Lögberg - 24.06.1948, Qupperneq 8
8
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 24. JÚNÍ, 1948
Ur borg og bygð
íslenzkir sjúklingar, sem liggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra, eru
vinsamlega beðnir að síma Mrs.
C. Ólafson, Ste. 1 Ruth Apts.,
Maryland St., Phone 30 017, el
æskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birt að lilsluðlan Djákna-
nefndar Fyrsia lút. safn.
♦
Hin kunna söngkona Rósa
Hermannsson — Vernon, verð-
ur aðal sopranósöngvari á árs-
þingi canadiskra hljómlistar-
kennara; sem haldið verður í
Banff, dagana frá 5.—7. júlí
næstkomandi; syngur hún hlut-
verk sín þar vestra þann 6. júlí;
systir hennar, frú ^jörg Isfeld,
verður við hljóðfærið.
Miss Ethel Guðlaugsson frá
Peace River, sem stundað hefir
undanfarin fjögur ár hljómlist-
arnám við Toronto Conseratory
of Music og jafnframt gegnt þar
kenslustörfum, var nýlega
stödd hér í borginni á leið til
Peace River. Miss Guðlaugsson
var um hríð nemandi Rósu Her-
mannsson — Vernon.
-f
Notuð kaffikvörn, sem þarf að
vera í góðu ásigkomulagi, ósk-
ast til kaups. Upplýsingar á
skrifstofu Lögbergs.
f
Athygli
skal hér með leidd að því, að
tveir ungir menn, Frank Frið-
finnsson og Donald Barr, hafa
nýverið opnað vinnustofu að 512
Notre Dame Avenue, þar sem
þeir hreinsa og endurnýja karl-
mannahatta og bua til kvenr
hatta; þetta nýja fyrirtæki
gengur undir nafninu Vogue
Hat Works. — Taka einnig á
móti fötum til hreinsunar og
pressunar; vandað verk ábyrgst.
Hreinsun lokið innan tveeggja
daga. Sími 80 877.
-f
Mr. Jóhannes A. Johnson frá
Oak View, man., var staddur í
bæmun fyrir helgina ásamt
syni sínum; var hann að leita
sér lækningar.
-f
Mr. Ásgeir Jörundson frá
Lundar, Man., leit inn á skrif-
stofu Lögbergs fyrir helgina.
-f
Stúkan Skuld
heldur næsta fund sinn á
venjulegum stað og tíma, mánu-
daginn 28. þ. m. —Þar verður
skemtiskrá og kaffi. — Fjöl-
mennið. —
Minnist
BETEL
í erfðaslcrám y8ar
Phone 21 101 ESTIMATES
FREE
J. M. INGIMUNDSON
Asphalt Roofs aml Insnlated
Siding — Repairs
332 SIMOOE ST. Winnipeg. Man.
U ICELAND
Scandinavia
OVERNIGHT
Travel the modern way and fly in
four-engine airships.
MAKE RESERVATIONS NOW, IF
PLANNING TO TRAVEL THIS
SUMMER
We will help you arrange your trip.
NO extra charge. C
We also make Hotel Reservations.
For Domestic and Overseas Travel
Contact
VIKING TRAVEL SERVICE
(Gunnar Paulsson, Manager)
165 Broadway, New Vork City
PHONE: REctor 2-0211
Mr. Árni Brandson frá
Hnausa, Man., lagði af stað í
skemtiferð loftleiðis heim til
Islands héðan úr borg, sunnudag
inn var; hann er ættaður aí
Vestfjörðum og bjóst við að
dvelja um tveggja mánaðatíma
heima.
♦
Mrs. Salome Backman lagði af
stað vestur til Vancouver á
þriðjudaginn var í heimsókn til
dóttur sinnar, sem þar á heima,
og Ólafs bróður síns, sem bú-
settur er í Seattle.
f
Þær systur Margrét og Sol-
veig Thompson, sem um allmörg
ár hafa átt heima hér í borg,
fóru vestur til Vancouver á
þriðjudaginn, og munu dvelja
þar óákveðinn tíma.
-f
Mr. og Mrs. H. F. Danielsson
lögðu af stað vestur til Vancou-
ver síðastliðinn þriðjudag, þar
sem Mrs. Danielsson flytur
ræðu á Islendinggmóti, eins og
frá er skýrt á öðrum stað hér í
blaðinu í fréttabréfi S. Guð-
mundssonar frá Vancouver.
