Lögberg - 11.11.1948, Blaðsíða 7

Lögberg - 11.11.1948, Blaðsíða 7
I Fréttabréf úr Skagafirði SLÆTTI ER NÚ lokið. Sumarið fram um höfuðdag var eitt hið hagstæðasta til heyskapar sem elstu menn muna. Eftir höfuð- dag brá til óþurka svo að enn eru hey víða úti en spillast minna sökum þess hve veðrið er kalt. Snjór er í fjöllum og í dag er hríðar- veður og stórhríð til fjalla. Sauðfé reynist vel til frálags, kemur sér það vel því nú á að lóga öllu fé vestan Héraðs vatna vegna fyrirhug aðra fjárskifta. Framkvæmdir í héraði. Framkvæmdir hafa verið all miklar í héraðinu í vor og sum- ar, og hefðu þó orðið miklu meiri ef ekki skorti efni, vélar og vinnu afl. íbúðarhús eru fleiri í smíðum en undanfarin ár, einkum í sveit- unum, auk þess er byggt talsvert af peningshúsum, hlöðum og súr- heystóftum,^þar á meðal er verið að endurbyggja fjósið á skólabú- inu á Hólum og stækka það um helming. Enn fermur er verið að byggja heimavistarbarnaskóla fyrir Lýtingsstaðahrepp við Steinstaðalaug. I vor og sumar hafa starfað hér í héraðinu 5 jarðýtur og 2 skurðgröfur auk smærri jarð vinnsluvéla, en þrátt fyrir þenna vélakost hefir ekki reynst unt að fullnægja eftirspurninni eftir þessum jarðvinnsluvélum, sér- staklega er skorturinn á skurð- gröfum til finnanlegur. Á Sauðárkrók og Hofsós er unnið að allmikilli lengingu hafnargarðanna á báðum þess um stöðum. Virkjun Gönguskarðsár hjá Sauðárkróki sem ríkið lætur framkvæma er nú lokið og verið að enda við að leggja vatnsleið- slustokkana. Vélahúsið er í smíð- um og verður að sögn full gert innan skamms en vélarnar eru enn ókomnar þótt þeim væri lofað í júnímánuði s.l. Rafveita þessi á að selja Sauðárkróksbú- um og bændum í nálægum hrepp um ^afmagni til heimilisþarfa og iðnaðar. Þá er Sigurður Þorvalds son hreppstj. á Sleitustöðum 1 Kolbeinsdal, ásamt sonum sínum og tengda syni, að reisa stóra og myndarlega rafstöð fyrir heimili þeirra til ljósa, suðu og hitunar og auk þess til afnota fyrir véla- við gerðarverkstæði sem þeir eru að koma upp. Vegagerð um héraðið hefir miðað hægt áfram á þessu ári og fé það er sýlsusjóði er ætl- að, gjörir lítið meira en hrökkva fyrir nauðsynlegu v i ð haldi vegna hins háa kaupgjalds og stórvaxandi umferðar af bifreið- um, og er þó vélskófla sem sýsl- an á, notuð við malburðinn. í imdirbúningi er að leggja í haust síma um Viðvíkurhrepp svo hann komist á hvert býli en þar eru aðeins 2 bæir í talsíma- sambandi. Nýtt mjólkursamlagshús. Þá má geta þess sem mér gleymdist er eg drap á nýbygg- ingar í héraðinu að Kaupfélag Skagfirðinga er að byggja stórt og vandað mjólkursamlagshús á Sauðárkrók nokkuð fyrir inn- an bæinn. Þegar það er full gert kemur það í stað núverandi mjólkursamlagshúss sem er mjög aðkreppt og innilokað í miðjum bænum, og talið úrellt og óhent- ugt. Mannalát. Loks má geta þess að á þessu sumri hefir dauðin lagt að velli á stuttum tíma fleiri merka menn og konur í héraðinu en títt er þegar ekki ganga yfir stór- sóttir. Skal hér nokkura getið stuttlega, og minna en vert væri. 1. í júlímánuði andaðist Ólafur Jónsson bóndi í Efra-Haganesi í Fljótum fæddur 6. apríl 1868 á Valdastöðum í Kjós. Búfræð- ingur frá Hvanneyri 1893. Flutt- ist eftir aldamótin norður að Barði í Fljótum til systur sinnar og mágs síns séra Jónmundar Halldórssonar. Kvæntist nokkru síðar Jórunni Stefánsdóttur bónda í Efra-Haganesi, ágætri konu og reisti þar bú á eignar- jörð hennar. Ólafur var um langt skeið einn besti bóndinn í Vestur Fljótum og sveitar stoð. Hann var hreppsnefndaroddviti um hríð og lengi í hreppsnefnd og gengdi ým sum öðrum trúnaðarstörfum. 