Lögberg - 30.12.1948, Blaðsíða 1

Lögberg - 30.12.1948, Blaðsíða 1
PHONE 21374 * A \^Vle' X>ttxin ® A Complele Cleaning Inslilulion PHONE 21 374 teA -r /sll.tVÍ Cictt^* 1 2 A Complele Cleaning Tnstilulion 61. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 30. DESEMBER, 1948 NÚMER 52 Jón Elías Jóhannsson Straumfjörð 1869 — 1948 I skapadóms hörðum hildarleik, sig hetjan beygja má, fellur hin sterka fagra eik, sem fjólan ung og smá Svo var það með ofannefndan vin okkar, sem kvaddi þennan heim 7. nóvember s.l. að heimili Halldórs sonar síns í Vancouver, B.C. eftir langt og strangt veik- indastríð. Þegar kona hans Ingi- ríður fékk sína hvíld 21. janúar 1948, mátti skilja að Jón grunaði að sömu leið myndi hann fljót- lega sigla. Hugsanir hans voru á þessa leið: Yfir hafið okkur nú sem skilur, innan skamms ég beiti mínum knör; sigli djarft því hvorki brim né bylur, breytir stefnu eða hindrar för. Brims úr róti borinn fjarri grandi, björt hvar sólin gyllir höf og lönd, bát minn þegar ber að friðar lamdi, brosandi mér rettir þína hönd. og nú getum við sagt: Þinna vona fylling fengið hefur, þótt faratálmi þungur reyndist hér, vissu um sælu samfund trúin gefur, þá síðsta bára skip til hafnar ber. 12. nóvember var Jón lagður í sitt hinsta hvílurúm við hlið konu sinnar, í Forest Lawn graf- reit, Séra Albert Kristjansson flutti þar áhrifamiklar og hug- hreystandi ræður, bæði á ís- lensku og ensku máli, marg- breytilegur og fagur söngur, og ekkert var tilsparað með að gjöra útförina tilkomumikla, og í sam- ræmi við tilfinningar hins mikla mannfjölda, sem tók þátt í þeirri kveðju athöfn. Allt bar þar vott um velvild og vináttu, og sýndi að fólkið var að kveðja velmet- inn bróður. Jón var fæddur 13. marz 1869 í Hrísdal, Miklaholtshrepp, Snæ- fellsnessýslu á íslandi; foreldr- ar hans voru hin velmetnu mannkosta og dugnaðar hjón, Jóhann Elíasson Straumfjörð og Kristbjörg Jónsdóttir, fluttu þau frá íslandi 1876 og til Milkeyjar það sama ár, þaðan til Engeyjar 1879, er það lítil eyja fyir vestan Mikley, þá með sterka starfs- krafta, ásamt drengjum sínum þremur; Jóhann Jón, og Kristján og tveimur dætrum: Ragnheiði og Astu, unnu þau það þrekvirki að breyta útliti eyjarinnar í blómsturskreytt ákurlendi. Þeir bræður þrír fengu þar sinn mikla þroska og þrautsegju við breytilega erfiðisvinnu. Hinn uppvaxandi lýður, varð að sætta sig við alþýðuskóla, því í þá daga voru ekki kringumstæður til að sitja lengi á skólabekk, eða að fá hærri mentun, svo fram- gjarnir námfúsir unglingar urðu að þroska sinn skilning með stöð- ugri sókn og leit í reynslunnar skóla, og var það oft hvíldarlítill bardagi með þátíðar ófullkomn- um vopnum og verjum, en oft við hin sterku náttúru öfl að etja, storma bylji og brimrót; skapaði það sterka vöða og hraustar hendur, og þá Skapgerð, sem ekkert óttaðist, en bauð öllum örðugleikum byrginn. Það var 24. oktober 1895, sem að gæfan gaf Jóni hina trygg- lyndu góðu og mikilsvirtu konu, Ingiríði dóttur Jóns og Þuríðar Bjamasonar og byrjuðu þau bú- skap að Fagratúni, sem var næsta land við heimili Jóns og Þuríðar; var það á vesturströnd Mikleyjar. I Fagratúni lifðu þau Jón og Ingiríður friðsælu og Ur borg og bygð starfsömu lífi þar til árið 1902 að þau fluttu til Grunnavatns byggðar, og urðu landnemar á s. ¥t 18-19-5 W., og á sama tíma tóku foreldrar Jóns land á sömu Section og var þar samvinna og samúð ríkjandi næstu 18 árin. Þaðan fluttu