Lögberg - 08.01.1948, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. JANÚAR, 1948
--------3Logt)erg----------------------
OefiB öt hvern flmtuda* af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 i'argent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utan&akrlft ritstjórana:
EDITOR LÓÖBERG
Sargent Ave., Wínnipeg, Man •
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verö $3.00 uxn árið—Borgist fyrirfram
The "L/ógbersr” ia printed and pubiished by
Tha Columbia Prees, Dimited, 695 Sargent
Avanus, Winnlpeg, Manitoba, Canada
Authorized as-S x’ond Class Mail,
Poet Office Dept., Ottawa.
PHONE 21 804
Vigfús J. Guttormsson:
Eldflugur. Kvæði. The Columbia
Press Limited, Winnipeg, 1947
Það hefir dregist úr hömlu að minn-
ast þessarar nýju ljóðabókar, sem höf-
undurinn sendi ritstjóra Lögbergs með
alúðarkveðju og eiginhandar áritun rétt
eftir að hún kom út.
Margir gefa út bækur í gróðaskyni
einu, hvort heldur sem þeim tilgangi
verður háð eða ekki; í þessu tilfelli er
engu slíku til að dreifa; af bók þessari
eru aðeins prentuð eitt hundrað tölu-
sett eíntök, sem höfundurinn gefur vin-
um sínum; bókin er með ágætum vönd-
uð að frágangi, pappír í bezta lagi, próf-
arkalestur óaðfinnanlegur og bandið
einkar snyrtilegt; svona bók prýðir
hvaða bókaskáp, sem er.
En hvað er um kvæðin sjálf, hvert er
gildi þeirra frá listrænu sjónarmiði séð?
Þau eru flest dável kveðin, sum nota-
lega ljóðræn og auðug af drengilegum
hugsunum; maður verður þess skjótt
var, að þar er merkur, mætur, heill
maður á bak við kvæðin. Það væri synd
að segja að kvæði Vigfúsar léti mikið
yfir sér; þau eru heldur ekki stórbrot-
in og minna hvergi á “arnsúg í flugnum”.
Eitt langbezta kvæðið í áminstri bók
mun vera Froskar, bls. 81. Fer þar á-
gætlega saman snjöll meðferð yrkis-
efnis og kliðmjúk hrynjandi, en kvæð-
inu lýkur með þessu erindi:
Eg gleðst og fagna froskum með
og flyt mitt þakkarkvæði,
til lífsins herra lof ég kveð,
því lífið alt er gæði.
Um blessuð vorkvöld björt og löng,
sem blíðka mig og hressa,
ég hlýði á fagran froskasöng,
mér finst það heilög messa.
Höfundur Eldflugna hefir lagt gjörva
hönd á margt um dagana, hann hefir
stundað búskap, rekið verzlun, stjórnað
söngflokkum, og hamingjan má vita
hvað margt fleira hann hefir fengist
við; þessarar fjölbreyttni verður víða
vart í vali yrkisefnanna, eins og fram
kemur í vísunni á bls. 99, er höfundur
kemur þreyttur heim af engjum:
Eg er að deyja, svo að segja;
seint að heyja gengur mér.
Margt vill beygja mig og sveigja,
máske þegja réttast er.
Smellin er vísan“Borguð skuld”, á blað-
síðu 103:
Gegnum basl, sem beint er mér
brýst ég einhvern veginn.
Gróðamönnum geld ég hér,
en guði hinum megin.
Á bls. 114 er þessi hlýja vísa “Lífsskoð--
un mín”:
Láttu brosið Ijóma á vanga,
líkstu blómum, sem að anga
móti sól á sumartíð.
Láttu eld þíns anda þíða
allan jökul vetrartíða,
orð og róminn ástarblíða
endurverma kaldan lýð.
i Frá kvæðum Vigfúsar andar fögrum
hugsunum, og þess vegna eru þau
hollur lestur hverjum sem er; höfund-
ur hefir átt annríkt um dagana og þar
af leiðandi hafa kvæði hans, eins og
reyndar svo margra annara, verið tóm-
stundaverk; að slíkum tómstundum
hafi verið vel varið, verður eigi um vilst.
