Lögberg - 24.06.1948, Qupperneq 1
Cleaning
Inslilulion
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 24. JÚNÍ, 1948
NÚMER 26
ATVIKAVÍSUR
Sumar-blíða
Lifga straumar lilju ból,
litir flauma blossa,
jörðu sauma silki kjól
sælu-drauma-hnossa.
Yfir skál
Margt þó brjáli bölið menn,
best við skál þeirii seriiur;
Tvískift sál og eðli enn
oft til mála kemur!
/Vfsökun
Lífs um torg þó leiki’ ég mér
laus við sörgir “hálfur”,
engan korg af iðrun ber,
ef ég borga sjálfur! Pálmi
Falleg hátíð
Lýðveldishátíð sú, sem Islend-
ingar í Norður-Nýja-íslandi
efndu til að Iðavelli við Hnausa
síðastliðinn laugardag, var fal-
leg og hin virðulegasta um alt;
aðsókn var dágóð og einmuna
blíða hvíldi yfir þessu vingjarn-
lega umhverfi allan daginn; eitt,
sem meðal annars svipmerkti há
tíð þessa var það, að nú voru lið-
in 75 ár frá því, er öndvegissúlur
íslenzkra frumherja bar að
landi við strendur Winnipeg-
vatns; var þessa merka atburðar
skilmerkilega minst, eins og sjá
má af þar að lútandi ræðu frú
Ingibjargar Ólafsson, sem birt er
á öðrum stað hér í blaðinu.
Frú Elinborg Lárusdóttir rit-
höfundur mælti fagurlega fyrir
Minni íslands, og var ræða
hennar frá upphafi til enda, full
af margháttuðum fróðleik. —
Heimir Thorgrímsson mintist
Canada í ræðu, og mæltist hið
bezta.
Ungmeyjaflokkur frá Árborg,
er Mrs. Florence Broadly stjórn-
aði, skemti með nokkrum ísl.
söngvum, er vöktu almenna
hrifningu; þá var og tvísöngur
þeirra Fjeldstedsbræðra frá Ár-
borg, að verðugu mjög rómaður.
Eskimói nokkur frá Baffinsey
kvað rímur, eða eitthvað þar um
líkt, á landsvísu þjóðflokks síns.
Tvö góð kvæði eftir Lárus B.
Nordal á Gimli voru lesin á há-
tíðinni; annað þeirra las höfund-
urinn sjálfur, en hitt Guttormur
J. Guttormsson skáld.
Fjallkona hátíðarinnar var
Mrs. S. W. Sigurgeirsson frá
Riverton, en hirðmeyjar hennar
Steinunn Pálsson og Colly Bald-
vinsson, einnig frá Riverton; var
það í almæli á samkomunni hve
Fjallkonan hefði komið tígulega
fyrir sjónir og flutt skilmerki-
lega boðskap sinn; hið sama
mátti segja um Miss Canada —
Borgu Sigurðson, er hafði sér til
fylgdar Vigdísi systur sína og
Emily Sigvaldason úr Geysis-
bygð.
Forsæti á áminstri Lýðveldis-
hátíð skipaði Gunnar Sæmunds-
son og fórst sá starfi rösklega úr
hendi; þetta var sönn þjóðrækn-
ishátíð, þar sem íslenzk tunga
skipaði öndvegi.
Sextán ára
cellósnillingur heldur
hljómleika hér
Á leið á heimsfrægan bandarísk-
an skóla
I kvöld heldur 16 ára gamall
cellóleikari, Erling Blöndal
Bengtsen, hljómleika í Austur-
bæjarbíó. Erling er sonur sjón-
anna Sigríðar Nielsen og Valdi-
mars Bengtsen. Héðan fer hann
bráðlega til Bandaríkjanna og
ætlar að fullkomna sig , í list
sinni við hinn heimsfræga Curtis
hljómlistarskóla í Philadelphíu,
cn þangað komast aðeins þeir,
sem fremst standa á því sviði, og
fer öll kennslan fram endur-
gjaldslaust. Verða allir nemend-
ur að gangast undir próf, er
þangað vilja komast, en Erling
fékk undanþágu vegna hæfileika
sinna. Gerir hann ráð fyrir að
hann muni dveljast þar 1—2 ár
ril þess að þjálfa sig og hlusta á
músik.
