þangað treysti ég
mér ekki í húsvitjunarferð. —
Samt vil ég stikla þar á örfáum
nöfnum til viðbótar því sem ég
er búinn að segja hér frá Hvít-
síðingum. Davíð Þorsteinsson
ræður enn lögum og lofum í
Þverárhlíð, hann hefir þó lagt
búið á herðar sonar síns, Aðal-
steins. Kona Davíðs er Guðrún
Erlendsdóttir frá Sturlu-reykj-
um. — í Stafholtstungum hafa
þeir bræður Kristján á Steinum
og Jósep á Svarfhóli, Bjömssyn-
ir frá Svarfhóli, mest sveitamál
í höndum sínum, þeir frændur
Þorvaldur Jónsson í Hjarðar-
holti, Tómassonar frá Skarði og
Tómas Jónsson í Sólhemiatungu.
eru mikilsmetnir stórbændur. í
Stafholti er Bergur Björnsson
prestur. Hann er sonur séra
Björns á Miklabæ í Skagafirði,
Jónssonar frá Broddanesi í
Strandasýslu. Svo er um séra
Berg sem aðra sveitapilta nú á
dögum, að hann sýslar lítið um
búskap. Halldór skáld á Ás-
bjarnarstöðum hefir lagt jörðina
í hendur dóttur sinnar og tengda
sonar Kristjáns Guðmundssonar
frá Skeggjalæk. önnur dóttir
Halldórs er gift Gunnari skáldi,
Benediktssyni, áður presti að
Saurbæ við Eyjafjörð. Halldór
yrkir enn góð kvæði, nú síðast
á Snorrahátíðinni, hann er nú
73 ára að aldri. Elsti búandi í
Stafholtstungum er Guðrún Sig-
urðardóttir á Laxfossi, ekkja
eftir Snorra Þorsteinsson. Hún
(Frh. & bls. 3)
Business and Professional Cards
■«(4!£f«ntt€(€!ci«ieíe!S!a!«!C!eieisíe«:<cie*eíC«
INN Á HVERT
EINASTA HEIMILI
Vegna þjóðræknismál-
anna og annara menningar
mála, er viðkoma öllum
Vesiur-íslendingum, þarf
Lögberg að komast inn á
hvert einasta og eitt ís-
lenzkt heimili nú um ára-
V móiin; þess vegna ættu sem
I allra flestir að festa það í
minni, að kærkomnari jóla-
og nýársgjöf, er naumast
j| unt að velja; en árgang af
w Lögbergi.
s#
| Sendið árgjald að nýjum
| árgangi nú þegar og styðjið
| með því þjóðræknisvið-
g leitni íslendinga í Vestur-
jjj heimi.
'ij
H. J. STEFANSSON
Life, Accident and Ilealth
Insurance
Representing
THE GREAT-WEST L.1FE
ASSURANCE CQMPANY
Wlnnipeg, Man
Phone 96)144
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
606 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APTS.
694 Agnes St.
VlCtalstlmi 3—6 eftlr h°rl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 920
Oífice Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
626 MEDICAL ARTS BLDG.
Ofíice Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
Dr. Charles R. Oke
Tannlœknir
For Aupointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVE.
Winnipeg, Man.
Taislmi 95 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN Sérjræðingur i augna, eyrna, nef og kverka sjúkdómum. 215 Medical Arts Bldg. Stofutími: 2.00 til 5.00 e. h. SARGENT TAXI • PHONE 34 666 For Quickl ReUatle Serviee
DR. ROBERT BLACK J. J. SWANSON & CO.
Sérfræ.Oingur i augna, eyrna, LIMITED
nef of/ hdlssjúkdómum. 308 AVENUE BLDG WPG.
401 MEDICAL ARTS BLDG Fasteignasalar. Leigja hfla. Ot-
Graham and Kennedy St. vega peningalán og elds&byrgO.
Skrifstofusími 93 851 blfreiSaábyrgS, o. s. frv.
Heimasími 403 794 PHONE 97 638
EYOLFSON’S DRUG Andrews, Andrews,
PARK RIVER, N. DAK. Thorvaldson and
islenzkur lyfsali Eggertson
Fðlk getur pantaS meSul og Lögfrœðingar (
annað með pðsti. 209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Fijót afgreiSsla. Portage og Garry St.
Simi 98 291
A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur líkkistur og annaat um út- farir. Allur \fltbönaSur sá bezti. Ennl'remur selur hann allskonar mínnisvarSa og legsteina. Skrifstofu talsiml 27 324 Heimllis talsimi 26 444 GUNDRY PYMORE Limited British QuaUty Fish Netting 60 VICTORIA ST., WINNIPBG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALDBON Vour patronage will be appreclatafl
1 C A N A D 1 A N FISH
Geo. R. Waldren, M. D. PRODUCERS, LTD.
J. R. PAOE, Managing Director
Physician and Surgeon Wholesale Distributors of Frasb
and Frozen Fish.
Cavalier, N. D. 311 CHAMBERS STREET
Offlce Phone 95. House 108. 4 Offlce Ph. 26 328 Ree. Ph. 73 917
DCINCfií MESSENGER SERVICE ViS flytjum kistur og töskur, húsgögu úr smærri IbúSum, og húsmuni af öllu tæl. 68 ALBERT ST. — WINNIPEG Sfmi 25 888 C. A. Johnson, Mgr G. F. Jonaeson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SlMI 96 2Í7 Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FISH
PHONE 94 686 H. J. PALMASON and Company Chartrred Aecountants 506 CONFEDERATION LIFE BUILDING Winnlpeg, Canada Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. BercoiAtch, fromkv.atf. Verzla í helldaölu meS nýjan og frosinn ftok. 303 OWENA STRBBT Skrifst.slmi 25 356 Helma 66 462
Phone 49 469 Radio Serviee Specialists ELECTRONIC LABS. H. TRORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Ettuipment System. 130 OSBORNF, ST„ WINNIPEG u HAGBORG U n fuel co. n • Dial 21 331 NaFlh M Ml