Lögberg - 24.06.1948, Síða 3
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 24. JÚNI, 1948
3
FRÁ VANCOUVER, B.C.
16. júní 1948
KVEÐJA, DR. PÉTUR B. GUTTORMSSON
Flult í Kveðjusamsæti sem honum var haldið af gamalmenna
heimilis-nefndinni í Vancouver B. C.
Nú á dögum er talað mest um
vatnsflóðið hér, það er á allra
vörum. Nú er það að fjara út aft-
ur þessa seinustu daga, svo það
er ekki búist við meiri skemd-
um af því, enn sem komið er. —
Það er talið að skemdirnar
muni nema um 50 til 60 miljón-
um dollara, en það er samt bara
ágiskun, því ennþá hefir engin
áreiðanleg skýrsla verið gefin út
um það. En það er víst, að skað-
inn, sem þetta flóð hefir valdið,
er gífurleg upphæð. Elztu menn
hér muna eftir álíka flóði i
Fraserárdalnum, fyrir eitthvað
yfir fimtíu árum síðan, en þá var
þessi byggð að mestu leyti óbygð
svo það fóru ekki miklar sögur
um það. Þeir, sem höfðu tekið
sér bólfestu í Fraserár-dalnum
þá, mistu margir aleigu sína. —
Nú er fólkið, sem flúði frá heim
ilum sínum til að forða lífi sínu
og sinna, farið að fara heim aft-
ur, og er það í flestum tilfellum
ömurleg heimkoma. í mörgum
tilfellum hafa húsin flotið í
burtu og liggja í flekum, langt
í burtu frá því sem þau voru
áður. Einn af þessum mönnum,
sem hafa farið heim aftur, segir
svo frá því: “Þegar ég gat opnað
hurðina til að komast inn, þá var
niargra þumlunga þykt lag á gólf
inu af aurleðju, sem við fórum
strax að moka út, þegar ég ætl-
aði að færa til píanóið konunnar
ttiinnar, þá liðaðist það alt í
sundur, og eins var með öll hús
gögnin sem þar voru inni. Lím-
ið hafði alt leysts upp í þeim,
svo alt féll í stafi þegar hreift
var við þeim”. Mestur er samt
skaðinn í því að allar afurðir á
þessu svæði, er algjörlega tapað
ar þetta ár. Það er líka álitið, að
það taki tvö til þrjú ár, þar til
ttiikið af því landi, sem flætt hef
ir yfir, verði komið í rækt aft-
ttr, vegna aurleðjunnar sem nú
er yfir alt. Það er alveg undrun
arlegt hvað fólkið er ákaft með
að komast aftur heim til sín, til
að koma öllu í lag hjá sér aftur,
Nn það tekur fleiri ár til þess
svo margt af gamla fólkinu lifir
okki nógu lengi, til að sjá því
öllu komið í lag. Samskot hafa
verið tekin hér í British Colum-
bia til hjálpar þessu nauðstadda
fólki, og hefir það tekist mæta
vel. Hafa auðfélögin komið þar
rausnarlega fram, og gefið marg
ar þúsundir hvert í þann sjóð,
svo hann nemur nú á aðra miljón
dollars. Bæði fylkisstjómin og
sambandsstjórnin í Ottawa,
hafa lofast til að hjálpa þessu
fólki til að koma því aftur á fót
efnalega, með fjárveitingum. —
Nú hefir Ottawa stjórnin tekið
UPP á dagskrá sína að tekið sé
strax, að byggja öfluga flóð-
garða með fram Fraser-ánni,
svo þessi vandræði geti ekki
komið fyrir aftur, er búist við
að Bandaríkin taki þátt í því, því
þetta flóð hér, hefir flætt suður
fyrir landamærin, og engir inn-
Nytjenda agentar hafa getað
komið í veg fyrir það. Síðan
þetta flóð byrjaði hafa mörg
þúsund manns unnið við það dag
°g nótt, að halda við flóðgörð-
unum og byggja upp í skörðfn
Þar sem vatnið braut sér farveg
í gegn. Var það gert mest með
að hlaða sandpokum alsstaðar,
sem virtist vera að gefa sig, og
tókst það ótrúlega vel.. Það er
víst óhætt að geta þess til að
flest allir pokar í landinu séu nú
komnir hingað til British Col-
umbia. Þeir voru fluttir inn hing
að frá austurströndinni og úr
öllum áttum, mest með flugvél-
um, því það þoldi enga bið. Eg
skýri frá því seinna 'hvernig
gengur með að koma hér öllu í
lag aftur.
íslendingadags-nefndin, sem
kosin var til að halda hátíðlegan
fullveldisdag Islands, varð að
breyta um daginn, sökum þess
að ekki var hægt að fá Mrs. H. F.