2. Aðfaranótt þess 4. ágúst and- aðist Sigríður Benediktsdóttir húsfreyja í Litlu Gröf á Lang- holti. Hún var fædd 9. júní 1886 að Hofi í Hjaltadal, var faðir hennar sonarsonur hins kunna merkisprests og héraðs höfð- ingja, Benedikts Vigfússonar prófasts á Hólum í Hjaltadal. Sigríður giftist 1920 eftirlifandi manni sínum, Árngrími Sigurðs- syni hreppsnefndarroddvita í Litlu Gröf og reistu þau bú á föðurleyfð hans, Litlu Gröf, og hafa ávallt búið þar góðu búi. Sigríður var greind kona og vel menntuð og hafði dvalið erlendis um hríð. Hún var um hyggjusöm húsmóðir, og bjó heimili sitt þannig, að það vakti athygli manna, sakir smekkvísi og snyrtimennsku. Hún var fróð kona og þó sér- staklega um skagfirskar ættir. 3. þann 4. ág. andaðist Hartmann Ásgrímssoin bóndi í Ásgarði í Viðvíkursveit, áður bóndi í Kol- kuósi. Hann var fæddur 2. sept. 1874. Gagnfræðingur frá Möðru- völlum 1895. Hóf verslun í Kol- kuósi 1898 og rak hana um langt skeið. Jafnframt stofnaði hann þar samnefnt nýbýli, hafði þar gott bú sem hann rak jafnhliða versluninni, þar til hann afhenti býlið syni sínum en fluttist sjálf- ur á aðra eignarjörð sípa, Ásgarð og bjó þar eftir það. Hartmann var mikill áhuga og dugnaðarmaður, varð því vel til fjár og kunni að gæta þess. Hann var hreppstjóri og hreppsnefnd- aroddviti um hríð, og gengdi ýms um öðrum trúnaðarstörfum. Hann var um langt ske^ð einn af máttarstólpum sveitar sinnar. Kona hans var Kristín Símonar dóttir frá Brimnesi er lifir mann sinn, merk kona og manni sínum samhent. 4. Þann 5. ágúst andaðist á Sauðárkrók Guðmundur Guð- mundsson, háaldraður öldungur, fæddur 11. júní 1853 á Flögu í Vatnsdal, en fluttist eftir tvítugs- aldur til Skagafjarðar, og dvaldi þar eftir það á ýmsum stöðum t.d. leng iá Hólum í Hjaltadal og var því oft kenndur við þann stað. Hann var mikill gleðimaður, prýðilega greindur og áhugasam- uir starfsmaður og hélt hvoru tveggju, glaðværðinni og vinnu- gleðinni til hins síðasta. Guðmun dur var nafnkunnur hestamaður, einn af þeim sem sagt er um að yæri hestamaður af guðs náð, og hlaut fyrir það sérstaka viður- kenningu Búnaðarfélags Islands. Kona hans var Þóra Friðbjarn- ardóttir frá Stóragerði í Óslands hlíð. Þau skildu samvistir. Síð- ustu 30 árin bjó Guðmundur með Ólínu Jónasdóttir skáld- konu, sem stundaði hann af frá- bærri alúð eftir að kraftar hans fóru að þverra. 5. Þann 11. ágúst andaðist frú Bergljót Tómasdóttir Blöndal, f. 19. sept. 1873 í Kasthvammi í Suð ur Þingeyjarsýslu. Hún var ekkja séra Björns Blöndals prests í Hvammi í Laxárdal hér í sýslu dáinn 1906. Eftir lát manns síns, dvaldi hún á Sauðárkróki til æfi- loka. Frú Bergljót var mikil starfsmanneskja og ágætiskona að allra dómi. Hún andaðist hjá einkasyni sínum Lárusi Blöndal verslunarmanni á Sauðárkrók. 