Prófessor Halldór
Hermannsson sjötugur
Doktor phil. Halldór Hermannsson,
bókavörður og prófessor í Norðurlanda-
málum og bókmenntum við Cornell-
háskólann í Ithaca, New York, átti sjö-
tugsafmæli þ. 6. janúar, en hann hefir
um langt skeið verið bæði einn hinn víð-
kunnasti og afkastamesti útvörður ís-
lenzkra fræða á erlendum vettvangi, og
þá sér í lagi vestan hafs, því að hér í
álfu hefir hið víðtæka og mikilvæga
fræðistarf hans unnið verið. Væri það
því hin mesta vanræksla og vanþakk-
læti, ef hans væri eigi að verðugu minnst
í blöðum vorum hérlendis á þessum
merku tímamótum ævi hans, og stendur
engum það nær en gömlum nemanda
hans, sem auk haldgóðrar fræðslunnar
undir leiðsögn hans á skólaárunum,
hefir notið traustrar vináttu hans og
hollráða í fræðilegum efnum í fullan
aldarfjórðung.
Halldór Hermannsson er Rangæingur
að ætt, og standa að honum góðir stofn-
ar; er honum .því eigi í ætt skotið um
hæfileika og fyrirmennsku í framkomu.
Að loknu stúdentsprófi í Reykjavfk árið
1898, stundaði hann um skeið laganám
í Kaupmannahöfn, en gaf sig brátt allan
við fræðimennsku, eftir að hann á Hafn-
arárum sínum komst í kynni við íslands-
vininn og bókasafnarann Willard Fiske;
vann með honum að bókfræðilegum
störfum og útgáfum, fyrst í Flórens á
ítalíu og síðar í Ithaca, og varð að Fiske
látnum (1905) bókavörður við hið mikla
safn íslenzkra bóka, sem hann hafði
gefið Cornell-háskóla, og jafnframt
kennari í norrænum fræðum. Hefir
hann gegnt því tvíþætta starfi óslitið
síðan, að undanteknu árinu 1925—26
er hann var bókavörður við Árna
Magnússonar safnið í Kaupmannahöfn.
Hefir hann fyrir nokkuru síðan náð ald-
urstakmarki háskólakennara í Cornell,
en fyrir þrábeiðni yfirvalda háskólans
gegnt bókavarðastarfinu áfram, en mun
nú í þann veginn að hverfa með öllu frá
þeim starfa, enda hefir hann vel til
nokkurrar hvíldar unnið frá skyldustörf-
um, þegar litið er yfir hið langa og víð-
tæka dagsverk hans. Hitt vita allir, sem
til hans þekkja, að eigi muni hann fram-
vegis sitja auðum höndum, jafn mikill
fræöa-unnandi og hann er og eljumaður
að sama skapi.
Bókavarðarstarf Halldórs í Cornell
hefir verið með afbrigðum, að áliti allra,
sem það er kunnugt og dómbærir eru á
slíka hluti, enda mun það eigi ófmælt,
að sárfáir eru þeir íslendingar að fornu
og nýju, sem verið hafa jafn miklir bók-
fræðingar og hann er, eins og sjá má
ótvírætt af hinum mörgu og vönduðu
ritum hans um íslenzka bókfræði, er
lengi munu halda nafni hans á lofti, því
að hann hefir unnið brautryðjendaverk
á því sviði. Hafa bókaskrár hans yfir
Fiske-safnið, er út eru komnar í þrem
stærðarbindum (1914, 1927 og 1943)
réttilega verið til stórvirkja taldar í ís-
lenzkri bókfræði. Jafnframt hefir hann
í bókavarðarstarfinu sýnt fágæta ár-
vekni og hagsýni, svo að safnið hefir
drjúgum meir en tvöfaldast að stærð í
höndum hans, og hirða þess verið með
sömu ágætum.