♦
Mr. og Mrs. B. Thorvaldson
frá Los Angeles Cal., hafa verið
hér á ferð undanfarandi í heim-
sókn til ættingja og vina.
•*
Miss Thorey Pálmason, sem
nokkur undanfarin ár hefir
starfað hjá Canada Metal Co.,
hér í borg er nýflutt vtil Van-
couver þar sem hún hefir verið
hækkuð upp í skrifstofustjóra-
stöðu hjá félaginu.
-f
DÁNARFREGN
Síðastliðið föstudagskvöld lézt
að heimili sínu í Sherman Oaks,
Californiu, Eugenia Feldsted,
kona Péturs Feldsted, málara,
eftir tveggja ára þungbæra legu.
Hún var fædd á Gimli árið 1882
og var dóttir landnemans Jónas-
ar Stefánssonar frá Þverá í
Blönduhlíð og konu hans Stein-
unnar Grímsdóttur. — Eftir
nokkurra ára aðsetur í Winnipeg
flutti hún fyrir tuttugu og sjö ár-
um með manni sínum og börn-
um til Californiu, þar sem þau
hafa dvalið síðan. Hún var félags
lynd og studdi bæði kirkju- og
bindindismál eftir mætti á með-
al íslendinga.
Auk eiginmannsins, sem veitti
henni alveg einstaka umhyggju
og nákvæmni í hennar langa
dauðastríði, syrgja hana fjórar
dætur: Clara, Mrs. J. Rowe;
Birdie, Mrs. Geo Antill; Jónina
Emily, Mrs. W. Mason og Norma
Guðrún, Mrs. Freeman Good-
mundson, í Californiu; sex barna
börn og eitt barna-barna-barn.
Einnig tvær systur, Mrs. A. N.
Sommerville, St. Vital, Man., og
Mrs. V. B. Abrahamson, Leslie,
Saskatchewan. — Jarðarförin
fór fram í gærdag, þriðjudag, frá
“The Wee Kirk of the Heather’,
og hún var lögð til hvíldar í
Forest Lawn grafreitnum, Glen-
dale, California.
♦
Gefið til Sunrise Lutheran
Camp
For the Children’s Trust fund.
Langruth Lutheran Congre-
tion, $25.00. Mr. George Funk.
Selkirk, $10.00, for camp fund;
Mr. og Mrs. F. M. Einarson,
Mountain, $5.00, in memory of
/Justice H. G. Bergman. — Með
innilegu 'þakklæti.
Anna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
-f
Gefið til Sunrise Lutheran
Camp
Junior Ladies Aid of Lutheran
Church, Selkirk, $25.00; Mr. og
Mrs. Albert Wathne, Winnipeg,
$15.00; Kvennfélagið “Björk”,
Lundar, $15.00.
Á nýafstöðnu þingi Bandalags
Lúterskra kvenna, var myndað-
ur sjóður sem verður notaður til
að borga fyrir þau börn sem
þurfa þess með, sem dvelja í
sumarbúðunum. Sjóðurinn heit-
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Ensk messa kl. 11 f. h. — Is-
lenzk messa kl. 7e. h. — Börn,
sem ætla að sækja sunnudaga-
skólann, eru beðin að mæta í
kirkjunni kl. 12,15. — Ávarp og
söngur.
Eiríkur S. Brynjólfsson.
776 Victor St. Wpg.
Fyrsta lúterska kirkja
Sunnudaginn 27. júní verða
kveðjuguðsþjónustur, — ensk
messa að morgni, en íslenzk
messa að kvöldinu. Séra Eiríkur
S. Brynjólfsson prédikar við
báðar guðsþjónusturpar.
-f
Islenzk guðsþjónusta í Þing-
vallakirkju sunnudaginn 27.
júní kl. eitt eftir hádegi.
s. s. c.
Argyle prestakall
Sunnudaginn 27. júní, 5.
sunnud. eftir Trínitatis: Glen-
boro kl. 8 e. h. — Allir velkomnir.
Eric H. Sigmar.
Gimli prestakall
Júní 27. — Fermingar-messa
og altarisganga, að Húsavick, kl.
2 e. h. — Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirsson.
