Lögberg


Lögberg - 11.11.1948, Qupperneq 5

Lögberg - 11.11.1948, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 11. NÓVEMBER, 1948 S 4H UGAMAL IWENNA RiUtjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON ÞRAUTSEGJA OG KJARKUR HARRY S. TRUMAN, Bandaríkjaforseti hefiir gefið hverjum einstakling, sem fylgst hefir með þroskaferli hans lærdómsríkt dæmi um það hve mikill máttur býr með manninum, máttur sem getur sigrast á hverskonatr erfiðleikum. Aðstaða Harry S. Trumans PARÍSARBRÉF: Afstaða íslendinga til nefndakosninga á þingi S. Þ. Ræða Marshalls — “Verndarpólititik” Maliks — Tímasprengja og verkföll PARÍS, 24. SEPT.—MÁLTÆKIÐ SEGIR: Hverjum gefur, sem hann er góður til. Sé það sannmæli, þá ætti alt að fara vel á þessu alþjóðaþingi. Yndislegra veður er ekki hægt að hugsa sér en hér er þessa dagana, skýlaus himinn hvelfist yfir Parísarborg dag eftir dag. Helmingi meiri kartöfluuppskera í Rvík en í fyrra Kartöflur voru fluttar inn fyrir 2.9 millj. kr. á fyrra helmingi þessa árs. - GERA MÁ ráð fyrir, að kartöfluupskeran í haust nemi í Reykjavík einni nálægt 20 þúsund tunnum. Ef miðað er við 72 kr. verð fyrir hverja tunnu, mun gjaldeyrissparnaður fyrir þetta unpskerumagn nema 1.44 millj. kr. var ekki eftirsóknarverð, þegar hann varð fyrirvaralaust að tak- ast á hendur og reyna að feta í fótspor hins látna mikilmennis Franklins D. Roosevelt, enda bað hann þá þjóðina, í sinni fyrstu forseta ræðu, að biðja fyrir sér. Roosevelt bar af Truman í flest um efnum, ættgöfgi, mentun og glæsimensku. Hann var ekki ein- ungis viðurkendur sem hinn mikli leiðtogi þjóðar sinnar, held- ur og heimsins. Það var engin furða þótt hinum smávaxna fata- sölumanni frá Missouri lægi við að týnast í skugga þessa manns. En þessum tveim möxmum var eitt sameiginlegt; það var fá- dæma kjarkur og þrautsegja, sem ekkert gat bugað. Harry S. Tru- man fann máttinn, sem bjó með honum sjálfum og það bjargaði honum. • Öllum er kunnugt um þá erfið- leika, sem hann hefir átt við að etja síðan hann varð forseti. Á hans stjórn féll sú mikla ábyrgð að koma málum þjóðarinnar á réttan kjöl að stríðinu loknu og semja friðinn; hann varð að berj- ast við þjóðþing, sem var hon- um fjandsamlegt og virti vilja hans að vettugi, en það sem verra var, snerust margir af hans eigin flokksmönnum á móti hon- um vegna afstöðu hans gagnvart réttindum svertingja. Flokks- þinginu var líkt við útför. Flokk- urinn hafði setið við völd í sextán ár samfleitt og virtist hafa týnt allri von um endurkosningu, ekki síst með forustu Trumans. Flest blöð landsins og allir skoðana könnunar menn spáðu því að Truman og flokkur hans myndu fara hina mestu hrakför við kosningarnar. En Truman lét hvorki háð, spott né hrakspár hafa áhrif á sig; hann lagði út í kosningar- hríðina og barðist eins og hann var maður til. Hann ferðaðist meira og flutti fleiri ræður en nokkurt annað forsetefni hefir gert. Fólkið kom og hlustaði á hann, og fólkið réði úrslitunum en ekki skoðana könnunarmenn- irnir, blöðin eða flokkstjórnirn- ar. Það endurkaus ekki einungis Harry S. Truman sem forseta heldur og flokksmenn hans svo þeir urðu í meiri hluta í báðum málstofum þingsins. Flestum kemur saman um að þessi kosningasigur sé aðallega að þakka kjarki og þrautsegju þessa eina manns. Hann lagði aldrei árar í bát, hvað sem á móti blés og bar því frægan sigur úr býtum. MARGARET PRINSESSA ÞANN 21. ágúst