Lögberg - 11.11.1948, Blaðsíða 3

Lögberg - 11.11.1948, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 11. NÓVEMBER, 1948 3 ÁSKELL BRANDSON 1875 — 1948 Mrs. Þórdís Johnson MINNINGARORÐ “Skjótt hefir sól brugðið sumri”, kvað skáldið eftir vin sinn látinn. Hið sama máttu vinir Kela Brandsonar (en svo nefndi hann sig jafnan) segja við hið óvænta og sviplega fráfall hans, föstudagskveldið 2. júlí síðastliðinn. Kl. 8 það kvöld fékk hann aðsvif og var dáinn um kl. 9. Hafði hann gengið að störfum sínum þann dag eins og hann var vanur. Keli Brandson var fæddur 5. desember, 1875 að Brekku í Dala- sýslu. Til Ameríku kom hann með foreldrum sínum 2 ára gam- all. Settust þau fyrst að í Minne- sóta. Dvöldu þau þar ekki lengi og fluttu þaðan til North Dakota. Foreldrar hins voru hin vel þektu hjón, Jón Brandssoá og Margrjet Guðbrandsdóttir frá Hvítárdal. Dvaldi Keli að mestu heima í foreldrahúsum þar til hann flutti til Saskatchewan ár- ið 1903. Þar nam hann land, 2 milur norður frá Elfros og gift- ist hann 15. febrúar, 1906 eftir- lifandi konu sinni, Oddnýu Hjál- marson. Höfðu foreldrar hennar flutt frá Dakota til Saskatchewan árið 1904. Þau Keli og Oddný bjuggu á þessari landnámsjörð til ársins 1911, en fluttu þá til Montana og námu land í grend við Ethridge. Þrjú heimili bygg- ðu þau úr auðn í Montana. Hið síðasta í Lewis and Clark Coun- ty, 65 mílur vestur frá Great Falls. Árið 1921 fluttu þau vest- ur að Kyrrahafi og keyptu bú- jörð skamt frá Blaine, Washing- ton, þar sem þau hafa búið síðan. Þetta heimili endurbyggði Keli, svo það má heita svo, að hann hafi reist heimili að nýju á 5 bújörðum. öll voru þessi heim- ili þannig gjörð að byggðar prýði mátti telja. Þó mun heim- ilið í Lewis and Clark County hafa verið þeim reisulegast og, hefi eg heyrt mikið af því lát- ið, enda var Keli búhöldur góð- ur og var myndarbragur á öllu, bæði utan og innan húss. Var Kona hans í öllu þessu starfi hon- um samhent og samstarfandi. Þau hjónin eignuðust eitt barn, en það dó í fæðingunni. En þau hafa alið upp 2 fósturbörn: Helgu Pálsdóttir, Jóhannson (systurdóttir Oddnýjar) og John Eyford. Helga er gift Óskari Klebeck og búa þau í Saskat- chewan. Kona John Eyford er Wanda Fayette og búa þau í Bellingham. Helga á 7 börn og 1 barabarn, en John á 2 börn. Keli Brandson var ágætur heim- ilisfaðir og reyndust þau hjón fósturbörnum sínum sem beztu foreldrar og létu sér ætíð ant um hag þeirra, engu síður eftir að þau voru farin að spila upp á eigin spítur. Keli var fáskiftinn um almenn mál. Þetta var þó alls ekki af því, að hann léti sig þau litlu skifta — því það var þvert á móti — heldur vegna skapferlis, sem hamlaði honum frá því að láta sín að nokkru getið. Var vin- um hans þetta að bæði ráðgáta og raun, því hann var skýr hugs- aður og mannvlnur. Hann til- heyrði þó samvmnufélagi Hæns- aræktanamanna frá byrjun þess Áskell Brandson félagsskapar hér og studdi hann með ráði og dáð, máske þó meira með dáð. Því afskifti hans af hverju sem var, var ætíð meira “á borði” en “í orði”. Einnig til- heyrði hann tafl klúbb hér því hann hafði yndi af manntafli og var ágætur taflmaður. Eitt sinn er Canada og Bandaríkjamenn háðu fjölment kapptefli hér á landamærunum, varð mér geng- ið framhjá borði því er Keíi tefldi við. Canada maðurinn var farinn. Spurði eg Kela um leiks- lok. Hann sagði ekki elns og flestir mundu hafa sagt: Eg vann taflið. Heldur sagði hann, og var seinmæltur að