6. Loks andaðist bændaöld ung urinn Eiríkur Jónsson í Djúpa- dal þann 16. sept. Hann var fædd ur í Djúpadal 24. maí 1862 og ól þar allan aldur sinn. Hann hóf búskap í Djúpadal eftir föður sinn og brá búi er Jón sonur hans reisti þar bú. Hefir Djúpidalur LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 11. NÓVEMBER, 1948 7 Flugstöðvarbyggingin í Keflavik ein fullkomnasta í Evrópu Mikill viðbúnaður til að taka á móti væntanlegri Hvalf jarðarsíld Fleiri byggingarframkvæmdir áætlaðar Flugstöðin nýja á Keflavíkurflugvelli verður sennilega tilbúin um áramótpi. Er það glæsileg bygging, þar sem farþegaafgreiðsla verður, skrifstofur flugfélaga, veitingasalir og gistihús, sem tekur 80 manns. Lokið er við byggingu birgðaskemmu þvottahúss og fleiri byggingar eru fyrirhugaðar á vellinum. Flugstöðabygg- ingin verður ein fullkomnasta í Evrópu. Góð samvinna milli Islendinga og Bandarikjamanna. Blaðamenn frá Reykjavík fóru til Keflavíkur í gær í boði flug- stjórnarinnar og Lockheed Air- craft Overseas Corporation, sem nú rekur þjónustu á vellinum fyrir Bandaríkjastjórn. 1 hádegis verði, sem félagið hélt blaða- mönnum skýrði Agnar Kofoed Hansen flugvallarstjóri frá því, að samvinna væri hin besta milli íslenzku flugstjórnarinnar og Bandaríkjamanna, sem á vellin- um störfuðu Flugvallastjóri gat þess að H. Bjarnason skipulags- stjóri og hann hefði stöðugt eftir- lit með byggingum á vellinum og gæfi Hörður skýrslu um fram- kvæmdir í viku hverri til ríkis- stjórnarinar og flugstjórnarinn- ar. Mr. Gribbon, forstjóri amerí- ska félagsins, þakkaði íslensku flugstjórninni fyrir góða sam- virmu. * Mannvirki skoðuð. Blaðamenn fóru flugleiðis til Keflavíkur í annari björgunar- flugvél Keflavíkurvallar og skoðuðu öryggisútbúnað, sem á vellinum er til taks. Síðan var flugstöðin nýja skoðuð og önnur mannvirki með leiðsögn Harðar Bjarnasonar. Flugstöðin er mik- ið hús og taldi Hörður, að hún myndi verða ein af fullkomnustu flugstöðvum í Evrópu og hefði ekkert verið til sparað til að gera hann sem best úr garði. 0 Nýjar framkvaemdir. Það er séð, að gistihúsið í hinni nýju byggingu verður of lítið, því umferð hefir aukist gífurlega um völlinn undanfar- ið og útlit fyirir að hún aukist enn. Hefir því verið samþykt, að bygt verði nýtt gistihús, frá því sem nú er að verða til- búið, sem taki 50 næturgesti, en þar verða ekki veitingar. Þá er í ráði að byggja loftskeytastöð. 14 íbúðarhús fyrir starfslið vall- arins og er þegar búið að grafa fyrir grunni 6 húsa. Þá er ráð- gert að byggja kirkju og skóla og fleiri byggingar, sem nauðsyn- legar eru fyrir starfsfólk vall- arins. Mr. J. Roe, blaðafulltrúi Lock- heed Aircraft Overseas Corpora- tion fylgdi blaðamönnum um Keflavíkurvöllinn ásamt - þeim, sem fyr eru nefndir. Mgnbl. 24. okt. Fimm Íslendingar heiðraðir fyrir björgunarafrek Heiðursverðlaun frá breskum stjórnarvöldum SENDIHERRA BRETA, C. W. Baxter og frú hans buðu stjórn Slysavarnafélags Islands og nokkrum öðrum gestum heim til sín í gærd. í tilefni af því, að Bretakonugungur hefur sæmt 5 íslend- inga heiðurspening úr silfri fyrir hreysti við björgun skipshafn- arinnar á breska togaranum Dhoon, sem strandaði við Látrabjarg í desember í fyrra. Auk stjómar Slysavarnafélagsins voru við- staddir Emil Jónsson, samgöngumálaráðherra Guðmundur Vil- hjálnasson, forstjóri Eimskipafélags Islands, Geir Zoega, umboðs- maður breskra útgerðarfélaga og fleiri. Mennirnir, sem voru heiðraðir Mennirnir fimm, sem Breta konugur heiðraði eru: Daniel Eggertsson, sem stjórn aði björguninni, Þórður Jónsson Hafliði Halldórsson, allir frá Látrum. Andrés Karlsson frá Kollsvík og Bjarni Sigurbjörns- son frá Hænuvík. Þeir gátu eigi verið viðstaddir athöfnina og verða heiðurspen- ingamir sendir