síðasl. átti Rose Margret prinsessa, yngri dóttir brezku konungshjónanna, 18 ára afmæli. Þetta afmæli markaði tíma mót í æfi hennar, því að eftirleiðis mun hún hafa miklu meira frjálsræði en áður og mun koma fram einsömul fyr- ir hönd konungshjónanna við ýms hátíðleg tækifæri. T. d. mætti hún fyrir þeirra hönd við krýningu Júlíönu Hollandsprins- essu. Síðan Elísabet krónprinsessa giftist og dró sig í hlé vegna vænt anlegs erfingja, hefir borið stöð- ugt meira á Margaret prinsessu og hún áunnið sér miklar vinsæld ir. Á ýmsan hátt minna vinsæld- ir. hennar á þá lýðhylli, sem föðurbróðir hennar, núv. hertogi af Windsor, naut meðan hann var krónprins. Sennilega líkist hún honum líka á ýmsan hátt. Ólíkar syslur. Þær systuirnar Elísabet og Margaret voru mjög samrýmdar og fylgdust alltaf að eftir að þær komust á leg. Það urðu því mikil viðbrigði fyrir Margaret, þegar Eliísabet fór að heiman. Hin góða sambúð þeirra stafaði þó ekki af því, að þær væru sérstaklega skaplíkar, heldur eru þær þvert á móti ólíkar á ýmsan hátt. Elísabet krónprinsessa er sögð fremur alvörugefin og hefir fyrst og fremst hugsað um að búa sig undir hið vandasama starf, er bíður hennar. Hún hefir m. a. fengið orð fyrir að fylgjast minna með tízkunni en flestar jafnöldr- ur hennar, því að hugur hennar hefir meira verið bundinn við annað. Rose Margaret er hins vegar sögð léttlynd og jafnvel eiga það til að vera æringi, sem hefir gaman af smábrellum. Hún er sögð glettin og hnyttin í tilsvör- um og er oftar en einu sinni sögð hafa óskað þess, að hún gæti komizt þangað, þar sem hún hefði ekki af neinum konung- dómi að segja. Hún hefir gaman af að skemmta sér, einkum þykir henni gaman að dansa. Hún fylgist m j ö g vel með tízkunni og býr sig jafnan mjög smekklega. Bláir og ljós- rauðir litir eru sagðir uppáhalds- litir hennar. Margaret varð fyrri til en bæði móðir hennar og systir að taka upp síðu kjólatízkuna. Nýlega er hún talin hafa fundið það upp, að henni færi vel að láta hring- aðan hárlokk lafa fram á ennið, en móðir hennar er talin hafa bannað henni að greiða sér þann- ig, því að konunglegar persónur verði að gæta þess að ekkert skýli andlitinu við myndatökur. Falleg prinsessa í enskum blöðum er Margaret prinsessu oft lýst mjög nákvæm- lega og jafnt talið fram það, sem prýðir hana og lýtir. Hún er 158 cm. há, mittismálið, er 58,5 cm., brjótmálið 84 cm. Hún samsvarar sér því vel, en virðist þó í grennra lagi Hún hefir góða og viðfelldna framkomu. Hún er heldur toginleit, en hefir frítt andlitsfall, blá augu og óvenju- lega fallegt hörund. Hárið er ljósbrúnt. Það sem einkum er talið óprýða hana, er það, að hún er lítið eitt hjólbeinótt, en þó ekki svo, að það sé til lýta. Margaret prinsessa fær yfir- leitt þá dóma, að hún sé fríð stúlka, en þó ber þess að gæta, að hún er tæpast enn komin af gelgjuskeiðinu. Útlit hennar er sagt vinna henni mikla aðdáun þeirra ungu karlmanna, sem hún umgengst. Hver verður maður prinsessunnar? Þótt Margret sé enn ekki nema 18 ára, er þegar farið að stinga saman nefjum um væntanlegt mannsefni hennar. Um skeið í fyrra vetur var George Danapr- ins, sem vinnur við danska sendi- ráðið í London, talin mjög koma til greina og var sitthvað um það rætt í dönsku blöðunum. Sein- ustu mánuðina hefir einn frændi Ræða Marshalls. Þetta er fjórði dagur þingsins. í gær hélt Marshall sína miklu ræðu, sem lesendur blaðsins