Dr. Guðmundur Lambertsen
Lýkur prófi í
læknisfræði
Þann 19. maí síðastliðinn, lauk
þessi ungi og gjörvulegi maður
fullnaðarprófi í læknisfræði með
ágætiseinkunn við Manitobahá-
skólann, og á hann óvenju glæsi
legan námsferil að baki; að
loknu námi við alþýðuskóla
Glenboro-bæjar, ákvað Guð-
mundur að leita sér æðri ment-
unar og varð þá nám í læknis-
fræði honum hugstæðast; þess
vegna innritaðist hann við lækna
vísindadeild háskólans og fékk
brátt orð á sig fyrir frábæra
námshæfileika, ástundan og vilja
þrek; leið eigi á löngu að hann
ynni ein námsverðlaunin af öðr-
um; um sumarið 1942 varð Guð-
mundur fyrir þeirri sæmd, að
hljóta námsverðlaun menta-
málaráðs Manitobafylkis ti'
tveggja ára, $650.00 fyrir hvort
árið um sig; árið eftir vann hann
hin svonefndu David A. Stewart
verðlaun og óx í áliti kennara
sinna með hverju líðandi ári.
Guðmundur læknir er af góðu
og gáfuðu fólki kominn; hann
er sonur Guðmundar Lambert-
sen gullsmiðs og stórbónda frá
Glenboro, sem fyrir skömmu er
látinn, og eftirlifandi ekkju hans
Brynjólfnýjar Ásmundsdóttur,
sem ættuð er úr Núpasveit í Þing
eyjarþingi. —
Þessi ungi og efnilegi læknir,
er þegar hefir aukið all-verulega
á hróður íslenzka þjóðarbrotsins
í þessu landi, hefir afráðið að
setjast að í Brandon og stunda
þar lækningar í félagi við Dr.
Fjeldsted frá Gimli.
Heimsfrægir menn
við skólann
Þar sem skólinn tekur ekki til
starfa fyr en í haust, þá hefir
Gregor Piergorskí, sem er pró-
fessor við skólann, boðið honum
að koma og dveljast með sér í
sumarbústað sínum og njóta ti
sagnar hans. Skólinn nýtur afar
mikils álits og hefir sína eigin
hljómsveit sem heimsfrægir
menn eins og Stokowsky og
Kussewitsky stjórna. — Meðal
kennara þar er Serkin, píanó-
snillingurinn heimsfrægi.
Vakti hrifningu
Adolfs Busch
Erling, sem margir kalla undra
barnið, hélt fyrsta konsertinn
þegar hann var tæplega 5 ára.
Síðan hefir hann haldið marga
konserta og m. a. hér í Reykja-
vík fyrir tveimur árum, þegar
Busch-kvartettinn var hér. Vakti
hann þegar hrifningu Adolfs
Busch og þeirra félaga, sem
hann lék með og er það fyrir
milligöngu þeirra, tónlistarfélags
ins og margra annarra að honum
býðst þetta einstaka tækifæri.
Mbl. 26. maí.
Silfurbrúðkaup
Síðastliðinn laugardag áttu
hin mætu og vinsælu hjón, W. J.
Jóhannsson leikhússtjóri í Pine
Falls, Man. og frú Kristín Jó-
hannsson, aldarfjórðungs hjóna-
bands-afmæli; heimsóttu þau þá
um daginn meðlimir fjölskyld-
unnar, flestir frá Winnipeg, og
nutu þar eftirminnilegs mann-
fagnaðar; silfurbrúðguminn er
sonur Ásmundar P. Jóhannsson-
ar byggingameistara og fyrri
konu hans, Sigríðar, en silfur-
brúðurin dóttir þeirra Mr. og
Mrs. J. J. Thorvardson; njóta
þau mikillar hylli í byggðarlagi
sínu, og er heimili þeirra rómað
fyrir alúð og risnu.
Að kvöldi hins áminsta dags,
efndu samborgarar silfurbrúð-
hjónanna í Pine Falls til dans-
leiks og veizlu þeim til heiðurs.
Lögberg flytur silfurbrúðhjón-
unum innilegar árnaðaróskir í
tilefni af þessum merka áfanga í
lífi þeirra.