Daníelson frá Winnipeg þann
dag, til að flytja þar erindi. Svo
nú hefir nefndin auglýst það, að
samkoman verði haldin þann 25.
júní kl. 8.15 e. h., í neðri salnum
í Hasting Auditorium, þar sem
Mrs. Danielson flytur fyrirlest-
ur sem hún nefnir “Island í ljóma
minninganna”. Líka verður þar
á dagskrá til að skemta, söng-
flokkur íslenzka lúterska safn-
aðarins, undir stjórn Mr. Stef-
áns Sölvasonar, sem syngur
valda, íslenzka söngva. Ýmislegt
fleira verður þar til skemtunar,
ef tími leyfir. Vonast er til að
íslendingar sæki þessa samkomu
vel, og sleppi ekki þessu tæki-
færi að heyra Mrs. Danielson,
sem er annáluð sem fyrirlesari.
Á seinasta safnaðarfundi sem
haldin vaiyvoru þau Mr. Stefán
Sölfason og Mrs. Jón Sigurðson
kosin erindrekar héðan á næsta
kirkjuþing. —
Þann 15. júní lagði á stað
héðan Mrs. Gudny Egilson,
skemtiför til íslands. Hún fer
loftleiðis alla leið og bjóst við að
lenda á Keflavíkur-flugvellinum
og ferðast svo með fólksflutn-
ingabíl til Akureyrar, þangað,
sem ferðinni er heitið. Mrs.
Egilson á þar bróðir og systir og
fleiri ættmenni sem hún er að
heimsækja. Verður hún á því
ferðalagi um tveggja mánaða
tíma. Maður hennar sem er lát-
inn, var Bjarni Egilson frá
Laugavatni í Laugardal í Árnes-
sýslu. Mrs. Egilson er önnur
konan sem fer heim til fslands í
sumar, héðan frá Vancouver. —
Mrs. Egilson bauð mér að heim-
sækja sig þegar hún kemur aft
ur til baka, og skildi hún þá segja
mer eitthvað af ferðalagi sínu
Eg sagðist taka þessu boði henn-
ar með þakklæti.
Þann 29. maí var fjölment
kveðjusamsæti haldið á gamal-
menna heimilinu, þeim Dr. og
Mrs. P. B. Guttormsson, sem eru
á förum héðan til Saskatchewan
Var það “Chatham House Hospi
talið” sem stóð fyrir því. — Dr
Guttormson hefir stundað þar
læknisstörf og er þar í miklu á•
liti. Þetta Hospital er prívat
stofnun sem Mrs. Alla Bárda’
Jones hefir veitt forstöðu í mörg
ár. Þar voru saman komnir
menn og konur af ýmsum þjóð
flokkum, ásamt Islendingum
sem læknirinn hefir sjálfsagt
hjálpað í veikindum, og komið
þeim í “circlation” aftur. Mrs
Jones stjórnaði samsætinu. Voru
sungnir bæði enskir og íslenzkir
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLANDI
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
björn guðmundsson
Mávahlíð 37, Reykjavík.
Hann skárar, hlífarnar skífir, sé
í skóginum ruðningsstaður.
Þá falla þau jafnt ’in fríðu tré,
sem fauskurinn háaldraður.
En mörkinni finnst hann vega í vé.
Sá víðkunni sláttumaður.
En, lífinu koma læknar þá
til liðveizlu — hnekkja vanda:
I varnarstöðu, þeir hildi há
og herskörum dauðans granda.
Svo skrúðtré og blóm, fyrir skörð í hans ljá,
í skáranum uppi standa.
Að framtíðin verði — þó sækist seint —
samúðarfyllri, betri.
Því vér höfum — sjáandi — séð og reynt
í gróandans spora letri. •
Og fyrirheitin vér getum greint,
hann, Samarítann, í Pétri.
A. B.
söngvar og ræðuhöld. Dr. Gutt-
ormson var gefin mjög vönduð
i'erðataska, og Mrs. Guttormson
minni ■ ferðataska fyrir hennar
dót. Þökkuðu þau bæði fyrir
gjafirnar og þá velvild sem þeim
væri sýnd með þessu samsæti.
Seinast báru konurnar fram
taffi og trakteringar eins og
hvern listi.
Þann 12. maí var haldið annað
kveðjusamsæti fyrir þau Dr. og
Mrs. Guttormson, á Gamalmenna
Heimilinu. Var það Gamal-
menna Heimilis-nefndin sem
stóð fyrir því. Eins og kunnugt
er, þá hefir Dr. Guttormson ver-
ið féhirðir nefndarinnar, næst-
um frá því í byrjun. Stýrði
pessu samsæti formaður nefnd-
arinnar, Mr. G. F. Gislason.