Jón og Ingiríður, nær Limdar á s.25-19-5 W., og eftir nokkur ár til Lundar, þar sem þau dvöldu til 1938 og fluttu þá vestur á Kyrrahafströnd, Vancouver, B.C. Þar bygðu þau sitt fimta og fullkomnasta heim- ili, með flestum nútíðar þægind- um, og á þeim tíma var sem ham- ingju dísin brosti við þeim, þau áttu fjóra dáðríka drengi: Jóhann Helgi Straumfjörð, kona hans María, eiga tvær dætur, stundar Jóhann gullsmíði í Seattle, Washington. Dr. Jón Vídalin Straumfjörð, kona hans Thorey, eiga þrjá drengi, er Dr. Jón talinn með bestu læknum í Astoria, Oregon, þar sem hann hefir starfað í mörg ár. Halldór G. Straumfjörð kona hans Anna, eiga eina dóttir. Júlíus B. Straumfjörð, kona hans Gladys, eiga tvö börn. Þessir síðastnefndu bræður eru fiski- kaupmenn í Vancouver, B.C. Þeir bræður hafa allir eignast sem arf, hina góðu hæfilegleika foreldra sinna og haldið áfram að ávaxta þann arf. Á hinum síðustu neyðartímum foreldra sinna, sýndu þeir og þeirra góðu konur hvað hreinir mannkostir, trygð og líknsemi geta létt og linað þrautir, og skapað hugfró; hlýjir straumar hafa einnig bor- ist frá bræðrum Jóns og þeirra konum og börnum. Jóhann og kona hans Björg eiga heimili í Blaine, Washington en Kristján og kona hans Karítas, í North Vancouver, B.C. einnig frá fjölmörgum öðrum vanda- mönnum og vinum. Síðustu æfistundirnar voru erviðar, og nálægt tveggja vikna tíma var hjúkrunarkona fengin, til að hjálpa Önnu konu Hall- dórs og Mrs. H. D. Dalman, hin síðastefnefnda var sönn vinkona þeirra hjóna og við burtför beggja, reyndist sem boðberi lí'knar og friðar. Til sönnunar því, sem að fram- an er sagt um dirfsku og dugnað Mr. og Mrs. Robert Younger frá Ottawa eru nýkomin til borg- arninar og dvelja hér um jólin. Mrs. Younger (Vera), er dóttir þeirra Mr. og Mrs. J. G. Johann- son, 586 Arlington Street. ♦ Haraldur Theodor Thompson, sextugur að aldri, varð bráð- kvaddur að heimili sínu hér í borg þann 21. þ.m.; hann var vinsæll maður, fæddur og uppal- inn í Winnipeg, og hafði starfað hjá T. Eaton félaginu í meir en aldarfjórðung; hann var jarðs- unginn frá Fyrstu lutersku kirkju þann 23. þm. af séra Valdimar J. Eylands. Auk ekkju sinnar, Hróðnýjar, lætur Haraldur Theodor eftir sig þrjú börn, svo og þrjú systkini, Henry í Flin Flon, Friðrik banka stjóra og Mrs. H. Einarson í Winnipeg. ♦ GJAFIR TIL BETEL Eftirfylgjandi gjöfum var safnað af kvenfélagi Frelsissafn- aðar í Argyle. Sent af Mrs. B. S. Johnson. Kvenfélag Frelsissafnaðar $15.00 Mrs. og Mrs. S. S. Johnson 5.00 Mr. og Mrs. O. S. Arason 5.00 Mr. og Mrs. Thori Goodmann 5.00 Mr. og Mrs. B. S. Johnson 5.00 Mr. Jónas Helgason 5.00 Mrs. J. K. Sigurdson 5.00 Mts. Emily Sigmar 3.00 Mr. Fred Sigmar 3.00 Mr. og Mrs. J. W. Christopherson 2.00 Dr. og Mrs. R. E. Helgason 2.00 Mr. og Mrs. R. Moore 1.00 HVAÐ GERÐU ÞEIR HEIMA í OKKAR UNGDÆMI Raula bögu, rissa á blað, rja sauði, stinga tað, tinda hrífur, tölta um tún, taka í nefið, sofa‘ á dún. Svoddan æfi sýnist mér, sóma vel fyrir hvern sem er. Með hrútspung, pytlu, sálmasöng, þeim sýndist ekki nóttinn löng. Suma gintu siglingar, sumum nægðu hillingar, sumir voru villingar, — víst samt flestir snillingar. Svona les ég söguna, svona raula ég böguna, — þegar Dauðinn ‘‘kveður í kút” ég kýs mér för til Snælands út. Mörg eru lönd í heimi hér, — hvar er ströndin sem af ber? Mest mig heillar feðra frón, frægt í listum, riti, sjón. Á Sunnudaginn sat ég við að “sjóða gleymdi