hafa haft tækifæri til að kynna sér. í forystugrein í Le Figaro segir í dag, að það sé að vísu ekki nóg að lesa þá ræðu. Maður þyrfti að sjá og heyra ræðumanninn, heyra hvernig áherslu hann lagði í orðin. Þegar hann stóð upp og gekk að ræðustólnum, varð steinhljóð í salnum. En öll framkoma mannsins bar vott um festu og styrk. Sumir kunna að hafa saknað eldmóðsins. En átti hann við þarna? Var það ekki einmitt svona, sem skýra átti frá aðal- atriðum stefnunnar, sem vest- rænar þjóðir fylgja? Eg spurði Thor Thors sendi- herra og formann íslensku nefnd- arinnar að því, eftir fundinn, hvernig hann vildi skýra frá ræðunni í fáum orðum. Hann sagði: “Marshall lýsti því yfir, að Bandaríkin vildu draga úr “spenningnum”, sem nú er milli þjóðanna, án þess að fórna nokkru af stefnumálum sínum”. Nákvæmlega sömu orðin eru í fyrirsögnum blaðsins í dag. Ritvélakliður. Bækistöðvar blaðamanna eru hátt uppi í Chaillot-höll. Þar hripa eg niður þessar línur með Effelt. beint fyrir framan mig, hjúpaðan kvöldskini. Hér er rit- vélakliðurinn svo mikill, að lík- astur er hann helliskúr, sem dynur á bárujárnsþaki,- Ákaflega viðkunnanlegur klið- ur. Hóf fyrir forselafrúna. Forsetafrúin okkar, frú Georg- ia Björnsson, kom hingað í fyrra- kvöld. Pétur ^enediktsson sendi- herra og frú hans höfðu síðdegis- boð fyrir hana í gær. Þar voru um 30 íslendingar, er nutu gestr- isni sendiherrahjónanna. En í dag bauð sendinefndin forseta- Churchills, Blandford lávarður, verið oftast tilnefndur. Hann er væntanlgur hertogi af Marlbor- ough, en það er eitt virðulegasta aðalsnafnið í Bretlandi. Bland- ford lávarður er 22 ára gamall, gegnir foringjastarfi í lífverðin- um og er hið mesta glæsimenni. Hann og Margaret hafa oft farið saman á dansklúbba, og munu áðurgreindar sögusagnir sprottn- ar af því. Það er ekki talið líklegt, að trú- lofun Margaret prinsessu verði tilkynnt fyrr en eftir 2—3 ár og margt getur breizt á þeim tíma. Margaret er ekki háð neinum venjum, eins og systir hennar um það, hverjum hún megi giftast, þar sem hún er ekki krónprins- essa. Hún getur því allt eins vel gifst verkamanni eða amerískum auðkýfingi, ef svo vill verkast. Hvorugt er þó trúlegt. Margaret er sögð ólíkt frjálslegri í um- gengni við karlmenn en Elísabet var, enda er hún talin hafa eign- ast marga góða kunningja í hópi þeirra. En hún hefir aldrei enn fengið að vera ein með neinum þeirra, því að hún fer aldrei svo út ,að ekki sé einhver hirðmey með til eftirlits. Annars hefir hún sótt skemmtanir miklu meira og lifað óþvingaðra lífi síðan Elísa- bet giftist og leiðir þeirra skyldu að mestu. TÍMINN 1. sept. frúnni til hádegisverðar hér í þinghöllinni, í aðalveitingasal hallarinnar, ásamt sendiherran- um og starfsmönnum sendisveit- arinnar. Eg spurði Thor Thors að því hvað væri að segja um þátttöku Íslendinga í þingstörfum fram til þessa. Hann skýrði m. a. svo frá: l íslendingar kusu Tékka og Pólverja. Eftir fyrsta þingdaginn höfðu Rússar og bandamenn þeirra engann formann fastanefnda fengið kosinn eftir sínu höfði, og yfirleitt engann í neina virðing- arstöðu þingsins. Þetta þótti eftir á ekki frið- vænlegt, og óþarflega einstreng ingslegt, á þingi, þar sem ekki er bætandi á ólguna sem fyrir er. Þegar búið var að kjósa for- menn í 5 fastanefndir þingsins, en þær eru alls sex, var þeirri kosningu frestað. Kom síðan uppástunga um að kjósa Tékka í þetta formannssæti. íslensku