vanda: “Hinn maðurinn tapaði”. Eg get þessa atviks vegna þess, að það var mér svo sláandi dæmi þess, hve ómögulegt honum virtist vera að segja, “ég”, í sambandi við unnin afrek. I bréfi til mín, frá einum af vinum hans og nábú- um, segir meðal annars svo: “Eg frétti um lát Kela og sakna hans eins og fleiri munu gjöra. Eg þekti hann betur en margir aðr- ir, og fanst samt eg ekki þekkja hann til fulls. Þetta var vits og mannkosta maður, sem samtíðin hafði aldrei fullnot af.” Þetta finst mér hverju orði sannara og gæti vel gjört þessi ummæli að mínum eigin. — En nú finst mér vinur minn hvísla í eyru mér: Hættu nú! Þetta er nú orð- ið miklu meira en nóg um mig. Eg hlýði Keli, vinur minn, en ekki meinar þú mér þó að kveðja þig. Vertu sæll íslenzki land- námsmaður, afreksmaður, “Vits og mannkosta maður”. Ef hver sú sál sem nær ekki að njóta sín hér, á framhald fyrir höndum, þá liggur för þín nú mót hækk- andi sól og mikil framtíð bíður þín. Far þú í Guðs friði. A.E.K. Þessar hendingar komu mér í hug við lát Kela Brandssonar: Á hafið eg stari hljóður Og hugsandi um það spyr: — Er vinur minn genginn er góður Um gullnar sólarlags dyr — Hvort munum við sjást um síðir, Við sólaruppkomu dyr, Og tala um liðnar tíðir Og tarráðnar gátur, sem fyr? En hún sem að heitast þér unni, Og háði sitt lífsstríð með þér, Nú lýtur að lífsins brunni Og leitar þar fróimar sér. Ó, gef henni úr grátstöfum smíða Og geislum í tárunum, brú Til landsins, sem allir er líða Fá litið í von og trú. A. E. K. ISLENZKU BLÖÐIN hafa sagt frá láti hennar. Hún var fædd á Vatnsenda í Borgarfjarðarsýslu, á Islandi, 5. júlí 1869. Foreldrar hennar voru þau hjón — Þorsteinn Þorsteinsson og Þóra Odds- dóttir. Hún flutti vestur um haf árið 1894, og átti heima í Winnipeg. Þar giftist hún árið 1897 Filippusi Johnson, er ættaður var úr Rangárvallasýslu. Þau bjuggu þar til ársins 1903, en þá fluttu þau í svonefnda Grunnavatnsbygð. Árið 1924 skiftu þau um bújörð, fluttu á land rétt fyrir austan Lundar-bæ. Þar dó hann árið 1937. Hún hélt áfram búskap þar, með aðstoð yngsta sonar síns, Þorsteins. Þegar ellin lamaði krafta hennar, flutti hún til Tengdasonar og dóttur, Mr. og Mrs. Frank Líndal er búa að 684 Ingersoll St., í Winnipeg. Þar var hún síðustu 4 ár æfinnar. Æfistarf sitt leysti Þórdís af hendi með prýði. Hún hafði góða hæfileika til líkarna og sálar og notaði þá með samvizkusemi og velvild, ástvinum sínum til bless- unar og mannfélaginu til góðs, eftir því sem unt var. Hún unni kirkju og kristindómi og lagði góðum málefnum af alhug lið- veizlu. Hún átti skýra hugsun, góða dómgreind og ágætt jafn- vægi. Þau hjónin eignuðust 7 börn. Eitt þeirra lézt ungt. Son Gil- bert' mistu þau í fyrra veraldar stríðinu. Hann var afbragðs- námsmaður og drengur hinn bezti. Á lífi eru: 1. Steinthora Guðríður, í mik- ilhæfri stöðu í Ottawa; 2. Pálína Vilborg, gift Ernest Smith, bú- sett í Winipeg; 3. Valtýr Guð- jón kvæntur maðuir í Winnipeg, 4. Thorsteinn Óskar, einnig í Winnipeg; 5. Laufey, Sigríður, gift Frank Líndal búsett í Win- nipeg. Systir Þórdísar, Vilborg, kom með henni vestur, og átti heim- ili hjá þeim hjónum og einnig á heimilinu eftir að Filippus dó. Heilsu hafði Þórdís fremur góða og starfþrek ágætt. Á seinni heiisu og dapra sjón, en að öðru árum bjó hún við dvínandi leyti var líðan hennar eítir von- um. Veik var hún síðast aðeins rúma viku, en hvíldina fékk hún fimtu dagin.n 21. október. Jarðneskar leifar