að hlýða helgum tíðum, — hál er leið á slitnum skíðum. þetta, GUNNAR B. BJÖRNSON FÉ FENNIR Á JÖKULDAL Síðastliðið þriðjudagskvöld gerði illviðri mikið austur á Jökuldal. Skall norðan stormur á þá um kvöldið og fylgdi hon- um úrhellisrigning. Undir morg- uninn breyttist veðrið og gerði hörkuhríð. Stóð veður þetta allt til há- degis á miðvikudag,án þess að nokkurt lát væri á, en þá stytti skyndilega upp og gerði sæmi- legasta veður. Tíðindamaður Tímans átti í gær símtal við frú Önnu Einars- dóttur húsfreyju að Fossvöllum í Jökulsárhlíð og spurði hana frétta af veðrinu. Innarlega í Jökuldal varð fannfergið mest. Fennti fé á nokkrum bæjum í dalnum, og svo nokkrum tugum nam á þeim bæjum, þar sem flests er saknað. Vitað er um að margt fé hefir fennt frá Giljum, Hofteigi og Hjarðarhaga. Hefir margt fé fundizt dautt undan fönninni. Ekki er vitað um mik- ið tjón að öðru leyti af völdum þessa fárviðris, en þó munu nokkrar skemmdir hafa orðið á símalínum. Tíminn, 17. nóv. má geta þess, að eftir að hafa gengið undir hættulegan og stór- ari uppskurð, og áður en sárin voru gróin kom Jón flugleiðis frá Vancouver 10. júní, mætti segja til að kveðja tvær systur sínar hér á Lundar: Ragnheiði konu Ágústar Magnússonar, og Ástu konu Ingimundar Sigurðssonar; sagðist hann hafa fengið sterka löngun til að sjá þær og aðra vini sína, áður en að hann legði upp í hina síðustu löngu ferð. Heilsan leyfði ekki langa dvöl, 16. júlí för hann sömuleið aftur til Vancouver, en hann lagði ekki árar í bát, heldur byrjaði aftur að vinna fyrir tíma við sina fyrri smíðavinnu, sem var hans stærsta verklega nautn; var hann listfengur smiður, sérstaklega á fínt trésmíði; eru hans handverk og vönduðu munir dreifðir víða meðal viðskiftamanna og vina; sýna þeir hlutir hans mikla hag- leik og vandvirkni, og munu geyma hans minningu um lang- an aldur; samt mun dreengskap- argildi hans lifa lengur, sá arfur, sem aldrei fúnar, heldur flýtur áfram frá kyni til kyns. Á meðan að Jón dvaldi í Manitoba, tók hann mikinn og góðan þátt í þeim félagsmálum sem hans dómgreind sá að stefndu tiil umbóta og almenn- ings heilla; samverkamenn hans frá þeim tímum, minnast þess með einhuga þakklæti; en hjart- næmustu og stærstu þakkirnar berast héðan frá systrum hans sameinaðar tilfinningum ástvin- anna vestur á Kyrrahafsströnd. Vinir þínir þakka samfylgd góða þögn, sem ríkir varir litla stund; burtu líður lífsins dimma móða, ljóssins herra skapar endurfund. A.M. Mr. og Mrs. R. C. Rawlings 1.00 Miss Kristín Helgason 1.00 ALLS $58.00 Kærar þafckir, J. J. Swanson, féhirðir 308 Avenue Bldg., Winnipeg. ♦ Látin er nýlega hér í borginni Miss Margrét Eggertson, xúm- lega fimtug að aldri, dóttir Guð- valda heitins Eggertssonar mat- vörukaupmanns. Hún var jarðs- ungin frá Thompson’s. Miss Eggertson lifa tveir bræður hennar, Jón og Walter. Vígslualhöfn í Blaine Vígsluathöfn Elliheimilisins í Blaine verður haldin á heimilinu, laugardaginn 15. janúar 1949, byrjar kl. 1:00 e.h., allir sem á nokkurn hátt hafa stuðlað að því að byggingin er nú fuilgjörð, eru boðnir og velkomnir, og allir vin- ir þessarar stofnanar, alstaðar frá. The Icelandic Old Folks Home Inc. Einar Simonarson, forseti. Andrew Danielson, skrifari. Blaine, Washington. Desember 23., 1948. Nýbygging Elliheimilisins Grund tekin í notkun Hælið tekur nú um 250 vistmenn. UNDANFARIÐ HEFIR verið í smíðum viðbótarbygging við Elliheimilið í Reykjavík. Er henni