þeim síðar. Þá afhenti sendiherrann Guð- bjarti Ólafssyni, forseta Slysa- varnafélagsins, silfurbikar frá breska * samgöngumálaráðuneyt- inu, sem það hefur gefið SVFl til minningar um aðstoð þá, sem konur og karlar veittu skipbrots- mönnum. sem er gamalt höfuðból verið í eign og ábúð þessara ættar í meir en 200 ár og er enn. Þótt Eiríkur byggi búi sínu um langt skeið var hann fyrst og fremst frábær hagleiksmaður og smiður. Hann lærði trésmíði á æskuárum og var um langt skeið einn af bestu smiðum héraðsins liggur mikið verk eftir hann á því sviði. Eiríkur var mikill starfmaður alla æfi, gekk t. d. að slætti skömmu áður en hann andaðist. Hann var gleðimaður, vel gefin, skemtilegur og ágætis drengur, er vann sér vináttu allra er kynni höfðu af honum. Eiríkur var kvæntur frænd- konu sinni, Sigríði Hannesdóttur, prýðilegri konu, er lifir mann sinn. Mbl. 29. sept. Einsiakl björgunarafrek Mr. Baxter, sendiherra rakti í ræðu, sem hann hélt, sögu björg unarinar og sagði, að menn um allan heim hefðu lesið um þessa hetjudáð. Hann talaði um hið mikla starf, sem Slysavarnafé- lagið hefði unnið undanfarin 20 ár og minntist frásagnar skip- brotsmannanna af hinni miklu hjálp og gestrisni, sem þeir hefðu notið. Ennfremur las hann upp frétta tilkynningu, sem samgöngumál- aráðuneytið hreska gaf út fyrir skömmu, er það varð kunnugt að Bretakonungur hefði sæmt þessa menn heiðurspeningunum. — í þessari fréttatilkynningu er rak- in saga strandsins og björgunar- innar en sú saga er íslenskum blaðalesendum kunn. Forseti SVFÍ þakkar Guðbjartur Ólafsson, forseti Slysavarnafélagsins, þakkaði sendiherranum fyrir þá sæmd, sem Bretakonungur og samgöngu málaráðuneytið hefði veitt ís- lendingum. Mbl. 25. sept. SEND YOUR FALL CLEANING AND LAUNDRY NOW F0R FAST SERVICE Use Perth’s Carry and Save Store or Phone 37 261 PERTH’S Nýjar verksmiðjur bygðar og aukið við eldri með aðstoð Marshalllánsins MIKILL UNDIRBÚNINGAR hefur verið að því að taka á móti væntanlegri síldveiði hér í Hvalfiði á vetri komanda, en senn fer að líða að því, að síldin sé væntanleg í Faxaflóa, ef síldin gengur hér inn í Hvalfjörð og sundin í vetur eins og undanfarna vetur. Nýjar síldaxverksmiSjur 1 byggingu eru nokkrar nýjar síldarverksmiðjur hér sunnan- lands. Reykvíkingar hafa tekið eftir því, að í örfirisey er að rísa upp hin nýja verksmiðja Reykja víkurbæjar og Kveldúlfs og er ætlast til að hún verði tilbúin í vetur. “Hæringur”, síldarbræðslu- skipið er á leið til landsins frá Ameríku, en skipið kemur alla leið frá Kyrrahafsströnd Banda-1 ríkjanna um Panamaskurð. Er | það um 10,000 mílna löng leið. í Hafnarfirði er verið að reisa nýja síldarverksmiðju, sem verð- I ur tilbúin á næstu vikum. Þá er verið að auka við, eða endurbæta til meiri afkasta síldarverksmiðjur í Njarðvíkum, að Kletti hér við Viðeyjarsund og á Akranesi. Marshalllán til kaupa á vélum og síldarnótum Marshalllánið, 2.3 milljónir dollara, sem tekið var í sumar hefur hjálpað til, að hægt var að útvega með stuttum fyrirvara ýmsar vélar í þessar nýju verk- smiðjur og ennfremur hafa verið keyptar síldarnætur vegna kom- andi síladarvertíðar, fyrir hluta af þessu láni. Er sumt af þessum vörum og vélum þegar komið til landsins, en annað er á leiðinni eða væntanlegt. Mbl. 30. sept. Aðalfundur Prestafélags Austurlands Dagana 5. og 6. sept. þ. á. var aðalfundur Prestafélags Austur- lands