nefndini þótti rétt að sýna þá tilhliðrunarsemi að kjósa Tékka sem formann þessarar nefndar. Var hann kosinn með tveggja at- k-væða meirihluta. Það horfði svo í fyrstu, að þeir austrænu fengju ekki heldur neinn af sínum kosna, sem vara- forseta þingsins, en þeir eru alls sjö. Spaak, hinn belgíski stakk upp á að fresta þeirri kosningu og var það gert til næsta dags. Fengu stórveldin 5 þar hvert sinn fulltrúa og auk þess var þar kos- inn Mexikó maður og Pólverji. íslenska nefndin gl-eiddi Pólverj- anum atkvæði og hélt þar með áfram á þeirri braut, að styðja heldur þá stefnu, sem að sáttum hnígur. "Verndarpólitík”. Þessi fjórði dagur þingsins var heldur tíðindalítill. Á morgun er búist við, að Vishinsky hinn rússneski svari Marshall. Og svo komi einhver mikil ræða frá Bretum eftir helgina. Einn af fulltrúum Rússa, Malik, tók til máls í dag, við framhaldsumræður um dagskrá þingsins. En Chile hefir farið fram á, að þingið fjalli um bann það, sem Moskvastjórnin hefir lagt á, að rússneskar konur, sem giftast útlendingum, fái að fara úr landi. Sendiherra Chile í Moskva giftist rússneskfi konu. En er hann hvarf heim til sín, varð kona hans að vera eftir í Moskvu. Hinn rússneski fulltrúi lýsti því í ræðu sinni í dag, með mörg- um orðum, að Moskvastjórnin hefið séð sig tilneydda að banna rússneskum konum að fara úr landi, vegna þess, að með ýms- um þjóðum væri ímugustur gegn Rússum eins og menn kynnu að hafa tekið eftir. Rússn- eskar konur gætu orðið fyrir ó- þægindum og ómaklegu aðkasti, ef þær færu út um heim. Og svo væri það nauðsynlegt, það væri beinlínis skylda Moskvastjórnar- innar að vernda kvenþjóð sína frá því böli, með því að banna þeim með öllu að fara að heiman. Þó hér væri ekki um stórmál að ræða, sem í sjálfu sér skifti miklu fyrir heiminn í heild sinni, þá var gaman að því að sjá og heyra manninn halda fram þess- ari sérstæðu “verndarpólitík”. Ræktuunarráðunautur Rvíkur Edv. Malmquist, hefir tjáð Vísi að kartöfluuppskeran í Reykja- vík hafi verið í góðu meðallagi í haust, og langt fram yfir það, sem vonir stóðu til í vor. Veðrátt- an var köld allt fram í júní, en auk þess hörgull eða jafnvel vöntun á góðu útsæði, sem orsak- aðist af uppskerubrestinum í fyrra. Samkvæmt sýnishornum, sem tekin hafa verið af handahófi í kartöflugörðum Reykjavíkur, má búast við að heildar upp- skerumagnið í haust verði yfir 20 þús. tunnur hér í bænum, eða rösklega helmingi meira en í fyrra. Segja má, að áhugi fyrir kart- öflurækt og annari garðrækt fari sívaxandi, og* reynist orðið full erfitt fyrir bæinn að láta í té hentugt og fullnægjandi land til þessarar starfsemi. Ennfremur hefir gengið erfiðlega að fá full- nægjandi áburð til aukinnar kart öfluræktar. Innflullar kartöflur fyrir 2.9 millj. kr. Á fyrra helmingi þessa árs hafa kartöflur verið fluttar inn fyrir 2.9 millj. kr. En á árinu sem leið var áburður til alls landsins fluttur inn fyrir aðeins 5.3 millj. kr. Malmquist kvaðst telja það illa farið, að við skulum neyðast til að flytja inn kartöflur fyrir jafn mikið fjármagn og raun ber vitni, miðað við áburðarkaup landsmanna. Þá kvaðst ræktunrráðunautur- inn vera þess fullviss, að á með- an verzlunarháttum væri eins hagað og nú er, og með verðupp- bótum á kartöflum, yrði það tví- mælalaust til þess að draga mjög úr ræktunaráhuga manna. Væri það líka eðlilegt þar sem það er beinn hagnaður fyrir framleið- endur