-f
Messað verður á Lundar sunnu
daginn þann 3. júlí kl. 2 e. h. —
Umræðuefni: Jerúsalem hin
helga með hliðsjón af hinni
frægu sögu Selmu Lagerloff.
H. E. Johnson.
ir: Childrens trust fund Sunrise
Lutheran Camp. — Sjóðurinn
var stofnaður með gjöfum á þing
inu sem námu $73.55; — öllum,
sem finna hvöt til, er boðið að
styrkja sjóðinn. — Með innilegu
þakklæti.
Anna Magnússon
Box 296, Selkirk, Man.
•♦■
Aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags lézt á Johnson Memorial
Hospital á Gimli, Mrs. C. P.
Paulson þar í bænum, 82ja ára
að aldri; góð kona og merk; auk
eiginmanns síns, lætur hún eft-
ir sig tvö börn, Gordon lögfræð-
ing og Mrs. Ingimar Ingjaldson;
systurdóttir hinnar látnu er Mrs.
B. S. Benson, Winnipeg. — Út-
för Mrs. Paulson fór fram í gær
og hófst með kveðjuathöfn í
kirkju Gimlisafnaðar að morgni
þar sem séra Skúli Sigurgeirs-
son flutti kveðjumál, en frá
Fyrstu lútersku kirkju í Winni-
peg kl. 2 e. h., undir forustu séra
Rúnólfs Marteinssonar með að-
stoð séra Eiríks S. Brynjólfsson-
ar. —
-♦
Eins og skýrt var frá í síðasta
blaði, verður sýnd í Norwegian
Lutheran Church, Portage og
Minto Street, hin fagra, danska
kvikmynd, “What about little
Denmark?”, á miðvikudags-
kvöldið þann 23. þ. m. kl. 8. —
Danskur blaðamaður, Dan
Andersen sýnir myndina og flyt-
ur einnig erindi á ensku um af-
komu og lifnaðarháttu í Dan-
mörku. — Daginn eftir, kl. 12.15
á hádegi efnir fél. “The Viking
Club til dagverðar á Marl-
borough-hótelinu, þar sem Mr.
Andersen verður aðalræðumað-
ur. —
-f
Prófessor Skúli Johnson kenn-
ari í klassiskum tungum við
Manitoba háskólann, er nýkom-
inn heim úr hálfsmánaðar fyrir-
lestraferð vestur á Kyrrahafs-
strönd.
Sextíu ára afmæli
átti Sigurþór Sigurðson, 594
Alverstone St., á laugardaginn
þann 19. þ. m. Hópur vina hans
heimsóttu hann, og stóð veizla
langt fram eftir kvöldi. Var hon-
um afhent gjöf frá gestunum til
minningar um daginn. Sigurþór
er vinamargur og vel kyntur fyr
ir glaðværð sína og gestrisni. —
Var honum einnig flutt kvæði
það sem hér fylgir:
Sigurþór Sigurðson, sextugur
“Góða veizlu gera skal”,
Gleðihörpu stilla;
Sextíu ára ungan hal,
örlátan, skal hylla.
íslendingsins mælir mál
meðan ofar jarðar.
Drenglyndur með söng í sál;
sonur Borgarfjarðar.
Þú átt lund sem hefir leitt
ljós um vegu svarta.
Þú átt bros sem hefir breitt
birtu að mörgu hjarta.
Mörgum vini veittir þú
vorsins yl í geði.
Bjartsýnis þú boðar trú
bróðurhug og gleði.
Þökkum sérhvern skemtifund,
sólbjört ellin veri.
Lifðu heill um langa stund,
ljóssins merkisberi.
Bergthór Emil Johnson.
Mót
Hið þriðja ársmót, hins lút-
erska sunnudagaskóla-kennara-
sambands, verður haldið í Sun-
rise Lutheran Camp, Húsavick,
Man., dagana 26. og 27. júní’, n.k.
Starfsskráin hefst kl. 2 e. h. á
laugardaginn, en skyldi vera ein
hver sem vill koma á föstudags-
kvöld, þá er það velkomið, því
nokkrir meðlimir Bandalags Lút
erskra Kvenna, verða þar við-
búnar að taka á móti hverjum
sem kemur. Æskt er eftir því að
allir kennarar, o. fl., tilkynni fyr-
irfram hvern daginn þeir búast
við að koma. Miss Josephine Ól-
afsson, 498 Maryland Street,
Winnipeg, tekur á móti öllum
bréfum í þessu sambandi.