haldinn að Hallormsstað, að afloknum héraðsfundum beggja Múlaprófastsdæma. Fundinn sátu 8 prestar, og auk þess 7 safnaðarfulltrúar, sem var boðið að taka þátt í umræðunum um aðaldagskrármál fundarins, en það var: “Getur öruggt og almennt siðgæði þróast án trú- ar?” — Málshefjandi séra Pétur Magnússon. — Allmiklar umræð- ur urðu um málið. í lok fundarins vakti séra Sig- mar Torfason máls á þeirri hreif- ingu, sem vöknuð er út af vænt- anlegri endurreisn Skálholtsstað- ar. Eftir nokkrar umræður um málið samþykkti fundurinn svo- hljóðandi ályktun: “Aðalfundur Prestafélags Aust urlands skorar á hlutaðeigandi stjórnarvöld að hraða endurreisn Skálholtsstaðar svo sem mest má verða. Leggur fundurinn sér- staka áhersla á það, að fram- kvæmd endurreisnarinnar verði hagað í samræmi við hinar sögu- legu minningar og helgi staðar- ins, og að kirkjuleg endurreisn sitji fyrir öðrum framkvæmd- um”. Síðari fundardaginn flutti séra Pétur Magnússon erindi, sem hann nefndi: “Á að rísa gegn meing j örðamanninum? ” 1 sambandi við fundin var messað í 6 kirkjum í prófasts- dæmunum auk Hallormsstaðar. Stjórn félagsins skipa næsta ár: Séra Ingvar Sigurðsson, Séra Sigurjón Jónsson og Þórarinn þórarinsson, skólastjóri. Kirkjubl. 4. okt. Albert Guðmundsson hand- tekinn — og látinn laus — í Milanó Taldi að brolnir hafi verið á sér samningar og æílaði frá llalíu Frá fréttaritara Morgunblaðsins í Kaupmannahöfn. Kaupmannahafnarblaðið “Pol- itiken” skýrir frá því, að íslenski knattspyrnumaðurin Albert Guð mundsson hafi verið handtekinn í Milano s.l. fimtudag, er hann var í þann veg að fara frá ítalíu. Hann var þó látin laus aftur, en lögreglan hélt eftir vegabréfi hans og er ekki vitað hvernig máli hans lyktar en Albert hefir hótað, að kæra fyrir alþjóða knattspyrnusambandinu og ís- lenska ræðismanninum í Genoa. bert frá því, að Milanó-félagið hefði “keypt” sig af Nancy-knatt- spyrnufélaginu og auk launa hafi sér verið lofuð íbúð í Milanó, en þar sem þetta var svikið þrátt fyrir itrekaða beiðni Alberts, hefði hann skoðað sig lausan allar mála við Milanófélagið og ákveðið að fara heim. Keyptur fyrir 130,000 kr. Formaður Milaöfélagsins sagði* á lögreglustöðinni, að félag hans hefið “keypt” Albert fyrir um 130,000 kronur af Nancy-félag- inu. Ef Albert vildi greiða þetta fé til baka gæti hann farið hvert sem hann vildi. Lögreglan lét Albert lausan, en hélt eftir vega- bréfi hans og öðrum skjölum. Vill ekki leika lengur á ílalíu Taldi ítali hafa brotið á sér samninga Albert ætlaði úr landi, sam- kvæmt fréttinni í Poitiken, vegna þess, að hann taldi ítalska knatt- spyrnufélagið, sem hann var ráð- inn hjá hafa brotið á sér samn- inga. Á lögreglustöðinni skýrði Al- Albert Guðmundsson hefur til kynt, að hann muni ekki leika knattspyrnu framar á ítalskri grund. Fái hann ekki þegar í stað vegabréf sitt, þá muni hann kæra fyrir alþjóða knattspyrnu- sambandinu og tilkynna íslenska ræðismanninum í Genóa um málið. Mbl. 28. sept. ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ TIL KAUPENDA LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein- dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði. Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur. Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn. THE COLUMBIA PRESS LIMITED THE VIKING PRESS LIMITED ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.