Samvinna um
heilbrigðismál
, Fyrir rúmum hálfum mánuði
kunngerði King forsætisráð-
heri*a stjórnum hinna einstöku
fylkja, að sambandsstjórn væri
fús á að leggja fram þrjátíu milj.
dala með það fyrir augum, að
koma heilbrigðismálum þjóðar-
innar í æskilegra horf, en fram
að þessu hefði gengist við, svo
sem með byggingu nýrra sjúkra-
húsa, þar sem þörfin væri mest
aðkallandi; það skilyrði var
fylkjunum sett, að þau héldi á-
fram að starfrækja sérhverjar
þær heilbrigðisstofnanir, sem
þegar væri fyrir hendi, auk
þeirra, sem bættust við; nú hafa
flest fylkin gengið að þessu til-
boði, jafnvel Ontario og Quebec,
sem jafnaðarlegast hafa hrundið
einu kostaboðinu af öðru af
hálfu núverandi sambandsstjórn
ar. —
Æskulýðshöllinni
úthlutað lóð
Væntanlegri æskulýðshöll hef
ir verið úthlutað lóð.
Skautahöllin h.f. hefir boðið
Bandalagi æskulýðsfélaganna í
Reykjavík, sem ætla að reisa
æskulýðshöllina, lóð félagsins
inn við Tungu. 1 gær samþykti
bæjarráð þessa ráðstöfun lóðar-
innar.
Stjórn æskulýðshallarinnar
hefir áformað, að láta fara fram
hugmyndasamkeppni um upp-
drætti að byggingunni. Telur
stjórnin, að grunnflötur hússins
megi ekki vera minni en 900
ferm. —
Tíminn, 15. maí 1948
Próf. Alexander
Jóhannesson kjörinn rektor
í gær fór fram í Háskólanum
rektorkjör fyrir stofnunina. —
Kjörinn var próf. Alexander Jó-
hannesson.
Rektorskjör fer fram þriðja
hvert ár og var próf. Alexander
því kjorinn til næstu þriggja ára.
Hann tekur við af próf. Ólafi
Lárussyni rektor, á hausti kom-
anda, er næsta missiri hefst.
Mbl. 15., maí.
Séra Valdimar J. Eylands
Sæmdur
riddarakrossi
Þann 17. þ. m., var prestur
Fyrsta lútefska safnaðar í Winni
peg, séra Valdimar J. Eylands,
sem þjónað hefir árlangt Útskála
prestakalli, sæmdur riddara-
krossi hinnar íslenzku Fálka-
orðu^ fór afhending orðunnar
fram á Gimli, heimili biskups í
Reykjavík, að viðstaddri fjöl-
skyldu prestsins og all-mörgum
öðrum gestum. — Sigurgeir
biskup afhenti orðuna fyrtr
hönd forseta íslands.
Verkföll og róstur
Undanfarna viku logaði allt í
verkföllum á Suður-Frakklandi,
og leiddi þetta til alvarlegra
götubardaga, meiðsla og blóðsút
hellinga; stjórnin kvaddi herlið
á vettvang og þúsundir lögreglu-
jjóna; eftir langa mæðu tókst
yfirvöldunum loksins að skakka
leikinn og höfðu þá yfir fimm
hundruð særðra manna verið
fluttir á sjúkrahús; hinir æstu
verkfallsmenn létu flöskur með
hinum og þessum eitursýrum
í, dynja á lögreglunni, og leiddi
Detta til þess, að all-margir lög-
reglumenn mistu sjónina.
Morrænt ljóðasafn
getið út í New York
Kvæði efíir mörg íslenzk 13 óð-
skáld
í New York er í undirbúningi
útgáfa á stóru safni af nútíma
ljóðum frá öllum Norðurlöndun
um fimm, bæði á frummálunum
og með enskum þýðingum. Bók-
in verður um 800 síður. Aðalrit-
stjóri er Martin S. Allwood. —
Tilefnið er að Svíar í Ameríku
halda upp á fimmtugs afmæli
Augustana Synod á Rock Island
í Illinois í sumar. Erkibiskupinn
yfir Svíþjóð og ýmsir aðrir hátt
settir Svíar munu þá fara og
heimsækja landa sína vestra.
TiLútgáfunar hefir verið vand
að eftir beztu getu. Auk ljóð-
anna verða stuttar ritgerðir um
ljóðagerð hvers lands skrifaðar
af hinum færustu mönnum.