hennar voru fluttar norður í gömlu átthagana. Útfarar athöfnin fór fram aðal- lega í Lútersku kirkjunni á Lun- dar sunnudaginn, 24. okt. Kirkj- an var alskipuð fólki, söngflokk- ur á palli, og Mr. Vigfús Gutt- ormsson við orgelið. Séra Rún- ólfur Marteinsson flutti kveðju- málin. Líkið var flutt austur í grafreitinn við Grunnavatns- kirkjuna og þar jarðað. Þar hvíl- ir líkami hennar við hlið mann- sins hennar. Þau voru sameinuð í jarðneska lífinu; þau eru sam- einuð í dauðanum og eilífa lífinu. “Þá lind hún fann, sem hylst í dagsins glaumi það heilagt gull, sem dylst í fleygum straumi. Rúnólfur Marteinsson Séra Asgeir Asgeirsson præp. hon. Sjötugur Aldraðir Islendingar líta unglegar út en áður. Fáum, sem ekki þekkja til, mundi koma til hugar að sér Ásgeir ætti 70 ár að baki. Daglega má sjá hann ganga til vinnu sinnar eins og miðaldra maður væri á ferðinni. Þó eru árin orðin þetta mörg og margþætt lífsreynslan, sem hann hefur gengið í gegnum. Það var stór vinahópur, sem kom á heimili sér Ásgeirs hinn 22. f. m. er hann átti sjötíu ára afmælisdag sinn. Þar voru ætt- ingjar og vinir og aldraðir sam- ferðamenn, sem minntust liðinna daga, samstarfs of langrar vin- áttu og þar átti einnig æskan marga glæsilega fulltrúa. Því síð- an sér Ásgeir hættu embættis- störfum hefur hann imnið með ungu fólki í skriftstofum “Al- mennarar Tryggingar h. f.” í Reykjavík. Það var bjart yfir afmælisdegi séra Ásgeirs. Sólin skein inn um gluggana. í hverri vistarveru hússins voru vinir, sem komu með óskir sínar til afmælisbam- sins. Á neðri hæð hússins búa þau hjónin frú Ragnhildur Ingi- björg dóttir þeirra séra Ásgeirs og Ragnhildar konu hans og Ófeigur Ófeigsson læknir, en þau séra Ásgeir og kona hans á efri hæð. En húsið er vitaskuld allt eins og eitt heimili. Minnst var þenna dag hins merkilega stairfsferils séra Ásgeirs, prest- sins, prófastsins og leiðtogans um héraðs- og menningarmál og þakkir til hans farmbomar fyr- ir störfin er hann vann. Margs var minnst, sem á dagana hafði drifið og kom það fallega og glöggt fram í orðum séra Ásgeirs er hann mælti þann dag, að hann bar ríkar þakkir í huga til Guðs fyrir handleiðslu hans og vernd á æviveginum og að hann minnt- ist með sérstöku þakklæti ár- anna sem hann dvaldi í Dölum vestur hjá sóknarbörnum sín- um. Það var eins og svo oft áður viðkvæmt mál þenna dag, að frú Ra^nhildur, kona séra Ásgeirs var á sjúkrabeði sínum. Hún er búin að vera þar flestum stund- um um áratugi. En vinátta þeirra hefur aldrei fölnað. Að sjúkra- beði henar sótti hann styrk og birtu og fegurð. “Þar sem hún er”, sagði hann “fann eg mestu gæfu lífs míns”. Það er lærdómsríkt fyrir þá sem æðrast og kvarta yfir smá- munum, sem á móti ganga, að koma að þessum sjúkrabeði. ♦ Séra Ásgeir var í þjónustu kirkjunnar í nærfelt 39 ár og hefði sennilega orðið það nokkru lengur, ef heilsubrestur hefði ekki knúð hann til að hætta. Nú er heilsan aftur betri og fer hann glaður og ánægður að morgni hvers dags til starfa og að kvöldi heim, þangað, sem hann unir bezt. Séra Ásgeir er sæmdarmaður, og drengur hinn bezti. S. S . Kirkjubl. 4. okt. KAUPENDUR LÖGBERGS OG HEIMSKRINGLU Á ISLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvort blað. Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐM UNDSSON Mávahlíð 37, Reykjavík. Business and Professional Cards SELKIRK METAL PR0DUCTS LTD. Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeining, ný uppíynding, sparar eldiviö, heldur hita. KJELJjY sveinsson Simi 64 368. 