Á laugardagskvöldið fer fram
skemtiskrá, þar sem sunnudaga-
skólabörn frá Árborg, Riverton
og Winnipeg, skemta með söng
Séra Sigurður Ólafsson flytur
þar erindi. Einnig verður sýnd
hljóm-kvikmynd, “The Good
Samaritan”. Á sunnudagsmorg-
uninn fer fram “Sunrise Ser-
vice” við vatnið kl. 8 f.h. Miss
Eleanore Gillstrom talar um
kennsluaðferðir kl. 10 f.h. Að lok
inni starfsskrá, þá fer fram
stutt guðsþjónusta á milli kl. 3
og 4 e. h.
Ýmsum S. S. blöðum og bækl-
ingum verður útbýtt til þeirra
sem óska eftir þeim. Tækifæri
gefst til þess að leggja spurning
ar, að svara þeim og að íhuga
ýms vandamál í sambandi við
starfið.
Mótið í fyrra var vel sótt og
þótti bæði skemtilegt og upp-
byggilegt, og ekki mun þetta mót
verða síður. öllum sunnudaga-
skólakennurum, embættismönn-
um starfsins, og öllum prestum,
ásamt hverjum þeim sem kann
að hafa áhuga fyrir málinu, þó
hann ekki kenni, er boðið að
koma og taka þátt í því sem fram
fer. —
Allir eru velkomnir á laugar-
dagskvöldið kl. 7.30, eins á
sunnudagsmorguninn kl. 8, og
eftir hádegi, kl. 3, til þess að
hlusta á guðsþjónusturnar tvær.
Nefndin.
Garðeigandinn, við strák sem
er a ðstela eplum frá honum: —
Komdu strax niður úr trénu,
strákormur, eða ég skal tala við
hann föður þinn.
Strákur: — Talaðu bara við
hann pabba; hann er líka hérna
uppi í trénu.
FRÁ BLAINE,
Fyrir nokkru síðan var þess
getið í íslenzku blöðunum, að
elliheimilið í Blaine hefði verið
löggilt og að stjórnarnefnd hefði
verið kosin. Voru nöfn hinna níu
nefndarmanna þar skráð. ♦
Hin nýja nefnd hefir setið tíð-
um á rökstólum síðan til þess að
finna ráð til að koma byggingu
heimilisins í framkvæmd. Mesta
vandamálið í því sambandi er,
auðvitað, að hafa það^fé saman,
sem til þ e s s þarf. Hækkandi
verðlag á öllu hefir ekki dregið
úr þeim vanda. Þó hefir nefndin
verið ófús á, að víkja frá sínum
upprunalega tilgangi, sem var sá
að gjöra þetta heimili þannig
úr garði að það yrði landanum
til sóma og hinum öldruði til
sem mestra þæginda. En þrátt
fyrir það þó nefndin hafi nú með
höndum aðeins tæpan helming
þess fjár, sem áætlunin krefst
—eða um $30.000— h e f i r hún
ekki séð sér fært að draga það
lengur að hefja byggingar starf.
Það er þegar byrjað á byggingu
og verður henni haldið áfram
viðstöðulaust svo langt sem þeir
peningar ná sem nú eru fyrir-
liggjandi og sem nefndinni ber-
ast höndur í næstu framtíð. Á
þessu svæði hafa þegar allmarg-
ir tjáð sig fúsa til að tvöfalda
sitt upprunalega framlag. Eng-
inn þeirra er ríkur. Þessvegna er
nefndinni nú þörf á, að finna
nokkra efnamenn, sem unna fyr-
irtækinu og taka feginshendi
þessu tækifæri til þess að leggja
fram stærri upphæðir vegna þess
að þeir kannast við skuld sína
við eldri íslendingana sem
ruddu þeim veginn til gengis og
frama í þessu 1 a n d i. Nefndin
hefir hafið starfið í þeirri trú
að drenglyndi landans styrki
hendur þeirra og létti aldrei fyr
en takmarkinu er náð. E 1 d r a
fólkið okkar hér er sífelt að
spyrja: Hvenær verður byrjað
að starfrækja heimilið? Hvenær
mundi ég mega vonast eftir
skjóli þar? Landar góðir! Svörin
við þessum spurningum verður
nefndin að sækja til þeirra sem
geta og vilja leggja fram féð,
sem með þarf. Látið þetta ekki
dragast. — Meðan eg er að skrifa
þessar línur berst mér sú fregn
að nokkrir nefndar manna hafi
farið til Point Roberts að þeim
hafi þar verið tekið hið besta,
og að landarnir þar hafi lagt
fram um $700.00 í viðbót við það
sem þeir höfðu áður gefið og
lætur næri að þeir hafi með þyí
tvöfaldað sín fyrri framlög. —
“Far þú og gjör hið sama.” Ef
einhverjir æskja eftir frekari
upplýsingum um fyrirtækið,
snúi þeir sér til ritara nefndar-
innar, Mr. Andrew Danielsson í
Blaine, eða forseta, Mr. Einar
Simonarson, í Lynden. Pening-
ar og ávísanir sendist til Mr. J.