Um íslenzka hluta bókarinnar
sjá þeir Stefán Einarsson,
prófessor í Baltimore og Magn-
ús Á. Árnason, listamaður í
Reykjavík. Sá síðarnefndi mun
hafa gert flestar þýðingarnar,
en auk þess verða þar nokkrar
þýðingar eftir Stefán Einarsson
og nýjar þýðingar eftir frú
Jakobínu Johnson o. fl. Skáldin,
sem þar koma fram og ekki hafa
birst þýðingar eftir áður t. d.
í Icelandic Lyrics, eru: Þórberg
ur Þórðarson, Halldór Kiljan
Laxness, Jóhannes úr Kötlum,
Tómas Guðmundsson, Guðmund
ur Böðvarsson, Snorri Hjartar-
son, Steinn Steinar o. fl.
ísafold mun hafa tryggt sér
hluta af upplaginu til sölu hér
á landi. —
Tíminn, 10. maí.
Stærsta gróðurhús
hérlendis
í Hveragerði
Á garðyrkjustöðinni Fagri-
hvammur h. f. í Hveragerði voru
fyrir nokkru tekin í notkun 2
stærstu gróðurhús sem reist
hafa verið hér á landi. Er grunn
flötur hvors þeirra um 1050 fer-
metrar. Hús þessi eru byggð úr
járni og eru mjög björt og svo
rúmgóð að unnið er með 2 drátt-
arvélum samtímis að jarðvinslu í
þeim. Þá er það og nýjung við
hús þessi að upphitun þeirra fer
ffam á þann hátt að heitu lofti
er dælt í þau frá sérstökum loft
hiturum sem komið er fyrir í
klefa milli húsanna. Garðyrkju-
stöðin Fagrihvammur er við
aukningu þessa stærst slíkra
stöðva í Hveragerði eða um
4000 ferm. undir gleri.
Aðalframleiðsla stöðvarinnar
eru rósir úm 250 þús. laukblóm
100 þús. og tómatar um 15 þús.
smálestir árlega. Er framleiðslan
geymd í sérstökum kæliklefa
frá því hún er uppskorin og þar
til henni er komið á markað. —
Stöðin er rekin af Ingimar Sig-
urðssyni og Þráni Sigurðssyni.
Mbl. 20. maí.
MORGUN Á EGILSSTÖÐUM
(Helgað frú Fanney Jónsdóttur á Egilsstöðum á Völlum í tilefni af
ógleymanlegri heimsókn okkar hjóna 1946).
Eftir nótt á Egilsstöéum
árla morguns risið er.
Angan töðu, ilm úr skógi,
alt í senn að vitum ber.
Lygnir byljir Lagarfljótsins
litum skipta fyrir sól.
Engan man ég morgun fegri
mála íslenzkt höfuðból.
Hýr á svip og hlý í fasi
húsfreyjan með lokk um kinn
leiðir okkur út á hólinn
utanvert við bæinn sinn.
Alt ber vitni áræðinu —
engi ræktað, stækkað tún;
er þó sem af öllu fögru
allra tignust sýnist hún.
Óðalsrækt og aðalslyndi
eiga sterkar rætur hér;
hérna keðja kynslóðanna
konungsmerki íslenzkt ber.
Sáluhjálp í sögu landsins,
sveitarræktin fegurst skín,
þar er íslands æðsta framtíð
altarisganga og messuvín.
Hér í lífsins lærða skóla
Lagarfljótsins bakka við,
þróast kjarninn ættar erfða
enn í dag að fornum sið;
vakir þó í öllum áttum
orkuflug hins nýja manns,
sem að fann í fylling tímans
frelsismátt síns heimaranns.
Svip á bæ og sveitarmenning
setur konan jafnan fyrst;
þangað sækir svölun æðstu
sálin ferðamannsins þyrst.
Hér er tekið opnum örmum
öllum, sem að garði ber.
Auður í Hvammi Austfirðinga
endurborin virðist mér.
Hér við ljóð hins ljósa morguns
les ég íslenzkt Faðir vor; «
finn í öllu unað lífsins,
íslands sæmd og gæfuspor.
Alt er þakið iðjagróðri,
engin merki foks né sands.
Hér má sjá í einu og öllu
ást til guðs og föðurlands.
Einar P. Jónsson.