187 Sutherland Ave., Winnlpeg. JOHN A. HILLSMAN. M.D., Ch. M. $27 Medical Arts. Bldg. Office 99 349 Home 403 288 S. o. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh Sl. Winnipeg Phone 94 624 PHONE 87423 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 7 VINBORG APT8. 694 Agnee St. Viötalstlmi 3—6 eftlr hádegl Office Ph. 95 668 Res. 404 319 N0RMAN S. BERGMAN, B.A., LL.B. Barrister, Sollcitor, etc. 411 Childs Bldg, WINNIPEG CANADA DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Offlee hrs. 2.30—6 p.m. Phones: Office 26 — Res. 230 ÍEÉÍSTM JEWELLERS jgNJlipí 447 Portage Ave. A Imo 123 TENTH ST. BRANOON Winnipeg Office Phone Res Phone 94 762 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appolntment Manitoba Fisheries WINNIPEG, MAN. T. Bercovitch, framkv.st). Verzla t helldsölu meö nýjan og froeinn fisk. 303 OWENA STREET Skrlfert.simi 26 365 Heima 56 482 DR. A. V. JOHNSON Dentist t 606 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephone 202 398 Talsími 96 826 Heimilis 53 893 DR. K. J. AUSTMANN BérfrœOinour i augna, eyma, nef oo kverka sjúkdómum. 209 Medlcal Arts Bldg. Stofutimi: 2.00 til 6.00 e. h. DR. ROBERT BLACK BérfrœOinour i auona, eyma, nef oo hdlssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG Graham and Kennedy St. Skrifstofusimi 93 851 Heimasími 403 794 EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N. DAK. Islenzkur Xyfsali Pölk getur pantaö meöul og annað meö pósti. Fljöt afgreiðsla. A. S. B A R D A L 848 SHERBROOK STREET Selur llkklstur og annast um öt- farir. Allur Otbúnaöur sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar mlnnisvaröa og legsteina. Skriístofu talsíml 27 324 Heimilis talsimi 26 444 Geo. R. Waldren, M. D. Physician and Buryeon Cavalier, N. D. Office Phone 96. House 108. PHONE 94 981 H. J. H. PALMASON and Company Chartered Accountants 119 McINTYRE BLOCK Winnipegv Canada __ Phone 49 469 Radio Service Specialiste ELECTRONIC LABS. H. THORKEIjBOH. Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE 8T„ WINNIPEG Drs. H. R. and H. W. TWEED Tannloeknar 406 TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 96 952 WINNIPEG Dr. Charles R. Oke Tannlœknir For Appointments Phone 94 908 Office Hours 9—6 404 TORONTO GEN. TRUST8 BUILDINÖ 283 PORTAGB AVE. Wlnnipeg, Man. SARGENT TAXI Phone 76 001 FOR QUICK RELLABLE SERVICE J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG WPG. Fasteignasalar. Leigja hús. Ot- vega penlngalán og eldsábyrgð. bifreiöaábyrgö, o. s. frv. PHONE 97 538 Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson LöofrœOinoar 209BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Siml 98 291 GUNDRY PYMORE Limited British QuaUty Fish Nettino 58 VICTORIA ST„ WINNIPEG Phone 98 211 Manager T. R. THORVALiDBON Your patronage will be appreciated C A N A D I A N FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAOE, Manaoing Director Wholesale Distributors of Fraeh and Frozen Fish. 311 CHAMBERS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited 404 SCOTT BLOCK SIMI 96 227 Wholesale Distributors of FREJSH AND FROZEN FISH Bus. Phone 27 989 Rei. Phone 3$ líl Rovatzos Flower Shop Our speclaltles WEDDING CORSAGES COLONIAL BOUQUETS FUNERAL DESIGNS Mrs. S. J. Rovatxoi, Proprietress Formerly Roblnson 8c Co. 253 Notre Dame Ave. WINNIPEG MANTTOBA

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.