En samhliða bókavörzlunni h e f i r
Halldór altaf haft á hendi háskóla-
kennslu í íslenzku og öðrum Norður-
landamálum og flutt fyrirlestra um
norræna menningu, sögu og bókmennt-
ir. Nemendur hans í þeim fræðum eru
því margir orðnir, og munu þeir hugsa
hlýtt til síns gamla kennara í tilefni af
sjötugsafmæli hans, því að hann nýtur
bæði virðingar þeirra og vináttu. Gegnir
sama máli um samverkamenn hans
víðsvegar í norrænum fræðum. Þeir
kunna hann bæði vel að meta sem lærð
an og ágætan fræðimann og eigi síður
mannkosti hans, heilsteypta skapgerð,
hreinskilni og vinfestu. Eiga þeir og
margir hverjir honum beina skuld að
gjalda fyrir fræðilega aðstoð í ýmsum
greinum, sem jafnan er örlátlega í té
látin af hans hálfu.
En þó Halldór hafi unnið frábært
starf sem bókavörður og verið vel met-
inn og vinsæll háskólakennari, þá hefir
hann þó orðið víðkunnastur fyrir hin
umfangsmiklu ritstörf sín í þágu ís-
lenzkra fræða. Auk fyrrnefndra bóka-
skrár sinna yfir Fiske-safnið og sér-
stakrar skrár yfir rúnasafn þess — 1917
— hefir hann ritað einn saman og gefið
út nærri árlega síðan 1908 ritsafnið
Islandica, og eru komin út 31 bindi þess,
er öll fjalla um ísland og íslenzk fræði
og bera fagurt vitni víðfeðmri þekkingu
höfundarins í þeim efnum, elju hans og
vísindalegri nákvæmni.
Er þar meðal annars að finna ítar-
legar skrár yfir útgáfur og þýðingar
íslenzkra fornrita, yfir rit um Vínlands-
ferðirnar, íslenzkar bækur á 16. og 17.
öld, og yfir íslenzka rithöfunda vorra
daga fram til 1913, er ritið kom út. Þá
eru í safninu vandaðar útgáfur ýmsra
íslenzkra fornsagna og annara ís-
lenzkra rita frá fyrri öldum, merkisrit
um íslenzka kortafræði og jafn merk
rit og fróðlegt um einstaka menn og
ritstörf þeirra, svo sem Eggert Ólafs-
son, Sir Joseph Banks og ísland og Sæ-
mund Sigfússon og Oddaverja. En sam-
fara fróðleiknum hafa rit þessi, eins og
önnur rit höfundar, margvíslegar
merkilegar athuganir að geyma, því að
hann er maður hugkvæmur og gjör-
hugull. Er og þetta ritsafn hans löngu
orðið ómissandi öllum, sem fást við
norræn og íslenzk fræði, og hefir borið
hróður íslands víða um lönd. 4
Að ótöldum ritgerðum og ritdómum
um íslenzk efni í íslenzkum og erlend-
um tímaritum — einkum amerískum —
og í alfræðiritum, hefir Halldór á síðari
árum, utan Islandica-safnsins, annast
útgáfur ýmsra íslenzkra merkisrita. —
Má þar sérstaklega nefna útgáfu hans
af Fríssbók — 1932 — og hið mikla og
fagra rit hans um skrautlist íslenzkra
handrita, lcelandic llluminated Manu-
scripts of the Middle Ages — 1935 —
sem báðar komu út í hinu glæsilega
safni Ejnars Munksgaards bókaútgef-
anda af Ijósprentuðum útgáfum ís-
lenzkra skinnbóka. Inngangsritgerðir
Halldórs að útgáfum þessum eru hinar
merkilegustu. En rannsóknum sínum í
íslenzkri handritafræði hefir hann
haldið áfram í Islandica-safni sínu, svo
sem með riti sínu llluminated Manu-
scripts of the Jónsbók — 1940 — sem
lýsir bókaskrauti í handritum þeirrar
frægu lögbókar.