að leggja vöru sina inn í verzlanir og kaupa hana þar aft- ur. "T í maspreng j a". Einn fulltrúi Suður-Afríku, Louw, tók til máls í morgun og var með skæting í garð Samein- uðu þjóðanna. Var það að vísu rósamál, sem hægt er að leggja út á ýmsan hátt. Fréttaritari Daily News í Chi- cago, Barrow, er var í Reykja- vík á dögunum, er hér fyrir blað sitt. Hann kallaði þessa ræðu Suður Afríkumannsins “tíma- sprengju”, sem gæti sprungið þá og þegar, þannig að Búamir seg- ðu sig úr samtökum Sameinuðu þjóðanna. Og gæti þá dregið til stórtíðinda. Verkföll. Annars hefur það einkum bor- ið til tíðindaJiér í Parísarborg í dag ,að hér hefur verið tveggja tíma verkfall í flestum starfs- greinum. Neðanjarðarlestir voru stöðvaðar í allan dag, en leigu- bílar hættu að ganga frá kl. 4 til sex. Nema vagnar þeir, sem notaðir eru til mannflutninga til og frá Chaillothöllinni. Verkfall þetta eða verkföll eru í mótmælaskyni við nýja skatta, til að minna á að gera þ u r f i gagngerðar ráðstafanir til þess að bæta kjör hins vinnandi fólks í landinu .Og mun síst vera van- þörf á því. Það hefur tekist að gera verð- bólguna hér svo mikla, að eng- um dettur í hug, sem fer inn í veitingahús til að fá sér mat, að greiða verðinn með minni seðl- um en þeim, er hljóða á þúsund franka. V. St. Mbl. 20. sept. Geymsla kartaflna. Með tilliti til þess hve útsæðið var slæmt og enn fremur vegna þess, að hætt er við einhverjum skemmdum í kartöflum, verður aldrei of oft brýnt fyrir fólki að vanda til geymslu þeirra. Og þó að segja megi að geymslukostn- aðurinn verði í sumum tilfeliun- um nokkuð hár, vegur það hins- vegar fyllilega á móti minni rýrn un í kartöfluuppskerunni, auk þess sem heimilin eiga fyrir bragðið kartöflur fram eftir ári þegar annars er venjulega hörg- ull á þeim. Og þar sem aðstaðan til kart- öflugeymslu er nú orðin stórum bætt m. a. með jarðhúsunum við Elliðaár, kvaðst ræktunarráðu- nautur naumast trúa því að jafn auðræktuð matjurt sem kartöfl- ur eru, yrði framvegis fluttar inn í landið og eytt fyrir þær stórfé í gjaldeyri. Að lokum gat ræktunarráðu- nauturinn þess, að fengizt hefðu fljótvirkari og betri tæki til þess að halda kartöflumyglunni niðri, og hefðu þau borið góðan árang- ur í sumar. Vísir, 7. okt. EKIÐ 2000 KM. í ÓBYGÐUM Páll Arason hefir farið 70 ferð- ir austur að Heklu síðan hún gaus fyrst og fór hann seinustu ferðina um s. 1. helgi. Alls hafa farið með Páli í þess- um ferðum um 500 farþegar. í þrem ferðum hefir hann farið með farþega alla ieið upp á hæsta tind Heklu, en 12 sinnum með farþega upp að hraunagýg. Á sumrinu hefir Páll Arason einn- ig farið með um 120 farþega um öræfi landsins og ekið 2000 kíló- metra í óbyggðum. Sérstaklega má nefna ferð um Sprengisand og Brúaröræfi. Ennfremur um Kjöl og norður á Blönduós þá leið tvisvar inn í Landmanna- laugar. Auk þess hefir hann farið með farþega styttxi og kunnari leiðir eins og inn á Þórsmörk. Canadian Pacific Express VISTA PENINGA AVÍSANIR Hve fljó t, hve auðvelt að senda vistir til Bretlands og Evrópu Má skipta fyrir fæði Engin skömtunar stig •Lítið inn á Canadian P a c i f i c skrifstofu, greiðið $10.00 og fáið kvitteringu. V i n i r handan hafs velja úr 63 fæðitegundum, sem nefndar eru á baki ávísunarinnar. Fæðan, sem valin verð ur, er send frítt frá Danmörku. F i n n i ð Canadian Pacific um- boðsmann.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.