nýlega lokið og hefir nú verið tekin í notkun. I tilefni af því bauð stjórn Elliheimilisins blaða- mönnum að skoða nýbygginguna í gær. Lýsti forstjóri Elliheimilis- ins, Gísli Sigurbjörnsson, henni og tildrögum hennar að nokkru. í febrúar 1947 átti forstjóri Elliheimilisins tal við hinn nýja borgarstjóra, Gunnar Thorodd- sen, um hugsanlega stækkun Elliheimilsins og lagði fyrir hann hugmynd um aðstoð frá bænum. Borgarstjóri tók þessu máli ágætlega og á fundi bæjarstjórn- ar Reykjavíkur nokkru seinna var samþykkt tillaga frá borgar- stjóra um að leggja fram kr. 200,- 000.00 á árinu 1947 og 200 þús. kr. á árinu 1948 til stækkunar Elli- heimilisins, enda gangi bæjarbú- ar fyrir um vistpláss allt að 90 % af heildartölu vistmanna. En þegar viðbótarbyggingin verður fullgerð, þá verður vist- pláss fyrir 250 vistmenn. Ákvað stjórn Elliheimilisins að taka þessari rausnarlegu aðstoð og var hafizt handa um framkvæmdir. VIÐ TVÖ (Kflir JAMES J, METGALFFE) Þá ellin báðum okkur nær, eg óska‘ að saman lifum bæði: í sælli eining sálir tvær, og sjáum lífsins dýrð og gæði. Að bæði saman sitjum þá með sigurró við hlýjan eldinn, er kveldið heiðan himinn á í hljóði dregur rökkur feldinn. Þar Okkur geti endurdreymt það alt, er saman lifað höfum, það háleitasta í huga geymt og hjartmætasta af lífsins gjöfum. Sé hárið orðið elligrátt og eins og snjór á höfði mínu, og silfurfegurð, sem þú átt, ég sjái vaxa í hári þínu. Þá tákni það að ljóst og leynt — þó lífsins kröfur séu brýnar — að hvört um sig það hafi reynt að hlífast ei við skyldur sínar. Eg óska‘ að þá sé ekki neitt, er ósamræmi geti valdið; með blessun alt til lykta leitt, er ljósin slokkna — fellur tjaldið. Sig. Júl. Jóhannesson þýddi Þórir Banldvinsson húsameist- ari, sem teiknaði starfs manna- húsið, gerði allar teikningar og hefir haft yfirumsjón með verk- inu. Árni Pálsson húsasmíðameist- ari, framkvæmdastjóri Bygg- ingafélagsins Smiður, Jón Eiríksson múrarameistari og Stefán P. Runólfsson trésmíða- meistari hafa séð um alla múr- og trésmíðavinnu. Þessi viðbótarbygging, sem nú hefir verið reist, er 1023 rúm- metrar að stærð, en gólfflötur er 123 fermetrar á hverri hæð. I kjallara eru tvö snyrtiher- bergi, margar og rúmgóðar geymslur fyrir matvæli og á- höld og ýmislegt hefir verið gert til þess að gera eldhússtörfin auðveldari og afköstin aukin til muna. — Á fyrstu hæð að vest- anverðu er baðherbergi, salerni, læknisherbergi aðgerðastofa fyr- ir lækni og bókasafn sofnunar- innar. Að austanverðu eru 4 stof- ur, hver fyrir tvo vistmenn. Á annarri hæð að vestanverðu eru tvær sjúkrastofur fyrir sjö sjúklinga, bað og salerni en að austanverðu eru tvær sjúkra- stofur fyrir sjö sjúklinga, bað og salerni, en að austanverðu eru 2 stofur fyrir fjóra vistmenn, en auk þess rúmgóð setustofa. Þegar þessi viðbót hefir öll verið tekin til notkunar, þá verða vistmenn 250 eins og lofað hafði verið. Að vísu bætast ekki nema 19 vistpláss við nú, en þar sem svo þröngt var húsrúm, þá var það ráð tekið að hafa sérstaka setustofu og á þann veg rýrnkað uih vistmenn, sem nú geta tefcið þá stofu til afnota. Viðbygging þessi ásamt öllum nauðsynlegum breytingum og búnaði mun kosta, þegar fullgerð er, nálægt 600 þúsund krónum,— en af þeirri upphæð hefir bæjar- stjóður lagt fram 400 þúsund fcrónur, eins og áður segir, — afganginn hefir stofnunin sjálf séð um. Tíminn, 18. nóv.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.