Flutti hann snjalt ávarp til
Deirra hjónanna, og Mrs. Thora
Orr, skrifari nefndarinnar. —
Kveðju ávarp í bundnu máli
flutti Mr. Ármann Björnson, og
afhenti hann lækninum það
skrautritað, sem dóttir Mr.
Björnson hafði gjört ljómandi
vel. Þá fékk forsetinn lækninum
gjöf frá nefndinni sem var
lindar-gullpenni og blýantur af
nýjustu sort, en Mrs. Guttorm-
son var gefið skrautleg “Center
piece of Artificial Flowers”. —
Þökkuðu þau bæði fyrir gjafirn
ar og þá góðvild sem þeim væri
sýnd. Það var auðheyrt að allir
söknuðu þeirra hjóna úr okkar
fámenna íslenzka félagsskap,
svo læknirinn gat þess í sinni
ræðu, að það væri ekkert ólík-
legt að þau kæmu hingað aftur.
Til skemtunar var sungið bæði
á íslenzku og ensku, og spilaði
Mrs. Gail Johnson undir á
píanóið með söngfólkinu.
Leikflokkurinn, sem lék hér
Happið” nýlega, fór til Seattle
og lék þar. Það fékk ekki eins
góða aðsókn, eins og það hafði
gert sér von um, það hafði ekki
verið auglýst nógu vel. Leikfólk-
ið lét samt vel yfir ferðinni
Business and Professional Cards
þangað. Það tók inn nóg til að
borga allan kostnað.
Mrs. Halldór Friðleifsson sem
ég gat um að hefði fengið slag,
og var þá alveg rúmföst, er nú
kominn til heilsu aftur, svo að
hún fer allra sinna ferða, og
var á samkomunni sem haldin
var þann 12. maí. Hefir Dr.
Friðleifsson, sonur hennar,
stundað hana, og tekist það
svona vel. Er það gleðiefni fyrir
hina mörgu vini þeirra hjóna, og
er það ósk þeirra allra að Mrs.
Friðleifsson komist til góðrar
heilsu aftur.
Mr. Elías Vatnsdal, sem hefir
verið búsettur hér um nokkurt
skeið, hefir selt eignir sínar hér,
og er á förum til California. —
Bjóst hann við, að hann mundi
setjast þar að.
Enginn veit hvaJS átt hefir, fyr
en mist hefir, segir gamall máls-
háttur. Mér hefir oft dottið þessi
málsháttur í hug, þegar ég heyri
landana vera að bölsótast yfir
því, hvað íslenzku blöðin hafa
komið óreglulega nú í seinni tíð.
Maður mætti halda að þeir
hefðu ekkert til að lesa sér til
skemtunar. Það broslegasta við
þetta er, að spmir þeirra sem
sem háværastir eru út’af þessari
óreglu eru menn, sem hvorugt
blaðið kaupa, heldur fá þau hjá
öðrum til að lesa þau fyrir ekk-
ert. Nú ættu þeir að sjá hvað
íslenzku blöðin eru ^mikils virði
til þeirra, svo nú ættu þeir að
gjörast kaupendur þeirra, og
með því stuðla til þess að þau
geti komið út til þeirra sem
lengst.
Þetta ferðafólk hefi ég orðið
var við síðan ég skrifaði seinast
Guðmundur Johnson, Mr. og
Mrs. J. Scheving, Mrs. T. C.
Goodman, Seattle Wash., Mr. og
Mrs. Einar Vigfússon, Mr. og
Mrs. Oddur Dalmann, Tacoma
Wash., Margaret A. Anderson,
Melborne, Australia.
S. Gudmundsson.
A öndverðum meið
Hinn víðkunni hershöfðingi
Frakka, Charles de Gaulle, er
auðsjáanlega á öndverðum meið
við vesturveldin sex, er komu
sér nýlega saman um stofnun
þingbundinnar stjórnar fyrir
vesturhluta Þýzkalands; er hann
eindregið þeirrar skoðunar, að
þetta muni leiða til enn frekari
samkeppni milli Rússlands og
Bandaríkjanna, en fram að þessu
hafi átt sér stað, og sé þá vafa-
mál, hvort slíkt geti eigi leitt til
nýrra vígaferla, þótt hann á
hinn bóginn haldi því fram, að
vegna legu sinnar og afstöðu,
hafi Bandaríkin í raun og veru
lítið að óttast; de Gaulle er hat-
ursmaður rússneskra kommún-
ista, og vill ekki að vesturveldin
stigi nokkurt það skref, er blásið
geti þeim byr í segl.