J. Straumfjörð, féhirðis í Blaine.
-♦•
Islendingadags nefndin hefir
ákveðið að halda íslendingadag
eins og að undanförnu, í Peace
Arch Park, Sunnudaginn, 25.
júlí.
Skemtiskrá er þegar að mestu
fullgjörð og verður hún auglýst
síðar. Veðrið hefir ekki brugðist
enn og svo mun enn verða. Síð-
WASHINGTON
an samvinna um íslendingadag
hér hófst, milli Vancouver, Point
Roberts, Blaine og Bellingham,
hefir hver dagurinn orðið öðrum
betri og skemtilegri og svo mun
það reynast í sumar.
-♦
Þjóðræknisdeildin, “Aldan”
efndi til samkomu eins og að
undanförnu, hinn 17. júní, til
þess að halda hátíðlegan frelsis
dag Islands, var samkoman
haldin í samkomusal Fríkirkj-
unnar í Blaine. Þar fluttu stutt-
ar ræður þeir séra A. E. Krist-
jánsson og Mr. Andrew Daniels
son; hinn fyrnefndi um fram-
tíðarhorfur og skilyrði fyrir
sjálfstæði og frelsi Islands; —
hinn síðarnefndi um afrek
Vestur-Islendinga í liðinni tíð
og skyldur þeirra að vernda
það bezta í ættferni sínu í
framtíðinni. Söngflokkur, und-
ir stjórn hins vel þekta tón-
skálds H. S. Helgasonar, söng
nokkur lög, meðal þeirra
“Heim til fjalla”, eftir Jónas
Pálsson. Einsöngva sungu Mr.
E. K. Breiðfjörð, í Blaine og
Mrs. O. Laxdal frá Mt. Vernon,
Washington. Var hinn besti
rómur gjörður að skemtiskránni
yfirleitt. Þess hefði átt að vera
getið í byrjun að skemtiskráin
hófst með því að allir sungu:
Ó, guð vors lands”, og endaði
með því að allir sungu: “Eld-
gamla Isafold” og ‘My country’.
Eg hefi oft furðast það, hve
margir landar hér vestra geta
enn sungið, “Ó, guð vors lands”
Að lokinni skemtiskrá voru
framreiddar ágætar veitingar,
fólk rabbaði saman og skein
gleðibros á hverju andliti. Virt-
ist mér sem allar sálir yrðu
þarna að einni sál — íslenzkri
sál. Kvöddust menn að lokum
með kossum og haridabandi og
fór hver glaður til síns heimilis.
A. E. K.
Hótelstýra: — Það er bannað
að kvenfólk heimsæki gesti
mína á kvöldin.
Gesturinn: — En karlmenn.
Hótelstýran: — Nei því ég ekk
ert á móti.
Gesturinn: — Afbragð, þá tek
ég herbergið bara í nafni kær-
ustunnar minnar.
-♦-
Móðirin: — Elsa mín, hvaða
karlmaður' var nú að kyssa þig
í gær?
Elsa: — Það er nú bágt að
segja; hvenær dagsins áttu við?
♦
— Þessa bíla seljum við í
tylftavís.
— Jæja, og hvað kostar þá
tylftin?
♦
— Af hverju éturðu sósuna
með hnífnum?
— Gaffallinn lekur.
The Swan Manufacturing Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
Heimili 912 Jessie Ave.
281 James Sl. Phone 22 G41
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á
þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