Hér hefir að sönnu verið farið fljótt
yfir sögu, en nóg sagt til þess, að öll-
um má ljóst verða, hver afreks- og af-
kastamaður Halldór Hermannsson hef-
ir verið á sviði íslenzkra fræða, og er
það þeim mun aðdáunarverðara, þegar
í minni er borið, að hjá honum haldast
afkastasemin og vandvirknin stöðugt í
hendur. Með þessu fræðistarfi sínu á
ensku — því að mest hefir hann, góðu
heilli, á því máli ritað — hefir hann
einnig innt af hendi hið mikilvægasta
landkynningarstarf í þágu íslands og
íslenzkrar menningar, svo að það verð-
ur seint fullmetið eða þakkað.
Sem gamall nemandi hans vil ég með
greinarkorni þessu rétta honum, yfir
hálfa álfuna,»hlýja hönd til þakkar fyrir
fræðistarfið, fræðsluna og trygga vin-
áttu. Sitji hann heill í sínum heiðurs-
sessi í hópi fræðafrömuða vorra, verði
sem bjartast um hann nú, er halla tek-
ur degi, og megi hans sem lengst við
njóta! Veit ég, að landar hans hér í
álfu taka almennt og heilhuga undir
þær afmæliskveðjur og óskir.
Richard Beck.
ÞINGM AL:
Réttindi íslendinga á Grænlandi
Hvað gerir Alþingi?
Tillaga til þingsályktunar sem
Pétur Ottesen hefir borið fram á
Alþingi um réttindi íslendinga í
Grænlandi virðist hafa vakið
talsverðan óróa í Danmörku. Er
ekki ólíklegt að mál þetta eigi
eftir að valda miklum deilum, ef
fslendingar ætla ekki að gefa upp
þegjandi og hljóðalaust for'n rétt-
indi sín í Grænlandi, og án þess
að fá úr því skorið fyrir alþjóða-
dómstóli hver réttindi þeir hafa í
þessu efni.
í þessu sambandi þykir rétt að
birta greinargerð f y r i r ofan-
greindri tillögu sem komin er
fram á Alþingi.
Greinargerð:
Enn hefir ekki verið gerð gang-
skör að því af hálfu Alþingis og
ríkisstjórnar, að viðurkenndur
verði réttur íslendinga til at-
vinnurekstrar á Grænlandi og
við strendur þess. Við svo búið
má ekki sitja lengur. Verður nú
án tafar að taka upp mál þetta
með festu og röggsemi og leggja
það fyrir gerðardóm á alþjóða-
vettvangi, ef Danir, sem nú sitja
yfir rétti íslendinga í Grænlandi,
verða ekki refjalaust við þessari
kröfu vorri. Tillögu um þetta
efni, samhljóða þeirri, er hér
birtist, flutti eg á Alþingi 1945.
Fylgdi henni þá svohljóðandi
greinargerð:
“Það má allt til síðustu ára
virða íslendigum það til vork-
unnar, þótt þeir hafi ekki gert
gangskör að því að krefjast ósk-
oraðs réttar til atvinnurekstrar á
Grænlandi og við strendur þess.
Stöðu íslands var svo háttað til
ársins 1918, að vér höfum fyrst
þurft að leita réttar sjálfra vor
og fullra yfirráða í landi voru.
Viðurkenning sú, sem íslending-
ar fengu fyrir fullveldi sínu 1918,
gerði oss í þessu efni hægra um
vik til að ná nokkuru færi á að
leita annars réttar vors, er oss
var áður með öllu fyrirmunað og
í salti hefir legið um ár og aldir.
Eftir lýðvelisstofnunina 1944 höf-
um vér að fullu öðlazt aðstöðu til
þess að krefjast hér réttar vors
og fá úr málinu skorið að alþjóða-
lögum, ef lyktir á því takast ekki
með öðrum hætti. Þegar svo er
komið, er það íslendingum engan
veginn vannsalaust að láta aðra
þjóð þegjandi og átölulaust sitja
yfir rétti vorum til hagnýtingar á
auðlindum Grænlands á landi og
í sjó.