Vesturveldin sex, Bretland,
Frakkland, Bandaríkin, Holland,
Belgía og Luxembourg, mæla
með því, að hin auðugu Ruhr-
hépöð, verði falin alþjóða umsjá
til meðferðar og starfrækslu
fyrst um sinn; út af þessu eru
Rússar óðir og uppyægir og g§fa
í skyn, að slíkt ráðabrugg eigi
rót sína að rekja til Breta og
Bandaríkjamanna, er hugsi sér
að mata krókinn persónulega í
auðlindum áminstra námuhér-
aða.
Hjáverk
Nýlega var maður nokkur í
Englandi, John Sweatman að
nafni, dæmdur í 40 sterlings-
punda sekt fyrir það að hafa á
almannafæri æst menn upp
gegn Gyðingum og hvatt til að
brjóta rúður í búðargluggum
þeirra.
Þegar dómurinn var felldur,
sagði Sweatman: “I hjáverkum
mínum vinn ég ýmislegt fyrir
Gyðinga. — Þeir hafa vinsam-
lega lofað að greiða sektina fyr-
ir mig”.
SELKiRK METAL PR0DUCTS LTD.
Reykháfar, öruggasta eldsvörn,
og ávalt hreinir. Hitaeining, ný
uppfynding, sparar eldiviö,
heldur hita. .
KEIiUY SVEINSSON
Sími 54 558.
187 Sutherland Ave., Winnipeg.
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
RUBBER & METAL STAMPS
NOTARY & CORPORATE SEALS
CELLULOID BUTTONS
324 Smiih Sl.
Winnipeg
Office Ph. 95 668 Res. 404 319
NORMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B.
Bjirrister. Soiicitor, etc.
617 Mclntyre Block
WINNIPEG CANADA
Aho
123
TENTH ST.
BRAND0N
Winnipeg
Prófessor, annars hugar, mæt-
ir syni sínum og segir: — Sæll,
Georg, hvernig hefir pabbi þinn
það?
Manitoba Fisheries
WINNIPEG, MAN.
T. Bercovitch, framkv.stj.
Verzla I heildsölu með nýjan og
frosinn fisk.
303 OWENA STREET
Skrifst.slmi 26 355 Heima 66 462
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMERSET BUILDING
Telephone 97 932
Home Telephone 202 398
Taislmi 95 826
Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
Sérfrœðingur i augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
209 Medical Arts Bldg.
Stofutími: 2.00 til 6.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
Bérfrœðingur i augna, eyrna,
nef og hdlssjúkdómum.
401 MEDICAi, ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 93 851
Heimasími 403 794
EYOLFSON’S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islenzkur lyfsali
Fðlk getur pantað meðul og
annað með pðsU.
Fljðt afgreiðsla.
-----------------\
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREET
Selur likkistur og annast um Ot-
farir. Allur útbflnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talslmi 27 324
Heimilis talsími 26 444
Geo. R. Waldren, M. D.
Physician and Surgeon
Cavalier, N. D.
Office Phone 95. House 108.
PHONE 94 981
H. J. H. PALMASON
and Company
Chartered Accountants
219 McINTYRE BLOCK
Winnlpeg1, Canada
Phone 49 469
Radio Service Speciallsts
ELECTRONIC LABS.
H. THORKELBON, Prop.
The most up-to-date Sound
Equipment System.
130 OSBORNE ST., WINNIPEG
JOHN A. HILLSMAN,
M.D., Ch. M.
627 Medical Arts. Bldg.
\
Of f ice-99 349 Home-403 233
PHONE 87493
Dr. S. J. Jóhannesson
SUITE 7 VINBORG APTS.
594 Agnes St.
Viðtalstimi 3—5 eftir hádegl
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Offlce hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Office 26 — Res. 230
Offlce Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. Sigurdson
528 MEDICAL ARTS BLDG.
Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlœknar
406 TORONTO GEfJ. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage Ave. og Smith St.
PHONE 96 952 WINNIPEG
Dr. Charles R. Oke
Tannlœknir
For Appointments Phone 94 908
Office Hours 9—6
404 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
283 PORTAGE AVE.
Winnipeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 556
For Quick Reliahle Service
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningalán og eldsábyrgð.
bifreiðaábyrgí, o. s. frv.
PHONE 97 538
Andrews,- Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
Lögfrceðingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BG.
Portage og Garry St.
Slmi 98 291
GUNDRY PYMORE
Limited
British Quality Fish Netting
58 VICTORIA ST„ WINNIPEG
Phone 98 211
Manager T. R. THORVALDSON
Your patronage will be appreciated
C A N A D I A N FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOE, Managing Director
Wholesale Distributors of Frísh
and Frozen Fish.
311 CHAMBERS STREET
Office Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir.
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMI 95 227
Wholesale Distributors of
FRESH AND FROZEN FISH