Engan veginn er því þannig
varið, að eigi hafi áður verið um
það uppi raddir á íslandi, að ís-
lendingar ættu ríkan rétt til at-
vinnurekstrar á Grænlandi og
yfirráða þar. Skáldið og hug-
sjónamaðurinn Einar Benedikts-
son ritaði fjölda þróttmikilla og
rökfastra blaðagreina um rétt
vorn á Grænlandi. Á síðustu ár-
um hefir kunnur mennta og
fræðimaður, Jón Dúason, dr.
phil., varið til þess drjúgum hluta
af ævistarfi sínu að viða að heim-
ildum, sem hann hefir notað sem
efnivið í merkar bækur um þetta
mál, þar sem réttur vor til Græn-
lands, þessarar fornu íslezku ný-
lendu, er studdur sterkum rök-
um. Hefir Alþingi viðurkennt
þetta merka starf Jóns Dúasonar
með því að veita nú um nokkurt
árabil fé úr rikisstjóði á fjárlög-
um til útgáfu þessara rita.
I fornritum vorum og samtíma
ritum annarra Norðurlanda-
þjóða fyrirfinnst fjöldamargt,
sem skýtur sterkum stoðum und-
ir réttarkröfu vora til Græn-
lands.
Grænland liggur næst Islandi
allra Norðurálfulanda. Þá leikur
það eigi á tveim tungum, að
Grænland fanst og byggðist frá
Islandi af íslenzkum þegnum
eingöngu. íslenzk nýlenda stóð
þar um 500 ár. Þótt torsótt væri
löngum sigling milli Grænlands
og íslands í þann tíma, var ö-
slitið viðskiptasamband milli
landanna um langan aldur. —
Þingið í Görðum í Einarsfirði
samsvaraði að sumu leyti vor-
þingum hér á landi, og á Græn-
landi gengu íslenzk lög. Þessu
til sönnunar eru ýmsir staðir í
Grágas, þar sem ákvæði eru um
(Frh. á bls. 5)
Innköllunarmenn LÖGBERGS
Amaranth, Man............ B. G. Kjartanson
Akra, N. Dak. ................
Backoo, N. Dakota ........... Joe Sigurdson
Árborg, Man ............ K. N. S. Fridfinnson
Árnes, Man. ................... M. Eínarsson
Baldur, Man. .................. O. Anderson
Bellingham, Wash........... Árni Símonarson
Blaine, Wash. ............. Árni Sím.onarson
Boston, Mass. ..............Palmi Sigurdson
384 Newbury St.
Cavalier, N. Dak....................... Joe Sigurdson
Bachoo, N. D.
Cypress River, Man. ........... O. Anderson
Churchbridge, Sask ..... S. S. Christopherson
Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson
Elfros, Sask.......Mrs. J. H Goodmundson
Garðar, N. Dak......
Gerald, Sask.
Geysir, Man. .......
Gimli, Man. .....v..
Glenboro, Man
Hallson, N. Dak.
Hnausa, Man. .......
Husavick, Man.
Langruth, Man.
Leslie, Sask........
Lundar, Man.
Mountain, N. Dak.
Point Roberts, Wash.
Riverton, Man.
Seattle, Wash.
6522 Dibble N.W., Seattle, 7, Wash.
Selkirk, Man. ........... Mrs. V. Johnson
Tantallon, Sask. J. Kr. Johnson
Vancouver, B.C. F. O. Lyngdal
5975 Sherbrooke St, Vancouver, B.C.
Víðir, Man............ K. N. S. Friðfinnson
Westbourne. Man.......... Jón Valdimarson
Winninog Beach. Man......... O. N. Kárdai
Walhalla, N. D. ............. Joe Sigurdson
Bachoo, N. D.
Páll B. Olafson
C. Paulson
K. N. S. Friðfinnson
O. N. Kárdal
O. Anderson
Páll B. Olafson
K. N. S. Fridfinnson
.... O. N. Kárdal
John Valdimarson
Jon Ólafsson
Dan. Lindal
Páll B. Olafson
S. J. Mýrdal
K. N S. Friðfinnson
J. J. Middal